Lögberg - 31.10.1946, Blaðsíða 1
PHONE 21 374
,«vtotA
p"ÆT"
Xja.un Y'Ot'- P A Complele
Cleaning
Inslilulion
PHONE 21 374
U\#^’ Sot
Cleaning
Inslilulion
itA^
Aov
AíeA
„(?rs
59. ARGANGUR
WINNIPEG, FIMTUDAGINN 31. OKTÓBER, 1946
NÚMER 43
Karlakór Reykjavíkur í Winnipeg
Þessi einstæði viðburður í sögu Vestur-ís-
lendinga, heimsókn Karlakórs Reykjavíkur, stend-
ur fyrir dyrum. Samkvæmt áætlun kemur söng-
flokkurinn til Winnipeg, á sunnudagskvöldið 17.
nóvember, og situr veizlu hjá borgarstjóra og bæj-
arráði Winnipegborgar á hádegi næsta dag.
Stjórnarnefnd Þjóðræknisfélagsins hefir nú
gert ráðstafanir fyrir komu þessara góðu gesta til
Winnipeg, og viðtökum þeirra hér, að því leyti sem
til hennar kasta kemur. Hefir nefndin leitast við
að haga öllum undirbúningi þannig að sem hag-
kvæmast og ánægjulegast verði fyrir söngmennina
sjálfa, en þó um leið þannig að fólki voru yfirleitt
gefist færi á að sjá gestina og kynnast þeim per-
sónulega, eftir því sem tími er til. Hefir því verið
ákveðið, að á
MÁNUDAGINN 18. nóvember, milli kl. 3 og 5
skuli fara fram kaffidrykkja í samkomusal Fyrstu
lútersku kirkju á Victor St. Þar fær fólk tækifæri
til að koma og taka í hönd söngmannanna og
spyrja þá spjörunum úr. Kvenfélag Fyrsta lúterska
safnaðar stendur fyrir veitingum, sem kosta 50c
ÞRIÐJUDAGINN, 19. nóvember er ákveðið að
hafasamsæti og kvöldverð með karlakórnum strax
að lokinni söngsamkomu þeirra í Winnipeg Audi-
torium. Vegna þrengsla á hótelum borgarinnar er
ákveðið að hafa kvöldverð þennan í samkvæmis-
höll þeirri er nefnist “The Flame”, og er rétt fyrir
norðan Winnipeg vinstra megin við þjóðveginn er
keyrt er áleiðis norður frá borginni. Sjást Ijós-
turnar byggingarinnar greinilega frá þjóðveginum
svo ekki er um að villast. Eru salarkynni á þessum
stað hin ákjósanlegustu, og allur aðbúnaður hinn
bezti. Aðgangur að þessu samsæti kostar $2.25,
en auk þess verður fólk að sjá sér fyrir flutningi á
staðinn. Væntanlega verða fólksflutningavagnar
við hendina fyrir þá, sem þurfa þeirra með að lok-
inni söngsamkomunni. Verður það nánar auglýst
síðar.
Aðgöngumiðar verða til sölu hjá:
Davíð Björnsson, 702 Sargent Ave.
Guðmann Levy, “The Electrician”
685 Sargent Ave.
G. L. Johannsson, 910 Palmerston Ave.
KOMMÚNISTAR VINNA
KOSNINGAR
Síðastliðinn sunnudag fóru
fram almennar þingkosningar i
Búlgaríu, og lauk þeim á þann
veg, að hinn svonefndi föður-
lands flokkur, sem er einvörð-
ungu samansettur af Kommún-
istum, sem trúa á Rússa, fékk
ákveðinn þing-meirihluta; róstu-
samt varð hér og þar um landið
meðan á kosningunum stóð.
♦ ♦ ♦
GÍFURLEG MANNDRÁP
Svo má segja, að daglegir götu-
bardagar standi yfir í Calcutta
og fleiri borgum á Ind'landi, milli
Hindúa og Moslems fylkinganna;
mörg hundruð manna hafa látið
lífið og fjöldi mikill særst; lög-
reglan fékk ekki rönd við reist,
og nú hefir herinn verið kvaddur
á vettvans til þess að reyna að
skakka leikinn.
-f f f
HÁMARKSVERÐ
AFNUMIÐ
Bandaríkjastjórn hefir afnum-
ið hámarksverð langflestra lífs-
nauðsynja, að undanskildu sykri,
sírópi og hrísgrjónum; hámarks-
verð húsaleigu verður óbreytt
fyrst um sinn. Gera mun mega
ráð fyrir allhæikkuðu vöruverði
syðra eftir þessa nýju ráðstöf-
un.
Stórtjón í Höfðahverfi
af völdum skriðufalla
Fólk flýði af sumum bæjum
í Höfðalhverfi urðu stórmiklar
skemdir af völdum skriðufalla.
Á nýbýlinu Ártúni tók af þriðj-
ung áf öllu nýræktarlandi jarð-
arinnar. Tvær skriður féllu í
Miðgerði, sín hvorum megin við
bæinn. í Litla-Gerði eyðilagðist
mikill hluti af túninu og er jörð-
in með öllu óbyggileg.
I Fagrabæ féll skriða á túnið
og eyðilagði kartöflugarð og
talsvert af nýrækt. — Skriður
hafa fallið víða milli bæja og er
vegasamiband sveitarinnar rofið.
Fólk flýði úr sex bæjum síðast-
liðið simnudagskvöld.
Presturinn í Laufási telur
veðrið með norðanátt og stór-
rigningu það versta, sem komið
hefir hér um slóðir.
—Mbl. 26. sept. ’46.
-f -f -f
ÁLITLEGUR
REKSTARHAGNAÐUR
Korhhlöðufélögin í þessu fylki,
Manitoba Pool Elevators, hafa
nýlega haldið ársfund sinn hér
í borginni; stendur hagur þeirra
í slíkum blóma, að rekstarhagn-
aður yfir síðastliðið ár nemur
freklega miljón dollara, sem
jafnað verður niður milli hlut-
hafa; er hér um mikilvægar sam-
vinnustofnanir að ræða, sem
haft hafa djúp áhrif á hagsmuna-
mál fylkisins.
SENDIÐ BÖRNIN TIL
OKKAR
Við vitum að marsir foreldrar
æskja þess að börn þeirra læri
íslenzku; ekki einungis vegna
þess að það er menntun og menn-
ing í því fyrir hvern einstakling
að kunna fleiri en eitt tungu-
mál, heldur vegna þess að þeim
þykir vænt um íslenzkuna, og
finst að þeir skuldi hinum ís-
lenzku forfeðrum sínum það, að
afkomendur þeirra hér í álfu
læri málið.
En við skiljum líka að það er
erfiðleikum bundið, að kenna
öörnunum. Við vildum því
gjarnan me&a aðstoða foreldrana
við íslenzku kenslu barna þeirra,
Lauoardagsskólinn er byrjaður.
Við getum tekið á móti fleiri
nemendum er komnh eru. Við
söknum margra nemenda, sem
sótt hafa skólann undanfarna
vetur, og myndum fagna því að
sjá þá aftur í skólanum.
Ef til vill munu einh-
foreldrar segja: “Börnin mín
sóttu skólann í einn eða tvo
vetur og þeim fór lítið fram í ís-
lenzkunni.” Við biðjum þá for-
eldra að hafa í hu&a að íslenzkan
er flestum börnum hér d borginni
sem erlent tungumál, vesna þess
að þau heyra hana hvorki í
skólunum né í leikjum sínum.
Það er því ekki hægt að búast
við miklum árangri af kenslunni
ef börnin sækja Skólann óstöð-
ugt, eða aðeins í einn eða tvo
vetur, ekki sízt ef þau lesa aldrei
neitt á íslenzku heima. Kenslu-
stundirnar eru, því miður, svo
sárfáar — aðeins 20 til 25 á
vetri.
Flest þau börn, er sækja laug-
ardagsskólann stöðugt í 4 til 5
vetur, verða sæmilega læs og
skilja daglegt íslenzkt mál, geta
dálítið talað tunsu feðra sinna;
auk þess læra þau mikið af ís-
lenzkum söngvum.
Þau hafa þannig fensið nokkra
andirstöðu þekkingu í íslenzkri
tungu, sem þau geta seinna byggt
á, ef til dæmis þau ættu kost á
að nema málið í háskólanum-
Laugardagsskólinn er, í vetur,
í Sambandskirkjunni á Banning
Street. Byrjar kl. 10 á laugar-
daesmorgna. Kennarar eru þess-
ir: Miss Vilbors Eyjólfsson; Mrs.
Ingibjörg Jónsson; Mr. John
Butler. Miss Eyjólfsson annast
einnig um söngkensluna, með
aðstoð Mrs. S. B. Stefánsson.
I. J.
DEILIR Á RÚSSA
Winston Churohill fyrverandi
forsætisráðherra og leiðtcgi
stjómarandstæðinga í brezka
þinginu, flutti hvassyrta þing-
ræðu í fyrri viku, þar sem hann
deildi mjög á Rússa fyrir ásælni
þeirra og brigðmælgi; kvað þá
hafa svikið ýmsa þá samninga
sem gerðir hefðu verið á Yalta
ráðstefnunni, og nú hefði hann
nýlega frétt eftir ábyggilegum
heimildum, að Rússar hefðu 200
alvopnaðar herdeildir í þeim
hernumdu löndum, er þeir réðu
yfir; bar Mr. Churchill Rússum
það á brýn, að þeir hefðu gert
Pólland að ósjálfbjarga leppríki,
og hið sama væri í raun og veru
um Júgóslavíu að segja, því þar
logaði alt í rússneskum áróðri-
Balkanríkin hefðu orðið komm-
únismanum að bráð, og margar
aðrar þjóðir væru í hættu af
sömu ástæðu, ef eigi yrði að
gert í tæka tíð-
SKIPTAR SKOÐANIR
A ársfundi verkamannaflokks-
ins brezka, sem haldinn var í
bænum Brighton á Englandi
þann 25. þ. m., urðu harla skipt-
ar skoðanir um ýmis vandamál,
þar á meðal um stefnu verka-
mannaráðuneytisins varðandi
Rússland. Forsætisráðherrann,
Mr. Att'lee, deildi þunglega á
rússneska kommúnista vegna á-
róðurs þeirra vítt um heim, og
k v a ð verkamannaflokknum
myndi það óþyrmilega í koll
koma ef hann héldi áfram dekri
Sínu við rússneska kommúnista,
því í raun og veru væri þar um
fá sameiginleg hugðarmál að
ræða; en eftir því sem ábyggi-
legar fregnir herma, varð for-
sætisráðherrann í ákveðnum
minnihluta á fundinum. Fjöldi
mikill erindreka skoraði á ráðu-
neytið, að slíta þegar viðskipta-
og fulltrú^samböndum við
Franco-stjórnina á Spáni, en að
svo stöddu vildi Mr. Attlee ekki
heyra neitt Slikt nefnt á nafn,
og kvað það mál þurfa margfalt
meiri yfirvegunar við, en gert
yrði á einum fundi-
♦ ♦ ♦
KOL HÆKKA I VERÐI
Verðlagsnefnin í Ottawa hefir
tilkynt, að smálest linkola hækki
nú þegar í verði frá 60 centum
upp í $1.50 eftir gæðum; telur
áminst nefnd þetta hafa verið
óhjákvæmilegt vegna þeirrar
kauphækkunar, sem námumönn-
um hefði nýlega verið veitt.
♦ ♦ ♦
FERÐAMANN ASTRAUMUR
Náttúrufríðindaráðherra fylk-
isstjórnarinnar í Manitoba, Hon-
J- S. McDiarmid, hefir lýst yfir
því, að' í ár hafi ferðamanna-
straumurinn til Manitoba verið
meiri en nokkru sinni fyr, og að
tekjur úr þeirri átt muni nema
um tíu miljónum dala."-
♦ ♦ ♦
HÁ SLYSATALA
Frá því um síðastliðin áramót
og fram að 1. september s.l., hafa
289 manns í Manitoba látið 'lífið
af völdum slysa, en 3,677 sætt
meiri og minni meiðslum; þetta
er hærri slysatala en nokkru
sinni áður í sögu fylkisins; upp-
lýsingar um þetta efni koma frá
verkamálaráðuneyti fylkis-
stjórnarinnar.
♦ ♦ ♦
I
SJÖTIU OG FIMM ÁRA
AFMÆLl
Á þriðjudaginn í fyrri viku
átti spítalinn í St- Boniface, sem
er elzti spítali Manitobafylkis,
sjötíu og fimm ára afmæli-
Spítali þessi hefir unnið fylkis-
búum ómetarilegt gagn, og hefir
jafnan tekist hið bezta til um
starfrækslu hans.
♦ ♦ ♦
FORMAÐUR SENDINEFNDAR
Dómsmálaráðherra sambands-
stjórnarinnar, Rt. Hon. Louis St.
Laurent, er formaður canadisku
sendinefndarinnar í þingi sam-
einuðu þjóðanna, sem nú situr
á rökstólum í New York. For-
sætisráðherrann er þar einnig
viðstaddur til þess að sjá með
eigin augum hverju fram vind-
ur.
FELLUR EKKI 1 KRAMIÐ
Ræða brezka forsætisráðherr-
ans á dögunum, er í þá átt gekk,
að nauðsyn bæri til, að tekin
yrði til a'lvarlegrar íhugunar
synjunarákvæði öryggisráðs sam
einuðu þjóðanna, eða jafnvel al-
veg numin á brott, féll ekki í
kramið hjá rússneskum stjórn-
arvöldum; þykjast þau sjá í
þessu samsæri milli Breta og
Bandarikjamanna með það fyr-
ir augum, að veikja rússnesk á-
hrif á yfirstandandi þingi hinna
sameinuðu þjóða.
♦ ♦ ♦
ÞRJÁTIU OG ÁTTÁ MENN
TÝNA LIFI
Á miðvikudaginn í vikunni
sem leið, týndu þrjátíu og átta
brezkir sjóliðar lífi af völdum
sprengingar á tveimur tundur-
spillum undan ströndum Al-
baníu, en fjörutíu og fimm sættu
ýmiskonar örkumlum. Flota-
málaráðuneytið hefir tekið slys
þetta til rannsóknar, sem talið er
til dularfullra fyrirbrigða í sigl-
ingasögu Breta.
♦ ♦ ♦
BORGARSTRIÐIÐ I KINA
Hvernig að lokum fram úr
rœðst, varðandi borgarastríðttð
í Kína, 'sem sogið hefir merg og
blóð úr kínversku þjóðinni um
allmörg undanfarin ár, virðist
þó fremur verað að birta í lofti
upp á síðkastið; að minnsta kosti
hefir nokkuð linnt á orrustum
síðustu vikurnar, og sterkar til-
raunir í aðsigi mað það fyrir
augum, að reyna að binda enda á
borgarastyrjöldina; hefir Chiang
Kai-Shek sent forsprökkum
Kommúnista erindisbréf þar
sem skorað er á þá í nafnni kín-
verskrar þjóðrækni að leggja
niður vopn og hefja þegar við-
ræður um sáttargerð; nú er
mælt, að kommúnista foringjarn-
ir séu komnir á þá skoðun, a,ð
skynsamlegast muni vera, að
láta deilur falla . niður. Lýð-
veldisforsetinn í Kína kveðst
þess reiðubúinn að mynda þjóð-
stjórn er Kommúnistar eigi
sæti í.
Minningarguðsþjónusta
Minningarguðsþjónusta verður
haldin í Fyrstu Lútersku kirkju,
11. nóvember n.k. undir umsjón
Jón Sigurðsson félagsins. Verður
hún með sama hætti og verið
hefir undanfarin ár. Prestar og
söns'flokkar íslenzku safnaðanna
taka þátt í athöfninni; einnig
verður einsön&ur. Mr. Norman
Bergmann flytur erindi og minn-
ist þeirra úr hópi vorum sem
fórnuðu lífi sínu í tveimur ver-
aldar stríðum.
Samskot verða tekin til arðs
fyrir sjóð þann sem reglan,
Daugh'ters of the Empire, er nú
að mynda, og nefnist “IO.D.E.
Second War Memorial Scholar-
ship Fund.” Eins og mörgum er
kunnugt stofnaði reglan stóran
sjóð eftir fyrra stríðið, sem not-
aður var til þess að gefa frábær-
um námsmönnum tækifæri til
þess að stunda framhaldsnám í
Oxford os öðrum æðri menta-
stofnunum á Englandi. Þessi
sjóður íhefir orðið til marsfaldr-
ar blessunar og hafa notið hans
margir mikilhæfir menn sem oss
eru kunnugir, t. d. Dr. A. W.
Trueman, núverandi forseti Man-
itofoa háskólans, Dr. Watson
Kirkconnell, og Hatthew Halton,
og einnig tveir íslendingar, Capt.
Wilhelm Kristjánsson, frá Lund-
ar, sem starfar nú fyrir menta-
máladeild Manitoba, og Arni
Joihnson, Winnipeg.
Islendins-um ekki síður en öðr-
um verður því umhugað um að
hinn nýji sjóður vaxi os nái til-
ætluðum notum.
Jón sigurðssion félagið vonar
og óskar að almenningur sækji
þessa minningar athöfn, þar sem
minnst verður með söknuði og
lotningu hinna föllnu.
Nánar auglýst síðar.
♦ ♦ ♦
KREFJAST SAMEIGINLEGRA
YFIRRÁÐA
Rússnesk stjómarvöld krefj-
ast þess nú leynt og ljóst, að fá
jöfn yfirráð yfir Dardanellasundi
við Tyrki; fram að þessu hafa
Tyrkir ekki sinnt kröfunni, þótt
sýnt þyki að svarið verði nei-
kvætt.
TIL HELGU SUMARLIÐASON,
23. ágúst 1946.
Eg kem til þín að kvöldi dags —
og kýs mér lága stólinn þinn.
Þú kveikir vinlegt kertaljós,
en kyrrðin býður myndum inn.
— Þar fyrst er stúlka, fríð og glöð,
af fjarri strönd — við nyrsta haf.
Hún á þann kjark og kjarna í sál
er kalda norðrið ljómar af.
Næst kemur móðir, ör og ung,
— og umhverfið er stórt og nýtt.
En skyldan tendrar skilnings ljós
er skapar óðal bjart og hlýtt.
Þá koma margar myndir fram —
og margar sé eg gegn um ský.
En trú á æðra tilgang lífs
ljær tign og sigur raunum í.
—Þó níræð sért, með silfrað hár,
er sama lundin, föst og hraust.
Guð blessi hvert þitt æviár
með eftirdæmið gott og traust.
Jakobína Johnson■