Lögberg - 19.02.1947, Síða 4
4
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 19. FEBRÚAR, 1947
-----------Hogtoerg---------------------
Q«fl6 flt hvern fimtudag af
THE COLUMBIA PRESS, LIMITED
695 í'.argent Ave., Winnipeg, Manitoba
Utanáskrift ritstjórans:
EDITOR LÖGBERG
Í95 Sargent Ave., Winnipeg, Man.
Rltstjóri: EINAR P. JÓNSSON
Verð $3.00 um árið—Borgist fyrirfram
The ‘'Lögberg” is printed and published by
The Columbia Press, Limited, 695 Sargent
Avenue, Winnipeg, Manitoba, Canada.
Authorized as Seeond Class Mail,
Post Office Dept., Ottawa.
PHONE 21 804
Minningabrot úr
Íslandsförinni 1946
Pftir EINAR P. JÓNSSON
r
Morguninn eftir, er við risum úr
rekkju í Reykholti. var hellirigning lík-
ást því sem við Vestmenn eigum að
yenjast í Winnipeg þegar bezt lætur, og
um það leyti sem morgunverður var
framreiddur, var kominn til staðarins
Kristleifur á Stóra-Kroppi, hálfníræður
öldungur, glaður og gunnreifur og án
hinna minstu sjáanlegu ellimarka; fund-
um okkar hafði aldrei áður borið sam-
an, þó nokkur deili vissum við hvor á
öðrum; mér fanst eg standa í djúpri
þakkarskuld við Kristleif vegna bréf-
anna mörgu og skemtilegu. er birst hafa
eftir hann í jólablaði Lögbergs síðast-
liðinn aldarfjórðung. Kristleifur er
fræðaþulur mikill, ættfróður vel og hef-
ir samið f jölda ritgerða; meðal umfangs-
mestu ritsmíða hans má telja Héraðs-
sögu Borgfirðinga, mikið verk og gagn-
merkt um margt; hann gefur sig enn
við heyönnum og ann hugástum ís-
lenzku sveitalífi; honum varð tíðrætt
um Borgarfjarðarhérað, og fanst mér
það ekkert tiltökumál eins og fegurð
þess er fjölbreytt og sviphrein; en nú
kom séra Einar og bauð okkur að skoða
staðinn, því tvísýnt væri að við biðum
betri byrjar, eða hvenær rigningunni
létti af; fyrst skoðuðum við kirkjuna,
sem er laglegt og Hngjarnlegt hús, en
því næst hinn mikla héraðsskóla, sem
nú hefir verið starfræktur í 14 ár við
mikinn orðstír og góðan; er byggingin
svipmikil og stílhrein, og ber fagurt
vitni listrænni hugkvæmni Guðjóns
Samúelssonar, húsameistara ríkisins,
er gerði teikningar allar að byggingunni
og sagði fyrir um verk; skóli þessi er
ágætlega sóttur og nýtur úrvals kenn-
araliðs; við staðnæmdumst við Snorra-
laug, og skaut þá brátt upp í huganum
mynd hins mikla snillings, Snorra
Sturlusonar, sem laugin er kend við;
þess manns, sem orpið hefir fegurstum
bjarma á nafn íslenzka kynstofnsins
vítt um jarðir. —
Hvamm-Sturla átti margt barna, en
af þeim urðu nafnkunnastir bræður þrír,
Þórður, Sighvatur og Snorri; var Snorri
þeirra langyngstur; allir voru þeir vit-
menn og líklegir til mannaforráða.
Snorri ólst upp með Jóni Loftssyni í
Odda; að Jóni látnum, tók við búi í Odda
Sæmundur sonur hans, og bað hann til
handa Snorra Herdísar frá Borg á Mýr-
um, og fékk með hen'ni meiri auðlegð
en dæmi voru áður til á íslandi; bjuggu
þau á Borg unz Sriorri náði undir sig
Reykholti, en þar bjó hann jafnan síðan,
að undanskildum þeim vetrum, er hann
dvaldi með höfðingjum erlendis.
Snorri var valdamaður mikill, og
var hvað ofan í annað kosinn lögsögu-
maður, en slíkt embætti var jafnan talið
ein allra mesta virðingarstaða í landinu;
hann var einnig orðinn frægur fyrir rit-
störf sín, og hafði þá samið Edduna,
sem við hann er kend og kölluð Snorra-
Edda, sem gefur glögt yfirlit yfir goð-
sagnir íslendinga og Norðmanna; en á
árunum milli fimtugs og fertugs, ritaði
Snorri Heimskringlu, eða Sögu Noregs-
konunga, sem er heimsfrægt meistara-
verk, og hafa margir erlendir fræðimenn
kallað Snorra mesta mann íslands að
fornu og nýju.
Gissur Þorvaldsson, tengdasonur
Snorra, föðurlandssvikari, konungs-
sleikja og sifjaníðingur, dregur saman
lið mikið, ríður til Reykholts, og lætur
vega tengdaföður sinn nótt eina í
septembermánuði 1241. Hafði þeim
Hákoni og Gissuri komið saman um það,
að nauðsyn bæri til, að Snorra yrði rutt
úr vegi; liðugar sjö aldir hafa safnast í
faðm sögunnar síðan að Snorri leið;
hann stendur enn óbrotgjarn í Braga-
túni sem brennandi viti íslenzkrar
spakhyggju og snilli, og áður en langt
um líður verður afhjúpað í Reykholti
Snorralíkneski það, er Norðmenn á-
kváðu að gefa íslendingum; en varan-
legasti og virðulegasti minnisvarðinn
yfir Snorra, verður þó jafnan sá bauta-
steinn er hann sjálfur reisti sér með
ódauðlegum snildarverkum sínum í vit-
undarlífi íslenzku þjóðarinnar; en varð-
andi endurminninguna um Gissur Þor-
valdsson, rifjast ósjálfrátt upp vísa
Steingríms:
“Lubbamenni liggur þar,
lítiði á hvað jörðin bar:
upp hún skaut, um skálkinn fróð,
skollafingri og lokasjóð.”
Að loknum dagverði, kvöddum við
með þakklátum huga hin gestrisnu og
ágætu prestshjón í Reykholti og lögð-
um af stað norður á bóginn í sudda-
rigningu; eg sagði bílstjóra mínum frá
því, að mig langaði til að koma við sem
snöggvast á Hreðavatni og heilsa upp
á Vigfús Guðmundsson, þjóðkunnan
mann, sem starfrækir þar hressingar-
skála; hann dvaldi um hríð vestan hafs,
og mundi eg glögt eftir honum frá þeim
tíma; hann vildi gera okkur alla skapaða
hluti til geðs, og þótti ilt, að við gátum
ekki þegið hjá honum beina; en bílarnir
biðu ekki boðanna; nú var för heitið yfir
Holtavörðuheiði, og því jafnframt lýst
yfir, að eigi yrði staðar numið svo heitið
gæti, fyr en komið yrði að Reykjaskóla
í Hrútafirði; okkur þótti gaman að ferð-
ast yfir heiðina, þótt útsýnis nyti ekki
sem bezt vegna rigningarinnar, sem þó
var farin að smá-minka; fram með
tjörnunum á heiðinni gat að líta “hjarð-
ir á beit með lagði síðum”, flest bústnar
ær með vænum dilkum; á heiðinni gerð-
ist sá atburður, að einkabíll, sem var
svo að segja rétt á eftir*okkur fór úr
lagi; í honum voru ung hjón með lítið
barn; för þeirra var heitið til Blöndu-
óss; varð það nú að ráði, að við tækj-
um við konunni og barninu og kæmum
þeim til hins ákveðna áfangastaðar, en
maðurinn biði þess, að hann fengi gert
við bílinn, er einhvern ferðalang bæri
að, er slíku fengi til vegar komið; þetta
gekk víst alt eins og í sögu, því til
Blönduóss var hann kominn um kvöldið
um líkt leyti og við.
Er norður af Holtavörðuheiði kom,
fór útsýnið að hýrna og er bílarnir stað-
næmdust við Reykjaskóla var komið
glaðasólskin, er speglaðist undursam-
lega í draumlygnum Hrútafirðinum; í
skólahúsinu, sem teljast má sönn hér-
aðsprýði, og sett hefir styrkan menn-
ingarsvip á umhverfið, fögnuðu okkur
með veizlu séra Jón Guðnason á Prests-
bakka og hans tígulega frú; séra Jón er
bróðir séra Einars í Reykholti, áhuga-
maður mikill um kirkju- og þjóðfélags-
mál; kona séra Jóns er ættuð frá Brunn-
á í Helgafellssveit; eg þekti þessi mætu
hjón í fyrri daga og fagnaði því að eiga
þess kost, að taka í hendur þeirra á ný
eftir langa útivist; séra Jón bauð okkur
velkomin í bygðarlagið með fagurri og
hjartahlýrri ræðu, er við þökkum á okk-
ar fámælta hátt.
Eg hafði einhverju sinni endur fyrir
löngu gist á Stað í Hrútafirði og reið
ungum gæðing, sem eg hafði keypt í
Reykjavík af Hans pósti; hesturinn
fékk hnakksæri á ferðinni úr Reykja-
vík, og átti eg því ekki annars úrkosta
en fara í hestakaup við staðarhaldar-
ann. Blesi litli, sem eg skipti á, vann
árum seinn fyrstu verðlaun í kappreið-
um í Reykjavík, en Gráni, sem eg fékk
í staðinn, gafst upp í Fnjóskadalnum
og sálaðist úr brjóstveiki árið eftir.
Á leiðinni um Hrútafjörðinn fóru þau
Grettir ræðismaður og frú Lalah út úr
bílnum og gengu upp að bæ, sem nefnd-
ur er Oddstaðir; þau sögðust brátt
mundu koma til fundar við okkur í
Reykjaskólanum; eg vissi að Grettir
átti ættmenni á þessum bæ, en mundi
ekki í svipinn hvernig skyldleikanum
var háttað; en er við hittumst aftur,
sagði hann mér að þar byggi móður-
systir sín, Ásdís Jónasdóttir og maður
hennar Jónas Þorsteinsson.
Melar í Hrútafirði eru meðal stór-
býla bygðarlagsins; er eg kom í þessa
sveit í fyrra skiftið, bjó þar Jósep Jóns-
son, bróðir séra Jóns á Stafafelli, Finns,
fyrrum blaðamanns í Winnipeg og frú
Ingunnar Jónsdóttur frá Kornsá. —
Förinni var heitið til Blönduóss um
kvöldið; við fórum fyrir ne6an túngarð
á Sveinsstöðum, lögðum lykkju á leið
okkar niður í Vatnsdalshóla, sem eru
afar sérkennilegir og minna á huldu-
fólk; þaðan sáum við ofan í landnám
Ingimundar Gamla, Vatnsdalinn, sem
býr yfir ósegjanlegum töfrum og unaði;
nyrsti hóllinn í Vatnsdalshóla þyrping-
unni er Þrístapi, en þar
voru þau Friðrik og Agnes
hálshöggvin.
Nú var komið að Melstað,
þar sem séra Jóhann Briem
ræður ríkjum, ásamt sinni
virðulegu frú; ný stein-
steypukirkja var langt á
veg komin þar á staðnum í
stað timburkirkjunnar, sem
þá hafði fyrir nokkru fokið
út í veður og vind; nýja
kirkjan verður ljómandi
falleg, og munu einir tveir
Vestur-íslendingar hafa
minst hennar með gjöfum;
viðdvölin varð ekki löng, en
hún var eigi að síður yndis-
leg; nú var sól tekin að
lækka á lofti og vafði
hnjúka og hæðir purpura-
litum bjarma; yfir héraðinu
hvíldi mildur friður; friður,
sem íslenzkar sveitir einar
búa yfir; og nú vorum við
komin á Blönduós, þar sem
okkur hafði verið fyrribú-
in gisting á ágætu og vin-
gjarnlegu gistihúsi.
—Framh.
600 MILJÓNA GJAFASJÓÐUR
Stærsti gjafasjóður í heimi, fyr
og síðar, hefir nú fyrir skemstu
For
Fast Service
on
DRY CLEANING
DYEING - REPAIRING
use
Carry and Save Store
In Your Locality
or
Phone 37 261
Perth’s
888 SARGENT AVE.
verið staðfestur í New York. Mil-
jónaekkjan Rebekka Svope dó nú
fyrir skemstu og 'lét eftir sig 600
miljónir króna, og erfði systir
hennar áttræði alla þá fúlgu. Nú
hefir hún þegar ákveðið, að með
þessu fé sikuli stofna gjafasjóð
handa amerískum ebkjum og
gömlum, ógiftum konum, að sér
látinni. Vextirnir af þessu mikla
fé skulu skiptast milli hlutað-
eiganda einu sinni á ári.
-t-
Nýlega fundust blóm stráð á
torgið í Milano, þar sem lík
Mussolinis var 'hengt upp í gálga
eftir aftöku hans. Hjá blómun-
um voru spjöld, sem á var ritað:
Fasisminn er ekki dauður. Svart-
stakkarnir snúa aftur.
Velkomnir íslendingar á tuttugasta og
áttunda þjóðræknisþing ísl. í Winnipeg.
Crescent Creamery Co. Limited
Crescent mjólkurafurðir eru gerilsneyddar
MJÓLKIN, RJÓMINN OG SMJÖRIÐ
Crescent Creamery Co. Limited
542 Sherburn St., Winnipeg Sími 37 101
Verið velkomnir íslendingar til
starfs, staðfestu og dáða
a
tuttugasta og áttunda
þjóðræknisþing íslendinga
í Vesturheimi 1947
Keystone Fisheries Ltd.
Scott Block, Winnipeg
Sími 95 227
G. F. JÓNASSON, forstjóri.