Lögberg - 10.04.1947, Page 1
PHONE 21 374
y'O'P- ® A Complete
Cleaning
I istilution
60- ARGANGUR
PHONE 21 374
A Complete
Cleaning
Instilution
WINNIPEG, FIMTUDAGINN 10. APRÍL, 1947
NÚMER 15
NAKVÆMUSTU OG ALLRA NYJUSTU FREGNIR AF HEKLUGOSINU
'4- 4- 4- 4 ------------------------------------------------------*-----------
^rá sendiráði íslands í Washington, 2. apríl, 1947.
{ferra ritstjóri:
Eg vil hér með skýra þér frá því; að sendiráðinu
kefir borist svohljóðandi símskeyti frá utanríkisráðu-
^eytinu í Reykjavík vegna Heklugossins:
Heklugos hófst hálf-sjö laugardagsmorgun.
Hefir geysað mismunandi ákaft síðan Hraun-
straumur kominn suðvestur niður undir Gamla
Næfurholt, sem eyddist 1845. Annar aðal-
straumur fellur norðaustur eftir. Engin hætta
hraunflóð valdi neinu verulegu tjóni. Hinsveg-
ar hefir öskufall þegar gert mijdnn skaða í
Pljótshlíð þar sem sextán, seytján bæir fara
ef til vill fyrst um sinn í eyði. Umtalað niður-
skurð tvö þúsund sauðf jár. Askan fallið á geira
frá Heklu milli suðurs suðausturs, innfaldar
Vestmannaeyjar. Annarsstaðar lítið sem ekki,
en lausagrjót fallið víða. Enginn ótti við gosið
enda samgönguleiðir ágætar.”
Með beztu kveðjum,
bréfi frá Reykjavík, til
•ritstjóra Lögbergs
.^ann 4. þ. im., barst ritstjóra
égbergs bréf frá hr. J: Agúst
°hnson fyrrum féhirði við
Landsbanka Islands, og um eitt
skeið meðritstjóra Heimskringlu,
Par sem vikið er að Heklugosinu
nýja; bréfið er dagsett þann 31.
^arz, og er þar jjieðal annars
Pannig komist að orði:
Heklugosið er heldur í rénun i
da§: öskufall er minna. Sums-
staðar í Fljótshlíð, undir Eyja-
fjöllum og í Vestmannaeyjum,
varð öskulagið 4 þumlunga þykt;
§°smökkurinn náði hálfa áttundu
mdu í loft upp.
4-
Herra Benedikt Gröndal frétta-
ritstjóri Alþýðublaðsins í Reykja
sendi Lögbergi blaðaúr-
hppur, sem bárust því með
ugpósti á þriðjudagsmorgun-
lnn, varðandi Hekluigosið, og
^eð það fyrir augum, að veita
esendum Lögbergs sem greið-
astan aðgang að áminstum upp-
ýsingum, verða ummæli Al-
Pyðublaðsins og Tímans, prent-
uð UPP í heild.—
4-
*“lr Alþýðublaðinu:—
heklugosið
Eólki á bæjum í Þjórsárdal
Varð ekki svefnsamt í nótt vegna
ý^kjanna úr hinni alelda Heklu,
en glóandi hraunflóðið vall fyrir
augum þess niður vesturhlíðar
JíUsins og virtist í gærkvöldi
0mið niður fyrir Hestarétt, sem
j"r ýið fjallsræturnar, og um 20
Uómetra frá Asólfsstöðum.
raunflóðið sást fyrst er dimma
tok °g virtist fjallið þá alelda.
^ndur í Þjórsárdal í huguðu í
§®r að senda konur og börn brott
Ur Ualnum, en töldu þó ekki á-
stæðu til þess að sinni.
°ft hraun renni nú niður vest-
Urhh'ðar Heklu, er það skoðun
mQnna, að gosið sé enn þá meira
n°rðaustan í fjallinu, og þar sást
raun fyrst renna niður hlíðar-
Uar í gærmorgun, er flugvélar
ugu þar yfir. Mikla eldstróka
, ar har yfir í gaerkvöldi að sögn
ndans að Asólfsstöðum, en
^Ja fur fjallstindurinn var þá
lnn þykkum reykjarmekki.
j °skufall hefur verið lang sam-
^®a mest í Fljótshlíðinni og
andan við Markarfljót undir
THOR THORS.
Eyjafjöllum. Vindáttin ber mest-
an hluta öskunnar þar yfir, og
var vikur og öskufall orðið 3
þumlungar, þegar síðast fréttist
af innri bæjum í Fljótshlíð. All-
ur fénaður er þar hafður inni, og
hafa bændur ekki einu sinni á-
rætt að vatna honum vegna
hættu á eitrun í vatni af völdum
gossins. 1 Þjórsárdal, þar sem
öskufall er mjög lítið ennþá,
hafa bændur hins vegar haft fé
sitt úti af ótta við að gripahús
hrynji í jarðskjálftum, einkum
þar sem veggir eru hlaðnir.
Hinir miklu dynkir, sem voru
í gær í öllurn nærsveitum eld-
fjallsins, fóru vaxandi eftir því
sem leið á daginn. Bar öllum
saman um það í gærkvöldi, As-
ólfsstöðum, Holsvöllum og Selja-
landi og viðar, að dynkirnir
hefðu verið mestir um og eftir
klukkan sex. Var það og skoðun
bóndans á Ásólfsstöðum, að gosið
færi vaxandi með kvöldinu.
Hekla, drotning íslenzkra eld-
fjalla, vaknaði af aldar dvala rétt
fyrir klukkan sjö í gærmorgun,
og kom þá jarðskjálftakippur og
mikill dynkur heyrðist kl. 6.50
um gervalt suðurlandsundir-
lendi, í Vestmannaeyjum, víða
norðan lands og alt út til Gríms-
eyjar. Segja sjónarvottar, að svo
hafi virst sem fjallstoppurinn
springi og mikil reyksúla gysi i
loft upp. Hækkaði súlan ört og
náði yfir 10,000 metra hæð. Víða
í nærsveitum. t. d. í Marteins-
tungu, lék alt á reiðiskjálfi og
klukkur hristust á veggjum.
Vikur ok öskufall byrjaði i
Fljótshlíð á áttunda tímanum,
og tók þegar að dimma í lofti.
Vindáttin beindi öskunni og
reyknum fyrst og fremst í þá átt
og yfir til Vestmannaeyja, og
varð þar aldimmt eftir skamma
stund, svo að ekki varð lesið á
bók og Ijós voru kveikt í húsum.
Bifreiðar óku um með fullum
ljósum, en bátar sigldu með Ijós
um höfnina í eyjum. Töldu sjó-
menn, að þeir myndu varla finna
lóðir sínar aftur, ef þeir legðu
þær.
Flestir jöklar suður af Heklu
eru nú orðnir svartir af sóti og
ösku, en fjallið sjálft var orðið
autt um miðjan dag. Sólskin var
um morguninn í nærsveitum og
dró fyrir sólu í Fljótshlíð, undir
Eyjafjöllum og í Eyjum, en sums
staðar birti nokkuð eftir hádegið
og sá jafnvel til sólar aftur.
Vöxlur í Rangá.
All mikill vöxtur hljóp i
Rangá í gærdag og mun hafa
hækkað í ánni um alt að einum
metra. Þegar leið á daginn lækk-
aði þó vatnsborðið aftur. Vöxtur
í ánni er oft samfara Heklugos-
um.—Alþbl. 30. marz.
4
Úr Tímanum:—
HEKLUGOSIÐ
Hekla byrjaði að gjósa í
gærmorgun eflir 102 ára hlé.
Mikið gos og myrkur sunn-
anlands.
Lausi fyrir klukkan 7 í
gærmorgun heyrðisl gífur-
leg sprenging frá Heklu.
Fylgdi henni snarpur jarð-
skjálfíakippur, sem náði um
ali Suðurland. Þegar á efiir
gaus mökkur mikill upp úr
Heklu og náði hann fljói-
lega' 7—8 km. í lofi upp.
Síðan hefir siöðugt verið
mökkur yfir Heklu og hefir
hann sézi greinilega frá
Reykjavík. Jaíníramt heyr-
asi stöðugi drunur og dynk-
ir frá Heklu og hafa þeir
heyrsi víða um land og jafn-
vel norður í Grímsey og iil
Vesifjarða. Yfir öllu Suður-
landsundirlendinu liggur
dimm móða og í Rangár-
vallasýslu var myrkur í gær.
GOSIÐ SÉÐ ÚR LOFTI
Frásögn Guðm. Tryggvasonar.
Pálmi Hannesson rektor
gekkst fyrir flugleiðangri austur
til Heklu fyrir hádegi í gær, til
að athuga úr lofti hið stórfeng-
lega gos, sem þá var byrjað fyr-
ir fáum klukkustundum. Lagt
var af stað kl. 10.26 og var flogið
í Dakotavél frá Flugfélagi Is-
lands.
1 leiðangrinum tóku þátt, auk
Pálma rektors, Eysteinn Jónsson
mentamálaráðherra, Hermann
Jónasson alþm., Brynjólíur
Bjarnason alþm., Guðm. Hlíðdal
símamálastjóri, náttúrufræðing-
arnir Guðmundur Kjartansson
og Sigurður Þórarinsson, frétta-
menn frú útvarpi og blöðum o. fl.
Tæplega er hægt að hugsa sér
betra skygni heldur en var hér
í gærmorgun, enda sást gos-
mökkurinn úr Heklu greinilega
frá Reykjavík.
Flogið var af Reykjavíkurvell-
inum beina leið austur yfir Mos-
fellsdal, Mosfellsheiði, Þingvalla-
vatn og Grímsnes og þaðan beint
að Heklu. Að jafnaði var flogið
í ca. 2200 feta hæð, en þegar nær
dró eldfjallinu, hækkaði vélin
flugið upp í 7600 feta hæð.
Eins og geysimikið ský
Strax þegar komið var austur
yfir Mosfellsheiði, sást gosmökk-
urinn greinilega, og mætti helst
líkja þeirri sjón við ferlega út-
syinningsskýjaklakka. Mökkur-
inn teygir sig upp í á að giska
40 þúsund feta hæð og hallast
lítið eitt suður á við, undan norð-
anáttinni, en yfir Suðurlands-
undirlendinu frá Eyjafjöllum
vestur undir Hvítá og á haf út,
hvílir misturmóða, módökk í
grend við fjallið, en þynnist og
lýsist eftir því sem fjær dregur.
Á hællusvæðinu
Það varð þegar ljóst, er komið
var austur að Heklu, að engin
leið var að fljúga kringum fjall-
ið, því að suður af því var algert
myrkur og stórhríð af kolsvartri
eldfjallaöskunni. Flugvélin
sveimaði því að norðan, vestan
og austan við fjallið. Fyrst var
ekki komið öllu nær gígnum en í
10 km. fjarlægð, en næst mun
vélin hafa komist í 3—4 km. fjar-
lægð frá gosinu, og er það óneit-
anlega ekki hættulaust, því að
grjótflugið upp úr gígnum er
með fádæmum.
%
1 suður, nokkuð í suðaustur og
langar leiðir suðvestur frá Heklu,
er landið að þekjast svartri ösk-
unni, og er það ýmist svart eða
grálleitt yfir að sjá. Tindafjalla-
jökull má til dæmis heita alveg
svartur. En þá að þessi svarta
ábreiða veki óneitanlega ugg og
eftirtekt, er það þó fyrst og
fremst fjallið sjálft, gígurinn,
gosrriökkurinn í ferlegum bólstr-
um og hnyklum, og glóandi
hraunstraumarnir, sem seiða
augað og athyglina til sín.
Niður norður- og norðaustur-
hlíðar Heklu renna tveir hraun-
straumar, og er a. m. k. annar
þeirra fnargra kílómetra breiður.
Upp af hrauneifum þessum legg-
ur ryðbrúnan reyk af brunnum
sandi og grjóti. Eins og geta má
nærri, er snjór sá, er á fjallinu
hefir legið, að mestu bráðnaður,
og hefir af því orðið jökulhlaup
niður í Rangárbotna. Athygli
vekur það, að innan um brúnar
hraungufurnar og gráa gosmekk-
ina má sjá háa, hvíta gufustróka
víðsvegar um norðvesturhlíðina,
líkast því þegar reykir stíga upp
af stóru hverasvæði. Er um
tvennt að ræða, að þarna séu að
gufa upp síðustu leifarnar af
vatni og snjó, eða að þarna hafi
opnast sprungur og glufur, sem
heitar gufur úr iðrum jarðar
rjúki upp um.
Eldhaf
Nokkru eftir að komið var
austur, var sem gosmökkurinn
þynntist snöggvast að norðan-
verðu og gat þá að líta eina hina
ægilegustu sýn. sem mannlegt
auga fær séð. Þar sem revkurinn
hvarflaði frá, kom í ljós dumb-
rautt eldhafið upp úr gígnum og
af heljar-björgum, sem þeyttust
mátti þá greinilega sjá þétta hríð
í sífellu svo hátt, sem séð varð.
Munu allir sjónarvottar sammáia
um, að forfeður okkar, sem töldu
Heklugíga reykháfa Helvítis,
hafi verið mikið vorkunnarmál
að hallast að fyrgreindri skoð-
un. —
* *
Eftir að flugvélin hafði sveim-
að í grend við Heklu rúma
klukkustund var haldið heim-
leiðis og lent á Reykjavíkurflug-
velli klukkan hálf eitt.
Þeir, sem tóku þátt í ferðinni,
munu minnast hennar alla ævi,
því að jafn hrika-stórfenglega
sýn og 40 þúsund feta háan, bik-
svartan gosmökkinn á aðra hönd
og mjallhvít öræfin, böðuð í há-
degissólinni, á hina, getur eng-
inn látið sig dreyma um, nema
sá, sem séð hefir.
FUGLAR FLÝJA TIL HAFS.
ÓTTAST AÐ FISKUR HVERFI
AF MIÐUM.
í Vestmannaeyjum fanst
snöggur jarðskjálftakippur laust
fyrir kl. 7 í gærmorgun, og á 8.
tímanum varð vart við tvær
hræringar. Um svipað leyti sást
gosmökkurinn í norðri, en brátt
gerðist svo dimmt af mistri og
öskufalli, að hvorki grilti í Helga-
fell eða Heimaklett. Unnið var
við ljós allan daginn og bílar
óku með ljósum.
Framan af deginum féll gróf-
gerður sandur, þungur í sér, svo
að hann sekkur í vatn, en þetta
breyttist þegar leið að kvöldi,
öskufallið minkaði og var það
einkum fíngert duft, sem þó sær-
ir augun. Öskufallið var orðið
það mikið kl. 7 í gærkvöldi, að
öskulagið var farið að hrynja af
sjálfsdáðum af meðalbröttum
húsaþökum.
Allan daginn heyrðust þungir
dynkir og drunur frá Heklu.
Bátar fóru á sjó í gærmorgun
og fiskuðu ágætlega í fyrstu, en
svo var sem að fiskurinn hyrfi
alveg af miðunum. Til dæmis
fékk einn bátur mjög gott tog um
morguninn og reyndi síðan aftur
á sömu slóðum í tvo tíma, en
fékk þá aðeins einn fisk.
Fuglar flýja frá Eyjunum í
stórhópum, suður um haf.
—Tíminn 30. marz.
Frá prestsvígsludegi Péturs kandídats Sigurgeirssonar
Myndin er af vígsluveizlu-gestum heima hjá biskupshjónunum. Snæddur var kvöldverður að kvöldi vígsludagsins,
en vígslan fór fram kl. 10 f. h. Barst Pétri ósköpin öll af heillaóskum og blómum. Myndin er tekin í borðstofunni af
Vigfúsi Sigurgeirssyni ljósmyndara. Á myndinni er þetta fólk:
Fremsla röð (talið frá vinstri)—Guðlaug Sigurgeirsdóttir; Sigurveig, kona séra Sveins Víkings; Rannveig, kona
Vilhjálms Þór; séra Pétur; Sigurgeir Sigurðsson, biskup; biskupsfrú Guðrún Pétursdóttir, Bentína, kona séra Friðriks
Hallgrímssonar; Þórunn, kona séra Sigurjóns Árnasonar; prófessor Ásmundur Guðmundsson.
Miðröð—Svanhildur Sigurgeirsdóttir; Ingibjörg, kona séra Jóns Thorarensen; Dagný, kona séra Jóns Auðuns;
Bryndís, kona séra Árna Sigurðssonar; Laura, kona Magnúsar Sch. Thorsteinssonar; Magnús Sch. Thorsteinsson, forstj.;
Vilhjálmur Þór, forstj.; fyrv. dómsprófastur Friðrik Hallgrímsson; fríkirkjuprestur Árni Sigurðsson, vígslubiskup
Bjarni Jónsson; séra Sigurjón Árnason; Steinunn, kona prófessors Ásmundar; Benedikta, kona prófessors Magnúsar;
* Þóra, kona séra Jakobs Jónssonar
Aftasla röð—iséra Jón Thorarensen; séra Jón Auðuns; prófessor Magnús Jónsson; séra Sigurbjörn Ástvaldur Gísla-
son; skrifstofust. séra Sveinn Vikingur; séra Jakob Jónsson; Sigurður Sigurgeirsson.