Lögberg - 10.04.1947, Side 2
2
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 10. APRIL, 1947
Það ætti að vera skólaskylda
hverrar stúlku að læra að ala upp börn
Síeingrímur Arason heima efiir 6 ára fjarveru erlendis.
* * *
í Tujunga-hæðunum rótt norðan við Los Angeles er lítið þorp.
Fyrir einu ári ók eg upp í þessar hæðir. Degi var tekið að halla.
Ekki blakti hár á höfði og skýskaf sást hvergi á lofti. Það var ekki
óvenjulegt á þessum hæðum. I níu mánuði kemur þar ekki dropi
ur lofti. — Eg nam staðar við lítið og laglegt hús á óræktuðu gras-
lendi. Hér var landnemi með íslenzkt blóð í æðum að nema nýja
jörð. r
í vestri var sólin að setjast. Það var eins og, hún hefði setzt
andartak á Coustal Range-fjallabrúnina til þess að varna því með
hinum dimmrauðu geislum sínum, að skuggsýnt yrði í San Fer-
nando dalnum.
I þessum heillandi Ijósaskipt-
um voru tveir menn að verki rétt
utan við húsið. Annar var land-
neminn Steinn Þórðarson raf-
vírki. Hinn maðurinn, klæddur
samfesting verkamannsins, var
Steingrímur Arason rithöfundur
og uppeldisfræðingur, sem þar
var staddur um stundar sakir hjá
fósturdætrum sínum.
Steingrímur lagði frá sér skóíl-
una, og brátt höfðum við sökt
okkur niður í viðræður. um það,
er á dagana hafði drifið. Hin
“kaliforniska” sól seig bak við
fjöllin, og nótt Kyrrahafsins dró
ljósbláan blævæng yfir Tujunga-
hæðimar.
-f
Það var haustið 1940, sem þau
hjónin Steingrímur Arason og
frú Hansína Pálsdóttir lögðu leið
sína í vesturátt. Árin 1916 og 20
hafði Steingrímur dvalið við
rannsóknir í uppeldisfræðum við
Columbia háskólann, og þá hlot-
ið mentastigið Bachelor of
Scienee. Nú lagði hann aftur af
stað til þessa elsta kennarahá-
skóla, sem til er, til þess enn að
kynna sér nýjungar í uppeldis-
fræði.
Margir af hinum gömlu and-
ans mönnum frá 1920, voru þá
horfnir af sjónarsviðinu. Var
Steingrími það sársaukaefni, að
sjá þá ekki lengur í kennara-
stólnum. M. a. saknaði hann
prófessors John Dewey, sem var
heímsfrægur á þeim árum, og
einna mest vitnað 1 af uppeldis-
fræðingum, hvort sem var í
Evrópu eða Ameríku.
John Dewey hafði fundið upp
hið svonefnda “Gary”_kerfi
(kent við smábæ vestur í Kletta-
fjöllum, þar sem Dewey var
kennari). Kjörorð þessa kerfis
eru: Vinna, — leikur, — nám.
Hefir Steingrímur kallað þessa
•aðferð á íslenzku: Viðfangsað-
ferðin.
-f
Jafnframt því sem Steingrimur
Arason fékst við rannsóknir sín-
ar í bókasafni skólans og hlust-
aði á fyrirlestra skrifaði hann
tvær bamabækur til þess að
kynna ísland fyrir •amerískum
bömum. Heita þessar bækur:
“Smoky Bay” (Reykjavík) og
“Golden Hair” (Gullna hárið).
Hlutu þessar bækur góða dóma
og hefir Steingrímur fengið
margt þakklætið frá lesendum,
er hafa heillast af efni þeirra.
Auk þessa aðstoðaði Steingrímur
Vilhjálm Stefánsson við samn-
imígu hafnsögumannabókar um
Norður-lshafið fyrir ameríska
flotann.
Af eðlilegum ástæðum kynti
Steingrímur Arason sér samtök
og samstarf kennara í Ameríku.
Strax upp úr fyrra stríði skor-
uðu kennarasamtökin á stjórn-
málamenn og leiðtoga þjóðanna,
að gefa njeiri gaum að uppeldis-
málum til að efla alþjóða sam-
vinnu og bróðurhug. En foringj-
ar þjóðanna sintu lítt uppeldis-
málum, nema Þjóðverjar, Japan-
ir og ítalir. Þeir skildu þýðingu
uppeldisins, og færðu sér það
óspart í nyt á neikvæðan hátt,
eins og þegar er komið í Ijós.
-f
Steingrímur tók þátt í fjórum
ársþingum kennara (1943, 44, 45
og 46). A þinginu í fyrra, sem
stóð yfir í hálfan mánuð, var
stofnað alþjóðasamband kenm-
ara, og voru þar fulltrúar frá
flestum löndum svo og félaga-
samtökum kennara*
Var leitað til fulltrúa um hvað
leggja bæri sérstaka áherzlu.á til
þess að tryggja varanlegan frið
í heiminum. Steingrímur Arason
svaraði: Faðerni Guðs, — bróð-
erni mannanna. A þessu stofn-
þingi alþjóðasamtakanna flutti
Steingrímur Arason fyrirlestur
um uppeldismál á Islandi fyr og
nú, og sýndi (slenzka kvikmynd.
•f
“Eg hefi tröllatrú á uppeldi til
þess að bæta mannkynið,” —
sagði Steingrímur. Við vorum
að rabba saman heima hjá hon-
um. “Ennþá er ekki hægt annað
að segja en að við séum á byrjun-
arstigi í uppeldismálum. Sér-
staklega er uppeldi barnsins á-
bótavant á fyrstu sex árunum.
En á þeim árum er mikið undir
hendingu komið, hvaða áhrif
verka á barnlð. En þá er þó að
skapast grundvöllurinn að sál-
arlífi þess. Því tel eg það hina
merkilegustu nýjung að koma á
fósturskólum í East End í Lon-
don, sem Grænaborg var sniðin
eftir. Þar er reynt að hafa áhrif
á barnið, áður en það kemur á
skólaskyldualdur”.
“Þá vil eg taka það fram, að
réttast væri að gera hverja ein-
•ustu skólastúlku skylda til að
læra það mikið í hagnýtri sálar-
og uppeldisfræði, er geri hana
hæfa til þess að ala upp börn á
sem bestan hátt.”
“Sálarfræðingar líta nú svo á,
að skapgerðin sé meira komin
undir umhverfinu, sérstaklega á
fyrstu vaxtarárum barsins, held-
ur en meðfæddum arfi. Þetta
er gagnstætt því, sem almenn-
ingur hefir haldið. Flestir hafa
álitið, að upplagið væri svo ríkt
í eðli manns, að því yrði ekki
þokað. Mun ástæðan vera sú,
að útlit og líkamsbygging gengur
oft mikið í erfðir og sömuleiðis
vitsmunir. En afstaðan til ann-
ara manna og siðferðistilfinn-
ingar eru að mestu leyti mótað-
ar af því, sem að baminu snýr.”
“Sú hugmynd um slæma eðlis-
hætti, sem erfðir frá einhverjum
forfeðrum, hefir oft haft ill á-
hrif á uppeldi bama. Ef barn-
ið líkist mjög einhverjum ó-
happamanni í ættinni að útliti,
hættir þeim fullorðnu við að
álíta, að hann sé eins að öllu
leyti. Afleiðingin verður oft sú,
að hinir eldri færa þannig til-
finningar sínar um þann frænd-
ann eða forföðurinn yfir á barn-
ið án þess að það hafi áskapaða
þá illu eiginleika, sem það er á-
sakað um.”
“Þegar heimurinn er á þeim
vegamótum að velja milli styrj-
aldar eða varanlegs friðar og
kristilegs bræðralags, þá er það
fyrst og fremst uppeldið, sem
getur orðið til þess að koma þess-
ari framtí ðarhugsj ón í fram-
kværnd. Verða kirkja, skóli og
heimili að keppa sameiginlega
að því að láta kærleikshugsjón
Meistarans mikla rætast meðal
okkar. Og það eru hin fyrstu á-
hrif, og ekki hvað sízt hin trúar-
legu áhrif, sem eiga að skapa
grundvöllinn er ævilöng heill og
hamingja mannsins hvílir á.
Það var orðið æði skuggsýnt.
Frú Hansína kom og kveikti ljós
í stofunni. Steingrímur stóð á
fætur og bjóst til ferðar inn í
Flugbréf
frá Reykjavík
Frá fréllarilara Lögbergs
í Reykjavík. 28. marz 1947.
*
Duílungafull veðráila.
Einmuna veðurblíða var um
alt Island í febrúarmánuði, og
voru sólskinsstundir þrefalt
fleiri en á venjulegu ári, en úr-
koma aðeins f jórðungur af meðal
tali 30 ára, að því er Veðuirstof-
an í Reykjavík hermir. A þetta
fyrst og fremst við um. Suður-
land.
Föstudaginn 21 marz brá þó út
af þessu, og skall á stórhríð um
mestalt Suðurland og teptust
samdægurs allar samgöngur
kringum Reykjavík og mjólkur-
flutningair til bæjarins urðu
erfiðir. Snjókomunni hélt svo
áfram næstu daga og teptust
flugsamgöngur við landið, þar
sem ókleift var að lenda flugvél-
um í Keflavík eða Reykjavik
fyrir snjóþyngslum.
Það bar til tíðinda í þessu of-
viðri, að snjóflóð sópaði burt í-
búðarhúsinu Karlsá við Selja-
landsveg hjá Isafirði, og kona ein,
sem var í húsinu, sópaðist með
því niður að fjöru. Þar var hún
gbafin upp úr snjónum lítið
meidd. Annað snjóflóð skamt
frá Isafirði sópaði með sér fjór-
um sumarbústöðum
Þá bar það við í stórhríð þess-
ari, að barn fæddist í bifreið á
leiðinni frá Geithálsi til Reykja-
víkur. Bjó konan í sumarbústað
skamt frá Geithálsi, og var hún
á leiðinni á sjúkrahús í Reykja-
vík, er hún ól sveinbarn.
Skömmu síðar bilaði þó bifreið-
in og varð að flytja konuna og
barnið yfir í aðra bifreið í miðri
hríðinni. Alt tókst þetta vel og
konu og barni líður vel.
Fjórir íarast í flugslysi.
Tvær konur og tveir menn fór-
(ust fimitudaginn 13. rnarz, er
Grumman flugbáti félagsins Loft
leiðir h.f. hvolfdi við Búðardal í
Dalasýslu. Báturinn var að hef ja
sig til flugs, er hann hrapaði í
sjó niður. I honum voru sjö
farþegar og flugmaður, og fótrust
fjórir farþeganna, en hinir björg-
uðust á einhvern hátt út úr bátn-
um. Þeir, sem fórust, voru: Elísa-
bet Guðmundsdóttir veitinga-
kona í Búðardal, Magnús Sigur-
jónsson frá Sælingsdalstungu i
Dölum, María Guðmúndsdóttir
frá Reykjavík (öldruð kona) og
Einar Oddur Kristjánsson gull-
smiður á Isafirði.
Ekki er svo að sjá, að þetta slys
hafi haft alvarleg áhrif á eftir-
spurn eftir flugferðum á Islandi.
Tvö flugfélög starfa nú á Islandi
og halda uppi reglubundnum
ferðum milli ýmissa staða á land-
inu. Flugfélag Islands notar
aðallega Douglas Dakota flug-
vélar í ferðum til Akureyrar og
tekur flugið sjálft þangað aðeins
eina klukkustimd, en ferðir til
flugvallanna aðra stund. Félag-
ið Loftleiðir h.f. á allmarga litla
Grumman flugbáta, sem geta lent
á flestum fjörðum og halda uppi
ferðum við Vestfirði, Austfirði,
Siglufjörð og Vestmannaeyjar,
en þar er nú allgóður flugvöllur.
aorgina. Fyrir einu ári hefði það
verið borg Englanna (Los
Angeles) við Kyrrahafið. Nú var
>að borg Ingólfs, Reykjavík. Þvi
að í stað Tujunga-þorpsins var
kominn Skerjafjörður, í staðinn
fyrir hús landnámsmannsins, —
Baugsvegur 30.
Steingrímur Arason og frú eru
comin heim eftir sex ára útivist.
Veri þau hjartanlega velkomin!
— íslenzka þjóðin væntir mikils
af hinum mikla gáfu- og lær-
dómsmanni, og fagnar því, að
i íann skuli vera kominn heim til
>ess að leggja uppeldismálum
jjóðarinnar liðsinni sitt. — P.
—Kirkjublaðið,
27. janúar, 1947.
Reglulegar flugferðír um
ísland.
Allmikil tíðindi hafa það þótt
hér, að ameríska flugfélagið
American Overseas Airlines hef-
ir reglulegar •flugferðir frá New
York um Keflavíkurflugvöllinn
til Stokkhólms. Flaug fyrsta
flugvélin sem skírð var “Flagship
Reykjavík” yfir hafið fyrir
nokkru og var með henni margt
gesta, meðal annars Vestur-Is-
lendingarnir Grettir ræðismað-
ur frá Winnipeg, Árni Hélgason
ræðismaðuir frá Chicago, Georg
Östlund og fleiri. Islenzkum
blaðamönnum var boðið í fyrstu
ferðina til Svíþjóðar og Banda-
ríkjanna, og amerískum blaða-
mönnum og sænskum og norsk-
um fréttamönnum var boðið til
íslands. Mikill fjöldi Islendinga
hefir beðið ujp far með hinum
miklu flugvélum þessa félags,
bæði til Bandaríkjanna, Kanada
og Norðurlanda.
Winnipegbúi í Reykjavík
Skákmeistari Kanada, piltuir-
inn Yanofsky, dvaldist nýlega
all-lengi í Reykjavík, og tefldi
við beztu skákmenn Islend-
inga, og varð Yanofsky nr. 1 og
Wade nr. 7 á mótinu. Skáksnild
Yanofskys vakti mikla aðdáun
meðal Islendinga.
Ríkissíjórnin tekin iil starfa.
Fyrstu stóraðgerðir hinnar
nýju ríkisstjórnar Stefáns Jó-
hanns Stefánssonar eru nú
komnar fram á alþingi. Hefir
stjórnin í hyggju að setja á stofn
fjárhagsráð, sem hafi með hendi
stjórn á fjárfestingu (capital in-
vestment), gjaldeyrismálum, inn-
flutningi og útflutningi og tryggi
áframhaldandi nýsköpun at-
vinnulífsins.
Vísitala framfærslukostnaðar
(iildex for cost of living) komst
um hríð upp í 316, en stjómin
gerði þegar ráðstafanir til þess
að lækka hana niður í 310 og þar
mun verða reynt að halda henni.
Verðlag á tóbaki og áfengi hef-
ir nýlega hækkað mikið á Islandi
og kostar pakki af amerískum
sígarettum nú krónur 4.80 ($1.00
er kr. 6.50).
ísland skógi vaxið?
Mikill áhugi hefir verið á skóg-
rækt á íslandi á síðari árum, og
hafa verið settar á stofn margar
skógræktarstöðvar. Hin stærsta
hefir nú tekið til starfa að Tuma-
stöðum í Fljótshlíð. Menn hafa
verið sendir alla leið til Alaska
tll að finna trjátegundir, sem
vaxið geti á Islandi. Til dæmis
mun sitka-greni frá Alaska vaxa
% metra á ári hér á landi. Er
ekki ólíklegt að á nokkrum næstu
mannsöldrum verði með aðstoð
þekkingarinnar hægt að klæða
Gamla Frón aftur grænum skógi.
Ben. Gröndal.
Lýðræðið á tungu
vitringanna
“Ef frelsi og jafnrétti er helzt
að finna í lýðræðisskipulaginu,
eins og sumir hugsa, þá er raun-
veruleikann að finna þegar allir
einstaklingar þjóðfélagsins taka
jafnan og sem mestan þátt í
stjórninni.”—Aristotel.
* *
“Lýðræðið er ekki þvingun að
ofan, heldur miðar það að borg-
arastjóm. Það er ekki pólitískt
hugtak, heldur miklu frekar
heimsskoðun og lífsskoðun, sem
stefnir að því. að hver einstakl-
ingur. þjóðfélagsins beri virð-
ingu fyrir öðrum einstaklingum.
Lýðræði er boðberi réttlætis.
—Masaryk.
* *
Lýðræðið, eins og það er full-
komnast, merkir miklu meira en
aðeins stjórnskipulag. Það er
þjóðfélagsskipulag, sem snertir
samskipti allra þegnanna. Það
er skipulag, sem stefnir að því,
að jafna tækifærum og ábyrgð í
milli allra borgaranna.”
—Woodrow Wilson.
Amerísku blaðamennirnir
undruðust margt í Reykjavík
Lélu svo ummæll, að lífskjör
íslendinga og menning væri
á mjög háu sligi.
* *
Flestir amerísku blaðamann-
anna óku um bæinn í gær á veg-
um Blaðamannafélags Islands, að
afloknum hádegisverði að Hótel
Borg, sem sagt er frá á öðrum
stað í blaðinu. Bjami Guð-
mundsson, blaðafulltrúi, stjórn-
aði förinni. Var skammur tími
til þess að skoða hið markverð-
asta, en um það sem þeir sáu,
luku hinir erlendu blaðamenn
upp einum rómi, að það hefði
verið bæði óvænt og glæsilegt.
Hinir amerísku blaðamenn
settust upp í langferðabifreið að
afloknum snæðingi og var ekið
um bæinn og þeim sýnd hin
markverðustu mannvirki á leið-
inni til sundhallarinnar, sem var
fyrsti áfangastaðurinn. Nokkrir
íslenzkir blaðamenn voru með í
förinni, auk Bjarna Guðmunds-
sonar, formanns Blaðamannafé-
lagsins, og skýrðu þeir það, sem
fyrir augun bar. Hinir ame-
rsku blaðamenn undruðust hinar
miklu byggingaframkvæmdir
hér og virtust mjög áhugasamir
um að afla sér sem mestra upp-
lýsinga um hag og aðbúnað al-
mennings. Kváðust þeir undr-
ast hve lífskjör og mennmgar-
aðbúnaður almennings væri hér
á háu stigi, miklu hærra en 1
flestum löndum, sem þeir hefðu
komið til.
Var ekið til sundhallarinnar
og þeim sýnd hún hátt og lágt
og rómuðu þeir mjög þrifnað og
umgengni þar og líkamsmenn-
ingu, er hún svo gerlega sýndi.
Fanst þeim mikið til koma, er
þeim var bent á, frá þaki sund-
hallarinnar, þau mannvirki, sem
hér væru að rísa upp og væru
þegar risin upp, með svo fa'
menniri þjóð.
Þá var farið að Leifsstyttunni
á Skólavörðuholti, og voru þa
flestir þeirra alveg gáttaðir, þar
eð þeir sögðu, að þeim hefði aetið"
verið kent í barnaskólum, a^
Kolumbus hefði fyrstur íundið
Ameríku. En þeir vom fljótir
taka upp vasabækur sínar og
hripa niður hjá sér áletrunina a
baki styttunnar, þar sem segú,
að Bandaríkin hafi gefið stytt'
úna í tilefni af þúsund ára af'
mæli alþingis til minningar um
Leif Eiriksson, son Islands, er
fyirstur hefði fundið land þeirra
árið 1000.
Þaðan var farið í listasafn
Einars Jónssonar, og fanst þeun
mjög mikið til koma, er Bjarnl
Guðmundsson, blaðafulltrúi,
skýrði hinar ýmsu myndir. Eink'
um virtust þeir hrifnir af mynd'
unum “Dögun” og “Útilegumað'
urinn”, en einnig stöldruðu þ«ir
lengi við margar af torráðnar1
myndum meistarans.
Loks var farið í snarkasti, ef
svo mætti segja, um Þjóðleik'
húsið, sem þeim fanst afar fuB'
komið; er það talsvert að markai
eins langt og Bandaríkjameiú1
eru komnir í tækni.
Að siðustu fóru blaðamennin1'
ir í þjóðminjasafnið og var
fyrir dr. Matthias Þórðarson, sem
leiðbeindi gestunum.
Þótti þeim næsta skrítið að sja
þar svo mairga muni, er voru fra
þeirri tíð, er Ameríka var óbygð
hvítum mönnum og aðeins \’eið1'
svæði rauðskinna.
• En nú var degi tekið að halla,
og þeir áttu fleiri verkefni fyrir
höndum.
—Alþbl. 20. rnarz-
Minningarsjóður
kvenfélagsins "Eining" í Seatile.
minningu um Magnús Snowfielð,
GJAFIR:—
Mrs. R. Johnson, $1.00; Sigurð-
•ur Stefanson, $5.00; Mrs. Guð-
björg Kárason, $5.00; Mrs. Jó-
hanna Johnson, í minningu um
Sigurð Johnson, $1.00; Mrs.
Sveinn Björnson, í minningu um
Agnes Jonsson, $1.00; Mrs. A. J.
Anderson, í minningu um Hólm-
fríði R. Ólafson, $3.50; Mrs. Helga
Tennant, í minningu um Sol-
veigu Arnbjörnson, $1.00; Mrs.
Margret George, í minningu um
Th. Sivert, $1.00; Mrs. A. J. And-
erson, í minningu um 1 Emmu
&lafson, $2.50; Mrs. Jón Magnús-
son, í minningu um Þuríði Magn-
ússon, $3.00; Mrs. Jón Magnús-
son, í minningu um Guðmund
Magnússon, $3.00; Mrs. Guðbjörg
Kárason, í minningu um Marie
Johnson, $1.00; Mrs. Guðrún
Magnússon, í minningu um
Marie Johnson, 1.00; Jón Magn-
ússon, í minningu um Hóseas
Thorlakson, $2.00; Arni Sumar-
liðason, í minningu um Guðrúnu
Sumarliðason, $5.00; Árni J.
Johannson, í minningu um Guð-
rúnu Sumarliðason, $5.00; Mr. og
Mrs. Isak Johnson, í minningu
um Guðrúnu Sumarliðason,
$5.00; Helga Sumarliðason, í
minningu um Guðrúnu Súmar-
liðason, $5.00; Mrs. A. J. Ander-
son, í minningu ufh Guðrúnu
Sumarliðason, $3.00; Guðrún
Magnússon, í minningu um Guð-
rúnu Sumarliðason, $2.00; Ingi-
björg Helgason, í minningu um
Josephine Helgason Feaman,
$1.00; Guðrún Magnússon, í
minningu um Kristrúnu John-
son, $1.00; Guðbjörg Kárason. í
minningu um Kristrúnu John-
son, $1.00; Björg Thordarson, í
minningu um Kristrúnu John-
son, $1.00; Mrs. B. O. Johannson,
í minningu um Kristrúnu John-y
son, $1.00; Mrs. J. D. Joþnson, í
ninningu um Kristrúnu Johnson,
$1.00; Sigríður Snowfield, í
$5.00; Mrs. Helga Tennant, 1
minningu um Albert T. Tennant>
$2.00; Mrs. R. Johnson, í minn-
ingu um Albert H. Tennant,
$2.00; Mrs. K. Thorsteinson, 1
minningu um Sigríði Thorstein'
son, $5.00; Mrs. Thorunn Hafliða-
son, í minningu um Sigurð Hai' (
liðason, $21.50; Mrs. B. O. J°'
hannson, í minningu um Svein
Árnason, $5.00; Guðbjörg Kára-
son, í minningu um Sigurveig11
Thorlakson, $5.00; Mrs. S. Her'
mannson, í minningu um Sana
Hermannson, $5.00; Robert
Magnússon, í minningu um Wrb
liam Johnson, $3.00; Sigurbjöm
Johnson, í minningu um William
Johnson, $2.00; Björg Thardar-
son, í minningu um WilUam
Johnson, $1.00; Úr félagssjóð1-
í minningu um Kristján J. John'
son, $19.50 — Walter Vatnsal,
Alfred Albert, Kristine Borg'
fjord, Johanna Johnson, Bjarm
Goodman, Harold Strand, Sig'
urður Hafliðason, Jón A. Sig'
urdson, Marie Johnson, Hóseas
Thoirlakson, A. H. Tennant, Gma
Simúndson.
Alls...... $138.00
22. marz, 1947. .*
Þessar gjafir hafa flestar ver‘
gefnar í staðinn fyrir blóm V1
útfarir, en allar gjafir eru me
teknar með þökkum. Sjo
þessi gengur til styrktar Uin
fyrirhugaða íslenzka elliheun1
í Blaine, Wash. Nú þegar er bU'
ið að senda $100 þangað. Styrm
gott fyrirtæki um leið og Pr
minnist ykkar framliðnu vm •
Guðrún Magnússom
2832 W. 70 St. skrif'a-rl-
Seattle 7, Wash.
Ástfanginn maður sendi stu
unni varalit í jólagjöf og skr' a
með:—Eg vona að eg fái mes
honum aftur.