Lögberg - 01.05.1947, Blaðsíða 4
4
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 1. MAI, 1947
--------logberg----------------------
Oeflö út hvem flmtuda.gr af
THE COLUMBIA PRESS, LIMITED
695 1 'argent Ave., Winnipeg, Manitoba
Utanáskrift ritstjórans:
EDITOR LOGBERG
!95 Sargent Ave., Winnipeg, Man
Ritstjóri: EINAR P. JÓNSSON
Verð $3.00 um árið—Borgist fyrirfram
The “Lögrberg-” ia printed and published by
The Columbia Prees, Limlted, 695 Sargent
Avenue, Winnipegr, Manitoba, Canada
Authorized as-Second Class Mail,
Post Office Dept., Ottawa. .
PHONE 21 804
Þungur róður en ekki vonlaus
Fjórveldafundinum í Moskvu sleit síð-
astliðinn föstudag, án þess að til fullra
úrslita kæmi um nokkur þau megin mál,
er tekin voru til meðferðar, og kom þetta
í rauninni engum á óvart; fundurinn
hófst þ. 10. marz síðastliðinn og hafði
það hlutverk fyrst og fremst með hönd-
um, að reyna að komast niður á fastan
grundvöll varðandi friðarsamninga við
Austurríki og Þýzkaland; þetta lánað-
ist ekki, nema þá helzt að því leyti til
sem aðiljum er það nú ljósara en áður,
hvað í rauninni á milli ber, og er það út
af fyrir sig, engan veginn smávægilegt
atriði.
Það kemur ekki flatt upp á nokkurn
mann, þótt lítið yrði ágengt varðandi
friðarsamninga við Þýzkaland á þessu
stigi málsins, því úr v.öndu var að ráða;
yfir Þýzkalandi í rústum ráða nú fjórir
aðiljar með mismunandi starfsaðferðir
og mismunandi skoðanir á því, hvernig
þýzku þjóðinni verði hyggilegast og
tryggilegast stjórnað í framtíðinni,
þannig, að henni reynist ókleift að
stofna til árásarhernaðar á ný með
heimsdrotnun fyrir augum; allir vilja,
af skiljanlegum ástæðum fá eitthvað
fyrir snúð sinn og snældu, eitthvað, sem
munar um; en er til þess kom að ræða
um upphæðir og aðferðir við innheimtu,
skapaðist elfur, sem örðugt reyndist að
brúa. Rússar voru engan veginn smá-
tækir í skaðabótakröfum sínum á hend-
uT* Þjóðverjum; þeir kröfðust 10 biljón
dollara í skaðabótum og lögðu á það ríka
áherzlu að sú upphæð yrði skilyrðislaust
að greiðast af núverandl framleiðslu
Þýzkalands; þessu voru sendifulltrúar
Breta og Bandaríkja með öllu andvígir
og töldu skaðabótaupphæðina fremur
bygða á slumpareikningi en íhuguðum
staðreyndum, auk þess sem hitt væri
miklu nærtækara og sanngjarnara, að
Þjóðverjum yrði fyrst af öllu dæmt að
greiða af yfirstandandi framleiðslu,
andvirði þess matar, klæðnaðar og að-
hlynningar, er bandamenn hefðu látið
þeim í té til þess að halda í þeim lífinu;
. greiðslur aðal-skaðabótakrafanna yrðu
að bíða betri byrjar, eða þar til gleggri
heildarsýn hefði fengist yfir viðhorf
málsins frá öllum hliðum; þetta sýndist
sanngjarnt, viturlegt og mannúðlegt, en
þó hafði það engin minstu áhrif á Molo-
tov hinn rússneska, er tíðum lét í veðri
vaka, að í rauninni hefði engum veru-
lega blætt nema Rússanum, og þess
vegna ættu kröfur þeirra að sitja í fyrir-
rúmi; vitaskuld var árás Þjóðverja á
Rússland um alt hin svívirðilegasta og
vitaskuld blæddi Rússanum mikið, en
slíkt hefir enginn útmálað á öfgafyllri
hátt en Molotov, er hann, sællar minn-
ingar, lét sér þau orð um munn fara, að
rússneska þjóðin hefði í síðustu styrjöld
úthelt meira blóði, en vatnsmagnið í öll-
um ám og fljótum í Canada næmi til
samans!
Vert er að þess sé getið, að fram um
elleftu stundu, eða í raun og veru fram
í lok fjórveldafundarins.. kröfðust Rúss-
ar þess, að fá í sínar hendur vissan
skerf, vafalaust bróðurhlutann, af öll-
um þýzkum eignum í Austurríki; ekki
fengu þeir þó kröfu sinni í þá átt fram-
gengt, og fór þá svo fyrir harðfylgi
brezka utanríkisráðherrans, Mr. Bevins,
að Molotov slakaði til, að gagnger könn-
un á innstæðum og heildareignum Þjóð-
verja í Austurríki skyldi fara fram, og
niðurstöðurnar lagðar fyrir framhalds-
fund viðkomandi fjögurra stórvelda, er
ákveðið var að saman kæmi í London í
nóvembermánuði næstkomandi.
Sínum augum lítur hver á silfrið,
segir hið fornkveðna, og þetta kemur
berlega í ljós þá um það er rætt, hvers
konar stjórnskipulag Þjóðverjum henti
bezt, og tryggi jafnframt bezt heimsfrið-
inn í framtíðinni. Molotov vill þröngva
upp á þýzku þjóðina “sterkri miðstjórn”,
er vafalaust skuli sniðin eftii rússnesk-
um, hernaðarlegum einræðisreglum, en
Vesturveldin eru á hinn bóginn þeirrar
skoðunar, að viturlegra sé og heilla-
vænlegra fyrir alla aðilja, að stofnað
verði á Þýzkalandi til fylkjasambands
með líkum hætti og viðgengst í Canada,
því með því séu meiri líkur til, að takast
megi að kveða fyr niður hinn þýzka
ofurmensku og ofbeldis anda, en á
nokkurn annan veg; það sýnist nú í
rauninni ekki neitt sérstaklegt vanda-
mál, hvora leiðina beri að velja, því ekki
var Þýzkalandi komið á kné með það
fyrir augum, að þar yrði endurreist við
fyrstu hentugleika hernaðarlegt ein-
veldi.
Sá maðurinn, sem að öllu athuguðu,
lagðistf þyngst á árar á áminstum f jór-
veldafundi, var Mr. Bevin, enda er hann
enginif nýgræðingur á vettvangi stjórn-
málanna; hinn nýi utan ríkisráðherra
Bandaríkjanna, Mr. Marshall, gat líka
verið harður í horn að taka, ef því var
að skifta; og ekki er óhugsandi, að fund-
urinn hafi að einhverju leyti fært Molo-
tov heim sanninn um það, að hernaðar-
legri einræðisstefnu Rússa verði litlu
betur fagnað þegar alt kemur til alls, en
öð'rum hliðstæðum yfirgangsstefnum,
hvaða nöfnum sem þær nefndust eða
nefnast.
Minningabrot úr
ísiandsíörinni 1 946
Eftir EINAR P. JÓNSSON
Hofteigur var miðstöð okkar þann
tíma, sem við dvöldum á Jökuldalnum;
dagarnir liðu fljótt og voru hver öðrum
yndislegri. Sigurjón bróðir minn var
jafnan með okkur; kona hans var í
Reykjavík hjá tveimur sonum þeirra, og
hið sama var að segja um hina tengda-
systur mína, konu Gunnars, hún var líka
í heimsókn hjá börnum sínum fyrir
sunnan, og eg hitti þær ekki fyr en við
komum úr Austurlandsförinni . til
Reykjavíkur; við skyldmennin sátum
veizlu mikla á Fossvöllum, en þar býr
nú stórbúi bróðursonur minn, Ragnar
Gunnarsson og frú hans Sigríður; þau
eignuðust þríburadætur fyrir nokkrum
árum, og þótti okkur gaman að kynnast
þessum frjálslegu og lífsglöðu telpu-
hnokkum.
Fossvelli má telja til hinna meiri-
háttar bújarða austanlands og hafa þeir
komið mjög við sögu Austfirðinga; þar
voru lengi haldin framtalsþing og þar
var kjörstaður til margra ár; eg hafði
nokkrum sinnum komið þangað áður og
jafnan þótt þar fagurt um að litast; en
nú fanst mér, án þess þó að geta gert
mér fyrir því verulega glögga grein, um-
hverfið fegurra og tilkomumeira en
nokkru sinni fyr; nú var eg. eins og vita-
skuld annarsstaðar á ferðalaginu, gest-
ur heima, og sá flest með gestsauga.
Eg kom auga á hvítmáluð hús með
rauðum dreglum niður með ánni og
spurði Ragnar frænda hvað húsa það
væri, og svaraði hann mér því til, að
þetta væri slátrunarhús, er Kaupfélag
Héraðsbúa hefði látið reisa; margra
daga f járrekstrar til kaupstaða á haust-
in, eru nú úr sögunni; nú er slátrað
þarna á haustin fé svo mörgum þúsund-
um skiptir og afurðir fluttar á stórum
flutningabílum ýmist á .Seyðisfjörð eða
Reyðarfjörð, einkum þó til hins síðar-
nefnda kaupstaðar; hefir þessi ný-
breytni, að því er mér var sagt, orðið bú-
endum í nærliggjandi bygðarlögum til
mikilvægra hagsbóta.
Á laugardagskvöldið, sem við dvöld-
um í fagradal endurminninga minna,
var okkur hjónunum boðið á skemti-
samkomu á Skjöldólfsstöðum; grunaði
okkur að þar myndi verða harla gest-
kvæmt, því mannreið var mikil um alt
héraðið, eins og getur í fornum sögum,
allan liðlangan daginn; og það var held-
ur ekki um að villast, að svo yrði, er á
staðinn kom, því eftir því sem eg bezt
veit, hafði hópast saman á Skjöldólfs-
stöðum mannsöfnuður, er numið mun
hafa nálægt fjórum hundruðum; þar var
saman komið fólk af flestum bæjum
Jökuldalsins, Jökulsárhlíð, Hróars-
tungu, Eliðaþinghá, Fljótsdal og Fellum
og eitthvað úr Vopnafirði; vitaskuld
þekti eg ekki persónulega nándarnærri
alt þetta blessað fólk, sem var svo hlýtt
og elskulegt í viðmóti, en um ættir
flestra var mér þó að einhverju leyti
kunnugt; þarna hafði ný, frjálsmann-
leg kynslóð haslað sér völl. og þarna
var eg langtum frændfleiri, en eg í
fyrstu hafði gert mér í hugarlund; margt
unga fólkið þekti eg undir eins af ættar-
%
FRÁ FISKIMÁLARÁÐI
CANADA
(Ottawa 25. apríl 1947)
Á öðrum ársfimdi fiskimála-
ráðs Canada, sem lokið var hér
í gær, voru þeir G. F. Jónasson,
Keystone Fisheries Limited og
T. B. Collins, Booth Fisheries
Limited, báðir frá Winnipeg,
kosnir í meðráðanefnd, sem máls-
svarar fiskiveiðasamtakanna í
Sléttufylkjunum. Mr. Jónasson,
er sæti átti í yfirstjórninni í
fyrra, var endurkosinn í þá
stöðu.
Fundinn sóttu yfir fimtíu
erindrekar og samstarfsmenn frá
hinum níu fylkjum; kom þar
meðal annars til umræðu mikil-
vægt málefni, er laut að gagn-
breytingu Atlantic, Inland og
Pacific Fisheries frá stríðs- til
friðartíma starfrækslu.
í viðbót við þá Mr. Jónasson og
svipnum og þurfti aðeins að
spyrja það að heiti; eg held
að allir, jafnt ungir sem
aldnir, hafi boðið okkur
hjónin innilega velkom-
in heim; handtökin voru
hlý og ávörpin ástúðleg;
mér hitnaði um hjartaræt-
ur, er ung og fögur stúlka,
dóttir Jóns heitins Snædal
frá Eiríksstöðum, kom til
mín og sagði við mig eitt-
hvað á þessa leið: “Vertu
hjartanlega velkominn,
EJinar, heim í bygðina okk-
ar, bygðina þína; nú vildi
eg að pabbi minn hefði ver-
ið með okkur.”
Kvöldstundin á Skjöld-
ólfsstöðum vakti hjá mér
margar ljúfar, nokkrar
sársaukablandnar, en um
fram alt, viðkvæmar end-
urminningar, er þeir einir
til fullnustu skilja, sem eftir
langa útivist koma heim í
faðm æskustöðva og vina.
Frú Elín Maack kona
Vilhjálms Snædal stýrði
skemtiskrá, og fagnaði
okkur hjónum með yndis-
lega fallegri ræðu; frú Elín
er tíguleg kona og vel til
foringja fallin; eg kom alla
leið sunnan úr Reykjavík
sumarið 1908 til þess að
sitja brúðkaup þeirra frú
Elínar og Vilhjálms, sem
haldið var á EXríksstöðum
með slíkri viðhöfn, er seint
fyrnist yfir í sögu Austfirð-
inga; eg veit fyrir víst, að
konan mín hneikslaðist
ekki á Vþví, þó frú Eiín í
votta viðurvist, byði mig
velkominn með kossi. —
Á g æ t u r söngflokkur
skemti á samkomunni, er
vakti mikla hrifningu;
þetta voru tærar Aust-
fjarðaraddir, studdar af
fimbulbassa Jökulsúr á Dal;
eg gleymdi mér á augna-
blikinu, og sál mín rann í
eitt við heimatóna bernsku-
stöðva minna
Við hjónin ávörpuðum
bæði samkomugesti, þökk-
uðum ástúðlegar og hjarta-
heitar viðtökur, og báðum
Jökuldalnum, bygðinni okk-
ar beggja, blessunar guðs.
Á Skjöldólfsstöðum er
margt breytt frá því, sem
áður var; nú er meðal ann-
ars búið að reisa þar vegleg
an heimavistarskóla fyrir
börn; er byggingin úr stein-
steypu og stendur vestan
vert Garðár; þessi stór-
bygging setur mikilúðugan
svip á Skjöldólfsstaða
heimilið, sem þó var jafn-
an auðugt að menningar-
brag. Gnótt var veitinga á
Skjöldólfsstöðum þetta á-
minsta kvöld, og dans stig-
inn þangað til albjart var af
degi; við hjónin gistum
þarna um nóttina, eða það,
sem eftir var nætur, því
klukkan var nálega fjögur,
er við gengum til hvílu.
—Framh.
Mr. Collins, mættu einnig á fund-
inum fyrir hönd Sléttufylkjanna
G. H. Streuber, H. E. Erickson,
Winnipeg, og Leonard Waite frá
Big River, Saskatchewan. A. M.
Shinbane, K C. frá Winnipeg,
sótti fundinn, sem lögfræðilegur
ráðunautur Sléttufylkjasamtak-
anna.
Horfurnar varðandi fiskiðnað-
inn í Mið-Vesturlandinu voru
teknar til alvarlegrar íhugunar,
og fram á það farið, að sam-
bandsstjórn hrindi í framkvæmd
The Fisheries Prices Support lög-
unum. Mr. Jónasson hélt því
fram á fundinum, að fiskimenn
Sléttufylkjanna verðskulduðu
stöðuga atvinnu og sanngjarnan
arð iðju sinnar, á hliðstæðum
grundvelli við landbúnaðinn;
hann mælti með því, að sá fjár-
hagsstuðningur, er áminst lög-
gjöf gerir ráð fyrir og stjórnað
verður af þar til kjörinni nefnd,
yrði eigi einskorðaður við stuðn-
ing við megin framleiðendur,
heldur einnig með það fyrir aug-
um, að auka heima fyrir neyzlu
fiskafurða; hann sagði ennfrem-
ur, að eins og nú hagaði til,
næmi fiskneyzla á mann árlega
í Canada 8V2 pundi, en með víð-
tækri fræðslustarfsemi mætti
auka slíka neyzlu upp í 13 pund,
framleiðendum og neytendum
jafnt til hagnaðar.
í ræðu, sem G. H. Streuber,
skrifari fiskiveiðasamtaka Sléttu
fylkjanna flutti á fundinum,
hvatti hann þessa iðnaðargrein til
allrar hugsanlegrar vöruvönd-
unar til innanlands neyzlu jafnt
sem útflutnings.
W. Stanley Lee, Halifax, var
kjörinn forseti yfir tímabilið
1947-48, en Olive Planta, Ottawa,
endurkosinn í skrifarastöðu.
•f -f ♦
SKIPSSKAÐI
í geisilegum stórsjó, sem skóf
um strendur Bretlands í fyrri
viku, fórst olíuflutningaskipið
Samtampa, 7,000 smálestir að
stærð, og þykir nú sýnt, að öll
áhöfnin, 42 menn, hafi týnt lífi;
vindhraðinn var 86 mílur á
klukkutímanum.
GAMAN 0G
ALVARA
Eftirfarandi frásögn bendir til
þess, að fólk sofi fast í hinni mjög
auglýstu sólskinsveðráttu í
Florida. Þjófur læddist inn í
svefnherbergi manns nokkurs,
Johnsons að nafni, og stal 10 doll-
urum og marghleypu, sem geymt
var milli rúmdýnanna, sem mað-
urinn svaf á.
•f
Sölumaður nokkur var að
reyna að fá bónda til að kaupa
reiðhjól. Bóndinn: “Eg vil held-
ur eyða peningum mínum fyrir
kú.”
“En sjáðu til,” sagði sölumað-
urinn, “það væri bjánalegt af
þér að láta sjá þig ríðandi á kú
um allan bæinn.”
Bóndinn: “Ekki nærri eins
bjánalegt, eins og að láta sjá mig
mjólka reiðhjól.”
•f
“Seztu niður,” sagði maður við
son sinn, sem honum þótti bald-
inn.
“Nei ”
“Stattu þá — eg vil, að þú hlýð-
ir mér.”
♦ \
Svo vildi til í bænum Albany
í Bandaríkjunum, að Stanley
911ison, 16 ára gamall piltur, sem
var akandi á bifhjóli, rakst á
járnbrautarlest. Tveir vagnar
lestarinnar fóru út af teinunum,
en piltinn sakaði ekki.
•f
Maður nokkur í Chicago, Frank
Brown að nafni, kom hetjulega
fram, en það varð honum nokkuð
SÍEDTIME
o/tlcC
HARVEST
.W Bjr
Dr. F. J. GREANEY,^1
Director,
Line Elevators Farm Service,
Winnipeg, Manitoba.
Grasshopper and Sawfly
Warnings
Forecasts, made by Dominion
entomologists and provincial
field crop officials, indicate that
crop losses from grasshoppers
and wheat stem sawflies are like-
ly to be heavy this year in the
southern and central portions of
Alberta and Saskatchewan.
Farmers in these areas are urged
to make full use of the following
officially recommended “Control
Measures”.
Grasshopper Conirol (1) Use
poison bait early before any
serious outbreaks get underway.
(2) Keep a close watch on field
margins, roadsides, ditches, etc.}
for concentrations of young
grasshopp>ers. Poison the savages!
(3) Repeat baiting as needed for
crop protection. (4) Use good,
clean summerfallow methods.
(5) Shallow cultivate all stubble
(not deeper than 2 inches), par-
ticularly' field margins, as early
as possible this Spring. (6) Re-
member that early and timely
baiting is exceedingly important
in grasshopper control.
Wheaí Síem Sawfly Conírol.
Crop losses from sawfly damage
in 1947 are likely to be heavy in
central and south-western Sas-
katchewan and in certain dis-
tricts of south-central Alberta
unless the following effective
control measures are exercised.
(1) Use sawfly traps. Seed a strip
or two of early wheat in last
year’s wheat stubble. Destroy
these wheat strips not later than
the first week of July. (2) Do not
seed wheat on wheat stubble.
(3)Plant resistant crops such as
oats, barley and flax. (4) Delay
seeding wheat as long as pos-
sible — preferably until after
May 15th. (5) In no case should
the main wheat crop be seeded
before the wheat in the sawfly
strips has appeared above
ground. (6) Remember that very
shallow, early spring tillage is
effective in controlling both saw-
flies and grasshoppers.
For further information see
your Agricultural Representa-
tive, or write to the Dominion
Entomological Laboratory at
Lethbridge, Saskatoon, or Bran-
don.
Gefið lil Sunrise
Lutheran Qamp—
Mrs. Kristian J. Backman,
$10.00; Mrs. Steinunn Valgarðs-
son, Hnausa P.O., Man., $5.00;
Mr. og Mrs. B. J. Lifman, Arborg,
í minningu um Mrs. Ólínu Theo-
doru Erlendson, frá Hálandi við
Arborg, $5.00.
Meðtekið með innilegu þakklæti,
Clara Finnsson,
505 Beverley St.
ýrt. Hann tapaði nefnilega
eski sínu með 400 dollurum (um
400 krónum), er hann bjargaði
remur drengjum frá drukknun,
egar heimatilbúnum bát þeirra
volfdi úti á Michigan-vatninu.
Maja við Möggu: “Heyrðir þú
m, hve óttasleginn Georg var á
rúðkaupsdegi sínum.”
“Ó, já, eg var þar. Eg sá hana.”
Öll egg innihalda 90% af vatni.
The Swon Manufocturing
Company
Manufacturers of
SWAN WEATHER STRIF
Halldor Methusalems Swan
Eigandi
281 James St. Phone 22 641