Lögberg - 22.05.1947, Side 1

Lögberg - 22.05.1947, Side 1
PHONE 21 374 P A Complele ' 'leaning I istilulion ÖO. ÁRGANGUR WINNIPEG, FIMTUDAGINN 22. MAI, 1947 PHONE 21 374 iVeA ba" - A Complete Cleaning Instilulion LÝKUR EMBÆTTISPRÓFI; Hungursneyð Krefst lækkaðra tolia VINNUR CULLMEDALÍU Aðalsteinn F. Krisljánsson Við nýafstaðin háskólapróf í Manitoba útskrifaðist með fyrstu ágætiseinkunn í lögum, Aðal- steinn F. Kristjánsson 23 ára að aldri, sonur þeirra Friðriks Krist- jánssonar fésýslumanns og frúar hans Hólmfríðar Kristjánsson, sem búsett eru að 205 Ethelbert Street hér í borginni; er Friðrik ®ttaður af Akureyri, en frú hans f*dd í Dalasýslu. Þessi ungi og gjörvulegi lög- fræðingur á að baki sér glæsi- legan námsferil; öll þau fjögur arin, sem hann var við laganám, ’hlaut hann jafnhæzta einkunn allra þeirra, er sóttu lagadeild Manitoba-háskólans, og vann í alt fern námsverðlaun. ♦ ♦ 4- Um tvent að veija Mr. Winston Churchill fyrrum forsætisráðherra sagði í ræðu, sem hann nýverið flutti í Albert Hall í London, að eins og nú hag- aði til, væri um tvent að velja, annað hvort samúðarríka °g einlæga samvinnu Evrópu- þjóðanna allra með skjóta við- reisn þeirra fyrir augum, eða þá slíkt hrun, er tvísýnt vsqri um að nokkur þeirra nokkuru sinni hiði bætur; hann lagði á það mikla áherzlu, að óhjákvæmilegt v®ri, að rússnesku ráðstjórnar- ríkin tæki sinn fulla og virka þatt í slíkri viðreisnarstarfsemi, en veittist jafnframt þunglega að þeim /vegna ástæðulausrar tortryggni þeirra í garð vestur- V,eldanna; hann tjáðist einnig þeirrar skoðunar, að það yrði öll- Urn aðiljum fyrir beztu, að end- Orskipulögðu ríkjasambandi ^ýzkalands, yrði heimilaður að- gangur að hinni nýju samvinnu- starfsemi Evrópu eins fljótt og því yrði skynsamlega við komið, hvort sem nokkurum hluta írönsku þjóðarinnar eða Rússum, hynni að fallá það betur eða ver. Tryggve Lie væntanlegur Hú hefir opinberlega verið frá því skýrt, að Tryggve Lie, aðal- ritari sameinuðu þjóðanna, sé vaentanlegur hingað til borgar- innar í öndverðum ,júní-mánuði naestkomandi til þess að flytja rmðu í Winnipegdeild United ations Society. Tryggve Lie er ahrifamikill Norðmaður, afkom- andi skáldsins og rithöfundarins Jonasar Lie. Svo sverfur vistaskorturinn að á Þýzkalandi, að óttast er um mannfelli nema því aðéins, að utanaðkomandi aðstoð verði veitt þjóðinni tafarlaust; hafa óeirðir brotist út víðsvegar um landið vegna hungursneyðarinnar; hefir brezka stjórnin farið þess á leit við amerísk stjórnarvöld, að þau hlutist til um það, að senda tii Þýzkalands eins fljótt og því verði við kcmið, allmiklar birgð- ir af hveiti og ýmisswm öðrum korntegundum til þess að bæta úr brýnustu þörfinni; er Herbert Hoover sagður að vera því með- mæltur, að Bandaríkin skerist í leikinn og leggi þýzku þjóðinni eitt hvert lið; en hann er þessum hnútum manna kunnugastur, vegna ferðalaga sinna um Þýzka- land og önnur lönd Norðurálf- unnar, sem verst eru stödd varð- andi vistabirgðir. Utanríkisráð- herrann brezki, Mr. Bevin, hefir einnig látið uppi álit sitt um það, að nema því aðeins, að raun- hæfar ráðstafanir verði gerðar, geti svo farið, að óeirðir vegna hungurs í Þýzkalandi færist svo í aukana, að torveldlega verði fram úr ráðið. ♦ ♦ ♦ Vandað val Verkamannasamtökin, Cana- dian Congress of Labor, eru þeirrar skoðunar, að leggja verði alla hugsanlega rækt við val þess fólks, er flytjist hingað til fram- tíðardvalar; stjórnarvöldin beri jafnframt að sjálfsögðu ábyrgð á því, að innflutningur verði eigi heimilaður, er leitt geti til at- vinnusviptis þess fólks, er nú st^rfar af fullu fjöri í landinu. Hún kom, hún Miss Margarel Sigmar Þann 1. 2., og 3. maí var haldið hér “The First Dominion Folk Festival.” Fór það fram í stærsta samkomusal borgarinnar “The Forum.” Tóku þátt í því hátíða- haldi 12 þjóðflokkar. Sungu þar þjóðsöngva sína, sýndu þjóðbún- inga sína og dansa o. fl. Voru íslendingar þar með á dagskrá. Fyrir íslendinga kom þar fram Fjármálaráðherra sambands- stjórnarinnar, Douglas Abbott, flutti fyrir skömmu ræðu á fundi hinna saméinuðu lífsábyrgðar- félaga í Quebec, þar sem hann lagði ríka áherzlu á það, hve bráðnauðsynlegt það væri fyrir viðreisn viðskiftalífsins, að Bandaríkjastjórn beitti sér fyrir um lækkun tollmúra sinna; slíkt yrði eigi aðeins Canada í hag, heldur og jafnframt öllum þjóð- um heims, því velmegun þeirra grundvallaðist á frjálsum og ó- háðum viðskiptum. ♦ ♦ ♦ Sjö manna öryggisráð Hon. James O. McLenaghen, dómsmálaráðherra Manitoba- fylkis, hefir skipað sjö manna nefnd með það fyrir augum, að rannsaka slys og slysahættu á bílvegum fyikisins, og semja til- lögur um það fyrir næsta þing, íhvernig öryggisráðstöfunum þessu viðvíkjandi skuli hagað; þetta er þörf ráðstöfun, sem mæl- ast mun hvarvetna. vel fyrir. Formaður áminstrar nefndar verður R. M. Fisher, K.C., að- stoðarr áðherra s veitarst j órna- málefna. ■♦• ♦ ■♦ RANNSÓKNAR krafist Sir Waldron Smithers, einn af þingmönnum íhaldsflokksins í brezka þinginu, hefir krafist þess í þingræðu, að stjórnin skipi konunglega rannsóknarnefnd til þess að rannsaka njósnarstarf- semi rússneskra kommúnista á Bretlandi, er hann telur vera al- varlega víðtæka og háskalega brezku þjóðinni. sá, hún sigraði söngmærin Margaret Sigmar, í íslenzka faldbúningnum og söng tvo íslenzka söngva, “Dirauma- landið” og “Svanasöng á heiði.” Vakti Miss Sigmar sérstaka at- hygli, á þessari fjölmennu sam- komu, bæði fyrir faldbúninginn, en þó sérstaklega fyrir söng hennar. öll dagblöðin í Van- couver mintust á hana sérstak- lega og dáðust að söng hennar. Nefnd, sem stóð fyirir og stjórn- aði þessari samkomu, hefir kom- ið saman um það, að framkoma Miss Sigmar, búningur hennar, en sérstaklega söngur hennar, hafi verið það bezta, sem fór fram á þessari fjölmennu skemtisam- komu. Svo fékk hún mikið lof og hrós úr ýmsum áttum. I til- efni af þessari viðurkenningu, sem hún ávann sér, hefir henni verið boðið í fjölmenna veizlu, sem verður haldin á hótel Van- couver, þar sem hún á að verða kynt mörgum af meiri háttar fólki í borginni. Líka var hún beðin að koma þar fram í ís- lenzka búningnum og syngja nokkra íslenzka söngva. Miss Sigmar er 18 ára, og hefir verið hér í Vancouver aðeins nokkra mánuði. Þetta er fyrsta þátttaka hennar í opinberum, fjölmennum samkomum hér, svo mér finst að best sé skýrt frá framkomu hennar með þessum fáu orðum: “Hún kom, hún sá, hún sigr- aði.” Kæra þökk, Miss Sigmar, fyrir ágæta framkomu. Heiðurinn, sem þú hefir áunnið þér, nær einnig til allra Islendinga. S. Guðmundsson. Miss Kristine Anderson Þessi unga stúlka. sem lauk | fullnaðarprófi í hússtjórnarfræði við nýafstaðin vorpróf Mani- toba-háskólans, var sæmd gull- medalíu þeirrar mentastofnunar. Miss Anderson er ættuð frá Baldur, Man. íslenzkt námsfólk ber af Síðastliðna viku útskrifuðust 657 námsmenn úr Manitoba há- skólanum, þar á meðal voru um 30 íslendingar. Þessir hlutu hæstu einkunnir í sinni náms- deild og gullmedalíur háskólans fyrir frábæra námshæfileika. Hans Raymond Beck, í raf- magnsfræði. Frederick Karl Kristjánsson í búfræði. Kristine Cecelia Anderson í hússt j órnarf ræði. Aðalsteinn F. Kristjánsson hlaut verðlaun, The Honourable Alexander Morris Exhibition in Law, fyrir að ná, að öllum náms- árunum samanlögðum, hæsta stigi í lögfræði. Thora Solveig Ásgeirson, Associatie in Music, Manitoba — hlaut Wednesday Morning Musicale námsverðlaunin. ♦ Þessir útskrifuðust: Doctor of Medicine: Sveinbjörn Stefán Björnsson Sveinn Halldór Octavius Eggertson. Bachelor of Laws: Aðalsteinn F. Kristjánsson. Diploma in Educalion: Audrey Aðalbjörg Amundson, B.A. Jónas Hallgrímur Vídalín Rafnkelsson, B.A. Diploma in Social Work: Audrey Fridfinnson, B.A. Lorna Olson, B.A. Bachelor of Arts (Gen. Course): Wilfred Halldor Baldwin Guðmundur Eric Björnsson Patricia Ann Blöndal Pauline Marion Einarson Jean Thorunn Law Jónas Hallgrímur Vídalin Rafnkelsson. Bachelor of Science (General Course): John Herbert Arnason Stanley Horaee Baldwin Lorne Pálmason Paul Harold Aðalsteinn Niel Westdal. Bachelor of Science in Home Economics: Kristine Cecelia Anderson Carol Joy Pálmasor^ Carol Joyce Sigurdson. Bachelor of Science in Agricullure: Frederick Kairl Kristjánsson Gilbert Raymond Amundson. Electrical Engineering: Hans Raymcnd Beck SÆMDUR CULLMEDALÍU Fredtrick Karl Kristjánsson Þessi gáfaði maður, útskrifað- ist í vor sem Bachelor of Science in Agriculture frá Manitbba-há- kólanum og var sæmdur gull- medalíu fyrir ástundun og frá- bæra námshæfileika; hann e.r sonur þeirra Mr. og Mrs. Jakob F. Kristjánsson hér í borg. Kenneth Henry Einarson Leifur Thorsteinn Oddson Diploma in Dairying: Erlindur Anderson. Ræða um frumbyggjana í Norður Nýja íslandi Á síðastliðnu mánudagskveldi var haldinn síðasti fyrirlestur- inn, þeirra er haldnir hafa verið undir umsjón Icelandic Canadian School; hafa um þrjátíu erindi verið flutt á síðastliðnum þrem- ur árum, um sögu íslands og bókmenúr, og sögu Vestur-ís- lendinga. Fyrstu þrettán erindin voru gefin út í bók — Iceland's Thowand Years, en sum hinna hafa birst í tímaritinu Icelandic Canadian. Erindin hafa verið flutt á ensku til þess að ungt fólk, er ekki kann íslenzku, gæti notið þeirra, en því miður hefir fátt þeirra fært sér þetta ágæta tæki- færi í nyt, til að kynnast sögu og bókmentum feðxa sinna; er þetta slæmt, vegna þess að þeir, er hafa haft umsjón með þessari fræðslustarfsemi, og þeir, er samið hafa og flutt erindin, hafa lagt á sig mikla vinnu; að ekki sá minst á, hvers unga fólkið fer á mis, með því að sinna þessu ekki. Þótt erindin birtist á prenti, nýtur fólk þeirra ekki eins vel eins og að hlusta á fyrir- lesarana. Þeir skjóta líka oft inn athugasemdum, er skýra efnið, en koma ekki á prenti. Dimploma in Music: Thora Solveig Ásgeirson. Cerlificaie in Nursing Educaiion: Margaret Guðrún Breckman Laura Guðlaug Einarson. ♦ ■♦• ♦ LÍFSCLAÐUR PRESTAHÖFÐINGI Nýverið kom hingað til borgar séra P. H. Rynning frá Oslo í heimsókn til systursonar síns, Dr. P. H. T. Thorlaksonar; hafði hann ferðast með skipi yfir Atlantshaf, um Panamaskurð og þaðan um strendur Kyrrahafs til Seattle, en þar er búsett systir hans, frú Errika, ekkja séra N. Steingríms Thorlakssonar, og þar dvaldi þessi sérstæði og lífsglaði norski prestahöfðingi hálfan þriðja mánuð; en hingað kom hann flugleiðis frá Seattle og dáði mjög flugið yfir Klettafjöll- in; þessi norræni víkingur verð- ur níræður þann 3. júní næst- komandi, en því myndu fáir trúa, er komast í kynni við hann, því svo ber hann aldurinn vel, vík- ingslegur á velli og leikur við hvem sinn fingur; hann sagðist hafa verið að hugsa um að pré- dika á næsta afmælisdag sinn, en horfið frá því ráði; kvaðst heldur vilja gera það á skírnardag sinn; fæðingardagurinn minti á vöggu og gröf, en skírnardagurinn gæfi fyrirheit um eilíft líf. Síðastl. mánuragskvöld höfðu þau Dr. Thorlakson og frú virðu- legt heimboð á hinu veglega heimili sínu, 144 Grenfell Blvd., í heiðursskyni við séra Rynning, og skorti þar hvorki gleði né góðan fagnað; og eigi jók það lítið á ánægjuna, að þar var einn- ig viðstödd frú Holck, systir séra Rynnings, ásamt dóttur sinni, einnig frá Oslo; voru þær mæðg- ur á leið vestur til Seattle; frú Holck er áttræð, en sýnist að út- liti eigi eldri en sextug kona; hún er þektur sönglagahöfundur, og lék á slaghörpu ýmis ágæt tónverk, er hún sjálf hafði samið. Sr. Rynning lagði af stað flug- leiðis til Osló seinna um kvöldið, og hlakkaði mikið til æfintýris- ins í loftinu; hann fylgiist með tímanum eins og kornungur maður. Þessi síðasti fyrirlestur var fluttur á íslenzku, og mun hafa verið einna bezt sóttur af öllum fyrirlestrunum, hér var líka ræðumaður, er þektur er meðal íslendinga fyrir að geta blandað saman gamni og alvöru á skemti- legan hátt. Guttormur J. Gutt- ormsson skáld brá upp fyrir hug- skotssjónum blustenda mörgum blikmyndum af atburðum og rnerku fólki í “forn” sögu Ný- íslendinga, sem seint munu líða þeim er þarna voru, úr minni. Guttormur er sterktrúaður á menningargildi íslenzkunnar og lauk ræðu sinni með eldheitiri hvatningu um að viðhalda þess- ari “einu lifandi stofntungu.” Séra V. J. Eylands, forseti þjóð- ræknisfélagsins, þakkaði ræðu- manni fyrir þetta ágæta erindi, og einnig þeim, er beitt hafa sér fyrir þessum fyrirlestrahöldum, sérstaklega frú Hólmfríði Dan- ielsson. Frú Hólmfríður stjórnaði sam- komunni. I. J. ♦ ♦ ♦ AFMÆLI MERKISMANNS G. J. Oleson I dag á sextíu og fimm ára af- mæli merkur og víðkunnur Vest- ur-Islendingur, G. J. Oleson, búnaðarverkfæra kaupmaður í Glenboro, heilsteyptur maður og vinfastur sem þá. er bezt ger- ist; hann er maður með ágætum ritfær á enska tungu og íslenzka og gagnfróður um íslenzkar bók- mentir; hann er fæddur í grend við Gimli þann 21. maí, 1882. Mr. Oleson er kvæntur Kristínu Tómasdóttur frá Hólum í Hjalta- dal, er fluttist hingað barnung vestur; er hún hin mesta ágætis- kona; þau eiga þrjú úrvals börn, Tryggva, Láru og Thomas. Lögberg árnar afmælisbarninu langra og gæfusamra lífdaga.

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.