Lögberg - 22.05.1947, Qupperneq 4
4
5'
LÖGBEKG, FIMTU DAGLNN 22. MAÍ, 1947
--------Hogberg---------------------
G«íiO út hvern fimtudag aí
THE COLUMBIA PRESS, LIMITED
695 {'.argent Ave., Winnipeg, Manitoba
Utanáakrift ritstjórans:
EDITOR LÖGBERG
Í95 Sargent Ave., Winnipeg, Man.
Ritstjóri: EINAR P. JÓNSSON
Verð $3.00 um árið—Borgist fyrirfram
The "Lögberg” is printed and published by
The Columbia Preas, Limited, 695 Sargent
Avenue, Winnipeg, Manitoba, Canada.
Authorized as.Second Class Mail,
Post Offíce Dept., Ottawa.
PHONE »1804
Mikilvægt fagnaðarefni
Vorprófin við Manitobaháskólann
eru nú rétt nýverið um garð gengin, og
hefir námsfólk af íslenzkum stofni kom-
ið þar óneitanlega mjög við sögu; eitt-
hvað um þrjátíu stúdentar af íslenzkri
ætt, luku með ágætum vitnisburði fulln-
aðarprófi í hinum ýmissu sérfræðigrein-
um, og voru þrír þeirra sæmdir gull-
medalíu háskólans vegna skarpra gáfna
og frábærrar ástundunar við nám, auk
þess sem öðrum féll annars konar við-
urkenning í skaut; að þessu sinni nam
tala þeirra stúdenta, sem útskrifuðust,
af æðstu mentastofnun þessa fylkis, sex
hundruð fimíu og sjö;.af öllum þessum
mikla fjölda hlutu sextán gullmedalíu
háskólans, og þrír þeirra töldust til hins
fámenna, íslenzka þjóðarbrots; þetta
er eigi aðeins óumræðilegt fagnaðar-
efni þeim stúdentum sjálfum, er á-
minstrar sæmdar urðu aðnjótandi og
sifjaliði þeirra, heldur og íslenzka mann-
félaginu vestan hafs, er vex að virðingu
við sigra æskulýðs síns. —
Stundum hefir það, þótt furðulegt
sé, klingt í eyra, að nútíðaræskan stæði
eigi fyrirrennurum sínum á sporði; að
sigurvinningum hennar á erfiðri náms-
braut færi fækkandi jafnt og þétt, að
hún væri hvikul í rás og vissi eigi fótum
sínum forráð; sleggjudóma slíkrar teg-
undar, hefir æskulýður vor afsannað
sjálfur með djarfmannlegum átökum
sínum; þessum æskulýð er það að fullu
ljóst, að það er hann, sem á að erfa
landið og vaka yfir velferð þess í fram-
tíðinni eftir því sem ný viðhorf og ný
viðfangsefni skapast frá ári til árs; og
þessi æskulýður er líka um flest betur
við því búinn, að takast á hendur þá á-
byrgð, er framtíðin leggur honum á
herðar, en viðgekst oft um fyrri kyn-
slóðir, er mjög fóru á mis við mentun
og holla aðbúð í uppvexti, þótt þær engu
að síður á mörgum sviðum sýndu oft
aðdáanlegt þrek.
Sú æska, sem nú er að ryðja sér
braut í þessu landi, er sterk og frjáls-
hugsandi æska, sem vel er undir köllun
sína búin og líkleg til hollra nytjaverka.
Vantraust á æskunni er vantraust
gagnvart lífinu sjálfu.
“Eif æskan vill rétta þér örvandi hönd
þá ertu á framtíðarvegi.”
Allar þjóðir og allir einstaklingar,
sem í einlægni fylgjast með áhugamál-
um æskunnar og*gera sér far um að
skilja hana, eru á hollri þróunarbraut,
og þeim öllum réttir æskan örvandi hönd.
íslendingar, engu síður en aðrir
þjóðflokkar, sem fylki þetta byggja,
standa í djúpri þakkarskuld við Mani-
toba-háskólann, þenna frjóva vermireit
fjölþættrar æðri menntunar, er sett
hefir svip sinn á fylkisbúa og búið undir
lífið og baráttu þess, fjölda af ágætustu
sonum þeirra og dætrum.
Getum vér, menn og konur af ís-
lenzkum stofni, sem hér erum að skapa
sögu, á nokkurn fegurri hátt endurgold-
ið Manitoba-háskólanum þakkarskuld
vora, og jafnframt unnið þjóðernismál-
um vorum hið mesta gagn, en með
stofnun kennarastóls í íslenzku og ís-
lenzkum fræðum við þessa ágætu
mentastofnun? Önnur viðeigandi leið
verður ekki auðfundin, og því þá ekki að
fara hana?
Enn eru hér vor á meðal margir
menn og margar konur, er unna ís-
lenzkri tungu og vilja mikið á sig leggja
henni til viðhalds; þetta fólk sættir sig
ekki við upplitaða þjóðrækni, er bregða
megi fyrir sig á hátíðum og tyllidögum;
fólkið, sem leggur á sig mikið erfiði við
íslenzkukenslu í Laugardagsskólunum,
er hvorki að blekkja sig né aðra, eins og
sumir láta í veðri vaka, er aldrei hafa
neitt á sig lagt málstað hinnar sígildu
tungu vorrar til stuðnings; þessu fólki
er það ljóst, að í kunnáttu íslenzkrar
tungu felst mikilvægur menningargróði,
og það hefir heldur aldrei heyrt þess
getið, að slík kunnátta yrði námsfólki
voru til trafala, nema síður væri.
Erfið viðfangsefni styrkja baráttu-
hug norrænna manna og knýja þá til
framtaks; oss Vestmönnum getur eng-
an veginn staðið á sama um, hvert verð-
ur hlutskifti vort í framtíðinni varðandi
menningarerfðir vorar, tungu og bók-
mentir í þessu landi; hvort vér brynj-
umst tU nokkmra stórræða á þeim vett-
vangi, eða sættum oss við það, að lognast
út af í værðarvoðum sinnuleysisins við
lítinn og minkandi orðstír.
Það styrkir í engu framsóknarhug
æskulýðs vors, að vér, í þjóðræknisleg-
um efnum leggjum árar í bát. og teflum
í tvísýnu um lendingarstað.
Við sama heygarðshornið
Blaðkríli nokkurt, sem “Public
Opinion” nefnist, og gefið er út í Ottawa
fyrir atbeina íhaldsflokksins, er auð-
sjáanlega við sama heygðarshornið
varðandi viðhorf stjórnmálanna í þessu
landi, og leggur nú mikið kapp á, að
reyna að færa háttvirtum kjósendum
heim sanninn um það, að Liberal-stjórn-
in, C.C.F.-sinnar og Kommúnistar séu
í rauninni sami grautur í sömu skáli.
Liberalar séu grímuklæddir sósíalistar
í bandalagi við rauðliða C.C.F. og
Kommúnistaflokkana, þótt þeir láti
annað veifið í veðri vaka að á milli þeirra
sé staðfest mikið djúp; og með það fyr-
ir augum, að koma vitinu fyrir cana-
disku þjóðina og frelsa hana frá villu
síns vegar, prentar áminst blaðkríli upp
ræðu eftir Winston Churchill, þar sem
hann veitist þunglega að verkamanna-
stjórninni brezku og bregður henni um
skammsýni með hliðsjón af skipulagn-
ingu iðnaðar- og atvinnumálanna; ekki
er þó beinlínis reynt að koma fram á-
byrgð á hendur stjórninni vegna flóða
og annara náttúruhamfara, þótt kent sé
henni að vísu um flest, er úr skorðum
hafi gengið á Bretlandi síðustu mánuð-
ina.
Eftir að áminst blaðkríli þeirra
Brackens og fylgifiska hans, hefir f jarg-
viðrast mjög yfir ástandinu á Bretlandi
og útmálað átakanlega syndir og um-
komuleysi Attlee-stjórnarinnar, gerir
það Canada að umtalsefni með svofeld-
um orðum:
“Vitaskuld finna Canadamenn til
sársauka vegna þeirra hörmunga, sem
dunið hafa yfir brezku þjóðina, og kenna
þeir aðallega um hinum óvenjulega
harða vetri, er þjóðin varð að búa við;
en Mr. Ghurchill gerir það deginum
ljósara, að mikið af skortinum, sem
brezka þjóðin varð að þola, stafaði frá
meingallaðri skipulagningu sósíalista-
stjórnarinnar; af slíku ættum vér
Canadamenn að get þó nokkuð lært;
vér höfum fengið oss fullsadda af ofur-
mensku ráðstöfunum Liberal-stjórnar-
innar; kórvillur hennar hafa bakað þjóð-
inni að minsta kosti eitt árið enn, sem
oss verður að ástæðulausu íþyngt með
sköttum; og nú verður þjóðin að sætta
sig við það, að helmingurinn af hveiti-
uppskerunni í Canada verði seldur Bret-
um fyrir hálfvirði við það, sem viðgengst
á heimsmarkaðinum.” Svo mörg voru
þau orð.
Hann er annars ekkert ófélegur
þessi hugarfarslegi krabbagangur, er
auðkenna sýnist Bracken og legáta hans
um þessar mundir; einn daginn úthúða
þeir Liberal-stjórninni fyrir skilnings-
leysi á aðkallandi þörfum brezku þjóð-
arinnar og skeytingarleysi í þá átt, að
hlaupa ekki undir bagga, en annan dag-
inn fær hún helliádrepu fyrir langt of
víðtækar ívilnanir í garð Breta; fyr má
nú vera samræmið.
Fáum, sem í fullri alvöru gera heims-
málin að íhugunarefni og reyna að gera
sér ljósa grein fyrir vista- og efnahags-
skortinum bæði á BretHndi og svo víða
annarsstaðar, mun koma í hugarlund,
að áfellast Canadastjórn fyrir það, þó
hún hliðri til svo sem frekast má verða
varðandi verðlag afurða sinna, þannig,
að sem flestar þurfandi þjóðir geti keypt
þær Þl þess að framfleyta lífinu, því
slíkt er eihungis sjálfsagt mannúðar-
mál; en með hliðsjón af hveitisamningn-
um, sem Canada gerði við Bretland,
hefir landbúnaðarráðherrann, Mr.
Gardiner, hvað ofan í annað tekið það
svo skýrt fram, að ekki verður um vilst,
að þar sé einungis um lágmarksverð að
ræða, er tryggi canadiskum bændum líf-
vænlegan arð iðju sinnar í næstu fimm
Lutherans in Canada
Svo heitir bók, nú víðkunn,
rituð af presti Fyrsta lúterska
safnaðar í Winnipeg, séra Valdi-
mar J. Eylands.
Fyrir góðvild höfundar eign-
aðist eg þessa bók fyrir meir en
ári síðan.
Bókinni er skift í þessa kafla:
Formáli eftir Dr. Franklin Clarke
Fry, höfuðsmann Sameinuðu
lútersku kirkjunnar í Ameríku;
Formáli eftir bókarhöfundinn,
séra Valdimar J. Eylands; Mynd
af Lútersku kirkjunni í Lunen-
berg, Nova Scotia, er á lengsta
lúterska stairfssögu í Canada eða
síðan 1772. Svo kemur skrá yfir
aðalinnihald bókarinnar,- bæði
lesmál og myndir. Þar næst kem-
ur bókin sjálf, tólf kapítular á-
samt myndum af mönnum og
kirkjum. Þá önnur mikil kirkju-
leg skrá.
í sínum mjög svo fallega for-
mála bendir Dr. Fry á, að mann-
I kynið verði sameinað í trúnni
aðeins. Það virðist vera heil-
brigður grundvöllur og af heilu
upphafi tekinn.
Þegar höfimdur bókarinnar
tekur til máls, finnur hann, að
hér er um erfitt starf að ræða,
að afgreiða það mikla verk, er
bókin innifelur. En vilji hans til
starfsins og þekking hans á mál-
inu, verða honum hvöt til fram-
kvæmdar.
Embættismaður við stærsta,
íslenzka söfnuðinn vestan hafs,
sér hann það, að einn annar hann
aldrei verkinu. Honum verður
vel til með hjálp, og hann skil-
greinir í formálanum með sam-
vizkusemi og þakklæti þá hjálp.
Fyrsti kapítulinn lýsir trúar-
legum grundvelli þeim, sem Mar-
teinn Lúter lagði undir kirkjuna
og rótfastri trú bókarhöfundar
á þann grundvöll. Það má óhætt
segja um þenna kafla, að hann
er stórfal'legur. Hann er ekki
einungis lýsing af þeim grund-
velli, sem lagður er fyrir þenna
mann, sem aðra, að lifa og starfa
á, hann lýsir hinum innra manni,
Þess er bókina ritar frá trúar-
legu og þroskuðu sjónarmiði.
Hinn annar kaflinn er einnig
saga, trúmál og safnaðarskipun,
víðtækur og djúpur, brot úr sögu
einstaklinga og heilda, bregður
fyrir, sem bliki og er sanngjarn-
lega frá sagt.
Þriðji kaflinn, bein og áfram-
haldandi kirkjumálasagan, með
ýmsu þar í, sem lærdómsríkt er,
árin, og auðveldlega geti
þækkað eftir því, sem kaup-
geta hlutaðeigandi þjóða
eykst.
Alt hjal afturhaldsmanna
um pólitískt leynibrall milli
Liberala, C.C.F.-sinna og
Kommúnista, er vindhögg
og annað ekki.
Fróðlegt ársfjórðungsrit
Dr. Richard Beck, pró-
fessor í Norðurlandamálum
og bókmentum við ríkishá-
skólann í North Dakota,
sendi Lögbergi nýverið
febrúarheftið af ársfjórð-
ungsritinu Scandinavian
Studies fyrir árið, sem nú
er að líða; hefir það venju
samkvæmt margvíslegan
fróðleik til brunns að bera,
er lýtur að bókvísi nor-
rænna manna. Dr. Beck
auðgar hefti þetta með
tveimur prýðilegum rit-
dómum; er hinn fyrri um
Islandica, ritsafn prófessor
Halldórs Hermannssonar,
XXXXI bindi, sem innifelur
Þorgils sögu og Hafliða, en
hinn síðari fjallar um hina
miklu og merkilegu bók Dr.
Sigurðar Nordal, íslenzk
menning, Fyrsta bindi,
Reykjavík, 1942.
Áminst ársfjóa-ðtungsrit,
nýtur vafalaust drjúgra
vinsælda meðal þeirra, er
norrænum fræðum unna.
sé vel athugað. Þar ber fyrir
mann menn með mismunandi
lyndiseinkunnum og karakter,
verðugir menn starfsins, ein-
stöku, sem ekki áttu kraftana,
sem til þurfti að bera hita og
þunga þess mikla dags, að hefja
menningu. Þeir síðarnefndu ör-
fáir, þeir fyrnefndu fjölda-
margir.
Af 'leilimónnum, sem fyrir
mann bregða í þessum parti bók-
aTÍnnar, verður manni ósjálf-
rátt sérlega minnisstæður mað-
urinn, sem fór fótgangandi fimrn
hundruð mílur á óbættum veg-
um, til þess að útvega sér og
samferðamönnum sínum kenni-
mann. Auk þess sem mannskap-
ur mannsins er augljós þá lærir
maður tvent þar af: Hve djúpt
liggur þörfin í mannssálinni
fyrir þessu máli, þó hún hyljist
oft undir vanmegni, og ekki sízt
undir allsnægtum fyrir munn
og maga. Líka hve guðsitrúin,
göfugmenskan og þrautseigjan
bera mennina vel uppi, er í stór-
ræði skal leggja, er til blessunar
stefna.
I fjórða kaflanum fer maður
að átta sig í alvöru. Þar mætir
maður fólki af islenzbri þjóð og
er þar mintur á ýmsa erfiðleika
frumbýlingsára þeirra, sem og
síðari ára. Einnig sér maður
mörg af þeim sbrefum, er til
blessunar og framfara hafa verið
stigin af lútersbri, íslenzkri
kirbju, hér í landi og myndir
af mörgu starfsfólki hennar.
Er maður mætir myndinni af
herra biskupinum yfir íslandi,
Sigurgeiri Sigurðssyni, fljúga
fyrir huga manns atriði er oft
ganga fram fyrir mann í hvers-
dagslífinu og sem einnig er minst
á í þessari bók. Það er Ríkis-
kirkja og Fríkirkja.
Þegar William Booth sér að
fátæklingarnir koma ekki nærri
þjóðkirkjunni tekur hann sig til
að hóa þeim saman á alþýðlegri
vísu. Það er haft eftir honum að
hann vildi standa á höfðinu á
hæsta turninum í Lundúnaborg,
gæti það freisað meðbræður
hans. En hann skilur að slíkt
muni ekki gera það fremur en
það hefði frelsað heiminn, að
Jesús Kristur hefði fleygt sér
ofan af musterisburstinni.
Booth, ásarnt eiginkonu sinni,
stofnar þá Sáluhjálparherinn, er
reynist að fjögra átta vitnisburðl,
ein af stærstu skjólum heimsins.
Samt er það vel að merkja, að
kjami alls þess, sem kent er þar,
er úr hinni fast fyrir komnu
kirkju.
Þegar herra biskupinn yfir ís-
landi kom vestur um haf, fögn-
uðu ótal mannshjörtu, sem ekki
létu til sín heyra á meðan á því
atriði stóð, en til voru þeir, er
feldu tár í hljóði af fögnuði og
trega yfir örlögum tilverunnar.
Þeir áttu þó einhvem þátt í þessu
enn, þó þeir væru að hverfa til
viðar í annari heimsálfu. Kirkj-
una — þjóðkirkjuna, tunguna,
sársaukatrlfinninguna fyrir því,
hvernig færi um þjóð og land,
þó þeir og þær hefðu slitið sig
frá því af ýmsum ástæðum. Þeir
áttu þátt í versinu ódauðlega,
sem herra biskupinn minti á.
Vetrtu Guð, faðir, faðir 'minn,
í frelsarans Jesú nafni.
Hönd þín leiði mig út og inn
svo allri synd eg hafni.
Alt á þjóðkirkjan gamla þetta:
Skáldið, sem ljóðið orti, kenn-
inguna, sem það innife'lur, ljóð-
ið sjálít og hinn virðulega höfð-
ingja kirkjunnar, sem ber tign-
ina á herðum sér og sem heim-
sóknina gerði til fjarlægra
bræðra, frá mannlegu sjónar-
miði talað. Heill sé góðum gesti
komuna og áminninguna um
ljóðið mikla, sem og alt annað
gott, sem herra bisbupinn lét af
sér leiða. 1
Á þessu sama blaði fyrir fram-
an fjórða kapítulann, mætir
maður nokkrum vel þektum
starfsmönnum Lútersku kirkj-
unnar hér vestra, svo sem víðar,
er lengra sækir í kaflann. Á
meðal þessara er Dr. Haraldur
Sigmar, er þessari bygð þjónaði
í átján ár. Skapar það góðan
inntektadá'lk fyttir 'kirkjufyrir-
komulag. Gáfaður maður hefir
sagt, að Lúterska kirkjufélagið
sé bezta stofnunin og mesta, sem
Islendingar hafi sett upp hér
vestra.
Þegar stutt er komið fjórða
kapítulans, kernur svipfríður
hópur nokkurra iandnema á
Gimli. Getur þar að líta menjar
tveggja heima: Rokk eldri heims
og tíma og bjálkakofa nýbyggja
nýja heimsins. Síðar í kaflanum,
er mynd af minnisvarðanum, er
fól'ki þessu var reistur á Gimli.
Ágætar myndir af vestur-ís-
lenzkum leiðtogum, eru héir,
körlum og konum, einnig fáein-
ar af vestur-íslenzkri æsku.
Það er svo fjarska margt í
þessum kapítula, sem íslending-
ar sérstaklega myndu hafa gam-
an af að lesa og myndir að skoða.
I fimta kapítulanum og öllum
köflunum, sem eftir eru, heldur
sagan áfram vestur eftir iland-
inu og alla leið til Vaneouver.
Kaflarnir eru styttri en fullir
af fróðleik.
Bókin er í rauninni feikna
þrekvirki jafnvel þó enn mætti
finna tíma og rúm, er fylla mætti
með enn fleiru af samskonar
sögu. Sérstaklega myndi það
mö'gulegt jafnhæfum höfundi og
hér ræðir um, héðan úr Vatna-
bygðum, væru honum heimildir
í hendur fengnar. Máske seinni
tíminn 'geri það.
Einu atriði hefði eg óskað eftir
að háttvirtur höfundur hefði
'gefið meiri gaum, af því hann
víkur örlítið að því, á einum stað
í bókinni. Það er Indíána trúboð-
ið hér. Frakkar og Englending
ar hafa lagt og leggja mikið á
sig enn, við það starf, jafnvel þó
ekki séu nú blerkar þeirira steikt-
ir á báli né skorið úr þeim hjart-
að lifandi, svo sem sagan hermir
að fyr á tímum hafi verið gert.
Maður þarf ekki að hugsa sig
mikið um til þess að sjá og skilja,
að ekki er það minst í sölumar
lagt, að eyða æfi sinni á meðal
villiþjóða.
Bókin Lutherans in Canada, er
mjög vel skrifuð, skemtileg til af-
iestrar og fróðleg um margt.
Þess utan er pappír, prentun
mynda og máls og allur ytri frá-
gangur aiveg sérstaklega bæði
smekklegur og sterkur.
s Um leið og þakka háttvirtum
höfundi fyrir þá sæmd og vel-
vild, er hann sýndi mér með
Sendingu bókarinnar, þá óska eg
honum alls góðs í framtáðinni,
þar á meðal þess, að bæði kenni-
mensku og rithöfunda hæfileikar
hans fái að njóta sín sem allira
bezt og lengst.
Rannveig K. G. Sigbjörnsson.
Borgið Lögberg
PLAY SAFE!
Store Your Fur and
Cloth Coats in Perth’s
SCIENTIFIC
STORAGE VAULTS
• SAFE from MOTHS
• SAFE from FIRE
• SAFE from THEFT
• SAFE from HEAT
For Bonded Driver
Phone 37 261
Perth’s
888 SARGENT AVE.