Lögberg - 05.06.1947, Page 2

Lögberg - 05.06.1947, Page 2
2 LÖGBERG, FIMTUDAGINN 5. JÚNÍ 1947 Þeir saumuðu mig saman aftur R. W. SHEPARD Ef þú heldur að þú hafir gengið undir slóran og hæitulegan uppskurð, bara lesiu þetia. Uppskurðurinn kostaði mig ná- lega alt mitt lausafé, en það var vel þess virði, því nú er eg kom- inn í þann flokk manna, sem stundum eru kallaðir “baneitrun hins borgaralega félags.” Eg get slitið samtali og losað mig við ó- boðna gesti hvenær,- sem mér sýnist. Alt, sem til þess þarf er ein dauðsaklaus spurning. Eg bara spyr: “Hefi eg sagt þér frá því þegar eg var skorinn upp?” Ef málkunninginn hefir ekki ver- ið skorinn upp sjálfur, man hann alt í einu eftir því, að hann er tímabundinn, þarf að vera á ein- hverjum vissum stað eftir fimm mínútur og kveður í skyndi. Sumir þeirra, sem sjálfir hafa haft hnifinn í sér áður, halda víst að þeir geti sagt betur frá þeim hlutum en eg. En þá tekst mér nú upp. Enda gefast þeir von bráðar upp og komast oftast að þeirri niðurstöðu, að þeir hafi aldrei verið skornir upp, bara bólusettir. Þegar spítalaráðsmaðurinn, eða kanske það hafi verið einn af undirmönnum hans, var búinn að skrásetja ættártölu mína, og spyrja mig margra og nærgöng- ulla spurning um fjárhag minn, var mér fylgt inn í stóran sal, berann og nakinn hvað húsgögn snerti, og að vörmu spori var eg líka orðinn ber og nakinn. Þeir færðu mig úr fötunum og földu þau. Stöðugur straumur af spítalafólki var á ferðinni fram og aftur í gegnum þennan sal — mest kvenfólk, en eg húkti úti í horni og reyndi að fela mig bak við eintak af “Readers Digest,” og mér flaug í hug hvort Salo- mon konungur mundi hafa haft fleiri konur í kvennabúri sínu en þeir höfðu hér á spítalanum. Loksins var mér færður nátt- kjóll eða skyrta, sem reyndist svo stutt, að eg varð að toga með báðum höndum til þess hún næði niður fyrir lendarnar. í því bili kom þar að maður, með hjólastól, setti mig í hann og hélt síðan á stað á hörðu brokki, enda reif hann hornið af einni hurðinni með fætinum á mér, sem eg var. svo heimskur að leggja á fóta- skemilinn. Annars kom hann mér heilu og höldnu í mína “stofu” og i rúmið. Sjúklingarnir, sem fyrir voru, spurðu mig ótal spurninga. Hvernig heilsan væri, um sjúk- dómseinkennin. Hver væri læknir minn og hvort hann væri nokkurs virði, og síðast en ekki sízt, hvort eg mundi nokkum- tíma vakna til þessa lífs eftir uppskurðinn. Þegar þessar umræður stóðu sem hæst, kom inn hjúkrunar- kona með áhald, sem líktist helst oliubyssum þeim, sem við höf- um til að bera smurningsolíu á meiri háttar vélar. En þessi var með nál í öðrum endanum, en þumalfingur í hinum. Hún kall- aði þetta áhald “Hypo”. Eg gat slegið af mér fyrsta lagið, en í næsta skifti varð hún fljótari en eg og stakk nálinni á kaf í hand- legginn á mér. Klukkan 6 næsta morgun vaknaði eg við það að ein hjúkr- unarkonan var að troða upp í mig hitamæli, og áður en eg var svo vel vaknaður, að eg gæti varið mig, var eg rifinn upp úr rúm- inu, farið með mig inn í bað- klefa og drifinn ofan í baðker með sjóðandi vatni. Þegar eg var mátulega soðinn, og meir fyrir hnífinn, var farið með mig í rúmið aftur, og mér gafst nú tækifæri til að hugsa mál mitt. Nálega samstundis komst eg að þeirri hiðurstöðu, að eg væri orð- inn albata, að eg þyrfti ekki að vera skorinn upp, og að bezt væri að eg færi heim þegar 1 stað. En jafnskjótt og eg hafði tekið þ'essa ákvörðun, var dyrunum hrundið upp, og inn ruddist hópur af hvít- klæddum stigamönnum. Þeir voru ailir vopnaðir. Sumir höfðu “hypos”, aðrir pillur og einn var jafnvel með skegghníf; sömu- leiðis færðu þeir mér nýja skyrtu, sem reyndar var ekki nema kragi með tveimur ermum festum við hann. Mér datt í hug að verja mig fyrir þessum náungum, en sá með skegghnífinn var ekki árenni- legur og hnífurinn var einn af þessum gamaldags hnífum með löngu blaði, svo eg hélt það yrði máske hentugra fyrir mig að hafa mig hægan. Svo nú'var eg settur í sjúkravagn, og farið með mig í uppskurðarstofuna. Þar virtist vera einhver ágreiningur um það, hvaða tegund af svefn- lyfi ætti að nota á mig — anaes- thetic” kölluðu þeir það. Svip- dimmur maður með stóra nál í hendinni sýndist hafa sitt mál fram, og von bráðar komst eg að raun mn að hann var snillingur að fara með þetta vopn sitt. Að vísu hafði eg hinn mesta áhuga fyrir því, sem næst átti að fara fram, en féll þó brátt í dvala eða mók. Eg vaknaði aftur við hníf- glamur og óm af mannamáli. Skrín eða spjald hafði verið reist upp á bringunni á mér, svo eg sá ekki hvað var að gerast þar fyrir neðan, en eg heyrði einhvern endurtaka hvað eftir annað: “Meiri garnir, meiri garnir!” Svo eg bjóst við að það væri læknir- inn að rekja úr mér garnirnar. En svo fóru leikar, að eg stóðst ekki mátið en hrópaði: “Taktu ekki úr mér allar garnirnar.” í sam# bili var maður með svamp í hendinni kominn fast upp að andlitinu á mér. Hann var með hvíta svuntu, svo eg bað hann að færa mér bjórflösku, en hann sló svampinum framan í mig, og eg var sofnaður áður en bjór- flaskan kom. Næst þegar eg vaknaði, var eg kominn í rúm mitt aftur. Hinir sjúklingarnir létu sem þeir hefðu heimt mig úr helju, allir nema magaveikur náungi, sem var að tauta fyrir munni sér, að ekki væri alt með feldu. Enda kom það upp úr dúrnum, að hann hafði veðjað álitlegri fjárupphæð — þremur á móti einum — um það, að eg mundi ekki vakna aftur eftir uppskurðinn. Hann kvaðst ætla að skrifa læknafélag- inu, og heimta að rannsökuð yrðu öll atvik í sambandi við þennan uppskurð. Eg reyndi nú að fá mér svo- lítinn dúr, en rétt þegar eg var að festa svefninn, þar þar kom- in þrekvaxin hjúkrunarkona, sem sagði að eg yrði að snúa mér á hliðina. Eg hafði ákafan verk í síðunni, svo eg sagði henni að hypja sig. En hún greip mig upp eins og hvítvoðung, og þegar eg raknaði við úr yfirliðinu, lá eg á hliðinni. Þeir segja að það sé hætt við að þú fáir lungnabólgu, ef þú liggur of mikið á bakinu, svo reglumar heimta að alt af sé verið að snúa þér eins og skopp- arakringlu. Það gerir minst þó þú deyir af hristingnum, eða þér blæði út við alla þessa snúninga, en hitt væri alveg óviðeigandi, ef þú fengir rétta og slétta lungna- bólgu í sjálfu sjúkrahúsinu. En þrátt fyrir alt og alt fékk eg þó bráðan bata. Fæðið var fremur gott — að minsta kosti ef þér þykja góðar rauðrófur. Bryt- inn virtist hafa óþrjótandi byrgð- ir af þeirri fæðutegund, við feng- um þær alt af í einhverri mynd, að minsta kosti einu sinni á dag. Þegar ég var búinn að vera mánuð á spítalanum fékk ég nýja hjúkrunarkonu. Það var allra lag llegasta og skemtilegasta stúlka og eftir nokkrar tilraunir tókst mér að fá hjá henni talsíma- V insœldir Þessi skemtun var öllum öðr- um lík, fanst Ned. Clark Have- ner dró að sér athygli als sam- kvæmisins. Hann var langur, svarthærður og skrambi löguleg- ur í útliti. Þama sat hann við píanóið og lék smálög, sem hann hafði búið til sjálfur. Hann söng undir, og hafði laglega rödd, og alt unga fólkið sló hring um hann, og bað hann um að syngja og spila meira. Ned sat úti í homi og horfði hugsandi á fólkið. Honum fanst hann vera skelfing einmana þarna. Það skyldi altaf vera svona. Clark var altaf ljónið í samkvæmunum. Aldrei var hald ið svo samkvæmi eða gleðskapur að hann væri ekki boðinn þang- að. Og ekki bara boðinn, — það var altaf gert ráð fyrir að hann yrði hrókur als fagnaðar. Og honum mistókst aldrei. Ned stóð upp og færði sig að píanóinu. Stúlka með rautt hár og blá augu leit hlæjandi til hans. Það var Sandra Young, hún sem altaf var í huga Neds, bæði í vöku og draumi. — Það er fallegt tunglsljós úti, hvíslaði hann að henni. — Við skulum fara dálítið út áður en við förum héðan alveg. Hópurinn kringum píanóið var farinn að syngja undir for- ustu Clarks. Sandra hristi höf- uðið og hnyklaði brúnirnar. Ned sneri sér frá og fór svo burt. — Hann beið nokkrar mínútur, svo tók hann hattinn sinn og tókst að laumast út án þess að nokkur tæki eftir. Meðan hann var að aka heim til sín þessa ljúfu sumarnótt, og tunglið stráði geislum yfir vog- inn, hugsaði hann með gremju um ranglæti heirrisins. Hvers vegna hafði hann ekki fengið sömu hæfileikana og Clark í vöggugjöf? Hvers vegna var það ekkert, sem hann gal, gert til þess að láta æskulýðinn í Mason- ville dást að sér? Mamma Neds var á fótum, eins og hún var vön, þegar hann fór út og beið eftir honum. — Þú kemur snemma heim, sagði hún. — Hefir nokkuð komið fyrir þig? Er það Clark Havener, rétt einu sinni. — Það er ekkert út af Clark að setja. Hann er sniðugur, sagði hann. — Það er engin furða þó að Sandra sé hrifin af honum. Frú Sedgevick hristi höfuðið. — Clark er ekki sniðugur, sagði hún. Hann er bara eðlilegum gáf- um gæddur, en það verður aldrei maður úr honum. Hann hefir ekki framkvæmd í sér til neins. Næstu mánuðina fékk Ned á- stæðu til að efast um þessa stað- hæfingu móður sinnar. Það var altalað í bænum að Clark hefði verið tekinn inn í leikhússkól- ann og að hann ætti að fara til númerið hennar. En áður en það mál komst lengra áleiðis, var mér tilkynt að ég væri al- bata og nú gæti ég farið heim — en auðvitað yrði ég fyrst að borga reikninginn. Ekki vildu þeir samt sleppa mér án þess að gefa mér eina meiri inn- sprautun. Það ætti að vera til að styrkja taugar mínar fyrir heimförina. En eftir á grunaði mig að það hefði verið til að styrkja taugarnar áður en þeir sýndu mér reikninginn. Fyrst eftir að ég kom heim» hélt ég allir mundu hafa gaman af að heyra um uppskurðinn og spítalaveruna, en von bráðar komst ég að því að kunningjar mínir vildu ekkert um það heyra. Nú* minnist ég ekki á þetta efni framar, nema þá þegar ég geri það í vissum til- gangi, eins og ég gat um í upp- hafi. Eg minnist aldrei á upp- skurðinn við bestu vini mína, og sumir þeirra vita ekki einu sinni að ég hafi veríð skorinn upp. Hollyvodd. Vinsældir hans fóru sívaxandi, og aðdáun Söndru á honum meiri og meiri. Ned hugs- aði til hennar með beiskju. Hann reyndi árangurslaust að gera sig að hetju í augum hennar, hann útmálaði fyrir henni hvernig framtíð sín mundi verða og hví- líkt mikilmenni hann mundi verða með tíð og tíma. En Sandrá hló bara að honum og augu henn- ar vissu ekkert annað mark en Clark. Á næstu fjórum árum gleymdi Ned að heita mátti öllu því, sem viðkom Masonville, og var allur í náminu. Það eina. sem tengdi hann við bæinn var tilhugsunin um Söndru. Hann hitti hana stundum þegar hann kom í bæ- inn, hún var vingjamleg við hann, eins og hún væri að tala við sér minni mann. En nú þóttist Ned vera orðinn maður fyrir sinn hatt líka. Enn gekk sú saga, að Clark mundi verða frægur leik- ari, en lengra var nú ekki komið enn. Hann var ekki annað en samkvæmishetjan í litla bænum, aðal „númerið“ í öllum sam- kvæmunum, og var enn innan- búðarmaður í járnvöruverzlun Taylors. Ned var altaf skemt þegar hann sá hofmóðssvipinn á Clark. Nokkru síðar tók Ned próf sitt og varð efstur í sinni deild. Hann fékk undir eins góða stöðu hjá verkfræðingastofu inni í landi. — Hann vann af kappi og hækkaði í tigninni. Eftir þrjú ár vap hann orðinn hálaunamaður og kominn í álit. Skoðanir hans á ýmsurn viðfangsefnum voru ræddar í sérfræðiritum um tæknileg efni. Þetta sumar ákvað Ned að fara heim. Með starfi sínu hafði hann náð því marki, sem hann hafði sett sér. Hann var orðinn frægur maður. Hann gat ekki stillt sig um að hlæja, þegar hann mintist samkvæmisljónsins Clarks.. Svo hugsaði hann til Söndru og þá sló hjartað hraðar. Sandra mundi áreiðanlega hafa lesið um frama hans, og eflaust taldi hún hann mikinn mann. Bærinn var alveg eins og áður, og fólkið líka. Áður en hann komst heim að húsinu sínu hitti hann Wayne Fields Þeir tókust innilega í hendur. Wayne sagði honum, að það ætti að vera skemtun um kvöldið, Ned mætti til með að koma þangað og rifja upp gamlan kunningsskap. Hann lofaði að koma og hlakkaði til að sjá alla kunningjana aftur. Þarna var sama fólkið, kannske ofurlítið eldra, en það sama. — Clark Havener sat við píanóið og naut vinsældanna. Þarna var Sandra og kom ihlaupandi til hans og bauð hann velkominn. — Kæri Ned, sagði hún, — en hvað þú varst vænn að koma. — Hvernig vissirðu þetta? Sagði hún mamma þín þér það? Clark er rétt búinn með lagið, svo að þá getur þú óskað honum til hamingju. Eg hafði óskað þess að þú gætir komið hingað í brúð- kaupið okkar. Fálkinn. RITSTJÓRAR ÍSLENZKU DAGBLAÐANNA í HEIM- SÓKN TIL SVÍÞJÓÐAR Munu dveljast þar í hálfan mán- uð í boði sænsku ríkisstjórnar- innar. Ritstjórar allra dagblaðanna í Reykjavík og fréttastjóri frétta- stofu ríkisútvarpsins. þeir Stef- án Pétursson. ritstjóri Alþýðu- blaðsins, Valtýr Stefánsson, rit- stjóri Morgunblaðsins, Kristján Guðlaugsson, ritstjóri Vísis, Kristinn Andrésson, ritstjóri Þjóðviljans og Jón Magnússon, fréttastjóri, flugu um miðnætti s. 1. nótt áleiðis til Svíþjóðar, en þangað er þeim boðið af sænsku ríkisstjórninni til hálfsmánaðar dvalar og ferðalaga. Ritstjórarnir áttu að koma við á Kastrupflugvellinum í Kaupmannahöfn, en þaðan fóru þeir til Málmeyjar, og munu fulltrúar sænsku ríkisstjórnar- innar hafa tekið á móti þeim þar, Ritstjórarnir munu næstu daga ferðast um þessar borgir: Málmey, Lund, Helsingjaborg, Gautaborg; þaðan yfir Mið- Svíþjóð til Karlstad, Stokkhólms og Uppsala. Steingrímur Arason og frú hans, fyrstu heiðursfélagar Sumargjafar. Steingrímur Arason og kona hans, Sína Arason, voru kjörin heiðursfélagar Barnavinafélags- ins Sumargjafar á aðalfundi félagsins síðastliðinn föstudag, og eru þau fyrstu heiðursfélagar Sumargjafar. Steingrímur Arason var einn af stofnendum Sumargjafar og var formaður félagsins í 16 ár. Hefur hann með stuðningi konu sinnar unnið ómetanlegt braut- ryðjandastarf í þágu félagsins og uppeldismála í landinu. Alþyðubl. 22. Apríl. Borgið Lögberg PLAY SAFE! Store Your Fur and Cloth Coats in Perth's SCIENTIFIC STORAGE VAULTS • SAFE from MOTHS • SAFE from FIRE • SAFE from THEFT • SAFE from HEAT For Bonded Driver Phone 37261 Perth’s 888 SARGENT AVE. V O R I D Vorvinnan útheimtir vinnukraft og peninga sem ekki gefa af sér arð fyr en uppskeran er fengin. Meðan þannig stendur á, er Royal bankinn fús á að lána peninga fyrir vinnu, útsæði, áburð, búnaðarverkfaeri og annað, sem þarf til umbóta á jörðum og húseignum. Það er bankastjóran- um í umhverfi yðar ávalt mikið fagnaðarefni, að eiga við yður tal THE ROYAL BANK OF CANADA i

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.