Lögberg - 12.06.1947, Blaðsíða 1

Lögberg - 12.06.1947, Blaðsíða 1
PHONE 21 374 LÍOtA \&!OSb*Z. »t!£& Cie^ ÍJaun ■fö'B- ® A Complele '"neaning I istiiulion PHONE 21 374 Vitu1 V\oo'lot!|o^ Ij<>u fö'P" ^ A Complete Cleaning Instilution 60. ÁRGANGUR WINNIPEG, FIMTUDAGINN 12. JÚNÍ, 1947 25 manns farast í flugslysi Frá sendiráði íslands í .Washington: Dr. Richard Beck fimtíu ára, 9. júní, 1947 Þjóð vor hyllir þig og sendir þökk frá innstu hjartarót. Norðurlanda frægð og fræði fága lífs þíns tímamót. Manndáð, vilji, mennt og göfgi merkið prýddi alla leið. Nú frá heiðum himni ljómar hádags sól þitt fagra skeið. Starf þitt ást og virðing vakti vítt um heimsins mennta svið. Sál þín glöð, í sögu og kvæði. sýndi vinar-þel og lið. Heill og djarfur, hreinn og prúður hátt við lífsins skyldu kall. Ei var þitt um hæl að hopa, hetjublóð í taugum svall. Ehin er tíð með táp og f jöri til að lyfta andans sjón, vígja traustu vinabandi Vínlands byggð og móðurfrón. Hröð þó liggi leið að hausti, langt er enn til hinsta dags. Lengi geymist sólrík saga, samúð þín til bræðralags. f -f f f- f f- f- Vegna hins hörmulega flug- slyss, sem átti sér stað á íslandi nýlega hefir sendiráðinu borist tvö svohljóðandi símskeyti frá utanríkisráðuneytinu í Reykja- vík: „Yngsta Dakota-flugvél Flug- félagsins fórst HesUjalli Héðins- hrði fimtudag með tuttugu-emn farþega fjögra manna áhöfn. — Lagði af stað 11:25 til Akureyr- ar sást Siglufirði og hafði sam- band Akureyrarstöð svipað leyti klukkan 12:30 Hefir senni- tega rekist á fjallið skömmu síð- ar á leið inn Eyjafjörð Flakið sást í morgun frá leitarflugvél rnikið brunnið. Ekkert merki um tíf. Ráðstafanir gerðar nálgast það frá sjó. Meðal tuttugu-eins farþega Garðar alþingismaður horsteinsson Þorgerður systir Stefáns sendiherra Brynja Hlíð- ar lyfjafræðingur og hjónin Erna Tryggvi Jóhannsson með tvö börn auk þess eitt barn. Flug maður Kristján Kristinsson að- stoðarflugmaður Georg Thorberg Óskarsson loftskeytamaður Ragnar Guðmundsson þerna Sigríður Gunnlaugsdóttir.“ „ Aðrir farþegar Akureyripgar Guðlaug Einarsdóttir Saga Geirdal Sigurrós Stefánsdóttir Rannveig Kristjánsdóttir Júlíana Arnórsdóttir Árni Jónsson Þórð- ur Arnaldsson Sigurrós Jónsdótt ú Stefán Sigurðsson deildarstjóri KEA Gunnar Hallgrímsson tannlæknir Húsvíkingar María Jónsdóttir Jens Barsnes norsk- ur Bryndís Sigurðardóttir Reykjahlíð Mývatnssveit og Jó- hann Guðjónsson Eyrarbakka.“ Virðingarfyllst, Thor Thors. Hér fer á eftir ný og ýtarlegri frásögn af áminnstu flugslsysi, eftir fréttaritstjóra Alþýðublaðs- ins, hr. Benedikt S. Gröndal. Trygve Lee Kjörinn heiðursdoktor Aðalritari sameinuðu þjóðanna ^ygve Lee, hefir verið kjörinn heiðursdoktor í lögum við Mani- toba háskólann; hann kom hing- að í gær til þess að flytja ræðu 1 Winnipeg Auditorium fyrir at- heina félagsskapar hér í borg- 'nni- sem helgaður er hugsjón- Utn hinna sameinuðu þjóða. — Trygve Lee er útskrifaður í lög- Urn af háskólanum í Oslo, og hef- lr langan og hetjulegan starfs- feril að baki. Benediki S. Gröndal: Fréttabréf til Lögbergs Reykjavík, 1. júní 1947. 25 manns mórust. er ein af Douglas Dakota-flugvélum Flug félags íslands, sem fljúga milli Reykjavíkur og Akureyrar, rakst á Hestfjall við norðanverðan Héðinshöfða fimtudaginn 29. maí. Flugvélin fór frá Reykjavík skömmu fyrir hádegi, flaug norður yfir Arnarvatnsheiði og hafði þá samband við flugvöll- inn í Reykjavík og loftskevta stöðina í Gufunesi Þegar vélin kom inn yfir Skagafjörð náði hún sambandi við flugvöllinn á Akureyri og hafði það til klukk- an' 12.30. Þá kvaðst loftskeyta- maður flugvélarinnar ætla að kalla völlinn aftur eftir tíu mín- útur, en eftir það heyrðist ekk- ert frá vélinni. Þó sást hún á flugi úti fyrir Siglunesi klukkan 12.45. Það vissu.menn síðast af henni. Þennan dag var leitað að hinni týndu flugvél á sjó, landi og úr lofti, en leitin bar engan árangur. Var milkjl þoka, sem sest hafði yfir Norðurland, leitinni til traf- ala. Næsta morgun lögðu þrjár flugvélar af stað í leit, og fann þá einn af Catalina-flugbátum Flugfélagsins — flugmenn Smári Karlsson og Gunnar Fredriksen — flakið af hinni týndu flugvél. Var það í eins konar kleitagjá í Hesifjalli, sem er norðan við Héðinsfjörð, en hann er næsii fjörður við Siglufjörð. Hafði flugvélin augsýnilega rekisi á fjallið í þoku og sprenging orð- ið í henni og allir, sem í henni voru farisi. Bátar frá Ólafsfirði fóri^ þeg- ar á staðinn og voru hin 25 lík. mjög mikið sködduð, flutt inn til Ólafsfjarðar, en þaðan á „Atla“ til Akureyrar. Þar var hátíðleg minningarathöfn, er skipið lagði að landi, en líkin voru flutt í kirkju. Þjóðarsorg mátti heita eftir þetta mikla flugslys, sem er álíka mikið og heilir skipstapar. Skemt undm var aflýst og fánar blöktu í hálfa stöng víðsvegar um land- ið. Fólkið, sem fórst með flug- vélinni, var þetta: Bryndös Sigurðardóióióir, Reykjahlíð við Mývatn 23 ára. ógift. Brynja Hlíðar, lyfjafræðingur, Akureyri 36 ára. Ógift. Garðar Þorsieinsson alþingis- maður Vesturgötu 19. Reykja- vík, 48 ára. Kvæntur og átti 4 börn, það yngsta 7 ára hin upp- komin. Georg Thorberg Óskarsson, flugmaður, Laugaveg 5, Reykja- vík, 23 ára, kvæntur, barnlaus. Guðlaug Einarsdóiiir, Túngötu 25, Siglufirði. Gunnar Hallgrímsson,' tann- læknir, Helgamagrastræti 38, Akureyri 37 ára. Kvæntur og áÆti börn. Jens Barsnes, Norðmaður Húsavík. Jóhann Guðjónsson, Eyrar- bakka. Júlíana Arnórsdóiiir frá Ups- um í Svarfaðardal. 29 ára. — Sonur hennar, Árni Jónsson, 4 ára. Krisiján Tryggvi Jóhannsson verkfræðingur, Fjólugötu 25, Reykjavík, 29 ára og Erna Jo- hanne kona hans, 29 ára, fædd í Noregi. Synir þeirra, Gunnar 4 ára og Tryggvi á 2. ári. Krisiján Kristinsson flugmað- ur, öldugötu 40 Reykjavík, 23 ára, bjó með móður sinni. María Jónsdóiiir, Kaldbak við Húsavík. Ragnar Guðmundsson, loft- skeytamaður, Flókagötu 1, Rvík. 25 ára. Ókvæntur. Rannveig Krisljánsdóttir, Eir- arvegi 11 Akureyri. 29 ára. — Ógift. Saga Geirdal, Bókhlöðustíg 7 Rvík., 41 árs. Ógift. Sigríður Gunnlaugsdóltir flug þerna, Hjallaveg 52, Rvík. 23 ára. Ógift. Sigurrós Jónsdóilir, Hörgár- braut 3 Akureyri, 16 ára. Sigurrós Siefánsdóiiir. frá Skóg um á Þelamörk. Siefán Sigurðsson, deildarstj. hjá Kaupfél. Eyfirðinga, Hafnar- stræti 90, Akureyri, 29 ára. Þorgerðlur Þorvarðardóiiir, húsmæðraskólakennari. — Systir Stefáns Þorvarðarsonar sendi- herra í London. — Þórður Arnaldsson, Þrúðvangi við Akureyri. Bifreiðarstjóri, 23 ára. Kvæntur. TVEIR MENN FARAST í FLUGSLYSI Tveim dögum eftir hið ógur- lega flugslys, sem hér hefir ver- ið skýrt frá, fórust enn tveir menn á 'lítilli æfingaflugvél skamt frá Reykjavík. Hrapaði flugvélin á innanverðu Kjalar- nesi og fórust báðir mennirnir, sem voru ungir Reykvíkingar. ALÞINGI SLITIÐ Einu viðburðaríkasta Alþingi á seinni árum var slitið laugar- daginn fyrir Hvítasunnu. Hafði það þá setið 227 daga, frá 10. okt. 1946 til 24. maí 1947. Þingfundir voru haildnir 147 í efri deild og 145 í neðri deild, en 61 í sam- einuðu Alþingi. Als hafði þetta þing 265 mál til meðferðar, og voru þar á með- al mörg stórmál, sérstaklega frumvörp núverandi stjórnar. Dýrlíðin Það hefir helst þótt tíðindum sæta í stjórnmálum hér heima, að ríkisstjórn Stefáns Jóhanns Stefánssonar hefir hafið allmikla baráttu gegn dýrtíðinni og hinni miklu og óhollu penisgaveltu, (Frh. á bls. 5) M. MARKÚSSON ♦ ♦ ♦ * 4- ♦ ♦ Fred M. Gee Fred M. Gee látinn Nylátinn er einn hinn kunn- asti og áhrifamesti frömuður á sviði hljómlistarinnar í þessari borg, Fred M Gee. víðkunnur organisti og píanóleikari, 64 ára að aldri; hann vann um langt skeið hljómmenningu borgarbúa ómetanlegt gagn, með því að stuðla að hingaðkomu ýmissa frægustu tónlistarmanna og kvenna samtíðarinnar; stofnun sína, er að þessu starfaði, nefndi Mr. Gee Celebrity Conserts, og varð hún því umfangsmeiri, sem árin liðu. Mr. Gee annaðist um undir- búning hinna glæsilegu sam- söngva Karlakórs Reykjavíkur í Winnipeg í nóvembermánuði síðastliðnum. -f ♦ TRUMAN í OTTAWA Síðastliðinn þriðjudag ' kom Truman Bandaríkjaforseti til Ottawa ásamt frú sinni og dótt- ur; er þetta fyrsta heimsókn for- setafjölskyldunnar til Canada, og varir dvölin hér þrjá daga; höf- uðborgin var öll gánum skrýdd, er forseta og föruneyti hans bar að garði. — Forsætisráðherr- ann, Mr. King, bauð Mr. Truman formlega velkominn í nafni canadísku þjóðarinnar; daginn eftir flutti forseti ræðu í samein- uðu þingi í Ottawa. -f -f -f Nýtt réttarhald Hæstiréttur Canada hefir í einu hljóði felt úr gildd dauða- dóminn gegn Lawrence Deacon, þeim, er kærður var og fundinn AÐRAR FRÉTTIR í SUTTU MÁLI Látinn er Ólafur Guðmunds- son, fyrrum ferjumaður á Sand- hólaferju. Gísli Sveinsson, aiþingismaður, hefir verið skipaðuj; sendiherra Islands í Oslo í Noregi. Þegar líkneskið af Snorra Sturlusyni verður afhjúpað í Reykholti í sumar, verða þar viðstaddir þeir Ólafur krónprins Norðmanna og Einar Gerhard- sen, forsætisráðherra. Auk þeirra koma til landsins fjölmargir Norðmenn í þessu tilefni. Bæjarstjórn Reykjavíkur hef- ir nýlega úthlutað 55 íbúðum í nýjum byggingum, sem reistar hafa verið til þess að vinna bug á húsnæðisvandamálunum. -f Nýlega hafa verið undirritaðir brezk-íslenzkir viðskiptasamn- ingar, og rnunu Bretar kaupa verulegan hluta af síldarfram- leiðslu landsmanna í ár, auk all-mikils af öðrum fiski. Samn- imgaumleitanir í Moskvu ganga verr. -f íslenzkir listamenn tóku ný- lega þátt 1 norrænni málverka- sýningu í Stokkhólmi og hlutu hina lofsamlegustu dóma. -♦■ Otto Jóhansson, séndiherra Svía á íslandi í 10 ár, er nýlega farinn frá landinu. Verður hann sendiherra í Finnlandi. Snarpir jarðskjálftar fundnst fyrir nokkru í Hveragerði, og urðu þá all-miklir jarðhræring- ar þar. Kom upp all-mikið af nýjum hverum og gamlir vökn- uðu, en hiti og vatnsmagn ann- ara jókst til muna. Eitt eða tvö hús skemmdust, þar sem hverir spruttu upp rétt við þau, og fólk varð að flýja þau. Þorpið Hvera- gerði er í engri hættu. Látinn er nýlega Sigurður Ólafsson, sem lengi var ritari Sjómannafélags Reykjavíkur. ■ Eimskip hefir nýlega keypt ”5800 smálesta flutningaskip frá Bandaríkjunum. sekur um morð íslenzka bílstjór- ans, Jóhanns Johnson, og fyrir- skipað nýtt réttarhald í málinu; hvenær slíkt réttarhald hefst, er enn eigi vitað. ♦ ♦ ♦ ÞIGGUR PRESTVÍGSLU Síðastliðinnf östudag var vígð- ur til prests innan vébanda sam- einuðu kirkjunnar, kandidat í guðfræði, Ernest Johnston, efni- legur og vel gefinn maður; hann er sonur frú Helgu Johnston, að 708 Banning Street hér í borg- inni, og manns hennar Paul Johnston verzlunarumboðs- manns, sem látinn er fyrir all mörgum árum. ♦ •♦ •♦ Listi yfir farþega írá Winnipeg er leggja af stað til Islands í dag með Skymaster-flugvél Loftleiða, h.f.: Miss Guðbjörg Eigurðsson, Mrs. Halldóra Pétursson, Miss Laura Johnson, Mr. og Mrs Ás- geir Guðjohnsen og fjölsikylda, Mr. Johann Pálsson, Miss Louise Sigurðsson, Miss Alma Levy, Mr. Kristján Thorsteinsson, Miss Ása Jónsdóttir, Miss Sigriður Westdal, Mr. Paul O. Einarsson, Oak Point, .Man, NÚMER 24 Richard Leonard Beck FÆR NÁMSSTYRK Þessi ástundunarsami og efni- legi námsmaður, Richard Leon- ard Beck, sonur þeirra Mr. og Mrs. J. Th. Beck, hlaut við ný- afstaðin vorpróf Manitoba há- skqlans Isbister verðlaun, að upphæð 80.00 dollara. Hann leggur stund á rafmagnsverk- fræði, og lauk annars árs prófi. Úr borg og bygð Mr. J. K. Laxdal skólastjóri ó Gimli, hefir verið skipaður yfir- kennari við Science-deild kenn- araskóla Manitobafylkis, og flyt- ur hingað til borgarinnar ásamt fjölskyldu sinni með haustinu. Mr. Laxdal er frábærum kenslu- hæfileikum gæddur og nýtur hvarvetna virðingar og trausts. , -♦ Mr. Bjarni Egilsson bæjar- stjóri á Gimli var staddur í borg- inni á þriðjudaginn. -♦ Samskot í Útvarpssjóð Fyrstu lúi. kirkju— Bjarni Torfason, Lundar, 75c; Torfi Torfason, Lundar, 75c; Lud- vig Torfason, Lundar, $1.50; Mr. og Mrs. D. J. Lindal, Lundar, $2.00. Kærar þakkir, V. J. E. -♦ Hátíð að Lupdar 6. júlí— Eins og áður var getið um í blöðunum í sambar.di við 60 ára bygðarafmæli að Lundar 6. júlí, þá getur fólk fengið far með „Bus“ frá Winnipeg að morgni og komið aftur að kvöldi. Það verður niðursett far og er fólk sem hefir í hyggju að fara, beð- ið að komast í samtal við eftir- fylgjandi menn í Winnipeg, sem fyrst: H. F. Daníelsson. sími 38528. B. E. Johnson, sími 87987, Heim- ir Thorgrímsson, sími 29649. ♦ The Annual meeting of the Ice- landic Canadian Club will be held on Monday eve., June 16th at 8.15 p.m., in the Free Press Board Room No 2, 4th floor. -♦-♦-♦ Þjóðræknisdeildir. Fjallkonan í Wynyard hefir ákveðið að hailda Islendingadag í Wynyard þdnn 6. ágúst næstkomandi. ♦ -♦ ♦ Þær konur, sem vilja lána muni á hannyrðasýninguna sem baldin verður í sambandi við Arsþing bandalags lúterskra kvenna, eru beðnar að koma slíkum munum fyrir þann 22. þ. m., annaðhvort til Mrs. Finnur Johnson Ste 14 Thelmo Mansion, eða Mrs. E. W. Perry, 723 War- saw Avenue. ♦ ♦ ♦ Fjölmennið á íslendingadag- inn, sem haldinn verður að Mountain, N. Dak., á þriðjudag- inn þann 17. þ. m.

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.