Lögberg - 19.06.1947, Síða 5
LÖGBERG, FIMTJDAGINN 19. JÚNÍ, 1947
5
Ali U6AM4L
IWCNNA
Ritstjóri: INGIBJÖRG JÓNSSON
Heimsækir ættjörðina eft-
ir sextíu ára fjarveru,
ásamt dóttur sinni
Meðal farþega, er lögðu af stað
til Islands með Skymaster-flug-
vélinni „Hekla", síðastliðinn
föstudag, var Mrs. Oddný Joihn-
al annars, við sögu Manitoba
fylkis vegna þess að hún nefndi
Lundar-þorpið við Manitoba-
vatn, eftir fæðingarbæ sínum á
Islandi. Hún ber aldurinn vel og
hlaikkaði meir en frá verði sagt
til þess að heimsækja ættjörð
sína og frændlið og ferðast þang-
að loftleiðis. Mrs. Johnson á það
Mrs. Oddný Johnson,
son, 83 ára að aldri, ekkja eftir
Hinrik Johnson, sem látinn er
fyrir nokkrum árum. 1 för með
Mrs. Johnson var dóttir hennar,
Miss Laura Johnson hjúkrunar-
kona. Mrs. Jóhnson kemur með-
Leiklistin í hættu
Þegar við vorum á Islandi síð-
astliðið sumar, sýndi húsameist-
ari ríikisins, Dr. Guðjón Samúels-
son, okkur þá velvild að sýna
okkur Þjóðleikhúsið í Reykja-
vík. Þetta volduga leikhús er eitt
af þeim mörgu, fögru bygging-
um, er reistar hafs verið á Is-
landi eftir hans teikningum. —
Húsið var ekki fullgert þegar
herinn kom til Jsilands, og hann
tók það til umráða og afnota. En
nú var herinn farinn og verka-
naenn voru í óða önn að vinna
að húsinu. Er búist við að það
verði fullgert á þessu ári, en þá
verða liðin 50 ár frá því að Leik-
félag Reykjavíkur var stofnað.
Leikhús þetta er afar stór og
tignarleg bygging, skreytt með
hrafntinnu og silfurbergi; er
talið að það muni verða ein vand
aðasta bygging af þessari teg-
und í Norðurálfunni.
Þjóðleikhúsið er vottur þess
að IsHendingar unna leiklist og
hafa milkinn áhuga fyrir því að
leikendur eigi kost á því að sýna
leiklist við hin beztu skilyrði. —
Leikhús sem þetta verður líka
fólki, sem gætt er leikarahæfi-
leikum, hvatning til þess að iðka
leiklist og leikritaskáldum að
s,emj'a sjónleiki. Þarna munu
verða sýndir sjónleikir eftir hin
ugætustu leikritaskáld, innlend
°g útlend: Matthías Jochumsson,
fndriða Einarsson Einar H.
Kvaran, Johann Sigurjónsson,
Lí’Uðmund Kamban. Pá'l Árdal,
^avíð Stefánsson, Hinrjk Ibsen,
^illiam Shakespeare og marga
Heiri. Ekki þarf að lýsa því, hve
stofnun, sem þessi eykur á menn
lngu fólksins og fegrar svip
h°rgara!lífsins.
Hinn sterki áhugi fyrir leik-
hst, sem þarna kemur fram,
fanst rnér eftirtektarverður
Miss Laura Johnson
sammerkt við svo margar ís-
lenzkar landnámskonur í þessu
landi að láta ekki allt fyrir
brjósti brenna. Hún á dóttur í
Reykjavík, Kristínu, sem gift er
Ragnari Ólafssyni lögfræðingi.
vegna þess, að hann stingur í
stúf við þá deyfð er nú ríkir hér
í þeim málum. Síðan kvikmynd-
irnar hófu innreið sína í allar
borgir og alla smábæi landsins,
hefur áhugi fyrir þessari fornu
list farið hnignandi með ári
hverju; kvikmyndirnar hafa að
mestu útrýmt leikstarfsemi
fólksins. í stað þess að reyna að
leika sjálft, situr það nú í þús-
unda tali inni í kvikmyndahús-
um og horfir á myndir af fáein-
um leikurum; sömu leikararnir,
sem valdir eru af kvikmyndafé-
lögunum, leika ár eftir ár fyrir
fólk um allan heim.
Winnipeg-borg telur um 300
þúsund íbúa; hún er tvöfalt
mannfleiri en allt Island, en hér
er lítið um leikstarfsemi; hér er
afar sjaldgæft að sýndir séu leik-
ir eftir fræga leikritahöfunda
enda er hér ekkert öflugt leikfé-
lag á borð við Leikfélag Reykia-
ví'kur, og engin viðleitni er til
þess gerð af hálfu hins opinbera
að hlúa að leiklist. Á sama tíma
og verið er að reisa þjóðleikhús-
ið í Reykjavík, er Walker-leik-
húsið, sem hafði hið ágætasta
leiksvið og er eitt með stærstu
og beztu leikhúsum í Canada,
selt kvikmyndafélagi fyrir gjaf-
verð.
I Winnipeg voru um eitt
skeið mörg leikhús: Winnipeg-
leikhúsið á Notre Dama, Orphe-
um, Walker og Pantages, og hér
voru starfandi leikfélög og hing-
að komu margir frægir leikarar
eins og Sarah Bernhart og
fleiri. En þessir blómlegu tímar
leiklistarinnar lifa nú aðeins í
minninguinum. Winnipeg-leikhús
ið brann og var ekki endurreist.
Orpheum-leikhúsið var rifið og
kvikmyndahús reist í staðinn;
kvikmyndatjaldið byrgir nú hið
fræga leiksvið Walker-leikhúss-
ins; lélegasta leikhúsið, Pantages,
sem nú er nefnt Playhouse, er
enn til afnota fyrir þá er vilja
leigja það til sjónleikasýninga,
en það er á leiðinlegum og óhent-
ugum stað í borginni. Kvik-
myndafélögin hafa náð í beztu
húsin og hentugustu staðina.
Það er hörmulegt ti'l þess að
vita, að fólkið skuli ekki hafa
verið sterkara á svellinu gagn-
vart yfirráðum kvíkmyndanna;
að þær skuli vera búnar að
kæfa að mestu alla leiklistarvið-
leitni fólksins og koma í veg fyr-
ir það að hingað komi mikilhæfir
leikarar og leikflokkar til að
sýna. Jafnvel samkomuhús borg-
arinnar, Winnipeg Auditorium,
er ekki öruggt gegn áleitni kvik-
myndafélaganna. Nýlega gerði
edtt slíkt félag tilraun til þess &ð
ná yfirráðum yfir einum saln-
um í því húsi. Ef sú tilraun hefði
náð fram að ganga, hefði það
dregið stórlega úr hljóm- og
sönglistarlífi borgarinnar; sem
betur fór reis fólkið öndvert
gegn þessu tiltæki.
Frá því að sjónleikalistin
ruddi sér til rúms á Grikklandi,
hefir hún, þar sem hún hefir ver-
ið iðkuð, verið nokkurs konar
skóli fólksins Leikritahöfund-
arnir og leikararnir leituðust
oftast við að hefja áhorfendur á
æðra svið andlegrar siðmenning-
ar, með því að ráðast á hvers
konar spillingu í mannfélaginu,
lýsa sálargöfgi og hefja til vegs
siðgæðis-, réttlætis- og fegurðar-
hugsjónir. Hafa kvikmyndafé-
lögin fylgt þessari stefnu leik-
listarinnar? — Fyrir framan
mig liggur annað dagblað borg-
arinnar og er heil síða þess helg-
uð auglýsingum kvikmyndahús-
anna; þau eru 33 talsins. Þarna
eru myndir af mönnum með
skammbyssur á lofti, hálfnöktu
og glæfralegu kvenfólki; fólki í
faðmlögum o. sv. frv. Þessar
myndir gefa til kynna hvaða leið
risaframleiðslan í Hollyvood hef-
ir valið sér!
Það er ekki einungis að kvik-
myndaframleiðendur hafa saurg-
að leiklistina og notað þetta
áhrifamikla tæki, kvikmyndirn-
ar, til þess að draga fólkið niður
í heldýpi lasta og spillinga, í stað
þess að hefja það á-hærra stig,
menningarlega; kvikmyndirnar
eru að kæfa þátttöku fólksins í
leikstarfsemi; í þessu liggur eigi
minni hætta en í því fyrra. —
Fólkið er farið að sætta sig við
að vera aðeins áhorfendur og
áheyrendur.
Seinna mun verða vikið að því,
hvernig þessi vélaöld er að deyfa
og kæfa andlega sköpunarhæfi-
leika einstaklingsins á öðrum
sviðum.
Barney Oiafsson
— Hinsta sonarkveðja —
Trega ekki mamma mín
mig, þótt skoði nýja heima,
því að ástar-eigló þín
um mig iætur solli gleyma.
Sælli daga séð ég fæ
Sólargrams á landi björtu,
ofar mannlífs úfnum sæ
ekkert fær þar kramið hjörtu.
Þúsundfalda þökk vil tjá
þér, frá öllum liðnum tíma.
Hversu undra mörgu má
móöurástin burtu rýma.
Til að lyfta huga hátt,
hrinda raunum, vekja gleöi,
án þín hefði unnist fátt,
eigingirnin sízt þar réði.
Aftur seinna sjáumst við
svifin ofar böli manna.
Dvalið fáum hlið við hlið,
hugtak skynjum til að kanna
æðri og dýpri en orkum nú
efst í ljóssins tignarveldi.
með kærleikum þig kveð unz þú
kemur heim á ævikveldi.
♦ Hljóta námsverðlaun
Við nýafstaðin vorpróf Mani-
topa háskólans, hlaut Irine
Thorbjörg Sigurdson Isbister
verðlaun, að upphæð $200, og
Thora Stefánsson hlaut Arts and
Science verðlaun að upphæð
$100. — Báðar þessar stúlkur eru
frábærum námshæfileikum
gæddar.
GOTT FORDÆMI
Á nýafstöðnu kirkjuþingi
sameinuðu kirknanna í Canada,
sem haldið var í Toronto nýlega,
var alverlega rætt um allar hinar
ægilegu afleiðingar áfengissöl-
unnar og brennivínssalan í
Canada fordæmd hlífðarlaust. —
I þeirri yfirlýsingu var þessi
setning:
„Þa ðhryggir oss að sumir þeir
sem heyra kirkjunni til, nevta
áfengis". Einn presturinn — Rev.
Arthur Organ — lagði það til að
þessi setning yrði strykuð út, en
það var samþykt með tveimur
þriðju allra atkvæða að halda
henni óbreyttri.
Sig. Júl. Johannsson.
þýddi.
**♦♦♦♦♦♦
DÁNARMINNING
Einar Jóhannesson, 81 árs,
andaðist að heimili Miss Aðal-
bjargar Halldóru Jóhannessonar,
systur sinnar í Selkirk, ?ann 6.
júní, varð bráðkvaddur. — Hann
var fæddur 4. nóv. 1864 að Sult-
um, Kelduhverfi í Norður-
Þingeyjarsýslu, sonur hjónanna
Jóhannesar Einarssonar og Þóru
Einarsdóttir, er síðast bjuggu að
Hrappsstöðum í Vopnafirði í
Norður-Múlasýslu. Hann kom
vestur um haf ásamt foreldrum
sínum árið 1905, og settist að í
Selkirk-bæ, en þangað voru
systur hans all-löngu áður komn-
ar. — Átti hann heimili með
foreldrum sinum, en eftir dauða
þeirra hjá Aðalbjörgu Halldóru,
og Jónu systrum sínum. Hann
lærði smíðar í Kaupmannahöfn,
var einkar fínn og fjölhæfur
smiður. — Hann var maður
mjög háttprúður og kurteis og
vel gefinn, trygglyndur og vin-
fastur. Systkini hans á lífi eru
téðar systur, og einn bróðir,
Magn.s að nafni; Mörg systkina
börn hans eru á lífi.
Útförin fór fram frá Lúthersku
kirkjunni í Selkirk þann 10.
júní, að viðstöddu fjölmenni. —
Sóknarpresturinn jarðsöng.
S. Ólafsson.
Verzlunarmenntun!
Hin mikla nývirkni. sem viðreisnarstarf-
ið útheimtir á vettvangi iðju og framtaks.
krefst hinnar fullkomnustu sérmentunar sem
völ er á; slíka mentun veita verzlunarskól-
arnir. Eftirspurn eftir verzlunarfróðum mönn-
um og konum fer mjög vaxandi.
Það getur orðið ungu fólki til verulegra
hagsmuna, að spyrjast fyrir hjá oss. munn-
lega eða bréflega, varðandi námskeið við
helztu verzlunarskóla borgarinnar.
THE COLUMBIA PRESS LTD.
COR. SARGENT AND TORONTO ST., WINNIPEG
Jóhannes J. Húnfjörð.
♦ ♦♦'♦♦♦♦
— Svo að konain þín er farin
til hins fræga bað- og skemmti-
staðar Palm Beash sér til heilsu-
bótar. Hvaða sjúkdóm hafði
hún? ‘
— Hún hafði 400 dollara, sem
faðir hennar hafði gefið henni.
♦
Nicolo Paganini — 1782—1340
— einn meisti meistari í fiðlu-
leik, sem uppi hefir verið í heim-
inum, gat leikið hernaðarsónötu
á einn streng. Auk þess gat hann
flu’tt verk sitt, Moto Perpetuo,
með sextán nótna hraða á
sekúndu, eða 20 sinnum hraðar
en nokkur annar tónlistarmaður,
jafnvel enn þann dag í dag. Sum
af frumsömdum verkum 'hans
voru svo erfið, að einungis hann
sjálfur gat leikið þau.
♦
Hann: — Þú varst vön að
segja, að það væri eitthvað við
mig, sem þér þætti vaant um.
Hún: — Já, en við erum búin
að eyða því öllu.
HAMBLEY
Electric Chtcks
Slill time to raise an extra
hundred, for fall meat and
eggs. All from Government
Approved and Tested flocks.
Prices Effective June 2nd
ORDER NOW !
R.O.P. Sired 100 50 25
White Leghorns .14.25 7.60 4.05
W Leg-horn Pullets .. ..29.00 15.00 7.75
W. Leghorn Cockls .. .. 4.00 2.50 1.50
Barred Roeks ..15.25 8.10 4.30
Barr Rock Pullets .. ..26.00 13.50 7.00
B. Rock Cockerels .. ..11.00 6.00 3.25
Government Approved—
White Leghoms ..13.25 7.10 3.6%/
W. Lekhorn Pullets.. ..27.00 14.00 7.25
W. Leg. Cockls . 3.00 2.00 1.00
Barred Rocks ..14.25 7.60 4.05
B. Rock Pullets ..24.00 12.50 1.50
New Hampshires ..14.25 7.60 1.05
New Hamp. Pullets .. ..24.00 12.50 6 5
New Hamp. Cockls .. ..10.00 5.50 3.0Í
We Guarantee 100% Uve Arríval
J. J. Hambley Hatcheries
WINNIPEG, BRANDON, REGINA,
SASKATOON, CALGARY, EDMONTON.
ABBOTSFORD, PORTAGE, DAUPHIN,
SWAN LAKE, BOISSEVAIN.
PORT ARTHUR
Innköllunarmenn LÖGBERGS
Amaranth, Man.
Akra, N. Dak. .......
Backoo, N. Dakota.
Árborg, Man
Árnes, Man..........
Baldur, Man.
Bellingham, Wash.
Blaine, Wash. .......
Boston, Mass.
384 Newbury St.
Cavalier, N. Dak.....
B. G. Kjartanson
K. N. S. Fridfinnson
M. Einarsson
O. Anderson
Árni Símonarson
Árni Sírnonarson
....Palmi Sigurdson
Cypress River, Man. O. Anderson
Churchbridge, Sask S. S. Christopherson
Edinburg, N. Dak Páll B. Olafson
Elfros, Sask Mrs. J. H. Goodmundson
Garðar. N. Dak. Páll B. Olafson
Gerald, Sask. C. Paulson
Geysir, Man. K. N. S. Friðfinnson
Gimli, Man. O. N. Kárdal
Glenboro, Man O. Anderson
Hallson. N. Dak. Páll B. Olafson
Hnausa, Man. K. N. S. Fridfinnson
Husavick, Man. O. N. Kárdal
Langruth, Man. John Valdimarson
Leslie, Sask. Jón Ólafsson
Lundar, Man. Dan. Lindal
Mountain. N. Dak. Páll B. Olafson
Point Roberts, Wash. S. J. Mýrdai
T iverton. Man: K. N. S. Friðfinnson
Seattle. Wash. J. J. Midda!
6522 Dibble N.W., Seattle, 7, Wash.
Mrs. V. Johnson
J. Kr. Johnson
F. O. Lyngdal
Selkirk, Man.............
Taníallon. Sask.
Vancouver. B.C.
5975 Sherbrooke St., Vancouver, B.C.
Víðir, Man. K. N. S. Friðfinnson
Westbourne, Man. Jón Valdimarson
Winnipeg Beach, Man. O. N. Kárdal