Lögberg - 21.08.1947, Blaðsíða 1

Lögberg - 21.08.1947, Blaðsíða 1
PHONE 21 374 u CXettTvcT3 s> LttttW y'O'B- ® A Complele Cleaning Inslilulion PHONE 21374 W«ttV (V ioí-,Drt Í5-5SS^ A Compleie Cleaning Insliiulion 60. ÁRGANGUR WINNIPEG, FIMTUDAGINN 21. ÁGÚST, 1947 NÚMER 33 Viðreisnarlöggjöf afgreidd ■f -f Nýtt réttarhald Hin nýja viðreisnar, eða rétt- ara sagt kreppulöggjöf brezku stjórnarinnar, hefir hlotið sam- þykki beggja þingdeilda og fengið konungsstaðfestingu; um ræður um málið í neðri málstof unni voru harðar og langar, og voru allmargir flokksmenn stjórnarinnar, engu síður en stjórnarandstæðingar, óánægðir með löggjöfina, og töldu hana í raun og veru hvorki fugl né fisk; þessi nýja löggjöf takmark ar geisilega vöruinnflutning, ráðgerir lengdan vinnutíma í verksmiðjum og kolanámum, og þrengir á margan hátt að kosti verkamanna; ýmsum virðist sem glíkar ráðstafanir komi úr hörð- ustu átt þar sem verkamanna- stjórn situr að völdum, og telja þær minna altof óbærilega á ein- ræðisfyrirkomulagið gamla. Þá sætti það og eigi all-litlum ágreiningi innan vébanda stjórn arflokksins, að stjórnin kvaðst ófús á að þjóðnýta brezka stál- iðnaðinn fyrst um sinn. Eftir að áminnst löggjöf hafði náð framgangi, var þingi frestað fram í október. Samningar staðfestir Þann 13. þ.m., staðfesti forsæt- isráðherra Manitobafylkis, Stu- art S. Garson með undirskrift skattamálasamningana nýju milli sambandsstjórnarinnar og fylkisins; vegna eftirgjafar á tekjustofnum varðandi tekju- skatt einstaklinga, verzlunarfé- laga, járnbrautaskatt og erfða- fjárskatt um fimm ára tímabil, bætir sambandsstjórn fylkinu upp þann halla, sem frá slíkri eftirgjöf stafar með lágmarks- upphæð, sem nemur 13.540.038 á ári. Yfir höfuð þykja samning- ar þessir hagfelldir og fjárhag fylkisins til öruggrar trýgging- ar. Hliðstæðir skattamálasamn- ingar hafa nú náðst við öll /fylkin að undanteknum Ontario og Quebec. Samningar út um þúfur Umleitanir um viðskiptasamn inga milli Breta og Rússa, sem verið hafa á döfinni undanfarna mánuði, hafa nú með öilu farið út um þúfur, og sannast þar sem oftar hið fornkveðna, að sjaldan veldur einn þá tveir deila. — Verzlunarmálaráðherrann brezki Sir Stafford Cripps, segir að Rússar hafi ekki viljað halda áfram samningstilraunum nema því aðeins, að þeir fengi víðtæk- ar ívilnanir á greiðslu lána, er þeir tóku hjá Bretum á stríðsár- unum, en rússnesk stjórnarvöld staðhæfa á hinn bóginn, að Bret inn hafi í þess stað marghert á greiðslukröfum, og gert greiðsl- ur að skilyrði fyrir umræddum viðskiptasamningum. Gefin landeign George Bretakonungur hefir nýverið gefið Elizabeth dóttur sinni ríkisarfa, 300 ekra land- eign í námunda við Windsor- kastala; er eignin kend við Berkshire, og rómuð fyrir fag- urt útsýni; á þessum stað verð- ur heimili prinsessunnar og Lieut. Mountbatten, eftir gift- ingu þeirra, sem fram fer þann 20. nóvember næstkomandi. Minni Alftavatns-bygðar á sextugs af mæli hennar Út um landiö engjum þakið íslendingar reistu bú. Margt var hraustlegt handartakið hafið jafnt af vilja og trú, fólkið gladdist vonum vakið vert er þess að minnast nú. Landnámsmenn hér aldur ólu oft við kjörin breytileg, þig í byrjun forsjón fólu fram til sigurs ruddu veg vermd af bjartri sumarsólu sértu bygðin glæsileg. Þú ert ein með bygðum bestu, bygð við álftavatnið kend, kosti þína mörgu og mestu margir þekkja hér í grend. Vel hér öllum líða léstu, lukkan var þér ávalt send. Blessuð vertu bygðin fríða, bjart er yfir þér í dag. Hép kaus fólk að starfa og stríða styrk af trú á bræðralag. Meir sem aldurs ár þín líða auki guð þinn sældardag. V. J. Guttormsson. Indland fær sjálfstjórn Þau söguríku tíðindi gerðust á föstuaaginn var, að þá gengu í gildi hin nýju lagaákvæði brezku stjórnarinnan um fullkomna heimastjórn fyrir Indland. Eins og vitað er, höfðu Bret- ar lengi vel daufheyrst við kröf um Indverja um fullt sjálfsfor- ræði; og það var ekki fyrr, en í vetur, sem leið, að Attlee-stjórn in reið fyrir alvöru á vaðið, og knúði fram á þingi löggjöf varð- andi sjálfstæði Indlands; tvö sjálfsstjórnarríki hafa nú verið stofnuð í Indlandi með Múham- eðstrúarmenn annars vegar og Hindúa hinsvegar, er löng- um hafa borist á banaspjótum, eða sjaldan setið á sáttshöfði; — bæði ríkin hafa sameiginlega yf- irstjórn fyrst um sinn, en geta sagt sig undan brezku krún- unni hvenær sem svo býður við að horfa. Fyrsti landsstjóri, Governar General hins sjálf- stæða Indlands, verður núver- andi konungsfulltrúi í landinu, lávarður Mountbatten. Indverjar hafa fengið nýjan þjóðfána, er minnir að engu á stjórnarfarsleg tengsl við Breta. Frakkland þarfnast hjálpar Gen. G. P. Vanier, sendiherra Canada á Frakklandi, sem ný- kominn er heim til skammrar dvalar, hefir lýst yfir því í við- tali við canadiska blaðamenn, að franska þjóðin þarfnist skjótrar og örlátrar utanaðkom andi hjálpar, engu síður en þær aðrar Norðurálfuþjóðir, er ó- fremdaröfl Hitlerismans veittu hin gífurlegustu svöðusár. Liðkað um greiðslukjör Frá Washington berast um þessar mundir þær fregnir, að vegna hinnar alvarlegu fjárhags kreppu, sem á Bretlandi ríkir, séu amerísk stjórnarvöld að í- huga möguleikana á því, að liðka eitthvað til um greiðslu- kjör þeirra lána, sem Bretar hafa tekið í Bandaríkjunum; síð asta lánið nam hálfri fjórðu biljón dollara. Ekki batnar það Það væri synd að segja, að á- standið í Palestínu fari batnandi nema síður sé. Síðastliðið sunnu dagskvöld sló í brýnu milli Ara- ba og Gyðinga í bænum Tel Aviv, er leiddi til þess, að tutt- ugu manns létu lífið, en eitthvað um fjörutíu sættu meiri og minni örkumlum; þá varð og um sömu mundir nokkurra óspekta vart í Jaffa. Brezka lögreglan skarst í leikinn á báðum stöðum, og tótk til fanga tíu menn, er grunaðir voru um, að vera vald- ir að óeirðunum. Eins og frá var áður skýrt á sínum tíma hér í blaðinu, skip- aði hæztiréttur Canada í vor svo fyrir, að ný réttarrannsókn skyldi fram fara í málinu gegn Lavrence Deacon, er kærður var fyrir og sekur var fundinn af kviðdómi um morð íslenzka bílstjórans Jóhanns Johnson; aftöku Deacons var þrisvar sinn um frestað; nú hefir réttvísin mælt svo fyrir, að ný réttar- rannsókn gegn Deacon hefjist þann 23. október næstkomandi; saksóknari verður A. A. Moffat, K. C., en verjandinn Harry Walsh, sá, er flutti áfrýjun Deacons gegn dauðadómnum fyrir hæstarétti. íslenzk málverkasýning Dagblaðið Winnipeg Tribune lét þess getið þann 13. þ. m., samkvæmt fregn frá London, að íslenzkur listamaður, Ásgeir Bjarnþórsson, hefði opnað þar í borginni sýningu á vatnslitamál verkum sínum í salarkynnum Royal Society of Painters in Water Colors. Sá var ljóður á, að engar af myndum sínum mátti listamaðurinn selja á Eng landi; valda því sparnaðarráð- stafanir Englendinga, er hétu því, að sem allra minst af pen- ingum flytjist út úr landinu. Lögberg hefir aflað sér þeirra upplýsinga um áminstan listmál- ara, að hann sé ættaður úr Norðurárdal í Borgarfirði. Rýrnun hveitimagns Samkvæmt nýjustu upplýsing um frá hagstofu sambandsstjórn arinnar, er áætlað að magn hveiti uppskerunnar í Canada í haust fari ekki fram úr 358.786.000 mælum til móts við 420.750.000 mæla í fyrra. Uppskerurýrnun- in stafar ýmist frá óþurkum eða óstjórnlegu regni. Sextíu ára afmæli Lundarbyggðar, 6. júlí 1947 Nú tjaldar Lundar byggð og bær því bezta sem er tií. Og fólkið stefnir fjær og nær á fund við dagsins yl. Hver völlur, grund og bænda ból * er blómum fríðum prýtt. Við geisla dýrð frá giftu sól hið gamla verður nýtt. Að glæða sátt og samfélag er sigur hverri þjóð. Það eflir dug, og heilla hag við hlýjan lífsins óð. í endurminning liðin leið nú ljómar helg og klökk, en nútíð brosir himin heið í hjartans ást og þökk. Nú glitrar tímans sigur sól á sextíu ára byggð, þar frumherjarnir fundu skjól með framþrá von og dyggð. í minning þeirra leiftrar ljós sem ljómar alt í kring, og fyllir hrifning dreng og drós við dagsins merka þing. En geym og vernda móðurmál og ment um þroska skeið. Það hvetur fram með sól í sál á samkeppninnar leið. Til auðnu stefni alt þitt ráð með ást og bróður hug, í lífsins trú, með dug og dáð við dagsins hraða flug. M. Markússon. ísland þökkuð UNRRA- hjálp Forseta Islands hefir í dag borist svohljóðandi skeyti frá aðalforstjóra UNRRA, Lowell W. Rooks: “í tilefni af því, að UNRRA er nú að ljúka starfsemi sinni í Evrópu þykir mér hlýða að tjá yður, herra forseti, innilegar þakkir stofnunarinnar og hinna sveltandi og umkomulausa þjóða sem UNRRA hefir aðstoðað fyrir þá rausnarlegu hjálp, sem ísland hefir veitt í því skyni að létta þjáningar þeirra, sem lifa á landssvæðum, þar sem ófrið- ur hefir geisað, fyrir vörur þær, er ísland hefir í té látið og fyrir þátttöku þess í alþjóða sam- starfi til hjálpar löndum þessum til að endurreisa hagkerfi sín. Eg er þess fullviss, að sú hjálp verður yður og löndum yðar til sóma og ánægju. Lowell W. Rooks, aðalforstjóri.” Vísir, 1. júlí Norðan stormur og sjó- gangur hamla veiðum Síldveiðiflolinn liggur í höfn. Norðan stormur og rigning er nú á miðunum norðanlands og komast síldveiðiskipin ekki úr höfn sökum veðurofsans. Talsverður sjógangur er , á miðunum og gerir það að verk- um að gjörsamlega ómögulegt er fyrir skipin að athafna sig. Engin síld hefir borist til Siglufjarðar enn, sem komið er, og stafar það af óveðrinu. Strax og kunnugt var orðið, að búið væri að semja í vinnudeilunni, var vinna hafin við síldarverk- smiðjurnar og einnig við að losa kolaskipið, sem legið hefir á Siglufirði undanfarna daga. Að því er verksmiðjustjóri síldar- verksmiðja ríkisins tjáði Vísi í r^orgun eru verksmiðjur ríkis- ins á Siglufirði og Raufarhöfn tilbúnar til þess að hefja bræðslu um leið og einhver síld berst á land. Síldveiðimenn á Siglufirði gera sér vonir um mikla veiði er norðan-storminn lægir, því að venjan hefir verið sú, að eftir slíkar óveðurshrotur hefir síld- in vaðið í torfum upp við land- ið. — Vísir, 7. júlí. íslendingar á norrænu lögfræðingamóti Að tilhlutun Stúdentaráðs Há- skólans og “Orators”, félags laga nema, tóku fimm íslendingar þátt í norrænu móti fyrir laga- nema og unga lögfræðikandi- data, sem haldið var í Oslo og í grend við Lillehammer dagana 15.—21. juní s. 1. Þátttakendur í mótinu voru smatals um 90, en fyrirlestra um lögfræðileg efni fluttu 6 prófessorar frá Noregi, Svíþjóð, Finnlandi og Dan- mörku. — Þjóðhátíðardags ís- lendinga var minst á mótinu með mjög smekklegum hætti. Ræðu í tilefni dagsins flutti Kristen Andersen, prófessor við háskólann í Oslo, og mæltist hon um vel og hlýlega. íslendingarn ir, sem sóttu mótið eru lögfræði kandidatarnir Ármann Snæ- varr og Hafþór Guðmundsson og laganemarnir Geir Hallgríms son, Þorvaldur Garðar Kristjáns son og Guðmundur Ásmunds- son. Róma þeir allir mjög frá- bwra gestrisni og alúð hinna norsku lögfræðinga, sem buðu til mótsins og lögðu sig alla fram til þess að það mætti verða svo ánægjulegt, sem raun bar vitni. Mbl., 3. júlí. Snjóar í fjöll á ísafirði Rigning víða um land. Allhvöss norðan-átt og rigning er nú víða um land, að því er Veðurstofan tjáði Vísi í morg- un. Um þrjúleytið í nótt var veð- urhæðin mæld tíu vinds^ig í Vestmannaeyjum, en kl. 8 í morg un var hún þar 8 vindstig. Mikil úrkoma er á Suður- og Austur- landi. Úrkomumælir Veðurstof- unnar sýndi í morgun að s. 1. tólf tíma hefði rignt 2.9 mm. hér í Reykjavík. Frá ísafirði hefir blaðið þær fregnir, að snjóað hefði þar í fjöll í síðustu viku, svo að þau urðu grá niður í miðjar hlíðar. í Húnavatnssýslu hefir verið óveður undanfarnar vikur, lát- lausar rigningar. Vísir, 7. júlí. Viðskiptasamningur við Finna undirritaður Hinn 26. f. m. var undiríitað- ur í Helsingfors viðskiptasamn- ingur milli íslands og Finnlands. Vilhjálmur Finsen sendiherra undirritaði samninginn fyrir Islands hönd, en Takki verslunar málaráðherra af hálfu Finnlands. Af Islands hálfu er gert ráð fyrir að selja til Finnlands salt- síld, síldarmjöl, hraðfrystan fisk, lítilsháttar af síldar- og þorskalýsi og gærur. Frá Finnlandi kaupa Islend- ingar timbur, krossvið, þilplöt- ur, efni í síldartunnur, snurpu- nótabáta, pappír, pappaumbúð- ir og fleira. Jafnframt var gengið frá sölu samningi við finnska matvæla- ráðuneytið um sölu á saltsíld af sumarframleiðslunni 1947. Vil- hjálmur Finsen annaðist samn- ingana af hálfu íslands, en ráðu- nautur hans var Ólafur Þórðar- son forstjóri. Fréttatilkynning frá ríkisstjórninni. Mbl., 1. júlí. Pass Music Exams The following pupils of S. K. Hall Bac. Mus. R. M. T. passed examination in piano on June 14th, 1947. G. C. Palmer was the examiner. Evy. Sigurdson, High Honors. Fay Erlindson, Honors. Mildred Guðmundson, Honors. Sally Van Patten, High Hon. Peggy Van Patten, High Hon. Thora Eliason, Honors. Alda Eliason, Honors. Una Bardal, Honors. Glen Narfason, Pass. Carmelle Thorfinnson, Honors. Lorraine Johnson, Honors. Doreen Petersen, Honors. Since Mr. Hall came to Wyn- yard 100 pupils have passed examinations in Grade 1 to Grade 10 as follows, 31 High Honors, 61 Honors and 8 Pass. Wynyard considering the population has presented more students to the University for examination than any other town. Mr. Hall deserves credit for careful and most efficient work. N Ægilegt manntjón I borginni Cadiz á Spáni, gerð ist það ægilega slys síðastliðinn þriðjudag, að vopnaverksmiðjur miklar sprungu í loft upp, og yfir 400 manns létu þar líf sitt, en um 5.000 sættu meiðslum af ýmsu tagi; er síðast fréttist, var enn með öllu ókunnugt um þær orsakir, er til þessara miklu hörmunga leiddu.

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.