Lögberg - 21.08.1947, Blaðsíða 4

Lögberg - 21.08.1947, Blaðsíða 4
4 LÖGBERG, FIMTUDAGINN 21. ÁGÚST, 1947 --------Hogberg---------------------- OeflO ðt hvern flmtuda* af THE COLUMBIA PRESS, LIMITED 695 í'-argent Ave., Winnipeg, Manirtoba Utan&akrift rltaí J6rarus: EDITOR LÖGBERG (95 Sargent Ave., Wínnipeg, Man. Ritstjóri: EINAR P. JÓNSSON VerÖ $3.00 um árið—Borgist fyriifram The “Löírbergr” is printed and pubiished by The Columbia Press, Limlted, 695 SarRent Averue, Winnlpec, Manitoba, Canada. Authorized aa-S-x;ond Claas Maii, Poet Office Dept., Ottawa. PHONE 21 »04 Tíunda fylkið? Á öndverðu sumri kom til Ottawa sendinefnd frá Newfoundland með það fyrir augum, að kynna sér skilyrðin fyr- ir hugsanlegri sameiningu við Canada, þannig, að landið yrði tíunda fylkið inn- an vébanda fylkjasambandsins cana- diska; til viðræðna við áminsta sendi- nefnd voru valdir 7 ráðherrar af hálfu sambandsstjórnar, og verður ekki ann- að séð á þessu stigi málsins en alt hafi fallið í ljúfa löð, varðandi varanlegan samkomulagsgrundvöll, og eins og nú horfir við, má nokkurn veginn víst telja, að áður en langt um líður, fari fram á Newfoundland þjóðaratkvæði um vænt- anlegt sameiningarmál; þrisvar sinnum áður hefir komið til orða, að Newfound- land sameinaðist Canada án þess að til framkvæmda kæmi, en nú má vel ætla, að gert verði út um málið á einn eða annan veg. Megin tekjur Newfoundlands koma frá innflutningstollum, og árið, sem leið námu þær liðugum 18 miljónum dollara; í því falli að landið sameinaðist Canada og gerðist tíunda fylkið, hlyti það óhjákvæmilega að láta af hendi mest af slíkum tekjum, en Canada yrði að bæta það upp á einhvern hátt. Canada yrði að taka að sér greiðslu elli styrks á Newfoundland og hækka hann til móts við hin fylkin, sem nú nemur, þótt ófullnægjandi sé, þrjátíu dollurum á mánuði miðað við 70 ára lágmarksald ur; á Newfoundland nemur ellistyrkur gifts fólks, er náð hefir 70 ára aldri, tíu dollurum á mánuði, en einhleypingar á sama aldursreki fá sex dollara; jafnvel þetta eina atriði út af fyrir sig, hækk- un ellistyrksins, getur auðveldlega haft all veruleg áhrif á þjóðaratkvæðið í Newfoundland, er til slíks kemur í ná- inni framtíð. Framfærslustyrkur barna fyrirfinst ékki þó leitað væri með logandi ljósi i Newfoundland, því svo er þjóðarbúskap urinn þar bágborinn; ef af sameiningu við Canada yrði, myndi fjárframlög sambandsstjórnar til hins nýja fylkis nema hálfri fimtu miljón dollara árlega fyrst um sinn til stuðnings við uppeldi barna; myndi þetta að sjálfsögðu bæta talsvert úr brýnni þörf. Járnbrautir* á Newfoundland hafa jafnan verið reknar með tekjuhalla, og er hið sama um vita og flugvelli að segja; öll slík tæki myndi sambands- stjórn taka að sér og bera ábyrgð á rekstri þeirra. Eins og sakir standa, nemur þjóð- skuld Newfoundlands 80 miljónum dollara; þetta er geisiupphæð fyrir jafnt fámennt þjóðfélag; þessa skuld yrði Canada einnig að taka að sér, og bera ábyrgð á greiðslu hennar; slíkt ætti heldur ekki að vera þjóðinni ofvaxið, því nægar eru hér auðsuppsprettur sé skynsamlega með þær farið. Út frá ströndum Newfoundlands liggja ein hin auðugustu fiskimið heimsins, er íbúarnir vegna umkomu- leysis hafa ekki getað fært sér í nyt nema að tiltölulega litlu leyti; þróun útvegsins og nýsköpun við strendur Newfoundlands, yrði eigi aðeins íbúum hins væntanlega nýja fylkis til ómetan- legra hágsmuna, heldur og canadisku þjóðinni í heild, því hún hefir óneitan- lega til brunns að bera afl þeirra hluta, sem gera skal. Newfoundland naut um nokkurt sketð sjálfforræðis, en tapaði því vegna óstjórnar og fjárhagslegrar sóunar; um all-mörg undanfarin ár hefir sex manna nefnd farið með umboðsstjórn lands- ins, er skipuð hefir verið þremur brezk um fésýslumönnum og þremur innfædd um landsmönnum, er tekist hefir sæmi lega til um forustuna, þótt sennilega hefði mátt betur vera. Canadiska þjóðin sækist ekki eftir auknu landrými, og hún þarf þess ekki heldur með; það voru innbúar New- foundlands sjálfir, er frumkvæði áttu að áminstum sameiningartilraunum, og var þá ekki nema sanngjarnt, að Canada léði þeim samúðarríkt og vin- gjarnlegt eyra. Biður hjartanlega að heilsa Undanfarna tvo mánuði hefir dvalið hér um slóðir góður og velkominn gest- ur af íslandi, Jón Helgason blaðamaður við Tímann í Reykjavík; hann hefir ferð ast nokkuð um íslenzku byggðarlögin í Manitoba, er nú alfarinn héðan, en mun dveljast nokkra daga í íslenzku bygðunum í North Dakota, Jón hefir viðað að sér ýmissum fróðleik varðandi landriám íslendinga vestan hafs; hann er skarpgáfaður maður og manna lík- astur til þess að vinna af vandvirkni úr því efni, sem hann hefir komist yfir; verður slíkt vafalaust að makleikum metið beggja vegna hafs; hann hefir þegar byrjað á greinaflokki, um eitt og annað, er fyrir augu bar á ferðalögum um byggðir Vestur-íslendinga; ritgerð- ir hans, sem birtast eiga í Tímanum, ganga undir nafninu Á slóðum Vestur- íslendinga, og er hin fyrsta þeirra end- urprentuð í Lögbergi í þessari viku; hún ber þess glögg merki, að höfund- ur hennar er maður, sem kann að halda á penna, og er gæddur ágætum frá- sagnarstíl; málfarið sviphreint og laust með öllu við tildur, og er þá vel til verks gengið. Ritstjóra Lögbergs, eins og vitaskuld fjölda annara, var það óblandið ánægju efni, að kynnast Jóni Helgasyni, og hinum fjölþættu kostum hans sem blaða manns; liggi það fyrir honum að heim sækja Vestur-íslendinga í annað sinn, má hann treysta því, að meðal þeirra eigi hann fjölmennum vinahópi að mæta. Jón blaðamaður biður hjartan- lega að heilsa Vestur-íslendingum með ógleymanlegu þakklæti fyrir ástúðleg- ar viðtökur. Lögberg árnar honum góðs brautargengis, og biður að heilsa heim. Til austfirzkra skálda vestan hafs Á áðrum stað hér í blaðinu birtist á- varp frá Helga Valtýssyni rithöfundi og skáldi ,er í rauninni skýrir sig sjálft; er þar frá því skýrt, að í ráði sé á ís- landi að gefa út á næstunni sýnishorn af ljóðum austfirzkra hagyrðinga og skálda þeirra, er nú lifa, og eins hinna, sem eigi hafa alls fyrir löngu safnast til feðra sinna; er þetta hið mesta þarfa verk, er vekja mun almennan fögnuð meðal þeirra mörgu, sem enn unna fal- legurn vísum og kvæðum; — hinar undur vel kveðnu vísur, sem birtar eru í hinu vingjarnlega bréfi, sem ávarpinu er samfara til ritstjóra þessa blaðs, bera þess auðsæ merki, hve enn eru ortar snjallar og ljóshugsaðar vísur í hinu fagra Fljótsdalshéraði, eins og vitaskuld svo víða annarsstaðar aust- an lands. Austfirzk ljóðskáld vestan hafs, eru hér með ámint um að bregðast hið bráð asta við, velja úr verkum sínum stutt kvæði og senda þau Helga Valtýssyni á Akureyri, ásamt mynd og stuttu ævi- ágripi; ritstjóra þess blaðs væri það mikið ánægjuefni, að greiða fyrir fram- gangi þessa máls á allan þann hátt, er í hans valdi stæði. Helgi Valtýsson er mikilvirkur og þjóðkunnur rithöfundur sem leggja mun sig í líma um vandaða útgáfu fyrirhugaðrar ljóðabókar. Hvers eiga þeir að gjalda? Þetta mikla land, sem hvítir menn nú ráða yfir, var fyrst byggt af Indíánum, éða Rauðskinnum eins og íslendingar lengi vel kölluðu þá; nú hafa margir þeirra skipt um lit fyrir tilstilli hins hvíta manns og nefnast kynblending- ar; og áður en tiltölulega langt um líð- ur, munu þeir algerlega tapa sínum upprunalega lit; þessir menn eru sann- nefndir Canadamenn; þeir hafa fæstir annað land augum litið. Því njóta þeir ekki sömu réttinda og aðrir canadiskir þegnar? Hvað á það enn að.dragast lengi, að þeim verði veittur kosninga- réttur og kjörgengi? / Dr. Helgi Pétursson: I. Hin nýja, franska heimspeki og mesta vandamál vorra tíma LOFSVERT má það teljast, að nýtt tímarit — Nýir pennar er það kallað — flytur grein, að vísu aðeins þýdda, um nýja heim speki; eða tilraun í þá átt. Er það hinn svonefndi „existential- ismi“, sem franskur rithöfund- ur, J. P. Sartre, hefir komið fram með. Hafði ég áður í út- lendu tímariti, séð getið um þessa nýju heimspeki, sem er að verða mjög fræg. Sartre kvað hafa samið ýms leikrit og skáld- sögur, og er það líklega mest því að þakka hversu gott skáld hann er, að þessi nýja heimspeki hans skuli svona fljótt hafa orðið fræg. — En mjög eftirtektar- vert er^þessi mikli áhugi á því sem menn halda að sé ný heim- speki, og hann bendir ótvíræð- lega til þess, að fyrir hendi sé rík þrá eftir leiðbeiningu til að geta áttað sig á sjálfum sér og heiminum. Sartre kvað leggja mikið upp úr Pascal og Sören Kierkegaard, en einnig Nietzsche. Nú er að vísu þekking mín á ritum Pascals og Kierkegaards mjög takmörkuð, en ég leyfi mér samt að halda, að þessa ann áluðu ritsnillinga sé réttara að kalla andríkismenn og trúmenn en heimspekinga. Það er fremur Nietzsche sem á það heiti skilið, og hefi ég, þó að all-langt sé síð- an, mörgum stundum varið til að kynna mér rit hans. Nietzsche var á yngri árum mjög gagntek- inn af speki Schopenhauers, en aðalniðurstaða þess vitrings var sú dapurlega, að lífið sé það sem betur væri ekki. Sá hann þar í rauninni ekki annað ráð en það, að löngunin til að lifa — der Wille zun Leben, er hann nefnir svo — kulnaði alveg út. Fram- farir þær í líffræði, sem einkum eru kendar við nöfn Darvins og Spencers, urðu Nietzsche þó sú hjálp sem dugði til þess að hann hvarf frá hinni algerlega nei- kvæða stefnu Schopenhauers. Ráðið sem hann sá, var að fram gæti komið ný og fullkomnari manntegund, sem hann kallaði Ubermensch — Superman; dr. Ág. Bjarnason held ég það sé, sem hefir kallað Ubermensch Nietzsches ofurmenni. — En um það hvernig þetta ætti að geta orðið, voru hugmyndir þær sem Nietzsche gerði sér mjög ófull- nægjandi, og hafa þess vegna haft óheppileg áhrif á þýzka sögu. Nietzsche dáðist mjög að mönnum eins og Cesare Borgia og Napoleon, og virtist sem siík- ir mundu helst vera í ofurmennis áttina. Ætti öðrum eins og þeim að vera leyfilegt jafnvel það sem vér mundum nefna glæpsamlegt athæfi gagnvart hversdagsfólk- inu, af því að nauðsynlegt gæti verið til þess að mannkynið kæmist á æðra stig, að beita grimmd og miskunnarleysi. — Nietzsche grunaðí ekki, að þessir skörungar mannkynssögunnar sem hann dáðist svo mjög að, voru helstefnumenn af sérstak- léga illkynjaðri tegund. — Hug- myndin um hinar tvær stefnur var ekki til í heimspeki hans, eða neinni heimspeki þá. — Scopenhauer hafði að vísu fálm að eitthvað í þá átt, en árangurs- lítið, líklega mest af því hversu þekking hans í jarðfræði og líf- fræði var ónóg. II. Það má segja það hiklaust fyr- ir, að þessi nýja franska heim- speki, sem nefnd er „existential- ismi“ á ekki mikla framtíð í vændum. Því að það er víst, að til þess að um geti orðið að ræða það sem í sannleika eigi skilið að heita ný heimspeki, þarf ný þekking að koma til, og það á svo háu stigi, að heita megi að verulegu leyti ný heimsfræði, tilverufræði, sem geti gert oss skiljanlegan tilgang heimsins og lífsins, og sýnt oss fram á, að vel megi takast að koma til réttrar leiðar því sem nú stefnir svo háskalega rangt. Mundi slík þekking leiða til þess að vér eignuðumst það sem vér þörfn- umst svo mjög fyrir; en það er fullkomlega vísindaleg lífernis- fræði. III. I upphafi heimspekigreinarinn ar í „Nýjum pennum“ stendur þetta: „Maðurinn . . . veit ekki hvernig eða hvers vegna hann hefir orðið til, í heimi, sem hann ekki skilur“. Þetta er mjög rangt. — Maður inn hefir þegar öðlast allmikla vitneskju um það, hvernig hann hefir orðið til. Það er vitað, að vorir fyrstu foreldrar, sem komu til sögunnar fyrir svo sem 1000 milljónum ára, voru ósæjar — míkroskópskar — lífganir, í hafi er sennilega lukti um alla jörð. Tilgangur heimsins er auð sjáanlega vaxandi samhæfing og samstilling, sífellt samsettari einda. Tilgangur lífsins sá, að geta tekið vaxandi þátt í þess- ari svo óskiljanlega furðulegu smíð sem alheimurinn er. Til- gangur mannkynsins: að þrosk- ast svo, að það geti öðlast sem fullkomnasta stjórn á náttúru- öflum síns hnattar, og lifað í sem fullkomnustu samræmi við tilgang heimsins og lífsins. IV. Sú heimspeki sem hefir ekki áttað sig á hinum tveim stefnum framvindunnar er ég nefni hel- stefnu og lífstefnu, hlýtur altaf að vera mjög ófullnægjandi, svo ófullnægjandi, að þar er í raun inni ekki um það að ræða, sem rétt sé að nefna heimspeki. Það getur ekki verið neitt vafa mál hvor stefnan það er, sem ráðið hefir hér á jörðu. — Hin mikla spurning verður því þessi: Er unnt að breyta svo til, að líf- stefna komi í stað helstefnu. Og verður þeiriri spurningu að svara á þá leið, að það er enginn vafi á því að svo gæti orðið. En þaí^ er einnig alveg efalaust, að án hjálpar nokkurra nýrra vísinda, getur það ekki orðið. Það mun vera óhætt að segja, að öllum þorra mannkynsins hef ir verið það að mestu leyti hulið hversu geysi mikil þýðing vís- indanna getur verið, nokkrir vísindamenn, sem að vísu störfuðu við meir en þúsund sinnum betri ástæður en nokkr- ir þekkingarinnar menn áður, leiddu það í ljós, að á skammri stundu má leggja í rústir hinar stærstu borgir jarðarinnar og drepa niður fólkið svo tugum milljóna skiptir. Og eru þeir nú að vísu sumir sem eru þeirrar skoðunar, að betri væri vanþekk ing en slík vísindi. Og er þar þó þess að geta, að það er ekki vís- indamönnunum að kenna, að uppgötvunum þeirra hefir ver- ið þannig beitt. Fer á þá leið þar sem helstefnan ræður. En hugs- anlegar eru þær rannsóknir, sem leitt gætu til svo aukinnar þekk- ingar á eðli og tilgangi lífsins, að unnt yrði að breyta gersam- lega þeirri viðburðarás sem nefnd hefir verið veraldarsag- an, og koma mannkyninu á braut óslitins friðar og vaxandi far- sældar. Eða með öðrum orðum: að breyta um frá helstefnu til lífstefnu. V. í útvarpinu var í gær sagt frá ræðu, sem haldið hafði Jan Smuts, einn af merkilegustu stjórnmálamönnum. vorra tíma. Hafði hinn vitri öldungur lagt mikla áherslu á að brýna fyrir áheyrendum sínum — sem raun ar má segja að sé allt mannkyn- ið — hversu hættulegir þessir tímar eru. Og þarf ekki að efa, að þar hefir síst verið orðum aukið. Því að um ekkert minna er að ræða nú en það, hvort mannkynið á að geta haldið á- fram að vera til, eða líða undir lok, eftir hörmungar, ógurlegri, en jafnvel þær sem mestar hafa verið áður á þessari jörðu vorri, sem þó réttilega hefir verið nefnd heimkynni hörmung- anna. Um hvítasunnuleytið 1947. Helgi Pjelurss. Lesbók Mbl. íslendingadagurinn í Peace Arch Park Sameiginlegur íslendingadag- ur Bellingham, Blaine. Pt. Ro berts U.S.A. og Vancouver B.C., var haldinn í Peace Arch Park á landamærunum 27. júlí síðast- liðinn. Forseti dagsins var Stef- án Eymundsson frá Van., B. C. Séra Haraldur Sigmar frá Van., B.C., gerði heiðursgesti kunnuga. Þeir voru séra Arthur Hanson, séra Eiríkur Brynjólfs- son frá Útskálum, séra G. P. Johnson og séra Albert Kristjáns son. — Séra Eiríkur skilaði kveðju heiman frá Islandi til íslendinga hér vestan hafs. — Skemtiskráin var ágæt og entist í rúma tvo tíma. Stefán Sölvason stýrði söngflokknum sem var frá Vancouver B.C. Aðalræðumaður dagsins var dómari W. J. Lindal frá Wpg. og hélt góða og skemtilega ræðu. — Einnig talaði Axel Vopnfjörð um 20 mínútur á ensku og hafði yfir fáein íslenzk kvæði. — Þær Mrs. Ninna Stevens frá Belling- ham og Miss Margaret Sigmar frá Van., sungu einsöngva. Og þeir Elías Breiðfjörð og Walter Johnson sungu tvísöng. Einnig söng Tani Björnsson frá Seattle, einsöng. Mr. Árman Björnsson frá Van., bar fram kvæði. Að loknum skemtiatriðum stýrði E. Breiðfjörð almennum söng. Leo G. Sigurðsson frá Van., lagði til gjallarhorn. Kvenfélögin frá Blaine báru fram veitingar og eins og venjulega var mikið og gott að borða. Almenningsvagnar voru fengn ir til að flytja fólk frá Van- couver og voru um hundrað manns sem höfðu not af þeim. Veður var hið ákjósanlegasta og allir skemtu sér vel. Litist um! Hin mikla EATON'S nýja verðskrá * fyrir Haust og vetur 1947—1948 ER BRÁÐUM Á FERÐ Biðin borgar sig! *T. EATON WINNIPEG CANAOA EATONS »

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.