Lögberg - 02.10.1947, Side 5

Lögberg - 02.10.1947, Side 5
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 2. OKTÓBER, 1947 5 AHUGAMÁL UVCNNA Ritstjórx: INGIBJÖRG JÓNSSON Valdboð tízkunnar * Tízkubyliingar Mikið er nú í svipinn skrifað og skrafað um nýju tízkuna, næstum eins mikið og þegar Irene Castle lét klippa af sér hárið 1914, sællar minningar, sú tízka flaug eins og eldur í sinu um allar heimsálfur; hver konan af annari lét skera hið langa hár sitt sem í aldaraðir hafði verið talin hin mesta prýði konunnar. Mótmæli foreldra, eiginmanna, kirkjunnar og ann- ara gegn þessu tiltæki hafði eng inn áhrif; stúlkur og konur hlýddu valdboði tízkunnar og létu jafnvel snoðklippa sig. Önnur tízkubylting átti sér stað þegar pilsin styttust og nú virðist sem ein byltingin enn sé í aðsígi á þessum vettvangi, ef hún er ekki þegar komin í al- gleyming. FramleiSendur fataefna og kjóla í fjárþröng Eins og kunnugt er hefir tízk- an í klæðaburði kvenna mjög litlum breytingum tekið á síðari árum, sérstaklega á stríðsárun- um og meðan takmörkun var á fataefnum. Ekki bar á öðru en að konur létu sér þetta vel lynda enda var í því mikill sparnað- ur að þurfa ekki að leggja nið- ur búninga og fá sér nýja til þess aðeins að fylgjast með tízkunni. En framleiðendur fataefna og kvennbúnin^a bera það nú ekki fyrst og fremst fyrir brjósti að spara kvennþjóðinni fé. Þeim fanst nú heldur en ekki vera far ið að sverfa að sér; inntektir þeirra, sérstaklega á síðastliðnu ári, voru langt fyrir neðan það, sem þeir höfðu gert sér vonir um. Eina ráðið til þess að auka tekjur þeirra var að umbreyta alveg tízkunni þannig" að allir kvennbúningar í verzlunum og fataskápum kvenna færu alveg úr tízku og þær yrðu nauð- beygðar að kaupa sér nýja bún- inga til þess að tolla í tízkunni — ekki myndi margar konur vera svo sjálfstæðar að bjóða tízkunni byrginn. Tízkukóngarnir i Ekki létu tízkukóngarnir í París, London og New York, standa á sér að ljá þessu máli lið. Þeim fanst helst til lítið hafa borið á sér í langan tíma og fanst nú tími til kom- inn að þeir létu til sín taka og það rækilega. Tízkuteiknararnir tóku nú til óspiltra málanna að hugsa upp og teikna það útlit og þann svip er búningar kvenna skyldu fá næstunni. Vitanlega tóku þeir alls ekki til greina, fremur en endranær, vaxtarlag kvenna, né óskir þeirra í þessu sambandi. Það fyrsta sem heyrðist frá þess um einræðisherrum, og gaf til kynna að tízkubylting væri í aðsígi'var<sú fyrirskipan að kon ur yrðu að síkka pilsin að mun, og strengja inn mitti sín. Karlar skopast að konum Þegar þetta fréttist var þegar farið að rita og ræða um þessa nýjung af miklu kappi, bæði í gamni og alvöru. Ritstjórar dag- blaðanna hafa skrifað ritstjórn argreinar um þetta stórmál og skopast óspart að konum fyrir það hvað þær séu leiðitamar við tízkuna — þeim ferst þá líka, blessuðum; þeir eru engu að síð ur þrælbundnir tízkunni en kvenþjóðin, eða hvers vegna þora fæstir karlmenn annað en að ganga með háa kraga og háls bindi á heitustu dögum, og því klæðast þeir þykkum ullar-sam- kvæmisfötum, inni í hlýjum samkvæmissölum, þar sem kon- ur klæðast léttum og flegnum kjólum? Tízkusýningar Flest stóru fata-verzlunarfélög in, senda fulltrúa eða kaupkon- ur tvisvar á ári á sýningar tízku- teiknaranna eða öllu heldur tízkukónganna í París, London og New York. Þessir fulltrúar kaupa ýmsa nýtízku búninga er þar eru sýndir, þá búninga er þeim fellur vel í geð og þá, er þeir halda að félag sitt geti gert aðra búninga eftir, sem seljist vel. Þessir kjólar, sem þeir velja eru svo sýndir á tízkusýningum, sem félagið heldur og er konum boðið þangað til þess að þær fái tækifæri að sjá hið nýjasta nýtt í klæðagerð og fái áhuga fyrir því. Tízkusýning í Winnipeg í síðastliðinni viku fóru fram tízkusýningar hjá stórverzlun hér í borginni. Þar voru sýndir 29 búningar, er kaupkonur þess höfðu valið á tízkusýningunum í París og London í haust, og höfðu þeir verið sendir hingað flugleiðis. Auðsætt var að kon- um lék mikil forvitni á að sjá hina nýtízku kjóla, því aðgöngu miðar að öllum sýningunum seldust óðar upp. Sýningarsalurinn Mikil þröng var fyrir dyrum sýningarskálans fyrsta daginn. Þegar inn kom sást að hvítur upphækkaður pallur hafði ver- ið lagður eftir miðjunni á endi- löngum salnum. Sýningargestir settust við smáborð er komið var fyrir beggja vegna við pall- inn. Ljósaútbúnaður var þann- ig að birtan féll á sýningarpall- inn en gestirnir sátu í hálf- rökkri. í öðrum enda salsins var fimm manna hljómsveit sem lék ýms róamntísk lög til þess að allar kæmust í tilhlýðilega “stemningu”. Þessir fimm voru einu karlmennirnir, sem þarna voru, og þeir urðu allir að aug- um eftir að sýningin hófst og lá við að þeim fipaðist spila- menskan. Sýningin Nú kom fram kona, er lýsti því með miklum fjálkleik hve mik- inn sóma og hve mikla ánægju það veitti að geta sýnt hina nýjustu tízkukjóla eftir hina miklu tízkuteiknara í París og London, og las nöfn þeirra með mikilli hrifningu — kjólar frá 9 tízkukóngum í París og frá 7 í London. Nú ríkir dauðaþögn í salnum, allra augu beinast að fallegri, grannvaxinni sýningarstúlku, er svífur fram eftir pallinum, klædd svörtum búningi úr fínu ullarefni. Hún sveigir sig og beygir fram fyrir áhorfendun- um. Framsögukonan beinir at- hygli að ýmsum nýjungum í sniði búningsins, svo hverfur sýningarstúlkan bak við tjald og önnur kemur í staðinn. Alls voru 9 sýningarstúlkur, er sýndu hina 29 kjóla. Þær voru rauð- hærðar, dökkhærðar og ljós- hærðar; allar grannvaxnar og fremur hávaxnar, og allar voru þær fremur snotrar, en höfðu stirðnað bros á andlitinu. Sýn- ingunni lauk með því að yngsta stúlkan, sem var ljóshærð, kom fram í brúðarklæðum; að end- ingu fylktu hinar sér við hlið hennar og tjaldið féll. Á FRÍVAKTINNI Gömul þjóðsaga um Reyk j avíkur t j ör n Reykjavíkurtjörn er sagt, að hafi verið til forna full af veiði, bæði silungi og sjóbirtingi eða laxi, og varð það þeim, sem lönd áttu að henni, að góðu gagni. — Kerlingar tvær áttu heima sín hvoru megin við tjörnina. Svo stóð á einhverju sinni,, að þær voru að skola hvor um sig úr sokkum sínum í tjörninni. Fóru þær þá að rífast út úr veiðinni í Reykjavíkurtjörn, sem báðar vildu eiga, og heituðust af öllu saman. Við það brá svo við, að öll veiði hvarf úr tjörninni, en hún varð full af pöddum og hornsílum. Hefir aldrei nein veiði verið í henni síðan. ♦ Sagt er, að nykur sé í Reykja- víkurtjörn annað árið, en í Hafravatni í Mosfellssveit hitt árið. Er því svo varið, að undir- gangur er í milli, og fer nykur inn eftir honum úr einni tjörn- inni í aðra. Þykjast Reykvíking ar hafa tekið eftir ógurlegum skruðningum, brestum og óhljóð um í Reykjavíkurtjörn, þegar hún liggur undir ís, en þó eru að því áraskifti, því að brestirn- Nýja tízkan Ekki verður hér gerð tilraun til þess að lýsa hinum ýmsu búmngum, en skýra aðeins frá hvernig þeir eru í aðalatriðum frábrugðnir því sem áður var. Allar línur eru mýkri en áð- ur. Axlapúðarnir eru horfnir og herðarnar orðnar eðlilegar. — Flestar treyjur eru aðskornar og ermarnar þrengri, bæði á kjólum og jökkum. Pilsin eru talsvert síðari, ná flest niður fyrir kálfa og það skiptist í tvö horn með víddina; ein þrjú eða fjögur pils voru svo þröng að neðan, að stúlkan átti erfitt með að stíga upp og niður lága tröppu; þau minna á “hobble” pilsin í gamla daga. Flest pils- in voru afar víð, héngu í djúpum fellingum. Tvö pils höfðu hið svokallaða “harem”-snið; voru í djúpum fellingum en rykt að neðan. Allir voru kjólarnir af- ar mittismjóir og var auðsætt að sumar stúlkurnar höfðu orðið að strengja sig til þess að komast í þá. Þá voru púðar á mjöðmunum undir sumum kjól- unum til þess að mittið sýndist grennra. Eigum við að hlýða valdboði iízkunnar? ir koma af því, að nykurinn ger- ir vart um sig undir ísnum og sprengir hann upp, þegar hann er í tjörninni. En þegar nykur- inn er í vatninu er aftur allt með feldu í tjörninni. — Þjóðs. J. Þork. -t- Ekkja ein rík bjó norður á Mel rakkasléttu. Ekki er greint nafn hennar. Eitt kvöld sótti hún eft irgjöf handa kúm sínum í hey- garð. Lá þá í garðinum bjarn- dýr og hafði fætt tvo húna. — Sneri hún þá aftur, sótti skjólu og mjólkaði í hana 24 merkur og setti fyrir birnuna, og drakk hún úr skjólunni. Gekk svo í mánuð, að konan gaf dýrinu jafnan daglega mjólk í sömu skjólunni, en dýrið lá með hún- um sínum í heygeilinni. Að mán uði liðnum hvarf dýrið og hún- arnir. En næsta morgun, þegar komið var út, fundu menn fyrir dyrum afskaplega stóran útsel, og ætluðu menn að dýrið hefði drepið hann og fært hann þang, að í þakklætisskyni fyrir mjólk- urgjöfina. Sögn séra Friðriks Eggerz. * Unnustan: Eg held að foreldr- ar mínir séu farnir að sætta sig betur við þig sem tengdason, en þeir gerðu fyrst. Unnustinn: Hvað hefir þú til marks um það? Unnustan: í gær sagði mamma t. d., að þú gætir ekki verið eins vitlaus og þú lítur út fyrir að vera. ♦ Kurteisi er fólgin í því, að leyna eftir föngum því áliti, sem maður hefir á sjálfum sér og á- litsskortinum á öðrum. -f Jón: Eg vinn við banka í New York. Páll: Er það stór banki? Jón: Eg er hræddur um það. Hann er svo ægilega stór, að því verður naumast lýst með orðum. Það kom t. d. ekki í ljós, að tveir af gjaldkerum bankans höfðu strokið með stórfé til Evrópu fyrr en rúmu ári eftir að þeir fóru. Sænskt blað lagði nýlega þá þraut fyrir lesendur sína, að svara í stuttu máli eftirfarandi spurningu: — Hvað er sexap- peal? Mörg svör bárust og mis- munandi. Eitt var á þessa leið: — Sexappeal er eitthvað í fari kvenna, sem gerir jafnvel greinda og virðulega karlmenn að flautaþyrlum og fíflum. -t- urinn horfir á konuna með spurn í augum, og þá sér hún sam- stundis, að hún þekkir hann ekk ert. — Afsakið, sagði hún. Eg hélt að þér væruð faðir eins af börn- unum mínum. •t- — Þarft þú ekki að hafa fugla hræðu í garðinum þínum, þar sem er svona mikið af berjum og allskonar ávöxtum? — Nei, það er hreinn óþarfi. Konan mín er í garðinum öllum stundum. Frú ein var í heimsókn á geð- veikrahæli og fylgdi yfirlæknir inn henni um spítalann. — Ham- ingjan góða, sagði frúin skyndi- lega. Tókuð þér eftir hinu ægi- lega villta augnaráði, sem konan þarna í svarta kjólnum sendi okkur, um leið og við gengum framhjá. Er hún mjög hættu- leg? — Stundum, svaraði yfirlækn irinn. — En hvers vegna er hún þá látin ganga laus? — Það verður víst ekki við það ráðið, sagði yfirlæknirinn og stundi við. — Eruð það ekki þér, sem á- kveðið slíkt? — Jú, en þessi kona er ekki sjúklingur hér. Það er konan mín. ♦ Vinir í raun Frú Sigfússon var ákaflega hrædd um manninn sinn, og hafði ef til vill nokkra ástæðu til að vera það. Einhverju sinni brá maður hennar sér að heim- an, en var ekki kominn seint um kvöldið. Þá sendi frúin skeyti til fimm góðvina manns síns, sem heima áttu í ýmsum stöðum utan við borgina. Skeyt- in voru öll á þessa leið: “Georg ekki kominn heim. Er hrædd. Gistir hann hjá þér?” Litlu síðar kom maðurinn heim, en hálftíma þar á eftir barði símsendill að dyrum. Hann var með fimm skeyti, sem öll hljóðuðu nálega eins: — Allt í lagi. Georg gistir hjá mér! Pétur og Jónatan voru ná- grannar. Jónatan hafði þann sið að fá alla skapaða hluti lánaða hjá Pétri, og sparaði sér á þann hátt að kaupa margt það, sem annars er nauðsynlegt til bú- skapar. Þótt Pétur væri hjálp- samur maður, kom þar um síðir, að honum fór að leiðast þetta eilífa kvabb, þar sem það spratt ekki af neinni nauðsyn, heldur af einskærri nísku. Var hann því stundum orðinn dálít- ið afundinn og stirður við Jóna- tan er hann kom í betliferð. Kvöld eitt sem oftar barði Jónatan að dyrum hjá Pétri, og sagði: — Heyrðu, Pétur minn! Ætl- ar þú að nota bátinn þinn á morgun? — Já, ég ætla á honum í kaup stað, sagði Pétur snöggt. — Jæja, vinur, þá notar þú ekki sláttuvélina þína. Eg kom til að fá hana lánaða hjá þér. -♦ Dönsk hernámssaga SS-bíll var sendur í eftirlits- ferð út á þjóðvegu. Liðsforingi og þrír óbreyttir SS-menn voru í bílnum. Rétt hjá bóndabæ ein- um óku þeir yfir hund. — Datt nú liðsforingjanym í hug að sýna og sanna þýzka kurteisi. j — Fritz, sagði hann. Þú verður að fara heim á bæinn og biðja afsökunar á því, að við ókum yf- ir hundinn. Fritz brá þegar við og kom að skammri stundu liðinni með fangið fullt af berjum, gómsæt- ■ um kökum, og tvær vínflöskur. — Frúin á bænum gaf mér þetta, sagði Fritz. — Var hún ekki reið? sagði liðsforinginn. — Eg held nú síður. Hún varð ofsakát. Eg skil ekki neitt í neinu! — Hvað sagðir þú við hana? Eg sagði bara: “Heil Hitler! Hundurinn er dauður!” ♦ Séra Hallgrími þótti sopinn góður, en vildi ekki láta sóknar- börn sín vita að hann hressti sig flesta daga. Einhverju sinni sem oftar fékk hann tilkynningu um það, að hann ætti pakka í póst- húsinu. — Já, ég átti von á bókum, sagði hann við póstmeistarann. Eg sendi eftir þeim. — Gerið það sem fyrst, svar- aði hinn. Það lekur úr þeim. Sjómannabl. Víkingur. Forsetadóitir í húsnæðis- vandræðum. Margaret, dóttir Trumans for- seta, hefir mikinn áhuga á því að gerast óperusöngukona. Hún haf- ði í því sambandi ráðgert að flytja til New York, en verður að hætta við það, í bráð, að minsta kosti, vegna þess að hún gat enga íbúð fengið þar. Kona n o k k u r að nafni Elsa Zavada var á g a n g i um dýra- garðinn í Hamborg. Alt í einu heyrði hún að kallað var: Zava- da, Zavada. Það var páfagaukur- inn hennar, sem hún hafði mist í lotfárás einni 1944. Ekki er hægt að neita því að margir þessýr búningar voru mjög fallegir, enda voru þeir úr bezta efni, sem völ var á, og upphugsaðir, sniðnir og saum- aðir af snillingum í klæða- gerð, og þar að auki sýndir á fagurvöxnum stúlkum. Ekki er víst að þeir myndu líta eins vel út á konum, eins og þær eru flestar; sniðið er og öfgakent. Ólíklegt er að konur fari að hepta sig aftur í “hobble” pils- um aðeins til að tolla í tízkunni Hin víðu pils, sem ná niður fyr- ir kálfa, eru ekki hentug heldur á þessari öld hraðans. — Þau þvælast fyrir manni og eru alltof fyrirferðarmikil — Ekki er heldur sennilegt að konur hlýði tízkunni í því, að strengja sig um mittið, þannig að þær tapi eðlilegu vaxtarlagi og spilli heilsu sinni. Óskandi er að konur beiti skynsemi sinni og dómgreind gegn valdboði tízkunnar og láti ekki teyma sig út í öfgar í klæðaburði. í hreinu hjarta dofna þau ódáinsblóm, er sætta eina kvn- slóðina eftir aðra við erfiðar að- stæður og veita þeim, svalandi ilm. 1 Svíþjóð er ströng skömmtun á áfengi. Þar gerðist í sumar eftirfarandi atburður, sem frá var skýrt í flestum blöðum landsins. Maður nokkur kemur með skömmtunarbók sína inn í vín- búðina í Karlstad. Hann á rétt á tveimur flöskum áfengis og biður um þær. Af misgáningi eru fyrr en heim kemur. Þá skeð- en hann tekur ekki eftir því honum • afhentar þrjár flöskur, ur hið furðulega, sem öll Sví- þjóð hefir býsnast yfir síðan. — Maðiírinn snýr við með eina flöskuna og segir: Gerið þið svo vel. Eg fékk einni flösku of mik- ið! — Eitt blaðið, sem skýrir frá þessu undir fyrirsögninni “Met í heiðarleika”, bætir við: — Þetta er gamla sagan. Menn gera oft ýmsa óskiljanlega hluti þegar þeir hafa fengið of mikið áfengi! ♦ Greifinn var á dýraveiðum og gekk illa. Þegar hann hafði skot ið 25 sinnum án þessa að hitta, gekk fyrir hann einn úr fylgdar- liðinu og sagði: — Er náðugi greifinn meðlim- ur í dýraverndunarfélaginu? Kennslukona stígur upp í strætisvagn og heilsar rosknum karlmanni, sem þar situr. Mað- + + + + + + + + + + + ■*■■*■ + TIL KAUPENDA LÖGBERGS og HEIMSKRINGLU Frá því var nýlega skýrt í báðum íslenzku blöðunum vestan hafs, að verð æfiminninga, sem færu yfir 4 ein- dálka þumlunga, yrði framvegis reiknað 20 cents á þumlunginn; þetta er að'vísu ekki mikill tekju auki, en þetta getur dregið sig saman og komið að dálitlu liði. Fyrir samskotalista reiknast 50 cents á þumlunginn. Aðrar auglýsingar kosta 70 cents eindálka þumlungur. THE COLUMBIA PRESS LIMITED THE VIKING PRESS LIMITED KAUPENDURLÖGBERGSOG HEIMSKRINGLU Á ÍSLANDI Gerið svo vel að senda mér sem fyrst greiðslu fyrir yfinstandandi árgang, kr. 25.00 fyrir hvort blað. Dragið ekki að greiða blöðin. Það léttir innheimtuna. Æskilegt að gjaldið sé sent í póstávísun. Þeir sem eiga ógreidda eldri árganga, enu vinsamlega beðnir að snúa sér til mín. BJÖRN GUÐM UNDSSON HOLTSGATA 9, REYKJAVÍK

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.