Lögberg - 13.11.1947, Blaðsíða 3
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 13. NÓVEMBER, 1947
59
Nú varð líf hins unga manns
ærið óskáldlegt um bríð; hann
varð nú slatrari hjá föður sínum
í 7 eða jafnvel 9 ár eða alt til
þess er hann fór alfarinn frá
Stratford til Lundúna (1585 eða
1587).
Á þessum árum gerðist afdrifa-
mikill atburður í lífi Shake-
speare. Einhverjir ungir og ó-
fyrirleitnir lagsbræður Shake-
speares, leiknir að því að skjóta
dýr í landi annara manna, fengu
Shakespeare, ungan og gjarnan
til veiðifara, út í þetta með sér
oftár en einu sinni. Voru það
dádýr, er þeir skutu. Það var á
veiðimörk afgirtri, sem heyrði til
lávarðinum Thomas Lucy af
Charlecote. Lávarðurinn stefndi
Shakespeare fyrir dýradrápið og
lék hann hart; sá hann sér þá
þann kost vænstan, þótt þungur
væri, að flýja Stratford til Lund-
úna og komast þar í samfélag
við bræður sína í leiklistinni,
enda bárust honum þær fregnir
úr höfuðborginni, að þar væri
mikil eftirspurn eftir leikurum
og gæti þeir grætt stórfé á
skömmum tíma.
Á þessum árum (1582) kvænt-
ist Shakespeare, 18 ára gamall;
konuefni hans hét Anne Hatha-
Macdonald
SHOE SIORE LTD.
492 - 4 >Iain Street
Tekur undir með hinum mörgu
íslenzku vinum sínum og flytur
LÖGBERGI hjartanlegar árnaðar-
óskir á 60 ára afmæli þess.
Congratulations to
LÖGBERG
on its sixtieth anniversary
1888-1948
*7/te Weút fyo&d Ma/Jzet
S. Jakobson
VICTOR & SARGENT WINNIPEG, MAN.
Congratulations to
LÖGBERG
on its sixtieth anniversary
1888 - 1948
iílttcíjell Copp Httl.
Poriage and Hargrave
Winnipeg, Man.
way; urðu samfarir þeirra hinar
beztu, enda voru þau bernsku-
vinir. Súsahna hét hið fyrsta
barn þeirra (f. 1583), en næst ól
kona hons honum tvíbura, dreng
og stúlku, og nefndi Shakespeare
þau Hamnet og Judith eftir
tveimur æfivinum sínum í Strat
ford. Þyngdist nú heldur róður-
inn heima fyrir, eins og högum
föður hans var þá farið; herti
það mjög á Shakespeare að fram-
kvæma þá fyrirætlun sína að
hverfa til Lundúna og freista þar
hamingjunnar með íþrótt sinni á
leiksviðinu. Hann var þá þegar
oftsinnis búinn að prófa hæfi-
leika sína í þeirri grein á leik-
sviðinu heima fyrir; þóttist hann
nú sjá fyrir, að í Lundúnum gæti
hann fengið að njóta hinna miklu
hæfileika sinna, þar sem þar væri
sí og æ þörf á nýjum leikritum.
Það er talið, að hann hafi farið
til Lundúna einhverntíma á ár-
unum 1585—87. Og til Lundúna
átti hann það erindi, eins og
kunnugt er, að hann gerðist á
skömmum tíma andlegur höfð-
ingi aldar sinnar og meira en það
— hann komst í það öndvegi, sem
hann heldur enn í dag og það svo
hátt, að enginn hefir komist ná-
lægt honum. —- Honum var ætl-
að æðra starf fyrir þjóð sína og
mannkynið en að lifa veiði-
mannalífi. Og Thomas lávarður
varð óbeinlínis til þess að knýja
hann að köllunarverki sínu, með
því að taka svo hart á bernsku-
brögðum hans, eins og raun varð
á. Auðvitað slitnaði sambandið
við átthagana alla ástvinina
heima fyrir; en hann bætti sér
það upp með því að heimsækja
foreldra sína og æskustöðvarnar
að minsta kosti einu sinni á ári.
Honum græddist brátt fé í Lund-
únum, sakir þess, hve vel hann
kunni með féð að fara og tókst
með atfylgi móður sinnar að
bjarga föður sínum úr niðurlæg-
ingunni, eins og áður er sagt.
Shakespeare var vel úr garði
búinn af hendi guðs og manna,
þegar hann kom til Lundúna og
tók til starfa. Baslið, sem faðir
hans hafði slept sér í og fólki
sínu, varð honum hörð, en heil-
næm kenning. Mannkostir hans
tóku við það miklum þroska og
styrktust í þeirri eldraun undir
hendi móðurinnar, í stöðugri ná-
vist hennar, við áhrif hennar og
dæmi. Hann var að eðlisfari eink-
ar gefinn fyrir fjörugt félagslíf
og öll þau störf, sem því fylgja og
hann var ljúfur f lund; en þrátt
fyrir það gat hann haft flullt
taumhald á sjálfum sér; þrátt
fyrir allt það ólgandi haf af nýrri
lífsreynslu og nýjum óskum, sem
hann eins og steyptist í skyndi-
lega, þá gekk hann aldrei frá
stríðinu, hann hélt altaf sinni
stefnu, lagði aldrei þá hags-
muni, sem hann átti í vænd-
um í framtíðinni í sölurnar fyrir
háværar og hóflausar kröfur líð-
andi stundar. Þetta sótti hann
vafalaust til móður sinnar. Til
föður síns hefði hann getað sótt
Compliments of. . .
JUBILEE COAL
Company, Limited
H. B. IRVING
Manager
Corydon and Osborne
WINNIPEG
metorðagirnd og dáðahvatir,
bráðlyndi, sem hefið getað snúizt
í taumlausan ofsa; en hafi svo
verið, þá er augljóst, að frá móð-
ur sinni erfði hann styrkar taug-
ar og þó 'siðferðilegu alvöru og
kraft, sem þarf til að stjórna æst-
um skapsmunum. Hafi hann erft
að föður sínum storma og hvirf-
ilvinda ástríðnanna, þá hefur
móðurarfurinn verið hófsemi o g
stilling, til að halda öllu í skefj-
um; þaðan hefur honum komið
krafturinn til að vera marksæk-
inn og sú sjálfstjórn, sem er ó-
missandi til að hemja öfgar of
ríkrar tilfinningasemi og ástríðu-
hvatir og gera þær að stórfeld-
um og fjölbreyttum harmleiks-
myndum. Allt var þetta í garð-
inn búið, þegar Shakespeare
gekk að æfihlutverki sínu, leik
ritasmíðinni.
Þegar Shakespeare kemur til
Lundúna, þá er það fyrsta og
fremsta regla hans, að gera sér
aldrei þá lægingu, að standa ekki
í skilum í viðskiptum. A f 1 a ð i
hann sér þar almennrar virðing-
ar hjá valinkunnum m ö n n u m
fyrir strangheiðvirða b r e y t n i.
Lék það orð á honum, að hann
væri heiðarlegur maður í alla
staði.
Það er fyrst sagt frá honum í
Lundúnum, að hann hafði það að
atvinnu, að gæta hesta fyrir þá,
er sóttu þau tvö leikhús, er þá
voru í Lundúnum, og ekki höfðu
þjóna meðferðis. Varð hann brátt
alkunnur að hirðusemi og dugn-
aði í hestagæzlunni, því að stað-
urinn var alþekktur að hesta-
þjófnáði. Bæði þessi leikhús voru
utan borgar, því að borgarar
vildu eigi hafa leikhúsin í borg-
inni, í þá daga, sakir svalls þess,
áfloga og almenns óorðs, sem þau
gáfu efni til.
Nú er ekkert sagt frá Shake-
speare um 7—9 ára skeið. En
þá birtir líka allt í einu yfir
nafni hans; var hann orðinn nafn-
kunnur maður, bæði sem skáld
og leikari. Og frá þeim tíma
— 1592 — til 1613, samdi hann
37 leikrit, og er hvorttveggja
undraveyt — fjöldi þeirra og
efni þeirra. I fám orðum sagt:
Hann hóf leikhúsið enska úr al-
mennri fyrirlitningu og óorði,
sem á því lá, til almennrar virð-
ingar, jafnt hjá háum sem lág-
um, eigi síður með fegurð dag-
farsins en tign skáldskaparins.
Á undan Shakespeare voru
enskir leikritahöfundar örgustu
slarkarar, svo að heiðarlegt fólk
vildi engin mök við þá eiga. Og
eftir því fór svo siðavendni leik-
hússins, eins og að líkindum læt-
ur. En þessu snýr öllu við, þeg-
ar Shakespeare tekur við forust-
unni.
Andstæðingur einn og keppi-
nautur Shakespeares, Hinrik
(Frh. á bls. 62)
Árnaðaróskir til Lögbergs í
tilefni af sextíu ára afmæli
þess.
SPARIÐ
matinn
BJARGIÐ
mannslífunum
HJALPIÐ
til að seðja þá sem
hungraðir eru
This Space Donated by
Riedle Brewery Limited
WINNIPEG
“The
Painters’
Supply
House”
The
3ínnilegar hamingju-
óskir til vikublaðsins
Lögbergs í tilefni af
sextugsafmæli þess
frá
WESTERN PAINT CO.LTD
121 CHARLOTTE STREET
WINNIPEG MANITOBA