Lögberg - 13.11.1947, Qupperneq 4
60
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 13. NÓVEMBER, 1947
I Höll Silkiormanna
Eftir Marjorie Nisbett
Eftirfarandi grein er tekin úr
brezka tímaritinu London Call-
ing. Lýsir hún heimsókn í gamla
brezka aðalshöll, sem nú er notuð
til silkiræktar. Er þar sagt frá
silkiræktinni og lifnaðarháttum
silkiormsins.
♦
Það er hægt að eyða einu síð-
degi á margan hátt, og nú fyrir
skömmu eyddi eg einum dagparti
í gamalli höll, sem var full af
slikiormum. Það var Lulling-
stone Castle í Kent.
Höllin er mjög gömul, var að
nokkru leyti bygð á dögum Rósa-
stríðsins og síðan lokið við hana
í stjórnartíð önnu drotningar.
Höllin hefir líka fengið að kenna
á ógnum styrjaldarinnar við Hitl-
er. Tvisvar sinnum brotnuðu
allir gluggar í höllinni og einu
sinni fauk þakið af henni af völd-
um sprengja, sem sprungu í nánd
við hana.
Höllin stendur við litla á, sem
heitir Darent, og alt í kringum
hana vaxa blómleg mórberjatré,
og þau eiga að framleiða fæðu
handa þrem miljónum silkiorma,
sem hafast við í höllinni.
Þegar eg kom þangað, voru
silkiormarnir rétt skriðnir úr
eggjunum. Þeir höfðu sofið vært
niðri í hinum svölu hvelfingum
og vínkjöllurum gömlu hallar-
innar. Og það verður um fram
alt að halda þeim sofnadi, unz
laufið er sprungið út á mórberja-
trjánum. Það þarf tuttugu tonn
af mórberjalaufi til þess að fæða
CONGRATULATIONS . . .
MilleAA. Jlasu&wate
EXCLUSIVE DEALERS MM MODERN MACHINERY
MINNEAPOLIS - MOLINE
/
P.O. Box 117 Phone 53
WYNYARD, SASKATCHEWAN
CONGRATULATIONS . . .
WH. TIEN
Cocksliutt Farm Equipmcnt
Patron Oil Products
KAISER - FRÆZER DEALERS
WYNYARD SASKATCHEWAN
Security Lumber Company
Limited
Much Better Products
for Home Builders...
D. H. POPE, Local Agent
; WYNYARD SASKATCHEWAN
....................................
eina miljón silkiorma, svo að það
er ekki skynsamlegt að vekja
hinar sofandi lirfur, meðan mat-
arbúrið er tómt.
Þegar sólin er komin svo hátt
á loft, að ekki þarf að óttast næt-
urfrost, og mórberjatrén eru orð-
in allaufguð, eru egg silkifiðrild-
anna borin upp úr hinum svölu
hvelfingum hallarinnar og ungað
út í útungunarvélum. Er orm-
arnir eru skriðnir úr eggjunum
er þeim komið fyrir á löngum
borðum í sölum hallarninar, og
þar lifa þeir hið stutta líf sitt, sem
aðeins varir þrjátíu til þrjátíu og
fimm daga. Þessir flekar og
veggir voru málaðir bláir vegna
þess, að flugum og öðrum skor-
dýrum er ekkert um þann lit gef-
ið, og verða því ekki eins ágeng í
blámáluðum húsakynnum.
Silkiormarnir eta ekkert annað
en mórberjablöð, og fimta eða
sjötta hvern dag, er þeir hafa
troðið sig út af þessari fæðu falla
þeira í eins konar dvala meðan
þeir eru að melta, og þá flagnar
af þeim hamurinn, sem orðinn
var of lítill og nýr hamur mynd-
ast innan við hann. Svo hefja
þeir átið á ný.
Vaxtarhraðinn er undraverður,
og þegar vextinum er lokið og
silkikirtlarnir eru orðnir bústn-
ir og fullir af fljótandi silkivökva,
finna ormarnir á sér, að nær
dregur dvalaskeiðinu og skríða
upp á strámottur, sem rísa upp
frá hverju borði og ætlaðar eru
sem hæli handa þeim til að púpa
sig í. Þegar þeir hafa hreiðrað
þar um sig, byrja þeir að spinna
um sig silkihjúpinn.
Þegar honum er lokið, hefir
hver púpa vafið um sig 1500—
2500 metra löngum þræði. Ef
púpan fengi nú að lifa af vetur-
inn í næði og verða að fiðrildi
næsta vor, mundi allur þráður-
inn kubbast sundur og eyði-
leggjast, þegar fiðrildið brytist
úr púpunni. Þess vegna eru nú
púpurnar teknar jafnskjótt og
spunanum er lokið og farið með
þær inn í hið stóra eldhús hall-
arinnar og þær settar inn í stóra
ofna og steiktar þar til dauðs. Ef
til vill er þetta ^ami ofninn og
brauð hallarinnar var bakið í hér
fyr á öldum. Aðeins um það bil
fimm prósent af púpunum hljóta
mildari örlög og er leyft að lifa af
veturinn og verða að fiðrildum,
sem verpa eggjum til þess að fá
úr silkiorma næsta sumar.
Gamla þvottahúsið í höllinni
er nú orðið að vindistofu, þar
sem silkiþráðurinn er rakinn ofan
af hinum dauðu, gulu púpukuf-
ungum, og rennur síðan um fing-
ur ungra blómarósa úr nágrenn-
inu inn í vélar áem vinda fjóra
hinna hárfínu þráða saman í einn
þráð, sem hefir einn þriðja af
styrkleika jafngilds stálþráðar.
Þessi þráður er síðan undinn
upp í mjúkar, gljáandi hespur.
Úti er allmargt verkamanna að
vinna við mórberjatrén. Þau eru
ekki látin verða hávaxin, svo að
hægt sé að tína af þeim blöðin án
stiga. Silkiormamir eru enn við-
kvæmari en kanínur fyrir því
að snæða vott lauf, og þeim líkar
líka bezt, að blöðin séu jafnheit
andrúmsloftinu inni, þegar þeir
éta þau. Það er ærið verk að
safna blöðunum af trjánum og
Gagnfrœðaskóli
Akureyrar settur
310 nemendur í skólanum
Gagnfræðaskóli Akureyrar
var settur hinn 1. þ. m. Við það
tækifæri flutti skólastjórinn,
Þorsteinn M. Jónsson, skörulega
ræðu og greindi jafnframt frá
tilhögun skólastarfsins í vetur.
Alls verða 310 nemendur í skól-
anum og mun hann starfa í 11—
12 deildum. Kennaralið er að
mestu hi ðsama og áður. Einn
elzti kennari skólans, Jón Sigur-
geirsson, dvelur erlendis í vetur,
en í hans stað kennir Sverrir
Pálsson við skólann. — Friðrik
Kristjánsson, sem kenndi s. 1.
vetur, hverfur frá skólanum,
en í staðinn kemur Sigríður
Kristjánsdóttir stúdent. — Loks
kennir Hallgrímur Björnsson,
verkfræðingur, sem stundakenn
ari. Aukið verknám verður nú
tekið upp við skólann, en hús-
næðisskortur hamlar þó þessu
námi.
Skólastjórinn þakkaði höfðing-
lega gjöf er skíðaskála skólans
hefir borizt, en það eru eitt þús-
und krónur frá Kr. Kristjáns-
syni ,forstjóra, í tilefni af því að
synir hans tveir brautskráðust
frá skólanum á s. 1. ári.
Dagur, 15. okt.
bera laufið inn til silkiormanna,
meðan þeir eru að vaxa, og það
þarf líka að hlynna vel að mór-
berjatrjánum og rækta þau á
réttan hátt, svo að þau beri sem
ríkulegast lauf.
Það var frú ein að nafni Zoe
Hart-Dyke af gamalli aðalsætt,
sem lengi hafði búið í þessari höll
sem stofnaði til silkiræktarinnar
þarna. Hún hafði haft hinn mesta
áhuga fyrir silkiormum frá því
hún var lítil telpa. Hún hóf þessa
starfsemi af fullum krafti árið
1932 og er nú stærsti silkifram-
leiðandi í Englandi. Hún hefir
orðið að láta silkiormuunm alla
höllina í té, og býr nú sjálf í litlu
húsi þarna í landareigninni.
Hún kvað það ætíð hafa vakið
undrun sína, að fleiri konur
skyldu ekki hafa lagt stund á
silkirækt, í stað þess að rækta
bíflugur og kanínur. “Þetta er
þó sannkallað konustarf”, sagði
hún, “og þar sem annatíminn er
aðeins sex vikur á ári, er þetta
ábatasamur atvinnurekstur og
alls ekki erfiður.”
Hún fær bréf frá öllum lönd-
um heims — jafnt frá Atlants-
hafsströnd Bandaríkjanna, sem
innan úr hjarta Ástralíu, og efni
þessara bréfa er eingöngu það, að
biðja hana um góð ráð varðandi
silkirækt eða kyngóð egg til þess
að hefja silkirækt með.
1 Lullingstone-höll er silkið í
krýningarklæði konungshjón-
anna framleitt. Meðan á stríðinu
stóð höfðu silkiormamir nóg að
gera við að spinna þráð í silkið í
fallhlífar, og einnig eru þessir
fínu þræðir mjög notaðir í ýmis
mælitæki ,er mæla fjarlægðir.
Óg nú, þegar þessir vænu og lit-
fögru þræðir mega aftur verða
yndi og gagn okkar í daglegu lífi,
þá eiga silkiormarnir annríkara
en nokkru sinni fyr.—Tíminn.
1908 to 1947
THIRTY-NINE YEARS OF SERVICE TO THE
WYNYARD DISTRICT
Quality Merchandise and Fair Dealings
Have Kept JJs on Top
Cameron & Carscadden
Quality Hardware
PHONE 14 WYNYARD, SASK.
C0NGRATULATI0NS . . .
PltGAsnactf
A. A. EYOLFSON
“A Complete Drug Service”
WYNYARD SASKATCHEWAN
• . • < ' < > • • < i C0NGRATULATI0NS ... • > • • • • •
A. . . BERGMANN
* . . . . > > • > • > > GENERAL MERCHANT
• • ■ Phone 31 P.O. Box 309
> > > ■ ' > > ■ ■ WYNYARD. SASKATCHEWAN
C0NGRATULATI0NS .
ARTH U R S.
THORFINNSON
REAL ESTATE
AND
INSURANCE oí EVERY KIND
WYNYARD
SASKATCHEWAN
BUY WITH CONFIDENCE AT
/INS’f
Department Store
G E N E R A L
MERCHANDISE
WYNYARD
SASKATCHEWAN