Lögberg - 06.01.1949, Blaðsíða 1

Lögberg - 06.01.1949, Blaðsíða 1
Ó7o rJ« PHONE 21374 A Complete Cleaning Insiitution PHONE 21 374 «•*£■** YtdeTCTS c.'tO'O-^ LaU ■f\3^ A Complete Cleaning Institulion 62. ÁRGANGUR WINNIPEG, FIMTUDAGINN, 6. JANÚAR, 1949 NÚMER 1 Lögberg árnar íslenzka mam nfélaginu báðum megin hafs góðs og glec Jiiegs árs FORSÆTISRÁÐHERRA MYRTUR # Þann 28. desember síðastlið- inn, var forsætisráðherra Egyp- talands, Fahrny Nokrashy Pasha myrtur, er hann var á leið til skriftstofu sinnar; ungur stúdent, er taldist til hins svo nefnda Moslem Brotherhood, var va'ldur að morðinu og skaut hann sex skotum á forsætisráðherrann, reyndi síðan að skjóta sjálfan sig, en sú tilraun mistókst; hinn myrti forsætisráðherra þótti mikilhæfur stjórnmálamaður og hafði haft stjómarforustu á hendi í landi sínu svo að segja óslitið síðan seinni heimsstyrj- öldinni lauk; hann átti tvisvar sinnum sæti á þingi sameinuðu þjóðarína. Jafnskjótt og Mjóðbært varð um morð forsætisráðherra, hélt ráðuneytið fund og gaf út svo felda yfirlýsingu: “Ungur glæpamaður varð for- sætisráðherra að bana, þeim stjórnmálamanninum, er þjóðin eins og nú hagar til, mátti sízt án vera, vegna þjóðhollustu, ráð- vendi hugrekkis og drengskap- ar.” NÝR VIÐSKIPTA- SAMNINGUR Frá London og Varsjá bárust samtímis þær fregnir síðastlið- inn þriðjudag, að Bretar og Pól- verjar hefðu gert með sér samn- ing um vöruskipti, er nemi $600,- 000,000 sem jafnist niður á næstu fimm ár sýnt þykir, að þessi nýi viskiptasmaningur hafi ó- hagstæð áhrif á viðskipti Canada við Bretland. AUKIN LÖGREGLA Þær fregniir hafa nýlega borist frá Frankfort, sem nú er höfuð- borg Vestur-Þýskalands, að her- námsvöld Breta, Bandaríkjanna og Frakklands, hafi bætt við sig 5 þúsund Þýzkum lögreglumönn- um til þess að gæta landamær- anna milli vesturMuta landsins og hins hlutans, sem Rússar ráða yfir; er þetta einkum gert með það fyrir augum, að koma í veg fyrir tollsvik og svarta markaði. GULLFAXI FLÝGUR MEÐ PENICILLIN TIL GRÆNLANDS Gullfaxi, skymasterflugvél Flugfélags íslands flaug í fyrra dag til byggðarinnar við Scores- bysund á Grænlandi. Flutti hann penicillin er nota átti til að reyna að bjarga lífi dansks verkfræð- ings er veikzt hafði af lungna- bólgu. Danska sendiráðið hér fékk Gullfaxa til fararinnar og fór hann kl. 11:16 f.h. af stað og kom til Scoresbysund kl. 13,45. Var veður þá bjart yfir GræMands- strönd og vörpuðu flugmennimir niður pökkum með lyfjum og blöðum, úr 50—60 metra hæð en flugu síðan hemileiðis aftur og komu hingað aftur eftir 5 klst. flug. Þjóðviljinn, 7. des. Or borg og bygð Icelandic Canadian Club News A general meeting og the Ice- landic Canadian Club will be held in the Coronation Bowling Alley’s Club Rooms, Corner Tache and Eugenie, Monday, January lOth, 1949. Among oth- er items of interest there wil'l be a discussion re the Club’s par- ticipation in the establishment of the Chair in Icelandic at the University of Manitoba. It is of utmost importance that all mem- bers attend this meeting. Take a 57 or 59 Car. H. Halldorson, Secty. ♦ Þann 2. þ.m., lézt á Almenna spítalanum hér í borginni frú Margrét Katrín Krausher, kona Edwards Krausher umboðssala; hún var fríðleikskona, heilsteypt í skapgerð og prúð í fasi; hún var dóttir þeirra Mr. og Mrs. Ed. Erlendsson, sem ættuð voru frá Langruth, og aðeins 36 ára er dauða hennar bar að. Útförin fór fram frá Bardals síðastliðinn miðvikudag. ♦ Séra Valdimar J. Eylands flutti hátíðaguðsþjónustu á Betel síðastliðinn fimtudag, þar sem hann viðhaxCj. íálenzka messu- formið eins og í Fyrstu lútersku kirkju á Jóladagsmorguninn; vakti Guðsþjónustan mikla hrifningu meðal vistfólks og gesta. ♦ Hið eldra kvenfélag Fyrsta lúterska safnaðar, heldur fund í samkomusal kirkjunnar á vana- legum tíma þann 13. þ.m. •f Þann 24. desember síðastliðinn lézt að heimili sínu 1414 Green- leaf St., Evanston Illinois, Sig- urður Árnason, ættaður úr Borg- arfirði hinum eystra, 66 ára að aldri; hann lætur eftir sig ekkju, Mynd þessi er tekin í fundarsal allsherjarþings Sameinuðu Þjóðanna í París; frá vinstri til hægri: LT. COLONEL W. R. HODGSON, O.B.E., Ambassador Ástralíu í París: THOR THORS, sendiherra: L.B. PEARSON, utanríkisráðherra Canada: HECTOR McNEIL, Min- i . ister of State, aðalfulltrúi Breta á Þinginu. fjóra syni og eina dóttur; einnig kom hún 1892. Auk Ágústas, eig- lifir hann ein svstir. • *. Sigtuður heitinn var mesti skýrleiksmaður og skáldmæltur vel. -f Hið yngra kvenfélag Fyrsta lúterska safnaðar heldur fund í samkomusal kirkjunnar á venju- legum tíma þann 11 þ.m. -f DÁNARFREGN Mrs. Ágúst Vopni andaðist að Betel 2. janúar. Ambjörg heitin var fædd að Hólmum í Vopna- firði í Norðumúlasýslu, fyrir 83 árum síðan. Foreldrar hennar voru þau Jón Jónsson og Aðal- björg Friðfinnsdóttir; til Kanada GUTTORMUR J. GUTTORMSSON, 70 ÁRA Fór fyr á tíð Um frónska Míð Nýr norrænn andi Frá Nýja Islandi. Átti augu skygn, Yfirbragðstign Forfeðra vorra; Frá Agli og Snorra. Ungur þú varst Er af öðrum barst Vængjuð var og er Þín vísa hver Þrótt greindi þjóð í þínum óð Átti umtalsþing Um Austfirðing. Sterkt eins stál Er þitt stuðlamál Lim laufskrúð ber Ljóð hending hver Árstíðir yfir Óðs snilli lifir; Vísir veginn drótt Sem viti um nótt. Andans átök sterk þín afreks verk Eru aringlóð Sem yljar þjóð Vekur víkings hug En vísair á bug Aldar yfirlæti, úr efsta sæti. Heilhuga, þétt, Skal hönd þér rétt Eigi orð fá lýst; Og allra sízt Vinar verðmæti Viti og innræti, Þar andans ágæti Er í hásæti. Þökk þeim er gaf Þjóð sinni af, Aandans aringlóð, Sín úrvals ljóð, Þau er mat hún mest á minnið fest Sólargaldur var, Og Sandy Bar. Heill þuli hárum Á hérvistarárum Yfir aldahöf; Ýfir dauða og gröf. Lifi ljóðsvanur hoftferðum vanur Yfir æfitíð, Fyrir utan stríð. S.E.B. landsrÓkaSafn 4 ! 7 7 8 8 U ÍSLAKDS inmanns hinnar framliðnu, lifa móður sína átta börn. Við kveðjuathöfnina, sem fram fór á heimilinu 2. janúar, flutti séra Skúli Sigurgeiirson kveðjumál. Líkið var flutt til Kenville til greftrunar. ♦ Síðastliðið nýáirsdagskvöld voru gefin samaii í hjónabahd (Candlelight Wedding) Mr. Elm- er Valdimar Nordal og Margaret Lorwain Staples. Rev. McDonald framkvæmdi hjónavígsluna að 123 Luxton Avenue, hér í borg- inni. Svarmenn voru Mrs. Guð- rún Johnson systir brúðgumans og John Staples bróðir brúður- innar. — Brúðguminn er sonur Jakob- ínu og Magnúsair heitins Nordal er lengi bjuggu við Cypress River, hann gegnir lögreglu- þjónsstöðu í St. Boniface, er ágætur og kunnur söngmaður, er tíðum hefir skemt á samkomum meðal íslendinga og annara þjóða fólks hér um slóðiir. Brúð- urin er dóttir Mrs. og Mrs. L. Staples í Treherne. Heimili ungu hjónanna verður að 515 De la Morenie, St. Boniface. Lögberg flytur þessum ungu og vinsælu hjónum innilegair hamingjuóskir. + Þann 31 desember síðastliðinn lézt á Almenna sjúkrahúsinn í Selkrik, Paul Goodman 84 ára að aldri; heimili hans var að 231 Mc Lean Avenue í Selkirk. Útförin fór fram frá íslenzku lútersku kirkjunni í Selkirk á þriðjudag- inn var; hans verður vafalaust minst nánar á næstunni. -f Hinn 10. desember síðastliðinn lézt að heimili dóttur sinnar og tengdasonar, þeirra Mr. og Mrs. Sigtr. Briem, í Riverton, Guð- jón Ingimundsson trésmíðameist- ari, 82 ára að aldri, valinkunnur sæmdarmaður, sem ekki vildi vamm sitt vita í neinu; hann var ættaður úr Vestmannaeyjum. Út- för hans fór fram frá kirkju Bræðrasafnaðar í Riverton þann 13. desember. Séra Sigurður Ól-i afsson jarðsöng. -f FaUegt sönglagasaín Nú um hátíðaleytið kom út í Toronto, einkar fallegt sönglaga- safn, Songs of Iceland, eftir pró- fessor S. K. Hall, sem nú er bú- settur í Wynyard, Sask. í heftinu eru átta einsöngslög með piano- undirspili. Þessarar ágætur söng- lagabókar verður frekar minst við allar fyrstu hentugleika hér í blaðinu. Þetta sönglagahefti kostar $1.50. Pantanir sendist höfundin- um til Wynyard, Sask. + Síðastliðinn mánudag, barst frú Helgu Árnason, 648 Victor Stret hér í borg símskeyti frá Reykjavík, þess efnis, að látist hefði þar þann 31. desember síðastliðinn, Kristján Muller, málairameistari, 82 ára að aldri; hann var hálfbróðir önnu heit- innar Ólafsson móður frú Helgu og þeirra systkina. OPIÐ BRÉF Winnipeg, 31. desember, 1948 Herra Ritstjóri: Mér þætti vænt um ef þú vild- ir gera svo vel að birta bréf er ég fékk frá einum af þeim mörgu vinum Betels, er sannað hafa með gjöfum sínum og Mýhug, að þeir skilji kringumstæðurnar og sannfærist um, að ef áframhald- andi tekjuhalli étur upp allan varasjóð stofmmarinnar, þá er ekki aðeins tapaður sá styrkur er stofnunin nýtur af afurðum um stjóðsins, heldur er stofmmin sjálf og það líknarstarf, er hún vinnuir í hættu. En bréfið er þetta. J.J.S. Box 297 Foam Lake, Sask. Mr. J. J. Swanson, , Winnipeg, Man. Kæri Herra, Viltu gera svo vel að veita við- töku $10.00 sem eiga að vera Bet- el til Styrktar. Það er lítið, en komið fyllir mælirinn, ef þátt- takan gæti orðið almenn, og húp gæti það, ef viljinn til þess góða er nógu sterkur. En nú þegar elliheimilin eru orðin svo mörg, þá hljóta gjafirnar að dreifast á milli þeirrar og verður þá minna það sem Betel fær en áður fyr, meðan það heimili var eitt um gjafimar, en hér eftir hlynnir hvert byrgðarlag að að sínu hæli. Við hefðum fegin viljað hafa verið svo efnalega sterk að geta lagt lítinn hlut til allra elliheimilanna, því öll þarfnast þau styrktar við frá al- menningi. Með beztu jóla og heilla ósk- um, Mr. og Mrs. Sveinn Ólafsson BRUNI Á BÚASTÖÐUM f VOPNAFIRÐI Stórbruni varð fyrir helgi á Búastöðum í Vopnafirði. Kom eldur þar upp um miðnætti í geymsluskúr, sem stóð við hlið íbúðarhússins. Brann skúrinn til kaldra kola, en íbúðarhúsið skemdist lítið. Aftur á móti urðu skemmdir á fjósi, en öllum naut- gripunum vair bjargað út. Skúr- inn sem brann var notaður sem geymsla undir margskonar kom- mat og síldarmjöl. Var mestöll- um vörunum bjargað út. Heðsl- ustafla frá vindrafstöð bæjarins var einnig í skúrnum og er talið, að eldurinn hafi kviknað út frá henni, þannig að rafmagn hafi leitt út. Strax þegar eldsins varð vart kom fólk af næstu bæjum og hjálpaði til við að ráða niður- lögum eldsins. Bóndinn á Búastöðum, Þor- grímur Einarsson, hefur orðið fyrir talsverðu tjóni. íbúðarhús ið var vátryggt, en skúrinn, sem brann, óvátryggður. Mbl. 7. des. , MJÖG MIKIL SÍLD í HVALFIRÐI Böðvar fékk 1500 mál í kasti en náði ekki nema nokkrum hluta þess—Marz fékk 1100—1200 mál. I gær vair ágæt síldveiði í Hval- firði og voru flestir Akranesbát- amir famir af stað eða á förum þangað í gærkvöld og all margir bátar héðan. Fimm bátar vom komnir til Akranes í gærkvöld. Vom það þessir: Sigurfari með 140 mál, Ásmundur með 240, Aðalbjörn, 300, Farsæll 500 og Böðvar með rúm 700 mál. Verksmiðjan á Akranesi mun hefja bræðslu í dag. Skipverjar á BÖðvari töldu að þeir hefðu fengið um 1500 mál í nótina, en urðu að sleppa tveim þriðju úr henni. Ásmundpr fékk einnig miklu meira en hann náði, varð að sleppa vegna þess að hann tók niðri. Hingað til Reykajvíkuir kom Marz með 1100—1200 mál og Helgi Helgason með 70 tunnur, en hann sprengdi nótina. Þjóðviljinn, 7. des. Mr. og Mrs. Harold S. Sigurð- son, lögðu af stað á mánudaginn ásamt tveim börnum sínum til heimilis síns í Fort William; dvöldu þau hér um hátíðimar hjá foreldrum og öðrum vinum. Mrs. Sigurðson var fyrir giftingu sína Norma Benson. Mr. Sigurðson er skrifstofu- stjóiri fyrir félag löggiltra endur- skoðanda í Fort William. + Mr. og Mrs. Guðmundur Grímsson frá Mozart, Sask., dvelja í borginni um þessar mundir.

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.