Lögberg - 06.01.1949, Side 7
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 6. JANÚAR, 1949
7
Lykill langlífisins
Eftir dr. WILLIAM SEIFRIZ
Klorofyll er ekki aðeins lykill
langlífisins heldur lykill alls lífs
yfirleitt. Blöðin á trjánum eru
igræn af Morofyll, en -það gefur
meira en lit. Það veldxn: því að
jurtirnar geta látið kolsýru og
vatn ganga í efnasamband. Á
þann hátt geta þær framleitt
sykur og sterkju.
Þessi framleiðsla lífrænna
efna úr ólífrænum er aðeins
möguleg með klorofyll og sólar-
ljósi. Sólarljósið er orka, kloro-
fyllið er “katalysator” eða upp-
leysandi, en kolsýran og vatnið
eru hráefnin. Þetta eru máttar
viðir þeirrar næringar, sem allt
lifandi nýtur góðs af.
Klorofyllið er “katalysator”,
efni, sem flýtir fyrir kemiskum
breytingum. Án þesss væru þess-
ar efnabreytingar ekki hugsan-
legar. “Katalysatorinn” samein-
ast ekki efnunum en fær þau til
að sameinast.
Klorofyll kemur aðeins fyrir 1
lifandi frumum og því mætti
spyrja hvort það sé líka lifandi.
Það er hugsanlegt að svo sé. En
kemiskur “katalysator” þarf ekki
endilega að vera lifandi. Kloro-
fyll er hluti í lífrænu kerfi, en
jafnvel þó það sé ekki lifandi þá
er það svo skylt lífinu sem nokk-
urt dautt efni getur verið.
Við vitum nokkuð um efna-
samsetningu klorofylls. Fyrst og
fremst vitum við að það inni—
heldur venjuleg frumefni pro-
teins (eggjahvítuefnis jurtanna),
nfl. kolaefni, vatnsefni, súrefni,
köfnimarefni og magnesíum, Við
vitum líka, að í jurtum sem inni
halda járn er ekkert proteín.
En það er tvennt merkilegt,
sem við vitum ekki um: í fyrsta
lagi hvernig á að framieiða klor-
ofyll og hvemig á að fara að því
að framleiða sömu verkanir og
Morofyllið hefir. En búist er við
að merkilegar upp götvanir í
þessu efni séu í uppsiglingu.
Litarefnin eru yfirleitt meira
en að sýnast. Það em ekki mörg
ár síðan við vissum ekki annað
um karótín en að það gefur gul-
rótinni gula litinn. I dag vitum
við að það er undirstöðuefni A-
vítamínsins. Svo höfum við gula
litarefnið cylokróm, sem er svo
mikiilsvert fyrir andardráttinn.
En Morofyll er efst á baugi allra
litarefna. Það er uppruni allra
lifandi litarefna.
Mikilverðasta litarefnið í dýra-
ríkinu er hemoglóbín, mikils-
verðasti hluti blóðsins, og þar
hittum við fyrir merkilega stað-
reýnd. Klorofyll — litarefni
jurtanna — er efnafræðilega ná-
skylt hemoglóbíninu, þó að
starfshættir þess séu allt aðrir.
Hemog’lóbínið inniheldur tvö
mikilsvérð efni — globín og
hematín. Sameindirnar (molkyl-
in) í hematíni og klorofyll eru í
aðalatriðum eins, að öðru leyti
en því, að í hematín er járn en
magnesíum í klorofyllinu.
Þessi munur veldur því að eig-
inleikar þessara efna til örfunar
á efnasambandi verða gagnstæð-
ar. Klorofyll framleiðir sykur,
hemeglobín inniheldur súrefni
sem veldur því að sykur brenn-
ur við andardráttinn. Þessi tvö
mikilvægu litarefni eru þannig
náskyld, en hafa gagnstætt hlut-
verk.
Það er ekki aðeins sem fyrir-
greiðandi og frumkvöðull að
myndun sykurs og sterkju, sem
klorofyll á skilið að heita lykill
lífsins. Klorofyll er líka fjor-
efnislind og heilsubótarmeðal.
“Borið nýtt grænmeti!” segja
læknarnir, en við vissum lengi
vel ekki hversvegna við áttum
að gera það. En við vitum það
núna.
Klorofyll inniheldur karótín
og karótín er, eins og áður seg-
ir, upphaf A-fjörefnisins. Grænt
salat er hollara en hvítt salat.
Bleiking og suða matvælanna
hefir verið bölvun siðmenningar-
innar.
Og — lengir svo klorofyll lífið?
Fyrir nokkru uppgötvaðist að
klorofyll vinnur bug á ýmsum
sóttkveikjum. Það drepur þær
ekki, en það gera hin frægu sul-
falyf ekki heldur. En það gerir
þær hættulausar, og svo sjá
hvítu blóðkornin um það sem á
vantar.
Niðurstaðan verður því sú, að
þó að nátúran hafi ekki gefið
klorofyll alla þá kosti, sem nær-
ingin og heilsan þarfnast, þá hef-
ir hún þó gefið því það, sem mest
er um vert.
FÁLKINN
Kjölur lagður að farþega-
skipi E.í. eftir áramót.
Dettifoss senn fullgerður
Um miðjan janúar n.k. verður
lagður kjölur að hinu nýja far-
þegaskipi Eimskipafélags Is-
lands.
Er gert ráð fyrir, að smíði
skipsins taki rúmlega eitt ár og
að það komi hingað til lands með
vorinu árið 1950. Nær allt efni
til skipsins, þ.e.a.s. sá hluti þess,
sem Eimskipafélagið leggur til,
samkvæmt samningum við
skipasmíðastöðina, er komið til
Kaupmanahafnar.
Um næstu áramót mun Detti-
foss fara í reynsluferð, en unnið
hefir verið að smíði skipsis að
undanförnu og hefir henni mið-
að vel áfram nú í seinni tíð. Þeg-
ar Skipasmíðastöð Burmeister &
Wains hafði lokið við smíði hval-
veiðiskipsins Thorshövdi, losnaði
talsvert af vinnuafli, en til þessa
hefir aðall. staðið á því Detti-
foss mun koma hingað til lands
í janúar-mánuði ef engar ófyrir-
sjáanlegar tafir verða á lúkningu
skipsins. — Dettifoss er að öllu
leyti nákvæmlega eins og Goða-
foss. — Skipstjóri verður Jón
Eiríksson.
Um það leyti, sem Dettifoss fer
í vreynsluferðina, verður þriðja
vöruflutningaskipinu, sem Eim-
skipafélagið á í smíðum í Kaup-
mannahöfn hleypt af stokkunum.
Við það tækifæri verður því gef-
ið nafn, svo sem venja er.
Vísir, 23. nóv.
manninn, sem þá var uppi. —
Mér virtist hánn fylgjast furðu
vel með því sem þar var að ger-
ast, ekki kvaðst hann þó vænta
þar verulegra framfrara fyr en
ísland væri laust úr öllum
tengslum við Dani, virtist mér
hugur hans heldur þungiu:, í
þeirra garð.
Hann var maður í hærra með-
allagi, aS mig minnir grannvax-
inn, lítið eitt lotinn í herðum,
snar í hreyfingum, sýnilegur
fjörmaður, og bar sig vel, þegar
þess er gæt að hann var þá fullra
72 ára að aldri. — Svipurinn
norrænn, ennið mikið og gáfu-
legt, hnakkasvipur fallegur; aug-
un leiftruðu undir hvössum
brúnum, hendumar smáar og
mjög fallegra. Við mæltum á
enska tungu; hann talaði mjög
fagurt mál, en að mig minnir með
mjög dálitlum norrænum hreim
í röddinni og framburður ensk-
unnar í harðara lagi, miðað á
Ameríkanskan mælikvarða.
Eg lét í ljósi aðdáun mína á
| f jölþættri tungumála þekkingu
hans, en hann svaraði því til að
það væri ekki eins örðugt eins
örðugt eins og ætla mætti að
læra tungumál. Tungumálin
sagði hann, eru eins og frænd-
fólk, þau greinast í flokka eins
og ættir manna, en eru hvert
öðru skyld og lítill vandi að
kynnast þeim, ef athygli er á
þeim höfð. Áður en ég fór kom
það til tals að ég væri á presta-
TÓK TÖNN 80 ÁRA
Áttatíu og sex ára gömul kerl-
ing í Munchen tók vísdómstönn-
ina nýlega, en hún hafði verði 60
ár að reyna að komast gegqum
tannholdið. Kerla er mjög hreyk-
in af tönninni, því að það er sú
eina sem hún hefir.
skóla, og hefði um nokkur und-
anfarin ár stnudað nám á kvöld-
skóla Seattle.
Eg fékk leyfi hans að mega
skrifa honum við og við. Fara
bréf okkar á milli af og til 2 ár.
Einnig gaf hann mér myndir af
sér. (Mörg af bréfunum ásamt
myndunum af honum fól ég
merkum Vestur-Islendingi, nú
látnum, til að koma þeim á þjóð-
skjalasafnið í Reykjavík árið 19-
20. Er ég þess fullviss að þau
mimu vera þar, en þessvegna hefi
ég hvorki bréfin né myndirnar
með höndum).
Bréf hans til mín voru ljúf
og vinsamleg. Ýms hagkvæm
ráð gaf hann mér, einkurn snert-
andi grískuna. Ekki man ég til
að hann viki neitt að trumálum.
Rithönd hans var fögur og á-
ferðarfalleg S.tafirnir nærri
sjálfstæðir, líkt og prentað væri.
Eðlilega var höndin ekki lengur
eins styrk og áður hafði verið —
og bar skrift hans þess nokkur
merki.
Heyrt hafði ég áður en ég
heimsótti Bertel að hann væri
talinn einrænn og ómannblend-
inn. Hið gagnstæða var reynsla
mín, af þeirri litlu kynningu er
ég af honum hafði. Ljúfleiki
hans og hipurslaust drenglyndi
lifir mér í minni, er; hann mér
ógleymanlegur og minning hans
nú kær, þótt ekki gæti ég hon-
um að neinu launað ljúfleik
hans.
Hann gekk með mér “úr garði”
að íslenzkum sið, er éf fór og
kvaddi mig með kærleika. — Oft
hefi ég hugsað um þennan eina
samfund er ég með honum átti,v
er lifir mér í ljósu minni þó að
nú séu hjáliðin meira en 37 ár.
Annað sem ég fæ ekki gleymt er
sú fegins gleði sem blossaði í
augum hans og málróm þegar
að samtal okkar leiddist að Is-
landi og því sem íslenzkt var,
snertandi hag og framtíð ætt-
jarðarinnar. Leifturkend gleði
fór um huga hans og gerði hann
stæltann og ungan, þó voru
þá 60 ár síðan hann hafði að
heiman farið, 12 árar drengur, og
aðeins einusinni síðan átt fárra
mánaða dvöl þar — og var nú
hálf öld hjáliðin, frá þeim tíma.
En slík eru tökin sem að ætt-
jörðin nær á hugum barna sinna.
Um hann mátti heimfæra speM
orð Einars Benediktssonar
skálds:
“Og dökni Væringi 1 suðrænni
sól
ber hann sinni, undir skinni sem
norðrið ól,
og minist að heima er lífstrúar-
lindin.”
Bertel Högni Gunnlögsson
andaðist í Tacoma, Washington,
30. janúar 1918, 79 ára og rúm-
lega 8 mánaða að aldri. —
Á jólaföstu 1948.
Sigurður Olafsson
Bertel Högni Gunnlögsson
(Frh. af bls. 3)
verður stærri og stærri. Að hann
hafi nóg að gera, má ráða af því
að hann skrifar stöðugt í tíu til
tuttugu tímarit og blöð víðsveg-
ar í landinu og þýðir merkar
bækur af ýmsum Norðurálfu
tungum á ensku.
Einusinni í hverri viku hefur
hann fyrirlestur um einhverja
fræðigrein, einhverjar bókmentir
og fagrar listir, fyrir nemendum
sínum, og stórmennum borgar-
innar. I eitt skifti talar hann um
Indland, þá Egyptaland, Grikki,
Rómverja, o.s. frv. um sögu, bók-
mentir, listaverk tungumál þessa
lands og þjóðar. Á þennan hátt
hafa Tacomabúar fengið að
kynnast Íslandi og bókmentum
þess.”
Þannig er starfsháttum Gunn-
lögssons lýst í fyr nefndri grein,
I'1
)
GRlPIÐ TÆKIFÆRIÐ
Eins og samkepni á sviði viðsjjiptalífsins nú er
háttað, liggur það í augum uppi hve mikilvægt
það sé, að piltar og stúlkur fái notið hagkvæmrar
mentunar í öllu því, sem að skrifstofustörfum
lýtur; slíka mentun verður fólk að sækja á Business
College. Það verður nemendum til ómetanlegra
hagsmuna, að leita upplýsinga á skrifstofu Lög-
bergs í sambandi við verzlunarskólanámsskeið.
Þau fást með aðgengilegum kjörum.
GRÍPIÐ TÆKIFÆRIÐ!
THE COLUMBIA PRESS LTD.
695 SARGENT AVENUE
WINNIPEG.
sem er skrifuð í desember mán-
uði 1895. —
Kenslu og ristörfum hélt hann
áfram í Tacoma, árum saman; en
ganga má út frá því sem gefnu
að með fjölgandi árum hafi rit-
störf hans — og einnig kensla
farið minkandi, einkum vegna
þess að hann var alls ekki heilsu-
hraustur maður. Eftir því sem að
aldur færðist yfir hann munu
kjör hans hafa orðið þrengri.
Kennslustörf stundaði hann þar
árið 1911, þegar ég heimsótti
hann í Tacoma. —
Mig hafði íengi langað til að
heimsækja Bertel Högna Gunn-
lögsson, þótt ekki yrði það að
framkvæmd fyr en áminst sum-
ar, vann ég þá í Seattle í sumar-
fríi frá námi á prestasicóla.
Kunningi minn, Kristján Ólafs-
son myndasmiður hafði kynst
Bertel ,og fór með mig á fund
hans einn fagran júlídag. Eftir
að hafa nafnkynt mig fyrir hon-
um fór vinur minn burtu, dvaldi
ég hjá honum til kvölds. — Hann
var fremur fálátur við fyrstu
kynningu en varð brátt hlýr og
skrafhreyfinn.
Mjög var hann háttprúður í allri
framkomu. Hann leigði tvær
vistlegar stofur á fyrsta gólfi í
allstóru húsi. Kennslustofu og
svefnherbergi. Á allstóru borði í
kenslustofunni sem einnig var
skrifstofa hans taldi ég um 20
bækur, ég handlék sumar þeirra,
m.a. voru þar kenslubækur í
Sanskrít, Persnesku, Frönsku og
ítölsku, einnig bækur á Grísku
og Latínu, auk úrvalsrita ýmsra,
á Ensku.
Eftir nokkra stund var tilrætt
um stofnun háskólans í Reykja-
vík, sem var stofnsettur einmitt
það ár. Talaði hann um stofnun
háskólans með gleði og hrifningu
er var mjög innileg. — Mjög dáði
hann Dr. Björn M. Ólsen, er hann
taldi merkasta íslenzka skóla-
THE ROYAL BANK
OF CANADA
\
General Statement
30th November, 1948
ASSETS
Notes of and deposits with Bank of Canada .... $ 177,157,400.06
Other cash and bank balances................ 158,536,879.14
Notes of and cheques on other banks................. 89,509,786.47
Government and other public securities, not exceeding
market value............................. 918,420,522.36
Other bonds and stocks, not exceeding market value 136,626,725.57
Call and short loans, fully secured.......... 56,534,207.84
Total quick assets..........$1,536,785,521.44
Other loans and discounts,after full provision forbad
and doubtful debts ...................... 600,923,527.65
Bank premises................................ 11,729,957.83
Liabilities of customers under acceptances and letters
ofcredit.................................. 65,104,477.12
Other assets.................................. 7,944,302.47
$2,222,487,786.51
LIABILITIES
Notes in circulation......................$ 4,320,934.27
Deposits.....................*............ 2,067,488,996.81
Acceptances and letters of credit outstanding. . . . 65,104,477.12
Other liabilities............................. 4,087,930.88
Total liabilities to the public . . . $2,141,002,339.08
Capital...................................... 35,000,000.00
Reserve Fund................................. 44,000,000.00
Dividends payable............................... 952,655.37
Balance of Profit and Loss Account............ 1,532,792.06
$2,222,487,786.51
PROFIT AND LOSS ACCOUNT
Profits for the year ended 30th Noveraber, 1948, hefore Dominion
nnd provincial government taxes, but after contribution to Staff
Pension Fund, and after appropriations to Contingency Reserves,
out of which Reserves provision for all bad and doubtful debts
has been made..........................................$9,517,432.87
Less provision for Dominion and provincial govern-
menttaxes.......................... $3,150,000.00
Less provision for depreciation of bank premises . 808,887.36 3,958,887.36
$5,558,545.51
Dividends at the rate of $1.00 per share 3,500,000.00
Amount carried forward.....................................$2,058,545.51
Balance of Profit and Loss Account, 29th November, 1947 ; . . . 3,474,246.55
$5,532,792.06
Transferred to Reserve Fund ...............................,4,000,000.00
Balance of Profit and Loss Account, 30th November, 1948 : : ; . $1,532.792.06
SYDNEY G. DOBSON,
President
JAMES MUIR,
General Manager