Lögberg - 03.02.1949, Page 1
PHONE 21374
/^l£>.QTr'-eTS
A Complete
Cleaning
Institution
Cleaning
Inslilution
62. ÁRGANGUR
WINNIPEG, FIMTUDAGINN, 3. FEBRÚAR, 1949
NÚMER 5
Hér gefur líta mynd af Augsburg College Choral Club, er efnir til samsöngs í Fyrstu lút-
ersku kirkju á þriðjudagskvöldið þann 8. þ.m. kl. 8:00. Flokkur þessi, sem þykir hinn
ágætasti, telur 50 söngvara.
Söngstjóri er Mr. Leland B. Sateren, kunnur sönglaga höfundur.
Sambandsþing kvatt til funda
Þann 26. janúar síðastliðinn
var sambandsþingið í Ottawa
kvatt til funda; komu þingmenn
saman venju samkvæmt í efri
málstofunni, og birti þar lands-
stjórinn, lávarður Alexander af
Túnis boðskap stjórnarinnar til
þingsins, er í sér fól eitt og ann-
að mikilsverðra nýmæla; er þar
meðal annars gert ráð fyrir, að
sambandsstjórn styðji með fjár-
framlögum að því, að hafist verði
handa um lagningu þjóðvegarins
Trans Canada Highway; að laga-
frumvarp um inngöngu New-
foundlands í fylkjasambandið
Candíska fái forgöngu á þingi; að
áfrýjun mála til hæztaréttar
Breta verði úr gildi numin; að
sér fyrir um það, að lækka inn-
flutnings tolla og ryðja með því
úr vegi viskiptahömlum svo sem
framast megi auðið verða; að
skipa konunglega rannsóknar-
nefnd til þess að íhuga starf-
rækslu útvarps og fræðslukvik-
mynda, og gera tillögur til um-
bóta á peim vettvangi stjórnar-
starfrækslunnar; þá er og vikið
að því, að vænta megi einhverr-
ar lækkunar á tekjuskatti og
einnig sennilega söluskattinum;
svo og að rýmkvað verði til um
greiðslu" fjölskyldnastyrksins.
Ráðgert er og að taka til með-
ferðar lög um fullgerning St.
Lawrence skipaskurðarins í því
falli að Bandaríkin fyrst afgreiði
því í byrjun síðasta stríðs; hefir
hann hvarvetna getið sér hinn
bezta orðstír sökum glöggskygni
sinnar og nákvæmni í embættis-
færslu; hann er 58 ára að aldri.
lagabálkur varðandi þátttöku
Canada í N. Atlantshafs örygg-
issáttmálanum verði tekinn til
yfirvegunar og ‘ afgreiðslu; að
stjórnin sé staðráðin í að beita
í þá átt. Nokkurnveginn
mun víst mega telja, að almenn-
ar kosningar fari fram í sumar
sem kemur, sennilega fyrri hluta
þess, að líkindum snemma í júní.
Afmæli sérkennilegs manns
JÚ, HANN ÁTTI AFMÆLI þann 14. janúar, s.l., hann Sveinn,
— hann Sveinn Oddson prentari; hann hélt upp á það sjálfur með
pomp og prakt og veitti gestum örlátlega; ;þeim fjölgaði eftir því
sem kvölda tók og á daginn leið, því Sveini hefir jafnan orðið vel
til vina.
BOÐIÐ TIL
WASHINGTON
Truman forseti hefir kunngert,
að hann hafi boðið forsætisráð-
herra Canada Hon. L. St. Laurent
til tveggja daga heimsóknar til
Washington fyrri part næsta
mánaðar. Mr. Truman hvað
heimboð þetta að öllu ópólitísks
eðlis; ýmislegt varðandi báðar
þjóðir mun þá vafalaust bera á
góma, svo sem málið um full-
gjörning St. Lawrence skipa-
skurðarins og orkuvirkjun þar
um slóðir.
HEFIR STALIN FRIÐ
í HUGA?
Á mánudaginn fluttu blöð og
útvarp þá fregn, að Stalin myndi
þess nú fús, ræða um frið við
stjórnarvöld Bandaríkjanna og
koma að máli við Truman for-
seta á hentugum stað fyrir þá
báða; hvort hér fylgir hugur máli
er enn eftir að vita, og verður
tíminn að skera úr því.
Mr. Truman hefir hvorki sagt
af né á í þessu efni að öðruleyti
en þá því, er hann áður hafði lát-
ið í ljósi, er hliðstæðan orða-
sveim bar á góma, að það væri
síður en svo að hann væri því
mótfallinn, að eiga viðræður við
Stalin í Washington ef gildar
ástæður lægi til slíks.
HAGSMUNALEGT
BANDALAG
Rússland, Pólland, Czechosló-
vakía, Bulgaría, Rúmenía og
Ungverjaland, hafa myndað með
sér hagsmunalegt bandalag, og
bera þessi lönd því við, að slík
ráðstöfun hafi verið áhjákvæmi-
leg til að vinna á móti innilokun-
ar og einangrunarstefnu þeirra
þjóða í Vestur-Evrópu, er við
hina svonefndu Marshallhjálp
styðjist.
Enn sem komið er stendur Júgo
slavía utan við þetta nýja Banda-
iag, og mun það stafa af því hve
Rússum varð Tito forsætisráð-
bindum og er gert ráð fyrir, að
fyrsta bindið komi út eftir 10—15
ár, en síðan verður reynt að láta
eitt bindi kpma út á ári hverju
eftir það. Það er Háskóli Islands,
sem hafizt hefir handa um út-
gáfu þessarar orðabókar, en rík-
ið greiðir kostnaðinn að hálfu
ieyti á móti Háskólanum.
Árið 1946 skipaði háskólaráð
sérstaka nefnd til þess að undir-
búa orðabókina og er dr. phil.
Alexander Jóhannesson, háskóla
rektor, formaður nefndarinnar,
en aðrir nefndarmenn eru dr.
Þorkell Jóhannesson. Jakob Ben-
ediktsson magister er ritstjóri
orðabókarinnar, en honum til að-
stoðar eru þeir Árni Kristjáns-
son, cand. mag. og Ásgeir Blönd-
al Magnússon, cand. mag.
Starfsmenn bókarinnar munu
“orðtaka” allt íslenzkt mál frá
1540, en að orðtaka málið er í því
Úr borg og bygS
Nýtt iðnaðarfyrirtæki
Nýlega hefir tekið til starfa ný
fatahreinsun hér í borginni, er
gengur undir nafninu Du-Rite
Cleaners, er hefir bækistöð sína
að 291 Sherbrook St., rétt sunn-
an við Portage Avenue. Fyrir-
tæki þetta hefir aflað sér Vic
Auto-Per hreinsunarvélar og Per
care þvottalagar, sem nemur öll
óhreindindi á brott svo að segja
á svipstundu. Við fyrirtækið
starfar aðeins fólk, sem langa
æfingu hefir haft í þessari sér-
grein iðnaðarins; það veitir 24
klukkustunda afgreiðslu, 8
stunda “Cash and Carry”; ef þér
komið með föt yðar fynr”kl. 10
að morgni getið þér fengið þau
aftur kl. 4 síðdegis.
Föt yðar eru ábyrgst að fullu
meðan þau eru í vörzlum fyrir-
tækisins.
Daginn, sem þetta nýja fyrir-
tæki tók til starfa, voru þar við-
staddir Garnet Coulter borgar-
stjóri og margir bæjarráðsmenn.
Forstjóri fyrirtækisins er Mr.
Stepnuk jr. sem er sonur Mr.
Joseph Stepnuks bæjarráðs-
manns.
Símanúmer þessarar nýju og
fólkið, að öll rit, sem gefin hafa
verið út á íslenzku frá þeim tíma,
eru lesin yfir og strikað undir
einstök orð og orðasambönd, en
síðan eru hin undirstrikuðu atr-
iði skrifuð upp á þar til gerða
miða, sem ritstjórn verksins
vinnur svo úr. Er ráð fyrir því
gert, að upp þurfi að skrifa allt
að milljón orða og orðasam-
banda, en ekki verði komizt yfir
nema 100 þúsund á ári.
Svo sem kunnugt er, er fjöldi
manna hér á landi, er hefir áhuga
fyrir orðasöfnun og á í fórum sín-
um mörg sérskennileg orð, orða-
tiltæki og málshætti. Ættu þessir
aðilar að setja sig í samaband við
ritstjórn orðabókarinnar, því þeir
geta veitt henni ómetanlega að-
stoð og flýtt auk þess fyrir lúkn-
ingu verksins. Utanáskrift til rit-
stjórnar orðabókarinnar er
“Orðabókin, Háskólanum.”
Ættu sem flestir að leggja
'hönd á plóginn í sambandi við
þessa gagnmerku vísindalegu
orðabók, því hún er mjög merk-
ur viðburður í íslenzku menning-
«rlífi.
Vísir.
fullkomnu ifatabreinsuar er
722 404.
♦
The new executive board,
elected on January 14 at the
annuai meeting of The Viking
Ciub, met iast Thursday night at
418 Mclntyre Block, office of the
secretary, for the main purpose
of electing its officers. H. Jacob
Hansen was elected president for
1949, and Mrs. M. Norlen was
jnarned vice president. H. A.
Brodahl was re-elected secretary
for the seventh year, and Mrs.
E. J. Hallonquist treasurer. Past
presidents are J. Th. Jonasson,
Cari Simonson and O. S. Clef-
stad.
As urged by the annual meet-
ing it was decided to hold month-
ly meetings the third Thursday
of every month in the season, and
the first social will be held in tne
Empire Hotel on Thursday, Feb-
ruary 17. The date for the 6th
annual Viking Banquet and Ball
was set for Thursday, March 31st
at the Marlborough Hotel.
Other members of the execu-
tive are: J. G. Johannsson, Nor-
man S. Bergman, Axel Vopn-
fjord, Mrs. Alf Gretsinger, Mrs.
F. A. Lindberg, Tom Nilsen,
Magnus Talgoy, Ingvar Oter-
holm, Fred Hansen, Mrs. Eva
Lake and Clarence Tilenius.
ÁFRÝJUNAR KRAFIST
Samtök þau, er ganga undir
nafninu Ganadian Federation of
Agriculture, héldu nýverið árs-
þing sitt í Saskatoon, og fór þar
alt hógværlega, og vel fram; all
miklar umræður urðu um smjör-
líkis málið, og varð það að lokum
samþykt með miklu afli atkvæða
samkvæmt kröfu frá mjólkur-
framleiðendum, að áfrýja því til
hæztarétta Breta, hvort fram-
leiðsla og sala smjörlíkis í Can-
ada væri lögum samkvæm eða
það gagnstæða.
Eins og vitað er, kvað hæzti-
réttur Canada upp þann úrskurð
á öndverðum yfirstandandi vetri,
að framleiðsla og sala smjörlíkis
bryti að engu í bága við stjórnar-
skrá landsins. Hveitaræktarbænd
ur úr Sléttufylkunum, er áminst
þing sóttu, voru þeirra skoðunar,
að það væri í eðli sínu rangt, að
leita sérstakrar vermdar fyrir
smjör og mjólkurframleiðslu
fremur en aðrar framleiðsluteg-
undir, og héldu því fram, að þess
hefði hvergi orðið vart í Banda-
ríkjunum, að sala smjörlíkis
hefði orðið smjörframleiðslunni
til hnekkis.
SKIPAÐUR
SENDIHERRA
Dr. E. H. Coleman hefir verið
skipaður sendiherra fyrir hönd
Canada á Cuba. Dr. Coleman hef-
ir verið aðstoðar utanríkisráð-
herra sambandsstjórnarinnar frá
Telja má víst að, Sveinn prent-
ari hafi komið í þennan syndum-
spilta heim árið átjánhundruð og
súrkál; nánari útlistun á þeim
teiknum, er í hendi skaparans og
hans.
Það segja fróðir menn, að
Sveinn prentari sé fæddur og
fóstraður í Sauðagerði, sem nú
er víst fyrir nokkru búið að inn-
lima í Reykjavík eins og svo
marga aðra fræga sögustaði;
hann nam ungur prentiðn hjá
Dagskrá og Þjóðólfi, en fluttist
um tvítugs aldur til Vesturheims,
lenti brátt í tæri við Gunnar B.
Björnsson hinn nafntogaða fjöl-
kyngismann þarna suður í Minn-
eota og vann í prentsmiðju hans;
það er haft eftir Sveini, að á hinu
fyrsta þarvistarári sínu syðra,
hafi nærri látið að hann yrði
hungurmorða af heimþrá eða
ættjarðarást, hvernig svo sem
frú Ingibjörg Bjömsson dekraði
við hann; vitaskuld lifði Sveinn
þetta af eins og nú er komið á
daginn, og fór þá fyrir alvöru að
renna á hann berserksgangur;
hann vaknar einn góðan veður-
dag upp í Wynyardbæ í Saskat-
chewan og er þá sokkinn ofan í
blaðamensku — á ensku; þar
verður hann safnaðarforseti
vinstri manna, borðalagður höf-
uðsmaður góðtemplarastúkunn-
ar, og kom þá aldrei deigur dropi
inn fyrir hans varir; nú ber það
við, að kunningjar hans hitti
hann að lokinni dagsönnu hjá
Heimskringlu við skál á Sveins-
stöðum þar, sem dispúterað er
um alla skapaða hluti milli him-
ins og jarðar, þar sem fjarstæð-
um og raunspeki er gert álíka
hátt undir höfði.
Sveinn prentari er maður stál-
minnugur og háskalega lesinn í
íslenzkum fræðum; það er ekki
heiglum hent, að lenda í orða-
kasti við hann á þeim vettvangi
þegar hann kemst í algleyming
og orðaflóðið steypist af vörum
hans; fyr má nú rota en dauð-
rota,
Sveinn Oddson er prentari af
guðsnáð; smekkvís og hraðvirk-
ur að sama skapi; hann er maður
úrræðagóður og greiðvikinn; það
er mörgum manninum undrun-
arefni, hve Sveinn réttir mörgum
hjálparhönd, því naumast verð-
ur um hann réttilega sagt að
hann sé það, sem kallað er, loð-
inn um lófana, því stundum mun
hafa nærri látið, að hann við
erfiða heilsu, lifði á guðsást og
munnvatni sínu, og er þá vita-
skuld ekki í kot vísað.
Sveinn Oddson kemur meira
við menningarsögu Islands síð-
astliðinn hálfan fjórða áratug, en
margan grunar, eða alment er
viðurkent; hann kemur með
fyrsta Fordbílinn til Reykjavík-
ur á öndverðu sumri 1913, fyrsta
bílinn, sem eitthvað komst úr
sporunum, og með því skapast í
rauninni upphaf bílaaldar á ís-
landi, því það var engu líkara en
gamla Ditlevsskriflið sæktist
miklu fremur eftir búðarglugg-
um á Bakarastígnum eða í Lækj-
argötunni, en að þræða hinn
gullna meðalveg.
Sveinn ók Fordbíl sínum slysa-
laust um allar tríssur, austur á
Þingvöll, til Ægissíðu, Eyrar-
bakka og margra annara sögu-
frægra staða; hafði hann oft á
þessum ferðum sínum mannval
mikið innan borðs, svo sem þá
Svein Björnsson forseta,
Einasr skáld Benediktson, Lárus
H. Bjamason alþingismann,
Benedikt Sveinsson þingforseta
frá Víkingavatni og margt annað
þjóðkunnra stórmenna; og það
^ar í raun rétti á því herrans án
1913. sem bílatrú var iöaleidd á
fslandi, og trúboðinn var Sveinn
prentari Oddson frá Sauðagerði.
Bílasaga íslands verður ekki
hlutdrægnislaust sögð, nema
þetta sé að fullu tekið til greina.
Sá atburður gerðist og um
þessar sömu mundir í Reykjavík,
að Sveinn prentari ók í bíl sín-
um ungum hjónaefnum til
vígslustaðar, og að lokinni athöfn
svo til þeirra salarkynna þar,
sem brúðkaupsveizlan skyldi
haldin; brúðguminn var Gísli
Sveinsson núverandi sendiherra
íslands í Oslo, en brúðurin Guð-
rún, dóttir Einars J. Pálssonar
trésmðameistara í Reykjavík;
brúðför af þessari tegund, var
áður alveg óþekt á íslandi; þarna
settu þeim Sveinn og Fordbílinn
ómótmælanlegt met.
Væri ekki viðeigandi að stjórn-
arvöld Islands sýndu Sveini
Oddsyni einhvern virðingarvott
vegna djúpstæðra áhrifa hans á
samgöngukerfi þjóðarinnar í
samtíð okkar?
Langlífi, góði vinur!
E.P.J.
TEKINN í HALD
Mr. Sam Carr einn helzti áróð-
urspostuli Kommúnista í þessu
landi, var í fyrra viku tekinn í
hald í New York, eftir nálega
þriggja ára flóttavist úr Canada;
hann var einn þeirra manna, sem
átti að svara til saka meðan á
réttarrannsókn stóð í Ottawa
vegna spæjarasamtakanna í
þágu Rússa, sem nú eru víðfræg
orðin. Mr. Carr mun bráðlega
verða sendur hingað til að standa
fyrir máli sínu.
ATVIKA VISUR
Efiir PÁLMA
VETRAR-TÖK
Krapa grettur kufl á ný
klaka fléttast sniðum ,
fjúksins slettur streyma í
stormsins glettu-kviðum.
Þó við Grímu grimdar feld
glugga hrími tjöldin,
samt við skímu af arin-eld
eyði’ ég tíma’ á kvöldin.
Hvergi sakar hugans mátt
hristist þak við gnýinn;
Stjörnur vaka’ á himni hátt
huidar bak við skýin.
RÉTTLÆTI
Lögmál skapar sjálfum sér
sá, sem hefir betur:
Hengir þann sem undir er
ef hann bara getur!
herra óþægur Ijár í þúfu.
Undirbúningur vísindalegrar
orðabókar hafinn
Það tekur 10—15 ár að undirbúa bókina
UNDIRBÚNINGUR að vísindalegri íslenzkri orðabók er hafinn
og mun hún ná yfir allt íslenzkt mál frá upphafi daga og fram á
líðandi stund.
Orðabók þessi, sem er geysi-
mikið rítverk, verður í mörgum