Lögberg - 03.02.1949, Qupperneq 3
J-ÖGBERU. FIMTUDAGINN, 3. FEBRÚAR, 1949
3
Vigfússonar) og hefði hann get-
að tekið sér til fyrirmyndar hin
ágætu rit Ólafs Láriussonar um
byggðarsögu íslands og Skaga-
fjörð. Þá hefði hann líka mátt
hafa við hendina greinar Finns
Jónssonar og Hannesar Þor-
steinssonar um íslenzk bæjanöfn.
Ef hamn hefði flett uppí þeim
þykir mér ólíklegt að hann hefði
reynt að skýra Jórvík í Hjalta-
staðaþinghá af landslagi (að bær-
inn standi við forna vík), eða
Ánastaði í Breiðdal af Arnþrúð-
arstöðuro (hitt skiftir engu máli,
að Ánastaðir eru næstinnsti en
ekki innsti bær í Breiðdal). Og
fráleitt myndi hann þá hafa
reynt að draga Steinröðarstaði í
Hrafnkelsdal af steinruðningi, af
því að þessir málfræðingar
myndu hafa getað sagt honum
að -staðir eru aldrei dregnir af
öðru en mannanöfmum eða við-
urnefnum.
Á sama hátt hefði hann getað
sparað sér getgátuna um að
Seyðisfjörður væri af seiði dreg-
inn (því Halldór á við það, þótt
hann irdti til seyðs). Seyðir var
ekki óþekkt orð og merkti soð-
hola, og var það allt amrnað mál
að snúa yxnum til seyðis (slátra
þeim í soðið), en að efla seið að
sið forneskjumanna.
Loks er skýring hans á nafni
Fáskrúðsfjarðar hrein alþýðu-
skýring, sem ég heyrði, þegar ég
var strákur heima á Höskulds-
stöðum. En við málfræðingarnir
vitum að Frá-skrúðsfjörður er ó-
möguleg orðmyndun. þótt köll-
únum þætti hún líkleg af því að
þeir höfðu ekkert annað til sam-
anburðar. En Fáskrúð heitir á í
Dölum, og Fáskrúðarbakki hét í
Vopnafirði svo nafnið er ekki svo
einstætt sem karlarnir heldu.
Auðvitað er nafnið skylt orðinu
fáskrúðugur og ef ég mætti ein-
hvers gizka um uppruinann þá
hygg ég að fjörðurinn hafi verið
svo nefndur af mönnum, sem
hafi þótt hann fáskrúðugur í
samanburði við iðgrænan Skrúð-
inn í fjairðarmynninu.
En þetta eru nú smámunir ein-
ir og yfirleitt má segja að grein
Halldórs sé mjög sæmilega skrif-
uð og rétt það, sem hún nær.
Verri þykir mér sá hluti grein-
arinnar um Hrafnkelsdal sem til
fornaldarinnar tekur, og það af
þeirri ástæðu að hann gengur
þegjandi framhjá Hrafnkötlu
Nordals, því langmerkasta sem
um söguna hefur verið skrifað á
síðasta mannsaldri. Má þó sjá að
Halldór hefur grein Nordals í
huga ,þótt hann gangi ékki í ber-
högig við hana, og skrifar sína
grein til þess að afsanna kenn-
GUKNAR ERLENDSSON
Umboösmaður fyrir
ELSTU hljóSfærabúð Vestur-
landsins
J. J. H. McLEAN & Co. Ltd.
Rdögist viö ofannefndann viö-
víkjandi vali hljóöfœra
Pianos: HEINTZMAN —
NORDHEIMER og
SHERLOCK MANNING
MINSHALL Orgel fyrir
kirkjur
RADIOS og SOLOVOX
Sími 88 753
HEIMIL.I: 773 SIMCOE STREET
ingu Nordals um skáldskap sög-
unnar. Telur hann að fundist
hafi leifar eða örnefni, er bendi
til að verið hafi 18 bæir í daln-
um eins og Brandkrossaþáltur
gefur í skyn. Ég hef ekki komið
í dalinn, en ótrúlega há þykir
mér sú tala og minna á sagnir
um hina frjósömu útilegumanna-
byggðir inn á hálendinu. Það
jafnast á við Jökullárhlíð alla og
Jökuldal upp að Hvanná, sem að
tölu Halldórs er 17 býla land.
Grunar mig að enn verði forn-
fræðingar að grafa í dalnum til
að sannfæra menn um að svo
margar séu þar bæjarústir áður
en hætg verði að hnekkja rök-
semdum Nordals urrf litla byggð
í dalnum.
Um sögu dalsins frá 1397 að
hann er kominn undir Valþjófs-
staðakirkju er grein Halldórs
aftur á móti rnjög merk- því hér
er saga þessarar sögufrægu
byggðar rakin í fyrsta sinn eftir
iþeim heimildum sem fengist
gátu, fyrst og fremst Fornbréfa*
safninu.
Vera má að mér hafi orðið
starfsýnna á gallana í ritgerðum
Halldórs, frænda míns, af því að
ég er sjálfuir nokkuð kunnugur
heimildum hans og hef auk þess
fengizt við rannsóknir á sama
'Sviði (í Breiðdælu), og er þó sízt
fyrir að synja að ég hafi kunnað
að gera þar glappaskot rétt eins
og hann.
Aftur á móti er mér alókunnug
sú saga, er Benedikt Gíslason
segir af Hallgrími bónda og
skáldi í Sandfelli, hans samtíð,
og hans afkomendum, og má sú
vera orsök til, að mér þykir það
betri partur þessarar bókar. Er
það skjótt firá sagt, að Benedikt
ritar svo skemtilega og greindar-
lega um þessa ættmemn sína. að
ég man ekki til að hafa séð ann-
að betur gert af því tæi, og er
það ekki líitið sagt þegar þess er
gætt hve mjög íslendingar hafa
iðkað þessa bókmenntaigrein. En
það er með ólíkindum hve miklu
lífi Benedikt tekst að blása í
þennan ættarfróðleik sinn allan,
og hlýtur maðurinn að vera gott
skáld, eins og hann segir sjálfur
í formála.
Venjulega þykir mér miður, er
ég er staðinn að því eða stend
sjálfan mig að því að fara með
iramgt mál, eða fleipur, því ég
hef þá skoðun Ara, að skylt sé
að hafa það er sannara reynist.
Þó þykir mér nú vænt um, að
ég skyldi verða til þess að koma
því ranga rykti á prent, að móð-
ir Einars Kvarans hefði verið
laundóttir Hallgríms í Sandfelli,
því þetta hefur orðið að uppi-
stöðu í skemmtilegum kafla í
sögu BenediktS' kafla, sem ég
hefði ógjarnan vilja missa.
Væmt þykir mér líka um það,
1 að Benedikt hefur gert sér far
um það að lýsa hinum austfirzku
skálda-skólum, bæði þeim sem
kominn er ifrá Einari presti í
Eydölum og hinum, sem ættaður
er frá Hallgrími í Sandfelli. Var
mér ljóst, að þess var þörf, en
hvergi hef ég séð það gert fyrr.
Virðist mér Benedikt gera það
Vegna ALLRAR
Heimabökunar kaupa
GÓÐAR HÚSMÆÐUR
Notið það í brauð,
bollur, skorpusteik, kökur
og aðra bakningu — notið
það til allra hluta.
Það er malað úr bezta Canada hveiti.
af slíkri nærfærni, að vanséð
verði hvort aðrir megi þar um
bæta.
Grunar mig, að það sem ég
get lagt til um austfirzku skáld-
m verði ekki mikils virði í sam-
anburði við það sem Benedikt
gerir hér.
Að síðustu er þá dómur minn
um þetta annað bindi Austur-
lands sá að greinar Haldórs séu
mjög sæmilegar, þótt þær hefðu
igetað verið betri ef hann hefði
farið í smiðju til norrænumanns
(t.d. Kristins Andréssonar) með
greinarnar. Grein Benedikts
hygg ég að sé með því allrabezta
sem Auslurland hefur haft upp
á að bjóða. Það svíkur því engan
Austfirðing að lesa þetta bindi.
ÁRBÆKUR FERÐAFÉLAGS
ÍSLANDS 1942—1946
Fyrir nokkru bárust mér þess-
ar Árbækur og heita þær Kerl-
/ngarfjöll (1942). Ferðaþæitir
(1943). Fljóisdalshérað (1944)-
Hekla (1945) og Skagafjörður
(1946).
Aðeins einn þessara bóka er
safn af ferðasögum félagsmanna,
það er árbókin 1943. Þarna eru
tvær ferðasögur eftir Gísla
Gestsson bankaritara, tvær
greinar eftir Ólaf Björn Guð-
mundsson, stud. pharm., “Göngu-
ferð í gamla stríðinu” eftir Einar
Maginússon menntaskólakennara,
gönguför yfir Sprengisand eftir
Pál Jónsson auglýsingastjóra
Vísis, “Minningar frá Reykja-
vatni” eftir Þorstein Jósepsson,
— og er þó ekki allt upptalið.
Myndir eru margar prýðisgóð-
ar — eftir Gísla Gestsson, Pál
Jónsson og Þorstein Josepsson.
Tvær árbækur fjalla um ó-
byggðir: Kerlingjarfjöll (194-2)
og Hekla (1945).
Kerlingarfjöll eru eftir nokkra
menn úr Ferðafélaginu, er gerðu
út leiðangur þangað sumarið
1941 til að iljósmynda, kortleggja
og rannsaka þenna afar-
afskekkta og gróðurlausa fjalla-.
klasa suðvestur af Hofsjökli
miðjum óbyggðuim landsins.
Meðal höfundanna eru Jó-
hannes Áskelsson ,Einar Pálsson
Þorsteinn Jósepsson og einkum
þeir Steinþór Sigurðsson og Jón
Eyþórsson, er sáu um útgáfu
bókarinnar.
Margar geysifallegar myndir
af þessu Völundar-húsi íslenzkra
fjalla, þessum íslenzku Mundiu
fjöllum, er að finna í bókinni,
sömuleiðis góðar yfirlitsmyndir
og ikort.
Bókinni fylgir skrá yfir ör-
nefni og nýefni, er þeir félagar
'gáfu á staðnum.
Árbókin um Heklu (1945) er
sfcrifuð af Guðmundi Kjartans-
syni jarðfræðing, er lá við Heklu
í tjaldi alls níu vikur sumurin
1930—31 til þess að gera kort
af Hekluhraunum og upptökum
þeirra. Þetta jarðfræðikort, leið-
rétt og enduirbætt fylgir árbók-
inni, en lesmálið er nákvæm lýs-
ing á Héklu og umhverfi henn-
ar ásamt sögulegu yfirliti yfir
gosin og hraunin.
Margt er fallegt mynda og yf-
iplitsmynda, hefur höfundur
teiknað þær sjálfur sumar hverj-
ar af talsverðri leikni; ljósmynd-
ir á hann þar einnig. en annars
eru ljósmyndir þar eftir Þorstein
Jósepsson, Pál Jómsson og Gísla
Gestsson, en hann annaðist
myndavalið í bókina.
Er merkilegt að hafa þessa lýs-
ingu á Heklu og umhverfi henn-
ar rétt áður en hún gaus (1947),
mun þessi árbók því ávallt verða
fróðleg til samanburðar við bæk-
ur þær, er lýsa gosinu og hraun-
um þessa síðasta goss úr Heklu.
Örnefnaskrá fýlgir bókinni er
það vel farið.
Tvær árbókanna fjalla um
byggðir: Fljólssdalshérað (1945)
Og Skagafjörður (1946).
Bókin um Fljótsdalshérað er
skrifuð af Gunnari Gunnarssyni
rithöfundi á Skriðuklaustri, var
vel að Ferðafélagið fékk svo á-
gætan mann og kunnugan að
lýsa hinu íagra Héraði.
Gunnar hefuir lýsingu sína á
Möðrudal á Fjöllum, lýsir síðan
Jökuldalsheiðinni, sem er hon-
um svo kunnug og kær, eins og
bók hans Heiðaharmur ber best-
an vottinn um. En heiðaharmur
sverfur nú að fleirum en mönn-
um í Jökuldalsheiði, víða getuir
Gunnar þess að bæir niðri í
byiggð hafi lagst í eyði, og jafn-
vel hann sjálfur hefur nú orðið
að hverfa frá Skriðuklaustri' þar
sem hann hefur nú búið í 10 ár
og húsað staðinn með snilld og
prýði listamannsins.
Annars er það furða, hve
miklu efni er samanþjappað í
ekki stærri bók (134 bls.), þar
sem Gunnar lýsir eigi aðeins hin-
um víðáttumiklu heiðaflákum
Jökuldals og Fljótsdalsheiða,
dölum öllum, ám og vötum frá
jöklum til hafs, heldur rekur
hann og al'la vegi, telur bæi og
býli í hverri sveit og sókn, getur
um hreppamörk og sókna. Auk
þess getur Gunnar oftast nær
landnámsmanna í þessum sveit-
um og lýsir landnámi þeirra, þar
að auki greinir hann oft frá sögn-
um er fylgja örnefnum og smeyg-
ir inn samtíma sögnum um
merka staði, eða mennina sem
gert hafa garðana fræga, svo sem
Pál skáld Ólafsson á Hallfreðar-
stöðum á Úthéraði' Hallgrím
bónda í Sandfelli, Kjerúlf lækni
á Breku og afkomendur hans,
ofl. ofl.
Leikur efnið svo í höndum
Gunnars að unun er að lesa —
ekki sízt Austfirðingum, sem
kannas't eithvað við staðhætti á
Héraði.
Myndir eru margar og góðar
— þótt fáar beri af — í bókinni,
þær ©ru eftir þá Björn Björns-
son kaupmann á Norðfirði og
Gísla Gestsson.
Kortið sem fylgir virðist vera
ljósmynd af upphleyptu korti;
það gefur góða yfirsýn um lands-
lag, en er heldur lítið.
Þótt Skagafjörðuir sé minna
hérað en Fljótsdalshérað, þá er
bókin um hann nærri því helm-
ingi lengri (231 bls.) Þess ber þó
að gæta, að letrið á þessari ár-
bók er talsvert stærra en á Fljóts-
dalsheraði, auk þess er Skaga-
fjörður miklu söguríkari sveit en
Fljótsdalshérað, e i n k u m á
Sturlunga-öld, og lætur höfund-
ur hvorki undir höfuð leggjast að
lýsa þar landnámum. né sögu-
stöðum frá Sturlungaölldinni;
eins og rétt er; auk þess hefur
hann í meira lagi af sögnum um
Skagfirðinga og skagfirzka staði
og örnefni frá síðustu tímum,
og löks lætuir hann ekki hjá líða
að gefa mönnum að smakka á
skagfirzkum skáldskap eða
kvæðabrotum höfuðskálda um
hið mikla og fagra hérað sitt.
Höfundur er Hallgrímur Jónas-
son, kpnnaraskólakennari, fædd-
ur og uppalinn í Skagafirði og því
ágætur 'leiðsögumaður um hér-
aðið. Sælist hann til að lýsa hér-
aðinu frá leiðum þeim, þjóðveg-
um og öðrum vegum, er ferða-
menn verað að faria, ef þeir ætla
sér að fara um héraðið og kynn-
ast því. En margar af leiðum höf-
undar eru lítt farnar, enda eru
hinar efri sveitir Skagafjarðar
undir sömu eyðingu seldar sem
aðrar uppsveitir landsins, og
janfvel þótt betri byggðir séu.
Myndir eru flestallar teknar
af Páli Jónssyni, auglýsinga-
stjóra Vísis. Þær eru mjög góð-
ar að vanda, og bókin um Skaga-
fjörð er bæði eiguleg og girni-
leg til fróðleiks. Kortið er sams-
konar og af Fljótsdalshéraði.
Síðasta árbók Ferðafélagsins.
er ég skrifaði um fyrir Vestan-
blöðin, var árbók Magnúsar
Björnssonar um íslenzka fugla
1939. Á stríðsárunum voru engar
árbækur sendar mér, og hef ég
ekki séð þær fyrr en nú. En í
þær vantar þó árbækurnar 1940:
Veiðivöln Sæluhús, og 1941:
Kelduhverfi Tjörnes. Af eldri ár-
bókum hef ég ekki séð árbókina
1929: Kjalveg.
Johns Hopkins University
Stefán Einarsson
SELKIRK METAL PRODUCTS LTD.
Reykháfar, öruggasta eldsvörn,
og ávalt hreinir. Hitaeining, ný
uppfynding, sparar eldiviö,
heldur hita.
KELIiY SVEINSSON
Simi 54 358.
187 Sutherland Ave., Winnlpeg.
S. O. BJERRING
Canadian Stamp Co.
RUBBER & METAL STAMPS
NOTARY & CORPORATE SEALS
CELLULOID BUTTONS
324 Smilh Sl.
Phone
Winnipeg
94 624
Office Ph. 9 5 668
Res. 404 319
NORMAN S. BERGMAN, B.A..LL.B.
Barrister, Solieitor, etc.
411 Childs Bldg,
WINNIPEG CANADA
447 Porlage Ave.
Aho
123
TENTH ST.
BRANDON
Winnipeg
Manitoba Fisheries
WINNIPEG, MAN
T. Bercoxdteh, framkv.stj.
Verzla t heildsölu meC nýjan og
frosinn fisk.
303 OWENA STREET
Skrifst.stmi 25 356 Heima 56 462
DR. A. V. JOHNSON
Dentist
606 SOMERSET BUILDING
Telephone 97 932
Home Telephone 202 398
Taislmi 96 826
Heimilis 63 898
DR. K. J. AUSTMANN
Bérfrœöingur i augna, eyrna, nef
og kverka sjúkdómum.
209 Medical Arta Bldg.
Stofutími: 2.00 til 6.00 e. h.
DR. ROBERT BLACK
Bérfrceöingur í augna, eyrna,
nef og hálssjúkdómum.
401 MEDICAL ARTS BLDG
Graham and Kennedy St.
Skrifstofustmi 93 861
Heimastmi 403 794
EYOLFSON’S DRUG
PARK RIVER, N. DAK.
islenzkur lyfsali
Fólk getur pantaO meCul og
annaC meö pósti.
Fljót afgreiCsla.
A. S. B A R D A L
848 SHERBROOK STREET
Selur llkkistur og annast um út-
farlr. Allur útbúnaSur sá bezti.
Ennfremur selur hann allskonar
minnisvaröa og legsteina.
Skrlfstofu talsími 27 324
Heimilis talsimi 26 444
Dr. P. H. T. Thorlakson
WINNIPEG CLINIC
St. Mary’s and Vaughan, Ph. 96 441
PHONE 94 981
H. J. H. PALMASON
and Company
Chartered Accountants
219 McINTYRE BLOCK
Winnlpegt, Canada
Phone 49 469
Radio Service Speclaiists
ELECTRONIC LABS.
H. THORKELSON, Prop.
The most up-to-date Sound
Equipment System.
130 OSBORNE ST„ WINNIPEG
JOHN A. HILLSMAN.
M.D.. Ch. M.
627 Medical Arts. Bldg.
Office 99 349 Home 403 288
PHONE 87493
Dr. S. J. Jóhannesson
SUITE 7 VINBORG APT8.
694 Agnee St.
Viötalsttml 3—5 eftlr hádegl
DR. E. JOHNSON
304 EVELINE STREET
Selkirk, Man
Offlce hrs. 2.30—6 p.m.
Phones: Office 26 — Res. 230
Offlce Phone Res Phone
94 762 72 409
Dr. L. A. Sigurdson
628 MEDICAL ARTS BLDO.
Office Hours: 4 p.m.—6 p.m.
and by appolntment
Drs.
H. R. and
TWEED
Tannlœknar
406
H. W.
TRUST8
TORONTO GEN.
BUILDING
Cor. Portage Ave. og Smlth St.
PHONE 96 952 WINNIPBG
Dr. Charles R. Oke
Tannlwknir
For Appolntments Phone 94 908
Office Hours 9—6
404 TORONTO GEN. TRUST8
BUILDINO
283 PORTAGB AVE.
Winnipeg, Man.
SARGENT TAXI
Phone 76 001
FOR QUICK RELIABLE
8ERVICE
J. J. SWANSON & CO.
LIMITEÐ
308 AVENUE BLDO WPQ.
Fasteignasalar. Leigja hús. Ot •
vega peningalán og eldsábyrgö.
hifreiöaábyrgö, o. s. frv.
PHONE 97 538
Andrews, Andrews,
Thorvaldson and
Eggertson
Lögfrasöingar
209BANK OF NOVA SCOTIA BO.
Portage og Oarry St.
Sími 98 291 .
GUNDRY PYMORE
Limited
British Quality Fish Netting
68 VICTORIA ST„ WINNIPEQ
Phone 98 211
Manager T. R. THORVALDSON
Your patronage will be appreclated
C A N A D I A N FISH
PRODUCERS, LTD.
J. H. PAOE, Managing Direotor
Wholesale Distributors of Frash
and Frozen Fish.
311 CHAMBER9 STREET
Office Ph. 26 828 Res. Ph. 73 917
G. F. Jonasson, Pres. & Man. Dir.
Keystone Fisheries
Limited
404 SCOTT BLOCK SIMI 96 227
Wholesale Distributors of
FRESH AND FROZEN FISH
Bus. Phone 27 989 Res. Phone 36 U1
Rovaizos Flower Shop
Our Specialties
WEDDING CORSAGES
COLONIAL BOUQUETS
FUNERAL DESIGN3
Mrs. 8. J. Rovatzos, Proprletre—
Formerly Robinson & Co.
253 Notre Dame Ava
WINNIPEG MANTTOBA