Lögberg - 17.02.1949, Qupperneq 2
2
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 17. FEBRÚAR, 1949
Líkkistan hans Ah Kee
Framhald
Hann lokaði símanum og tók
stráhattinn sinn út úr fataskápn-
um, setti hann upp á kringlótta
höfuðið, fór út og trílaði niður
götuna. Hann hafði stungið hönd-
unum á víxl upp í ermarnar á
treyjunni sinni. Hann var í rauð-
sóluðum skónum sínum; buxna-
skálmarnar síðar og sniðlausar
gúlpuðust til og frá þegar hann
þrammaði áfram; andlitið var
sviplaust.
Hann fór inná næsta götuvagn,
lét fimm cent í fargjalds kass-
ann og gekk rakleiðis lengst aft-
ur í vagninn. Barn sem var hjá
móður sinni í einu sætinu, hló
að honum þegar hann fór fram
hjá. Hann settist niður og hneigði
höfuðið auðmjúklega, eins og
staða hans í mannfélaginu heimt-
aði.
Eftir hálftíma ferð fór hann
út úr vagninum og gekk eftir
götunni, þar sem landar hans
áttu heima, þar voru verzlanir,
vinnustofur og heimili vina hans
og hann heilsaði öllum, sem á
vegi hans urðu og svaraði kurt-
eislega þegar einhver yrti á hann;
hann afsakaði það að hann hefði
ekki tíma í þetta sinn til þess að
staldra við og spjalla við vini
sína eða þiggja tebolla.
Loksins staðnæmdist hann við
steingráa sementsbyggingu, fór
Velkomnir félagar og gestir á
þrítugasta ársþing þjóðræknis-
félags íslendinga í Vesturheimi,
1949.
★
PARKE-HANNESSON LTD.
55 Arthur Street, Winnipeg. Sími 21 844
Orvals
vindlÍDga
tóbak
N
Þrítugasta
ársþing
þjóðræknisfélags íslendinga í Vesturheimi er fyrir dyr-
um. Vér bjóðum erindreka þess og alla íslendinga
sem það sækja velkomna til starfs og dáða. Við
bjóðum þá og velkomna á skrifstofu okkar til viðtals
og erum ávalt fúsir til að veita allar upplýsingar um
fastegnir ef þess er æskt, og öllum fjáimálum.
EITT ER NAUÐSYNLEGT
Arið sem leið, urðu fleiri slys í Winnipeg og Manitoba,
en áður eru dæmi til. Flýtirinn á fólkinu fer svívaxandi
og slysin aukast. Það er ekki tími eða rúm hér, til að
gjöra sér grein fyrir ástæðunum sem þessu valda. En
það er tími til að tala og hugsa um trygging lífs og
lima fyrir þessum ófögnuði. Lítið inn til okkar og látum
okkur tala nákvæmara um hættuna, sem yfir öllum
vofir í þessu sambandi.
★
J. J. SWANSON s (0., LTD.
Sími 927 538
308 AVENUE BUILDING Winnlpog
rakleiðis inn, klifraði upp stig-
ann upp á aðra hæð. Hann fann
það glögt að hjartað barðist
hættulega á meðan hann hvíldi
sig í ganginum. Loksins hægði
það þó á sér og þá gekk hann
að dyrunum, opnaði þær og fór
inn.
“Kær heilsan, þú hinn há-
lærði.” sagði hann við ungan
Kínverja.” Hefir þú tíma til þess
að sinna mér?”
Læknirinn brosti og hneigði
höfuðið til samþykkis:
“Fáðu þér sæti, Ah Kee” sagði
hann og horfði rannsakandi á
gestinn: “Hvað liggur þér nú
þyngst á hjarta?”
Ah Kee tylti sér á röndina á
stóli og málrómur hans var stilli-
legur, ákveðinn og rólegur þegar
hann spurði læknirinn og horfði
á hann: “Hversu langt á ég eftir
ólifað?”
“Það er-----” Læknirinn hik-
aði við, svo ypti hann öxlum —
þessi maður var sömu þjóðar og
hann sjálfur, þó hann væri mað-
ur annars tíma og annarar kyn-
slóðar. “Ah Kee” sagði hann “Ég
veit það ekki — þú er hættulega
hjartveiklaður, en samt getur
það skeð að þú lifir svo árum
skiptir; á hinn bóginn getur það
skeð að þú deyir í dag.”
“Og hvort er líklegra?”
“Að þú deyir í dag.”
Ah Kee hneigði höfuðið
ánægju lega og tók síðan peninga
upp úr vasa sínum: “Ég ætla að
borga þér strax.” sagði hann;
“það er ekki víst að ég geti það
þegar við mætumst næst.”
“Er það------”
“Ég borga þér undir eins.”
Tuttugu mínútum síðar opnaði
Ah Kee dyrnar á búð líkkistu
salans sem hét Lunn Kai. Lík-
kistu salinn hneigði sig á þann
hátt sem þúsund greina siðalög-
in skipuðu fyrir og benti Ah Kee
að koma með sér aftur í búðina:
“Þú veitir mér heiður, aldni mað-
ur” sagði hann: ‘Líkkistan er til-
búin og bíður þess að þú skoðir
hana enn þá einu sinni.”
Ah Kee brosti: “Ég er óverður
vinsemdar þinnar.”- sagði hann.
“Alls ekki; ég er sá sem virð-
ingin veitist.” Þeir gengu í gegn
um salinn, þar sem líkkistumar
voru til sýnis, og inn í aftasta
herbergið þar sem líkkista Ah
Kee stóð á grindum. Lunn Kai
hneigði höfuðið um leið og hann
fór út og lét aftur dyrnar. Nú
var Ah Kee aleinn hjá kistunni
sinni. Koparplöturnar glóðu eins
og skínaijdi gull og silfur skraut-
ið var undurfagurt og margbrot-
ið, þýðingarríkt og yndislegt.
Höldurnar voru úr hreinu silfri,
nógu sterkar til þess að halda
þeim þunga, sem átta sterkir
menn átu nók með að bera við
jarðarförina. Mahóni viðurinn
•var fagurbrúnn og hann hafði
verið allur handfágaður. Ah Kee
snerti kistuna með höndunum,
en *fór hægt og varlega að því
eins og kistan væri helgur dóm-
ur, og hann var undarlega sæll
og ánægður.
Þetta var líkkistan sem hann
hafði kosið sér af öllu því, sem úr
var að velja. Hann hafði að vísu
enn ekki borgað fyrir hana, hún
var því enn þá ekki hans eign
í raun og veru, og hann vissi það
líka að hann vildi þessa kistu og
enga aðra og átti nóg til þess
að borga fyrir hana.
Dýr var hún, ekki var því að
neita; hún var svo dýr að eng-
inn sem hann þekti var svo efn-
um búinn að hann gæti keypt og
borgað slíkan dýrgrip, og pening-
arnir, sem hann varð að láta
fyrir hana voru meira en helm-
ingur af öllu því, sem hann hafði
með spamaði dregið saman öll
þessi ár. En þetta var seinasta
hvílurúmið sem hann hafði kosið
sér, og þegar hann hugsaði til
þess að verða að sofa um alla eif-
lífð nokkurstaðar annastaðar, þá
lá við að hann hnýji niður ör-
magna — það ætlaði að líða yfir
hann.
Hann hrysti nú skóna af fót-
um sér og klifraði upp í kistuna,
lagðist niður teygði úr sér og
hagræddi sér sem bezt hann
mátti á þessum dýrðlega hvíldar-
stað. Ylmurinn var indæll, og
kistan var nógu stór, svo hann
þurfti ekki að liggja kreptur.
Hann lokaði augunum og lá
lengri hreeyfingarlaus; hann í-
myndaði sér að svona yrði það
um eilíf ár þegar allar lífsins
þrautir væru um garð gengnar
— og hann var ósegjanlega sæll.
Loksins klifraði hann út úr kist-
unni, lagaði fóðrið sem hann
hafði bælt og aflagað og lokaði
Minnist
BCTCL
í erfðaskrám yðar
Phone 21101 ESTTMATES
FREE
J. M. INGIMUNDSON
Asphalt Roofs and Insulated
Sldlng — Repalrs
632 Simcoe St. Winnipeg, Man.
Velkomnir Islendingar til
starfs og dáða á þrítugasta
þing yðar í Winnipeg
★
Að VERA VITA og VILJA,
hafa einkunnarorð yðar ver-
ið á liðinni tíð. Látið vald
þeirra einkunnarorða aldrei
aldrei dofna, eða dvína.
henni. Hann fór nú í skóna sína,
snerti kistuna mjúklega eins og
hann væri að kveðja hana og fór
út úr stofunni.
“Ég get ekki keypt kistuna”
sagði hann við Lunn Kai. “Ég
hefi brugðist þér ílla og ég fyrir-
verð mig fyrir það meira en svo
að því verði með orðum lýst.”
Lunn Kai velt höfðinu til beggja
hliða: “Það er slæmt,” sagði
hann, “Því ég veit vilja þinn.
Viltu géra svo vel að fræða mitt
heimska höfuð um ástæðuna?”
Ah Kee hneigði sig til sam-
þykkis: “Fjölskylda mín þarfn-
Fljótasta og bezta fata
hreinsunar þjónusta í Winnipeg.
^bu-dite
Cleaners & Dyers Ltd.
291 SHERBROOK STREET
Phone 722404
Fullkomnasta hreinsunarvél sem fáanleg er og sú eina
sem er í Winnipeg. The Vic Auto Per — sjálf hreifivél —
Per Care.
Gefur fulla trygging fyrir:
• Að föt hlaupi ekki, né skemmist
• Litarlaus hreinsun
• Hreinsar þægilega og fullkomlega
CITY HYDRO
Saga mikillar þróunar
1911 Fyrsta ódýrasta rafaflið
sem Winnipeg naut flutti
City Hydro, frá fyrstu raf-
stöðinni vði Point du Bois
sem framleiddi 10 5,000
hesta öfl.
1931 Rftfaflið frá Slave Falls
stöðinni leitt til Winnipeg.
1945 Undirbúningur hafinn, og
fyrirkomulag ákveðið til að
auka Slave Falls stöðina,
bæta við hana fjórum nýj-
um “generating” einingum.
1948 Aukning Slave Falls stöð-
varinnar lokið, og framleiðir
sú stöð nú, 96,000 hesta öfl.
Winnipeg Hydro kerfið framleiðir í alt
201,000 hesta öfl, sem tryggir íbúum Win-
nipeg borgar fullkomið nútíðar orkuver,
sem mætt getur þörfum þeirra hvar sem
þeir eru í bænum.
(ITY HYDRO
Ovmed and Operated By
THE CITIZENS OF WINNIPEG