Lögberg - 17.02.1949, Qupperneq 9
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 17. FEBRÚAR, 1949
9
Vísitazíuferð Sumarið 1948
Sumarið 1947 heimsótti ég kirkjunar í Rangárvallaprófasts-
dæmi, allar nema eina, Landakirkju í Vestmannaeyjum. Vanst mér
ekki tími til þess að visitera hana þá, en hugsaði mér að hefja
visitazíuferðir mínar næsta sumar á því að fara til Eyja. Varð
svo úr þessu 13. ágúst síðastl. sumar Þá flaug ég til Vestmannaeyja
ásamt konu minni í flugvél frá Flugfélagi Islands.
Flugverður var ágætt. Nokkrir
skýjahnoðrar yfir Hellisheiði.
Flugleiðin til Vestmannaeyja er
einkennilega falleg, sérstaklega
eftir að komið er austur fyrir
Hellisheiði, meðfram ströndinni.
Þarna var Kaldaðames, Eyrar-
bakki og Stokkseyri, eins og syst-
kini, einkennilega mild og hlý-
leg á svip. Fljótt kom Rangár-
vallasýslan í ljós, árna liðuðust
til sjávar, dálítil bára var við
ströndina. Úr loftinu var hún
sakleysisleg, en1 hefði þó senni-
iega gjört landtöku erfiða. Þetta
skifti engum togum, Vestmanna-
eyjar blöstu við. Sem lítill
drengur vandist ég útsýninu til
Vestmannaeyja, frá Eyrarbakka.
Og mér þótti mjög vænt um
þessa útsýn, eins og Eyjamar
sjálfar. Stundum kom það fyrir
að róðrabátar frá Eyrarbakka
leituðu þangað í aftökum og man
ég sérstaklega eftir því einu
sinni, að það varð mörgum
mönnum til bjargar, að þeir gátu
tekið land í Eyjum.
Flugvélin lenti á flugvellinum
skammt frá prestssetrinu, Ofan-
leiti. Þangað var kominn sóknar-
presturinn, séra Halldór Kol-
benis, ásamt Helga útgerðar-
manni Benediktssyni og fórum
við öll heim á prestssetrið.
Mér var það ánægjuefni mikið
að eiga enn að fara að starfa með
séra Halldóri. Við höfum verið
nánir vinir frá skólaámm okkar
Velkomnir félagar og gestir á
þrítugasta ársþing þjóðræknis-
félags íslendinga í Vesturheimi,
1949.
Mtutdhfi
BARBER SHOP
643 PORTAGE AVENUE
Phone 31 469
KOL, KOL, KOL!
Hrein, hitamikil og vel útilátin. Pant-
anir afgreiddar fljótt og skilvíslega.
•
WINDATT COAL CO., LTD.
“The OlcL Reliable”
506 Paris Bldg., Winnipeg, Sími 927 404
Kallið Jón Ólafsson umboðsmann félagsins í síma, til
þess að vera viss. Símanúmer hans heima er — 37 340
Innilegar árnaðaróskir
til íslendinga á þrítugasta
afmæli
þjóðræknisfélagsins
★
843 SHERBROOK ST., WINNIPEG
Phone 27 324
og lengi samstarfsmenn á Vest-
fjörðum, ekki sízt í Prestafélagi
Vestfjarða. Ég hafði aldrei áður
komið að Ofanleiti. Náttúrufeg-
urðin þar vakti þegar athygli
mína. Ég hafði ekki hugsað mér
að jafn fagurt væri að Ofanleiti,
sem raun er á, eða yfirleitt í
Vestmannaeyjum. Sennilega vita
ekki allir landsmenn að í Vest-
mannaeyjum er stórfengleg og
hrífandi náttúrufegurð, hvort
sem horft er til nálægra eyja,
lands eða hafsins, þessarar miklu
eyðimerkur ógna og dýrðar.
Ég hefði haft ánægju af því að
lýsa að nokkru náttúrufegurð
Eyjanna, eins og 'hún kom mér
fyrir sjónir og athafnalífi og
framkvæmdum hins dugmikla og
ágæta fólks, sem þar býr, en rúm
blaðsins leyfir það ekki.
Síðari hluta föstudagsins og
laugardaginn allan, reyndi ég að
kynna mér sem bezt lífið og
starfið í Vestmannaeyjum og
hafði mikla ánægju af því. Hitti
ég marga borgara, bæði frá eldri
og yngri tímum og rifjaðist
margt upp, sem ég hafoi heyrt
úr sögu Eyjanna og sjógarpanna,
víkinganna “sem vel sér una á
votum öldum.”
Auðvitað komum við í kirkj-
una og skoðuðum hana, og kirkj-
garðinn. •
Kirkjan er reist árin 1874—’80
og er henni ágætlega haldið við,
bæði að utan og innan, enda hef-
ur nýlega verið gjört við hana
mjög vel og myndarlega, og er
hún vel búin að öllum munum.
Þar er t.d. skímarfontur mjög
fagur úr kopar og í honum göm-
ul tinskál. Eru þessir munir frá
árinu 1735.
Umhverfis kirkjuna er stórt
og fallegt landsvæði, afgirt með
steypugirðingu, sem kvenfélag
Landakirkju lét gera á sinn
kostnað, með aðstoð bæjarins.
Gerði núverandi bæjarstjóri Ól-
afur Kristjánsson uppdráttinn að
girðingunni og gaf söfnuðinum
hann. Áforma Vestmannaeying-
ar, að setja trjáplöntur í hið um-
girta svæði og gjöra það eins fag-
urt og unnt er. Er þessi hugmynd
í alla staði ágæt og þeim til
sæmdar, er hlut eiga að máli.
I sambandi við visitazíuna fór
fram guðþjónusta í Landkirkju,
sunnudaginn 15. ágúst. Hún var
fjölsótt og önnuðumst við séra
Halldór þjónustu við messu-
gjörðina.
Söngurinn var sérlega góður,
undir stjórn organista kirkjunn-
ar, Ragnars G. Jónssonar. Að
guðsþjónustu lökinni dvaldi söfn-
uðurinn enn alllengi í kirkjunni
og var þar rætt um og íhugað
ýmislegt viðvíkjandi starfinu í
söfnuðinum. En síðan átti ég
fund á heimili Steingríms Bene-
diktssonar kennara með sóknar-
presti og sóknarnefnd um mál-
efni kirkjunnar og safnaðarins.
Sóknarnefndina skipa: Páll
Eyjólfsson, sjúkrasamlagsfor-
stjóri (formaður), sem af óvið-
ráðanlegum ástæðum gat ekki
verið í Eyjum þessa daga, Stein-
grímur Benediktsson kennari,
Björn Finnbogason formaður,
Steinn Ingvarsson framfærslu-
stjóri og Friðfinnur Finnsson
bóndi.
Að Kirkjubæ í Vestmannaeyj-
um er grafreitur séra Jóns Þor-
steinssonar Píslarvotts og hefur
þar verið settur minningarsteinn,
eftirlíking af legsteini, er fannst
fyrir alllöngu á þessum stað.
Hafa Vestmannaeyingar sjálfir
kostað þessar framkvæmdir. Um
reitinn er steinsteypt girðing og
vel um staðinn gengið.
Starfað er af áhuga að því er
lýtur að kirkju og kirstnihaldi í
Eyjum. í Landakirkju fara fram
guðþjónustur hvern helgan dag
og sækja þær að meðaltali 160
manns. Einnig fara þar fram
guðþjónustur hvern helgan dag
barnaguðsþjónustur alla sunnu-
daga, þann tíma er bamaskólinn
starfar og sækja þær að meðal-
tali 230—240 börn. K.F.U.M. og
K. starfar þar með líku sniði
og í Reykjavík.
Sunnudagskvöldið, er störfum
var lokið, buðu prestshjónin
sóknarnefnd og allmörgu safnað-
arfólki á heimili sitt og var þar
veitt af mikilli rausn og fagnaður
góður, ræðuhöld og söngur fram
yfir miðnætti. Næsta dag var
haldið til Reykjavíkur, með flug-
vél H.f. Loftleiða.
Förin til Vestmannaeyja og
dvölin þar var öll hin ánægjuleg-
asta og endurminningarnar góð-
ar. Ég hitti þar góða vini og
menn er við sögu Eyjanna koma.
Þar á meðal ágætismanninn séra
Jes Gíslason, síungan og áhuga-
saman; Sigfús Johnsen bæjar-
fógeta hinn mikla áhugamann
um sögu Eyjanna eins og um
annan fróðleik; athafnamennina
miklu Helga Benediktsson,
Gunnar Ólafsson, Árna Johnsen
og símstjórann Þórhall Gunn-
laugsson. Er póst- og símamála-
byggingin, sem hann veitir for-
stöðu glæsilegt húns og til mik-
illar fyrirmyndar. Ennfremur
Maniloba Birds
WILSON'S PHALAROPE (Grunler)
Steganopus tricolor
Small birds between seven and eight inches long, with
plumage dense and gull-like. The female, instead of the
male, is the bright-coloured member of the family, and
upon fulfilling her duties of egg production, leaves the
care of the incubation to the male. The juvenile appears
much as the male but paler and striped with reddish
ochre above.
Distinctions—Have long awl-shaped bill. Toes scarcely
webbed but margined with narrow border.
Field Marks—Swimming habit and whirligig action.
Nesting—On the grass in damp places near sloughs.
Distribution—The prairie regions.
One of the commonest, as well as one of the loveliest of
the inhabitants of the prairie sloughs. It loves the little
sunny mud-bottomed pools of shallow water in a meadow,
where they whirl about in little circles, stirring up the
mud with their little feet.
Economic Slatus—Inhabit water or waste shores and are
of little or no economic importance.
This space contributed by
Shea's Winnipeg Brewery Limited
MD—227
Brynjólf Sigfússon, sem unnið
hefur mikið og drengilegt starf
á sviði söngsins. Eftirleitt er
hinn mesti myndarbragur á öllu
í Vestmannaeyjum og ber vott
um framsókn og menningu.
Minnisstæð er mér koma mín í
sjúkrahúsið. Var ánægjulegt að
sjá hve góður andi þar ríkti og
heyra ánægju sjúklinganna með
læknishjálp og annað, sem þeim
er þar í té látið.
Fyrir nokkrum árum heyrði ég
sagt frá fallegu atviki úr Eyjum.
Það var stórhríð og sterkviðri.
Bátar voru á sjó. í einum bátn-
um bilaði áttavitinn. Formaður-
(Frh. á bls. 10)
Velkomnir félagar og gestir á
þrítugasta ársþing þjóðræknis-
félags íslendinga í Vesturheimi,
1949.
C. HUEBERT LTD.
SASH DOORS
BUILDERS SUPPLIES
5 Point Douglas Avenue
WINNIPEG
MANITOBA
Velkomnir félagar og gestir á
þrítugasta ársþing þjóðræknis-
félags íslendinga í Vesturheimi,
1949.
GleymiS ekki þegar um það er að
ræða að gleðja aðra að líta inn til
Zellers Limited
346 PORTAGE AVENUE
WINNIPEG
Velkomnir félagar og gestir á
þrítugasta ársþing þjóðræknis-
félags íslendinga í Vesturheimi,
1949.
\
Sími 928 211
Gundry-Pymore Ltd.
T. R. THORVALDSON, Manager
60 Victoria Slreei WINNIPEG
Við óskum íslendingum til
hamingju með þrítugasta
þjóðræknisþing þeirra
Vér höfum orðið þeirra
forréttinda aðnjótandi,
að eiga viðskipti við ís-
lenzka fiskimenn yfir
lengsta tímabil í sögu
Manitobafylkis. Þökk
fyrir drengileg viðskipti
ARMSTRONG-GIMLI
FISHERIES LIMITED