Lögberg - 31.03.1949, Síða 2
2
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 31. MARZ, 1949
NORMAN DANIELSSON
F. 21. desember, 1921 — d. 12. nóvember, 1945
Með örfáum orðum skal her minnst þessa unga og mannvæn-
lega manns, sem burtkallaðist í fegursta blóma ungrar æfi.
Hann var sonur Guðjóns landnámsmanns við Árborg, Mani-
toba, Danielsonar. Kona Guðjóns, en móðir Normans, er Una
Guðlaug Þórarinsdóttir Gíslasonar landnámsmanns við Árborg,
Manitoba og látinnar konu hans Soffíu Friðriku Guðnadóttir
Stefánssonar og konu hans Guðnýjar Högnadóttir. Er ætt þeirra
af Austurlandi.
Norman var í aldursröð þriðji
,sonur Danielssons hjónanna.
Eldri bræður hans eru: Baldur
Þórarinn kv. Ingibjörgu dóttur
Þorgríms bónda Pálssonar og
Guðríðar Helgadóttir konu hans.
Þá Ingimar Daniel,
Alma Gyða,
Guðný María,
Guðjón Clarence,
Gordon Edward.
Börn Danielssons hjónanna
eru öll til heimilis hjá foreldrum
sínum; gifti sonurinn í grend við
heimili þeirra, öll mannvænleg
og vel gefin.
Norman ólst upp hjá foreldr-
um sínum gekk á skóla, og var
fermdur í Árborg, er hann hafði
aldur til. Hann var snemma mik-
ill vexti og karmannlegur, varð
snemma ljúfur samverkamaður
foreldra sinna — þeim ágætur
sonur, og hjartfólginn bróðir
yngri systkynum og eldri bræðr-
um.
Hann innritaðist í herinn 30.
jan. 1945, stundaði æfingar í
JUMBO KÁL
• p
Stærsta kál, sem þekkist 30 og
Jafnvel 40 pund. ÓviSjafnalegt viC
margskonar borðhald. Ánægjulegt
að sjá þennan grlðar ávöxt þrosk-
ast, Sala J.umbo Káls I fyrra setti
algerlegt met. (Pk. lOc) (eða 80c)
póst frítt.
NORMAN DANIELSSON
Winnipeg, og í Barriefield Camp,
Ontario. Hann var Signalman í
Royal Canadiann Corp of Sig-
nals. Áður en hann innritaðist í
herinn hafði hann stundað nám í
Musker Enigneering Institute í
Winnipeg. Hann hafði ásett sér
að halda áfram námi í “Engin-
eering-’, eftir að hann hafði lokið
herþjónustu, en önnur örlög biðu
hans.
Skapgerð Normans var karl-
mannleg og styrk, virtist hann
ganga að öllu með ráðnum huga,
fumlaus og stiltur og fáorður;
en jafnframt var hann lífsglað-
ur og öruggur. Tjáð hefir mér
það verið af kunnugum, að er til
þess kom að hann var kvaddur
til herþjónustu, var móðir hans
kvíðafull, en hann hughreysti
hana og fullvissaði um að ekkert
væri að óttast, og heill myndi
hann aftur heim koma.
Norman var bókhneigður og
þráði mentun; hann var vandur
að vali bóka, las helzt fræðandi
rit og uppbyggilegar og bæk-
ur, áform hans var að afla sér
frekari menntunar, eins og að
hefir verið vikið.
Dauða hans bar að með mjög
sviplegum hætti. Nýkominn
KAUPENDUR LÖGBERGS OG
HEIMSKRINGLU Á ISLANDI
Gerið svo vel að senda mér sem fyrst greiðslu fyrir
yfirstandandi árgang, kr. 25.00 fyrir hvort blað.
Dragið ekki að greiða blöðin. Það léttir innheimtuna.
Æskilegt að gjaldið sé sent í póstávísun. Þeir sem
eiga ógreidda eldri árganga, eru vinsamlega beðnir
að snúa sér til mín.
BJÖRN GUÐM UNDSSON
Mávahiíð 37, Reykjavík.
|l----------------------------------------
|! GRIPIÐ TÆKIFÆRIÐ
Eins og samkepni á sviði viðskiptalífsins nú er
háttað, liggur það í augum uppi hve mikilvægt
það sé, að piltar og stúlkur fái notið hagkvæmrar
mentunar í öllu því, sem að skrifstofustörfum
* lýtur; slíka mentun verður fólk að sækja á Business
College. Það verður nemendum til ómetanlegra
|| . hagsmuna, að leita upplýsinga á skrifstofu Lög-
bergs í sambandi við verzlunarskólanámsskeið.
!; Þau fást með aðgengilegum kjörum.
I1
GRÍPIÐ TÆKIFÆRIÐ!
Ii -------------------
| THE COLUMBU PRESS LTD.
t 695 SARGENT AVENUE WINNIPEG.
heim, að kalla mátti, var hann
að keyra “Tractor” í grend við
heimili foreldra sinna, frost var
jörðu fór vélin á hliðina, og varð
hann undir henni og beið bana
af. Fráfall hans olli foreldrum
hans systkynum og ættmennum
hins sárasta .harms, er lifir 1
huga, þó árin líði hjá. Af öllum
er til hans þekja, var hann talinn
ágætt mannsefni, fagrar vonir
voru við framtíð hans tengdar.
Auðugir eru ástvinir hans í
minningunni sem eftir er skilin,
en jafnframt í endurfunda von-
inni í betri tilveru, — þegar að:
“Ástvinahópurin allur, að ætt-
landi kærleikans snýr.”
Hvíl eilífum friði.
S. Ólafsson
NORMAN SÓFFANÍAS DANIELSSON
1921—1945
Undir nafni móður hans.
Gæfu lífið léði,
Löngum mér til gleði
/ Voru blessuð blómin mín;
Létti mér í lyndi
Ljósið mitt og yndi,
Augun björt og brosin þín.
Oft i mínum örmum
Eyddi þínum hörmum,
Við mitt brjóst er barn þú varst,
Unað af því hlaut ég,
Ánœgjunanar naut ég,
Fann ég til mín blessun barst.
Síðar komu sorgir,
Svo að vona borgir,
Hurfu mér í harmageim;
Þá varst þú mér styrkur,
Þegar rauna myrkur
Breiddist yfir hugarheim.
Þegar fórstu frá mér,
Fjör og líf var hjá þér;
Hér á leið er hœtta slík,
Ferðamenn það fundu, —
Flutt var eftir stundu
Heim til mín, — Þitt- liðið-lík.
Ó! minn elsku drengur,
Eins var það og strengur
Brysti þá i brjósti mér,
Ó! það rúmið auða,
Ó! það lífið snauða,
Dapur fanst mér dagur hver.
Fann ég fró í geði
Fyr en þetta skeði,
Rétt að heyra róminn þinn;
Oft með orðum hlýjum,
Yl af Ijósum nýjum,
Hefir leitt í huga minn.
Muna eftir ómi,
Enn, af þíniyn rómi,
Það er hjartans huggun mín,
Blíður kærleiks bjarmi,
Bægir frá mér harmi,
Þannig lifa Ijósin þín.
Enn er það að inna,
Aftur þig að finna ■
Við það lifir vonin mín,
Fœrir það mér friðinn
Finn ég styttist biðin,
Uns að hverf ég heim til þín.
BÖÐVAR H. JAKOBSSON
Svar til Magnúsar Elíassonar
í Lögbergi dagsett 3. marz, er grein frá Magnúsi Elíassyni,
þar sem hann er að reyna til að setja mig í gapastokkinn fyrir
fáorð ummæli mín, í einni af fréttagreinum mínum, um útkomuna
í bæjarkosningunum sem fóru fram, 8. desember, s.l. Hann segist
vonast til að ég leiðrétti það seqi hafi farið rangt með í téðri grein
minni, eins og það að það hafi verið allir úr flokki “Non Partisans”
sem voru kosnir í bæjarstjórnina. Ég kannast ekki við að hafa
farið hér með rangt mál, og því til sönnunar set ég hér kafla úr
skýrslunni sem gefin var, um úrslit kosninganna, nöfn þeirra sena
náðu kosningu í bæjarstjórnina, nöfn þeirra og atkvæðamagn.
Það voru kosnir borgarstjóri og fjórir Öldurmenn.
Fyrir borgarstjóra var kosinn
C. E. Thomson, Non Partisan,
32,263 atk.
A. T. Alsbury, C.C.F. sótti um
kosningu á móti Thomson, 23,035
atk.
J. D. Cornet- Non Partisan
sótti um Öldurmann Embætti,
35,325 atk.
G. C- Miller, Non Partisan
sótti um Öldurmann Embætti,
31,154 atk.
G. B. Showler, Non Partisan
sótti um Öldurmann Embætti,
29,511 atk.
A. F. Proctor, Non Partisan
sótti um Öldurmann Embætti,
27,510 atk.
Þessir fjórir voru kosnir.
Mrs. Maclnnis, C.C.F. fékk
24,194 atk.
Norman Hill, C.C.F. fékk 16,-
246 atk.
M. Eliasson, C.C.F. fékk 16,-
071 atk.
Raymond Peter, C.C.F. fékk
14,522 atkv.
Hér getur að líta hvernig
atkvæðamagnið stóð og hverjir
voru neðstir á blaðinu.
Magnús er að gera sér nokkra
rellu útaf því hvort ég hafi kynt
mér vel öll þau velferðar mál
borgarinnar, sem hafi verið á
dagskrá um þessar kosningar.
Ég hef lesið með athygli margt
af því sem hefur verið ritað um
þau málefni í blöðunum, af at-
kvæða mestu mönnunum hinna
ýmsu flokka, og þar á meðal
C.C.F. News, sem er málgagn
C C-F.-ers hér á ströndinn. Ég
hef aldrei séð þar nokkurt orð
frá Magnúsi okkar. Magnús er að
spyrja mig um hæfileika þeirra
Showlers og Proctors sem kosnir
voru í bæjarstjórnina í þessum
seinustu kosningum. Um Mr.
Showler veit ég það að hann
hefur verið einn af leiðtogum
verkamanna hér á ströndinni um
margra ára skeið, og áunnið sér
góðann orðstýr á þeim sviðum.
Mr. Proctor er mér ókunnugur.
Um kappræðuhöld milli Mag-
núsar og bæjarfógetans, hef ég
það að segja, að ég geri mér alls
eingar vonir um að það eigi sér
nokkurntíma stað. — Svo er út-
talað um þetta málefni frá minni
hálfu. S. Guðmundson,
Vancouver, B.C.
NATIONAL BARLEY CHAMPIONS
E. W. BRADLEY D. R. CARLYLE
Two young farmers, one from Manitoba and one from
Alberta, are Canada’s champion growers of malting barley in
1948. In the two competitions of the National Barley Contest
sponsored by the Brewing and Malting Industries, EDWARD
W. BRADLEY, Portage la Prairie, Manitoba, won the $1,000
grand prize in the Farmer’s Competition which called for a
minimum carlot entry of 1,667 bushels. D. R. CARLYLE,
Blackfalds, Alberta, won the grand prize, also $1,000, in the
Seed Grower’s Competition which called for a minimum entry
of 500 bushels.
Vilhjálmi Stefánssyni og
Guðmundi Grímssyni boðið
hingað í sumar
♦
Þjóðræknisfélag íslendinga og
ríkistjórnin standa að boðinu
♦
Þjóðræknisfélag Islendinga
hefur ásamt ríkisstjórninni
ákveðið að bjóða hingað heim
1.—14.júlí n.k. Vestur-Islending-
unum Vilhjálmi Stefánssyni,
landkönnuði, og Guðmundi
Grímssyni, dómara, ásamt kon-
um þeirra.— Það þótti rétt að
votta meðal annars á þennan
hátt þessum þjóðkunnu mönn-
um, hve mikils virði það er, að
sem flestir hér heima fái tæki-
færi til að kynnast þessum ágæt-
ismönnum, sem hafa svo mjög
aukið hróður þjóðar sinnar er-
lendis. Um sama leyti er vænt-
anleg hingað ungfrú Ingibjörg
Ólafsson frá London, sem hefur
við ýmis tækifæri komið fram
erlendis sem fulltrúi íslands og
auk þess orðið að góðu liði mörg-
um íslendingum, sem þar hafa
til hennar leitað. Hún var hingað
boðin á síðastliðnu sumri, en
samkvæmt læknisráði fékk hún
þessari heimsókn sinni frestað.
Aðalfundur félagsins var hald
inn 12. þ.m. Forseti þess var end-
urkosinn í einu hljóði Sigurgeir
biskup Sigurðsson, og í stjórn
með honum Ófeigur J. Ófeigsson
læknir, Kristján Guðlaugsson
hæstaréttarlögmaður, Friðrik
Hallgrímsson, fyrrverandi dóm-
prófastur, og Sigurður Sigurðs-
son yfirlæknir.
Á fundinum vakti Nikulás
Þórðarson máls á því, að heppi
lagt gæti verið að bjóða hingað
heim við tækifæri einhverjum
Vestur-íslendingi, sem þó ekki
væru þjóðkunnir, ættu langan
og góðan starfsferil að baki, því
að margir þeirra þráðu heitt að
koma hingað í kynnisför, en efni
væru hjá sumum þeirra af skorn-
um skammti.
I því sambandi benti Gísli
Guðmundsson tollvörður á, að
skemmtilegt gæti verið, ef unnt
væri, að láta íslenzka flugvél
sækja hóp slíkra gesta vestur
um haf og flytja þá svo heim
aftur að heimsókn lokinni. Með
þessum tillögum lokinni. Með
þessum tillögum mæltu frú Guð
rún Jónasson, Árni G. Eylands
stjórnarráðsfulltrúi og fleiri.
Jónas Jónsson alþingismaður
benti á, að æskilegt væri að
ákveðinn yrði á Þingvöllum ár
lega, seint í júní eða í júlí, þjóð-
legur hátíðisdagur, og væri þar
fagnað gestum félagsins og öðr-
um aðkomnum Islendingum,
sem heima eiga erlendis.
27. feb. Alþbl.
75 mænuveikistilfelli á
ísafirði
Mænuveikin á ísafirði hefir
breiðst mjög út að undanförnu,
að því er segir í nýútkomnu
“Vesturlandi.”
Þann 10. febrúar voru mænu-
veikistilfellin alls 45, en veikin
mjög væg. Þann 19. þ.m. eru til-
fellin orðin 75, en hvergi mun
vera um alvarlega lömun að
ræða. Vísir 23. feb.
This year il will pay you in profils to sow only
registered or certified seed because Registered
or certified seed ls pure as to variety . . . it'a
well cleaned . .. it has guaranteed germinatíon
and is economical.
You cctn obtain full information
regarding the most suitable
variety and your nearest source
of supply from:
1. Your nearest Registered or
Certified Seed Grower.
2. Your Grain Elevator
Operator.
3. Your Agricultural
Representatíve.
4. Agricultural Extension
Service.
•RESEARCH A, \ ^y»KCQlVOM.
206 QRAIN EXCHANQE BLDG.lMF*^ ^WINNIPEG
Sponsored^t^r Brewlng oWMalting Industries ^Canado
M023I SHEA’S WINNIPEG BREWERy