Lögberg - 31.03.1949, Page 7
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 31. MARZ, 1949
7
MARGRÉT INDRIÐADÓTTIR:
I heimsókn hjá Mormónum
Framhald
Smith stofnaði síðan kirkju,
ásamt 6 mönnum öðrum, sem
Bernard DeVoto hefir kallað
“samvinnufélag undir fámennri
klerkastjórn.” — Smith kvæntist
mörgum konum og eignaðist sæg
af börnum, flýði með sérstrúar-
flokk sinn *úr einu fylkinu í
annað, varð að þola hinar
grimmilegustu ofsóknir, bauð sig
fram sem forsetaefni Bandaríkj-
anna 1844, en var myrtur af
óðum skríl sama ár.
Brigham Young tók við af
Smith. Undir harðri stjórn hans
héldu mormónar áfram flóttan-
um og leitinni að stað, þar sem
þeir gætu verið einir og útaf fyr-
ir sig og þyrftu ekki að óttast
villimannlegar ofsóknir annara.
Þessi hópur, tuttugu þúsundir
manna, kvenna og barna, ferðað-
ist mánuðum saman með búpen-
ing sinn og allt sitt hafurtask,
yfir fjöll og firnindi, eyðimerkur
og skóga — yfir hálfa heimsálfu,
í von um að finna einhversstað-
ar griðland, þar sem hann gæti
stofnað sitt ríki. Fólk þetta bauð
öllum torfærum byrgin, lagði á
sig, hverskonar erfiði og þrautir
án þess að mögla. Og það sigraði
að lokum og fann sitt ríki í Utah.
Brigham Young stjórnaði með
járnharðri hendi í 30 ár. Hann
krafðist skilyrðislausrar hlýðni
af öllum, en lét á hinn bóginn
jafnt yfir alla ganga. Hann gift-
ist 19 konum og eignaðist með
þeim 56 börn. Mörg af barna-
börnum hans eru enn á lífi.
Hann er sagður hafa verið á-
kveðinn en mildur eiginmaður
°g faðir. Hann hélt ráðstefnu
með konum sínum einu sinni á
dag. Enda þótt hann hefði ekk-
Minnist
BCTCL
í erfðaskrám yðar
JOHN J. ARKLIE
Optometrirt and Optician
(Eyes Examlned)
Phone 95 650
MITCHELL COPP LTD.
PORTAGE AT HARGRAVE
The Swan Manufacturing Co.
Manufacturers of
SWAN WEATHER STRIP
Halldor Methusalems Swan
Eigandi
Helmili 912 Jessie Ave.
281 James St. Phone 2£ 641
L--------i-----------1---------
Phone 21 101 ESTIMATES
FREE
J. M. INGIMUNDSON
Asphalt Roofs and Insnlated
Sidins — Repairs
632 Simcoe St. Winnlpeg, Man.
Bus. Phone 27 989 Res. Phone 38 131 j
Rovaizos Flower Shop
Our Speclaltles
WEDDING CORSAGES
COLONIAL BOUQUETS
FUNERAL DESIGNS
Mrs. S. J. Rovatzos, Proprietreos
Formerly Roblnson & Co.
253 Notre Dame Ave.
WINNTPEG MANITOBA
•F ♦ ♦ ♦ ♦
ert á móti þeim herskara ungra
sveina, sem daglega komu í
heimsókn til gjafvaxta dætra
hans, gætti hann þess vandlega,
að þeir dveldu ekki of lengi.
Hann var vanur að birtast í dyr-
unum á hinni geysistóru dag-
stofu sinni, með fangið fullt af
karmannshöttum, þegar honum
þótti tími til kominn, að biðlarn
ir færu að hypja sig.
Ég var hálf hikandi við að
minnast á fjölkvænismálið við
Bearnson. Mér hafði verið tjáð,'
að það væri mjög viðkvæmt mál
í Utah. En sannleikurinn er auð-
vitað sá, að það er fátt sem
mönnum þykir jafn gaman að
spjalla um þar og einmitt fjöl-
kvæni.
Þetta er það, sem Bearnson
sagði mér um fjölkvæni mor-
móna:
— I augum margra hefir fjöl-
kvæni verið alfa og omega mor-
mónatrúarinnar. í öllum lönd-
lum veraldar hafa menn gert sér
| leik að því að hafa mál þetta
í flimtingum. Sannleikurinn er
hinsvegar sá, að þegar árið 1890
var fjölkvæni bannað með lög-
um í Utah og það voru aldrei
fleiri en 3% allra karlmanna,
sem voru fjölkvæningar. Lögin
mæltu svo fyrir, að hver maður
skyldi hafa samþykki fyrstu
konu sinnar til þess að taka sér
fleiri konur, svo og leyfi kirkj-
unnar. Það leyfi var því aðeins
veit, að viðkomandi gæti sann-
að að hann væri fulfær um að
sjá fleiri en einni konu farborða.
Það voru því aðeins duglegustu
mennirnir — og oft á tíðum þeir
menn er mest var í spunnið, sem
gátu átt margar konur.
— Þú trúir því kannske ekki,
hélt Bearnson áfram. En það
eru einmitt konurnar, sem helst
mæla fjölkvæninu bót. Það hafði
ýmsa kosti fyrir þær, bætti stöðu
þeirra og trygði þeim efnahags-
legt öryggi. Auk þess gerði það
öllum konum kleift að giftast
og verða mæður. Piparmeyjar
voru óþekkt fyribæri í Utah í
þann tíð. Fjölkvænið bætti einn-
ig siðferðið. Framhjátektir
þekktust ekki, engin lausaleiks-
börn voru til og siðferðisafbrot
unglinga voru óþekkt.
— Heldurðu samt ekki, að
fyrsta konan hafi verið afbrýðis-
söm, þegar kona númer tvö kom
á heimilið? spurði ég.
— Vafalaust, svaraði Bearn-
son. Afi konu minnar var fjöl-
kvænismaður. Amma hennar
var fyrsta kona hans. Hún var
sár og afbrýðissöm þegar kall
tók sér aðra konu, þótt hún léti
ekki á neinu bera og segði dóttur
sinni að kalla nýju konuna
“frænku.”
Enda þótt fjölkvæni hafi ver-
ið bannað í Utah í 50 ár, skjóta
fjölkvænismenn alltaf upp koll-
inum þar annað veifið. Fyrir
nokkrum árum sótti maður um
fátækrastyrk og þótti yfirvöld-
. unum það grunsamlegt, þegar
hann fullyrti að hann ætti 31
barn. Kom upp úr dúrnum að
um fjölkvænismann var að
ræða.
Þá hefir fjölkvænið gert alla
ættfræði mjög svo flókna í Utah.
“Við erum tvíburar, föður míns
megin”, sagði maður við mig,
TIL KAUPENDA
LÖGBERGS og HEIMSKRINGLU
Frá því var nýlega skýrt í báðum íslenzku blöðunum
vestan hafs, að verð æfiminninga, sem færu yfir 4 ein-
dálka þumlunga, yrði framvegis reiknað 20 cents á
þumlunginn; þetta er að vísu ekki mikill tekju auki, en
þetta getur dregið sig saman og komið að dálitlu liði.
Aðrar auglýsingar kosta 70 cents eindálka þumlungur.
Fyrir samskotalista reiknast 50 cents á þumlunginn
THE COLUMBIA PRESS LIMITED
THE VIKING PRESS LIMITED
♦
*♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦•
FOCUS ON TEXTILES
At this year’s British Ind-
ustries Fair, which is open in
London and Birmingham
simultaneously from May 2
until May 13, the focus will
be on textiles, Lancashire
mills are preparing some of
the most attractive cotton
pieces for display at the Fair.
Cotton has become more and
more a fashion fabric and
throughout the world is being
used in the manufacture oí
evening gowns, afternoon
frocks, bathing costumes, and
day dresses.
Picture shows: Joan Blake-
more a mill girl who works
in Salfórd, on holiday in
Blackpool, wearing a three-
piece Horrockses cotton play-
suit.
þegar hann var að kynna mig
bróður sínum. Þeir voru fæddir
sama ár og sama dag, áttu sama
föðurinn, en sitt hvora móður-
ina.
1 mormónakirkjunni er nú
tvennskonar gifting. í fyrsta lagi
eru maður og kona gefin saman
í hjónaband, sem lýkur með
“dauðanum.” 1 öðru lagi í hjóna-
band, sem varir “um alla eilífð,”
það er að segja einnig í lífinu
eftir “dauðann.” Slíka hjónvíg-
slu er aðeins hægt að fram-
kvæma í sjálfu musterinu. —
Kirkjan leggur ríka áherzlu á
helgi hjónabandsins og í Utah
er þyngri refsing við hórdómi en
nokkru öðru afbroti, nema
morði.
Auk þess að trúa á Mormóna-
bókina, þá trúa mormónar einn-
ig að nokkru leyti á biblíuna.
Þeir trúa á Guð, algóðan og al-
vitran á mælikvarða mannanna.
En þeirra Guð er lifandi vera,
sem hægt er að tala við, og á
fyrstu árum kirkjunnar voru
ýmsir af leiðtogum hennar færir
um að komast í beint samband
við himnavöldin og skýra frá
áliti þeirar á því, sem var að ger-
ast á jörðunni. En á þessu herr-
ans ári myndi víst fátt koma
mormónum meira á óvart en
guðleg opinberun í þennan synd-
um spillta heim. — Þeir trúa
einnig á Jesús Krist, son Guðs,
sem lifandi veru og Heilagan
Anda, sem líka er lifandi, með
sjálfstæðan persónuleika.
Maðurinn er barn Guðs og
merkilegasta sköpunarverk hans.
Handa honum bjó Guð til heim-
inn. Maðurinn verður sjálfur að
velja milli góðs og ills, milli lífs-
ins og glötunarinnar. Þess vegna
eru styrjaldir og önnur eymd
mannanna sök þeirra sjálfra, en
ekki Guðs. Maðurinn lifði sem
andi, áður en hann kom í þennan
heim. Hann er eilíf Uera. Lífið
hér á jörðunni er aðeins áfangi
á hinni miklu eilífðargöngu. —
í mormónatrúnni er ekkert
minnst á erldurholgun, nirvana
né vítiseld. Menn komast til
himanríkis og halda áfram að
lifa þar með svipuðu sniði og
hér, ef þeir hafa til þess unnið
með líferni sínu á jörðunni. Ann-
ars líða þeir, um stundarsakir a.
m. k., helvítiskvalir yfir glötuð-
um tækifærum, sem aldrei koma
aftur.
En staða mormónans á himn-
um fer líka dálítið eftir því, hve
hann getur sýnt fram á að hann
eigi þar marga ættingja. Því
fleiri, því betra. Þess vegna hafa
mormónar jafnvel ennþá eld-
legri áhuga á ættfræði en íslend-
ingar. Ég heyrði um einn ná-
unga, sem í fylztu alvöru rakti
ætt sína til manns, sem lifði ár-
ið 173 fyrir Krists burð. Það er
því hreinn hégómi að vera að
rekja ætt sína til Egils Skalla-
grímssonar, eða annarra fornra
íslendinga.
Einn daginn, sem við dvöld-
um í Utah, var okkur boðið í
brúðkaup systurdóttur Bearn-
son, í Spanish Fork, sem er smá-
bær rétt hjá Springville. Þar var
fyrsta byggð íslendinga í Vestur-
heimi og þar eru margir afkom-
endur hinna íslenzku landnema.
Við hittum heilan hóp af þeim
í brúðkaupinu og var það hið
gjörvilegasta fólk og famúrskar-
andi vingjarnlegt. Fátt eitt talar
íslenzku, en sumt graut í vestur-
íslenzku. Það tók okkur löndun-
um eins og sagt er að glataða
syninum hafi verið tekið forð-
um. Allir virtust reiðubúnir til
þess að slátra alikálfinum, okkur
til heiðurs og heimboðunum bók-
staflega rigndi yfir okkur. Því
miður höfðum við ekki tíma til
þess að þiggja nema fá þeirra.
Eigum hin til góða.
Við vorum ekki viðstödd
sjálfa vígsluathöfnina, sem fram
fór í kirkjunni, heldur aðeins
brúðkaupsveisluna.
Kirkjur mormónanna eru
mjög frábrugðnar kirkjum okk-
ar. Yfir aðaldyrunum standa
þessi orð: “Hafið hægt um yður,
því hér er Guðshús.” Sambyggð-
ur við kirkjuna er svo einskonar
allsherjar samkomusalur. Hagar
svo til, að hægt er að taka burtu
skilrúmið milli hans og sjálfs
guðshússins og var það gert í
veislu þessari. Salur þessi er allt
í senn: dansalur, hljómleikasal-
ur, fimleikasalur og fundasalur,
og auk þess er þar allstórt leik-
svið. í viku hverri er haldinn
þar eldfjörugur dansleikur og
mæta þar jafnt ungir sem gaml-
ir úr sókninni. Var sérlega gam-
an að sjá hve unglingarnir voru
frjálslegir og hve þeir skemmtu
sér konunglega innanum eldra
fólkið — voru ekki vitund feimn-
ir við að dansa vangadans, þó
að pabbi og mamma horfðu á.
I þessu guðshúsi mormónanna
var enginn kross, ekkert altari
og enginn prédikunarstóll. Guðs-
þjónustur þeirar eru afar ein-
faldar, lausar við alla viðhöfn,
allt prjál. Þegar maður les um
trúarbrögð mormónanna rekur
maður sig oft á það, hvernig
þeir reyna að samræma trúna,
því sem hagkvæmast er. Englar
þeirra hafa t.d. enga vængi, því
að slíkur útbúnaður myndi að-
eins vera ttil trafala.
Við guðsþjónustur mormón-
anna er ekki gengið um með
betlibauk, en fyrsta sunnudag í
mánuði hverjum eiga þeir að
fasta. Andvirði þess, sem þeir
myndu borða þann dag, rennur
til fátækra.
Síðast en ekki sízt ber að geta
þess, að mormónaprestar eru
ekki prestlærðir menn. Bearn-
son var t.d. prestur, þó að hann
væri kaupmaður að atvinnu.
Hver einasti karlmaður getur
orðið prestur, sem hefur óflekk-
að mannorð og hefir sýnt sig að
vera rétttrúaður mormóni, heið-
virður og duglegur maður, sem
hægt er að trúa fyrir ábyrgðar-
miklu starfi. Það skiptir engu
máli, hvort hann er rakari,
verkamaður, bankastjóri eða
klæðskeri. Ef hann uppfyllir áð-
urgreind skilyrði, getur hann
orðið prestur.
Mormónapresturinn innir af
höndum sömu störf og prestarn-
ir okkar, og meira til. Hann
greftrar, giftir, skírir, heimsæk-
ir sjúka, sér um að þurfandi sé
hjálpað, innheimtir tíundina,
skrifar vottorð, sem heimila
mönnu minngöngu í musterið,
sér um og stjórnar guðsþjónust-
um. Auk alls þessa verður hann
að sjá sér og fjölskyldu sinni far-
jborða, því mormónaprestar fá
NEW DRUG CURES TSETSE FLY SCOURGE
The discovery of Antrycide, new Imperial Chemical
Industries drug which protects animals from the attacks
of tsetse fly, will open up some 4,500,000 square miles of
East and West Africa for the raising of cattle.
The pest is still encroaching over vast areas of Uganda,
Kenya, the Sudan and Nigeria. Not only has cattle-rearing
been impossible in affected areas but agricultural produc-
tion as a whole has suffered from the prevention of
properly-balanced farming and the consequent loss of soil
fertility.
Now, in the worst areas, Antrycide has cured all the
forms of tsetse-carried diseases encountered.
Sufficient Antrycide to treat two million animals will
made available for the governments of Sudan, Kenya and
Uganda during 1949.
Picture shows: Injecting cattel. Antrycide injections both
cure and give protection from the tsetse-borne diseases.
engin laun — greiða meira að
segja kirkjunni tíunda hlutann
af tekjum sínum fyrir þann heið-
ur, að fá að starfa í þjónustu
hennar. — Trúboðar og aðrir
starfsmenn kirkjunnar fá heldur
engin laun. Ég hitti t.d. unga
og fallega stúlku í Spanish Forks,
sem sagði mér að hún væri að
spara saman peninga til þess að
hafa ráð á því að gegna köllun
sinni og gerast trúboði.
— Mark Twain sagði einu
sinni, að hið eina, sem væri jafn
vel skipulagt og mormónakirkj-
an, væri prússneski herinn. Það
liggur í augum uppi, að prestarn-
ir kæmust ekki yfir öll þessi
skyldustörf sín, ef starfsemi
kirkjunnar væri ekki óvenju vel
skipulögð.
Kirkjan sér um, að hverjum og
einum sé fengið sérstakt verk-
efni í hendur. Hún hefir hönd í
bagga með lífi fólksins og starfi,
allt frá blautu barnsbeini. Á veg-
um hennar starfar aragrúi félaga
— fyrir börn, unglinga, fullorðna
menn og konur. Enginn mormóni
þarf nokkru sinni að kvarta um
iðjuleysi, því að þegar vinnu-
dagur hans er á enda, bíður hans
ákveðið starf fyrir kirkjuna —
sem hann telur ekkert sjálfsagð-
ara en inna af höndum með
glöðu geði.
70 prósent af íbúum Utah eru
mormónar, og þeir eru í meiri-
hluta jafnt í svei'tunum, sem í
hinum stærri borgum. Völd mor-
mónakirkjunnar eru þó í raun-
inni miklu víðtækari en þessi
tala gefur til kynna. Það eru fáir
milljónamæringar meðal mor-
móna — en kirkjan þeirra er
óhemju auðug. í höfuðborginni
einni á hún t.d. mörg stór verzl-
unarfyrirtæki, tvö stærstu gisti-
húsin, stærsta dagblaðið, stærstu
útvarpsstöðina, banka, spari-
MINNINGARGJÖF UM
LÁTINN FLUGMANN
Slysavaranafélaginu barst í
gær 2000 króna gjöf til minning-
ar um Gústaf Adolf Jónsson flug-
mann, er fórst í flugslysinu á
Heilisheiði 7. marz síðastliðinn.
Er minningargjöf þessi frá for-
eldrum Gústafs, Sigríði Andrés-
dóttur og Jóni Jónssyni, Grettis-
götu 36. Mun ætlast til að gjöf-
inni verði varið til kaupa á björg-
unarflugvélinni.
Alþbl. 2. marz
sjóði, mikið af fasteignum o.m.
fl.
Æðsti maður kirkjunnar er
forsetinn, sem velur sér tvo ráð-
gjafa. Næstir honum ganga
Postularnir Tólf, sem einnig hafa
ráðgjafa sér við hlið. Innan
kirkjunnar eru alls 1200 sókn-
ir, sem aftur skiptast í 200 stærri
deildir. Presturinn er yfir hverri
sókn, sem á sína kirkju með sam-
komusal. — Þeir eru auðvitað
ekki fáir, sem aðeins tilheyra
kirkjunni að nafninu til, en þeir
eru þó furðu margir, sem taka
virkan þátt í störfum hennar. Er
það t.d. ekki næsta ótrúlegt, að
100 fjölmennar guðþjónustur
skuli haldnar á hverjum sunnu-
degi í borg, sem hefir innan við
200 þúsund íbúa?
Við hörmuðum það öll þrjú,
að geta ekki dvalið lengur en
raun varð á, hjá þessu indæla
og einlæga fólki, með sín sér-
stæðu trúarbrögð. Mormónarn-
ir minna einna helzt á stóra fjöl-
skyldu, þar sem ríkir óvenju
gott samkomulag og allir una
glaðir við sitt. Vonandi er, að
engir óknyttaormar verði til þess
að spilla þeim heimilisfriði.
VÍÐSJÁ
Vegna ALLRAR
Heimabökunar kaupa m
GÓÐAR HÚSMÆÐUR
Notið það í brauð,
bollur, skorpusteik, kökur
og aðra bakningu — notið
það til allra hluta.
Það er malað úr bezta Canada hveiti.