Lögberg - 14.04.1949, Blaðsíða 4
4
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 14. APRIL, 1949
Hogfarg
GeíiS út hvern fimtudag af
THE COLUMBIA PRESS LIMITED
695 SARGENT AVENUE, WINNIPEG, MANITOBA
Utanáskrift ritstjórans:
EDITOR LÖGBERG, 695 SARGENT AVENUE, WINNIPEG, MAN.
PHONE 21 804 .
Ritstjóri: EINAR P. JÓNSSON
Verð $3.00 um árið—Borgist fyrirfram
The "Lögberg” ia printed and publiehed by The Columbia Press Ltd.
695 Sargfcnt Avenue, Winnipeg, Manitoba, Canada.
Authorized as Second Class Mail, Post Office Department, Ottawa
FAGRIR OG LÆRDÓMSRÍKIR VITNISBURÐIR
íslenzku vikublöðin vestan hafs hafa nú um allangt
skeið birt bréf og ritgerðir eftir ýmsa helztu forustu-
menn á vettvangi málvísinda og fræðimensku innan
vébanda þessa mikla meginlands, varðandi menningar
gildi íslenzkrar tungu; þessi víðtæka og mikilverða
upplýsinga starfsemi, sem blöðin hafa haldið
uppi, á rót sína að rekja til hinnar væntanlegu stofn-
unar kenslustóls í íslenzku og íslenzkum bókmentum
við Manitobaháskólann, og þeirrar víðtæku athygli, sem
það mál hefir hvarvetna vakið; það liggur í augum uppi,
hve óendanlega séu þyngri á metum rök hinna lærð-
ustu manna, svo sem þeirra Dr. Sidney Smith, Dr.
Thomsons, Dr. Gillsons, prófessor Watson Kirkonnells
og prófessor ISJalones, að eigi séu fleiri tilgreindir, en
tilfinningamál okkar sjálfra, sem tíðum hafa snúist
upp í væmið sjálfshól; að ummæli áminstra lærdóms-
manna og menningarfrömuða hafi þegar haft mikil
og heillavænleg áhrif á framgang háskólamálsins, verð-
ur eigi dregið á efa; þau hafa opnað augu okkar eigin
fólks fyrir sanngildi þeirra helgidóma, sem oss ber að
verja og hefja til vegs, og hefir þá heldur eigi verið til
einkis barist.
Verum samtaka um fullnaðarátökin henslustóls
hugmyndinni til fulltingis!
♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦
“SMÁ SAXAST Á LIMINA HANS BJÖRNS MÍNS”
Eins og nú hagar til, má að nokkru heimfæra þetta
gamla orðtæki upp á samsteypustjómina í Manitoba,
því þar er afkvistunar farið að verða ábærilega vart;
þrír þingmenn stjórnarinnar hafa nú með skömmu
milhbili kvatt garðana í Gröf og tekið sér sæti á bekkj-
um stjórnarandstæðinga; fyrstur reið á vaðið Mr.
FTefontaine, er nú nefnir sig hreinkynjaðan Liberal; í
kjölfar hans sigldi Dr. Poole, íhaldsflokksþingmaður
fyrir Beautiful Plains kjördæmið, sem nú á að leggjast
niður, samkvæmt fyrirhugaðri reglugerð um nýja kjör-
dæmaskipun; og nú hefir G. S. Thorvaldson, einn af
þingmönnum Winnipegborgar, farið að fordæmi hinna
tveggja og sagt sig úr lögum við samsteypustjórnina.
Mr. Thorvaldson fylgir íhaldsflokknum að málum; hann
er einbeittur maður, sem ógjaraan lætur hlut sinn;
hann lenti nú síðast á öndverðan meið við stjórnina út
úr frumvarpi um sölu hrjúfra kortegunda, er hann stað-
hæfði að hún hefði sjálf átt að bera fram í stað þess að
láta einstakan þingmann flokks síns, Mr. Sutherland
frá Landsdowne gera það.
Samsteypustjórnin í Manitoba var mynduð með
hliðsjón af stríðsmálunum og viðhorfinu innanlands á
fyrstu árunum eftir að stríðinu var lokið; samvinnu-
grundvöllur hennar er hvergi nærri hinn sami nú og
hann var í upphafi; en fari innbyrðiságreiningur meðal
stjórnarflokkanna vaxandi eins og margt bendir til, er
hætta á veikari forustu en ella, og gæti þá margt verra
hent en alger samvinnuslit flokkanna.
Franr að þessu hefir margt verið vel um forustu
samsteypustjóraarinnar, enda naut hún ágætrar leið-
sagnar þar sem Mr. Garson átti í hlut, auk þess sem
núverandi forsætisráðherra, Mr. Campbell, er um flest
hæfur stjórmálamaður.
♦ -f ♦ ♦ ♦
BRÓÐURLEGT HANDTAK YFIR HAFIÐ
Ofbeldishótanir kommúnista í framkvœmd:
Trylltur skríll ræðst á Alþingi
Grjótkast kommuúnista veldur limlestingum
SPELLVIRKJUM DREIFT MEÐ TÁRAGASI
Kommúnistar framkvæmdu í gær hótanir sínar um ofbeldi
gegn Alþingi, ef það samþykkti þátttöku Islands í Atlantshafs-
bandalaginu með því að gera árás á Alþingishúsið og brjóta flestar
rúður sala þess og með tilraunum til manndrápa og stórfelldra
líkamsameiðinga á friðsömum borgurum og löggæslumönnum. Var
mesta mildi að ekki urðu mörg mannslát og stórfelld meiðsl af
grjóthríð er fámennur hópur tryllts kommúnistaskríls hóf á þing-
húsið og hundruð borgara er höfðu skipað sér þar til varnar.
Særðust nokkrir lögreglumenn og borgarar undan grjóthríðinni,
einn lögregluþjónn mjög alvarlega.
Grjóthríö inn í þingsalinn
Stóð grjóthríðin alla leið inn í
þingsalin þar sem Alþingi sat að
störfum. Ekki urðu samt önnur
meiðsl á þingmönnum en þau, að
einn þingmaður fékk smástein á
gagnaugað og hruflaðist lítillega.
Var það Hermann Guðmunds-
son. Annar skrifari Alþingis,
Skúli Guðmundsson, sem sat í
skrifarasæti rétt innan við einn
glugga þingsalarins fékk stein-
hnullung á hendina, en sakaði
lítt. Dreifðust glerbrotin frá rúð-
unum langt inn í fundarsalinn.
Þegar þessu hafði fram farið
um hríð, jafnvel eftir að þing-
fundi lauk neyddist lögreglan til
þess að beita kylfum sínum og
síðar táragasi til þess að firra
stórfeldum líkamsmeiðslum og
jafnvel morðum á friðsömu fólki
og lögreglumönnum. Má full-
yrða-að það hafi forðað frekari
stórslysum.
Kommúnistar undirbúa
skrílsæðið
Kommúnistar höfðu undirbú-
ið þessar aðfarir í samræmi við
fyrirheit foringja sinna um of-
beldi ef Alþingi fylgdi ekki
stefnu Rússa í öryggismálum Is-
lendinga. Snemma í gærmorgun
boðaði fulltrúaráð verkalýðsfé-
laganna til útifundar án þess að
hafa fengið til þess leyfi löglegra
yfirvalda. Stóð verkamannafé-
lagið Dagsbrún einnig að þessu
fundarboði. — Skyldi fundurinn
verða við Miðbæjarskólann kl.
1:00 e.h. — Tilgangur kommún-
ista með þessu fundarboði var
bersýnilega sá að safna þar sam-
an liði sínu og æsa það til ó-
spekta.
Á tilskildum tíma söfnuðust
nokkur hundruð manns saman til
þessa fundarhalds, sem raunar
varð lítið úr. Var borin þar upp
mótmælatillaga gegn þátttöku
íslands í varnarbandalagi lýð-
ræðisþjóðanna og jafnframt
krafíst þjóðaratkvæðagreiðslu
um málið. Að þessum afrekum
unnum skunduðu kommúnistar
til Alþingishússins og var kl. þá
rúmlega 1:00. Sendu þeir nefnd
manna til Sigurðar Guðnasonar
með tillöguna, sem las hana upp
í þinginu og krafðist svars þing-
flokkanna við henni!
Merki gefið
Fékk hann þau svör ein, að
henni hefði áður verið svarað
og myndi verða svarað enn
greinilegar er atkvæðagreiðslan
færi fram um sjálft málið í þing-
inu. Hljóp Sigurður þá upp 1
flokksherbergi kommúnista en
þar voru fyrir þeir Björn Bjarna-
son og Stefán ögmundsson.
Hlupu þeir við fót út til komm-
únistahópsins og sögðu áhrif til-
lögu hans. Tók þá talkór ung-
kommúnista að æpa kröfu um
þjóðaratkvæðagreiðslu. Gekk
svo um hríð en nokkru síðar hóf
hin prúða “Æskulýðsfylking”
kommúnista að kasta grjóti og
eggjum á þinghúsið. Er þeirrar
“þjóðvarnarbaráttu” kommún-
ista og árangurs hennar getið
nánar á öðrum stað í blaðinu. —
I þessu sambandi verður að geta
þess að hinar hempuklæddu
þjóðvarnarhetjur sáust nú
hvergi. Hafa nú sennilega þóttst
vera búnar að vinna sitt verk
með því að æsa upp hinn sið-
ferðisveila æskulýð kommúnista
en hinsvegar of fínir til þess að
kasta hraungrjóti úr fótstalli
Jóns Sigurðssonar í Alþingi Is-
lendinga!!
Þó varð vart þarna nafn-
kenndrar hjúkrunarkonu, sem
mjög hefir stutt “þjóðvarnir”
kommúnista.
Fregnmiði lýðræðisflokkanna
Þegar auðsýnt þótti í gær-
morgun að kommúnistar ætluðu
að æsa fylgismenn sína á úti-
fundi til árása og hermdarverka,
gáfu formenn þingflokka lýð-
ræðisflokkanna, þeir ólafur
Thors, Eysteinn Jónsson og
Stefán Jóhann Stefánsson, út
fregnmiða þar sem beint var
þeim tilmælum til friðsamra
borgara að þeir kæmu á Austur-
völl milli kl. 12:00 og 1:00 og
síðar “til þess með því að sýna,
að þeir vilji, að Alþingi hafi
starfsfrið.”
Þúsundir manna urðu við
þessum tilmælum og safnaðist
mikill mannfjöldi um hádegis-
bilið saman við þinghúsið og
kring um Austurvöll. Þetta fólk
hegðaði sér í hvívetna' prúð-
mannlega og sýndi aðdáunar-
verða stillingu gagnvart skrfls-
látum og jafnvel grjóthríð
kommúnista.
Spellvirkjaforusta kommúnista
Engum gat dulist að foringjar
kommúnista stjórnuðu spell-
virkjum þeim, sem framin voru.
Eftir að þingfundi var lokið tók
Eins og þá rekur minni til, sem sátu þjóðræknis-
þingið og ritari félagsins hefir skýrt frá í greinagerð
sinni, var lögð fram á þinginu nýstárleg bók, sem orðið
getur hið merkasta heimildarrit um íslendinga vestan
hafs, ef vel og rétt er með farið. En bók þessari er það
hlutverk ætlað, að í hana skrifi sem allra flestir íslend-
ingar í landi hér nafn sitt, nöfn foreldra þeirra og
hvaðan þeir voru af íslandi (ef fædd þar), fæðingardag
sinn og fæðingarstað og núverandi heimihsfang. Liggur
það í augum uppi , að hér getur orðið um mikinn og
merkilegan ættfræðilegan og sögulegan fróðleik að
ræða, og þá er hitt eigi síður merkilegt, að með þeim
hætti varðveitist rithönd fjölmargra Vestur-íslendinga,
því að þegar bókin er alskrifuð endursendist hún til
íslands til endanlegrar geymslu á Þjóðskalasafninu.
Maðurinn, sem á hugmyndina að þessari tímabæru
og þörfu framkvæmd, lét gera bókina og sendi hana
hingað vestur, er Lárus S. Ólafsson á Akranesi, bróðir
Kjartans Ólafssonar brunaverðar og skálds í Reykja-
vík. Elr Lárus greindur maður og bókhneigður og ríkt
í huga, að ætternis-og menningartengslin milli Islend-
inga beggja megin hafsin haldist sem lengst, báðum að-
iljum til gagnsemdar. Upp úr jarðvegi þeirrar fögru
ræktarsemi er það sprottið, að hann hefir sent fyrr-
nefnda bók vestur um haf, og er þar um bróðurlegt
handtak að ræða yfir hið breiða djúp. Fylgir hann bók-
inni úr hlaði með hlýjum ávarpsorðum til íslendinga í
Vesturheimi og henni fylgir einnig faguryrt kveðja frá
dr. Sigurgeir Sigurðssyni, biskupi íslands og formanni
þjóðræknisfélagsins á íslandi.
Þjóðræknisþingið gerði þær ráðstafanir, að stjórn-
arnefndir deilda þess á hverjum stað hefðu bókina til
fyrirgreiðslu vissa tímalengd (tvo mánuði) og létu hana
liggja frammi þar sem fólk ætti hægast með að rita nafn
sitt í hana. Sem stendur er hún í vörzlum stjórnarnefnd-
ar deildarinnar “Fróns” í Winnipeg, en verður síðan
send öðrum deildum félagsins.
Vil ég eindregið hvetja sem allar flesta íslendinga
bæði þar í borg og annarsstaðar til þess að rita nöfn
sín í bókina eftir því, sem þar er fyrir mælt, þegar þeir
eiga þess kost; en bókin er bæði vönduð og stór, svo að
mörg hundruð nafna komast þar fyrir. Um gildi slíks
rithandasafns þarf eigi að fjölyrða fram yfir það, sem
þegar hefir gert verið. En hitt má ekki minna vera, en
að menn bregðist vel við um að rita nöfn sín í bókina.
Þvífylgja engin útgjöld af neinu tagi.
Jafnframt því sem ég þakka sendanda bókarinnar
fyrir þessa ágætu hugmynd hans og framtakssemina,
og þann góðhug, sem hún lýsir í garð vor íslendinga
vestan hafs, lýk ég svo þessum hvatningarorðum til
landa minna með eftirfarandi ljóðlínum, sem ég lét
fylgja nafni mínu í bókinni:
brúin sú um eilífð stendur!
Hafið brúi bróðurhendur,
RICHARD BECK
Stefán Ögmundsson fyrrverandi
varaforseti kommúnista í Al-
þýðusambandi Islands að æpa í
gjallarhorn um að þingmönnum
kommúnista væri haldið sem
föngum í þinghúsinu. Með þessu
hugðist Stefán æsa liðsmenn
sína til frekari aðgerða. Mun
ekki hafa á þeim staðið því
nokkru síðar hófst snörp grjót-
hríð frá óaldarlýðnum.
Inni í Alþingi
Nokkru áður en umræðum
lauk um Atlantshafssáttmálann
tók grjót að drífa inn um glugga
þingsalarins. Hrundi gler hinna
brotnu rúða yfir stól forseta,
skrifara og ráðherra, sem næst-
ir sátu gluggunum. Allmargir
steinar lentu einnig á borði for-
seta og ráðherra og jafnvel langt
inn í þingsal. Var það furðuleg
tilviljun að þeir skyldu eigi
valda meiðslum og meiriháttar
slysum. Mest var grjóthríðin á
meðan, atkvæðagreiðsla stóð yf-
ir um málið og var auðsætt að
þingmenn kommúnista höfðu
samband við liðsmenn sína úti
fyrir.
Skemmdir á þinghúsinu
Allmargar rúður brotnuðu í
þinghúsinu við þessar aðfarir.
Brotnuðu flestar rúður 1 þingsal
Sameinaðs Alþingis og Neðri
deildar. Ennfremur nokkrar rúð-
ur í skrifstofugluggum Forseta
Islends, sem eru á neðri hæð
hússins. Var þegar í gær slegið
tréflekum fyrir alla glugga; rúð-
ur höfðu verið setta r nýjar í
þá eftir spellvirki kommúnista
á mánudagskvöld.
Ófarir og svívirðing kommúnista
Heildarmyndin af því, sem
gerðist er sú að kommúnistar
hafi í senn farið hinar hrakleg-
ustu ófarir og afhjúpað sig sem
svívirðilega ofbeldisseggi og til-
ræðismenn við líf og öryggi frið-
samra borgara og löggæslu-
manna, sem komu í hvívetna
fram af mestu stillingu og þolin-
mæði. En þeir gerðust jafriframt
berir að því að rjúfa starfsfrið
löggjafarsamkomunnar og reyna
með ofbeldi að koma í veg fyrir
afgreiðslu máls, sem yfirgnæf-
andi meirihluti þings og þjóðar
var fylgjandi.
Þessar staðreyndir standa eft-
ir. Þúsundir Islendinga hafa
horft á þær. Skuggi þeirra mun
fylgja kommúnistaflokknum á
íslandi í hvaða líki sem hann á
eftir að bregða sér í framtíðinni.
Mbl. 31. marz.
Gimli Prestakall, Páskamessur
apríl 17., messa að Arnesi, kl.
2:00 e.h. íslenzk messa, kl. 7:00
og ensk messa kl. 8:15 e.h.
Allir velkomnir.
Skúli Sigurgeirson
Margir rnenn, konur
Þyngjast 5, 10, 15 pd.
Nýr þróttur, nýtt fjör, þrek
Hvllfk unun, limir styrkir, ójöfnur
slöttast, híilsin verður liðugur; llkam-
inn ekki framar veiklulegur; þúsundir
manna og kvenna hafa komist I g68
hold; þetta fólk þakkar Ostrex töflum
heilsubót sína; vegna hins mikla nær-
ingarkrafts, er þær hafa. Engin hætta á
offitu, magurt fólki þyngist frá 5, 10,
og 15 pd. Kynnist þessum nýja lækn-
ingalyfi! Notið Ostrex Tonic töflur, sem
styrkja lfkamann. í öllum lyíjabúðum.
Phone 21101 ESTIMATES
FREE
J. M. INGIMUNDSON
Asphalt Roofs and Insulated
Sldlng — Repalrs
632 Slmcoe St. Winnfpeg, Man.
PIONEER
CHICKS
are
"Bred for Production"
Approved R.O.P. Sired
100 50 25 100 50 25
19.75 10.40 5.45 L. Sussex
34.00 17.50 9.00 L.S. Pul.
W. Leg. 17.25 9.10 4.80
W. L. Pul. 35.00 18.00 9.25
W. L. Ckls. 4.00 2.50 1.50
18.75 8.85 4.70 N. Hamps. 18.25 9.60 5.05
30.00 15.50 8.00 N. H. Pul. 33.00 17.00 8.75
B. Rocks 18.25 9.60 5.05
B. R. Pul. 33.00 17.00 8.75
R. I. Reds 18.25 9.60 5.05
R.I.R. Pul. 33.00 17.00 8.75
11.00 6.00 3.25 Hvy Breed Ckls
(our choice)
Pullets 96% acc. 100% live arriv. gtd.
ORDER NOW
for immediate delivery
PIONEER
HATCHERY
Producers of Bigh Quality Ohicks
Since 1910.
41$ I Corydon Ave.. Winnipeg
Oxford Hotel
In the Centre of Winnipeg
MODERATE RATES FREE PARKING
PARLOR
216 NOTRE DAME AVENUE
Phone 96712
JOSEPH STEPNUK S. M. HENDRICKS
President Manager
When building
use
RED
SEAL
Wiring Specifications
Safe, adequate wiring in your new home is so
important. You want plenty of outlets for the
electrical appliances you use now—and those you
will use in the future.
To assure your home of safety and convenience,
wire it according to Red Seal Wiring Specifications
. . . the standard set by the electrical industry at
large. Call City Hydro, 848 124, or Red Seal
Headquarters, 927 187, for free information on Red
Seal. At the same time, install City Hydro’s
dependable, low-cost electric service.
CITY HYDRO
Owned and Operated by the Citizens of Winnipeg
I