Lögberg - 26.05.1949, Side 1

Lögberg - 26.05.1949, Side 1
62. ÁRGANGUR PHONE 21374 s0ti VíSÍ'* A Complele Cleaning Inslilulion WINNIPEG, FIMTUDAGINN, 26. MAÍ, 1949 NÚMER 21 Ovenjuleg harðindi og snjóalög víða um land Hætta mun á fóðurskorti í sumum sveitum, ef siíkar hörkur haldast lengi fram eftir vori. Eins og kunnugt er hefir þessi vetur verið óvenjulega snjó- þungur og veðurharður víða um land, svo að í mörgum sveitum telja glöggir menn hann versta vetur síðan!919. Nú er komið að sumarmálum, en ekki bregður enn til bata um tíðarfarið. Páskavikan og páskadagarnir voru mjög umhlyepingasamir víðast hvar á landinu og talsverð snjókoma. Þrátt fyrir harðindin hefir ekki enn heyrzt um til- finnanlegan fóðurskort hjá bændum, en hætt er við, að ein- hvers staðar taki að sverfa að, ef þessu heldur lengi áfram, og sums staðar mun vera tekið að brydda á því. Harðindin munu hafa verið einna verst á Vestfjörðum, í uppsveitum Borgarfjarðar og Suðurlands og í einstaka upp- sveitum norðan og norðaustan- lands, svo sem á Hólsfjöllum. Hér sunnanlands hafa snjóa- lög verið geysimikil eins og kunnugt er, svo að heiðar hafa verið tepptar lengur en dæmi eru til um langt árabil. I upp- sveitum Árness- og Rangárvalla- sýslu hefir og verið mjög snjó- þungt, innigjöf sauðfjár að mestu síðan í janúar. Sömu sögu er að segja úr harðindasveitun- um vestan og norðan lands. Á Hólsfjöllum, þar sem venju- lega er fremur gjaflétt, hefir að mestu verið innistaða síðan um nýár. Hlákur þær, sem komu norðan lands í marz, urðu ekki annað en blotar þar efra, sem hleyptu snjónum í gadd. Ekki er þó talið, að bændur á Hóls- fjöllum muni komast í hey- þröng að þessu sinni, því að góð- ír vetrar hafa verið þar að una anfðrnu og bændur safnað nokkrum fyrningum. En fái þeir annan harðindavetur næst, er hættan meiri. Ekki hefir ennþá heyrzt um fóðurþrot í harðindasveitunum, en hætt er við, að til þess kunni að draga, ef veðurfar breytist ekki áður en langt líður. Á ein- staka stað mun þó vera farið að gæta fóðurskorts. Tíminn, 20. apr. 300 ferðamenn veðurteptir í fárviðri og stórhríð * FRÁ ÁRBORG Skemtisamkomu þeirri er get- ið var hér í blaðinu fyrir nokkru síðan, og halda átti 13. maí varð að fresta til 3. júní vegna mis- linga er komu upp hér í þorpinu en er nú að mestu leyti lokið Hefur því verið ákveðið að hafa þessa samkomu 3. júní í Árborg Community Hall, engin breyting verður á Skemiskránni frá því sem áður var um getið, Dr. A. S. H. Gillson forseti Manitoba- háskólans flytur ræðu; sam- keppni í Framsögn 30 unglingar, Söngflokkur ungmeyja, og ein- söngvar að auk; fólk er alment beðið að muna eftir þessari sam- komu því talið er að það muni margborga sig að vera þar stadd- ur og njóta alls þess er þar fer fram. Þjóðræknisdeildin “Esjan” er frumkvöðull að þessari sam- komu. T.B. SVEINN BJÖRNSSON í FORSETAKJÖRI Eins og áður hefir verið skýrt frá, fara fram forsetakosningar á íslandi þann 26. júní næstkom- andi; nú lætur morgunblaðið í Reykjavík frá 29. apríl s.l. þess getið, að þrír aðal stjórnmála- flokkar landsins, Sjálfstæðis- flokkurinn, framsóknarflokkur- inn og alþýðuflokkurinn, hafi farið þess á leit við hr. Svein Björnsson foresta, að hann gefi kost á sér á ný, og hefir hann orðið við áskoruninni. Fólkið sat í bílunum í 12 stundir Richard Leonard Beck, B.Sc. E.E. Við nýafstaðin háskólapróf í Manitoba útskrifaðist með hárri einkunn Richard Leonard Beck, sonur þeirra J. Th. Beck prent- smiðjustjóra og frúar hans, Svanhvítar Beck; á þessi ungi mentamaður til gáfaðra og góðra að telja, og þeim Beck-systkin- um við brugðið fyrir ástundun og námshæifleika. Nú hefir þessi nýi rafurmagnsverkfræðingur tekist á hendur ábyrgðarstöðu hjá General Electric félaginu í Toronto. Leifur Hallgrímsson, B.A. Við síðastliðin háskólapróf í Manitoba, lauk Bachelor of Arts prófi Leifur Hallgrímsson með hinum ágætasta vitnisburði; hann er sonur hinna valinkunnu hjóna T. L. Hallgrímssonar for- stjóra og eiganda Hallgrímsson Fisheries Limited, og Elinborgar frúar hans; er Leifur hið bezta mannsefni, heillyndur og vin- fastur eins og hann á kyn til. í vestan ofviðri og iðulausri stórhríð urðu um 300 ferðamenn að láta fyrirberast í bílum í allt að níu klst. í fyrrakvöld og nótt. Bílalest þessi var aðeins í um kílómeters fjarlægð frá Kolviðarhóli, en vegna veðurofsans og fannkomu, var ekki nema á færi hraust- ustu manna að brjótast heim að Kolviðarhól. í fyrradag fóru allmargir bílar héðan úr bænum og ætluðu flestir þeirra austur yfir Hellis- heið, en fyrri hluta dags var heiðin sæmilega fær stórum bíl- um. Auk þess lögðu nokkrir bílar af stað áleiðis til Reykjavíkur. Um klukkan 4:00 um daginn tók veður að spillast og fóru menn þá að hugsa til heimferðar, er staddir voru á Kolviðarhóli. Bílinn bilaði — Lestir stöðvaðist Líklega munu þá um 20 bílar, þar á meðal nokkrir stórir al- menningsvagnar, hafa verið á Kolviðahóli, þegar lagt var af stað til Reykjavíkur. Skamt höfðu bílarnir farið, er svo ó- heppilega vildi til, að mjög stór bíll, sem fór fyrir lestinni brotn aði. Ekki var hægt að komast fram hjá honum og stöðvaðist því öll lestin. Veðrið skellur á Þegar tekist hafði að gera við bílinn, en það tók um tvo tíma, var komin grenjandi stórhríð og stórviðri af vestan. Var veðrið svo óskaplegt, að allur fjöldinn varð að láta fyrirberast í bílun- um, og giskað er á, að alls hafi í þeim verið um 300 manns. Snjóýtan kemur Iðulaus stórhríð hélst alla nóttina. Um kl. 2 kom stór snjó- ýta neðan úr Svínahrauni og fór hún upp fyrir bílalestina, en sneri síðan við. Um kl. 4 í fyrri nótt var ýtan komin fram fyrir fyrsta bílinn og var þá lagt af stað til Reykajvíkur. Farið var þá að draga af mörgum og var líðan fólksins af eðlilegum á- stæðum ekki sem best. Sátu í 12 klst. samfleytt Fólkið rómaði mjög dugnað snjóýtustjórans og bílstjóranna, sem sýndu mikinn dugnað og reyndu að halda fólkinu í góðu skapi, með að láta brandara fjúka. Eftir að ýtan lagði af stað, á undan lestinni, gekk ferðin all- vel til Reykjavíkur, en bílarnir komu til bæjarins eftir þriggja klukkustunda ferð, eða um klukkan 7 í gærmorgun. Hafði fólikð þá setið í bílunum um 12 klst. samfleytt. Mgbl. 21. apr. 1949 Tveir menn farnir utan til að annast ráðningu þýzka verkafólksins Ráðningar á þýzku verkafólki til starfa í íslenzkum sveitum fara nú að hefjast í Þýzkalandi. Er fyrir nokkru búið að auglýsa eftir fólkinu þar og er eftirspurn talsverð eftir þessari vinnu. öllu meira mun þó framboðið af karl- mönnum og munu færri karl- menn komast hingað en vildu. Þessa fögru og ágætu mynd lét prentfyrirtækið St. Paul Pioneer Press Lögbergi góðfús- lega i té til birtingar og skal slík vinsemd að verðugu þökkuð; myndin er af ráðhúsi St. Paul borgar; stytta af Kolumbusi hefir lengi staðið austan við ráðhúsið, en nú er fullráðið að nýgerð stytta Leifs hepna verði reist vestan við hið veglega stórhýsi. John K. Daniels, myndhöggvari af norskum ættum, búsettur í Minneapolis, hefir nýlega lokið gerð styttunnar eftir margra ára undirbúning; við afhjúpun myndamótsins sem fram fór í New York, voru viðstaddir Thor Thors sendiherra fslands í Canada og Bandaríkjunum og aðalræðismaður Norðmanna í New York, Morgenstierne. Þessi nýja Leifs stytta verður 13 fet á hæð, en fótstallurinn mun verða 9 fet á hæð; ráðgert er að stýttan verði afhjúpuð þann 9. október næstkomandi, en þá verða liðin 100 ár síðan Minnesota varð “Territory” áður en það gekk í ríkjasambandið 1858. Hins vegar er talið víst aðog 80 karlmenn. Fólkið verður einnig verði hægt að fá nóg af hæfu kvenfólki til að flytjast hingað til starfa, ekki sízt vegna hins bágbarna ástands, sem nú ríkir í Þýzkalandi. Tveir menn eru farnir héðan til að annast ráðningu fólksins og eru það þeir Jón Helgason fréttaritstjóri og Þorsteinn Jósefsson blaðamaður. Fóru þeir flugleiðis til Kaupmannahafnar í gær, en þaðan fara þeir til Þýzkalands strax og þeir fá leyfi hjá yfirvöldum Breta og Banda- ríkjamanna. Ekki er enn afráðið hvar fólk- ið verður valið, sem flytjast á til fslands, en gert er ráð fyrir að ráðnir verði um 300 kvenmenn VOR Vorið er komið að kæta og kalla burt viðjur og helsi og fœra oss geisla og gleði með gróandans baðmvíða frelsi. Moldina kitlar af kœti og keppist að lifga við frjóin sem litfríð í deiglunni dafna unz dílarnir breiðast um móinn. Líða sem ilmandi angan með andblœnum vorsálir bjartar í Ijóshafi bylgjandi blóma balderuð náttúran skartar. DAVÍÐ BJÖRNSSON sótt til Þýzkalands á strand- ferðaskipinu Esju og mun hún leggja af stað í þá ferð héðan um 10. maí, verði engar ófyrirsjáan- legar tafir og mun fólkið þá koma hingað um eða eftir 20. maí. Tíminn 20. apr. KOSNINGARÆÐA Séra Philip M. Pétursson sem sækir um kosningu á Sambands- þing í Norquay kjördæmi undir merki C.C.F. heldur kosninga- fund í Hecla þirðjudagskvöldið, 31. maí, á þeim stað og tíma sem auglýstur hefur verið þar á eyj- unni. Vonast eftir að fundurinn verði vel sóttur. FYRIRFER SÉR James Forrestal, fyrverandi hervarnarráðherra Bandaríkj- anna, fyrirfór sér á sunnudags- morguninn var, með því að stökkva út um glugga á heilsu- hæli þar sem hann var til lækn- ingar; hann var mikilhæfur maður 57 ára að aldrei. SHANGHAI Fjórða fjölmennasta borg ver- aldarinnar, er nú svo að segja að fullu og öllu á valdi kín- verzkra kommunista; hersveitir Nationalista eru í óða önn að flýja þaðan sjóleiðis. FJÓRVELDAFUNDUR Síðastliðinn mánudag komu saman til fundar í París utan- ríkisráðherrar stórveldanna fjögurra, Bretlands, Bandaríkj- anna, Frakklands og Rússlands til þess að ræða um framtíðar- skipulagningu Þýskalands: af fundinum hafa svo sem vænta mátti, litlar fregnir boristv fram að þessu; þó er mælt að Rússar séu andvígir stofnun hins vestur-þýska lýðveldis. Gjafir í Skrúðvagnssjóðinn (Float) 75 ára afmæl Winnipegborgar, 1949 Thorbergur Thorbergson $ 5.00 Mrs. Th. Sigurðson, 1.00 Mrs. Jónina Jóhannesdóttir 2.00 Mrs. M. Helgason 5.00 Mr. Einar Thomson 1.00 Mr. A. G. Eggertson og G. S. Thorvaldson 10.00 Mr. Ingunn Johnson 1.00 Mr. Halldor Johnson 5.00 Mr. J. Baldwin 5.00 Mr. og Mrs. Geir Thorgeirson 10.00 Mr. og Mrs. Davið Björnsson Mr. Johann Johnson Áður auglýst Samtals alls 5.00 5.00 55.00 963.00 $1018.00 $ Davíð Bjömsson féhirðir

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.