Lögberg - 23.06.1949, Blaðsíða 8
8
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 23. JÚNÍ 1949.
Úr borg og bygð
THE BOARD MANAGEMENT
f
The Board Management of the
Manitoba Federation of Home
and School will meet in Room
255, Legislative Building, at 8:15
p.m. Tuesday, June 28, to dis-
cuss suggestions of program
material for the year presented
by convenors of Standing Com-
mittees, and general plans will
be formulated. Several interest-
ing changes will be made as a
result of the deliberations of the
Canadian Federation of Home
and School Convention. The ex-
ecutive of the Manitoba Federa-
tion are making several recom-
mendations which will be
considered by the Board of
Management.
WANTED—Refined . person for
lady living in 5-room suite.
References. Telephone 924 854.
■♦•
ICELANDIC CANADIAN
CLUB NEWS
The annual meeting of The
Icelandic Canadian Club will be
held June 28, 1949, at the home
of Judge W. J. Lindal, 788 Wol-
seley Ave., 8:30 p.m. As this is
a very important meeting it is
imperative that there is a good
attendance.
M. Halldorson, Sec.
■♦
Gjafir í Skrúðvagnssjóðinn,
(Float) á 75 ára ajmæli Winni-
pegborgar, 1949.
Mr. Skúli Benjamínsson $10.00;
Mrs. Sesselja Oddson $1.00; Miss
Bertha Jones, California $25. 00;
Reykdal and Sone $10.00; Alls
$46.00. Áður auglýst $1170.00.
Samtals alls $1216.20.
Betur má ef duga skal.
Davíð Björnsson
féhirðir
♦
MESSUBOÐ
Fyrsta Lúterska Kirkja
Séra Valdimar J. Eylands.
Heimili 776 Victor Street. Sími
29017. —
Guðsþjónustur á hverjum
sunnudegi: Á ensku kl. 11:00 f.h.
Á íslenzku kl. 7:00 e.h. — Sunnu-
dagaskóli kl. 12:15 e.h. — Allir
æfinlega velkomnir.
-♦
Arborg-Riverton prestakall
26. júní — Kirkjuþingssunnu-
dagur; engar messur. 3. júlí —
Geysir, messa kl. 2 e. h. River-
ton, ensk messa kl. 8 e. h.
B. A. Bjarnason
♦
Pirkjuþings Guðsþjónustur
í Argyle prestakalli
Glenboro — Kl. 11 f. h. —
Vígsla kirkjuturns og kirkju-
klukkna. Séra Skúli Sigurgeirs-
son prédikar. Athöfnin á ís-
lenzku og ensku.
Baldur — Kl. 2:30 e. h. —
Séra Egill Fáfnis.
Brú — Kl. 2:30 e. h. — Séra
Guttormur Guttormsson.
Grund — Kl. 2:30 e. h. —
Séra B. A. Bjarnason. Messurn-
ar verða á íslenzku.
on a wedding trip. They will
reside in Temiskaming, Quebec.
where Dr. Gibson will comm-
ence practice.
■♦
The Lutheran Church of the
Cross was the scene of wedding
Saturday, June llth, when Rev.
Kohlmeier united in marriage,
Margaret Thorsteinson, young-
est daughter of Mrs. Kristin
Thorsteinson and the late G. O.
Thorstéinson and Dr. Glen
Preston Gibson, only son of Mr.
and Mrs. John Preston Gibson
of Los Angeles, California. Dr.
Gibson is the grandson of Mr.
A. E. Godsmark of Winnipeg.
The bride was given away by
Mr. Nelson Thorsteinson, broth
er of the bride.
Kerr Wilson was soloist.
The bride wore a gown of
blush ivory satin ballerina with
an ankle length veil and she
carried a colonial bouquet of
sweetheart roses and aster
daisies.
Mrs.* Lilja Leckow, sister of
the bride, was matron of honor
and Linda Thorsteinson, niece
of the bride was junior brides-
maid. Magnus Thorsteinson
was best man. Jon Johnson and
Meros Leckow were ushers.
iThe reception was held at
the Fort Garry Hotel. Dr. and
Mrs. Gibson left for Minneapolis
and Brights Grove Lake Huron
Hr. Ágúst Sædal málarameist
ari frá Vancouver, B.C., kom
hingað fyrir nokkru í heimsókn
til barna sinna og eins til þess
að vera viðstaddur 75 ára af-
mæli Vinnipegborgar. Ágúst er
vinmargur hér um slóðir og
fögnuðu þessvegna margir heim
sókn hans.
♦
Mót í Sunrise Camp
verður haldið dagana 1.—3.
júlí n. k., með kennurum sunnu
dagaskólanna innan lúterska
kirkjufélagsins okkar. Allir þeir
kennarar, og aðrir sem áhuga
hafa fyrir málefninu, eru boðn-
ir velkomnir, ásamt öllum prest
unum.
Tilsögn verður veitt í kennslu
aðferðum í sambandi við Christ
ian Growth lexíurnar og ræður
verða fluttar. Morgunguðþjón-
usta verður haldin á vatns-
ströndinni, sunnud. 3. júlí, kl.
8 f. h. (Daylight Saving Time).
Skefntiprógram fer fram á laug-
ardagskvöldið kl. 7.30 (D.S.I.).
Starfið er áríðandi — komið
og takið þátt í umræðum því
viðvíkjandi.
Nefndin.
•♦
Peter Aksel Erikson og Lilja
IN WINNIPEG SOUTH CENTRE -
Elect
GORDON M.
CHURCHILL
(M.L.A. Army Representative
1946-1949)
Your
PROGRESSIVE
CONSERVATIVE
CANDIDATE
•
SEND CHURCHILL TO OTTA WA
Winnipeg South Centre Progressive Conservative Association.
Sigvaldason voru gefin saman í
hjónaband þ. 2. júní s. 1., af
séra B. A. Bjarnason. Hjóna-
vígslan fór fram á heimili Mr.
og Mrs. Sigurðar Sigvaldasonar,
foreldra brúðarinnar, í Vidir,
Man. Brúðguminn er af dönsk-
um ættum, sonur, Mr. og Mrs.
Oskar Erikson í Vidir, Man.
♦
í dánarfregn G. C. Helgason í
Churchbridge látinn 3. þ. m. er
misritað nafn hans, á að era
Guðmundur Camoens Helga-
son. ♦
Dánarfregn
Mr. og Mrs. Sigurjón ísfeld
urðu fyrir þeim djúpa söknuði
að missa son sinn, Theodore, 7
ára gamlan, eftir stutta legu.
Hann andaðist á sjúkrahúsi
Gimlibæjar, 13. þ. m., og var
jarðsunginn af séra Skúla Sig-
urgeirssyni 18. þ. m.
♦
Úr bréfi frá Moutain
Mrs. H. F. Danielsson er um
þessar mundir að æfa íslenzka
barna- og unglingakóra í North
Dakota.
„Okkur gengur vel — þjálfa
kórinn hér í tvær klst., tvisvar í
viku, — íslenzkar lexíur á milli
svo þau þreytist ekki. Einnig er
ég tvo daga í viku að Garðar, og
tvo að Hallsoa. Á Moutain eru 5
kennarar og 30 börn og að Garð-
ar 3 kennarar og 35 börn, ekki
eins mörg að Hallson, en von á
fleirum í öllum stöðunum. Höf-
um í hyggju að sameina kórana
og halda samkomur að Moun-
tain og Garðar. — Mörg börnin
tala íslenzku vel“. —
♦
HJÓNAVÍGSLA
S.l. föstudag, 17. júní, kl. 7:30
s.d. fór fram virðuleg giftingar-
athöfn í Fyrstu Lútersku kirkju
í Winnipeg. Voru þá gefin sam-
an í hjónaband þau Louise
Christine, hjúkrunarkona,
yngsta dóttir þeirra Mr. and
Mrs. G. F. Jónasson, forstjóra
Keystone Fisheries Ltd., og
Donald Leslie Bennett, sonur
Mr. and Mrs. Leslie J. Bennett,
ritstjóra í Carman, Man.
Kirkjan var fagurlega skreytt
og fjölsetin gestum. Brúðarmeyj
ar voru Mrs. Herbert Allan
(Sylvia) systir brúlðarinnar,
Ellen Bennett, systir brúðgum-
ans og Patricia Osborne. Brúðar
sveinar voru Ronald Bradford,
Howard Bennett og Douglas
Maxwell; en Sven Jensen og
Herbert Allen vísuðu til sætis.
Mrs. Pearl Johnson söng ein-
söngva, en Herold J. Lupton,
organisti kirkjunnar, aðstoðaði
við hljóðfærið.
Að hjónavígslunni lokinni var
fjölmennt samkvæmi haldið að
heimili foreldra brúðarinnar,
132 Oak Street. Þar söng Alvin
Blöndal einsöngva. Mörg heilla-
óskaskeyti voru lesin, þar á með
al frá ungfrú Svönu Sigurgeirs-
dóttur í Reykjavík, og séra Ei-
ríki Brynjólfssyni á Útskálum.
Sóknarpresturinn, séra Valdi-
mar J. Eylands, mælti fyrir
minni brúðhjónanna.
Ungu hjónin lögðu af stað
næsta dag í brúðkaupsferð vest-
ur á Kyrrahafsströnd. Með
haustinu munu ungu hjónin
fara til Toronto, þar sem brúð-
guminn stundar háskólanám,
með sögu að sérfræðigrein, og
býr sig undir doktorspróf í þeim
fræðum.
Thorv^ldur Freeman frá Gull
Lake, Sask., var staddur í borg-
inni síðastliðinn mánudag.
-♦
FYRISSPURN
Ef maður sá er á lífi, og má
mál mitt heyra, sem þýddi á
ensku kvæðin „Bórmakur“ og
„Einræður Starkaðar“ eftir Ein-
ar Benediktsson, „Curly“ og
„Golden" eftir St. G. Stephan-
son og „Grímur á Grund“ eftir
J. Magnús Bjarnason, ásamt
fleiri smærri kvæðum á ensku
og íslenzku, væri mér stór þökk
í því, ef hann vildi láta mig
undirritaðan vita nafn sitt og
heimilisfang sem fyrst. Kvæðin
komu öll 1 Heimskringlu á ár-
unum 1939—1942 og eru merkt
með bókstafnum X.
Nafni höf. verður haldið
leyndu, ef þess er æskt.
Gísli Jónsson
91.0 Banning St.
Winnipeg, Man.
Berið verkin saman og þér munuð
GREIÐA ATKVÆÐI
PROGRESSIVE
CONSERVATIVE
Hér er samanburðurinn:
Sjúkrahússaðbúnaður
Ellistyrkur
Mæðrastyrkur
Mentun
LIBERALAR
við völd í Canada
lofað 1919
og lofað enn.
C.C.F.
við völd Saskatchewan
lofað ókeypis
en kostar frá $5.00 til $30.00
á mann eða $74.00 í allt á
ári.
$30.00 vegna verðbólgu — Styrkur dreginn til baka,
og svo $40.00 rétt fyrir og nú fá þiggjendur $30.00
kosningu. á mánuði við 70 ára aldur.
í Manitoba $432.00 fyrir
eitt barn á ári.
Stjórnartillag
í B. C. 36%.
í Saskatchewan
$300.00
fyrir eitt barn á ári.
Stjórnartillag
í Saskatchewan
10% til 25%.
PR0GRESSIVE
CONSERVATIVES
við völd í Ontario
án loforða —
lagt fram $22.000.000 til
hieilbrigðis og sjúkrahúss
aðbúnaðar 1948, bezta að-
hlynning í Canada.
Hafa greitt
$40.00 á mánuði í meira
en ár.
í Ontario
Allt að $750.00
fyrir eitt barn á ári.
Stjórnartillag
í Ontario
50% til 90%.
- EN ÞETTA ERU AÐEINS NOKKUR DÆMI
í Kverju einasta tilfelli — hefir Progressive Conservative flokk-
urinn farið langt fram úr hinum flokkunum
Vegna farsælli Canada
skuluð þér tryggja
PROGRESSIVE CONSERVATIVE FRAMBJÚSANDA
BRANDON
J0HN BRACKEN
CHURCHILL
R0BERT F. MILT0N
DAUPHIN
MIKE F. SZEWCZYK
LISGAR
D. HEPPNER
MARQUETTE
JAMES JACKS0N
yðar kosningu.
NORQUAY
WALTER K0SH0WSKI
PORTAGE-NEEPAWA
HAR0LD A. NELS0N
ST. BONIFACE
L0UIS LEGER
SELKIRK
JACK McD0WELL
SOURIS
J. ARTHUR R0SS
Manitoba Progressive Conservative Association
SPRINGFIELD
J. LESLIE BODffi
WINNIPEG NORTH
J0HN H. RESTALL
WINNIPEG NORTH CENTRE
R. R. PATTINS0N
WINNIPEG SOUTH
G. S. TH0RVALDS0N
WINNIPEG SOUTH CENTRE
G0RD0N M. CHURCHILL