Lögberg - 15.09.1949, Page 3

Lögberg - 15.09.1949, Page 3
LOGBEKG, FIMTUDAGINN. 15. SEPTEMBER, 1949 3 Kornið á Sámsstöðum hefir dafnað vei í sumar þrátt fyrir kuldana Viðtal við Klemens Kristjánsson bónda að Sámsstöðum Kornið á Sámstöðum hefir dafnað vel í sumar, eftir að sumarið kom í raun og veru. En vorið var kalt og ekki var hægt að sá fyrr en um það bil hálfum mánuði á eftir áætlun, ef svo mætti að orði komast og uppskeran í haust verður ekki fyrr en um miðjan september. Það fer því fyrst og fremst eftir veðrinu þangað til, hvort vel tekst til með kornræktina að þessu sinni, en horfur eru ágætar, sagði Klemens Kristjánsson bóndi á Sámstöðum í viðtali, sem blaðamaður frá Tímanum átti við hann í gær. Kornið er ekki ótryggara en er hver önnur ræktun hér á landi, segir Klemens, það höfum við séð enn einu sinni í sumar. Það eru margir vantrúaðir þegar ég held þessu fram, en dæmin eru deginum ljósari og það er skoð- un mín, að íslendingar geti og eigi að rækta alt fóðurkorn sitt sjálfir og nokkuð af manneldis- korni. Þar er mikið verkefni fyr ir íslenzkan landbúnað og með því væri hægt að spara mikinn gjaldeyri og nýta betur hina ís- lenzku jörð. I vor áraði einstaklega illa fyr ir kornræktina. Kuldar og frost héldust lengi fram eftir, svo að ekki var viðlit, að sá fyrr en kom fram í maímánuð. En fyrri hluta þess mánaðar var korn- inu sáð á Sámstöðum. Ef alt er með felldu, þá er sáð á tíma- bilinu 20.—30. apríl. Við vorkuldana bættust svo enn meiri örðugleikar fyrir korn ræktina. En sumarið hefir ver- ið fremur kalt fram til síðustu mánaðamóta, en þá hlýnaði. Júní og júlímánuður var óvenju kaldur en þrátt fyrir það er korn ið ekki nema 10 —15 dögum síðbúnara í sumar en venjulega í góðum sumrum. Kornið er byrjað að safna í sig mjölva og lítur fallega út. Að þessu sinni eru átta hektarar undir korni á Sómstöðum, aðallega bygg og hafrar. Af bygginu er bezt Roja byggið norska. Það er fljótvaxið en þolir illa haust- veðrin. Færeyska byggið er hins vegar ekki eins fljótþroska, en þolir hins vegar betur haust- veðrin hér. Kartöfluræktin er að þessu sinni lélegri að tiltölu en korn- ræktin og útlit fyrir að kartöflu uppskeran verði mun minni í haust en venjulega. Um heyskapinn í Fljótshlíð- inni er það að segja, að hann hefir gengið vel. Bændur eru yfirleitt búnir að ná heyjum sín um upp og margir langt komnir með túnin. Að Sámstöðum hafa í sumar verið gerðar tilraunir með hrað þurrkun á heyi til mjölgerðar. Tilraunum er ekki lokið, en út- lit fyrir að þessi heyþurrkunar- aðferð sé nokkuð dýr eða 9 — 25 aurar á kg. af heyi, og bezt er að það sé nokkuð þurrt áður en þurrkunin hefst. TIMINN, 12. ógúst TIL VILBORGAR OG VIGFÚSAR GUTTORMSSONAR á fimtugasta giftingarafmœli 1949. Mér finst ég standa á háum hæðum og horfa yfir dali og hlíðar. Blóðið rennur ört í æðum við endurminning horfnrar tíðar. Eftir marga áratugi, enn er geymt í munasjóði vinarþel, sem vakti hugi vina og frœnda í rœðu og Ijóði. Vér óskum þess af heilum huga > að heillaguðinn ykkur leiði, og kæti meðan kraftar duga kœrleikssólin björt í heiði. Mun um ótal áratugi ávalt geymt í munasjóði, vinarþel, sem vermdi hugi, vina og frœnda í ræðu og Ijóði. A. S. BARDAL Verður hafin vinnsla úr sojabaunum í verksmiðjunni í Orfirisey? Lýsi og fóður unnið úr þeim á svipaðan hátt og síld og hval Baunirnar yrðu fluttar inn frá Afríku Sú hugmynd, að hefja vinnslu sojabauna í nýju verksmiðjunni í Örfirisey, munu nú vera alvarlega rædd. Vinnsluaðferð þessara bauna er mjög svipuð og vinnsluaðferð síldar eða hvals. Þegar lýsið hefir verið pressað úr hráefninu, verður eftir mjöl, og eru úr því unnar fóðurkökur. Ætti þá að vera hægt að vinna úr hverju þessara þriggja hráefna sem er: síldinni, hvalnum eða sojabaununum, eftir því sem aðstæður gefa tilefni til. Sojabaunin er ein mesta nytja planta veraldarinnar, og hefir sökum næringargildis verið köll uð „lífbaunin“. Er hún mjög mik ið. notuð til matar og ýmissar vinnslu um allan heim, en mesta þýðingu hefir hún þó sem fæða fyrir Kínverja og Japani. Baun- in hefir verið til margra hluta notuð, en mesta þýðingu mun (Frh. af bls. 2) alt. Ég aflaði vel og mér gekk alt að óskum. Ég fékk stúlkuna, sem ég vildi. eiga og hún var mér elskuleg kona“. — Hjörtur Jósep steinþagnaði og Daníel óttaðist að hann ætlaði ekki að halda sögunni lengra á- fram, en hann þorði vart að anda, því síður að spyrja, því nú þóttist hann viss um að það væri harmsaga af einhverri teg- und, sem hann var á leið að heyra. „Við vorum búin að vera gíft í nokkur ár og áttum sjö ára dreng. — Efnilegan dreng. — Ég var að flytja mig heim úr verinu. Það var löng leið að fara. Ég hlóð skipið alt sem mátti í logni og háan búnka þar á meðal. Konan mín og drengur- inn sátu upp á háferminu. Það var logn þegar við fórum af stað, en þegar við vorum komin nokkuð á leið tók að kula dá- lítið og sjór að ýfast. — Konan varð hrædd og beiddi mig að lenda í næstu vör og láta sig og drenginn þar af.--------Hún beiddi mig oft“. Hjörtur Jósep þagnaði og Daníel sá tár hrynja niður kinn hans. Daníel var nú viss um hvað koma myndi. Hér var, að nokkru leyti, annar Eggert Ólafsson, sem enginn hafði skráð. Hjörtur Jósep strauk harðri, vinnuslitinni hendi yfir kinn sér til að þurka tárið, en þá hrundi annað tár niður hina kinnina. Hann þurkaði það einnig og hélt svo áfram. „Ég varð ekki yið ósk hennar. Að vísu var það ekki alt ónærgætni. Það er afar erfitt að lenda með háfermi. Maður á á hættu að missa farminn í sjó- inn, en lenda þurfti ég auðvitað, á endanum þegar ég kæmi þang að, sem ferðinni var heitið. — Mér fannst líka að þetta væru hálfgerð brek úr henni og að hræðsla hennar væri ekki á rök- um byggð. Mér, sem var hraust- ur og duglegur sjómaður, myndi lukkast að koma skipi og farmi í höfn. — Svo að ég sigldi fram hjá vörinni, sem hún grátbeiddi mig u mað lenda í“. Aftur þagnaði Hjörtur Jósep og aftur vogaði Daníel sér ekki að segja orð. Og enn aftur strauk vinnuslitin hendin tár af and- liti mannsins. „Við vorum komin nokkuð fram hjá þessari vör. Það hækk aði storminn og þyngdi í sjóinn. Öldurnar smástækkuðu, risu hærra smátt og smátt. Það fór að smá gefa á. — Loks kom all- stór alda, skall á skipshliðinni, henti um háferminu og í sjóinn og þeim þar með, sem á háferm- inu voru. — Skipið fór um og við fórum allir , sjóinn líka. Eft- ir stundar bið komumst við tveir á kjöl. Einn háseta minna og ég. Rétt er við vorum komnir þar, skaut upp bæði konu minni og syni, nokkuð frá okkur“. — — Það var eins og eitthvað væri gersamlega brotið í Hirti Jósep, er þarna var komið sögunni, svo að hann gat ekki haldið á- fram. Hann virtist setja alla sína orku í það, að láta Daníel ekki sjá að hann táraðist, en tárin runnu samt niður veðurbarið andlitið. Daníel varaðist að hreyfa sig. „Ég sagði við hinn manninn", hélt Hjörtur áfram, eftir stund- arkorn. „Guð almáttugur hjálpi mér, þarna er konan mín að drukkna og sonur minn og ég get ekki bjargað þeim“. „Þá sagði hinn maðurinn. Þegiðu, andskotans asninn þinn. Þú vildir ekki hlusta á, þegar hún bað þig að lenda með sig í Vör“. „Ég fann ég átti þetta skilið. — Ég sá þau sökkva“. Þeir sátu um stund hljóðir og horfðu á móinn, sem þeir sátu í. Spörvi flaug fram hjá þeim. Þeir stóðu upp. „Þakka þér fyrir að segja mér þessa sögu“, sagði Daníel um leið og þeir lögðu af stað heim- leiðis. „Nú skil ég af hverju þér er ekki eins mikið um sjóinn gefið og fyrpum“. „Já, Daníel minn. Ég hef al- drei verið neinn verulegur sjó- maður síðan þetta skeði. Ég hef bara gutlað dálítið á innmiðum á smábátum og ég verð strax hræddur þegar fer að hvessa og til með að gefa allskonar hlægi- legar fyrirskipanir, sem greina- góðir sjómenn brosa að. En pilt- ar mínir vita hvernig mér er varið og þeir einir fara með mér. sem kæra sig ekki um að fara harðara en ég fer. í stórsjóferð- ir get ég ekki farið. Það 'situr við það. Er þeir komu heim undir bæ- inn, staldraði Hjörtur Jósep aft- ur. Hann bar engin veruleg merki þess að hann hefði tár- felt, var aðeins kyrlátur og al- var legur og það var hann að öllum jafnaði. „Fyrst að þú óskaðir svo mjög að ég segði þér þessa sögu, Daníel minn, þá skal ég láta eina áminningu fylgja henni. Það er aðeins í annað skipti að ég segi frá henni. Reyndu ævin- lega að gjöra mun á dugnaði og gapaskap, sérstaklega þegar aðr- ir eiga í hlut. Það er hægt augnabliki að henda frá sér gæf unni, eins og þú sérð á þessu. Og maður eyðileggur aldrei svo annara líf að maður beri þess ekki bitrustu menjarnar sjálf- ur“. . Svo gengu þeir rakleiðis og þegjandi heim í bæinn. þó olían og fóðurkökurnar, sem fást við olíuvinnsluna, hafa. Með al nágrannaþjóða okkar hafa Danir mikla baunavinnslu. Aust ur-Asíufélag þeirra flytur baun- irnar til Danmerkur, en þar eru miklar verksmiðjur. Fóðurkök- urnar hafa að sjálfsögðu geysi- mikla þýðingu fyrir landbúnað- inn í Danmörku. Eins og kunnugt er, verður vinnsluaðferð hinar nýju verk- smiðju með öðrum og fullkomn- ari hætti en í eldri síldarverk- smiðjum. Mun það gera bauna- vinnsluna mögulega, þótt vinnsluaðferðin sé annars í stór um dráttum lík síldarvinnslu. Ef til kemur að baunavinnsla verður hafin í Örfirisey, verða baunirnar væntanlega keyptar frá Afríku. Byggingu verksmiðjunnar miðar nú allvel áfram. Tvö stór verksmiðjuhús hafa risið upp, skemman, sem flutt var sunnan af Keflavíkuflugvelli, og nýtt steinsteypt verksmiðjuhús norð an hennar. Steypt hefir verið í gabla skemmunnar, en í henni á að fara fram forvinnsla hrá- efnisins. Aðalvinnslan fer hins vegar fram í nýju byggingunni, sem er fjögurra hæða há, og er nú verið að steypa éfstu hæð- ina. Mikið af vélum hefir verið sett niður í verksmiðjuna, bæði í skemmunni, og svo hafa sum- ar vélar verið settar í nýja hús- ið jafnóðum og það var steypt a upp. Sunnan við skemmuna eru tveir geymar, sem verða síldar- þrær, en að vestanverðu er ketil hús og tveir geymar lýsisgeymir og olíugeymir. Lítið er byrjað á bryggj ubyggingu, nema hvað nokkrir staurar hafa verið rekn- ir niður. Alþýðublaðið, 31. júlí Business College Education In these modern times Business College Education is not only desirable but almost imperative. The demand for Business College Educa- tion in industry and commerce is steadily increasing from year to year. Commence Your Business TrainingImmediately! For Scholarships Consult THE COLUMBIA PRESS LIMITED PHONE 21804 695 SARGENT AVE., WINNIPEG Business and Professional Cards SELKIRK METAL PRODUCTS LTD. Reykháfar, öruggasta eldsvörn, og ávalt hreinir. Hitaeining, ný uppfynding, sparar eldiviS, heldur hita. KEIíIjY SVEINSSON Sími 64 358. 187 Sutherland Ave., Winnápcg. S. O. BJERRING Canadian Stamp Co. RUBBER & METAL STAMPS NOTARY & CORPORATE SEALS CELLULOID BUTTONS 324 Smilh Sl. Winnipeg Phone 924 624 Office Ph, 925 668 Res, 404 319 NORMAN S. BERGMAN, B.A., LL.B. Barrister, Solicitor, etc. 411 Childs Bldg, WINNIPEG CANADA sé ÍetosiíFí 447 Portage Ave, Also 123 TENTH ST. BRANDON Ph, 926 885 Phone 21 101 ESTIMATES FREE J. M. INGIMUNDSON Asphalt Roofs and Insulated Siding — Repairs 632 Simcoe St. Winnipeg, Man. DR. A. V. J'OHNSON Dentist 606 SOMERSET BUILDING Telephone 97 932 Home Telephone 202 398 Talalml 925 826 Helmllla 53 893 DR. K. J. AUSTMANN Sérfrœöingur i augna, eyrna, nef oo kverka sjúkdómum. 209 Medical Arts Bldg. Stofutimi: 2.00 til 5.00 e. h. DR. ROBERT BLACK Sérfrœöinpur i augna, eyrna, nef og hálssjúkdómum. 401 MEDICAL ARTS BLDG Graham and Kennedy St. Skrifstofusfml 923 851 Heimaslmi 403 794 EYOLFSON’S DRUG PARK RIVER, N. DAK. isletyekur lyfsali Fölk getur pantaC meOul og annaO meB pösti. Fljðt afgreiCsla. A. S. B A R D A L 848 SHERBROOK STREET Selur líkkistur og annast um flt- farir. Allur útbúnaCur sá beztl. Ennfremur selur hann allskonar minnisvarOa og legsteina. Skrifstofu talsimi 27 324 HeimlUs talsfml 26 444 Dr. P. H. T. Thorlakson WINNIPEG CLINIC St, Mary's and Vaughan, Wpg. Phone 926 441 Phone 927 025 H. J. H. Palmason, C.A. H. J. PALMASON & CO. Chartercd Accountants 305 Confederation Life Bldg. Winnipeg Manitoba Phone 49 469 Radio Service SpeciaUsts ELECTRONIC LABS. B. THORKELSON, Prop. Thé most up-to-date Sound Equtpment System. 592 ERIN St. WINNIPEG PARKER, PARKER & KRISTJANSSON Barrislers - Solicitors Ben C. Parker. K.C. B. Stuart Parker, A. F. Kristjansson 500 Canadian Bank of Commerce Chambers Winnipeg, Man. Phone 923 561 JOHN A. HILLSMAN. M.D.. Ch. M. 332 Medical Arts. Bldg. OFFICE 929 349 Home 403 288 Phone 724 944 Dr. S. J. Jóhannesson SUITE 6 — 652 HOME ST. ViBtalstlml 3—6 eftir hádegl DR. E. JOHNSON 304 EVELINE STREET Selkirk. Man. Offlee hrs. 2.30—6 p.m. Phones: Office 26 — Rea. 230 Offlce Phone 924 762 Dr. L. A. Sigurdson 528 MEDICAL ARTS BLDG. Office Hours: 4 p.m.—6 p.m. and by appolntment SARGENT TAXI Phone 722 401 FOR QUICK RELIABLE SERVICE Andrews, Andrews, Thorvaldson and Eggertson Löofrœöinoctr 209BANK OF NOVA SCOTIA BQ. Portage og Oarry 8t. Phone 928 291 Res Phons 726 115 Drs. H. R. and H. W. TWEED Tannlœknar 406 TORONTO GEN. TRUST8 BUILDINQ Cor. Portage Ave. og Smith St. Phone 926 952 WINNIPEO Cars Bought and Sold SQUARE DEAL MOTOR SALES "The Working Man’s Friend” n. -ititi 297 Princess Street rn. /0404 Haif Block N. Logan J. J. SWANSON & CO. LIMITED 308 AVENUE BLDO WPQ. Fasteignasalar. Leigja hús. Ot- vega peningalán og eldsábyrgC. bifreiCaábyrgO, o. s. frv. Phone 927 638 GUNDRY PYMORE Limited British Quality Fish Netting 68 VICTORIA ST„ WINNIPEQ Phone 98 211 Uanager T. R. THORVALDSON STour patronage will be appreciated C A N A D I A N FISH PRODUCERS, LTD. J. H. PAOE, Managing Director Wholesale Dlstributors of Fr'áeh and Frozen Fish. 311 CHAMBERS STREET Office Ph. 26 328 Res. Ph. 73 917 G.'F. Jonasson, Pres. & Man. Dir. Keystone Fisheries Limited 404 SCOTT BLK, Slmi 925 337 Wholesale Distributors of FRESH AND FROZEN FISH

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.