Lögberg


Lögberg - 08.12.1949, Qupperneq 1

Lögberg - 08.12.1949, Qupperneq 1
PHONE 21 374 IA*1yS A Complele Cleaning Inslilulion PHONE 21 374 S A Complele Cleaning Insliiulion 62. ÁRGANGUR WINNIPEG, FIMTUDAGINN, 8. DESEMBER, 1949 NUMER 48 Victor Borge, víðfrægur, danskur píanisti Ur borg og bygð Á mánudagskvöldið þann 12. þ. m., efnir Victor Borge, þessi danski, víðfrægi píanisti og einleikari til hljómleika í Winnipeg Audi- torium fyrir atbeina Celebrity Variety Series; hann er fæddur í Kaupmannahöfn, og vakti sem barn á sér óhemju athygli vegna meðfæddrar töfragáfu í píanóleik; hann hefir ferðast þvert og endilangt um Norðurálfu og Bandaríkin, og heillað miljónir undr- andi hlustenda. Radio og Raftækjastofan Óðinsgötu 2, Reykjavík, lcéland P. O. Box 735. CABLES: ROR Reykjavík, 25. nóv. 1949 Vikublaðið LÖGBERG, Winnipeg. Herra ritstjóri! Við leyfum oss hér með að fara þess á leit, að þér komið á framfæri, í blöðum yðar eða á annan hátt, þeirri orðsendingu, að fyrirtæki okkar, RADIO & R AFTÆK J ASTOF AN, Óðins- götu 2, Reykjavík, starfar að samsetningu og útgáfu íslenzkra 16m/m fræðslu og kynningar kvikmynda með íslenzku tali. (Einnig útgáfur á ensku, ef eftir spurn leyfir). Sömuleiðis getum við skaffað héðan erindi eða fræðsluþætti og annað þvílíkt efni á hljóm- plötum. Nú þegar, höfum við á boð- stólum 1600 feta 16m/m litkvik- mynd, er fjallar um Heklugosið 1947. Myndin er gerð af hr. Ós- valdi Knudsen, og þykir stór- merk bæði erlendis og hér heima, enda sýnir hún glóandi hraunstrauminn í nærsýn, og ennfremur er skyggnst niður í sjálfan gjósandi gíginn. Skýr- ingar flytur Pétur Pétursson útvarpsþulur, einnig er íslenzk tónlist í myndinni. Einnig mundum við geta tek- ið að okkur að gera kvikmynda- þætti um ákveðið íslenzkt efni ef þess væri óskað. Sömuleiðis getum við skaffað litfilmur (35m/m Slides) er sýna náttúru fegurð landsins, ýms mannvirki og margt annað. Oss væri kærkomið að þeir aðilar er áhuga hafa á þessum málum, skrifuðu okkur og bæru fram óskir sínar um leigu eða kaup á íslenzkum kvikmyndum og öðru efni. Með fyrirfram þakklæti fyrir aðstoð yðar, Virðingarfyllst, pr. Radio og Raftækjastofan Magnús Jochumsson Endurskoðuð lög samþykkt Eftir hálfsmánaðar bitrar og brennandi umræður, afgreiddi sambandsþing endurskoðaða og að nokkru breytta löggjöfina, er það hefir að markmiði að fyrir- byggja verzlunareinokun og lagssamsæri í landinu. Stjórn- in beitti sér fyrir breytingun- um vegna þess ískyggilega við- horfs, sem skapast hefði í tilefni af skýrslu McGregors, er að því laut, að ýmissar hveitifram- leiðsluverksmiðjur hefðu bund- ist samtökum um að fastbinda verð hveitimjöls að eigin vild; stjórnin sætti eins og vænta mátti alvarlegum ákúrum fyrir það, að hafa haldið skýrslu Mc Gregors leyndri í tíu mánuði í stað þess að leggja hana fram í þingi innan fimtán daga eins og lög mæltu fyrir. Dómsmálaráð- herrann Stuart S. Garson lýsti yfir því, að ef breytingartillög- ur stjórnarinnar fengju fram- gang, skyldi hann ábyrgjast að málsókn yrði hafin gegn þeim félögum, sem grunur hefði fall- ið á um verðlagssamsæri. Skemtilegur Þjóðræknisfundur Fróns Þakkarorð Ekkja Márusar Sigurgeirs- sonar, hin unga dóttir þeirra, foreldrar hans og systkini, þakka af hrærðum huga þá innilegu samúð, er þeim öllum var látin í té við sviplegt fráfall þessa unga og elskulega manns; þau þakka hin fögru kveðjumál prestanna, þeirra séra Bjarna A. Bjarnasonar og séra Skúla Sigur geirssonar, og hinn yndislega söng þeirra mæðgnanna, frú Lilju Thorvaldson og ungfrú Evelyn Thorvaldson; þau þakka hina mörgu og yndislegu blóm- sveiga, er prýddu kistu hins látna, svo og hinum fjölmenna söngflokki Rivertonbæjar, er söng í kirkjunni; þau þakka einn ig samúðarskeytin víðsvegar að og öllum þeim mikla mann- fjölda, sem viðstaddur var við húskveðjuna og kveðjumálin í kirkjunni, og biðja vinum sín- um fjær og nær guðsblessunar í bráð og lengd. Hr. Soffanías Thorkelsson rit- höfundur biður þess getið, að hið nýja heimilisfang sitt sé að 100 Uganda Avenue, Victoria, British Columbia. Mr. Thorkels- son á bréfaviðskipti við marga menn, er fýsir að vita um bú- stað hans. ☆ Heimilisiðnaðarfélagið heldur næsta fund að heimili Mrs. C. S. Johnston, Ste. 16 A. Curtis Apts., Smith og Broadway, á þriðjudagskvöldið þann 13. þ.m. kl. 8. ☆ ANNUAL TEA The Ladies' Aid of the First Federated Church will hold the annual Silver Tea, Home Cook- ing Sale and Bazar in the T. Eaton Co. auditorium Tuesday, December 13th, from 2.30 to 5.00 o’clock. Many suitable Christmas gifts will be offered. — A wel- come is extended to all. ☆ Vitnisburður Dr. Pilchers Fyrir nokkru síðan, í október mánuði, fékk ég bréf frá vor- um hjartkæra íslandsvini, Dr. C. V. P. Pilcher, sem er biskup í Sydney, í Ástralíu, þar sem meðal annars, þessi orð standa: „have been reading a good deal of our much loved Jóns Bjarnason’s Rit og Ræður. What an exquisite instrument be- comes in his hands. Few, if any* whriters have a greater mastery of it than he“. Ég vildi, að menn sæju orð hans nákvæmlega eins og hann ritaði þau. Menn geta þá lagfært það, sem er ófullkomið í tilraun minni að þýða á íslenzku: „Ég hefi þegar lesið allmikið í bók vors hjartkæra Jóns Bjarnason- ar, Ræður og Rit. Aðdáanlegt undraverkfæri verður íslenzk- an í hans höndum. Fáir, ef ann- ars nokkrir rithöfundar hafa náð því valdi í meðferð máls- ins, sem hann hefir náð“. Ef til vill setur einhver út á hvernig ég þýði enska orðið, „exqusite“. í orðabókinni er það þýtt frábært; það orð er kalt, en í enska orðinu er tindr- andi fegurð og ylríkir tónar. Það væri holt fyrir alla, sem nota íslenzka tungu, að athuga vitnisburð þessa gáfaða og göf- uga fræðimanns. Rúnólfur Marteinsson ☆ Gamanleikur í þremur þátt- um verður sýndur í samkomu- húsi Gimlibæjar næsta föstudags kvöld kl. 8. Leiksýning þessi fer fram að tilhlutan sambandssafn- aðar á Gimli. ☆ Chris Halldórsson þingmaður St. George kjördæmisins, er ný- kominn til borgarinnar ásamt fjölskyldu sinni til dvalar fram yfir næsta fylkisþing, er hefjast mun síðari hluta janúarmánað- ar. Ársfundur „Fróns“, sem hald- ínn var síðastliðið mánudags- kvöld var allvel sóttur og fór hið bezta fram. Þetta var kosn- inga fundur, voru lagðar fram skýrslur og góð greinargerð gef- in yfir starf og afkomu félagsins á starfsárinu. í stjórnarnefndina voru allir endurkosnir nema einn sem ekki gat gefið kost á sér, en í hans stað kom Jón Jóns- son, frá Piney. Þessir skipa nefndina: Forseti, Tryggvi Oleson; Vara- forseti, Steindór Jakobsson; Rit- ari, Heimir Thorgrímson; Vara- ritari, Davíð Björnsson; Féhirð- ir, Jochum Asgeirsson; Vara- féhirðir, Petur Peturson; Fjármálaritari, Jón Jóns^on, frá Piney; Vara-fjármálaritari, Örn Thorsteinsson. Yfirskoðunarmenn reikninga voru endurkosnir þeir, G. L. Jóhannsson og J. T. Beck. Að kosningum afstöðum flutti Lauga Jóhannesson, ágætt er- indi um ferð sína til íslands á síðastliðnu sumri, sem var bæði skipulegt og vel flutt og er hún hafði lokið máli sínu, sýndi A. S. Bardal nokkrar myndir frá ís- landi, sem Mrs. Jóhannesson voru gefnar heima og voru bæði af landslagi og fólki, flestar úr Mývatns sveitinni. Þetta var mjög ánægjuleg kvöldstund. Kirkjufundinum lokið: Vill að kennd verði kristinfrœði í opinberum skólum Hinum almenna kirkjufundi, sem hófst s.l. sunnudag, lauk í gærkveldi með kaffisamsæti í húsi K.F.U.M. Fulltrúar, sem orðnir voru á annað hundrað, voru þar flestir viðstaddir. Fundurinn í gærmorgun hófst Vel að verki verið Nýlega hefir Eggert Peter- son, sem nám stundar við Uni- ited College, hlotið hundrað dollara verðlaun fyrir frábæra alúð og dugnað við nám; þetta eru fjórðu námsverðlaunin, sem þessum unga og gáfaða manni hafa hlotnast. Foreldrar Eggerts eru þau Mr. og Mrs. Sveinbjörn Peterson, sem búsett eru að Pine River hér í fylkinu. með morgunbænum, sem Jó- hannes Sigurðsson prentari ann- aðist. Síðan var rætt frumvarp til samþykkta fyrir hina al- mennu kirkjufundi, þar sem engar slíkar samþykktir voru til. Voru þær síðan bornar undir at- kvæði og samþykktar. Kl. 11 f.h. flutti Robert Abra- ham stórfróðlegt erindi um kirkjuhljómlist á dögum Lúth- ers. Kl. 2 e.h. var fulltrúum fund- arins ásamt fleirum boðið að sjá hina ágætu kvikmynd „Dásemd- arverk sköpunarinnar“ í Stjörnu bíó, en að sýningu lokinni bauð kirkjugarðsstjórn fundarmönn- um að skoða hina glæstu kapellu í Fossvogi. Knud Zimsen fyrrv. borgarstjóri skýrði frá ýmsu, er að byggingunni laut. K1 .4 hófust fundir að nýju og voru þá ræddar og bornar undir atkv. nokkrar samþykktir. Tvær þeirra bar allsherjarnefnd upp, og fara þær hér á eftir. Sú fyrri hljóðar svo: „Almennur kirkjufundur hald inn í Reykjavík 30. október — 1. nóvember 1949 lítur svo á að kenna beri kristin fræði í öllum opinberum skólum á grundvelli hreinnar evangelisk-lútherskrar kenningar. í öllum bekkjum framhaldsskóla skal því, auk biblíusagna í fyrstu bekkjum gagnfræðistigs, lögð stund á kirkjusögu og kristilega trúar og siðfræði. — Markmið kennsl- unnar sé að auka nemendum trú og efla siðgæðisþroska þeirra. Séu í því skyni lesnir og skýrðir valdir kaflar úr Heilagri ritn' ingu, svo og úrval úr kristileg- um bókmenntum þjóðarinnar bundnu og óbundnu máli. — Til þessað koma framanskráðu framkvæmd er nauðsynlegt að endurskoða biblíusögur fyrir barnaskóla og semja námsbók trúar- og siðfræði og ágrip af kirkjusögu fyrir framhaldsskóla svo og kristilega lestrarbók. — Enn fremur óskar fundurinn þess, að nemendum Kennara skólans sé gefinn kostur á að kynnast sem bezt þeim kennslu tækjum og gögnum, sem notuð eru í nálægum löndum.“ Hin samþykktin hljóðar svo: „Hinn almenni kirkjufundur 1949 beinir þeirri eindregnu ósk til presta landsins, að þeir vinni að því, hver í sínu prestakall, að skólastarfið hefjist á hverjum morgni með bæn.“ Að þessum umræðum loknum var gengið til kosninga í undir- búningsnefnd fyrir næsta al- menna kirkjufund. Að kosningum loknum fluttu Deir séra Lárus Halldórsson og Siguður Magnússon stud. theol. erlend kirkjutíðindi, en þeir dvöldu ytra á s.l. sumri. Kl. 6 e.h. var svo altarisganga Dómkirkjunni, sú fjölmenn- asta, sem verið hefir á þessum kirkjufundum. Það er einróma mál allra jeirra, sem þennan fund hafa sótt, að hann hafi tekizt með miklum afbrigðum, bæði að því er snertir mikla fjölbreytni og ágætan fundarbrag. Sá gleðilegi viðburður varð og að á þessum fundi gengu rúmir 70 nýir félagar í Hið íslenzka Biblíufélag og greiddu um leið árstillag sitt. Var sú ósk látin fylgja, að félagið tæki nú til ó- Palmi Palmason Joins Staff of Bornoff School Palmi Palmason, well-known violinist, and member of the first violin section of the Winni- peg Symphony orchestra, has joined the Bornoff School of Music staff. Mr. Palmason will be associated with John Konrad director of the school, in the teaching of advanced students. Mr. Palmason brings a wide knowledge in solo and orchest- ral work to his newly assumed duties. He is a member of the Icelandic colony of Winnipeg, and was born at Winnipeg Beach. He studied with John Water- house as did his noted sister, Pearl Palmason, of Toronto, who appeared in recital at Town Hall, New York. Mr. Palmason has been active in concert, symphony and radio work for many years. During the war, he served five years with the R.C.A.F. as wireless air gunner in various war sector, including the Middle East. He was discharged from the airforce in July of 1945. Besides his work with the symphony Mr. Palmason is a member of the CBC Concert orchestra. He lived in Toronto three years and studied with Kathleen Parlow, and taught violin at the Hambourg Conser- vatory of Music. Following the war he studied in New York with Demetrius Dounis. —Winnipeg Tribune, Dec. 3rd. um útbreiðslu fræðslurita um spilltra mála Biblíunnar og hana. Fundurinn skilur eftir spor, sem væntanlega og vonandi hafa nokkra þýðingu fyrir kristnilíf þjóðarinnar. Vísir, 2. nóvember Rt. Hon. Winston Churchill Þann 30. nóvember síðastlið- inn átti hin mikla sigurhetja brezku þjóðarinnar, Winston Churchill, sjötíu og fimm ára afmæli, og var þá hylltur ákaft af þjóð sinni án tillits til póli- tískra flokka; brezk blöð fluttu í tilefni af afmælinu lofsamleg ummæli um hinn mikla leiðtoga og frelsishetju samtíðarinnar; blaðið Daily Express komst meðal annars þannig að orði: . „Njóti helmingur mannkyns- ins persónufrelsis um þessar mundir, á það engum einum jafn mikið upp að unna og Winston Churchill; en sé hinn helming- urinn enn í ánauð, hugsar hann til þessa mikla manns sem lík- legasta mannsins til að létta af þeim kúguðu ánauðarokinu".

x

Lögberg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.