Lögberg - 19.01.1950, Page 3
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 19. JANÚAR, 1950
3
BERNSKUÁR AFBURÐAMANNA
Grunnhyggnir foreldrar, sem eru þeirrar skoðunar, að born
þeirra eigi í vændum að verða einhverjir snillingar, gera sér oft
og einatt ekki í hugarlund, hvað orðið undrabarn þýðir. „Snilli-
gáfa“ er ákaflega misskilið skapeinkenni. Ótrúlega stór hópur
manna hefur gáfur og hæfileika til þess að geta unnið alveg sérstök
afrek á ýmsum sviðum, en flest-
ir þeirra fá aldrei hið rétta tæki-
færi til þess að sýna þessa yfir-
burði sína. Mjög þýðingarmiklar
og athyglisverðar athuganir hafa
verið gerðar, sem sýna á hvern
hátt hægt er að fylgjast með því
í bernsku manns, hvort hann býr
yfir skapeinkennum snillingsins.
Hér á eftir verða birt nokkur
dæmi um það, hvernig ýmis ein-
kenni, sem fram komu í bernsku
nokkurra afburðamanna, gáfu
tilefni til að ætla, að þeir yrðu
eitthvað meira en meðalmenn.
ísak Newton, sem fann þyngd-
arlögmálið, hafði 170 gáfnastig
og er þá miðað við það, að með-
almaður hafi 100 gáfnastig.
Strax í bernsku fékk Newton
mikinn áhuga fyrir vélfræðileg-
um viðfangsefnum. Hann hafði
unun af því, að búa til alls kon-
ar vélar, eins og til dæmis vatns,
klukku, vindmyllu o.s. fyrv.
Hann var sérstaklega rólyndur
drengur og dagfarsgóður, sem
eyddi löngum stundum til þess
að finna upp og útbúa ýmiskon-
ar leiki fyrir jafnaldra sína.
Menntun hans var í meðallagi.
Um hríð var hann mjög neðar-
lega í skólanum, enda hafði hann
á því tímabili meiri áhuga fyrir
öðru en náminu. Loks kom að
því, að hann sá sig um hönd,
honum sárnaði við sjálfan sig,
hversu neðarlega hann var í
bekknum og þá sótti hann í sig
veðrið og las öllum stundum.
Ekki var langur tími liðinn, þar
til hann náði því takmarki, sem
hann hafði sett sér — hann varð
efstur í sínum bekk. Newton
kaus heldur félagsskap við stúlk-
ur en drengi og þegar hann var
aðeins 14 ára að aldrei hitti hann
stúlku, sem hann vildi þegar í
stað kvænast.
William Penn, sá er stofnaði
Pennsylvaniu, var strax í barn-
æsku mjög trúhneigður. Aðeins
ellefu ára gamall varð hann virk-
ur þátttakandi í öllum málefnum
föður síns og um svipað leyti fór
hann að gefa sig verulega að
trúmálum. Hann var sanntrúað-
ur Guðsmaður.
I skóla var hann framúrskar-
andi duglegur. Gáfnastig hans
voru 150.
Á námsárunum sóttist hann
eftir samfélagi við fólk á öllum
aldri, sem var trúað og prúð-
mannlegt í framkomu. Hann
hafði mikla löngun til þess að
kynnast mönnum, sem voru
hæfileikamenn á einhverju sviði.
Meðal hinna fyrstu ritverka
hans er harmkvæði, er hann orti
á latínu, um dauða bróður
Englakonungs, er þá var við
völd. Þykir þetta mesta snilldar-
verk. Er hann var 24 ár gamall,
hélt hann fyrstu prédikun sína
opinberlega, en hún fjallaði að-
allega um kenningu Kvekara.
Fyrir ritgerð, sem hann skrifaði,
var hann tekinn fastur og hafður
í haldi í Tower og þar reit hann
síðan hin beztu og frægustu
verk sín.
John Stuart mill, var heims-
spekingur og hagfræðingur.
Hann hafði fleiri gáfnastig, en
nokkur annar, eða 190. Hann var
ekki nema þriggja ára að aldri,
er hann byrjaði að nema grísk
fræði og 8 ára var hann tekinn
til við latínuna. Vegna bráð-
þroska síns átti hann í bernsku
ekkert 'eða lítið samneyti við
jafnaldra sína, en umgekkst full-
orðið fólk sem andlega full-
þroskaður maður. Aðeins 12 ára
rökræddi hann af miklum skiln-
ingi um heimsspeki við föður
sinn og ári síðar hafði hann tek-
ið ákveðna stefnu í hagfræði,
sem hann síðar hélt. Sextán ára
gamall reit hann sögu Rómar-
borgar og er hún nú talin ágætt
heimilidarrit. John Stuart Mill
var óviðjafnanlegur rökfræðing-
ur og var gæddur framúrskar-
andi hæfileikum til þess að gagn-
rýna og endurbæta undirstöðu-
atriði stærðfræðinnar.
Wolfgang Amadeus Mozart,
tónskáld og hljóðfæraleikari,
hafði 155 gáfnastig. Sjö ára gam-
all var hann, er fyrsta verk hans
var gefið út. Hann hafði alla tíð
ódrepandi áhuga fyrir hljómlist
og var byrjaður að leika á píanó
áður en hann hafði náð 6 ára
aldri. Fyrsta óperan, sem hann
samdi, var leikin opinberlega,
þegar hann var 14 ára. Var þessu
verki mætavel tekið af almenn-
ingi. Hann samdi heilt óratórío
á aðeins einni viku, er hann var
á tólfta ára. Þegar hann var 24
ára að aldri, hafði hann þegar
samið snilldarverkið Idomeneo.
Henry Wadsworth Longfellow
hafði „áhuga“ fyrir hljómlist og
dansi, er hann var aðeins 8 mán-
aða gamall. Hann var duglegur
í skóla og 7 ára gamall þótti
hann vera jafnþroskaður og 14
ára drengir. Þegar Longfellow
var 14 ára orti hann fyrsta
kvæði sitt. Hann var vinmargur
alla tíð. Sóttist frekar eftir kunn-
ingsskap þeirra, sem hneigðust
til bókalestrar og lærdóms. Á
bernskuárum hafði Longfellow
nokkurn áhuga fyrir stjórnmál-
um, en er hann var orðinn 16 ára
hvarf hann alveg frá þessum
fyrri hugðarmálum sínum og
helgaði sig skáldskapnum.
Sir Walter Scott, hóf nám í há-
skóla, er hann var 14 ára að aldri,
en bæði vegna þess, að hann var
vegna þess, að hann var heilsu-
veill og hafði stirða lund, sótt-
ist honum námið frekar illa. Læs
var hann 3ja ára og þegar hann
var 12 ára eyddi hann tómstund-
unum í að þýða greinar úr er-
lendum málum. Sir Walter forð-
aðist samneyti við aðra menn,
svo framast honum var unnt og
vildi helzt alltaf vera einn.
Gáfnastig hans voru 155. Nítj-
án ára lauk hann prófi í lögum
og um tíma stundaði hann lög-
fræðistörf, en hætti því fljót-
lega. í einveru og á hálendi naut
hann sín bezt og þar samdi hann
sín bezt og frægustu ritverk.
James Watt, snillingurinn, sem
fann upp gufuvélina, hafði 145
gáfnastig. Áður en hann var sex
ára, var hann þegar byrjaður að
ígrunda stærðfræði. í skóla var
hann af kennurnum sínum álit-
inn heimskur. Hann hafði
snemma í hyggju að verða skurð-
læknir, en taugar hans þoldu
ekki þess konar starf og svo fór,
að hann stóðst ekki prófið — féll.
Watt var ákaflega forvitinn og
um leið íhugall um allt það, er
honum skildist ekki þegar í stað.
Því var það, að hann gat setið
tímunum saman fyrir framan
eldstóna heima hjá sér og horft
á það, hvernig gufan lyfti ketil-
lokinu — og þar fékk hann hug-
myndina um gufuaflið og gufu-
vélina.
Madame de Stael-Holstein, hin
heimsfræga, franska skáldkona.
hafði sem barn mikla ánægju af
að klippa út úr blöðum alls kon-
ar myndir — sérstaklega af kon-
ungum og drottningum. Hún tók
þátt í samtali fullorðna fólksins,
er hún var einungis 8 ára að aldri
og var fljótt vart hins skarpa
skilnings hennar og gáfna. Tíu
ára gömul einsetti hún sér að
giftast hinum heimsfræga sagn-
fræðingi Gibbon, en úr þessu
varð samt ekki. Gáfnastig henn-
ar voru 160. ,Um tíma gaf hún
sig á vald ástinni og tók þá
ákvörðun, er hún var 19 ára að
helga líf sitt því markmiði að
vera elskuð — og elska. Engu
að síður giftist hún ekki vegna
ástar sinnar „heldur til að lifa
þægilegu og fyrirhafnarlitlu lífi
og ná frelsi sínu þannig, sem
henni var neitað um sem ást-
fanginni konu.“
Daniel 0‘Connell, írskur föð-
urlandsvinur og ræðuskörungur,
sagði er hann var sjö ára að
aldri: „Eg mun laga til í heimin-
um“. f skóla átti hann ómögu-
legt með að þola að vera ekki
alltaf nokkurskonar „höfuð
bekkjar síns“. Tíu ára skrifaði
hann leikrit, en efni í það sótti
hann í æfi Stuartanna. Gáfna-
stig hans voru 145. Átján ára hóf
hann nám í lögfræði og lauk því
22 ára að aldri, en ári síðar hélt
hann fyrstu stjórnmálaræðu sína
og vakti strax á sér athygli sem
ræðuskörungur. Alla tíð barðist
hann af lífi og sál fyrir öllu, sem
írskt var — frelsi írlands og
framtíð.
Thomas Jefferson þriðji forseti
Bandaríkja Norður Ameríku,
var byrjaður á að nema 5 ára
gamall og las reiðinnar ósköp af
alls konar bókum á bernskuár-
um sínum. Að eðlisfari var Jeff-
erson ákaflega feiminn, en samt
sem áður var hann virkur þátt-
takandi í alls konar íþróttum.
bókmenntum og listum.
V o 11 a i r e , rithöfundurinn
franski, var frá barnæsku sí og
æ að semja sögur. Hann reit
sorgarleikrit, er hann var 12 ára
gamall, en brenndi síðar hand-
ritið. Svo mikil var þekking
hans á bókmenntum, að einn
kennara hans bar frá því fyrst,
er Voltaire kom í skóla, mikla
virðingu fyrir kunnáttu hans og
dáðist að henni. Voltaire var
frægur fyrir hnyttin tilsvör og
komu þau jafnvel víða fyrir í
sorgarleikjum hans. Gáfnastig
hans voru 180. Nítjá ára gamall
hóf Voltaire nám í lögfræði við
háskólann í París. Þar tók hann
einnig að snúa sér að heimskeki-
legum málefnum. Hann dvaldi í
nokkur ár með Friðrik II. Prússa
konungi og þar setti hann fram
kenninguna um „hinn menntaða
einvalda“.
Abraham Lincoln, hinn dáði
forseti Bandaríkjanna, hafði
gaman af því að draga fisk, þeg-
ar hann var einungis 3ja ára að
aldri. Uppáhaldsbækur hans í
æsku voru Dæmisögur Esóps,
Robinson Crusoe og Biblían.
Tímunum sama gat hann setið
yfir orðabókum og lesið þær.
Hann var skarpur skólanemendi
og er hann var 14 ára að aldri,
tók hann að rita um alvarleg
mál. Gáfnastig hafði hann 140
Strax sem drengur naut hann
mikils trausts hinna fullorðnu,
og var hann oft fenginn til þess
að miðla málum, enda vildu allir
hlíta dómi hans. Vegna þess hve
orðheppinn hann var og skemmti
lega máli farinn, varð hann brátt
mjög vinsæll og mátti með sanni
segja að hann væri hvers manns
hugljúfi. Lncoln var mjög áhuga
samur um sveitabúskap.
Daniel Webster, hinn mikli
ameríski stjórnmálamaður, fékk
þegar áhuga á stjórnmálum, er
hann var átta ára að aldri, enda
var faðir hans mikilhæfur á
þeim sviðum. Hann hafði sérstak
lega gott minni, svo að því var
viðbrugðið. Þriggja ára var hann
látinn í skóla og sóttist honum
námið vel. Á seinni hluta æfi
sinnar fékk hann sérstakan
áhuga á alls konar útiíþróttum,
t.d. dýra- og fiskiveiðum.
NÝ BÓK
Sleðaferð á hjara veraldar
Sten Bergman: Sleðaferð á
hjara veraldar. Hersteinn Páls-
son þýddi. Bókaútgáfan Norðri
h. f. Prentverk Odds Björns-
sonar h. f. 1949. 226 bls.
Árið 1920 lagði sex manna leið
angur frá Svíþjóð í rannsóknar-
för til Kamtsjaka, fjallaskaga
þess hins mikla, sem gengur
norðaustur úr Síberíu. Ferðin
til Japans g e k k nokkurn
veginn tíðindalítið, en á leiðinni
þaðan til Kamsjaka lentu leið-
angursmenn í skipreika og eftir
það er ferðasaga þeirra full af
mannraunum og æfintýrum. Höf
undurinn, sem dvaldi þarna tvö
ár með konu sinni, fór t. d. ann-
an veturinn í 800 km. langa sleða
ferð yfir fjöll og firnindi í allt
að 40 stiga frosti og fárviðri, en
hinn veturinn 2700 km. leið eða
yfir þveran skagann. Ferðir þess-
ar voru hinar mestu mannraun-
ir, en þó dvelur höfundurinn
ekki nema takmarkað við þær.
Saga hans er ekki síður full af
frásögnum um landshætti og hin-
ar frumstæðu þjóðir, er byggja
Kamtsjaka.
Allar hafa þessar þjóðir lifað
utan við mc/nninguna svonefndu
til skamms tíma. Sumar hafa þó
komist í kynni við ýmsar skugga
hliðar hennar, svo að liggur við
tortímingu í þorpum og með
ströndum fram, og gildir þetta
fyrst og fremst sjálfa Kamtsjak-
inga. En uppi á heiðum og fjall-
lendi skagans ferðast mongólsk-
ir kynflokkar Lamúta og korjaka
með stórar hreindýrahjarðir sín-
ar. Eru Lamútar veiðimenn öllu
fremur, veiða safala, refi birni,
en eiga þó hreindýrahjarðir. En
Korjakar eru aftur á móti ein-
göngu hreinhjarða-eigendur með
5000—7000 hreinahjarðir. Lax-
veiði er geysimikil í öllum ám,
og fóðra þeir m. a. hunda sína á
laxi.
Frásögn Bergman-hjóanna um
heimsókn sína og gistingu á
heimilum, þ. e. í tjöldum þessara
„villimanna“ er bæði fróðleg og
merkileg, því að hér kynnast
menn þjóðflokkum, sem lagt
hafa leið sína til Kamtsjaka.
Höfundur segir í formálsorð-
um, að miklar breytingar hafi
orðið á þessum slóðum síðan
hann var þar á ferð, ekki síst
fyrir atbeina sovétstjórnarinnar.
„Uppi í hrikalegu hálendinu og
úti á túndrunum“, segir hann,
„flakka þó hjarðmennirnir enn
með hreindýrahjarðir sínar,
skinnklæddir veiðimenn smjúga
enn um skógana og hundasleð-
arnir þjóta milli bústaða lands-
manna. Eg er sannfærður um að
gestrisnin er enn hin sama í
skinntjöldum hjarðmanna og
stofum þeirra, sem fasta búslóð
hafa, og þegar við vorum á ferð
um landið.“
íslendingum hefir löngum þótt
gaman af ferðasögum, þar sem
saman hefir farið fróðleikur um
fjarlæg lönd og þjóðir og frá-
sagnir af æfintýralegum atburð-
um. Umrædd bók er rík af þessu
hvorutveggja.
Triumph ofa Sinner
By Art Reykdal
The parson ivas proper and pompous and proud
His figure was lanky and thin;
In an atmosphere dark as a funeral shroud,
Declaiming a sermon on sin. ,
The evils of liquor he treated at length.
He mentioned beer, ivhiskey and stout.
And, as an example to give his point strength,
He singled the schoolmaster out.
“There’s one little thing I’d like you to disclose,
My dear Brother Stebbins,” he said.
“Just ivhy are the veins on the end of your nose
Such a bright and conspicuaus redV’
The pedagogue wasn’t the least bit annoyed
(Although it is true that he belched.)
And, with exultation and joy unalloyed,
The parson lie properly squelched.
For, placing his thumbs on the lobes of his ears,
He offered this prompt explanation:
“My nose isn’t pried into others’ affairs
And its blushing in justification.”
Business and Professional Cards
SELKiRK METAL PRODUCTS LTD.
Reykháfar, öruggasta eldsvörn,
og ávalt hreinir. Hitaeiningar-
rör, ný uppfynding. Sparar eldi-
við, heldur hita frá aö rjúka út
meö reyknum — Skrifið símið til
KELLY SVEINSSON
187 Sutherland A ve., Winnipeg
Sfmi 54 358
S O. BJERRING
Canadian Stamp Co.
RUBBER & METAL STAMPS
NOTARY & CORPORATE SEALS
CELLULOID BUTTONS
324 Smilh Sl. Winnipeg
Phone 924 624
Office Ph, 925 668 Res, 4C4 319
NORMAN S. BERGMAN, B.A., LL.B.
Barrfster, Solfdtor, etc.
411 Childs Bldg,
WINNIPEG CANADA
PARKER, PARKER
& KRISTJANSSON
Barrislers - Solicilors
Ben C. Parker, K.C.
B. Stuart Parker, A. F. Kristjansson
500 Canadian Bank of Commerce
Chambers
VVinnipeg, Man. Phone 923 M1
JOHN A. HILLSMAN.
M.D., Ch. M.
332 Medical Arts. Bldg.
OFFICE 929 349 Home 40S 288
Phone 724 944
Dr. S. J. Jóhannesson
SUITE 6 — 652 HOME 8T.
ViOtalMtlml 3—6 eftir hft.degrl
Also
fi&siiro
JEWEILERS
123
TENTH ST.
BRANOON
447 Portage Ave,
Ph, 926 885
DR. E. JOHNSON
304 EVELINE STREEl
Selkirk. Man
Offlce hre. 2.30—6 p.m.
Phonen: Offlce 26 — Ree. 280
Phone 21 101 ESTIMATES
FREE
J. M. INGIMUNDSON
Asphalt Roofs and Insulated
Siding — Repairs
632 Simcoe St. Winnipeg, Man.
Ot'flce Phone Re8 Phono
924 762 726 11B
Dr. L. A. Sigurdson
528 MEDICAL ARTS BLDG.
Office Hours: 4 p.m.—6 p.m
and by appolntment
DR. A. V. JOHNSON
Dentist
_ f
Drs. H. R. and H. W.
TWEED
50« SOMERSET BUILDING
Telephone 97 932
Home Telephone 202 398
Tannlcelcnar
406 TORONTO QEN. TRUST8
BUILDING
Cor. Portage Ave. og Smlth St.
Phone 926 952 WINNIFBQ
Talslml 926 826 Helmllla 62 892
DR. K. J. AUSTMANN
SérfrœSingur i augna, eyrna, nef
og kverka ijúkdómum.
209 Medlcal Arta Bldg.
Stofutlmi: 2.00 til 6.00 e. h.
DR. ROBERT BLACK
BérfrœOingur i augna, eyrna,
nef og hdlssjúkdómum.
401 MEDICAL ARTS BLDG
Graham and Kennedy St.
Skrlfstofualmi 923 851
Heimaslmi 403 794
EYOLFSON’S DRUG
PARK RIVER, N. DAK.
islemkur lyfsali
Fðlk getur pantað meðul og
annað með pöatl.
Fljðt afgreiðala.
A. S. B A R D A L
848 SHERBROOK STREET
Selur llkkistur og annast um út-
farlr. Allur útbúnaður 8á beztl.
Ennfremur aelur hann allakonar
mlnniavarða og legateina.
Skrifstofu talslmi 27 324
Helmílis talslmi 26 444
Cars Bought and Sold
SQUARE DEAL
MOTOR SALES
"The Working Man’s Ftriend"
nttCA 297 PaiNcatsa Strkkt
Z0404 Haif Block N. Logan
Ph:
SARGENT TAXI
Phone 722 401
FOR QUICK RELIABLB .
SERVICE
J. J. SWANSON & CO.
LIMITED
308 AVENUE BLDG WPO.
Faateignaaalar. Lelgja hús. Ot-
vega penlngalán og elds^byrgð.
bifreiðaábýrgð, o. ■. frv.
Phone 927 528
Andrews, Andrews,
Thorvaldson and
Eggertson
LögfraUHngar
209BANK OF NOVA SCOTIA BG.
Portage og Oarry St.
Phone 928 291
Dr. P. H. T. Thorlakson
WINNIPEG CLINIC
SL Mary's and Vaughan, Wpg.
Phone 926 441
GUNDRY PYMORE
Limited
British QuaUty Fish Netting
68 VICTORIA ST„ WINNIPEQ
Phone 98 211
Manager T. R. THORVALDSON
Your patronage wlll be appreclated
_________________L_______
Phone 927 025
H. J. H. Palmason, C.A.
H. 1. PALMASON St CO.
Chartered Acconntant*
305 Confederatlon Life Bldg.
Wlnnlpeg Manltoba
CANADIAN FISH
PRODUCERS, LTD.
J. B. PAOE, Managing Director
Wholesale Dlstributors of Frasta
and Frozen Flsh.
311 CHAMBERS STREET
Offlce Ph. 26 328 Res. Ph. 73 917
Phone 49 469
Radlo Service Specialists
ELECTRONIC LABS.
B. THORKELSON, Prop.
The most up-to-date Sound
Equlpment System.
592 ERIN St. WINNIPEG
O. F. Jonaaaon, Prea. & Man. Dir.
Keystone Fisheries
Limited
404 8COTT BLK, 8Iml 926 227
Wholesale Distributors of
FRESH AND FROZEN FISH
\