Lögberg - 25.05.1950, Page 3
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 25. MAÍ, 1950.
3
HELGI VALTÝSSON:
Drottning örbirgðar og ævintýra
Hríðarhraglandi gnauðaði um
fannhvítar hlíðarnar. Allt var
enn á kafi í snjó. Rifahjarn á
hæðum og hryggjum, en þæf-
ingsófærð í öllum dældum.
Komið var fram á einmánuð, og
dagarnir teknir að lengjast, svo
að um munaði. Útistörfum var
lokið, og piltarnir komnir inn
frá gegningum. Stúlkurnar sátu
við vinnu sína. Rokkar voru
þeyttir og kambar dregnir, vef-
ur sleginn, og inn á milli heyrð-
ist kliður tifhraðra bandprjóna.
Gömul kona réri sér og raulaði
við prjóna sína. Og svo fóru
stúlkurnar að syngja við rokk-
inn. Krakkarnir voru á víð og
dreif um baðstofuna. Sum til
þægðar, önnur til óþægðar. Það
er oft þröngt um sex—sjö
krakka á mismunandi reki inni
í baðstofu, er allir aðrir sitja við
vinnu sína.
Þráinn, stóri hundurinn spak-
vitri, lá fram á lappir sínar í
dyraskotinu og blundaði. Hann
átti sýnilega sína drauma. Nú
var hann tekinn að reskjast. Allt
í einu hrökk hann við, leit upp
og hreyfði eyrun. Síðan reis
hann á fætur og gekk fram að
baðstofudyrunum og opnaði
þær. Hann var ætíð sjálfbjarga
við allar skellihurðirnar. Elztu
börnin fylgdu ósjálfrátt á eftir
honum út á hlaðið. Og þá hlupu
öll hin á eftir. — Þráinn settist
í hlaðvarpann og horfði upp til
hlíðarinnar. Svo rak hann upp
tvö—þrjú góðlátleg bofs og
borfði stöðugt í sömu áttina.
„Nú kemur einhver að norð-
an“, sögðu krakkarnir. En samt
var engan að sjá enn. Það var
heldur ekki von. Nú kæmi eng-
inn ferðamaður niður Sniðin
Vegna hörku, heldur færi hann
°fan í Dalinn og kæmi síðan
neðri leiðina heim yfir Engj-
arnar.
Allt í einu hillti undir ein-
hverja þústu uppi á Engjabrún-
inni. Hún var ekki ýkjahá í lofti,
en fyrirferðarmikil. Allt að því
jafn mikil á þverveginn og á
hæð. Hún fór afar hægt, en
najakaðist þó áfram jafnt og
stöðugt. Þráinn horfði á hana
naeð athygli, en sat samt kyrr og
þegjandi.
Þústan seig áfram ofan brekk-
una, heim yfir Stekkjartúnið og
yfir Borgarlækinn og nálgaðist
óðum Lambhússhólinn. Þá stóð
Þráinn upp og gekk á móti
henni. Hann fór sér hægt, var
fremur háleitur og dinglaði skott
ævinalega, er hann nálgaðist
hana. Síðan gekk hann alveg upp
að henni og nuddaði sér vina-
^ega upp við hana. Og þá kom í
Ijós gildvaxinn handleggur og
hönd, sem klappaði honum.
Komu síðan bæði labbandi ofan
hólinn heim að bænum.
Allt í einu kallar yngsta telp-
an upp, um leið og hún hleypur
af stað á móti tvímenningun-
Urn: „Brandþrúður, Brandþrúð-
ur! Þetta er hún Brandþrúður!"
Og svo hlupu allir krakkarnir á
nióti henni.
Brandþrúður gamla var ævin-
týrið og þjóðsögurnar ljóslifandi
°g holdi klætt. í þeim heimi lifði
hún og andaði, og þar sló hjarta
hennar og bærðist í sorg og
sælu, grát og gleði, utar og ofar
striti hversdagsleikans og störf-
nm á harðbalakoti á útskaga, í
einangrun og fásinni. I mjúk-
um höndum sínum og hlýjum
hélt hún Máríutásu-lopa ævin-
týra og sagna og spann úr hon-
um glitrandi lýsigulls-þræði,
tvinnaði þá og þrinnaði og óf
síðan úr þeim með fjöllitu hýa-
h'ns-ívafi dásamlegar glitvoðir,
sem hún síðan tjaldaði yfir
barnahópinn á kvöldin, þar sem
hún var langþráður og kærkom-
hm aufúsugestur. Undir þeim
tjaldhimni hvarf börnunum
heimur allur og veruleiki um
hríð, og hvert ævintýri var sem
»renni, renni rekkja mín“ eða
»fljúgðu, fljúgðu klæði“, sem
bar börnin óravegu til nýrra
lenda og ókunnra, þar sem sól
skein daga og nætur yfir græn-
um skógum. Og skrautlegir
fuglar sungu sætum róm. Þar
var hvorki^skammdegi né vetr-
arríki. — Þar var gott að vera!
Barnshugurinn hló og grét
með sögukonunni eftir hljóðfallí
sagnarinnar og hrynjandi. Og
hugur þeirra varð fleygur.
Sumra hverra bæði léttfleygur
og langfleygur. Því að flugfjaðr-
irnar uxu óðum á þessum rökk-
urkvöldum í rennireið ævintýra
og sagna. — Litlu stúlkurnar
grétu með Brandþrúði og Grís-
hildi góðu. Og svo litu telpurn-'
ar með athygli á fingurgóma
sína til að gá að, hvort þar sæj-
ust engar brunablöðrur. Þær
gengu upp úr háska-gryfjunni á
gullskærum móður sinnar. Þær
heyrðu svani syngja, svo að
Hlini kóngssonur sofnaði og
vaknaði á víxl. Annað veifið var
heimurinn barmafullur af ógn-
um og óhugnaði og illum stjúp-
um og álögum þeirra og undir-
ferli. — Þá störðu börnin stór-
eygð og kvíðandi á munn sögu-
konunnar. En svo runnu sól-
hvörf ævintýranna. Hið fagra og
góða sigraði ætíð að lokum, því
að „upp komast svik um síðir“.
Og er allt fór vel fram, —
„þá spruttu laukar,
og þá göluðu gaukar,
og þá fór hrútur úr reyfi sínu. —
Og þá þagnaði ungur sveinn,
sem í vöggu lá“.
Þá drógu börnin djúpt and-
ann, og var sem fargi væri af
þeim létt. Gleði blikaði í augum
þeirra. Og himinn ævintýranna
hvelfdist á ný, heiður og blik-
andi bjartur, yfir höfði þeirra.
Síðan sveif hugur þeirra suður
um höf, ásamt fögru fylgdar-
liði, er —
„kóngur gifti dóttur sín
kóngssyni fyrir austan Rín,
gaf henni góss og garða nóg
og gullið allt í Rínar-skóg“.
Þar var síðan slegið upp veizlu,
gleði og glaumur mikill: Þar
voru
„organ troðin
og bumbur barðar,
sleigið simfón og salteríum.
Þar voru á borðum
pipraðir páfuglar,
saltaðir sjófiskar,
mimjam og timjam
og multum salve.
Þar var drukkið:
Prímet og Klaret
og vínið Garganus . . . .“
„Þar hefur nú verið veizla í
lagi!“ sögðu krakkarnir og hlógu
þá dátt. Nú var öll hryggð og
harmur gleymdur. Og í sömu
svifum voru kveikt ljósin.
En stundum gat fullorðna fólk
ið ekki á sér setið né hallað sér
út af í rökkrinu, heldur settist
það líka hjá Brandþrúði og
hlustaði einnig á ævintýri henn-
ar og sögur. En þá var samt oft-
ar beðið um þjóðsögur, — og
stundum um draugasögur. Þá
þrýstu börnin sér þéttar upp að
Brandþrúði gömlu og héldu sér
fast í hana á alla vegu. Þau
minnstu smeygðu sér jafnvel
upp í fang hennar. Og faðmur
Brandþrúðar gömlu stóð þeim
alltaf opinn, hlýr og móðurlegur.
Þetta voru allt börnin hennar,
hvar sem hún kom. önnur börn
átti hún ekki. Enda var hún
hvorki gift né við karlmann
kennd alla sína löngu ævi.-----
Það var ekki langur sprettur
fyrir börnin á móti þeim Brand-
þrúði gömlu og Þráni. En þá
var samt yngsta teljan komin
til hennar og búin að ná í aðra
höndina á henni. Og henni
sleppti hún ekki aftur. Brand-
þrúður gamla laut niður og kyssti
öll börnin innilega. Bjart og
kringlótt andlit hennar ljómaði
broshýrt og blítt út úr öllum
dúðanum, og hver hrukka þess
var sem gullin rák í gömlu og
máðu bókfelli með skrautlegu
munkaletri í hverri línu. Síðan
hengdu börnin sig öll utan 1
hana, hvar sem taki varð náð.
Og að lokum varð Brandþrúður
gamla að taka minnstu telpuna
upp í fang sér til að rýma til
fyrir hinum. Og samt skorti hana
anga og útlimi, svo að öll börn-
in fengju nægilega traust tak Og
eignarhald á persónu hennar.
En nú var stutt eftir til bæjar.
Húsbændurnir höfðu fengið pata
af, hver væri á ferð, og voru nú
komnir til að taka á móti henni
og leiða hana inn í bæinn.
----Að klukkustund liðinni
var móttökunni lokið. Brand-
þrúður hafði hresst sig vel á
heitu og góðu kaffi og góðri mál-
tíð, sagt helztu fréttinar og hall-
að sér síðan út af til að láta líða
úr sér mestu þreytuna. Hún var
komin alllanga leið norðan úr
víkum, frá yzta nesi þar nyrðra,
hafði farið að heiman bráð-
snemma um morguninn. Færð-
in hafði verið allgóð, en þó þæf-
ingur með köflum, og hríðar-
hraglandi öðru hvoru. Hún bjó
ein með bróður sínum á útkjálka
jörð og fór venjulega lítið að
heiman, nema þessa árlegu út-
mánaðaför sína í Fjörðinn til
komu hennar, hlökkuðu börnin,
er hún tók að nálgast, og þau
söknuðu hennar lengi á eftir, er
hún var farin.----
Rökkrið færðist hægt yfir
bæinn, því að dimmt var í lofti.
Börnin voru hljóð um hríð, en
þó heit af eftirvæntingu. Og enn
hallaði fullorðna fólkið sér út af
í rökkrinu. Loks gat minnsta
telpan ekki stillt sig lengur. Hún
læddist hægt og gætilega yfir að
rúminu, þar sem Brandþrúður
hvíldi, og teygði sig upp yfir
rúmstokkinn, unz hún náði í
aðra hönd hennar. Telpan var
varkár og hálfsmeik, um leið og
hún snerti hlýja og vinnuhrjúfa
höndina stóru. En þá lokaðist
hún skyndilega fast utan um
höndina litlu og dróg hana til
Fyrir nokkrum árum átti dr.
Þorkell Jóhannesson frumkvæði
að því, að stjórn Þjóðvinafélags
ins og menntamálaráð hófust
handa um að láta rita og gefa
út sögu landsins í tíu bindum.
Var hann síðan í þessum nefnd-
um kosinn í undirnefnd til að
undirbúa verkið, ákveða stærð
þess og semja við nokkra menn
um að skrifa þessa fyrstu sam-
stæðu íslandssögu, sem þjóðin
hefir eignast. Nú hefir dr. Þor-
kell aukið framlag sitt til þessa
verks með því að rita hálft ann
að bindi og nær sá þáttur frá
miðri 18. öld og fram að 1830. Dr.
Páll Eggert hafði riðið á vaðið
og samið hálft þriðja bindi frá
siðaskiptatímanum og fram að
upphafsstarfi Skúla fógeta í
Reykjavík um 1750. Er þannig
búið að rita samfellda sögu lands
ins í þessu ritverki frá siðaskipta
tímanum og þar til Fjölnismenn
og Jón Sigurðsson komu til sög-
unnar. Verkum var þannig skipt
í upphafi, að Barði Guðmunds-
son skyldi rita eitt bindi um
tímabilið frá landnámsöld og
fram undir Sturlungatímana. Þá
átti Árni Pálsson að rita tvö
bindi, annaði um Sturlungaöldina
og hitt um blómatíma kaþólsku
kirkjunnar fram að siðakiptum.
Þá var mér failð að rita 8. bindið
u m hinar nýju hræringar frá
1830 og fram að 1874. Þá var von-
ast eftir, að Einar Arnórsson
mundi taka landshöfðingjadæm-
ið, þrjátíu árin frá 1874—1904.
Magnús Jónsson guðfræðipró-
fessor hafði góð orð um að rita
eitt bindi um ráðherratímabilið
1904—18, en þá var honum falin
forysta í fjárhagsráði og tefur
sú vinna þetta starf. Af þeim,
sem enn eiga eftir að ljúka sín-
um störfum við þetta verk,
munu flestir hafa mest traust á
Einari Arnórssyni til skjótra að-
gerða, þó að hann hafi nú haldið
sjötugsafmæli sitt fyrir nokkr-
um dögum. En hvað sem líður
öugnaði einstakra höfunda, þá er
nú tækifæri til að þakka dr. Þor-
sín. Og litla stúlkan smaug óð-
fús og glöð upp í rúmið og stakk
sér inn undir vanga gömlu kon-
unnar.
„Segðu mér sögu, elsku góða
Brandþrúður mín, — æ, segðu
mér sögu!“ hvíslaði telpan á-
köf, en þó hálfskelkuð yfir
dirfsku sinni og áræði. Og í
munni gömlu konunnar góðu
var eigi nei fundið. Hún hóf þeg-
ar sögu sína, hálfhvíslandi eins
og hin, með ljóðrænni, hreim-
þýðri hrynjandi, er steig og hné
eftir efrii og blæbrigðum sög-
unnar. Þetta átti svo vel við. Það
var sem andardráttur kvöldsins
sjálfs í rökkurró.
I sama vetfangi voru öll hin
börnin þarna komin! Þau blátt
áfram hrúguðust ofan á gömlu
konuna. Og upp úr alldri hrúg-
unni stakk að lokum brosandi
andlitið gamla, rúnum rist, er
Brandþrúður reis upp og bjó um
sig uppi 1 rúminu, svo að allur
hópurinn gæti komizt sem næst
henni á alla vegu. Tvö stærstu
börnin settust á skemil við rúm-
stokkinn, en hin fjögur vöfðu
sig utan um hana, og sú yngsta
smaug alveg upp í fangið á
henni.
„Æ, lofaðu blessuðum börn-
unum að koma til mín, húsfreyja
góð“, sagði Brandþrúður gamla,
er móðir barnanna reyndi að
aftra þeim frá að gera aðsúg að
þreyttum gestinum. — „Þetta er
yndi okkar allra og ánægja“,
sagði hún og hélt síðan áfram
sögu sinni, — og síðan hverri af
annarri langt fram á kvöld.
Augu hennar blikuðu, fjar-
ræn og draumúðug, gegn snæ-
blárri skímu baðstofugluggans.
Og hugur hennar allur var á
ævintýraslóðum. Hún lifði sjálf
í ævintýrinu og naut þess fylli-
lega. ;— Hún trúði! — Á slíkum
stundum var hún kynborin
drottning örbirgðar og ævintýra,
en réð þó yfir víðlendu ríki og
undursamlegu! — austfirzka al-
þýðukonan sögufróða.
—Eimreiðin
katli Jóhannessyni fyrir hans
mikla skerf við iausn þessa máls.
Bindi það, sem hann hefir nú ný-
lokið, er stórmikill fengur fyrir
alla þá, sem unna sögu landsins.
Það nær yfir erfitt tímabil í lífs-
sögu íslendinga: Skaftáreldana,
niðurfall Alþingis, flutning Al-
þingis, flutning latínuskóla og
biskupsstóla frá Hólum og Skál-
hotli, siglingaleysi Napoleons-
styrjaldanna og kyrrstöðutíma-
bilið að fengnum friði. En mitt í
þessum erfiðleikum byrjaði vor-
hugur í þjóðlífinu. Margir ágæt-
ir menn komu fram á starfsvöll-
inn og unnu þjóðfræg verk.
Skúli fógeti og Eggert Ólafsson
felldu tjöld sín saman. Stephens
sensættin tók um stund forystu
í landinu og má segja, að Magnús
Stephenssen sé höfuðkempa
þessa tímabils. Glæsilegur ferill
Jóns Eiríkssonar, Finns biskups
og Hannesar sonar hans og
Sveins læknis Pálssonar, er hefir
gert einhverja frumlegustu vís-
indauppgötvun allra Islendinga
og voru lífskjör hans þó hin erf-
iðustu. Dr. Þorkell hefir í þessu
verki sameinað þær aðferðir,
sem mest gætir í íslenzkri sagna-
ritun. Hann ritar vel og skemmti
lega um lífsbaráttu skörung-
anna, en vefur þess á milli
breiða voð menningarsögunnar.
Ættu sem allra flestir ungir
menn að eignast þessa sögu og
lesa vandlega um baráttu og
sigra forfeðranna, þegar oft var
við mest ofurefli að etja. Saga
þessa tímabils ber fagran vitnis-
burð um þrek og mátt íslenzku
þjóðarinnar, þegar flestar hörm-
ungar steðjuðu að þjóðinni. J.J.
—Landvörn
Bus. Phone 27 989—Bes. Phone 36 151
Rovalzos Flower Shop
Our Speelalties:
WEDDING CORSAGES
COLONIAL BOUQUETS
FUNERAL DESIGNS
Mlu K. ChrUtle, Proprletress
Formerly with Robinson & Co
253 Notre Dame Ave.
WINNIPEG MANITOBA
Bækur og listir
Business and Professional Cards
PARKER, PARKER
& KRISTJANSSON
Barrisiers • Solicilors
Ben C. Parker, K.C.
B. Stuart Parker, A. F. Kristjansson
500 Canadian Bank of Commerce
Chambers
Winnipeg, Man. Phone 923 561
JOHTJ A. HILLSMAN.
M.D., Ch. M.
332 Medical Arta. Bldg.
OFFICE 929 349 Home 403 288
Phone 724 944
Dr. S. J. Jóhannesson
SUITE 6 — 652 HOME ST,
V'lötalatiml 3—5 eftlr hadegl
DR. E. JOHNSON
304 EVELINF, STREET
Selklrk. Man
Ofriue hra. 2.30 6 p m
Fhones: Offlce 26 — Rei. 251’
Phone 21 101 ESTIMATES
FREE
i. M. INGIMUNDSON
Asphalt Rnofs and Insulated
Slding — Repairs
632 Simcoe St. Wínnipeg, Man
Office Phone Ree Phon*
924 762 726 116
Dr. L. A. Sigurdson
528 MEDICAL ARTS BLDG.
Office Houra: 4 p.in.—6 p.m.
and by appointment
DR. A. V. JOHNSOfv!
Denti.nt
606 SOMKRStíT BUlIrDINO
Telephone 97 932
Home Telephone 202 39*
DR. H. W. TWEED
Tannlæknir
508 TORONTO GEN. TRUSTS
BUILDING
Cor Portage Ave og Smith St
Phone 926 952 WINNIPEG
Talslmi 926 826 Heimilis 404 630 Cars Bought and Sold
DR. K. J. AUSTMANN SQUARE DEAL
Rérfrœðini/ur i augna, eyrna. nef oo kverka sjúkdómum MOTOR SALES “The Workino Man’n Friend”
209 Medlcal Arts Bldg.
Stofutimi: 2.00 til 5.00 e. h ql. TlAri 297 Prinorss Strebt Kn. ZO404 Half tílock N. Lopan
DR. ROBERT BLACK SérfrœOinour < aupna. eyrna. nef og hdlssjúkdómum. 401 MEDICAL ARTH BLDQ Graham and Kennedy St Skrlfstofustmi 923 851 Heimasími 403 794 1 SARGENT TAXI Phone 722 401 FOR QUICK RELIABLB SERVICE
EYOLFSON’S DRUG PARK RIVER, N DAK islenzkur lyfsali Fólk getur pantaö mefiul ojf annaíS meC pösti. Fljót afgreiösla. J. J. SWANSON & CO. LIMTTED 308 AVENUE BLDO WPG Fnstotgnasalar. I.elgla hús. Öt- wcti peningalán og eidsábyrgfi. hlfrei8aá.bvrgC, o. «. frv. Phone 927 538
GUNDRY PYMORE Limited tíritish Quality Flsh \ettino 68 VICTORIA ST„ WINNIPEG Phone 92 8211 Unnayer T. R. THORV A LDtíOh' Vour patronage will be appreclated Andrews, Andrews, Thorvaldson and Eggertson LöofrtOinyar »I9BANK OF NOVA SCOTIA BG Portage og ilarrv St Phone 928 291
Q. F. Jonasaon, Pres * Man. Dlr Keystone Fisheries Limited 404 SCOTT BLK, Slml 925 227 Wholesale Diatributors of FRESH ANU FROZRN FIS** C A N A D 1 A N FISH PRODUCERS, LTD. J U. PAQE. ilanauinu LHrector Whoiesale Distributors of Frjei. and Frozen Fish 311 CHAMBERS STKEET Dffice Ph. 26 328 Res Ph 73 917
Dr. P. H. T. Thorlakson WINNIPEG CLINIC 8t. Mary’s and Vaughan, Wpg Phone 926 441 A. S. B A R D A L *4k SHERBROOK o I KliKl cS*-)ur iíkklHtur og annast um Qt fa#ir. Allur óthúnaóur só beztt Ennfremur selur hann aiinkona! ntiimiavarÖa og legstema tíkrífstofu taÍHitm 27 324 HeimillR talsinn 26 444
Phone 927 025 H. J. H. Palmason, C.A. H. 1. PALMASON * CO. Chartered Accountants 505 Confederatlon Life Bldg. Wtnnipeg Manitoba Phone 23 996 761 Notre Dame Ave. Just West of New Matemity Hospital Nell's Flower Shop Wedding Bouquets, Cut Flowers Funeral Designs, Corsages Bedding Plants Nell Johnson Ruth Rowland 27 482 88 790