Lögberg - 27.07.1950, Síða 4

Lögberg - 27.07.1950, Síða 4
4 LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 27. JÚLI, 1950 I.ofiberg GefiB út hvern íimtudag af THE COLUMBIA PRESS LIMITED 696 SARGENT AVENUE, WINNIPEG, MANITOBA Utanáskri/t ritstjórang: EDITOR LÖGBERG, 696 8ARGENT AVENUE, WINNIPEG, MAN. PHONE 21 804 Ritstjóri: EINAR P. JÓNSSON Verð $5.00 um árið—Borgist fyrirfram The “Lögberg'' la printed and publiehed by The Columbia Preaa Ltd. 695 Sargent Avenue, Winnipeg, Manitoba, Canada. Authorlzed as Second Clasa Mail, Post Office Deportment, Ottawa Bókmentalegt afrek Alveg nýverið er komin á markaðinn vönduð og merkileg bók, History of Icelandic Poets 1800—1940, er hinn kunni ritvíkingur, dr. Richard Beck, prófessor í Norðurlandatungum og bókmentum við ríkisháskól- ann í North Dakota hefir samið; enginn vafi leikur á því, að bók þessi verði jafnan talin til hinna meirihátt- ar afreksverka höfundarins, þó að mörgum og nytsöm- um ritsmíðum hafi hann að vísu áður komið í verk, og eigi vonandi enn eftir að inna af hendi íslenzka þjóð- stofninum til gagns og sæmdar; bókin er 247 blaðsíður að stærð, búin undir prentun af hinum unga eftirmanni dr. Halldórs Hermannssonar, Kristjáni Karlssyni, bóka- verði við Fiskesafnið í Itaca, N. Y., 1950. Cornell Uni- versity Press sá um prentun. í Lögbergi þann 13., birtist vandaður og ágætur ritdómur um þessa gagnmerku bók, þar sem hinn ná kvæmi og vísi fræðimaður, dr. Stefán Einarsson, skil greinir ýtarlega megin sérkenni hennar og flokkun efnis; er þar farið lofsamlegum orðum, eins og vera bar, um bókina og höfund hennar. í»að er athyglisvert, og veldur í vissum skilningi straumhvörfum í bókmentasögu okkar, að þeir Aust firðingarnir og jafnaldrarnir, dr. Beck og dr. Stefán skyldu með stuttu millibili semja og gefa út sína bók- ina hvor um bókmenningu íslendinga á áminstum tíma því eins og menn muna, kom hin vandaða og fræði mannlega saga dr. Stefáns um íslenzka prósahöfunda út á vegum sama forlags 1948. Af formálsorðum að ljóðskáldasögu dr. Becks má það ljóslega marka, hve miklum tíma hann hefir varið til að viða að sér efni, skipuleggja það, og skrá til full- nustu; lætur höfundur þess getið, að hann hafi í hjá- verkum unnið að efnissöfnun um tuttugu ára skeið, og tíðum varið sumarhvíld sinni frá umsvifamiklu pró fessorsembætti til bókfræðilegra rannsókna við Fiske- safnið; enda ber bókin það ljóslega með sér, hve mikilli nákvæmni hefir verið beitt við skipulagningu hennar og fágun í stíl; við lestur bókarinnar verður maður þess skjótt var, hve höfundurinn hefir Ufað sig inn í efnið því svo verður ábærilegrar hrifningar vart í frásögn inni, auk hins vængjaða málfars, er einkennir bókina frá upphafi til enda. Skáldfylking sú, sem kemur fram á sjónarsviðið í áminstri bók fyrir atbeina dr. Becks, er fjölmenn og með köflum harla aðsópsmikil; getur þar að líta í fylk ingarbroddi Bjarna Thorarensen, Jónas Hallgrímsson hirðskáld rómantísku stefnunnar. „Það þýðir ekki að þylja nöfnin tóm, því þjóðin mun þau annars staðar finna“. Þannig komst Þorsteinn að orði í inngangsljóði sínu að „Þyrnum“. Það er óþarfi, að rifja upp fyrir ís lendingum sjálfum, nöfn öndvegisskálda íslenzku þjóð- arinnar frá 1800—1940; henni er að fullu kunnugt um þau stórmenni í ríki andans, sem þar risu hæzt; enda er slíkt engan veginn megin markmið bókarinnar; hinn mikilsverði tilgangur hennar er fyrst og síðast sá, að veita enskumælandi fólki, og þá eigi sízt því fólki af ís- lenzkum uppruna, sem eigi hefir not íslenzks máls, að- gang að þeim helgidómum íslenzkrar Ijóðlistar, sem á umræddu tímabili sköpuðust með hinum íslenzka kyn stofni hvar, sem börn hans voru í sveit sett; og víst er um það, að mörg hinna heitustu ættjarðarljóða voru ort erlendis, eða í útlegð, eins og sumir hafa viljað kalla það; bók þessi er lykill að hinum frjóa ljóðarfi ís- lenzku þjóðarinnar, og þar af leiðandi hefir hún ómet- anlegt, þjóðræknislegt gildi. Það er meira en lítið ánægjuefni, að svo skyldi skipast til, hvort sem um tilviljun var að ræða eða það gagnstæða, að þessi fagra, og í rauninni sígilda ljóð- skáldsaga dr. Becks skyldi hefja innreið sína í vestur- íslenzka, mannheima svo að segja í sömu andránni og Vestur-íslendingar halda hátíðlegt sjötíu og fimm ára afmæli hins varanlega landnáms síns í Vestur-Canada, og getur því réttilega talist sem kærkomin afmælis- gjöf. Alllangur og skemtilegur kafli þessarar nýju bókar dr. Becks, fjallar um vestur-íslenzk ljóðskáld, og fer það að vonum; lenga og ýtarlegasta ritgerð þessa kafla, er um Stephan G. Stephansson, þennan djúpskygna ljóðvíking, sem nam frjórri ljóðlönd, en flestir samtíð- armanna sinna, og stækkaði raunspekilegt landnám ís- lendinga flestum mönnum fremur, er ort hafa á ís- lenzka tungu. Það væri synd að segja, að dr. Beck fari viljandi í manngreinarálit, er hann handfjatlar vestur-íslenzku ljóðskáldin; hann skrifar um þau af virðingarverðri ó- hlutdrægni, þá í einstöku tilfellum sýnist brjótgæða hans gæta helzt til mikið, því engum kemur til hugar, að jafn ljóðfimur maður sem dr. Beck óneitanlega er, vilji verðlauna hnökra og hornskekkjur í ljóðagerð, hvar svo sem slík skrýmsli skjóta upp trjónu. Að bók dr. Becks er mikill og góður fengur, og hún á brýnt erindi, æskunnar vegna, inn á sem allra flest heimili, þar sem fólk af íslenzkum stofni ræður ríkjum. Þeir dr. Beck og dr. Stefán eru hollir útverðir ís- lenzkrar menningar í Vesturvegi; megi þeirra njóta sem lengst við! Bréf fró Glenboro Það er ekki mjög langt síðan ég sendi Lögbergi fréttalínur, en samt hefir ýmislegt á daga drifið síðan. Tíminn flýgur sem örskot, og nú er komið mitt sumar. Fram að þessu hefir ver- ið fremur úrkomusamt og kalt. Vorið kom seint svo að vorvinna byrjaði seinna en nokkru sinni fyr í sögu Manitoba, en upp- skeruhorfur eru mjög vænlegar og allur jarðargróður með af- brigðum góður, verður uppsker- an heldur seinni en vanalega, en það mun engan skaða. Þakk- látt má fólk vera við forsjónina fyrir gott og hagstætt tíðarfar. Miklar hörmungar leiddi flóð- ið í vor yfir Winnipeg og Rauð- árdalinn, var mikið um það talað lengi, en er nú farið að fyrnast yfir það. Vonandi að hin al- mennu samskot og aðstoð stjórn- arinnar geti bætt fólki svo skað- ann, að yfir fyrnist fljótlega. Margt flóttafólk var hér um lengri og skemmri tíma; var það flest fólk sem hér átti ættingja og vini. Var margt íslenzkt fólk hér um stundarsakir. Almenn samskot voru tekin hér sem annars staðar í hjálparsjóð sem nam góðri upphæð. Allir vildu rétta hjálparhönd. Svona stór- kostleg eyðilegging og bágindi snerti viðkvæman streng í hjört um flestra. Þá er að segja helztu fréttir. Þann 28. maí s.l. var skírð hér í íslenzku kirkjunni einkadóttir þeirra Mr. og Mrs. Edwin Skaft- feld, Winnipeg, og nafn gefið „Diane Lynn“, var það hátíðleg athöfn og sérstæð að því leyti, að þarna voru viðstödd 9 afar, ömmur og langömmur, sem voru þau: Mr. og Mrs. Ingi Helgason, Glenboro; Mr. og Mrs. G. Skaft- feld og Mr. Hreiðar Skaftfeld, Winnipeg; Mr. og Mrs. Sigurður Guðbrandsson og Mr. Jónas Helgason Baldur, og Mrs. Ingi- gerður, Glenboro. I byrjun júní komu þau Mr. og Mrs. Lorne P. Ferg alfarin frá California, hér norður til að setjast að í Manitoba, eftir árs- dvöl eða svo þar syðra. Mr. Ferg er lögfræðingur og hefir hann nú sest að og sett upp lögmanns skrifstofu í Flin Flon, Man. Kona hans Alice er íslenzk, dóttir þeirra Mr. og Mrs. A. S. Arason, Glenboro, hún mun bráðlega fara alfarin norður til Flin Flon. Dr. R. E. Helgason hefir verið að undanförnu á ferðalagi í Vesturfylkjunum í orlofi sínu. í fjarveru hans annast verk hans hr. Dr. Björn Jónsson, sem s.l. 2 ár eða svo hefir starfað í Winnipeg og tekið þar próf í læknisfræði (áður útskrifaður í læknisfræði á íslandi). Hann er ættaður af Sauðárkrók, mjög efnilegur maður og líklegur til frama. Hann er ráðinn sveitar- læknir í Argyle frá 1. ágúst n.k. og sest hann að á Baldur; kona hans er af hérlendum ættum. Þau Mr. og Mrs. Jón Ásgeirs- son frá Winnipeg voru hér á fram sameiginleg guðsþjónusta og síðan „Sports“ af ýmsu tagi fyrir börnin. Var þar mikið fjöl- menni og lukkaðist dagurinn vel. Laust eftir miðjan júní fór hr. Guðmundur Myrdal og kona hans til Ann Harbor, Mich. þar sem hr. Myrdal stundar nám í skólafríum, fékk hann náms- styrk til þessarar farar (Scholar- ship). Hr. Myrdal er kennari við miðskólann hér; hann er valinn drengur. ferð í júní í heimsókn til þeirra Mr. og Mrs. P. A. Anderson. Þau voru góðir og skemtilegir gestir. Um sömu mundir var hér á ferð Miss Freda Paulson frá Port Alberni í heimsókn til móð ur sinnar, Mrs. G. S. Paulson. Freda hefir ábyrgðarstöðu hjá stóru verzlunarfélagi á Port Alberni. Með henni fór vestur á Strönd Mrs. Margaret Oleson til mánaðardvalar hjá börnum sínum í Vancouver og Prince Rupert. I byrjun júní brá séra Eric H. Sigmar sér til Deuver, Colo- rado og sat þar stóran kirkju- fund, sem fulltrúi frá Lúterska kirkjufélaginu. Skilst mér að hann hafi verið eini fulltrúinn á þessum fundi frá Canada. Séra Eric heimsótti í þessari ferð þau Mr. og Mrs. Jón Sigvaldason, sem áður bjuggu í Glenboro, en sem búa í grend við Denver, og naut gestrisní þeirra. Sameiginlegt sunnudagaskóla Picnic“ var haldið við kirkju Frelsissafnaðar 18. júní. Fór þar 90 ára afmæli Þann 20. júní s.l. átti frú Guð- rún Stefánsson 90 ára afmæli, og þá var uppi fjöður og fit, og mikið um dýrðir á heimili dótt- ur hennar og tengdasonar, Mr. og Mrs. Gísli Björnson, rétt fyr- ir vestan Glenboro, þar sem Guð rún á nú heima. Stórkostlegur fjöldi fólks heimsótti hana þenn- an dag, úr öllum pörtum bygðar- innar að árna henni heilla, með veitingar og stórmiklar og verð- mætar gjafir. Fékk hún ógrynni af bréfum og skeytum úr öllum áttum frá vinum og vandamönn- um. Var þetta henni mikil sigur hátíð, því hún er enn við beztu heilsu, hefir alla sansa og nýtur lífsins sem ung væri. Hún er sérstæð manneskja að líkams- þreki, mannkostum og manndáð. Hún var gift Sigtryggi Stefáns- syni, er var landnámsmaður í Argyle, dáinn 1922. Hún á 4 dæt- ur: Mrs. Gísli Björnson, Glen- boro; Mrs. Jónas Anderson, Win- nipeg; Mrs. Óli Stefánsson, Van- couver og Mrs. C. McGinn, De- troit, Mich. Eru þær systur all- ar frábærar myndarkonur og vel giftar. Einn son á hún Kjart- an að nafni, á heima í Morden, Man. Aðkomugestir í þessum fagn- aði voru, dóttir hennar Mrs. Jónas Anderson og systurdóttir hennar Jónína Stevenson (dóttir Jóns Friðfinnssonar tónskálds og Önnu konu hans) héðan frá Winnipeg. Það var mikið um gleði á heimilinu þennan dag; samræður söngur, ræðuhöld og svo kaffikannan altaf á ferð- inni. Heill og hamingjuóskir til þessarar manndómsríku og gæfu sömu konu. Hún á að baki langa og merkilega ævi. Átti harða sennu í lísbaráttunni á frum býlingsárunum eins og margir fleiri, en hún hefir aldrei kvart að. Þau hjón voru ættuð úr Eyjafirði. Komu vestur nýgift 1882, til Argyle ári síðar. ☆ Þann 21. júní dó á Betel Jón S. Johnson 86 ára gamall, fædd- ur í Skipalóni í Hörgárdal 1864. Kom vestur 1887, var altaf í Argylebygð, þar til hann fór á Betel. Kona hans var Guðný Friðfinnsdóttir Jónssonar, syst- ir Jóns Friðfinnssonar tónskálds löngu dáin. Börn þeirra voru 7, sum eru látin. Lára, Pálína Guð- ný, Clara Björg, Mabel og Frið- dór á Baldur og Bernharð tann- læknir í Calgary. Jón var jarð- sunginn á Baldur 27. júní. Nýlega er dáinn, einnig áBetel Stefán S. Jónsson, gamall Glen- boromaður, fæddur á Landa- móti í Köldukinn 1861. Kom hér vestur 1901. Var í Winnipeg og á Betel síðustu árin. Kona hans var Ásta Sigurbjörnsdóttir Jó- hannssonar skálds frá Fóta- skinni. Börn þeirra voru: Lauf- ey, Ingólfur, Jakobína , Krist- björg, Sigurbjörn. (Þessi tvö komu ekki vestur) Svava, Þór- hallur, Ruby. Stefán var bezti verkmaður. Hann var jarðsett- ur á Gimli. Þann 30. júní dá á St. Boni- face spítalanum Sigríður Emily Ólafson, ekkja Gunnars J. Ólafs- sonar, er lengi var oddviti suður Cypress sveitar, dáinn 23. apríl 1948. Hún var fædd 1890 í Graf- ton North Dakota. Hún eftir- skilur eina systir hér um slóðir, Ólöfu Margréti að nafni. Jarðar- förin fór fram hér frá ísl. kirkj- unni 5. júlí. Séra Eric H. Sig- mar jarðsöng. Nýlega lögðu af stað í skemti- ferð til Ottawa, þau Mr. og Mrs. Óli S. Arason í heimsókn til dóttur og tengdasonar Mr. og Mrs. A. Ingjaldson. Þau ferðuð- ust í bíl; eru nýkomin heim aft- ur. Nýlega komu þau Mr. og Mrs. Ingi Helgason heim úr skemti- ferð úr vesturfylkinu, fóru þau alla leið vestur í fjöll, og létu vel af ferðinni. Þau ferðuðust einnig í bíl. Á síðastliðnu vori fluttu héð- an alfarin þau Mr. og Mrs. Her- mann S. Jónsson til Wowota, Sask. Þau hafa verið hér í all- mörg ár, voru þau félagslynd og vinsæl. Hamingjuóskir fylgja þeim í þeirra nýja heimkynni. Þrír kennarar frá Sunnudaga skólanum í Glenboro sóttu kenn aranámskeiðið í Sunrise Camp í byrjun júlí, þær Miss Margaret Lambertsen, Miss Margaret And erson og Miss Laura Johnson. Séra Eric H. Sigmar var þar vikuna 9.—15. júlí sem dean. Þann 17. júní s.l. voru gefin saman í hjónaband í Brandon þau Dr. Guðmundur Lambert- sen og Miss Helen May Markle. Brúðguminn er fæddur í Glen- boro sonur Guðmundar Lam- bertsen gullsmiðs (dáinn 1947). Stundar Dr. Lambetsen læknis- störf í Brandon. Brúðurin er af hérlendum ættum, sem nafnið bendir til. Að afstaðinni gifting- unni var vegleg veizla, sem nán- ustu ættingjar og vinir brúð- hjónanna sátu. Fóru ungu hjón- in í giftingartúr suður í Banda- ríki. 1 byrjun júlímánaðar fluttu alfarin til Glenboro þau Mr. og Mrs. Halli Eyford, sem undan- farið hálft annað ár hafa átt heima í Vancouver, B.C. Áður fyr var Mr. Eyfórd kaupmaður í Ashern, Man. 1 Argyle bygð voru foreldrar hans í nokkur ár, er þau komu frá Islandi, en fluttu til Silver Bay við Mani- tobavatn um 1910. Þar ólst Mr. Eyford upp, og þar mun faðir hans, Sigurður Eyford, hafa dá- ið. Móðir hans er enn á lífi vest- ur á Strönd. Mr. Eyford keypti eina aðalverzlunina í Glenboro (General Store) og hefir þegar tekið við verzluninni. Mr. Ey- ford er efnilegur maður, og þeir sem þekkja til hans bera honum bezta orð. Óskum vér honum til hamingju og bjóðum hann og þau hjónin velkomin. Kona hans er af enskum ættum. G. J. Oleson. Fréttir fró Churchbridge, Sask. Eftir SÉRA JÓHANN FREDRIKSSON SHEA'S APPOINTMENT Frank J. Schlingerman Colonel Arthur Sullivan K.C. newly elected President of Shea’s Winnipeg Brewery Limi- ted announces the eletion of Frank J. Schlingerman as Vice- President and General Manager of the Company. Mr. Schlingerman, an active worker in fraternal an civic organizations, has had many years experience in the Brew- ery field. He was previously Director of Sales for the com- pany and in this capacity travel- led extensively throughout the Province. Dánarfregn — Stefán Sigtryggur Johnson, andaðist á Elliheimilinu Betel, á Gimli þann 8. júlí, eftir löng veikindi, nærri fullra 90 ára að aldri. Hann var fæddur að Landamóti í Köldukinn í Suður- Þingeyjarsýslu, sonur Jóns Sveinbjarnarsonar. Hann kvænt ist á íslandi Ástu Sigurbjörns- dóttur. Þau fluttu vestur um haf um aldamót. Settust að í Argylebygð, en síðast í Glenboro bæ. Konu sína misti hann 1924. Þau eignuðust 9 börn alls. Tvö börn þeirra eru á íslandi. Son, Olgeir að nafni, mistu þau þar. Ingólfur sonur þeirra er búsett- ur 1 Winnipeg, Lena, Mrs. Hoin- stock, og Howard, einnig bú- sett í Winnipeg, Svava, Mrs. Roy, látin í Vancouver, B.C. 1044, Ruby, Mrs. Lowe, búsett í Winnipeg. Barnabörn hins látna, 17 að tölu og barabarna- börn 11 talsins. Hinn látni hafði dvalið á Betel nærri full 3 ár, og notið þar góðrar aðhjúkrun- ar. Stefán var að kunnugra sögn hinn vandaðasti maður er vildi í engu vamm sitt vita. Ljúfur og rólegur var hann í langvar- andi sjúkdómi er hann varð að þola. Útför hans fór fram frá Heimilinu þann 11. júlí. S. Olafsson Falleg og tilkomumikil ferm- ing og altarisganga fór fram í kirkjunni okkar sunnudaginn var þ. 16. júlí. Sjö börn voru fermd og yfir sjötíu meðtóku sakramentið. Fermingarbörnin eru: Guðrún Kristín Johnson, Beverly Margaret Bjarnason, Donna Lee Einarsson, Eybjörg Ruth Magnússon, Elín Margrét Markússon, Jóhannes Markússon, Jón Harvey Ólafur Johnson. Vel var vandað til söngs fyrir þessa hátíð. Söngflokkurinn söng til fermingarbarnanna, að sérstakri beiðni, „God be with You“. Hugur og hjarta fylgdi máli. Söngurinn var hrífandi. Séra Jóhann talaði á ensku og lagði út af textanum I. Péturs- bréfinu 2:4.—6. Precious Stones — „Acres of diamonds". Um kvöldið komu um 40 manns saman á heimili Mr. og Mrs. H. Marvins að heilsa upp á Helen Josepson frá Siclair, Man. Helen keyrði hingað með föður sínum og bróður til að vera með okkur nokkra daga. Það var sungið, spilað og skemt sér vel langt fram á kvöld. Mrs. S. Einarson frá Regiria og Mrs. H. Sigurdson frá Vancouver, B.C voru aðkomnir gestir. Vivian Bjarnason dóttir Mr. og Mrs. Magnúsar Bjarnasonar er heima í tveggja vikna sumar- fríi. Vivian hefir nýlega lokið prófi við verzlunarskóla í Winni peg. Hún hefir fengið vinnu við vikublað í Davidson í Sask. Beverly Bjarnason og Ruth Magnússon fóru í skemtiferð til Christal Lake, eru væntanlegar heim á morgun. Harvey Johnson son fór strax eftir ferminguna til Mrs. S. Einarson móðursyst- ur sinnar í Regina og ætlaði að vera þar fram að skólabyrjun. Lítill drengur hafði svo fjör- ugt ímyndunarafl, að hann sagði iðulega langar sögur, sem enginn fótur var fyrir. Einu sinni hljóp hann óðamála inn og sagði mömmu sinni, að hann hefði séð björn í garðinum. „Heyrðu, Tobbi“, sagði mamma björn, það var bara stór hund- hans, „þú veist að þetta var ekki ur. — Farðu nú inn í herbergið þitt, og biddu Guð að fyrirgefa þér að skrökva“. Eftir nokkrar mínútur kom Tobbi aftur. „Baðstu Guð að fyrirgefa þér?“ „Já, og hann sagði að það væri allt í lagi. Hann sagði, að hann hefði sjálfur haldið, að þetta væri björn, þegar hann sá hund inn fyrst“.

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.