Lögberg - 11.01.1951, Page 1
PHONE 21374
A VJ^6
o.0„d
'^wVw**?S
A Complele
Cleaning
Insliluiion
PHONE 21374
i*e<
iveTS
, i VÁ«'
LqU •p'O'^ ® A Compleie
Cleaning
Instiiuiion
64. ÁRGANGUR
WINNIPEG, FIMTUDAGINN, 11. JANÚAR, 1951
NÚMER 2
Heiðraður vegna frækilegar framgöngu
Frá því var skýrt í Lögbergi
í sumar, sem leið, að Þorvaldur
Friðriksson, áður hárskeri í
Reykjavík, hefði fyrstur íslend-
inga gengið í Bandaríkjaherinn,
hefði komið í stutta heimsókn,
en brátt verið kvaddur vestur
vegna Kóreustríðsins; fór hann
til vígstöðvanna í Kóreu, særð-
ist þar í hendi, lá um hríð á her-
mannaspítala, en náði sér til-
tölulega fljótt og tók á ný þátt í
orustum með hersveit sinni, og
var af hernaðaryfirvöldunum
sæmdur vegna frækilegrar fram-
göngu heiðursmerkinu „Silver
Star“, sem er sjaldgæf viður-
kenning. Þorvaldur Sargeant er
ættaður frá Borgarnesi.
Edward elzti bróðir Þorvaldar,
lauk prófi í búvísindum við
Minnesotaháskólann 1945, kvænt
ist amerískri konu, hvarf til ís-
lands og gerðist umboðsmaður
mjólkureftirlits.
Guðmundur yngstur bræðr-
anna kom til
Bandaríkjanna
1942, gekk þar á
iðnskóla hóf svo
háskólanám í raf-
urmagnsfræði, en
innritaðist í sjó-
flotann í apríl-
mánuði 1945 og
tók þátt í sjó-
orustum í Kyrra-
hafinu; hann var
leystur úr her-
þjónustu 1946, og byrjaði þá
aftur háskólanám og lýkur á
komandi vori fullnaðarprófi í
rafurmagnsfræði við háskóla
Minnesotaríkis.
Fréttaritari Lögbergs í Min-
neapolis lætur þess getið, að
stórblaðið Minneapolis Tribune
hafi rétt um nýárið flutt grein
um Þorvald Sargeant ásamt
mynd; hann sendi Lögbergi
myndamótið, og lét því fylgja á-
minstar upplýsingar, ásamt af-
riti af viðurkenningarskjalinu,
er hér fer á eftir:
Verbaíim Copy of Ciiation
Awarding Master Sergeani
Thorvaldur Fridriksson the
Silver Star.
Headquarters, 2nd Infantry
Division, APO 248, c/o PO,
San Francisco.
General Orders No. 105.
Award of the Silver Star for
gallantry in action to the follow-
ing named enlisted men:
Master Sergeant Thorvaldur
Fridriksson, RA37805 267, In-
fantry, U.S. Army, a member of
of Headquarters company, 2nd
battalion, 38th Infantry Regi-
ment, 2nd Infantry division, dis-
played gallantry in a c t i o n
against an armed enemy on 27
September, 1950, in the vicinity
of Kochang, Korea. On that date
Sergeant Fridriksson was lead-
ing a motorized patrol which
was reconnoitering roads and
bridges between Kochang and
Muju. Twenty miles north of
Kochang the patrol encountered
an enemy force of approximately
75, equipped with small arms, a
T-34 tank and a field piece. Ser-
geant Fridriksson boldly decided
to attack with his outnumbered
patrol and fearlessly moved for-
ward. In the ensuing action the
enemy was driven off, leaving
their equipment behind. He then
dispatched a squad to pursue the
retreating enemy, while he di-
rected the destruction of the
enemy material. His skillful de-
ployment of his force and bold
initiative in attacking a numer-
ically superior force resulted in
25 enemy dead, 8 enemy soldiers
captured, the destruction of all
enemy equipment, including
small arms abandoned by the
fleeing enemy, without a single
casualty to his patrol. The gal-
lantry and skillful leadership
displayed on this occasion by
Sergeant Fridriksson r e f 1 e c t
great credit upon himself and
are in keeping with the finest
traditions of the military service.
Entered the military service
from Minnesota.
—☆—
Þegar blaðið var að fara í
pressuna barst því sú fregn, að
Þorvaldur hefði einnig hlotið
„Bronze Star“ fyrir nýja hetju-
dáð.
Úr borg og bygð
Mr. Boði Sædal, sem verið
hefir í canadíska sjóhernum í
allmörg undanfarin ár og hækk-
að þar að tign, kom bílleiðis
hingað til borgar um nýárið á-
samt konu sinni og tveimur
börnum vestan frá Kyrahafi, á
leið austur til Halifax; hann er
sonur þeirra Ágústs Sædal mál-
arameistara og frú Mínervu Sæ-
dal, hinn mesti dugnaðar- og
myndarmaður.
☆
Kvenfélag Fyrsta lúterska
safnaðar efnir til Tea og sölu á
heimatilbúnum mat í samkomu-
sal kirkjunnar á miðvikudaginn
þann 31. þ. m. Nánar auglýst
síðar. ☆
Hr. Grettir L. Jóhannsson ræð-
ismaður Islands í Manitoba,
Saskatchewan og Alberta, veikt-
ist snögglega á aðfaranótt síðast-
liðins sunnudags, var hann flutt-
ur á Almenna sjúkrahúsið hér
í borginni og gekk þar undir
uppskurð á sunnudaginn; lánað-
ist læknisaðgerðin hið bezta og
er ræðismaðurinn á ágætum
batavegi.
Nýr íslenzkur héraðsdómari
(Frá fréllariiara Lögbergs í Minneapolis)
Gullbrúðkaup
Gísli og Guðrún Björnson
Þorvaldur
Friðriksson
Vestur-íslendingar eru altaf
að montast af dómurum, þing-
mönnum, og öðrum embættis-
mönnum úr þeirra hópi. Guð-
mundur Grímsson, sern var
lengst af héraðsdómari í Norður
Dakota og er nú dómari hæsta-
réttar þar, er bezt þekktur með-
al dómara. Árni Gíslason, sem
var í fjölda mörg ár héraðsdóm-
ari hér í Minnesota kom aldrei
eins mikið fyrir almennings-
sjónir í blöðunum — og nú hefir
það sjaldgæfa skeð, að þegar
hann sagði af sér, tæplega 73 ára
í vor, varð bróðursonur hans
eftirmaður Árna — Sidney Gísla
son, sonur Björns heitins Gísla-
sonar lögfræðings.
Sidney fékk útnefningu, er
governor ríkisins veitti, þegar
prófatkvæðagreiðsla meðal lög-
fræðinga í umdæminu leiddi
það í ljós að þeir voru nærri
einróma með því að hann yrði
eftirmaður frænda síns. Árni
fær eftirlaun, er dómarar hér
fá þegar þeir ná aldurstakmark-
inu — og býr hann áfram í New
Ulm, ásamt konu sinni, Solveigu,
dóttur Gríms heitins Þórðarson-
ar frá Stað í Hrúntafirði, og
eftirlifandi ekkju hans, Ingi-
bjargar Snæbjarnardóttur, ætt-
uð úr Dölum (er Ingibjörg föður-
systir Rigmor Hansen dans-
kennara í Reykjavík).
I kosningunum 7. nóvember
var Sidney kosinn gagnsóknar-
laust til sex ára kjörtímabils.
Þó ungur sé var hann búinn að
fá orð á sig víða um suðurhluta
Minnesota-ríkis sem afbragðs
lögfræðingur. Hann er fæddur í
Minneota, Minnesota, í íslenzku
byggðinni þar, sumarið 1908, og
varð þannig “42 síðastliðið sum-
ar. Að maður ættfæri hann smá-
vegis (en það er nú sýki hjá mér,
eins og þið vitið) þá var Björn
faðir hans sonur Björns Gísla-
sonar bónda á Hauksstöðum í
Vopnafirði; var Björn gamli
sæmdur Dannebrogsorðunni fyr-
ir framúrskarandi búskap, og
fluttist hann til Minnesota á-
samt Aðalbjörgu Jónsdóttur
(ættqð af Fjöllunum) konu sinni
og fjölákyldu, árið 1879.
Björn, faðir dómarans, dó fyr-
ir tæpum 20 árum, kona hans
fyrir tæpum tveimur árum. Hét
hún Jóhanna og var dóttir Jón-
atans bónda á Eið
um Jónatansonar
Péturssonar frá
Hákonarstað á
Jökuldal; móðir
hennar var Krist-
ín dóttir Jóns
Þorvarðssonar
frá Papey og
Rósu konu hans.
Jóhanna var með
þ e i m alfyrstu
meðal íslenzks
kvenfólks, austan hafs og vestan,
sem lauk háskólanámi, hún út-
skrifaðist úr Minnesotaháskól-
anum nokkru fyrir aldamót og
var í fleiri ár kennari áður en
Sidney
Gíslason
hún giftist Birni. Var hún fædd
að Eiðum, og um sex ára þegar
hún kom vestur með foreldrum
sínum til Minnesota-byggðarinn-
ar. Sidney dómari lauk gagn-
fræðaskólanámi í þorpinu Min-
neota árið 1925, fluttist svo til
Marshall, nærliggjandi bæjar,
það ár með foreldrum sínum, og
þaðan til Minneapolis með
móður sinni og systkinum þeg-
(Frh. á bls. 8)
Það var ekki ský á lofti í
Argyle og Glenboro 1. des. s.l.
Sólin skein í heiði, og allir voru
brosandi og glaðir, því þetta var
gullbrúðkaupsdagur þeirra Gísla
og Guðrúnar Stefaníu Björns-
son, og þau eru með afbrigðum
vinsæl, og það má svo að orði
kveða að þau hafa lifað allan
sinn aldur í þessu bygðarlagi.
Þau giftust 2. des. árið 1900 og
bjuggu þau í Brúarbygð, alveg í
suðaustur horni bygðarinnar þar
til 1945, en síðan hafa þau búið
rétt vestan við Glenboro-bæ og
sitja þar eina beztu bújörð, sem
þar er um slóðir.
Gísli er sonur Björns Björns-
sonar frá Sæunnarstöðum í
Hallardal í Húnaþingi og konu
hans Guðnýjar Vilhelmínu Ein-
arsdóttur, ættuð úr Þingeyjar-
sýslu. Þau fluttu vestur frá Gras-
hóli á Melrakkasléttu, og námu
land í Argyle og nefndu bæ sinn
Grashól og bjuggu þar til dauða-
dags.
Kona Gísla Guðrún Stefanía
er dóttir Sigtryggs Stefánssonar
frumherja í Argyle og konu
hans Guðrúnar Jónsdóttur, fædd
á Þverá í Staðarbygð í Eyja-
fjarðarsýslu. Komu þau til
Vesturheims 1882. Guðrún er
með sérstæðustu konum, hún
varð níræð í sumar, og er enn
frísk og fjörug, var hún við-
stödd hátíðahöldin og minntust
flestir hennar fagurlega í ræð-
um sínum.
Fólkið í Brúarbygð og Glen-
boro stóð fyrir samsætinu, og
fólk í allri bygðinni tók saman
höndum, og fór samsætið fram
í North West Hall í Glenboro.
Mr. og Mrs. Jónas Anderson
frá Winnipeg leiddu gullbrúð-
hjónin til sætis, er leikið var á
slaghörpu brúðkaupslagið. Er
Mrs. Anderson systir gullbrúðar-
innar, og áttu þau Anderson-
hjónin 40 ára giftingarafmæli
þennan dag.
Fór þá fram skemtiskrá all-
fjörug, er séra Eric H. Sigmar
stjórnaði, og söng hann gifting-
arsálminn “I’U walk bside thee”
(Ég geng við hlið þér). Ræður
fluttu: B. S. Johnson, forseti
Frelsissafnaðar; B. K. Johnson
fyrir hönd Fríkirkjusafnaðar. S.
A. Anderson sendi skeyti fyrir
hönd Baldur-safnaðar, (hann
gat ekki verið viðstaddur). Fyrir
hönd fólks í Glenboro mælti G.
J. Oleson nokkur orð. Fyrir
hönd kvenfélaganna töluðu þær
Mrs. Conrad Nordman (Brú) og
Mrs. P. A. Anderson (Glenboro).
Sonur gullbrúðhjónanna, Har-
aldur, mælti fyrir hönd fjöl-
skyldunnar, og dóttur-dóttir
þeirra, Sigrún Sigmar, Mrs.
Jónas Anderson, systirbrúðar-
innar, talaði mjög fallega, sem og
F. Friðfinnsson náfrændi hennar
frá Winnipeg. Seinast talaði Hr.
Óli K. Stefánsson tengdabróðir
hennar, (hann er giftur Svöfu
systur gullbrúðarinnar) frá Van-
couver, B.C.
Þá voru heiðursgestum af-
hentar fjölmargar og verðmætar
gjafir frá fólkinu í bygðinni og
ættfólki þeirra: Verðmætt gull-
úr var þeim gefið af býgðarfólki;
Kvenfélagið á Brú gaf brúður-
inni hring (Signet-ring) og
Kvenfélagið í Glenboro hálsfesti.
Ættfólkið gaf þeim „Chester-
field set‘, lampa, rafmagns-
klukku og postulíns borðbúnað
(China dinner set) allt af vönd-
uðustu gerð, og fleiri gjafir.
Þá tóku heiðursgestir til máls
og þökkuðu með fögrum orðum
heiður, vinsemd og gjafir.
Veitingar voru fram bornar af
mestu rausn, og allir voru hjart-
Minnisvarði um Stephan G
Stephansson á Arnarstapa
Árið 1953 verður öld liðin
frá fæðingu Stephans G.
Stephanssonar skálds. í til-
efni þess hefir Ungmenna-
samband Skagafjarðar haf-
ist handa um að skáldinu
verði reistur minnisvarði á
Arnarstapa í Skagafirði, ör-
skammt frá fæðingarstað
þess.
Ríkarður Jónsson myndhöggv-
ari hefir gert uppdrátt að minn-
ismerkinu, sem er varði hlaðinn
úr brimsorfnu grjóti og stuðla-
bergi. Svo er til ætlast, að varð-
inn verði 4% metri á hæð, þrí-
strendur að lögun. Á hverri hlið
hans verður inngreyptur stein-
flötur með myndum af skáldinu
og tilvitnunum úr ljóðum hans.
Fjársöfnun til minnismerkis-
ins er þegar hafin, en aðeins inn-
an ungmennafélaganna í Skaga-
firði. Þó hafa þegar borist nokkr
ar peningagjafir frá aðdáendum
skáldsins, og má þar til dæmis
nefna Kvenfélag Seyluhrepps,
Kjartan ólafsson í Hafnarfirði
og Rannveigu Líndal á Sval-
barði.
Ef hinir mörgu aðdáendur
Stephans G. Stephanssonar víðs
vegar um landið, vildu leggja
eitthvað af mörkum, — hver eft-
ir sinni getu og vilja, — þá væri
létt verk að koma upp þessu
minnismerki, en hins vegar er
sjóður sá, er ungmennafélögin
hafa myndað, hvergi nærri nógu
öflugur til að standa straum af
byggingu minnisvarðans. Þess
vegna er þeirri ósk vinsamlega
beint til allra þeirra, er heiðra
vilja minningu Stephans G.
Stephanssonar, að þeir láti eitt-
hvað af hendi rakna til minnis-
merkisins. Þær gjafir má senda
til framkvæmdastjóra nefndar,
sem vinnur að því að hrinda
anlega glaðir; um 165 manns
sóttu hóf þetta. Gestir úr fjar-
lægð voru margir og skulu þeir
nefndir, sem ég man eftir, Mr.
og Mrs. Oscar Jósephson, Can-
nington, Ont. (hún er dóttir gull-
brúðhjónanna); Mr. og Mrs.
Hjörtur Davidson (systir brúð-
gumans); Mr. og Mrs. O. K. Ste-
fánsson, Vancouver, BC.; Mr.
Hermann Björnsson, Chicago,
111. (bróðir brúðgumans); Mrs.
Axel Sigmar, Winnipeg (systir
brúðgumans) og dóttir hennar
Mrs. Bertonille; Sigrún Sigmar,
Murrey Sigmar (dótturbörn);
Mr. og Mrs. F. Friðfinnsson og
systir hans Jónína Stephenson
(frændsystkini brúðarinnar) öll
frá Winnipeg og Mr. og Mrs. S.
A. Sigmar, Brandon.
Kvöldstund þessi var hin á-
nægjulegasta, allir tóku þátt í
þessum fagnaði með hjarta og
sál. Gullbrúðhjónin hafa tekið
þátt í félagslífi bygðarinnar alla
ævi með örlæti og fórnfærslu,
og lagt allt hið bezta til lífsins
og eru og hafa ævinlega verið
með afbrigðum gestrisin. Þau
eru enn ótrúlega ung í anda,
þrátt fyrir 50 ára giftingarferil.
hefir ellin ekki enn barið að
dyrum hjá þeim; óska allir þeim
til blessunar og hamingju á kom-
andi æviárum. Börn þeirra eru:
Emily í Vancouver, B.C., gift
hérlendum manni (Mr. H. Lewis)
Lára Jósephson í Cannington,
Ont.; Guðmundur giftur hér-
lendri konu, bóndi nálægt Glen-
boro; Haraldur, Friðrik og
Hansína, öll ógift og öll heima.
Mörg heillaóskaskeyti bárust
gullbrúðhjónunum frá vinum og
vandamönnum fjær og nær.
G. J. Oleson
þessu máli í framkvæmd, Kára
Sigurðssonar, Hverfisgötu 41,
Reykjavík, — eða formanns
nefndarinnar, Eyþórs Stefáns-
sonar á Sauðárkróki.
Fimmfugur
Jochum Ásgeirsson
Síðastliðinn mánudag átti hr.
Jochum Ásgeirsson stofnandi
fyrirtækisins „The Electrician,
685 Sargent Avenue hér í borg-
inni fimmtugsafmæli; var fyrir-
tækið stofnað 1941, en 1944 gekk
hr. Guðmann Levy í félag við
Jochum og hafa þeir rekið þetta
rafiðnaðarfyrirtæki í samein-
ingu síðan, og hefir það frá ári
til árs fært út kvíar við vaxandi
vinsældir.
I tilefni af afmæli Jochums
kom saman álitlegur hópur karla
og kvenna á hinu kunna risnu-
heimili þeirra Guðmanns Levy
og frú Margrétar Levy 263 Ren-
frew St. hér í borginni til heiðurs
við afmælisbarnið, og skorti þar
hvorki gleði né góðan fagnað.
Séra Philip M. Pétursson, for-
seti Þjóðræknisfélags íslendinga
í Vesturheimi, hafði orð fyrir
gestum, skýrði tilgang mann-
fagnaðarins og þakkaði heiðurs-
gestinum gott og ánægjulegt
samstarf; við lok máls síns af-
henti hann afmælisbarninu
fallegar minjagjafir, er viðtak-
andi þakkaði fyrir með fögrum
hlýyrðum; meira var ekki um
ræðuhöld, en þeim mun meira
um söng, mestmegnis á íslenzku,
er veizlugestir alment tóku þátt
í; veitingar voru hinar stór-
mannlegustu, svo sem vænta
mátti.
Jochum Ásgeirsson á rót sína
að rekja til Arngerðareyrar við
ísafjarðardjúp, sonur þeirra Ás-
geirs Guðmundssonar og Aðal-
bjargar Jónsdóttur, er þar
bjuggu; hann kom hingað af Is-
landi árið 1924. Jochum er
kvæntur Ingibjörgu Halldórs-
son frá Riverton hinni glæsi-
legustu konu og eiga þau tvö
mannvænleg börn.
Framhald á bls. 5
íslenzkur
félagsforseti
Mr. Gustaf Gottfred hefir ver-
ið kosinn forseti Kiwanis félags-
ins hér í borginni; hann er af al-
íslenzku fólki kominn, þótt nafn-
ið eigi bendi til þess; voru for-
eldrar hans hin mætu landnáms-
hjón, þau Mr. og Mrs. Jóhannes
Gottskálksson. Kona Mr. Gott-
ferds er Valdína Reykdal. Mr.
Gottfred er hið mesta glæsi-
menni, er rutt hefir sér braut
til góðs gengið og frama; hann
nam ungur símritun og hækk-
aði jafnt og þétt í tign unz svo
var komið, að hann er nú yfir-
umsjónarmaður við Canadian
National Telegraphs.