Lögberg - 18.01.1951, Qupperneq 3
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 18. JANÚAR, 1951
3
Börn Sameinuðu þjóðanna
Ef œskan vill rétta þér örfandi hönd
þd ertu á framtiöar vegi. — (P- E.)
ÞEIR, sem nú eru börn, eiga
að bera hugsjón Sameinuðu
þjóðanna fram til sigurs. Og
börn í öllum löndum hafa tekið
opnum örmum boðskapnum um
frið og bræðralag manna, boð-
skapnum, sem felst í stefnuskrá
og mannréttindaskrá Samein-
uðu þjóðanna. Þetta sést bezt á
bréfum þeim, sem Trygve Lie
berast daglega frá börnum í öll-
um heimsálfum.
Bréfin eru óteljandi og for-
ustumönnum Sameinuðu þjóð-
anna þykir vænt um þau. Bréfin
sýna það, að æskan 'um allan
heim er að slá skjaldborg um
málefni friðar og mannréttinda.
— Hverju einasta bréfi er svar-
að og til þess eru valdir ótal
menn, sem bezt kunna skil á
hugsunarhætti barna. Með þessu
móti er verið að safna alheims-
her, ekki vopnuðum her, heldur
hersveitum barna, sem lofa því
að gera alt sem þau geta til þess
að vernda friðinn, svo lengi sem
þau lifa. Sameinuðu þjóðirnar
telja það skyldu sína að hafa
samband við börnin um allan
heim, því að þar er sú kynslóð
sem á að taka við af þeim, sem
koma í framkvæmd hugsjón
kom aí framkvæmd hugsjón
þeirra um einingu allra þjóða á
jörðinni, samtök og samvinnu í
stað stríðs og styrjalda. Meðal
barnanna á að koma upp friðar-
her um alla jörð. Þess vegna er
lögð svo mikil rækt við að svara
vel og nákvæmlega öllum þeim
aragrúa af bréfum, sem börn
skrifa Sameinuðu þjóðunum. ___
Og þess vegna leggja Sameinuðu
þjóðirnar svo mikla áherzlu á
það, að í öllum skólum fari fram
fræðsla um starf og stefnumið
peirra. Þar geta kennarar gert
ometanlegt gagn. _ Hér er ein
saga um það, og hún kom fram
í bréfum fjölda barna í skóla 1
Nantes.
Nantes er borg í Frakklandi
og þar eru 187.000 íbúa. Þjóð-
verjar hertóku hana á stríðsár-
unum og gerðu þar kafbátabæki-
stöð. Þeir borgarbúar, sem störf-
uðu í frelsishreyfingunni, voru
skotnir hópum saman á torgi
í borginni, fyrir augum allra. En
svo þegar kafbátahöfnin var
fullgerð í september 1943, þá
komu flugvélar bandamanna í
stórhópum og létu sprengjum
rigna yfir stöðina og borgina.
Þær komu hvað eftir annað. Hús
hrundu, eldar geisuðu, fólk beið
bana hundruðum saman og þús-
undir særðust. — Börnin í Nan-
tes vita því hvað stríð er.
Og nú skýrðu þau Sameinuðu
Þjóðunum frá því, að þau hefðu
skipað sér undir merki þeirra
og ætluðu að kappkosta að vinna
að friði þegar þau stækkuðu. Og
á hverjum degi segjast þau
styrkja sig í þessum ásetningi. —
Það sé kennaranum sínum
Gernaux, að þakka. Hann hafi
fundið upp á því að. láta þau
ferðast með sér á hverjum degi
um allan heim f ímyndaðri flug-
vél. í þessari flugvél ferðast þau
land úr landi, borg úr borg, og
alls staðar hitta þau fyrir gott
fólk, sem líka hefir brennandi á-
huga fyrir friðarsamtökum þjóð-
anna. Þetta sýnir, að hér hefir
kennarinn fundið upp skemmti-
lega aðferð til þess að kenna
landafræði og mannkynssögu, og
notar það jafnframt til að vekja
skilning barnanna á því, að allir
menn eru bræður, hvar sem þeir
búa á hnettinum. Slíkir menn
vinna í kyrþey merkilegra starf
en hægt er að meta. Börnin hafa
það líka daglega fyrir augum, að
starfsemi Sameinuðu þjóðanna
er ekki skraf eitt. Það er verið
að reisa Nantes úr rústum með
aðstoð Sameinuðu þjóðanna og
Marshallstyrk.
Það er um auðugan garð að
gresja í bréfum barnanna. Þau
eru á ótal tungumálum. Sum eru
frá Svertingjabörnum í Afríku,
önnur frá brúnum börnum í
Malajalöndum, frá kínverskum
börnum í Indlandi o. s. frv. Þar
er bréf frá litlum dreng, sem á
heima í kjallara hrunins húss í
Berlín. Þar er bréf frá litlum
Gyðingadreng í Palestínu, einum
af þeim, sem komst undan of-
sóknum Nazista í Þýzkalandi.
Öll bera þessi bréf vott um
breytt hugarfar frá því sem áður
var, þegar börnin voru klædd í
hershöfðingjabúninga og látin
leika sér að tindátum og fall-
byssum.
Sameinuðu þjóðirnar reyna
að gera mikið fyrir börnin.
Barnahjálpin, sem er sérstök
stofnun á vegum þeirra, hefir
bjargað miljónum barna um all-
an heim. Að því hafa íslending-
ar stutt með framlögum sínum.
I byrjun þessa árs hjálpaði
Barnahjálpin til þess að klæða
um 250 þúsund fátækra barna í
Japan. Þau skrifuðu þakkarbréf
til Sameinuðu þjóðanna. — Síð-
astliðinn vetur var þröngt í búi
hjá Finnum. Þá sendi Barna-
hjálpin þangað alls konar mat-
væli til útbýtingar í skólum, enn
fremur klæðnað og skófatnað.
Eitt þakkarbréf þaðan gat gert
harðsvíraðasta mann klökkan.
Það var frá litlum dreng, sem
sagðist ekki hafa þurft nema ann
an skóinn, því að hann hefði mist
fót í stríðinu, en hann þakkaði
kærlega fyrir gjöfina.
Um langa hríð hefir Barna-
hjálpin gefið rúmlega miljón
ítalskra barna eina máltíð á dag.
Og hún hefir fætt og klætt
hundruð þúsunda barna í Grikk-
landi. Hún hefir sent flugvélar
með streptomycin og penicillin
til þess að bjarga lífi þúsunda
barna í Tékkóslóvakíu og Júgó-
slavíu. Hér er brot úr bréfi frá
Framhald á bls. 7
Stórtjón á Norðurlandi af völdum stórhríðar
og foróttubrims
Sjór flæðir á land. bátar brotna og týnast og hús og
hafnarmannvirki stórskemmast.
Stórhríðin og hvassviðrið, sem gekk yfir allt landið um
helgina, er eitthvert hið versta, sem hér hefir komið lengi.
Að líkindum munu hafa orðið miklu meiri skaðar en í
veðrinu 10 dögum áður, þótt þá væri öllu hvassara á
nokkrum stöðum. — Símasambandslaust var í gær við
Vestfirði og meirihluta Norðurlands og Austurlands, en
fregnir vantar nær alveg af Austfjörðum, en þar var veðr-
ið mjög hart. Tíminn fékk í gær nokkrar fregnir af tjóni
af völdum veðursins frá fréttaritara sínum á Norðurlandi
eftir því sem til naðist í símtölum og fréttaskeytum.
Á laugardagsmorgun tók að
hvessa á Vestfjörðum og síðan
gekk veðrið austur yfir landið
og brast stórhríðin á síðdegis á
sunnudagsnóttina á austurhluta
landsins. Þetta stormasvæði náði
allt austur til Jan Mayen og
langt norður í haf. Varð foráttu-
brim við Norður- og Norðaustur-
land og sjógangur með því
mesta, sem orðið hefir síðustu
tvo áratugi. Snjókoman var mik-
á norðurhluta landsins en
sunnan lands var hún lítil. Vind-
ur varð víða um 12 vindstig og
frost töluvert og herti er á leið.
Á mánudagsnóttina tók aftur að
kyrra og í gær var víða komið
sæmilegt veður en mikið frost.
Á Austfjörðum var þó enn all-
hvasst eða um 8 vindstig. í gær
var frostið í Möðrudal á Efra-
fjalli 15 stig en minnst í Öræf
um 6 stig.
LítiS ijón sunnan lands.
Lítið tjón mun hafa orðið
sunnan lands í veðrinu að því
er til hefir frétzt. Þó munu síma
línur hafa slitnað og var síma-
samband lengst austur á Hvols-
völl í gær. Vestan lands var einn
ig lítið tjón nema helzt á Vest-
fjörðum, en þó mun það ekki
hafa orðið mjög stórfellt þar á
bátum eða hafnarmannvirkjum.
Aðaltjónið mun hafa orðið á
Norðurlandí og ef til vill á Aust-
fjörðum en þaðan vantaði freng-
ir alveg í gærkvöldi.
Flæðir í 30 hús á
Siglufirði
Á Siglufirði brast stórhríðin
á seint á sunnudagskvöld og um
nóttina gekk í foráttubrim eitt
hið mesta, sem komið hefir þar
lengi. Gekk sjórinn látlaust yfir
brimvarnargarðinn og með há-
flæði á sunnudagsmorgun gekk
mikil flóðalda yfir eyrina og
flæddi yfir nokkrar götur, eink-
um Ránargötu og Þormóðsgötu.
Svelgur sá, sem á að flytja brott
vatnþarma, stíflaðist og hækkaði
flóðið svo ört, að það flæddi við-
stöðulaust inn í mörg hús.
Flæddi mikill sjór inn í 25—30
íbúðarhús og gerði mikið tjón,
en fólk varð að hafa sig á brott í
skyndi. Fjöldi manna reyndi að
ryðja frá svelgnum og tókst það
von bráðar og lækkaði þá flóðið
fljótt, en tjón varð margvíslegt
í húsunum.
Skemmdi karfa- og ufsamjöl.
Sjórinn gekk yfir allar bryggj-
ur og skemmdi sumar nokkuð.
Einnig gekk hann inn í verk-
smiðjuhús og geymsluhús, m. a.
inn í stærstu mjölskemmuna.
Þar var allmikið geymt af karfa-
og ufsamjöli frá vinnslunni síð-
ustu vikur og stórskemmdist
mikið af því.
Togarinn Elliði og spænskt
fisktökuskip, sem lágu við
bryggju, slitnuðu frá henni og
urðu að leggjast við festar úti á
höfn en ekkert tjón varð á þeim
Tvö stór skörð brotnuðu í flóð-
garðinn og er það mikið tjón.
Á suftnudagsnóttina bilaði há-
spennulínan frá Skeiðfossvirkj-
uninni til Siglufjarðar og var
rafmagnslaust um sinn, þangað
til vélar síldarverksmiðjanna
voru teknar í notkun og hefir
bærinn enn rafmagn frá þeim,
því ekki var lokið viðgerð lín-
unnar í gærkveldi.
Business and Professional Cards
eign útgerðarfélagsins Vísir í
Húsavík, slitnaði upp og rak á
land. Er hann talinn talsvert
brotinn og ’ mjög örðugt um
björgun hans. Vélskipið Smári
var aðeins tveggja ára gamalt og
stærsti bátur Húsvíkinga.
Brimið gekk yfir hafnarbryggj
una og hafnargarðinn nýja og
yfir steyptar uppfyllingar. Varð
þar nokkurt tjón á lauslegum
munum, en hafnarmannvirkin
munu óskemmd.
Tjónið af völdum brimsins
norðan lands mun hafa orðið
meira vegna þess að stórstreymi
var.
Eins og fyrr segir var síma-
sambandslaust við norðaustur-
hluta landsins í gær og er blað-
inu ekki kunnugt um tjón
höfnum austan Húsavíkur, en
búast má við að það hafi norðið
nokkurt.
Tjón í flestum höfnum
við Eyjafjörð og
Skjólfanda
Við Eyjafjörð og Skjálfanda
varð margvíslegt og mikið tjón
á hafnarmannvirkjum og bátum
að því er segir í fréttaskeytum
frá Akureyri og Húsavík.
Skarð í hafnargarðinn
á Dalvík.
Á Dalvík braut brimið skarð í
hafnargarðinn. Skolaði stórgrýti
úr uppfyllingu hans en steyptur
veggur stóð þó óhaggaður. Sjór
braut þar einning grunn undan
geymsluskúr svo að hann
hrundi. Skemmdirnar á hafnar
garðinum eru á 10—12 metra
kafla og er hann illnothæfur.
Munu bátar verða að flytja sig
frá Dalvík um sinn. Vörum og
olíu, sem var í skúrnum sem
sjórinn tók, tókst að bjarga.
Trillubátur íýndist í Hrísey
og Grenivík.
í Hrísey slitnaði vélbáturinn
Kópur upp af bátalegunni og
týndist hann með öllu. Á Greni-
vík slitnaði einnig trillubátur
upp af legunni og týndist.
SELKIRK METAL PRODUCTS LTD.
ReykháfauT, öruggaata eldavörn,
og ávalt hreinlr. Hitaeiningar-
rör, ný uppfynding. Sparar eldi-
viö, heldur hita frá að rjúka út
með reyknum — Skrifið símið til
KELLY SVEINSSON
625 Wall Street, Winnipeg
Just north of Portage Ave.
Sfmar: 33-744 — 34-431
S. O. BJERRING
Canadian Stamp Co.
RUBBER & METAL STAMPS
NOTARY & CORPORATE SEALS
CELLULOID BUTTONS
324 Smith St. Winnipeg
Phone 924 624
Gunnar Erlendsson
Pianist and Teacher
Studio — 636 Home Street
Thelephone 725 448
ÍMUDSTÖl
JEWELLER5
447 Portage Ave,
Branch
Store at
123
TENTH ST.
BRANDON
Ph, 926 885
Bryggjuijón á Akureyri.
Á Akureyri skall á norðan
stórhríð á sunnudagsnóttina og
varð veðrið eitthvert hið versta,
sem komið hefir í mörg ár.
Sjógangurinn braut frystihús-
^ryggju K.E.A. á Oddeyrar-
tanga og svonefnda Wathne-
^ryggju. Sópaði palli af báðum
þessum bryggjum. Sjór flæddi
inn í skipasmíðastöð K.E.A. á
Oddeyri og frystihús, sem þar er,
en þar urðu þó ekki miklar
skemmdir.
Mesta brim síðan 1934.
í fréttaskeyti frá Húsavík seg'
ir, að norðan fárviðri með snjó-
komu og foráttubrimi hafi verið
þar á sunnudaginn svo að annar
eins sjógangur muni ekki hafa
komið þar síðan 1934. Þrír trillu-
bátar slitnuðu upp af legunni og
sukku. Vélbáturinn Smári Th.
59, sem er 60 lestir að stærð,
Kominn mikill snjór.
Snjókoman var mikil og voru
flestir vegir norðan lands ófærir
bifreiðum í gær, jafnt á heiðum
sem í byggðum. Mjólkurbílar
komust ekki til Akureyrar úr
nærsveitum hvað þá lengra að.
Áætlunarbíll teppist
í Húnaþingi.
Fréttaritari Tímans á Blöndu-
ósi símaði í gær, að stórhríðin
hefði skollið þar á mjög snögg-
lega kl. 7 á laugardagskvöld.
Var veðrið hið versta og mikil
snjókoma. Seinni part laugar-
dags fór áætlunarbíll frá Blöndu
ósi áleiðis til Sauðárkróks. Ætl-
aði hann að fara fram á nýju
ekki nema fram að Sólheimum
við Svínavatn, sat þar fastur í
snjó, og annar bíll, sem fór hon-
um til hjálpar, komst heldur
ekki lengra. Urðu farþegar 11 að
tölu og bifreiðarstjórar að
dvelja á Sólheimum allan sunnu
brúna á Blöndu. En hann komst
daginn. í gær fóru menn á stór-
um bíl frá Blönduósi þeim til
hjálpar. Komu sumir farþegarn-
ir með honum aftur til Blöndu-
óss í gærkvöldi, en aðrir reyndu
að halda norður.
Undanfarna daga hafa 18
menn unnið að viðgerð síma-
skemmdanna í Langadalnum,
sem urðu í óveðrinu um daginn.
Eru þær miklu meiri en fyrst
var áætlað. Var hátt á annað
hundrað símastaura brotið á bil-
inu frá Skagaströnd að Bólstað-
arhlíð. Símabilanir urðu svo
ný í stórhríðinni á sunnudaginn,
og var símasambandslaust aust-
ur frá Blönduósi og um allar
nærsveitir.
- Phone 21 101
ESTIMATES
FREE
J. H. INGIMUNDSON
Asphalt Rnofs and Insulated
SJdine — Repairs
Country Orders Attended To
632 Simcoe St. Winnipeg, Man
DR. A. V. JOHNSON
Dentlst
506 SOMERSET BUILDINO
Telephone 97 932
Home Telephone 202 398
Talslml 925 826 Helmilis 404 630
DR. K. J. AUSTMANN
SérfrœOingur i augna, eyrna, net
og tcverka sjúkdómum.
209 Medical Arts Bldg.
Stofutlmi: 2.00 til 5.00 e. h
DR. ROBERT BLACK
Sérfrœöingur i augna, eyrna
nef og hdlssjúkdómum.
401 MEDICAL ARTS BLDU
Graham and Kennedy St
Skrlfstofustml 923 851
Heimaslml 403 794
HAGBORG FUEl
PHOME 2ISSI
Rafmagnslausir i 10 daga.
I fyrra óveðrinu bilaði raflín-
an frá Laxárvirkjuninni að
Blönduósi og var kauptúnið raf-
magnslaust í 10 daga. Á föstu-
daginn komst aftur rafmagn á,
en það stóð aðeins einn sólar-
hring, því að aftur varð raf-
magnslaust á laugardagskvöld
vegna kraps, sem hlóðst að stíflu
virkjunarinnar.
Á laugardaginn fór áætlunar
bifreið frá Blönduósi áleiðis
suður. Komst hún ekki lengra en
í Hrútafjörð vegna snjókomu
um kvöldið, varð hún að sitja
þar um kyrrt á sunnudag, en 1
gær komst hún suður yfir Holta-
vörðuheiði, og er heiðin talin
slarkfær stórum bifreiðum.
—TÍMINN, 13. des
GUNDRY PYMORE
Limited
British QuaUty Fish Netting
58 VICTORIA ST„ WINNIPEO
Phone 92 8211
Manager T. R. TRORVALDSON
STour patronage wlll be appreclated
G. F. Jonasaon, Pree. <St Mar. Dlr
Keystone Fisheries
Limited
404 SCOTT BLK, Stml 8Í6 117
Wholesale Distributors of
FRESH AND FROZEN FI8H
Dr. P. H. T. Thorlakson
WINNIPEG CI.INIC
Bt. llary’a and Vaughan. Wp*.
Phone 926 441
PARKER, PARKER
& KRISTJANSSON
Barristers - Solicilors
Ben C. Parker, K.C.
B. Stuart Parker, A. F. Kristjanssou
500 Canadian Bank of Commerce
Chambers
Winnipeg, Man. Phone 923 561
Phone 917 0»
H. J. H. Palmason, CJL
H. 4. PALMAION * CO.
Chartarad Accoontanta
605 Confedaratlon Ufe Bld*.
Winnipe* Manltoba
JOHN A. HILLSMAN.
M.D., Ch. M.
332 Mer.ical Arts. Bldg.
OÍFICE 929 349 Home 401 288
Phone 724 944
Dr. S. J. Jóhannesson
SUITE 6 — 652 HOME ST,
Vlðtaistlmi 1—5 efUr h°i
DR. E. JOHNSON
104 EVELINB STREET
Selkirk. Man.
Offlce nrs. 2.30—* p.m.
Phones: Offtce 26 — Rea. 110
Offlce Phone Res Phone
924 762 726 115
Dr. L. A. Sigurdson
628 MEDICAL ARTS BLDQ.
Office Hours: 4 p.m.—6 p.m.
and by appolntment
DR. H. W. TWEED
Tannlœknir
508 TORONTO QEN. TRU8T8
BUILDING
Cor Portage Ave. og Smith 8t.
Phone 926 952 WINNIPEO
Offlce 933 587 Res. 444 389
THORARINSON &
appleby
BARRISTERS and SOLICITORS
4th Floor — Crown Trust Bldg.
364 Matn Street
WINNIPEG CANADA
SARGENT TAXI
Phone 722 401
FOR QUICK RELIABLE
SERVICE
J. J. SWANSON & CO.
LIMITED
108 AVENUE BLDO WPQ.
Fastelgnasalar. Lelgja hús. Ot-
vega peningal&n og eldsfibyrgð.
bifreiðafibyrgð, o. a. frv.
Phone 927 518
Andrews, Andrews,
Thorvaldson and
Eggertson
Lögfrœðingar
209UANK OF NOVA SCOTIA BQ.
Portage og Oarry 8t
Phone 928 291
CANADIAN FISH
PRODUCERS, LTD.
J. H. PAOE, Managing Director
Wholesale Dlstributors of Fraah
and Frozen Fish.
111 CHAMBERS STREET
Office Ph. 26 328 Res. Ph. 71 917
A. S. BARDAL
848 SHERBROOK STREET
Selur Ukklstur og annast um tt-
farlr. Allur útbúnaður s& beitl.
Ennfremur selur hann allskonar
minnisvaröa og legsteina.
Skrifstofu talslml 27 124
Heimills talstmi 26 444
Phone 23 99* 7*1 Notre Dame Ave.
Juat Weat of New Materalty Hoapital
Nell's Flower Shop
Wedding Bouquets, Cot Flower*
Funeral Designs, Coraagea
Bedding Plants
Nell Johnson Ruth Rowland
27 482 88 790