Lögberg - 08.03.1951, Side 1
PHONE 21 374
. ti U">í*e
,ners
A Complete
Cleaning
Inslitulion
64. ÁRGANGUR
PHONE 21374
A tf***
Þa^ ytj*
A Complete
'Cleaniner
fnstitutior
NÚMER 10
Fréttir fró ársþingi Þjóðræknisfélagsins
Sennilega munu birtast innan
skamms ýtarlegar fréttir af
gjörðum þingsins frá hendi
skrifara þingsins, skal því látið
nægja að skýra frá því, að á-
kveðið var að næsta þing yrði
haldið í júní 1952. Þingið sýndi
tiltraust sitt til stjórnarnenfdar
með því að endurkjósa alla með-
limi hennar í einu hijóði.
Sagt hefir verið frá samkomu
»Fróns“, sem haldin var á mánu-
dagskvöldið, 26. febrúar. Kvöld-
ið eftir hélt Icelandic Canadian
klúbburinn sína árlegu sam-
komu í Fyrstu lútersku kirkju
°g var hún einnig mjög fjölsótt
°g fór hið bezta fram. Samkom-
unni stjórnaði forseti félagsins,
W. H. Kristjánsson. Ræðumað-
urinn, Dr. S. W. Steinsson flutti
erindi sitt með skörungsskap og
var gerður góður rómur að því.
Unglingarnir frá Daniel Mc-
Intyre-skólanum, undir forustu
^tiss Lilju Eylands gerðu hlut-
verkum sínum góð skil. Mikil
unun var að hlusta á píanóleik
Miss Thoru Asgeirson, og Mrs.
Elma Gíslason söng ágætlega;
Nýkjörnir
heiðursfélagor
Þjóðræknisfélagsins
DR. GILLSON
forseti Manitobaháskólans
A. S. BARDAL
útfararstjóri
hún söng meðal annars ný lög
eftir Ólaf Hallsson frá Eriksdale,
sem raddsett voru á Islandi við
kvæði eftir Dr. S. E. Björnsson.
Lét fólk í ljósi mikla ánægju
yfir þeim.
Að lokum sýndi séra Valdimar
J. Eylands litmyndir frá íslandi
og útskýrði þær. Hefir fólk ávalt
gaman af að sjá myndir þaðan.
Lokafundur þingsins var hald
inn á miðvikudagskvöldið, 28.
febrúar, í Fyrstu lútersku kirkju.
Fundinum stýrði forseti, séra
Philip M. Pétursson, en skemt-
uninni, varaforseti, Dr. T. J. Ole-
son. Hon. Valdimar Bjornson,
ríkisféhirðir Minnesota-ríkis,
flutti þar eina af sínum ágætu
og skemtilegu ræðum — „Um
daginn og veginn“. — Einsöngva
sungu þau Miss Inga Bjarnason
og Mr. Albert Halldórsson, en
Mrs. W. H. Kristjánsson var við
hljóðfærið; var gerður góður
rómur að söng þeirra, sem og að
fiðluspili hins kunna fiðluleik-
ara, Mr. Pálma Pálmasonar. Mr.
Ragnar Stefánsson las af snild
söguna „Álfur á Borg“ eftir Dr.
Jóhannes P. Pálsson.
Ritari félagsins, J. J. Bíldfell,
lagði fram þær tillögur stjórnar-
nefndarinnar, að Dr. A. H. S.
Gillson, forseti Manitobaháskóla,
A. S. Bardal útfararstjóri og
Ólafur Pétursson fésýslumaður,
væru kosnir heiðursfélagar Þjóð
ræknisfélagsins. Þessar tillögur
hverja í sínu lagi studdu, Grettir
L. Jóhannson, Dr. Richard Beck
og Einar P. Jónsson og voru þær
samþyktar með dynjandi lófa-
klappi.
1 tilefni af 75 ára afmæli Gísla
Jónssonar, ritstjóra „Tímarits-
ins“ sæmdi Þjóðræknisfélagið
hann minningargjöf, er forseti
félagsins afhenti honum með
nokkrum hlýjum orðum; viðtak-
andi þakkaði sæmdina og slíkt
hið sama gerði A. S. Bardal, eini
nýkjörni heiðsursfélaginn, sem
viðstaddur var.
Að svo mæltu þakkaði forseti
þinginu góða samvinnu og lýsti
þingi slitið.
Nauðsynleg
fjársöfnun
Þann 1. þ. m., hófst fjársöfn-
un í sjóð Rauða Krossins hér í
landi, og nemur sú upphæð, sem
fram á er farið fimm miljónum
dollara; engum heilskygnum
manni blandast hugur um það
hve þörfin sé brýn; starfsemi
Rauða Prossins meðan á flóðun-
um miklu í Rauðárdalnum stóð
í fyrra, mun engum úr minni
líða, er kunnur var aðstæðun-
um; blóðsöfnun er nauðsynleg,
eigi aðeins vegna canadískra
hermanna á vettvangi vígstöðv-
anna í Kóreu, heldur og til notk-
unar í sjúkrahúsum víðsvegar
um landið.
Allir verða að leggja eitthvað
af mörkum, því margt smátt
gerir eitt stórt; mannúðin krefst
þess, að enginn liggi á liði sínu.
Enn magnasf
dýrfíðin
Um miðja fyrri viku hækkaði
smásöluverð á smjöri um sjö
cents pundið, og nú er kaffi kom-
ið á annan dollar; aðeins efnað
fólk getur veitt sér beztu teg-
undir kjöts og fiskjar; par af
skóm hefir hækkað um tyo doll-
ara og fatnaður hvers konar er
kominn í ráns verð. Hverjir eiga
að gæta hagsmuna láglauna-
stéttanna og blessaðs aldur-
hnigna fólksins, sem verður að
draga fram lífið á öldungis ó-
fullnægjandi ellistyrks?
Sérstæð hljómlistarhát-íð í sögu íslendinga vestan hafs
Urá því hefir verið skýrt
*■ undanfarið í íslenzku
vikublöðunum, að svo
hafi skipast til fyrir at-
b e i n a framkvæmda-
nefndarinnar í íslenzka
kenslustólsmálinu v i ð
Manitobaháskólann og
þeirra mannfélagsstofn-
ana, er í samráði við
hana vinna, að þær
hljómlistarstjörnurnar,
frú María Markan Öst-
lund, víðkunn óperu-
söngkona, og ungfrú
Helga Sigurðson, sem
getið hefir sér frægðar-
orð í píanóleik, komi
hingað til borgar frá
New York, og efni til
sameiginlegra hljóm-
leika í Playhouse
Theatre á föstudags-
kvöldið þann 30. yfir-
standandi m á n a ð a r ;
hljómleikakvöld þetta
má í rauninni skoðast
sérstætt fræðslukvöld,
og hlutaðeigandi tónlist-
arsnillingar miðla örlátlega af takmörkuðum tíma sínum til fulltingis við það langmerkasta málefni, er Islendingar vestan hafs
hafa nokkru sinni beitt sér fyrir um að hrinda í framkvæmd; slíka hollustu við íslenzkar menningarerfðir ber öllum að þakka og
meta. __ Að því hefir einnig verið vikið, áð hinn mikilhæfi menningarfrömuður, Dr. Gillson, muni á áminstu skemthcvöldi bera
fram mikilsverða yfirlýsingu varðandi stofnun hins íslenzka kenslustóls. — Aðgöngumiðar að skemtikvöldinu kosta $1.00 og fást
hjá ungfrú Margréti Pétursson, 45 Home Street, á skrifstofum Lögbergs og Heimskringlu og í Björnssons Book Store 702 oargent.
Frú María Markan Östlund
Ungfrú Helga Sigurðson
Frá Kóreu
Undanfarna viku hafa lýð-
ræðisfylkingarnar unnið allmik-
ið á í Kóreu og tekin kynstrin öll
af kínverskum kommúnistum til
fanga. Canadískar hersveitir
hafa tekið þátt í orustum þessa
síðustu daga og getið sér frægð-
arorð fyrir áræði og hreysti.
Fjorvcldafundur
Þann 5. þ. m. hófst í París
fundur, er aðstoðarutanríkisráð-
herrar stórveldanna fjögurra,
Bretlands, Frakklands, Banda-
ríkjanna og Rússlands standa að;
til fundar þessa var boðað með
það fyrir augum, að leita hóf-
anna um hvort ráðlegt þætti að
boða síðar til fundar með utan-
ríkisráðherrum áminstra stór-
velda ef með því mætti auðnast
að draga eitthvað úr kalda stríð-
inu og semja dagskrá fyrir þann
fund ef til þess kæmi að hann
yrði haldinn; upphaflega vildu
Rússar aðeins ræða um framtíð
Þýzkalands, en þessu mótmæltu
Vesturveldin og kröfðust þess að
tekin yrði til meðferðar öll þau
mál, er heimsfriðinn varða; nið-
urstöður áminsts fundar eru enn
eigi kunnar.
Launahækkun
Starfsfólk hinna ýmsu járn-
brautarfélaga í Bandaríkjunum,
sem vinnur í skrifstofum og
smíðastöðvum þeirra, hefir ný-
verið fengið kauphækkun, sem
nemur tólf centum á klukku-
stund, auk dýrtíðaruppbótar,
sem greidd verður þann 1. apríl
næstkomandi; liðug miljón
manna og kvenna verður að-
njótandi þessara nýju kjara-
bóta. v ,
— GIFTING —
Síðastliðið haust, 7. okt., 1950
voru gefin saman í hjónaband í
St. Saviors Anglican kirkjur.ni
í Vancouver, Harold Bogi Sig-
urgeirson og Sheila Maureen
Meek. Rev. Davies gifti.
Brúðguminn er sonur Boga
Sigurgeirson (yngri) og konu
hans Þuríðar Þorvaldson Sigur-
geirson, en brúðurin er af írsk-
um ættum. Heimili hinna ungu
hjóna er í Victoria, B.C. en þar
er hann bókhaldari við Dom-
inio,n Bankann.
Úr borg og bygð
Mr. George Jóhannesson, sem
dvalið hefir hér í borg síðast-
liðin fjögur ár, er nýlegður af
stað ásamt frú sinni og barni
vestur til Edmonton, þar sem
hann hefir verið skipaður í flug-
kafteinsstöðu hjá Canadian Paci-
fic Airlines. Mr. Jóhannesson er
sonur frú Guðlaugar Jóhannes-
son að 739 Alverstone Street
hér í borg.
☆
— ÞAKKARORÐ —
Þess hefir áður verið getið, að
á jóladaginn 1950 brann heimili
okkar að Grass River til kaldra
kola ásamt öllum innanstokks-
munum; allar eignir voru óvá-
trygðar.
Þann 17. febrúar síðastliðinn,
söfnuðust saman ættingjar okk-
ar og vinir að heimili Mr. og
Mrs. Walters Samson, Ferry
Road, héldu okkur yndislegt
samsæti og sæmdu okkur þar
ýmsum verðmætum gjöfum,
fatnaði, húsmunum og peninga-
upphæð; allan þann kærleika,
sem okkur var auðsýndur í til-
efni af áminstum skaða, þökk-
um við innilega og biðjum Guð
að launa.
Mr. og Mrs. Bjarni Skandberg
og fjölskylda.
☆
Meðal gesta á þjóðræknisþing-
inu og samkomum þess voru:
Mr. óg Mrs. S. V. Sigurdscn,
Riverton; Mrs. Barney Eggert-
son, Vogar; Mrs. S. E. Björns-
son, Miniota; séra Skúli Sigur-
geirsson, Foam Lake; Jón Myr-
man, Steep Rock; Mr. og Mrs.
Ólafur Hallsson, Eriksdale;
Bjarni Sveinsson, Keewatin;
Miss Svafa Pálsson, Geysir,
Man.
Fulltrúar og gestir frá Ár-
borg: Mr. og Mrs. Sig. Einarsson,
Mrs. Herdís Eiríksson P. rI h.
Stefánsson, Magnús Gíslason,
Sigurður Finnson, F. J. Sigurðs-
son, Heiðmar Björnsson.
Frá Lundar: Séra Jóhann
Friðriksson, Mrs. L. Sveinssen,
Mrs. H. Pálsson.
Frá Selkirk: Einar Magnús-
son, Eiríkur Vigfússon, Trausti
Isfeld.
Frá Gimli: Mr. og Mrs. H. G.
Sigurdson, Sigurður Baldwins-
son.
Séra Philip M. Pétursson, forseti
Embættismenn
Þjóðræknisfélagsins
Á nýafstöðnu þingi Þjóðrækn-
isfélags íslendinga í Vestur-
heimi, voru allir em’oættismenn
félagsins endurkosnir.
Séra Philip M. Pétursson, forseti
Dr. T. J. Oleson, varaforseti
J. J. Bíldfell, skrifari.
Frú Ingibjörg Jónsson,
varaskrifari
G. L. Jóhannson, féhirðir
Grettir Eggertson, varaféhirðir
Guðmann Levy, fjármálaritari
A. G. Eggertson, K.C.,
. varafjármálaritari
Ólafur Pétursson, skjalavörður
Endurskoðendur:
Steindór Jakobsson
J. Th. Beck.
Sigfús B.
Benediktsson látinn
Þann 1. þ. m., lézt að heimili
sínu í Langruth Sigfús B. Bene-
diktsson, skáld, 86 ára að aldri,
ættaður úr Norður-Múlasýslu;
útför hans fór fram þar í bæn-
um á laugardaginn, 3. þ. m. urtd-
ir umsjá Bardals. Séra Jóhann
Friðriksson jarðsöng; héðan úr
borg, auk Bardals, voru við-
stödd kveðjuathöfnina, Mr. J.
Th. Beck, Miss Stefanía Eydal og
Mr. og Mrs. Hjálmar Gíslason;
hinn látni verðskuldar gleggri
greinargerð áður en langt um
líður.
Borað fyrir olíu á ný
Náttúrufríðindaráðuneytið í
Manitoba hefir lýst yfir því, að
innan fárra daga verði borað
fyrir olíu í grend við bæinn
Birtle hér í fylkinu með því að
sérfræðingar telji næsta líklegt,
að þar sé um olíuæðar að ræða;
svæði þetta liggur í þrjátíu og
fimm mílna fjarlægð frá Virden,
þar sem nokkurrar olíu hefir
þegar orðið vart, en rannsóknir
á olíumagninu á þeim slóðum
standa enn yfir.
Hef ja búskap
í Alberta
Nálega fimtán hundruð hol-
lenzkir bændur eru nýlega
komnir sem innflytjendur hing-
að til lands með búskap í Al-
berta-fylki fyrir augum; þeir
voru flestir dúðaðir í þykk vetr-
arföt og féllu því nær í stafi, er
þeir fyrir nokkrum dögum komu
til Winnipeg í logni og glaða
sólskini.
Stjórnarkreppa í
Frakklandi
Stjórn sú í Frakklandi, sem
setið hefir þar að völdum í vetur
undir forustu Rene Plever, sagði
af sér um miðja fyrri viku vegna
þess að hana skorti nægilegt
þingfylgi til að hrinda í fram-
kvæmd þeim breytingum á
kosningalöggjöfinni, er hún eigi
aðeins taldi æskilegar, heldur í
rauninni alveg óhjákvæmilegar.
Eins og nú hagar til, eru hlut-
fallskosningar um hönd hafðar í
Frakklandi; vildi Mr. Pleven af-
nema þær vegna þess hve þær
væri auðsæilega til hagsmuna
fyrir kommúnista, en koma í
þess stað á fót óhlutbundnum
kosningum svo sem lengi hefði
gengist við í landinu.
Fylkingar rofna
Frá Róm hafa nýverið borist
þær fregnir, að fylkingar
ítalskra kommúnista séu all-
mjög teknar að þynnast, og í
sumum tilfellum jafnvel alveg
að rofna; fimm leiðtogar kom-
múnista í ítalíu, hafa opinber-
lega lýst yfir fullu sambands-
rofi við Moskvu, með því að þeir
sjái sér ekki lengur fært, að lúta
erlendu böðlavaldi.