Lögberg - 08.03.1951, Blaðsíða 8

Lögberg - 08.03.1951, Blaðsíða 8
8 LÖGBERG, FIMTUDAGINN 8. MARZ, 1951 Úr borg og bygð Malreiðslubók Dorcasfélag Fyrsta lúterska safnaðar hefir nú til sölu splunk- urnýja matreiðslubók, er það hefir safnað til og gefið út; bók þessi er með svipuðum hætti og hinar fyrri, vinsælu matreiðslu- bækur, er Kvenfélög safnaðar- ins stóðu að; þetta er afar falleg bók með fjölda gamalla og nýrra uppskrifta, sem koma sér vel á hvaða heimili, sem er. Matreiðslubók þessi kostar $1.50 að viðbættu 10 centa burð- argjaldi. Pantanir, ásamt andvirði, sendist: Mrs. A. MacDonald 11 Regal Ave. St. Vital Sími 205 242 Mrs. H. Woodcock 9 St. Louis Road, St. Vital Sími 209 078 eða til Columbia Press Limiied, 695 Sargent Ave. Sími 21 804. ☆ The Jon Sigurdson Chapther I O D E will hold a “Birthday Bridge“ on March 19th Monday Eve. in the Federated Church Parlors at 8.30 sharp. Valuable prizes will be awarded the lucky winners. ☆ Sale of Home cooking. The Women’s Association of the First Lutheran Church is having a sale of Home cooking in tbe lower auditorium of the church on Friday March 9th at 7.30 to 10 p.m. Icelandic food will be served. Also “skyr” with cream. You are cordially invited to attend. ☆ Afmœlisgjafir til BETEL, I. marz 1951 Ónefndur í minningu um Lýð Johnson, er dó á Betel nýlega $10.00. Úr Minningarsjóði Kvenfélags ins Baldursbrá í minningu um Björn Anderson, er dó að Baldur II. des. 1950 $15.00. Snæbjörn Anderson, Glen- boro, og Mr. og Mrs. Paul Ander- son $20.00 og Kvenfélag Frelsis- safnaðar að Grund $5.00 í minn- ingu um Björn heitinn Ander- son — alls $25.00. Mr. og Mrs. S. Ólafsson, Foam Lake, Sask. „Með allra beztu af- mælisóskum og von um að land- ar framrétti samtaka margar gjafmildar kærleikshendur Betel til stuðnings og styrktar, því margs þarf með á svo fjöl- mennu heimili“. $10.00. Frá Kvenfélaginu Isafold í Víðir-bygð. „Með ósk um góða framtíð fyrir Betel“ $25.00. Mrs. C. Paulson, Gerald, Sosk. $2.00. Mr. og Mrs. J. R. Johnson, .Wapah, Man. $15.00. Samskot á samkomu Kvenfé- lags Fyrsta lúterska safnaðar í Winnipeg 1. marz, $216.80. Nefndin þakkar innilega fyrir allar þessar gjafir. * J. J. Swanson, féhirðir 308 Avenue Bldg., Winnipeg ☆ Mr. Bjarni Sveinsson frá Keewatin, sem dvalið hefir hér síðan um þjóðræknisþing hélt heimleiðis á mánudaginn. ☆ Mr. Skúli Sigfússon, fyrrum þingmaður St. George-kjördæm- is, var staddur í borginni fyrri part yfirstandandi viku. Minnist BCTCL erfðaskrám yðar. Skreið fótbrotinn í 5-6 klst. um hónótt suður ó Álftanesi í fyrrinótt fótbrotnaði ungur maður suður á Álftanesvegi, en þar var hann einn á ferð. — Maður þessi heitir Árni Einars- son 25 ára hreingerningarmaður Nönnustíg 8 Hafnaðarfirði. Eng- in hjálp barst Árna alla nóttina en vegna karlmennsku sinnar, tókst honum að skríða langan veg og brjóta upp flugvitahús. Og gat hann gert aðvart um, hvernig komið væri fyrir sér snemma í gærmorgun. Árni Einarsson hafði farið með síðasta vagni suður í Hafn- arfjörð og farið úr vagninum hjá Álftanesvegi. Þar á nesinu ætlaði hann að gista í húsi, sem hann ekki mundi hvað hét, en taldi sig mundi þekkja það strax og hann kæmi að því. — Hann hafði aðeins einu sinni áður komið að húsinu og þá í myrkri. Þegar hann kom út úr vagn- inum hljóp hann við fót vestur eftir Álftanesvegi. Hafði hann hlaupið talsverðan spöl, er hann á hlaupunum sté á steinvölu og Á nýlega afstöðnu Miðsvetrar- móti Fróns, týndist í Good- templarahúsinu kvenbrjóstnál; komi hún fram, er finnandi beð- inn að skilja hana eftir á skrif- stofu Lögbergs. ☆ Afmælissamkoma Betel, sem Kvenfélag Fyrsta lúterska safn- aðar efndi til þann 1. þ. m., var ágætlega sótt og þeim öllum, er að henni stóðu til hinnar mestu sæmdar; hún gaf af sér góðan arð, eins og ráða má af gjafa- listanum til Betel, sem birtur er á öðrum stað hér í blaðinu. tr Enn verða Islendingar sigur- vegarar. Það var haldin samkepni í „Curling“ í febrúar s.l. af Presta „Curling“-félagi borgarinnar, „Chaplain Curling Club“. Það er leikið undir nafni safnaðar- ins, sem presturinn þjónar og hann velur þrjá menn með sér, þeir verða að vera góðir og gild- ir meðlimir hans safnaðar. Nú í ár valdi séra Valdimar J. Ey- lands þessa menn: Lincoln G. Johnson,' son hans Allan og Arinbjörn S. Bardal. Þeir unnu önnur verðlaun. Eins í fyrra vetur unnu þeir þriðju verðlaun. (Þá var Albert Johnson með þeim í staðinn fyr- ir Allan Johnson nú). Fyrir þremur árum síðan, vann séra Valdimar J. Eylands Bikarinn í aðalleiknum, sem leikinn er á hverjum mánudags- morgni allan veturinn. Ég er búinn að leika þennan „Curling“-leik með prestum borgarinn í tólf ár. Það er góð æfing fyrir líkamann. A. S. Bardal ☆ Frú Marja Björnsson frá Miniota, Man., var í hópi þeirra gesta, er sátu nýafstaðið þjóð- ræknisþing; hún flutti hlýjar kveðjur frá íslandi og lagði fyr- ir þing fallega hugmynd um vestur-íslenzkan gróðurreit á Þingvöllum, er fagnað var hið bezta. ☆ Mr. Ólafur Hallsson kaupmað- ur á Eriksdale og frú, sátu ný- afstaðið þing Þjóðræknisfélags- ins. , ☆ Stúkan SKULD heldur fund í Goodtemplara- húsinu á þriðjudagskvöldið þann 13. þ. m. kl. 8. — Vonast er eftir góðri aðsókn. Tilhynning . . . Vegna veikinda höfum við ekki átt þess kost að fullljúka Almanaki okkar fyrir 1951 enn, sem komið er, en væntum þess að það komi á markað fyrir lok þessa mánaðar. Við vonum að kaupendur auðsýni okk- ur umburðarlyndi í þessu efni. THORGEIRSON COMPANY féll um leið. Þegar hann ætlaði að rísa á fætur, gat hann ekki beitt hægra fæti. Hann varð þess skjótt vísari, að fótleggur- inn hafði brotnað. Hvergi sá Árni ljós og ekki varð hann var við neinar manna ferðir. Hann lá nú all-lengi kallaði á hjálp í þeirri von, að þarna á svellaðri götunni og einhver kynni að heyra hrópin. „Ekki veit ég, hvað tímanum leið um nóttina, því að ég var úrlaus“, sagði Árhi, er Mbl. átti tal við hann í gær þar sem hann liggur í Landsspítalanum. „En ég lá lengi þar til mér fór að verða kalt, því að frakkalaus var ég. Þá byrjaði ég að skríða af stað. Vonaðist til, að sjá bráð- lega húsið, sem ég var að leita að. Ég sá ekkert hús og ljós sá ég ekki, nema þá ljósin hér í Reykjavík og-Hafnarfirði. Við það að skríða áfram eftir svallaðri götunni á olnbogum og á vinstri síðu, hitnaði mér fljótt. Og varð ég ekki var við kulda á meðan ég gat þokast áfram. Ég hafði nokkrar þrautir í brotna fætinum. Loks sá ég í myrkrinu, rétt fyrir utan veginn, móta fyrir litlum húskumbalda. Ég byrjaði á ný að hrópa og kalla og skreið í áttina að honum. Lóðin við húsið var umgirt gaddavír, að ég held, og eftir að hafa skriðið meðfram girðingunni, fann ég hlið, en ég gat ekki opnað það. Nú fann ég dálítið gat í girð- ingunni, og vonaðist til að geta komist nokkurnveginn klakk- laust í gegnum það. En gatið var svo lítið, að fötin mín festust í gaddavírnum. Vegna brotna fótsins gat ég ekki snúið við, og varð ég að halda áfram. Við það rifnuðu fötin mín mjög mik- ið, t. d. rifnaði buxnaskálmin á hægra fæti, þeim sem brotinn var, svo mikið, að fótleggurinn varð að mestu ber. Er ég var kominn í gegnum girðinguna, tók við sá kafli, sem reyndist erfiðastur yfirferðar, vegna þess hve ójafn hann var. Við að skríða þennan vegspotta heim að húsinu, reyndi oft mjög á brotna fótinn, og fylgdi því mikill sársauki í hvert sinn. Er ég kom heim að húsinu, heyrði ég vélaskrölt út úr því og gerði ég mér vonir um að þarna væri einhver. — Enn kalla ég á hjálp, en án árangurs. Ég skreið fram með húsinu, og komst fljótt að því, að hlerar voru fyrir öllum gluggum og hurðin harðlæst. Ég settist nú undir húsvegg- inn, fór úr jakkanum og breiddi hann yfir mig. Þegar ég vakna ríf ég mig á fætur. Ég hoppaði á öðrum fæti kringum húsið, í þeirri von að finna þar spýtu eða eitthvað, sem ég gæti notað til að brjóta hlerana frá. — Kvalirnar í brotna fætinum voru sannast að segja ægilegar á þessu ferðalagi mínu. Ég fann trausta spýtu og gekk nú af öll- um lífs- og sálarkröftum á einn hlerann og tókst að spenna hann frá. Rúðan í glugganum var all- stór og mölvaði ég hana. Á móti mér lagði hita frá vélum. Ég veit ekki gjörla hvernig mér tókst að komast inn í hús- ið, en ég man, að ég togaði brotna fótinn inn á eftir mér. Ég var að velta því fyrir mér, meðan ég leitaði að eldspýtun- um, hvaða hús þetta myndi vera. Ég skreið inn eftir því og að vörmu spori fann ég legubekk. 1 skininu frá eldspýtunni sá ég hvar sími, búinn sveif, stóð á borðinu. Er ég hafði skriðið að símanum og snúið sveifinni í dauðans ofboði, var samstundis svarað. — Það var Flugturninn í Reykjavík. — Sá, sem fyrir svörum varð, ætlaði ekki að trúa mér, er ég sagði honum, hvernig komið væri fyrir mér, að ég hefði brotist inn í húsið, er reyndist vera flugvitahús, skammt frá Bessastöðum. Ég spurði manninn hvað klukkan BRITISH LIVESTOCK FOR SOUTH AFRICA í || V A consignment of British livestock was recently loaded aboard the ‘Good Hope Castle’ at the Victoria and Albert Docks, London, for shipment to South Africa. The export of British livestock is greatly increas- ing, and in this recent consignment to South Africa, twelve Jersey cows, ten Ayrshire heifers in calf, and a number of Aberdeen Angus cattle were dispatched. The ten Ayrshires are for exhibition at the Witwaters and Easter show and will afterwards be sold by auction. Also included in the livestock are a Saneen billy-goat, three deer, and five large white pigs. This picture shows the Ayrshire heifers being unloaded from a cattle truck before being loaded aboard ship. Hið sameininglega öryggi Með vernsandi horfúm í al- þjóðamálum hafa þær raddir orðið nokkru háværari í Banda- ríkjunum, sem krefjast þess að þau einangri sig og dragi úr samvinnu sinni við aðrar þjóð- ir um eflingu alþjóðlegs öryggis. Formælendur þessarar stefnu hafa fyrst og fremst krafist þess að Bandaríkin drægju úr skuld- bindingum sínum gagnvart Ev- rópu og Asíu og hugsuðu ein- göngu um eigin varnir. En svo virðist sem litlar líkur séu til að hún hafi mikil áhrif á utanríkisstefnu Bandaríkjanna. Meginhluti beggja hinna stóru flokka Demokrata og Republic- ana, heldur áfram fast við þá stefnu, sem þeir hafa markað í utaiíríkismálum. Er það þjóðum Evrópu a. m. k. mikið fagnaðar- efni. Bandaríkin eru nú lang- samlega öflugasta lýðræðisríki heimsins. Þau hafa með efna- hagslegum stuðningi sínum við inn skerf af mörkum til við- inn skerf að mörgum til við- reisnar þjóðum hennar eftir niðurrif og eyðileggingu styrj- aldarinnar. Er raunar óhætt að fullyrða, að sú aðstoð hafi forð- að mörgum Evrópuþjóðum frá efnahagslegu hruni og vand- ræðum, sem haft hefðu ófyrir- sjáanlegar afleiðingar. F orystumenn Bandaríkj anna, sem ábyrgð bera á stefnu þeirra hafa gert sér það ljóst, að sam- vinna þeirra við aðrar frelsis- unnandi þjóðir, ekki aðeins á sviðí efnahagsmála, heldur einn- ig í þágu þeirra eigin þjóðar. Einangrun stórveldis eins og Bandaríkjanna getur ekki skap- að því öryggi við þær aðstæður, væri og sagði hann að hún væri hálf sjö. Eftir nokkra stund komu sjúkraliðsmenn og fluttu mig í Landsspítalann. Löng hafði nóttin verið, sagði Árni; og er ^iann sat undir flug- vitahússveggnum, hvarflaði að honum, að hér myndi ekki verða mannavon og hér myndi hann verða úti. Líðan Árna var eftir atvikum góð, en þrautir hafði hann mikl- ar. Báðar pípurnar á hægra fæti eru brotnar og við það að beita einkum vinstri olnboga fyrir sér er hann skreið, hefir hann hlot- ið meiðsl á honum, því jakkinn var fljótur að tætast í sundur. —Mbl. 15. janúar sem nú eru fyrir hendi. Ef Ev- rópa verður ofbeldinu að bráð brennur veggur Bandaríkjaþjóð arinnar sjálfrar. Eftir að svo væri komið hlyti röðin að koma að henni. í raun og veru getur engin þjóð leitað skjóls í ein- angrunarstefnu um þessar mund ir. Við lifum í einum heimi, eins og Wendell Wilkie komst að orði í lok síðustu heimsstyrjald- ar. Þetta höfum við íslendingar fyrir löngu gert okkur ljóst. Við g e r ð u m það raunverulega snemma í síðustu heimsstyrjöld og höfum stigið hvert sporið á fætur öðru í þessa átt. Það er ekki til nema einskonar öryggi í heiminum í dag, ef nokkurt ör- yggi er á annað borð til: — Hið sameiginlega öryggi þjóð- anna. Að eflingu þess verður að einbeita öllum kröftum frið- elskandi manna. —Mbl. 23 jan. MESSUBOÐ Fyrsta Lúterska Kirkja Séra Valdimar J. Eylands. Heimili 776 Victor Street. Sími 29017.— Guðsþjónustur á hverjum sunnudegi: Á ensku kl. 11 f. h. Á íslenzku kl. 7 e. h. Sunnudagaskóla kl. 12.15 e. h. Allir ævinlega velkomnir. ☆ Lúterska kirkjan í Selkirk Sunnud. 11. marz. Ensk messa kl. 11 árd. Sunnudagaskóli kl. 12 íslenzk messa kl. 7 síðd. Allir boðnir velkomnir. S. Ólafsson ís — Argyle Prestakall — Föstu-guðsþjónustur (íslenzkar): Brú, miðvikud. 7. marz, kl. 8 e. h. Glenboro, fimtud. 8. marz, kl. 7:30 e. h. Baldur, föstud. 9. marz, kl. 7:30 e. h. Sunnudaginn, 11. marz Brú kl. 2:30 e. h. (ensk og íslenzk) Glenboru kl. 7:00 e. h. (ensk og íslenzk) Sé^a Eric H. Sigmar Rovaizos Flower Shop 253 Notre Dame Ave. WINNIPEG MANITOBA Bus. Phone 27 989—Res. Phone 36 151 Our Speelaltles: WEDDING CORSAGES COLONIAL BOUQUETS FUNERAL DESIGNS MUi K. ChrlsUe, Proprletress Formerly wlth Robinson & Co. EIGHTH ANNUAL <7öiking Banquet and Ball Thur. March 15th, al 6.30 p.m. in the Marlborough Hotel, 8th Floor JIMMIE GOWLER'S ORCH. Dinner and Dance: $2.10 Dance .75 RESERVE EARLY WHAT IS CONSERVATION? Conservation does NOT mean the hoarding of our natural resources, but the WISE USE of them. Take a tree in the forest, for example. If left alone, it will eventually become so old that it weakens and becomes prey to insects and disease. It dies. During its long life it has used up much nourishment from the soil, preventing other little trees from growing big and strong. Conservation means using the tree—and all our natural resources—to the greatest good of the greatest number of people. It doesn’t mean saving all the trees, nor cutting them down. It means using them wisely, managing them for sustained yield, or cutting as a crop only an amount equal to the annual growth. This message from THE CANADIAN FORESTRY ASSOCIATION is displayed through the courtesy of SHEA'S WINNIPEG BREWERY LTD. MD-279

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.