Lögberg - 15.03.1951, Side 1
PHONE 21374
A U">«e
a»4 ^<SC° >e
A Complel*
Cleaning
Inslilulion
PHONE 21 374 J
_,oti vw»!e
Cleaning
Inslilulior
64. ÁRGANGUR
WINNIPEG, FIMTUDAGINN, 15. MARZ, 1951
NÚMER 11
Frú Valgerður Sigurðsson
3fn Jllemorium
Frú ValgerSur SigurSsson
Vináttan á sér víðlent þroskaríki,
verður þó stærst í góðrar konu líki;
tendrar sín blys um fjallveg jafnt scm fjörðu
festir í skorður ríki Guðs á jörðu.
Þó frú Valgerður Sigurðsson væri að vísu eigi í hópi hinna
allra fyrstu landnámskvenna íslenzkra í nýbygðunum við Winni-
pegvatn, þá var hún þó frumherji engu að síður, og hefir réttilega
verið nefnd ein af göfugustu og glæsilegustu mæðrum landnáms-
ins norður þar, og bar til þess margt; hún var háttprúð og tíguleg
ásýndum eins og ráða má af mynd hennar, sem línum þessum
verður samferða; þó var það hjartalagið, hinn fangvíði móður-
kærleiki, er ákveðnast mótaði afstöðu hennar til manna og mál-
efna, og skipaði henni í foringjasveit.
Ævi frú Valgerðar varð
drjúgum lengri, en alment ger-
ist, og hún varð að sama skapi
nytsöm og litbrigðarík; hún
kunni hálfverknaði illa, var
kröfuhörð við sjálfa sig og vildi
að sem allra flestir að lokinni
dagsönn, skiluðu ávöxtuðu
pundi; trúnaði hennar við lífið
°g samferðasveitina voru eng-
in takmörk sett; sá var enginn
einn á ferð, er átti frú Val-
gerði að vini; hún var ekki eitt
í dag og annað á morgun; hún
var kona auðug af háum hug-
sjónum, sem hún unni, og þorði
að berjast fyrir.
Frú Valgerður var óvenju
fjölgáfuð kona, víðlesin og jafn-
víg á enska tungu sem íslenzka;
hún var frábærlega vel máli
farin, og hefði vafalaust orðið
ræðugarpur meir en alment
gerist, ef hún hefði lagt rækt
við mælskulist; en hún átti
Jafnaðarlegast öðrum skyldum
að sinna, er urðu að ganga á
undan, svo sem umfangsmiklum
húsmóðurskyldum og mannúð-
arskyldunum í þágu meðbræðra
sinna og systra.
Er hugur minn hvarflar til
frú Valgerðar látinnar, minnist
eg hennar fyrst og fremst sem
Persónulegs vinar; ég kynntist
henni á fyrstu dvalarárum mín-
um í þessu landi, lærði að meta
niannvit hennar og alhliða kosti;
í viðræðum beitti frú Valgerð-
ur aldrei neinni óþarfa mælgi;
spurningar hennar gátu ekki
urisskilist og svör hennar voru
nitmiðuð; hugstæðust _______
enni jafnan, að því er mér
fenst, mannfélagsmálin á breið-
grundvelli jafnréttis og
um
heildarþróunar, þar sem allir
®ttu jafnan aðgang að gæðum
ifsins og enginn væri settur
Ja; hún tók styrkan þátt í
irkju- og safnaðarmálum bygð-
arlaga sinna, og gekk þar sem
annars staðar, heil og óskipt að
verki; trú hennar var á bjargi
bygð, helguð í einlægni höfundi
lífsins og þeim mikla tilgangi,
sem lífið í eðli sínu býr yfir;
frú Valgerður vildi brjóta til
mergjar sérhvert mál án ein-
hæfni eða öfga, og komast að
þeirri skynsamlegustu úrlausn
sem kostur væri á; ég minnist
"þess eins ljóst nú og það hefði
gerst í dag, er frú Valgerður lét
sér þau orð um munn fara, þá
hnígin allmjög að aldri, hve
hún fyndi stundum til djúps
sársauka yfir því, hve tiltölulega
lítil rækt væri lögð við út-
breiðslu hins alhliða kærleika á
þessari fögru jörð, sem væri þó,
og jafnan hlyti að verða, óað-
skiljanlegur hluti af Guðsríki
allra alda.
Frú Valgerður var vel heima
í ljóðum og kunni margt fag-
urra kvæða utanbókar, og eigi
var það ótítt, að hún kryddaði
ræður sínarSneð tilvitnunum í
okkar beztu skáld; hún var fög-
ur kona og fegurð lífsins var
henni alt í öllu. —
Frú Valgerður var fædd að
Svarfhóli í Borgarfirði hinum
meiri, hinn 25. dag marzmán-
aðar árið 1856. Foreldrar henn-
ar voru þau Jón Halldórsson og
Helga Jónsdóttir; með þeim ólst
hún upp til sextán ára aldurs,
er það ævintýri gerðist að hún
fór til Englands; hin unga stúlka
hafði þjáðst nokkuð af augna-
bilun, er svo bar við að á heim-
ili hennar komu hin þjóðkunnu
voru hjón) meistari Eiríkur Magnús-
son bókavörður í Cambridge og
hans ágæta frú; buðu þau henni
með sér til Englands í því augna-
miði, ef auðið yrði, að ráða bót
á sjóndepru hennar; var slíkt
boð þakksamlega þegið, og
dvaldist unga stúlkan á heimili
áminstra merkishjóna á fimta
ár; fyrir þeirra atbeina fékk
hún allmikla bót á því auganu,
sem óheilt var, og gekk eftir
það í nokkur ár í skóla á Eng-
landi; mintist hún jafnan þess-
ara velgerðarmanna sinna með
aðdáun og djúpri þökk; er heim
kom, gaf hún sig í nokkur ár við
kenslu í ensku.
Frú Valgerður fluttist til Can-
ada árið 1886 og settist að í
Mikley, en þá var þar fyrir Jón
bróðir hennar; ári síðar giftist
hún Stefáni Sigurðssyni Er-
lendssonar, einum hinum stór-
brotnasta athafnamanni sinnar
tíðar í Nýja-lslandi; fluttust þau
hjón til meginlandsins árið 1890
og settust að þar sem nú heitir
að Hnausum; stofnaði Stefán
þar í félagi við bróður sinn Jó-
hannes, sem einnig var hinn
mesti framkvæmdamaður, verzl-
un, sem brátt færði mjög út
kvíar, og varð lyftistöng að
framförum bygðarlagsins;
keypti Stefán og, eða lét smíða
fyrir sig, stór vöru- og mann-
flutningaskip til afnota á Win-
nipegvatni og rak fyrirtæki sín
af frábærri elju.
Þeim Valgerði og Stefáni varð
sjö barna auðið, og hétu þau
Jóhannes Helgi, Einar, Jórunn,
Eiríkur Solberg, Sigurður Vic^
tor, Guðrún og Stefán; af þess-
um hóp er nú aðeins eitt barn-
anna á lífi, Sigurður Victor,
stórútgerðarmaður í Riverton
og mikill héraðshöfðingi.
Mann sinn misti frú Valgerð-
ur 16. marz 1917, hetjumenni,
sem hún dáði og vitnaði tíðum í;
var heimili þeirra víðfrægt fyr-
ir höfðingskap og risnu.
Tvo hálfbræður manns síns,
Stefán og Sigurð, tók frú Val-
gerður að sér, er þeir voru korn-
ungir, og reyndist þeim sem ást-
rík móðir; eru þeir báðir miklir
sæmdarmenn, er unnu fóstru
sinni mjög; yfir fleiri ungmenni
skaut hún skjólshúsi, er blessa
minningu hennar.
Árið 1936 kvaddi frú Valgerð-
ur Hnausabygðina þar, sem
megin ævistarf hennar hafði
legið og settist að hjá hinum
dygga og drenglynda syni
sínum, Sigurði, í Riverton, og
hans ágætu frú, Kristrúnu.
Dvaldi hún þar upp frá því, eft-
ir að sól tók að hallast í vestur,
við slíkt ástríki, að til fyrir-
myndar má jafnan telja, unz
yfir lauk.
Frú Valgerður bar jafnan í
brjósti djúpa rækt til Mikleyj-
ar og dvaldi þar tíðum nokkrar
vikur þegar fegurst var um-
horfs að sumarlagi hjá alúðar-
vinum sínum, þeim frú Sigþóru
og Kristjáni heitnum Tómasson
á Reynistað, er báru hana á
örmum sér; við hjónin hittum
hana oft þar norður frá og urð-
um ávalt sömu ánægjunnar að-
njótandi af viðræðum við hana
um áhugamál hennar, sem öll
lutu að almenningsheill. Það
skipti litlu máli hve árin færð-
ust yfir frú Valgerði, andi henn-
ar var ávalt jafn starfsglaður og
vakandi, og þannig lagði hún,
að loknu sérstæðu dagsverki,
upp í langferðina hinztu.
Frú Valgerður lézt að heimili
sonar síns og tengdadóttur í
Riverton á föstudagskvöldið
þann 8. september, en útför
hennar fór fram fjórum dögum
síðar; hófst hún með húskveðju,
er tveir prestar, þeir Dr. Rún-
ólfur Marteinsson og séra
Bjarni A. Bjarnason, önnuðust;
síðar voru kveðjumál haldin í
kirkju Bræðrasafnaðar og fluttu
þar fagrar ræður áminstir kenni
menn; mannfjöldi. mikill var
viðstaddur útförina þrátt fyrir
afar örðuga umferð vegna und-
angenginna hellirigninga; hin
mikla móðir, sem sett hafði ó-
afmáanlegan glæsisvip á sam-
félag sitt, var lögð til hvíldar
við kirkju Breiðuvíkursafnaðar,
í þessu vingjarnlega umhverfi,
þar sem hún hafði notið sinnar
innihaldsríkustu lífshamingju,
og heldur ekki farið varhluta af
hinum þyngstu sorgum.
Einar P. Jónsson
Frú Gróa
Pólmason lótin
Síðastliðinn fimtudag lézt á
sjúkrahúsinu á Gimli frú Gróa
Pálmason, kona Sveins Pálma-
sonar trésmíðameistara að Win-
nipeg Beach, 68 ára að aldri,
mikilhæf kona og frábær hús-
móðir; hún var ættuð frá Klöpp
í Mýrasýslu; auk eiginmanns
síns lætur hún eftir sig þrjú
mannvænleg börn, Pálma, Pearl
og Ruby; eru tvö hin fyrnefndu
víðkunnir fiðluleikarar; einn
son, Stefán að nafni, mistu þau
Pálmasonhjón 1 síðustu heims-
styrjöld, glæsilegan ágætis-
mann.
Útför frú Gróu fór fram að
viðstöddu miklu fjölmenni frá
Fyrstu lútersku kirkju á mánu-
daginn, og flutti séra Valdimar
J. Eylands þar yndisfögur
kveðjumál.
Hópur iðnaðarmanna hugleiðir
að flytjast til Ástralíu
Vísir fréttir fyrir skömmu, að
nokkrir hérlendir iðpaðarmenn
hefðu talsverðan hug á að flytj-
ast til Ástralíu.
Nýr utanríkisróð-
herra ó Bretlandi
Rt. Hon. Ernest Bevin, sem
hefir gegnt utanríkisráðherra-
embætti í stjórn Bretlands í
síðastliðin 5% ár, hefir nú látið
af embætti sökum heilsubrests.
Rt. Hon. Herbert Morrison, einn
af aðalforustumönnum verka-
lýðsflokksins hefir verið skip-
aður utanríkisráðherra; hann
hefir litla æfingu í þeim efnum
og hefir aldrei fyllilega látið í
ljósi afstöðu sína til utanríkis-
mála; segja þeir sem honum
eru kunnugastir, að hann hafi í
hyggju alveg nýjar friðartil-
raunir. Mr. Morrison er 63 ára,
og er talið að hann muni verða
eftirmaður forsætisráðherrans,
Clements Attlees á sínum tíma.
Mr. Morrison tilheyrir, eins og
Bevin, hægra armi verkalýðs
flokksins og er eindreginn mót-
stöðumaður ágengni og heims-
yfirráðastefnu kommúnista.
Holdsveiki læknuð
Frá Suður-Afríku kemur sú
góða frétt að á holdsveikrahæli
þar í landi hafi læknast 16 Ev-
rópumenn og 63 innlendir menn
af þeirri tegund líkþrár, er tal-
in var ólæknandi fyrir nokkr-
um árum. Amerískir vísinda-
menn, sem voru að gera tilraun-
ir við að lækna berkla með
Sulphone-lyfi komust að því af
hendingu að lyfið verkaði gegn
holdsveikis-sýklum. Menn, sem
taldir voru dauðvona, hafa nú
öðlast fullkomna heilsu og eru
útskráðir af hælinu.
Fró Kóreu
Það, sem þessu veldur, munu
vera erfiðleikar þeir, sem nú
steðja að hér heima á ýmsum
sviðum, en áströlsk yfirvöld
leggja mikið kapp á að fá menn
frá Vesturálfu til að setjast að
þar syðra. Er slíkum landnem-
um veitt margvísleg aðstoð við
að koma sér fyrir í landinu, en
mest áherzla er lögð á, að inn-
flytjendurnir séu lærðir í ein-
hverri iðn eða á einhverju sviði,
en ekki ólærðir með öllu. Nú
mun hins vegar svo komið, að
erfiðara er að setjast að í Ástra-
líu en áður, þar sem húsnæðis-
leysi segir nokkuð til sín af eðli-
legum ástæðum, því aðstreymið
er gífurlegt.
Iðnaðarmenn þeir, sem hafa
verið að hugleiða Ástralíuför
héðan, hafa hins vegar haft í
hyggju að koma þannig fyrir
sig fótum, að þeir stofnuðu bygg
ingafélag þar syðra. Er það ekki
fráleit hugmynd, að þeir standi
þannig saman, ef af för þeirra
verður og vegna fagþekkingar
þeirra riviðst eðlilegt, að þeir
snúi sér einmitt að því verk-
efninu, sem mest er af.
Frá því að iðnaðarmennirn-
ir — en þeir munu vera um
tuttugu talsins, að því er Vísir
hefir fregnað — fóru að athuga
þetta mál, hafa þeir aflað sér
upplýsinga erlendis frá varðandi
innflutning tliÁstralíu og ann-
að þ. h., en treglega hefir gengið
að fá þær. Hins vegar mun
Eggert Guðmundsson, listmál-
ari, sem lagður er af stað áleiðis
til Ástralíu, rannsaka málið fyr-
ir þá, er þangað kemur.
Annars er illt til þess að vita,
að hópar mapna skuli hyggja á
brottflutning af landinu. Þótt
syrti í álinn í bili, munu koma
betri tímar á þessu landi fyrr
en varir og þess er að minnast,
að enginn veit hvað átt hefir,
fyrr en misst hefir.
—VISIR, 31. janúar.
Undanfarna daga hafa liðs-
sveitir sameinuðu þjóðanna
unnið einn sigurinn öðrum
meiri, og eru nú, að því er síð-
ast fréttist, innan við tuttugu
mílur frá 38. breiddarbaug;
mannfall af hálfu kommúnista
á þessu tímabili, nemur að sögn
þrjátíu þúsundum, eða jafnvel
þar yfir; snjóa er nú tekið að
leysa í Kóreu, og áður en langt
um líður mun umferð batna
svo hægara verði um aukna
sókn.
Smér ókaupandi
Verð á sméri er, eins og á
mörgu öðru, orðið svo gífurlegt,
að það er næstum ókaupandi.
Það er nú komið upp í 76 til 80
cents pundið. Salan er líka kom-
in niður um 20 til 25 prósent,
vegna þess, að margir geta
hreint og beint ekki veitt sér
þetta nauðsynlega næringar-
efni, þegar það er þannig orðið
að munaðarvöru hvað verð
snertir. Þeir, sem þykjast skilja
orsakir þessa fyrirbrigðis, segja
að það stafi af því, að mjólkur-
og smérframleiðsla hafi ekki
síðan 1928 verið eins lítil og nú.
Canadamenn í
fylkingarbrjósti
Samkvæmt fregnum síðustu
viku eru Canadamenn ásamt
Ástralíumönnum í fylkingar-
brjósti sóknarliðs Sameinuðu
þjóðanna í miðvestur-víglíunni
í Kóreu, um 30 mílur austur af
Seoul. Á laugardaginn braust
her Sameinuðu þjóðanna í gegn
um víglínu kommúnista yfir
ána Han; varð mikið mannfall í
her óvinanna. — Á þremur dög-
um 24.000 særðir og fallnir. Síð-
ustu fregnir af Canadaherdeild-
inni herma, að 17 canadískir her-
menn hafi fallið og 51 særst.
Nýjar bækur
íslendingasagna-
útgófunnar
Islendingasagnaútgáfan- held-
ur áfram hinni vinsælu útgáfu-
starfsemi sinni. Síðastliðið ár
komu út á vegum hennar þessir
tveir nýir flokkar íslenzkra
fornrita: Karlamagnús saga í
þrem bindum og Fornaldarsög-
ur Norðurlanda i fjórum bind-
um. Er verð hinna fyrrnefndu
$6.50 óbundið og $8.50 í bandi,
en hinna síðarnefndu $10.50 ó-
bundið og $13.50 í bandi. Fást
bækur þessar í svörtu, brúnu
eða rauðu leðurbandi. Hér er
því áreiðanlega um góð kaup að
ræða.
Ég nota einnig tækifærið til
þess að minna fólk á eldri út-
gáfubækur sama útgáfufélags,
sem nú fást við eftirfarandi
lækkuðu verði, eins og fyrri hef-
ir getið verið:
íslendinga sögur I.—XIII., ó-
bundið $17.50. Innbundið $22.50.
Skrautband $35.00.
Biskupa sögur, Sturlunga,
Annálar og nafnaskrá, 7 bindi,
óbundið $12.50. Innbundið
$17.50. Skrautband $22.50.
Riddara sögur I.—III., óbundið
$6.00. Innbundið $7.50. Skraut-
band $10.00.
Eddukvæði, Snorra-Edda o. fl.
óbundið $7.50. Innbundið $10.00.
Skrautband $13.75.
Bókamenn og bókasöfn ættu
að notfæra sér það .tækifæri,
sem hér gefst til þess að afla
sér þessara íslenzku úrvalsrita
í handhægri en vandaðri út-
gáfu og við sanngjörnu verði,
eftir því sem nú gerist um ís-
lenzkar bækur.
Bækurnar geta menn pantað
beint frá útgáfunni, en áritun
hennar er:
íslendingasagnaútgáfan h.f.
P. O. Box 73, Reykjavík
Richard Beck
Skóli tekur til starfa
Nýlega er tekinn til starfa
skóli stór og mikill í Gimlibæ,
sem verið hefir íy smíðpm frá
því í sumar, sem leið; vár þörf
slíks skóla orðin fyrir löngu
brýn nauðsyn, með því að bær-
inn færir ört út kvíar og fólki
fjölgar þar árlega mjög.
Skólastjórinn er Mr. Edwald
Sigurjónsson.
Nýr forsætisróð-
herra í íran
I stað Ali Razmara, er myrtur
var síðastliðna viku, hefir Hus-
sein Ala verið skipaður forsæt-
isráðherra í Iran.
Ala er 68 ára að aldri og nýtur
mikilla vinsælda í landi sínu,
serstaklega fyrir það að standa
stöðugur gegn kommúnistum í
deilunni um Azerbayan-fvlkið,
sem liggur að landamærum
Rússlands. íran er auðugt af
olíulindum, er kommúnistar
hafa augastað á; vestrænum
ríkjum er það því fagnaðarefni
að Hussein Ala hefir tekið að
sér forsætisráðherraembættið,
vegna afstöðu hans gegn á-
gengni kommúnista.
Krefjast
rannsóknar
Kommúnistastjórnin í Kína
hefir krafist þess af Bretum, að
þeir leyfi kommúnista-nefnd að
fara inn á Malayaskaga til þess
að rannsaka hvernig búið er að
Kínverjum, sem þar dvelja; þeir
segja að Kínverjar þar séu of-
sóttir og kúgaðir. Hætt er við
að Bretar taki ekki vel þessari
kröfu Kommúnista, sem er vit-
anlega einn þáttur í áróðri
þeirra gegn Vesturveldunum.
Séra Bjarni Jónsson
sækir um lausn
fró embætfri
Séra Bjarni Jónsson vígslu-
biskup og dómpróf astur í
Reykjavík hefir sótt um lausn
frá embætti frá 1. júní að telja.
Séra Bjarni er nú 69 ára að
aldri og hefir verið þjónandi
prestur um fjörutíu ár.