Lögberg - 21.06.1951, Blaðsíða 3
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 21. JÚNÍ, 1951
3
Hvíldu þig — hvíld er góð
Það er mesta vitleysa að of-
þreyta sig, segja læknar. Menn
verða að stilla áreynslu í hóf.
Það á að vera jafnvægi milli
áreynslu, hvíldar og upplyft-
ingar.
Kappsamir menn halda að það
sé um að gera að vinna sem
lengst og hamast sem mest. Það
er ekkert á móti því að vinna
vel, síður en svo. En menn verða
að gæta þess að þeim eru tak-
mörk sett og þeir þurfa hvíld til
þess að geta unnið vel. Hvíld er
höfuðskilyrði þess að menn vinni
af kappi og áhuga.
Margir menn verða leiðir á
vinnu sinni. En það er vegna
þess að hún þreytir þá um of.
Þeir missa áhugann. En þetta
getur lagast á tiltölulega auð-
veldan hátt. Margar stærstu
verksmiðjur heimsins eru nú
farnar að gefa þessu gaum og
hafa gát á því að verkamenn-
irnir fái næga hvíld. Reynslan í
stríðinu kendi þeim þetta. Þá
var um að gera að afköstin yrðu
sem mest. Og þau urðu mest þar
sem þess var gætt, að ófbjóða
mönnum aldrei.
Þreyta er nokkurs konar sjúk-
dómur. Og það getur verið bæði
um líkamlega og andlega þreytu
að ræða. Orsakir til he'nnar eru
margs konar, svo sem einhæfni
í vinnubrögðum, áhyggjur, ó-
nógt fæði, svefnleysi, ofnautn
áfengis eða tóbaks. Og enn fleira
mætti telja, t. d. leiðinlegan
heimilisbrag og þras.
Hin líkamlega þreyta er miklu
auðveldari viðfangs. Hún lækn-
ast oftast með hvíld, hæfilegu
mataræði og upplyftingu. And-
lega þreytan er aftur miklu
verri viðfangs. En hún er mjög
algeng nú á dögum. Hún veldur
leiðindum, áhugaleysi og úr-
ræðaleysi. Sumir sálfræðingar
segja að andleg þreyta sé nú orð-
in algengari heldur en venjulegt
kvef.
Bezta ráðið er að fyrirbyggja
þreytuna. Menn eiga að hvílast
áður en þeir verða þreyttir. Og
þeir munu vinna betur og af-
kasta meiru með því móti. Til
sannindamerkis um það er sögð
þessi saga:
Það var í hinum miklu stál-
verksmiðjum Bethlehems Steel
Works að verkfræðingur, sem
Frederick W. Taylor heitir,
veitti því athygli að menn, sem
báru gaddavírskefli allan dag-
inn voru uppgefnir áður en
kvöld var komið. Afköst manna
voru þá að meðaltali á dag ,að
þeir báru 12V& smálest af gadda-
vír. Taylor leist ekki á þessi
vinnubrögð. Hann valdi úr einn
manninn, sem Schmidt hét, og
skipaði honum að *vinna eftir
sinni fyrirsögn. „Taktu nú gadda
vírskefli og farðu með það“,
sagði Taylor. „Sestu nú niður og
hvíldu þig“. Þ a n n i g vann
Schmidt allan daginn. Hann
hvíldi sig eftir hvern burð. Og
þótt hvíldirnar væru stuttar þá
voru þær svo margar, að hann
þreyttist aldrei. Og hver varð
svo árangurinn? Hann bar 47x/2
smálest af gaddavír fyrsta dag-
inn, eða nær þrisvar sinnum
meira en hinir. Taylor hefir get-
ið þessa í bók, sem hann hefir
ritað og heitir „Principles of
Scientific Management“. Þar
segir hann og frá því, að Schmidt
hafi síðan unnið þannig og alt-
af afkastað jafn miklu þau þrjú
ár, sem hann var við Bethlehem
verksmiðjurnar.
Af þessu hafa menn lært, að
sá vinnur bezt, sem aldrei of-
þreytir sig. Hann gengur ánægð-
ur að starfi sínu, vinnur af á-
huga og afkastar því meira en
aðrir. Þetta á jafnt við um erfið-
ismenn, verksmiðjufólk, skrif-
stofufólk og verzlunarfólk.
En það er list að kunna að
hvíla sig og fyrirbyggja að mað-
ur verði þreyttur. Menn verða að
hafa nokkra þekkingu á því
hvernig þeir geta hvílt vöðvana
°g hvaða vöðva þeir eiga að
hvíla. Dr. Edmund Jacobson,
sem er sérfræðingur á þessu
sviði, segir að menn eigi að
strengja vöðvana áður en þeir
hvíla þá. En um leið og þeir eru
hvíldir, á að hvíla þá rækilega,
draga frá þeim alla orku og láta
þá vera máttlausa.
Dr. David Harold Fink hefir
ritað bækur um þessi efni, og
hann kennir mönnum ráð til þess
að hvílast á réttan hátt, og hefir
hann þá í huga bæði andlega og
líkamlega þreytu. Hann segir:
— Legðu þig upp í rúm þar
sem þú hefir næði og láttu kodda
undir knén, undir olnbogana og
undir hálsinn, svo að höfuðið sé
fyrir ofan. Byrjaðu svo á því að
hvíla kjálkavöðvana. Láttu
kjálkana síga svo að vöðvarnir
séu alveg máttlausir. Lokaðu
svo augunum. Þú mátt ekki
depla þeim, heldur eiga þau að
vera lokuð. Talaðu svo við hand-
leggina á þér. Já, ég á við það
sem ég segi, talaðu við hand-
leggina á þér. Þú þarft ekki að
gera það upphátt, en sendu
þeim hugskipun í hvert skipti,
sem þú andar, um það að hvílast,
hvílast og hvílast betur. Og þeg-
ar handleggirnir eru hvíldir, þá
skaltu fara eins með fæturna.
Síðan skaltu hvíla hálsvöðvana
og andlitsvöðvana. Eftir því sem
fleiri vöðvar hvílast, eftir því
mun andardráttur þinn, verða
hægari sjálfkrafa. Gættu þess
að anda rækilega frá þér. Það
er alltaf loft í lungunum þótt
þér finnist annað. Þá færist yfir
þig ró og þú nærð betra valdi
á vöðvunum með því að senda
þeim hugskeyti. Þér finst þetta
ef til vill erfitt fyrst í stað. En
mundu eftir því að þetta hef-
urðu gert ótel'jandi sinnum áð-
ur, aðeins á annan hátt. í stað-
inn fyrir að skipa vöðvunum að
starfa, eins og þú hefir áður gert,
skiparðu þeim nú að hvíla sig.
Og þú munt fljótt verða var við
breytingu. Vöðvarnir verða
stæltari á eftir og þér líður bet-
ur, bæði líkamlega og andlega.
En mundu eftir því að þú verð-
ur að gera þetta iðulega, því að-
eins næst góður árangur. Með
þessu tekst þér ekki aðeins að
hvíla þig, heldur losna við ýms-
ar venjur, sem eru orðnar að
ástríðu hjá þér, eins og til dæmis
að grípa ósjálfrátt til sígarettu,
telja þér sjálfum trú um að þú
getir ekki þetta og þetta o. s. frv.
Láttu ekki sitja við það að hvíla
þig uppi í rúmi. Gríptu hverja
stund á daginn, sem gefst, til
þess að hvíla einhverja vöðva
og komdu inn hjá sjálfum þér
þeirri tilfinningu á þann hátt,
að þú sért altaf hvíldur og til í
alt. Þér mun vaxa ótrúlega
sjálfstraust og kappsemi. Og
jafnframt eykst vellíðan þín,
andlega og líkamlega.
Stanley Caldwell segir í grein
í „Canadian Bulletin“:
— Með því að hvíla sig áður
en menn þreytast, afkasta þeir
meira og þola að leggja á sig
þyngra erfiði, án þess að hljóta
ilt af. Hafi menn stuttan svefn-
tíma, er nauðsynlegt að smá-
hvíla sig. Með því móti þurfa
menn minni svefn .Það er of dýrt
að fórna heilsunni fyrir ofur-
kapp. Menn mega aldrei of-
þreyta sig, hvorki á sál né lík-
ama. Og minnumst þess líka, að
góður hugur styrkir heilsuna,
og eins þetta fernt: músik, list,
ást og trú. Þetta gefur lífinu
gildi og fegurð og stuðlar að
heilbrigði.
Aftur á móti er leti og iðju-
leysi til niðurdreps. Letin er
sjúkdómur, en það má vinna
bug á henni með því að hvílast
á réttan hátt.
— Lesbók Mbl.
Skoti nokkur, sem var alltaf
eins og ræfill til fara af því að
hann tímdi ekki að kaupa sér
föt, var vanur að segja, að sér
væri alveg sama hvernig hann
væri til fara þegar hann væri í
London, því „að þar þekkti hann
enginn“. Og ekki sagðist hann
þurfa að halda sér til, þegar
hann væri heima í Skotlandi, því
„að þar þekktu hann allir“.
☆
— Þegar við erum gift, skul-
um við aldrei brúka munn.
— Jú, þegar við kyssumst.
TWO FOR THE PRICE OF ONE
New Briiish Sidecar-Cum-Perambulaior
The combination sidecar-perambulator pictured
here aroused considerable interest when it was shown
for the first time at the recent British Industries Fair,
held jointly at Earl’s Court and Olympia, in London,
and at the Castle Bromwich, near Birmingham.
The “Pramcar”, as the vehicle is called, can be
converted from perambulator to sidecar in a few
seconds. Two retractable tubes connect the pram to a
specially designed plate on the cycle. The plate can be
fitted to any type of cycle, and by pulling the pram
handle over from bac to front three of the four wheels
are retracted leaving only one wheel on the ground.
The “Pramcar” is fitted with hood and windscreen,
offering baby compíete protection, and the makers
claim that the combination is less prone to skidding
than a solo bicycle.
Business and Professional Cards
PHONE 724 944
\
Dr. S. J. Jóhannesson
SÚITE 6—652 HOME ST.
ViStalstími 3—5 eftir hádegi
J. J. SWANSON & CO.
LIMITED
308 AVENUE BLDG. WINNIPEG
Fasteignasalar. Leigja hús. Út.
vega peningalán og eldsábyrgð,
bifreiðaábyrgð o. s. frv.
Phone 927 538
SARGENT TAXI
PHONE 722 401
FOR QUICK, RELIABLE
SERVICE
DR. E. JOHNSON
304 EVELINE STREET **
Selkirk, Man.
Ofíice Hours 2.30 - 6 p.m.
Phones: Oíjice 26 — Res. 230
S. O. BJERRING
Canadian Stamp Co.
RUBBER & METAL STAMPS
NOTARY & CORPORATE SEALS
CELLULOID BUTTONS
324 Smilh Sl. Wlnnipeg
PHONE 924 624
Phone 21101 ESTIMA TES
V D L’ L'
J. M. INCIMUNDSOH
Asphalt Roofs and Insulated
Siding — Repairs
Country Orders Attended To
632 Simcoe St. Winnipeg, Man.
DR. A. V. JOHNSON
Dentist
506 SOMERSET BUILDING
Telephone 97 932
Home Telephonpe 202 398
Talsimi 925 826 Heimilis 404 630
DR. K. J. AUSTMANN
SérfrœOingur i augna, cyrna, nef
og kverka sjúkdómum
209 Medical Arts Bldg.
Stofutími: 2.00 til 5.00 e. h.
Andrews, Andrews,
Thorvaldson and
Eggertson
Lögfrœðmgar
209 BANK OF NOVA SCOTIA BG.
Portage og Garry St.
Phone 928 291
DR. ROBERT BLACK
SérfrœOingur í augna, eyma, nef
og hálssjúkdómum.
401 MEDICAL ARTS BLDG.
Graham and Kennedy St.
Skrifstofusími 923 815
Heimasfmi 403 794
Dr. Stefáni Einarssyni
haldið heiðurssamsæti í Reykjavík á afmælisdegi hans 9. júní
(Sent Lögbergi með flugpósti til birtingar)
Austfirðingafélagið í Reykja-
vík efndi til heiðurssamsætis
fyrir Dr. Stefán' Einarsson á af-
mælisdegi hans 9. júní, en hann
er nýlega kominn heim að vest-
an og mun dvelja sumarlangt
við vísindastörf hér í háskólan-
um. —
Ayik Austfirðinga sátu nokkr-
ir vinir Dr. Stefáns hófið, gaml-
ir skólabræður o. fl.
Sigurður Baldvinsson póst-
meistari, heiðursfélagi Austfirð-
ingafélagsins, stjórnaði samsæt-
inu. Bauð hann afmælisbarnið
og heiðursgestinn velkominn til
landsilns og í hóp vina, frænda
og sveitunga.
Taldi hann að heimkoma
Vestur-íslendings vekti jafnan
fögnuð í hjörtum heima-íslend-
inga, líkt því sem fundið væri
aftur tapað, hjartfólgið dýr-
mæti, enda þótt þeim væri ljóst,
að fjöldi íslendinga, sem vestur
hefðu farið, ættu sjálfir, og all-
ur íslenzkur kynstofn, því að
þakka, hve langt og hátt margir
hefðu náð á mentunar- og frama-
braut einmitt þess vegna, en
ella að líkindum beðið lægra
hlut í baráttunni við erfiðleik-
ana heima á ættjörð sinni.
Vestur-íslendingar hefðu yfir-
leitt orðið sínu gamla föðurlandi
til sóma og margir varpað
frægðarljóma á nafn þess og
menningu, sem á margan hátt
hefði orðið heimaþjóðinni til
styrktar og blessunar. Rakti
hann loks í aðaldráttum hinn
glæsilega mentunarferil Dr.
Stefáns og gat að nokkru hinna
margvíslegu ritstarfa hans og
vísindastarfsemi. —
Benedikt rithöfundur Gísla-
son frá Hofteigi flutti því næst
aðalræðu kvöldsins fyrir minni
heiðursgestsins. Lagði hann á
einkar listrænan og skáldlegan
hátt út af þjóðsögunni af Skess-
unni á Kolfreyjustað. Var ræðu
hans mjög fagnað.
Séra Jakob Jónsson sagði
mjög hlýlega og skemtilega frá
æskukynnum þeirra Dr. Stefáns
í heimahögum. Gat fyrstu gist-
ingar sinnar á Höskuldsstöðum
í Breiðdal, fæðingarbæ Stefáns,
og mintist foreldra hans með
virðingu og brá skýru ljósi yfir
æskuheimili Dr. Stefáns. Jafn-
framt mintist hann kynna þeirra
vestan hafs og konu heiðurs-
gestsins, sem saknað væri að
ekki sæti að veizlu þessari. Var
undir þetta tekið með samhug.
Ríkarður Jónsson myndhöggv-
ari sagði á skemmtilegan og
táknrænan hátt frá skaphöfn
stúlkunnar í Biskupstungum
sem forðum kom í veg fyrir að
Gullfoss yrði seldur útlending-
um og nú væri 84 ára að aldri,
fullern á líkama og sál og enn
hin sama ímynd ram-íslenzkrar
skapfestu. Minntist og fornra
kynna af afmælisbarninu og
æskuheimili hans. Þá kvað hann
við mikla raust gamal-íslenzkar
kvæða-„stemmur“ og var ræðu
hans og kvæðasöng tekið með
miklum fögnuði. —
Þá flutti Dr. Þorkell Jóhannes-
son mjög virðulega og vinsam-
lega ræðu í garð heiðursgests-
ins. —
Á milli ræðuhalda voru sung-
in þjóðlög og ættjarðarsöngvar,
m. a. lög eftir austfirzk tónskáld
s. s. Inga T. Lárusson og Þórar-
inn Jónsson, sem viðstaddur var
sem þátttakandi í samsætinu.
Að lokum tók heiðursgestur-
inn til máls og þakkaði vinsemd
þá og virðingu er honum væri
sýnd af vinum og frændum.
Ræðan var stutt og skemmtileg
og flutt af fyllstu hógværð hins
sanna mentamanns. Að lokum
gat hann þess, að sama dag og
hann sá fyrst ljós þessa heims
á Höskuldsstöðum, og jafnvel á
sömu stund, hefði annar Aust-
firðingur og Vestur-íslendingur
engu ómerkari komið í heiminn
að Svínaskála-Stekk í Reyðar-
firði, sem sé Dr. Richard Beck
prófessor í Grand Forks, N. Dak.
Vakti ræða Dr. Stefáns og ekki
síst þessar upplýsingar mikinn
fögnuð veizlugesta. Var lagt til
að Dr. Beck yrði sent heillaóska-
skeyti frá samkvæminu og heið-
ursgestinum og var það fram-
kvænmt þegar.
Að aflíðandi míðnætti sleit
veizlustjóri samsætinu með
stuttri ræðu. — Höfðu allir not-
ið kvöldsins með gleði og þótti
stundin fljótt liðin enda þótt
drykkjarföng væru einungis
mjólk og kaffi.|pkildust menn
með hlýjum handtökum og vin-
áttu. —
CANADIAN FISH
PRODUCERS, LTD.
J. H. PAOE, Managing Director
Wholesale Dlstributors of Fresh and
Frozen Fish.
311 CHAMBERS STREET
Offlce Ph. 26 328 Res. Ph. 73 917
mm
HAGB0R6 rUIL
PHOME SISSI
Office Phone Res. Phone
924 762 726 115
Dr. L. A. Sigurdson
528 MEDICAL ARTS BLDG.
Office Hours: 4 p.m. - 6 pjn.
and by appointment.
A. S. BARDAL
843 SHERBROOK STREET
Selur llkkistur og annast um flt-
farir. Allur útbúnaöur sá bezti.
Ennfremur selur hann allskonar
minnisvarða og legsteina.
Skrifstofu talsími 27 324
Heimilis talslmi 26 444
Phone 23 996 761 Notre Dame Ave.
Just West of New Matemity Hospltal
Nell’s Flower Shop
Wedding Bouquets, Cut Flowers,
Funeral Designs, Corsages.
Bedding Plants
Nell Johnson Ruth Rowland
27 482 88 790
Office 933 587 Res. 444 389
THORARINSON &
APPLEBY
BARRISTERS and SOUCITORS
4th Floor — Crown Trust Bldg.
364 Main Street
WINNIPEG CANADA
SELKIRK METAL PRODUCTS
Reykháfar, öruggasta eldsvörn,
og ávalt hreinir. Hitaeiningar-
rör, ný uppfynding. Sparar eldi-
við, heldur hita frá að rjúka flt
með reyknum.—Skrlfið, simið ttl
KELLY SVEINSSON
625 Wall Street Winnipeg
Just North of Portage Ave.
Símar: 33 744 — 34 431
DR. H. W. TWEED
\ Tannlæknir
508 TORONTO GENERAL TRUSTS
BUILDING
Cor. Portage Ave. og Smith St.
Phone 926 952 WINNIPEG
Branch
Store at
123
TENTH ST.
BRANDON
447 Portage Ave. Ph. 926 885
GUNDRY PYMORE
Limited
British Quality Pish Nettina
58 VICTORIA ST. WINNIPEG
Phone 928 211
Manager T. R. THORVALDSON
Your patronage wUl be appreclated
Minnist
í erfðaskrám yðar.
Dr. P. H. T. Thorlakson
WINNIPEG CLINIC
St. Mary's and Vaughan, Wlnnlpeg
PHONE 926 441
PHONE 927 025
H. J. H. Palmason, C.A.
H. J. PALMASON & CO.
Chartered Acconntants
505 Confederation Life Bldg.
WINNIPEG MANITOBA
PARKER, PARKER &
KRISTJANSSON
Barrisiers - Soliciion
Ben C. Parker, K.C.
B. Stuart Parker, A. F. Kristjansson
500 Canadian Bank of Commtrcc
Chambers
Winnipeg, Man. Phone fBSSfl
JOHN A. HILLSMAN,
M.D., Ch. M.
332 MEDICAL ARTS BLDG.
Offlce 929 349 Res. 403183
G. F. Jonasson, Pres. & Man. Dir.
Keystone Fisheries
Limited
Wholesale Distributors of
FRESH AND FROZEN FISH
404 SCOTT BEK, Sími 925 227
Viðsladdur