Lögberg - 08.11.1951, Side 8

Lögberg - 08.11.1951, Side 8
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 8. NÓVEMBER, 1951 Úr borg og bygð Malreiðslubók Dorcasfélag Fyrsta lúterska safnaðar hefir nú til sölu splunk- urnýja matreiðslubók, er það hefir safnað til og gefið út; bók þessi er með svipuðum hætti og hinar fyrri, vinsælu matreiðslu- bækur, er Kvenfélög safnaðar ins stóðu að; þetta er afar falleg bók með fjölda gamalla og nýrra uppskrifta, sem koma sér vel á hvaða heimili, sem er. Matreiðslubók þessi kostar $1.50 að viðbættu 10 centa burð- argjaldi. Pantanir, ááamt andvirði, Mrs. A. MacDonald 11 Regal Ave. St. Vital sendist: Sími 205 242 Mrs. H. Woodcock 9 St. Louis Road, St. Vital Sími 209 078 eða til Columbia Press Limited. 695 Sargent Ave. Sími 21 804. ☆ Inlerlake Muncipal Observer skýrir frá því að nú sé verið að bora fyrir olíu nálægt Lundar bæ. Hermt er, að olíuskán hafi komið í ljós þar í grend þegar grafnir hafa verið skurðir til að ræsa fram mýrar. Mr. Skúli Sigfússon fyrver- andi fylkisþingmaður, hefir í mörg ár verið þeirrar skoðunar, að þar væri olíu að finna. ☆ Leiðrétting. í nafnalista Seattle-kvenfé- lagsins „Eining“ átti þessi setn- ing „Til arðs fyrir Stafholt, 1. júlí 1950 til 1. júlí 1951“, að vera í byrjuninni í staðinn fyrir í miðjunni eins og hún var í blað- inu. Virðingarfylst, Guðrún Magnússon, Seattle, Wash. ☆ Mrs. Donald L. Bennett frá Montreal; sem hefir verið í heim- sókn ásamt syni sínum, Alan, 11 mánaða, hjá tengdaforeldrum sínum, Mr. og Mrs. Bennett, Carman, Man., og hjá' foreldrum sínum, Mr. og Mrs. G. F. Jónas- son, Oak Street, Winnipeg, lagði nýlega af stað heimleiðis. Félagsskapur sá, sem gengur undir nafninu The Evenning Alliance, efnir til kaffisölu og sölu á heimatilbúnum mat í fundarsal Sambandskirkjunnar, Sangent og Banning á laugar- daginn kemur síðdegis og að kvöldinu. —Fjölmennið! ☆ Samkoma í Árborg. Þjóðræknisdeildin „ESJAN“ efnir til samkomu í Árdals- kirkju, föstudaginn 16. nóvem- ber, kl. 8.30 síðdegis. Meðal ann- ars fer þar fram samkeppni í ís- lenzkri framsögn fyrir börn og unglinga; yfir tuttugu þátttak- endur, söngur ungmenna og fleira. Þriggja manna dómnefnd frá Winnipeg dæmir í sam- keppninni. * Hr. J. Johnson bókavörður Þjóðræknisdeildarinnar FRÓN, þakkar af óhagganlegum grunni hjarta síns bókagjafir frá Lárusi Sch. ólafssyni, Margréti Thomp- son og ónefndum í Winnipeg eða annars staðar á hnettinum. ☆ Hjónavígslur framkvæmdar af séra Valdi- mar J. Eylands í Fyrstu lútersku kirkju: 26. okt. Ray William Hjörleifsson, 25 Fredrick Ave. Winnipeg og Iris Marion Eastman, 38 Hargrave St. Winnipeg. 3. nóv. James Henry Page, Jr. 908 Dominion St. og Joyce Mary Stanish E. St. Paul, Man. Árababandalagið og upphafsmaður þess Assam Pasha hefir áratugum saman starfað að stofnun bandalagsins VIÐHORF BRETA: Sfrækkun landhelg- innar ekki brofr alþjóðalaga ísland hefir borðið nokkuð á góma í sambandi við mál- flutning Breta fyrir alþjóða- dómstólnuih í Haag út af landhelgisdeilunni við Norð- menn. Brezki málflytjand- inn lét í ræðu sinnni orð falla á þá leið, að Bretland héldi því ekki beinlínis fram, að Norðmenn og Is- lendingar brytu nein alþjóða lög er þessi lönd ákvæðu sjálf landhelgislínurnar. En við höldum því hins vegar fram, að þessar ákvarðanir hafi enga stoð í alþjóðalögum og reglugerðum og séu í rauninni haldlausar yfirlýsingar án okk- ar samþykkis. Á öðrum stað benti hinn brezki málflytjandi á það, að ís- lendingar hefðu nýlega gert ráð- stafanir til ákvörðunar í land- helgismálum, er byggðust á því, sem Norðmenn hefðu gert. Sagði hann ennfremur, að bæði Norð- menn og Svíar, sem þarna ættu hagsmuna að gæta, vildu ekki fallast á þessar ákvarðanir Is- lendinga. Ég hygg, sagði hinn brezki sækjandi, að alþjóðadómstóllinn verði að skera úr því, hvort í al- þjóðalögum séu ákvæði, sem skera úr um það, hvað teljast skuli til flóa og hvað sé rétt land- helgislína. Samt sem áður getur hagfræði og stjórnmál ekki haft nein áhrif á þá ákvörðun. — Landfræðileg rök hljóta að liggja til þess úrskurðar, segir hinn brezki sækjandi. —TÍMINN,jl7. okt 3. nóv. Vilhjálmur Pétursson, 280 River Ave. og Edith Hacker, 58 Worthington St. St. Vital. ☆ ÁRSFUNDUR íslendingadagsins verður hald- inn næstkomandi mánudags- kvöld, þann 12. þ. m. klukkan átta í neðri sal Góðtemplara hússins á Sargent Ave. Á þess- um fundi fer fram kosning manna í nefndina í stað þeirra, sem endað hafa tímabil sitt, og einnig fer þá fram breyting á reglugerð nefndarinnar; fólk er vinsamlega beðið að muna eftir þessum fundi og sækja hann vel svo mögulegt sé að ganga frá þeim málum sem þar verða bor- in upp. — Stundvíslega kl. 8 ■næsta mánudagskvöld. Séra V. J. Eylands, forseti Davíð Björnsson, ritari ☆ í síðasta tölublaði Saturday Night birtist ritdómur um TANYU fyrstu skáldsögu Krist- ínar Benson Kristofferson. Rit- dómurinn er, eins og verðugt er, vingjarnlegur og lofsamlegur. Segir ritdómarinn að yfir skáld- sögunni sé sérkennilegur cana- dískur blær. — Sagt er að bókin seljist vel. ☆ The Icelandic Canadian Club will hojd a social meeting Nov- ember 12, 1951 commencing at 9 p.m. in the Lower Auditorium in the First Federated Church, Banning St. Members are in- vited to bring a friend. — Be assured of a good time. The club has projected a social gathering in honor of Dr. Runolfur Marteinsson on Friday evening November 23, in the Lower Auditorium of the First Lutheran Church. The public is invited. Further details will be announced next week. Inga Johnson, Secretary, Ste. 19 Emily Apts., Winnipeg, Man. ☆ Mr. Ragnar Eggertson sölu- stjóri fór austur til Ottawa, Montreal og New York í við- skiptaerindum og ráðgerði að verða nokkuð á aðra viku að heiman. ☆ Grettir L. Johannson ræðis- maður og frú fóru flugleiðis suður til Des Moines, Iowa í fyrri viku og dvöldu þar syðra fram um miðja yfirstandandi viku. Azzam Pasha, maðurinn, sem grundvallaði Arababandalagið og er almennt talinn tákn hinnar vaxandi arabísku sjálfsvirðingar. Atburðir s e i n u s t u vikna í Transjordaníu hafa orðið til þess að augu manna beinast nú meira en áður að arabísku þjóðunum. Athygli manna hefir því ósjálf- rátt beinzt að hinu volduga Arababandalagi sem, þegar öllu er á botninn hvolft, er það afl, er mestu ræður meðal arabísku þjóðanna. Mörgum vgrður það á, einkum þeim, er aðeins styðjast við frétt- ir útvarps, að rugla saman Araba bandalaginu og „arabisku fylk- ingunni“ en þetta eru algerlega ó skyld samtök. Arabiska fylking- in er einungis nafnið á meginstoð hers Transjordaníu, sem yfirleitt er talin vera trú stjórnendum landsins, þar sem Arababanda- lagið er nokkurs konar arabískt þjóðabandalag, sem gerir arab- ísku þjóðunum það kleift þegar Bréf fró Afríku Framhald af bls. 5 Heitur og hreinn loftstraumur þýtur jafnan um bílinn. Farþeg- arnir eru aðallegra Arabar, Frakkar og ítalir. í bæinn Gabez í Tunis er komið seinni hluta dags. Þar er gist. Mjög eftir- minnilegur, arabískur svipur yfir flestu, búðum, vinnustofum, götum, en ég skal reyna að stilla mig um að skamma þá fyrir slóðaskapinn og óþrifnaðinn. Hó- telið mitt var gott. Ééð því sviss- neskur maður, sem hafði rekið það í 40 ár. Hér er útdráttur úr skýrslu hans: Þegar ég kom fyrst, var hér enginn læknir og heilbrigðiseftirlit vantaði. Þrifn- aður hér má teljast góður nú í samburði við það, sem þá var. (A^hs. undirritaðs: So-o! Ja, hvernig var þrifnaðurinn þá!) Menntun er líka heldur að auk- ast hjá þessum Múhameðsmönn- um. Allmörg börn ganga í skóla. Sonur minn er skólastjóri drengja skóla fyrir Araba. Oft hafa fjórtán ára drengirnir verið komnir í hjónaband áður en þeir útskrifast úr skólanum. Konur þeirra eru á aldur við þá sjálfa. Foreldrarnir ráða þessu. Oft er brúð(urin keypt nokkru verði, kýr og kindur látnar koma í staðinn." Ég sagði honum, að mér sýndist Arabaunglingar Evrópu á svipuðum aldri, nema síður sé. Hóteleigandinn lét þess getið, að afkvæmi þessara unglinga væru smá og táplítil, en foreldrarnir bíðu tjón af því að fá ekki að njóta æskuáranna á eðlilegan hátt. Góðar kveðjur. Helqi Tryggvason. , — MBL. 25. sept. Síðastliðna viku komu Mr. og Mrs. Murray McKillup frá Dauphin til borgarinnar. Þau fóru á laugardaginn í heimsókn til foreldra Mrs. McKillup, Mr. og Mrs. S. W. Sigurgeirson, Riverton. ☆ Womens’ Association of The First Lutheran Church will hold their Annual Meeting in the Church Parlor on next Tuesday at 2.30 p.m. ' ☆ Mrs. Jónatan Helgason frá Prince Rupert, B.C., sem dvalið hefir í Manitoba síðan í ágúst í heimsókn hjá skyldfólki og venzlafólki, lagði af stað heim- leiðis á laugardaginn. ☆ Séra Kristinn K. Ólafsson fyrrum forseti lúterska kirkju- félagsins, er nú þjónandi prestur við amerískan söfnuð í grend við Chicago, hefir orðið fyrir þeirri þungu sorg, að missa dóttur sína, Petreu, gáfaða og ágæta stúlku á bezta aldri; hún vann við bókavarðarstörf. mikið liggur við, að koma fram sem ein held, að minsta kosta á stjórnamálasviðinu, og ef til vill einnig í hernaði. Stofnað á öndverðu ári 1945 Bandalagið var stofnað með undirritun sáttmála Arababanda lagsins í Kairo 22. marz 1945. 1 sáttmálanum segir m. a. að það sé stofnað: „Til þess að fram- fylgja óskum, er grundvallist á almennri skoðun manna í öllum löndum Araba.“ Þjóðirnar, er standa að honum eru: „Egypta- land, írak, Sýrland, Libanon, Jordania, Sauði-Arabia og Yem- en. Eins og sagt hefir verið, féllst Abdullah konungur einnig * á sáttmálann, þótt hann yrði síðar, vegna afstöðu sinnar til Pales- tínustríðsins, á öndverðum meiði við aðra samningsaðila. í greinum sáttmálans segir, með berum orðum, að hann sé gerður til þess að samræma stjórnmálastefnur hinna mismun andi arabísku þjóða, með það fyrir augum, að treysta sjálf- stæði þeirra og fullveldi. Hvort séð hafi verið fyrir við stofnun bandalagsins, að það yrði sett beinlínis í samband við deil- ur Araba og Gyðinga, þegar sátt- málinn var gerður heyrum kunn- ur, skal ósagt látið, en endalok deilunnar hljóta að hafa valdið Arababandalaginu sárum von- brigðum. Þar sem Abdullah kon- ungur var talinn eiga mesta sök- ina á því hvernig fór, er það ekki að undra, þótt þessara vonbrigða skuli hafa gætt, í stefnu Araba- bandalagsins, á hinum tvísýnu tímamótum eftir dauða hans. Draumar hjá pýramídunum Eins og fjöldi annarra merkis- atburða í sögunni er Arababanda lagið að verulegu leyti eins manns verk. Og maðurinn er hinn 58 ára gamli Abdul Rahman Azzám Pasha, aðalritari Arababandalag- sins Hann er fæddur í skugga pýramídanna við Gizeh, en hann líkist ekki að neinu leyti egypz- kum Fellah. Hár og renglulegur, magur í andliti og dreyminn á svip líkist hann helzt háskóla- borgara, sem hann er reyndar. En, það skal tekið fram, ekki neinn venjulegður háskólaborg- ari. Hann dreymdi um það að verða læknir, svo að hann gæti lagt eitthvað af mörkum til þess að vinna gegn því hræðilega á- standi, er hann kynntist þegar í æsku í þorpinu sínu, og hann fór sem ungur maður til Lundúna, til þess að leggja stund' á læknis- fræði. En jafnvel þá var hann far inn að hugsa lengra fram í tím- ann, um það hvernig hægt væri að lyfta hinum fornfrægu arab- ísku þjóðum upp úr þeirri deyfð og sleni, er virtist grúfa yfir þeim. Úrslita atburðurinn Þá skeði sá atburður, sem ork- aði á hann eins og köllun til líf- sins, það var stríð ítalía á hendur Tyrkjum og herferðin til Libyu, sem sigldi í kjölfar þess ófriðar, skömmu fyrir fyrri heimsstyrj- öldina. Hann sagði skilið við há- skólann og gekk í flokk með Bed- úinum, sem voru þjálfaðir af Tyrkjum, og ýmist tyrkneskir eðaa þýzkir liðsforingjar stjórn- uðu í bardögum við Italía í eyði- mörkinni. Læknastúdentinn varð hugaður og harðger hermaður, er brátt var gerður að höfuðs- manni. Tyrkir voru neyddir til þess að láta lönd sín í Norður-Afríku af hendi við ítali, en Abdul Rah- man ,Azzam hélt ásamt Bedúin- um sínum áfram skæruliðsbar- dögum, sem lauk ekki fyrr en árið 1924. Fræg varð hin leynd- ardómsfulla ferð hans til Vínar- borgar í fyrri heimsstyrjöld, til þess að semja um ítalíu við Mið- veldin. Þar var hann látinn búa í b e z t u herbergjum Imperial- gistihússins, sem síðar varð bæki stöð Hitlers og hann mun hafa verið þakklátur fyrir, að geta tek ið sér heitt bað, en honum leizt miður á mjúka rúmið, sem her- bergjunum fylgdi, og svaf á gólf- inu. Eyðimerkurlífið hafði ger- breytt lífsvenjum hans. Hefndin yfir ítölum E f t i r fullnaðarósigur sneri hann heim til Kairo aftur með bjargfasta trú á framtíð og frelsi arabísku þjóðanna. Hann sneri heim sem hetja og var kjörinn á þing með miklu atkvæðamagni. Að vonum gekk hann fljótlega í flokk með tveim helztu frelsis- hetjum Egypta, Zaghluk Pasha, sem nú er látinn, og núverandi forsætisráðherra Nahas Pasha, og á næstu árum var hann þrá- faldlega ráðherra í stjórninni, en áhugamál hans náðu miklu lengra en til innanríkisstjórn- mála Egyptalands. Hann byrjaði snemma að velta fyrir sér hugmyndinni um banda lag Araba, og vann fyrir þessa hugsjón, bæði heima í Egypta- landi og síðar víða um lönd, er hann var gerður að sendiherra á þýðingarmiklum stöðum. Libyu, hinu ástkæra föður- landi sinu, gleymdi hann heldur aldrei. í annari heimsstyrjöld- inni fékk hann tækifærið til þess að hefna fyrir ósigurinn árið 1924. Nú voru fjendur hans, Ital- irnir, bandamenn Þjóðverja, og hann varð stoð og stytta Breta í eyðimerkuhernaðinum. Það er enginn vafi á því, að aðstoð hans vó þungt á metaskálunum fyrir Breta. Á erfiðustu stríðsárunum safnaði hann Bedúinum á ný saman til baráttu, og hann getur nú vel sagt, þegar Libya á sér framtíð sem sjálfstætt ríki, að verulegur hluti heiðursins beri honum. Það var beinlínis hag- kvæmt framlag til málanna, sem hlaut að efla áhrifavald hans meðal allra arabískra þjóða. Erfiðleikar steðja að Vart hafði seinasta skotinu í Afrikustyrjöldinni verið hleypt • af, er hann hóf að nýju baráttu sína f y r i.r Arababandalaginu Hann naut þar stuðning Farouks konungs, sem leit á bandalagið sem þýðingarmikið tæki til þess að láta draum föður síns og sjálf síns rætast um enrurreisn Kalifa stjórnar, en hann vissi, að hinn voldugi Ibn Saud leit með af- brýðisemi og vantrú til hins unga jafninga síns. Þarna var við ramman reip að draga, því án hlutdeildar Ibn Sauds konungs, hefði hvers konar bandalag Ar- abaríkja verið nafnið tómt. Um haustið 1944 vann Azzam Pasha, eins og hann nú var nefnd ur, hinn mesta stjórnmálalega sigur sinn. Honum tókst að sann- færa, ekki aðeins Ibn Saud, held- ur alla aðra arabíska hífðingja, um hagkvæmi hugsjónar sinnar, og undirbúnings-ráðstefna sett- ist á rökstóla í Alexandríu. En í marz næsta ár var undirbúningi svo langt komið, að eins og áður var á drepið, var hægt að ganga formlega frá stofnun Araba- bandalagsins. Það hafa vafalaust verið Azz- am Pasha vonbrigði að skorizt skuli hafa í odda í Palestínu, M ESSU BOÐ Fyrsta Lúterska Kirkja Séra Valdimar J. Eylands. Heimili 686 Banning Street. Sími 30 744. Guðsþjónustur á hverjum sunnudegi: Á ensku kl. 11 f. h. Á íslenzku kl. 7 e. h. ☆ Lúterska kirkjan í Selkirk Sunnud. 11. nóv. Rembrance Day Sameiginleg guðsþjónusta allra kirkna Selkirkbæjar í Garry Theatre kl. 10.30 árd. Sunnudagaskóli kl. 12. Islenzk messa kl. 7 síðd. Allir boðnir velkomnir! S. Ólafsson ☆ Gimli Luiheran Parish H. S. Sigmar, Pastor Nov. llth 9:00 A.M. Betel. 10:45 A.M. Special Armistice Day Service and Canadian Legion Parade, Gimli. 2:00 P.M. Riverton. 3:00 P.M. Confirmation Class, Riverton. 7:00 P.M. Icelandic Service, Gimli. 8:00 P.M. Youth Rally at the Gimli Theatre — Showing the movie “The Difference/’ Offering taken for C.H.E.Y. áður en Arababandalaginu hafði almennilega verið komið á fót, en enn meiri vonbrigði hljóta það þó að hafa verið honum, hve Egyptar reyndust hernaðarlega máttlausir, eins og raun bar vitni. Enginn skal þó láta það sér til hugar koma, að þetta hefði dreg- ið úr trú hans á málefninu. Hann hefir áður sýnt, að hann gæti beðið, og nú bíður hann eftir heppilegu tækifæri, í hinni stóru aðalbyggingu Arababandalag- sins, í Kairo, Það er ekki rétt að gera lítið úr honum sem andstæðing. Hann er ekki síður hættulegur viðskipt is, einmitt vegna þess að í fram- komu er hann heimsmaður, sem getur tekið þátt í skemmtanalífi af jafn mikilli leikni og hann ræður gátur stjórnmálanna. Og þótt hann sofi alltaf eins og hann gerði, er hann barðist í eyðimörk inni, lifir hann engu meinlæta- lífi, Hann hefir mætur á góðu öli og reykir mikið tóbaksvindlinga. Nú er mikið að gera í símalín- unni milli Manasterly-hallarinn- ar, aðalbækistöð Arababandalag- sins í Kairo, og Amman, höfuð- borg Transjordaníu. En með sam tölunum, er þar fara á milli, er stjórnarstefna Arabahöfðingj- anna ákveðin. — VÍSIR To Check Accidents— Double Check Your Car Improved Maintenance habits can reduce accidents in Manitoba. Driving a “safe” car is as important to the life of a driver and his family as “safe driving habits”. Every car and truck owner is urged to recognize his obligation to drive a safe vehicle by having his garage “DOUBLE CHECK” all safety features: Brakes, lights, tires, tubes, steering mechanism, windshield wipers and wheels. DRIVE A SAFE CAR BE CAREFUL — THE LIFE YOU SAVE MAY BE YOUR OWN! Published in the interests of public safety by SHEA’S WINNIPEG BREWERY LTD. MD-297

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.