Lögberg - 24.01.1952, Síða 3
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 24. JANÚAR, 1952
3
Fréttapistlar fré Kyrrahafsströndinni, 1952
Þar sem árið 1951 er nú liðið
í aldanna skaut og mun aldrei
koma til baka, þá langar mig til
að minnast lítið eitt á félagslíf
íslendinga í Blaine og Belling-
ham, sérstaklega nokkra síðustu
mánuði hins liðna árs.
BLAINE.
Ennþá eru það að minsta kosti
tvö íslenzk félög í Blaine, sem
töluvert kveður að enn, og starfa
af lífi og sál, svo langt sem á-
stæður leyfa, þau eru Lestrar-
félagið „Jón Trausti“ og Þjóð-
ræknisdeildin „Aldan“.
Jón Trausti hefir starfað vel
og dyggilega að íslenzkum mál-
um alt að 33 árum og ávalt gefið
meðlimum sínum tækifæri til
þess að fylgjast með íslenzkri
menningu með því að kaupa
stöðugt flestar þær beztu og
mest fræðandi bækur, sem ut
hafa komið á íslenzkum bóka-
markaði, enda er félagið mjög
auðugt af ágætis, íslenzkum
fræðibókum, sögubókum og ljóð
mælum. Forsæti Jóns Trausta
hefir ávalt verið skipað ágætis
mönnum, sem hafa elskað ísland
og alt sem íslenzkt er, enda hefir
aldrei annað en íslenzka verið
notuð á félagsfundum. Meðlima-
tala félagsins heldur sér býsna
vel, því þótt þeim öldruðu sé
altaf að fækka, af eðlilegum á-
stæðum, þá bætast stöðugt aðrir
við, jafnvel þó flestir þeirra séu
líka nokkuð hnignir að aldri.
Allmargir landar hafa flutzt
til Blaine nokkur hin síðustu ár,
og margir þeirra hafa gengið í
félagið, þar á meðal er herra
Gísli Guðjónsson, ásamt konu
sinni og mörgum efnilegum börn
um, þessi fjölskylda kom frá
Canada fyrir fáum árum síðan.
Eitt af Guðjónssons fyrstu verk-
um í Blaine var að gerast með-
limur í lestrarfélaginu. Gísli, á-
samt sinni ágætis dugnaðarkonu
eru með þeim allra duglegustu
og ósérhlífnustu meðlimum í
Trausta. Fyrir hvern fund fé-
lagsins fer Gísli um allan bæinn
til að sækja það aldraða fólk,
sem ekki hefir nein ráð að kom-
ast á fund og ekur því fram og
til baka endurgjaldslaust, enda
er Gísli elskaður og virtur fyrir.
sína miklu hjálp og þátttöku í
íslenzku félagslífi.
Sú hefir verið reglan hjá
Trausta að allir fundir haldist í
heimahúsum félagsmanna, eru
það því altaf einhverjir sem
boða til næsta fundar, og hefir
slíkt fundarhald í heimahúsum
ávalt reynzt vel.
Fyrsti fundur Trausta eftir
sumarfríið var haldinn heima
hjá Guðjónssons hjónum. Heim-
ili þeirra í Blaine er stórt og
myndarlegt, enda veitti ekki af
því þann 16< september; það var
dagurinn sem félagið hóf starf
sitt á síðastliðnu hausti. Húsið
var vel skipað glöðu og ánægju-
legu fólki. Fundurinn hófst, eins
og venjulega, með sálmasöng og
húslestri í bók Haraldar Níels-
sonar (Árin og eilífðin). Þeir
lestrar hafa flutt gleði og á-
nægju inn í félagið vegna þeirr-
ar dýrmætu og stórfræðandi
kenningu, sem sú bók innheldur.
Þeir lestrar hafa flutt heilsteypt
bræðralag og sanna vináttu inn
í lestrarfélagið,'*þar af leiðandi
eru allir fundir Jóns Trausta
ánægjan sjálf.
Fundurinn, sem nefndur er að
ofan, var vel sóttur, milli 30—40
manns. Þegar búið var að tala
um mestu nauðsynjamál félags-
ins, var skemmtiskránni snúið
upp í gleðisamsæti handa þeim
nýgiftu hjónum, Hannesi Teits-
syni og Guðlaugu konu hans.
Margar ræður voru flutar, til
dæmis talaði Dr. H. Sigmar
nokkur hlý og falleg orð í garð
brúðhjónanna. Á þessum sama
fundi gerðist Dr. Sigmar með-
limur í lestrarfélaginu ásamt
sinni ágætu frú. Einnig tóku til
máls séra Albert Kristjánsson,
séra Guðm. P. Johnson, Sigur-
jón Björnsson, Jón Laxdal, Helgi
Steinberg, Guðmundur Guð-
brandsson, og kona hans flutti
inndælt kvæði; einnig las frú
Asta Johnson fallegt kvæði og
nokkrir fleiri tóku til máis.
Þá þökkuðu brúðhjónin fyrir
þann heiður, sem þeim var sýnd-
ur og fyrir þær gjafir, sem þeim
bárust frá meðlimum félagsins.
Herra Hannes Teitsson og kona
hans eru bæði mjög trúverðugir
meðlimir Trausta.
Milli ræðanna voru sungnir
margir íslenzkir söngvar með
lífi og fjöri. Þá var sest að rausn-
arlegum veitingum, sem frú
Guðjónsson og dætur þeirra
hjóna báru fram handa öllum
viðstöddum.
Síðan hafa verið haldnir tveir
fundir Jóns Trausta, annar hjá
Sigurjóni Björnssyni, ritara fé-
lagsins, og hinn hjá Sigurði
Arngrímssyni og frú hans, ljóm-
andi fundir og sami rausnar-
skapurinn hvað veitingar snerti.
Þjóðræknisdeildin „Aldan".
i
Annað íslenzkt félag er í
Blaine, sem mikið hefir kveðið
að, þó ekki sé það mjög gamalt,
það er Þjóðræknisdeildin Aldan,
það félag er aðeins 7—8 ára
gamalt.
Mér er ekki nægilega kunnugt
um hvað miklar framkvæmdir
eða dugnað ýmsar þjóðræknis-
deildir hafa sýnt af sér í Vestur-
heimi, en það er mér nær að
halda, að engin deild, sem stofn-
uð hefir verið á meðal íslendinga
í þessari heimsálfu, hafi verið
þess megnug að hrinda af stað
eins stórkostlegu verki og Aldan
hefir gert, en þar á ég við bygg-
ingu elliheimilisins í Blaine.
Það má kannske segja, að það
hafi verið ofdirfskufult tal af
svo fáum íslendingum að hugsa
sér að hrinda slíkri hugsjón í
framkvæmd. En þessir menn
voru fyrstu meðlimir hinnar ný-
stofnuðu Öldu, og þeir létu ekki
sitja við orðin tóm, heldur fóru
af stað og söfnuðu milli 6 til 7
þúsund dollurum hjá löndunum
í Blaine og nágrenni með því
skilyrði að þessum peningum
yrði skilað aftur til gefenda, ef
ekki yrði af framkvæmdum. En
áður en sá tími kom, að skila
þyrfti peningunum, höfðu marg-
ir góðir menn og konur gripið í
sama streng og gefið álitlegar
upphæðir, svo ljóst var að fram-
kvæmdir myndu hefjast.
Nöfn gefendanna hafa áður
verið birt, svo ekki er þörf á því
hér. En heimilið er nú fyrir
löngu komið upp og er starfrækt
með mestu prýði og til stórheið-
urs fyrir alla íslendinga, sem þar
hafa lagt hönd á plóginn. Og
hefir það nú þegar orðið, og er,
og mun verða, til óútmálanlegr-
ar blessunar fyrír alla þá landa
og afkomendur þeirra, sem þar
njóta rólegrar og friðsamlegrar
hvíldar á ævikvöldi sínu.
Nú er þessari stofnun stjórnað
af 9 manna nefnd, samkvæmt
lögum stofnunarinnar. Heimilið
er starfrækt af mikilli hagsýni
og gætni, enda er stjónarnefndin
skiptfö ágætis mönnum.
Svo eftir alt þetta situr Aldan
sem mikilhæf drotning og horfir
með ánægju á það starf, sem
hún reyndist megnug að hrinda
af stað á hinum fyrsta og kröft-
uga spretti félagsára sinna.
Þó Aldan hafi nú, að nokkru
leyti, byrjað að njóta hvíldar
elliáranna, þó ung sé, þá er hún
ennþá að reyna að halda í horf-
inu. Hún heldur fundi sína reglu
lega og starfar að heill og þrosk-
un afkvæmis síns.
í október s.l. hélt Aldan
skemtisamkomu í Blaine, til arðs
fyrir elliheimilið, og náði inn
alt að 100 dollurum.
Meðlimum hennar hefir fækk-
að allmikið, því margir þeirra
hafa dáið, en Aldan heldur starfi
sínu áfram í sama anda og áður,
til eflingar íslenzkri þjóðrækni
og góðum verkum eftir föngum.
BELLINGHAM, WASH.
íslenzka Lestrarfélagið „Kári“
í Bellingham heldur nú bráðum
upp á 38. afmælisárið sitt. Það
félag hefir unnið mikið og merki
legt starf á meðal íslendinga í
Bellingham og nágrenni.
Fyrir nokkrum árum síðan
var Kári býsna öflugur félags-
skapur, og þó að allir íslending-
ar í Bellingham hafi ekki verið
meðlimir félagsins, þá hafa þeir
ávalt verið því hlyntir og tekið
eindreginn þátt í hinujai árlegu
skemtisamkomum þess.
Það var altaf vani Kára að
halda þrjár stórar samkomur a
ári hverju: Hlutaveltu að haust-
inu, og svo myndarlega jóla-
veizlu; til þess mannfagnaðar
bauð félagið flestum íslending-
um, bæði í Bellingham og ná-
grenni, og hafði þá ávalt sérstak-
lega vandaða skemtiskrá, þar
sem bæði úrvals söngfólk og
góðir ræðumenn komu fram;
síðan hafði félagið myndarlegt
skógargyldi á hverju sumri, og
margt fólk kom þar ávalt saman
til þess að skemta sér.
Öllum þessum skemtimótum
hélt Kári áfram þar til fyrir
þremur árum síðan að meðlima-
töýlu félagsins hafði fækkað svo
tilfinnanlega, að það varð að
draga saman seglin að miklu
leyti, og var ástæðan sú, að fjöldi
af meðlimum félagsins hafði
dáið og aðrir flutt í burtu frá
Bellingham.
Samt sem áður heldur Kári
áfram að starfa eftir beztu getu.
Jólaveizlan, sem altaf var haldin
í' Bellingham, er nú ekki lengur
höfð þar, en síðan ellihéimilið í
Blaine tók til starfa, hefir Kári
farið þangað fyrir hver jól, nú
í þrjú ár, og sett upp rausnar-
lega veizlu handa öllum á heim-
ilinu með vandaðri skemtiskrá,
þannig gerði Kári fyrir þessi síð-
ustu jól.
Þann 16. desember hafði félag-
ið sérstaklega tilkomumikla
skemtun og átveizlu handa öllu
vistfólki og starfsfólki á heim-
ilinu, þar að auki bauð Kári allri
stjórnarnefnd heimilisins.
Sá jólafögnuður hófst með
messugjörð, þar sem séra Guðm.
P. Johnson prédikaði, en herra
Ársæll Augustson lék á hljóð-
færið. Það var fullkomin lútersk
messa með messusvörum, líkt og
í kirkju, töluvert á annað hundr-
að manns hlýddu þar messu.
Eftir að fólk hafði heilsast
með handabandi og talað saman
en norrænu víkingarnir fundu
landið og fóru að kanna það.
Heichelheim, sem gert hefir
hagfærði fyrri alda að sérgrein
sinni, byggir kenningu sína á
því, að fundizt hafi þrír fornir
peningar á íslandi, en peningar
þessir voru slegnir í Rómaveldi
fyrir árið 300 e. Kr. burð. Er
kenning prófessorsins á þá leið,
að peningar þessir hafi verið í
fórum þýzks sæfara, er hafði
áður verið í þjónustu Rómverja,
verið í her þeirra. Hann hafi rek-
ið hér á land, og hafi þá grafið
peningana, að líkindum til að
friðþægja guðunum.
Heichelheim segir, að pening-
arnir hljóti að hafa verið fluttir
til íslands ekki síðar en árið 300
e. Kr. burð, því að þeir hafi verið
stutta stund, kvað sér hljóðs
herra Björn Ásmundsson frá
Bellingham, sem í mörg ár hefir
verið forseti Kára og er ennþá;
hann bað alla að syngja „Hvað
er svo glatt sem góðra vina
fundur“; síðan ávarpaði forseti
fólkið með nokkrum fallegum
orðum og skýrði frá tilgangi
þessa mannfagnaðar. Þá hófust'
ræður og söngvar með gleði og:
miklu fjöri.
Fyrstur tók til máls, herra
Andrew Danielson, skrifari Elli-
heimilisnefndarinnar, síðan hr.
Einar Símonarson, lögfræðingur
og forseti nefndarinnar. Þeir
létu í ljósi ánægju sína yfir
heimsókn Kára og þökkuðu hana
ínnilega. Þá talaði Hannes Teits-
son, séra Guðm. P. Johnson, og
kona hans, síðan tók til máls
ráðskona heimilisins, frú Thora
Pálsson Scully, hún þakkaði
hjartanlega fyrir heimsóknina
og talaði bæði fallega og á góðri
íslenzku; síðan tóku nokkrir
fleiri til máls; síðasti ræðumað-
ur var séra Albert Kristjánsson,
hann þakkaði öllum mjög hlý-
lega: presti fyrir messuna, for-
seta fyrir góða stjórn á skemti-
skránni, spilara fyrir góðan söng
og undirspil, Dalielson fyrir
fallega ræðu, Símonarson fyrir
valin orð og fallega íslenzku,
ráðskonunni fyrir skörulega
ræðu og gott hald á íslenzkri
tungu, konum Kára fyrir góðan
mat og kaffi, sem hann vissi að
bráðum yrði á borð borinn, síðan
þakkaði séra Albert öllum fyrir
gott starf og alla góða hjálp fyr-
ir elliheimilið. Síðan sagði prest-
urinn skemtilega gamansögu,
sem allir hlógu dátt að; séra Al-
bert endaði ræðu sína með
nokkrum hvatningarorðum um
áframhaldandi starf til eflingar
heimilinu.
Á milli ræðnanna voru sungn-
ir íslenzkir söngvar undir stjórn
herra Augustons, sem bæði söng
og spilaði undir af mikilli list.
Að síðustu var sungið „Eld-
gamla ísafold og „My Country
tis of thee“. Þá var gefið hlé, svo
konur Kára, sem stóðu fyrir
veitingum gætu borið á borð.
Það má segja að borð svignuðu
undir góðum réttum: hangikjöti,
rúllupylsu og fjölda mörgum
fleiri hátíðaréttum. Um eitt
hundrað manns sátu til borðs.
Allir borðuðu vel, skemtu sér á-
gætlega og voru glaðir. Mun
þessi eftirmiðdagsstund verða ó-
gleymanleg mörgum af þeim
öldruðu börnum, sem gista
„Stafholt“.
skýrt frá á prenti, fyrst í bok
sinni „Gengið á reka“, en síðan í
tímaritinu „Scandinavian Amer-
ican Reviw" og auk þess 1 danska
tímaritinu „Nordisk Numisma-
tisk Aarskrift“.
Eichelheim prófessor hefir ný-
lega ritað Kristjáni Eldjárn
bréf, þar sem hann leitar nánari
upplýsinga um rómversku mynt
irnar, og má af því marka, hve
„frumleg“ þessi tilgáta hans ef
um hina fyrstu landkönnuði á ís-
landi.
—VISIR, 7. des.
Hann: — Mig hefir langað til
að spyrja þig einnar spurningar
í margar vikur.
Hún: — Ég hefi haft svarið
tilbúið í marga mánuði!
G, P. J.
Kanadískur prófessor með
íslenzka hugmynd
Setur fram tilgátu byggða á
athugunum Kr. Eldjárns
Toronto (UP). — Prófessor
Fritz Heichelheim við há-
skólann hér í borg vill láta
breyta íslandssögunni.
Prófessor Heichelheim heldur
því fram, að norrænir víkingar
hafi alls ekki fundið ísland í
öndverðu. Hann segir, að róm-
verskir hermenn hafi komið þar
um það bil árið 300 e. Kr. burð —
að minnsta kosti 500 árum áður
gefnir út á miklum verðbólgu-
tímum, svo að þeir urðu verð
lausir nokkru eftir árið 300.
Prófessorinn mun bráðlega
birta grein um þessa kenningu
sína í brezka fornfræðiritinu
„Antiquity”.
í þessu sambandi vill Vísir
geta þess, að „tilgáta hins kana-
díska menntamanns er engan
veginn ný af nálinni, og margt
bendir til þess, að hann hafi
stuðzt og styðjist hér við athug-
anir, sem Kristján Eldjárn þjóð-
minjavörður hefir áður gert, og
Business and Pr< ifessional I Cards
PHONE 724 944 Dr. S. J. Jóhannesson SUITE 6—652 HOME ST. Vi5tals?tlmi 3—5 eftlr hádegi S. O. BJERRING Canadian Stamp Co. RUBBER & METAL STAMPS NOTARY & CORPORATE SEALS CELLULOID BUTTONS 324 Smiih Si. Winnipeg PHONE 924 624
J. J. SWANSON & CO. LIMITED 308 AVENUE BLDG. WINNIPEG Fasteignasalar. Leigja hús. Ct. vega peningalán og eldsábyrgfi, bifreiðaábyrgS o. s. frv. Phone 927 538 Phone 21 101 ESTIMA TES FREE J. M. INGIMUNDSON Asphalt Roofs and Insulated Siding — Repairs Country Orders Attended To 632 Simcoe St. Winnlpeg, Man.
SARGENT TAXI PHONE 204 845 PHONE 722 401 FOR QUICK. RELIABLE SERVICE g’Tmli funeral home 51 Firsl Avenue Ný útfararstofa með þeim full- komnasta útbúnaði, sem völ er á, annast virðulega um útfarir, selur líkkistur, minnisvarða og legsteina. Alan Couch. Funeral Direclor Phone—Business 32 Residence 59
DR. E. JOHNSON 304 EVELINE STREET Selklrk, Jdan. Office Hours 2.30 - 6 p.m. Phones: Office 26 — Res. 230
DR. A. V. JOHNSON Dentist 506 SOMERSET BUILDINO Telephone 97 932 Home Telephonpe 202 398
Andrews, Andrews, Thorvaldson and Eggertson Lögfrœthngar 209 BANK OF NOVA SCOTIA BG. Portage og Garry St. Phone 928 291 DR. ROBERT BLACK Sérfræöingur i augna, eyrna, nef og hálssjtíkdömum. 401 MEDICAL ARTS BLDG. Graham and Kennedy St. Skrifstofusími 923 815 Heimasími 403 794
CANADIAN FISH PRODUCERS, LTD. J. H. PAQE, Managing Directcr Wholesale Distributors of Fresh and Frozen Fish. Branch
(Æ* E • S Store at
miBSITO1 123
1 JEWELLERS I TENTH ST. BRAND0N
311 CHAMBERS STREET Office Ph. 26 328 Res. Ph. 73 917 447 Portage Ave. Ph. 926 885 (
GUNDRY PYMORE Limited British Quality Fish Nettina 58 VICTORIA ST. WINNIPEG Phone 928 211 Manager T. R. THORVALDSON Your patronage wlU be appredated
/tv HAGBORG FtEL/^ PHONE 21531 J- imnnni jMiimaini^
Office Phone Res. Phone 924 762 726 115 Dr. L. A. Sigurdson Minnist BETEL
528 MEDICAL ARTS BLDG. Office Hours: 4 p.m. - 6 p.m. and by appointment. í erfðaskrám yðar.
A. S. BARDAL LTD. FUNERAL HOME 843 Sherbrook Street Selur likkistur og annast um út- farir. Allur útbúnaður sá bezti. Stofnaö 1894 Simi 27 324 Dr. P. H. T. Thorlakson VVINNIPEG CLINIC St. Mary’s and Vaughan. Wlnnlpeg PHONE 920 441
Phone 23 996 700 Notre Dame Ave. Opposite Matemlty PavilUon, General Hospital. Nell’s Flower Shop Wedding Bouquets, Cut Flowers, Funeral Designa, Corsages, Bedding Plants Nell Johnson Res. Phone 27 482 PHONE 927 025 H, J. H. Palmason, C.A. H. J. PALMASON & CO. Chartcred Acconntants 505 Confederation Life Bldg. WINNIPEG MANITOBA
Office 933 587 Res. 444 389 THORARINSON & APPLEBY BARRISTERS and SOLICITORS 4th Floor — Crown Trust Bldg. 364 Maln Street WINNIPEG CANADA PARKER, PARKER & KRISTJANSSON Barrisíers - Solicilors Ben C. Parker, K.C. B. Stuart Parker, A. F. Kristjansson 500 Canadian Bank of Commerce Chambers Wlnnipeg, Man. Phone RlHl
SELKIRK METAL PRODUCTS Reykháfar, öruggasta eldsvörn, og ávalt hreinir. Hltaeiningar- rör, ný uppfynding. Sparar eldi- við, heldur hita frá að rjúka út með reyknum.—Skrifið, stmiðxtil KELLY SVEINSSON 625 Wall Street Winnipeg Just North of Portage Ave. Simar: 33 744 — 34 431 G. F. Jonasson, Pres. & Man. Dlr. Keystone Fisheries Limited Whoiesale Distributors of FRESH AND FROZEN FISH 404 SCOTT BLK, Símt 925 227
DR. H. W. TWEED Tannlœknir 508 TORONTO GENERAL TRUSTS BUtLDING Cor. Portage Ave. og Smith St. Phone 926 952 WINNIPEG Rovaizos Flower Shop 253 Notre Dame Ave. WINNIPEG MANITOBA Bus. Phone 27 989—Res. Phone 36 151 Our Specialties: WEDDING CORSAGES COLONIAL BOUQUETS FUNERAL DESIGNS Miss 4. Chrlstte, Proprtetress Formerly with Robinson & Co.
i
v