Lögberg - 10.04.1952, Blaðsíða 1
PHONE 21 374
A l>*et
&° A Complete
Cleaning
Institution
65. ÁRGANGUR
WINNIPEG, FIMTUDAGINN, 10. APRÍL, 1952
PHONE 21374
A
- A Complete
L^naVö^
Cleaning
Inslitulion
NÚMER 15
Forsetakjör 29. júní í sumar
Framboð verða að liggja fyrir
Vatnavextir í
Saskafchewan
fimm vikum fyrir kjördag
Forsætisráðherra hefir til-
kynnt, að kjör forseta Is-
lands skuli fara fram sunnu
daginn 29. júní í sumar. Og
skal framboðum til forseta-
kjörs hafa verið skilað til
dómsmálaráðuneytisins á-
samt samþykki forsetaefn-
isins, nægilegri tölu með-
mælenda og vottorðum yfir-
kjörstjórnar um, að þeir séu
á kjörskrá, eigi síðar en
fimm vikum fyrir kjördag.
Húnavatnssýslu til S.-Þingeyjar-
sýslu, að báðum meðtöldum) séu
minnst 280 meðmælendur, en
mest 560.
Úr Austfirðingafjórðungi (N,-
Þingeyjarsýslu til Austur-Skafta
fellssýslu, að báðum meðtöldum)
séu minnst 120 með mælendur,
en mest 240.
—Alþbl., 22. marz
Netamálið
Forsetaefni skal hafa með-
mæli 1500 kosningabærra manna
hið minnsta, en mest 3000, sem
skiptist þannig eftir landsfjórð-
ungum:
Úr Sunnlendingafjórðungi (V.-
Skaftafellssýslu til Borgarfjarð-
arsýslu, að báðum meðtöldum)
séu minnst 920 meðmælendur,
en mest 1835.
Úr Vestfirðingafjórðungi
(Mýrasýslu til Strandasýslu, að
báðum meðtöldum) séu minnst
180 meðmælendur, en mest 365.
Úr Norðlendingafjórðungi (V.-
Heimboð og
ferðalag
Netafélagið góðkunna, Park-
Hannesson Limited, sem verzlar
með net og önnur fiskveiða-
áhöld, sem Drummondville
verksmiðjan íQuebec framleiðir,
hafði boð inni í Royal Alexandra
hótelinu á laugardaginn var, er
sex tugir manna sátu; þetta er
fimta veizlan í röð, er þeir Roy
Park og Hugh Hannesson stofna
til í tilefni af leiðangri þeirra
með hóp fiski- og fiskumboðs-
manna austur til hinnar miklu
netaverksmiðju. Ritstjóri Lög-
bergs hefir verið boðsgestur fé-
lagsins öll árin, og þakkar þá
góðvild, sem honum hefir með
þessu verið auðsýnd. Mr. Park og
Mr. Hannesson tóku báðir til
máls í hófinu, sem var um alt
hið ánægjulegasta, auk nokkurra
gesta.
Áminst skemtiför stendur yfir
í tíu daga með viðdvöl í Toroto,
Ottawa, Montreal, Drummond-
ville, Niagara Falls, Buffalo og
New York. Mr. Park var farar-
stjóri.
Hér fara á eftir nöfn þeirra.
er í förinni tóku þátt:
Roy A. Schlader, Mclnnes
Products Corp., Edmonton, Alta.
Jas. Harwood, Fish Merchant,
Dilke, Sask.
D. F. Corney, Saskatchewan
Fish Marketing Services, Prince
Albert, Sask.
C. W. Christensen, Saskat-
chewan Fish Marketing Ser-
vices Prince Albert, Sask.
Richard Waite, Waite Fish-
eries Ltd., Big River, Sask.
Ole Josephson, Josephson
Bros., Gimli, Man.
Simbi Josephson, Josephson
Bros., Gimli, Man.
Haddi Peterson, Peterson
Bros., Gimli, Man.
Sam Peterson, Peterson Bros.,
Gimli, Man.
Snorri Jónasson, Perfection
Net & Twine Co. Winnipeg, Man.
Lawrence Goodman, Booth
Fisheries Can. Co. Ltd. ,Selkirk,
Man.
R. E. Park, Park-Hannesson
Ltd., Winnipeg, Man.
Nokkur styr var í síðustu
viku um netamálið í Free Press,
en vandinn er sem áður,
breyttur og óleystur. Þetta er
meira vandamál en margur
ætlar og snertir fleiri en þá ó
lánssömu fiskimenn, sem fyrir
netatapinu urðu. Enginn ber
brigður á það, að ólögleg net
finnist í vatninu, en fiskimenn
halda því statt og stöðu^t fram
að meginið af þeim netum, sem
tekin voru á Winnipegvatni
vetur hafi verið 3 þumlunga
möskva net — að netafélögin
hafi selt sér þau sem net af
þeirri stærð. Og netafélögin
halda því fram að netin, sem þau
seldu þessum fiskimönnum hafi
verið 3 þumlunga möskva net;
þeir hafi pantað þá stærð frá
netaverkstæðunum og fengið
þau merkt með þeirri stærð. Ó-
líklegt er, að hin þekktu neta-
gerðarfélög kunni ekki að búa
til þriggja þumlunga möskva
net eða merki þau rangt. Vegna
þess að netasalarnir töldu þessi
net vera þriggja þuml. stærð er
sennilegt að þeir hafi selt fjölda
mörgum öðrum fiskimönnum
samskonar net þótt þau væru
ekki tekin í þetta skipti, því
hending virðist ráða því hvar
netaeftirUtsmennina ber að í það
og það skiptið.
Ef fiskimennirnir, sem töpuðu
netunum verða lögsóttir og mál-
ið fellur á þá, eru engin sams-
konar net óhult í vatninu. Ef
þau verða öll tekin úr vatninu
mun fiskiútvegurinn í heild bíða
mikið fjárhagslegt tjón.
Undanfarna daga hafa vatna-
vextir valdið gífurlegu eigna-
tjóni í Saskatchewan-fylkinu;
splunkur ný brú yfir Saskat-
chewan ána, sem kostaði miljón
dollara, eyðilagðist að miklu
leyti, eða jafnvel alveg, vegna ó-
viðráðanlegs ísruðnings í ánni
þrátt fyrir látlausar björgunar-
tilraunir verkfræðinga og hern-
aðaryfirvalda. Brú þessi var
þrjátíu mílur norður af Swift
Current og tengdi áminstan bæ
og suðvestur jaðar fylkisins við
miðvesturfylkið.
Þúsundir ekra af ræktuðu
°" landi í Pike og Moon Lake hér
uðunum fimtán mílur vestan við
Saskatoon eru á kafi í vatni.
Birtir fyrstu órsskýrslu sína
Vinnur
prófkosningu
Við nýlega afstaðnar próf-
kosningar í Wisconsinríkinu varð
Senator Taft hlutskarpastur og
fékk 24 erindreka á framboðs-
þing Republicana, sem haldið
verður í júlí í Chicago-borg.
Harold E. Stassen fékk 6 erind-
reka, en Earl Warren ríkisstjóri
í-Californíu 4 erindreka.
Af hálfu Demokrata fékk
Senator Estes Keauver frá Ten-
nesse 28 erindreka kosna, eða þá
alla, er Demokratar í ríkinu geta
sent á flokksþing sitt.
Við prófkosningarnar í Ne-
brskaríkinu varð svo að segja
jafntefli milli þeirra Tafts og
Eisenhowers.
Á miðvikudaginn hinn 2. þ. m.,
birti Eisenhower yfirhershöfð-
ingi hina fyrstu ársskýrslu sína
yfir hernaðarlegt viðhorf þeirra
þjóða, er að Norður-Atlantshafs-
bandalaginu standa, en þá var
liðið rétt ár frá þeim tíma, er
hann tók við yfirstjórn hlutað-
eigandi herja með bækistöð sína
í París.
Eisenhower fór ekki dult með
það, að enn sem komið væri
skorti vesturveldin bolmagn til
að hrinda alhliða árás af hálfu
Rússa og leppríkja þeirra, þótt
mikið hefði hins vegar unnizt á
hervörnum viðvíkjandi; hann
lagði áherzlu á það, að Banda-
ríkin héldi áfram stuðningi sín-
um við Vestur-Evrópuþjóðirnar,
þótt vel mætti þau ætlast til
nokkurra meiri átaka af þeirra
hálfu varðandi hinar óumflýjan-
legu hervarnir; hann sagði að
hlutaðeigandi Vestur-Evrópu'
þjóðir yrðu að láta sér skiljast,
að gjaldþoli amerískra skatt-
greiðenda mætti ofbjóða og
væri þá ver farið en heima setið
ef til slíks kæmi, sem vonandi
yrði ekki; hann tjáðist nokkurn
veginn sannfærður um, að ef alt
skeikaði að sköpuðu, yrði Vest-
ur-Evrópa svo búin að koma
undir sig fótum frá hernaðarlegu
sjónarmiði séð 1954, að Rússar
mundu ógjarna vilja eiga það á
hættu að hefja árásarstríð, þótt
vissara væri fyrir lýðræðisþjóð-
irnar að vera við öllu búnar.
Flyfrur ræðu í
sameinuðu þingi
J ú 1 í a n a Hollandsdrotning
heimsótti Washington í fyrri
viku ásamt manni sínum, og
voru þau í þrjá daga gestir for-
setahjónanna amerísku. Júlíana
drotning flutti ræðu í samein-
uðu þjóðþingi Bandaríkjanna
þar sem hún þakkaði hinni ame-
rísku þjóð stuðning hennar við
Holland í síðasta stríði og marg-
háttaða velvild fyr og síðar; hún
vék nokkrum orðum að Norður
Atlantshafsbandalaginu og spáði
góðu um framtíð þess og eining
og öryggi Norðurálfuþjóðanna;
hún varaði Bandaríkjaþjóðina,
við því, að leggja ekki það
mikið fé til hervarna á erlend-
um ‘ vettvangi, að efnahagsaf-
komu þjóðarinnar heima fyrir
stafaði hætta af.
Hótsðarmessur
Hálíðarmessur með sérslökum
kór og einsöngvum, verða fluíl-
ar í Fyrsiu lúlersku kirkju á
Páskadaginn kl. II, eg k!. 7.
Allir ævinlega velkomnir.
Raforkumólin
í Winnipeg
Svo sem þegar er vitað, fer
fram almenn atkvæðagreiðsla
hér í borg þann 16. þ. m., um
endurskipulagningu á raforku-
málum borgarinnar, og er slíkt
gert að ráði Manitobastjórnar,
sem telur nauðsyn á að raforku-
framleiðslan verði betur sam-
ræmd, en fram að þessu hefir
gengist við; hið svonefnda
Plan C, er bæjarstjórn vill að
nái fram að ganga, felur það í
sér, að City Hydro kaupi öll
orkuver Winnipeg Electric fé-
lagsins og ráði með því yfir
einu, voldugu raforkukerfi, er
síðar færi svo út kvíar, að ekki
geti til þess komið, að skortur
verði á raforku hvorki í Winni-
peg né heldur í þeim smábæja-
og sveitafélögum, er að borginni
liggja.
Allmikill hiti er kominn í
málið, og hefir andspyrnufylk-
ing verið stofnuð með Scott
bæjarráðsmann í fararbroddi, er
hamrar það blákalt fram, að með
þessu sé verið að stofna til fjör-
rgða við City Hydro.
Fjárhagsáætlun sambandsstjórnar
lögð fram í þingi
Innflutningur
búpenings
bannaður
Landbúnaðarráðherra sam-
bandsstjórnar, James G. Gar-
diner, hefir lýst yfir því, að
fyrst um sinn verði bannaður
með öllu innflutningur búpen-
ings frá Bretlandi hingað til
lands vegna gin og klaufnaveik-
innar, sem farið hefir upp á
síðkastið ljósum logum um
landið.
Síðastliðinn mánudag lagði
fjármálaráðherra sambands-
stjórnarinnar, Douglas Abbott,
fram í þinginu fjárhagsáætlun
sína fyrir fjárhagsárið 1951—
1952 og ber hún það með sér,
að rekstrarhagnaður nemur 355
miljónum dollara; í fyrra hljóp
rekstrarhagnaðurinn upp á lið-
lega 211 miljónir.
Tekjurnar fyrir áminst tíma-
bil .námu $4,003,11,000, en út-
gjöld $3,647,374.
Árið 1946 nam þjóðskuld
Canada $13,421,400,000, en hefir
nú verið lækkuð um tvær bil-
jónir dollara og má það kallast
vel að verið.
Persónulegur tekjuskattur gaf
af sér mesta tekjuaukann, auk
þess sem tekjuskattur stórfyrir-
tækja þyngdi til muna pyngj-
una.
Tekjur af áfengi og tóbaki
lækkuðu allverulega, einkum þó
Ávarp til Gullfoss og Eimskipafélags íslands
Gullfoss nýi er kominn heill til hafna,
honum fagnar þjóðin einum rómi;
blakta fánar beggja milli stafna,
blikar yfir honum frægðarljómi.
Gæfan fylgi Eimskips óskabarni
yfir torsótt höf, á nótt og degi.
Þó að landið verpist hörðu hjarni,
hvika mun það ekki af réttum vegi.
Nafnið, sem að frægan garðinn gerði
gleymist aldrei meðal íslendinga.
Hugir þeirra standa á vökuverði,
völvur góðar heillakvæði syngja.
Heill þér Gullfoss, heill sé áhöfn þinni,
Heill þér Eimskip, störf þín blessi drottinn;
þjóðin geymi þau í muna og minni,
meðan lífgrös sjást í túni sprottin.
Akureyri, 28/5 ’50
Friðgeir H. Berg
af hinni síðarnefndu tegund,
sem stafaði af þverrandi fram-
leiðslu vegna verkfalla í þeim
iðnaði; líklegt þykir að verð
vindlinga lækki svo um muni á
næstunni.
Mr. Abbott lét þess getið, að
stefna stjórnarinnar í fjármál-
unum hefði nú að miklu leyti
fyrirbygt þá hættu, sem af verð-
þenslu stafar, og má það verða
landslýð öllum mikið ánægju-
efni.
Andlát Sigfúsar
Sigurhjartarsonar
Sigfús Sigurhjartarson, bæjar-
fulltrúi og fyrrv. alþingismaður,
andaðist af hjartaslagi síðastlið-
inn laugardag. Hann hafði lengi
þjáðst af hjartabilun, og dvaldi
um skeið í vetur sér til lækn-
inga og hressingar í Sovétríkj-
unum. Er hann kom heim virt-
ist hann allvel hress, og tók
þegar til starfa.
Daginn, sem hann andaðist,
hafði hann verið í samkvæmi og
já einskis meins kennt, svo að
íunnugt væri.
—TÍMINN, 22. marz
Auðmjúkir og
fátækir
í þeim löndum, þar sem ríki
og kirkja eru aðskilin, verða
söfnuðirnir sjálfir að greiða laun
presta sinna.
Sumstaðar eru prestum trygð
föst og ákveðin laun. Annars
staðar eiga prestarnir afkomu
sína undir örlæti safnaðarins
hverju sinni. Vill þá stundum
svo fara, að einstöku prestar eru
miður vel haldnir og lifa við
örbirgð.
Um þetta las ég nýlega eftir-
farandi smásögu í amerísku
tímariti:
Ungur maður, sem hafði hug
á að ganga í þjónustu kirkjunn-
ar, kom að máli við aldraðan
prest til þess að leita .hjá hon-
um hollra ráða og upplýsinga
um starfið og launakjörin.
„Ef þú ert fyrst og fremst að
hugsa um launin“ — sagði gamli
presturinn, „þá skalt þú ekki
reyna að verða prestur í okkar
kirkjufélagi. Hér líta söfnuðirnir
svo á, að það sé Guðs vilji, að
presturinn þeirra sé auðmjúkur
og fátækur. „Guð heldur honum
við auðmýktina, en við reynum
að sjá um hitt.“
Útvarpserindi um
vestur-íslenzk
Ijóðskáld
Fyrir atbeina Útvarpsráðsins
í Reykjavík talaði dr. Richard
Beck prófessor í Grand Forks,
N. Dakota, nýlega á segulband
þrjú hálftíma erindi um vestur-
íslenzk ljóðskáld til flutnings í
Ríkisútvarpi íslands. Samkvæmt
upplýsingum frá herra Andrési
Björnssyni, fulltrúa Útvarps-
ráðs, var fyrsta erindinu útvarp-
að þriðjudagskvöldið 1. apríl, en
hinum síðan með viku millibili.
Erindaflokkur þessi er hlið-
stæður erindum um vestur-
íslenzk skáld í óbundnu máli, er
dr. Stefán Einarsson prófessor í
Baltimore, Maryland, talaði á
segulband og flutt voru síðast-
liðið haust í íslenzka Ríkisút-
varpinu.
Áflæði sunnan
landamæra
Yfir 15 hundruð manns eru
um þessar mundir án skýlis yfir
höfuðið í Dakotaríkjunum vegna
áflæðis frá Big Sioux og Mis-
souri ánum; höfuðborg North
Dakotaríkis, Bismarck, hefir
sætt þungum búsifjum; þá hefir
og Montanaríkið ekki farið var-
—KIRKJUBLAÐIÐ J hluta af áflæðinu.
Piltur frá bæ í Norðfirði hverfur
í fyrrinótt hvarf piltur um
tvitugt, Hannes Finnsson að
nafni, frá Grænanesi í Norð-
firði, bæ sunnan Norðfjarðar
ár, og hefir hann ekki
fundizt, þrátt fyrir mikla
leit í gær og fyrradg. Tók
þátt í leitinni bæði fólk úr
sveitinni og Neskaupstað.
Merkur dómari
látinn
Aðfaranótt miðvikudagsins
vikunni, sem leið, lézt í svefni að
heimili sínu hér í borginni J. J.
Kelly dómari í Court of Queens
Bench, 53 ára að aldri; hjarta-
bilun varð honum að bana; hinil
látni dómari var mikill ágætis-
maður, vitur maður og réttlátur;
hann var yngstur í Court of
Queens Bench Manitobafylkis
þeirra, er hann átti embættislega
samleið með.
Pilturinn var horfinn úr rúmi
sínu, er heimafólk vaknaði, og
veit enginii, hvað af honum hef-
ir orðið. Hann hafði ekki haft
orð á því, að hann gerði ráð fyr-
ir að fara að heiman þennan
morgun, og ekki vitað um nein
sérstök erindi, sem hann hefði
að rækja af bæ.
Hefir hann gengið í svefni?
Ekki er talið alveg óhugsandi,
að hann kunni að hafa gengið í
svefni úr rúmi sínu, og eitthvað
orðið honum að voða í þeirri för
Er nýlegt dæmi um það hér á
landi, að maður hafi gengið
langa leið klæðlítill á nætur-
3eli, þótt ekki yrði þeim manni
að meini.
—TÍMINN, 22. marz
íslendingar verða
fyrir bílslysi
Á mánudagskveldið kl. 6.45
rakst fólksbíll á vörubíl Vz mílu
fyrir norðan Warren, Manitoba.
Alt fólkið í bílnum slasaðist
meira og minna. í bílnum voru
þessi: Mr. og Mrs. Chris. Vigfús-
son frá Lundar, Mr. Snorri
Rögnvaldsson, 5lí Spence St.,
Winnipeg og William Halldórs-
son frá Lundar; hann var bíl-
stjórinn. Mrs. Vigfússon og Mr.
Rögnvaldsson voru bæði flutt á
Almenna spítalann hér í borg.