Lögberg - 29.05.1952, Síða 7
íjÖGBERG, FIMTUDAGIJNN. 29. MAI, 1952
7
Kínverskir sjóræningjar
Flót-finn úr sæíuríki kommúnismans
Hafa sjóræningjar við Bias Bay
eignast nýja drottningu?
Sú fregn var nýlega birt í
heimsblöðunum, að kínverskir
sjóræningjar hefðu hertekið far-
þegaskip, er var í förum milli
Hong Kong og Yokohama og
haft á burt með sér allmarga
farþega. Völdu þeir einkum úr
þá, sem voru vel efnum búnir
eða áttu ríka aðstandendur, enda
var leikurinn til þess gerður að
heimta ríflegt lausnargjald fyrir
þá. Þetta gjald hefir nú verið
greitt fyrir þá flesta. Meðal
þeirra, sem teknir voru til fanga,
var einn af starfsmönnum banda
rísku utanríkisþjónustunnar og
hefir Bandaríkjastjórn orðið að
kaupa hann úr haldi fyrir all-
hátt gjald.
Atburður þessi rifjar það upp,
að sjóræningjar eru ekki enn
úr sögunni, þótt á flestum höf-
um heyri þeir orðið fortíðinni
til fyrir löngu. Við Kínastrendur
hafa þeir þó hafst við til skamrns
tíma. Áðurnefndur atburður
sýnir, að þeir eru ekki útdauðir
enn.
Það hefir annars vakið sér-
staka athygli á kínversku sjó-
ræningjunum á síðari áratugum,
að þeim hefir yfirleitt verið
stjórnað af konum. Margar kín-
verskar sjóræningjadrottningar
hafa hlotið mikla frægð og fjöl-
lesnar bækur verið skrifaðar um
sumar þeirra. Það virðist ekki
úr vegi að rifja upp nokkur at-
riði úr sögu þeirra.
Ræningjarnir í Bias Bay
Sjóræningjar hafa jafnan
haldið til við strendur Kína, en
þó færðist það mjög í vöxt á ár-
unum milli heimsstyrjaldanna.
Aðallega héldu þeir þá til í Bias
Bay, sem er flói mikill norður
af Hong Kong. Sigling er erfið
um þetta svæði vegna skerja og
þar eru víða víkur og vogar, sem
mynda góða felustaði. Héruðin,
sem liggja að flóanum eru af-
skekkt og ógreið umferfiar. Yfir-
völdin létu því lítið til sín taka
á þessum slóðum og sjóræningj-
arnir gátu því farið sínu fram
að mestu leyti.
Borgarstyrjöldin milli Chiang
Kai Sheks og kommúnista jók
mjög verulega liðstyrk sjóræn-
ingjanna. Margir kommúnistar,
sem áttu lögreglu Shiang Kai
Sheks yfir höfði sér, leituðu
þangað, og einnig liðhlaupar úr
her hans.
Sjóræningjarnir í Bias Bay
höfðu umboðsmenn í öllum ná-
lægum höfnum og fylgdust því
vel með öllum skipaferðum á
hafinu út af Bias Bay. Þegar vel
þótti bera í veiði, héldu þeir
flota sínum, sem oft var mynd-
aður af tugum smáskipa, í Veg
fyrir skipin og rændu þau. Upp-
lýsingaþjónusta þeirra lét þá að
sjálfsögðu vita, hvort herskip
myndu vera á þessum slóðum
um líkt leyti. Yfirleitt heppnuð-
ust þessar ránsferðir því furðu
vel.
Li Min
Fyrsta sjóræningjadrottning-
in, er nokkuð kvað að, var Li
Min. Hún var komin af aðals-
ættum, hafði gengið ung í komm
únistaflokkinn og tók þátt í bar-
áttu hans gegn Chiang Kai
Shek. Hins vegar vildi hún ekki
fylgja kommúnistum til Norður-
Kína, heldur kaus hún að setj-
ast að við Bias Bay, ásamt all-
mörgum fylgismönnum sínum.
Brátt varð hún sjálfkjörin leið-
togi sjóræningjanna þar. Floti
hennar taldi tugi skipa, sumra
allstórra, og gerðist hann brátt
athafnasamur. Sjóránum fjölg-
aði stöðugt og fengu eftirlitsskip
Breta ekki rönd við reist.
Að lokum gerðist þó Li Min
og fífldjörf. Hún ákvað að her-
taka kanadíska stórskipið „Em-
press of Canada,“ er var 36 þús.
smál. Skipið var í förum milli
Manila og Shanghai með við-
komu í Hong Kong. í Manila
réðust margir af liðsmönnum Li
Mins á skipið sem hásetar, en
aðrir komu með sem farþegar.
Ætlunin var, að þeir gerðu upp-
reisn um borð á tilsettum tíma
og um líkt leyti umkringdi sjó-
ræningjaflotinn skipið. Þetta
átti að gerast nokkru eftir að
skipið færi frá Hong Kong. Á
leiðinni milli Manila og Hong
Kong komst brezka leynilög-
reglan að því, að ekki myndi allt
með feldu. Þegar skipið var að
leggja úr höfn, réðst stór flokk-
ur brezkra sjóliða til uppgöngu
og tók að rannsaka vegabréf og
farangur farþega og skipverja.
Um líkt leyti gerðist það að krn-
versk kona, er var meðal far-
þeganna, fleygði sér fyrir borð.
Það upplýstist seinna, að þetta
hafði verið Li Min, er kaus held-
ur að fremja sjálfsmorð en að
lenda í höndum Breta. Hún hafði
ætlað sér að stjórna hertökunni.
Þetta gerðist árið 1928. Li Min
er þannig lýst, að hún hafi verið
óvenjulega fríð, gáfuð vel og
hin stjórnsamasta.
Nokkru eftir fráfall Li Mins
kom ný sjóræningjadrottning til
sögunnar í Bias Bay Það var
Tang-Tchin-tshiao, er var ættuð
frá Shanghai og hafði fengist
þar við háskólanám. Hún var að-
eins 26 ára, er hún gerðist fyrir-
liði sjóræningjanna. Hún var
annáluð fyrir grimmd og kom
það ekki ósjaldan fyrir, að hún
skar höfuðin af föngum er ekki
gátu greitt lausnargjald. Sumar
sögurnar af grimmd hennar eru
hinar ótrúlegustu. Hún neytti
ópíums í stórum stíl og var hin
mesta nautnamanneskja á flest-
um sviðum.
Eftir því, sem vegur hennar
óx, fór hún óvarlegar. Árið 1935
klófestu Bretar hana og var hún
dæmd til að hálshöggvast. Þótti
sá dómur maklegur.
Nokkru áður en Tang-Tchin
féll frá, var ný sjóræningja-
drottning komin til sögunnar
við Bias Bay. Það var Lai Cho-
San. Hún hefir ofast verið talin
mikilhæfugt þessara ævintýra-
kvenna. Liðsmönnum hennar
var mjög vel stjórnað og hún
hafði mjög góða upplýsinga-
þjónustu. Á árunum 1933—’37
tókst henni að fremja hvert sjó-
ránið öðru meira. Þrjár ríkis-
stjórnir, þ. e. stjórnir Kína,
Japans og Bretlands, hétu þeim
stórum fjárhæðum, er gætu tek-
ið hana til fanga eða lagt hana
að velli. Bæði kínversk, brezk
og japönsk herskip leituðu oft
að flota hennar, en án árangurs.
Loks tókst japanskri flotadeild
að hafa uppi á honum á nýárs-
dag 1938. Bardaginn varð ójafn,
en Lai Cho-San barðist samt til
seinustu stundar. Þegar skip
hennar var að því komið að
sökkva, setti hún byssuhlaupið
Skógræktin á íslandi var á
dögum Jónasar Hallgrímssonar
aðeins skáldadraumur. Viðhorf-
in voru enn hin sömu um alda-
mótin, þegar Hannes Hafstein
túlkaði í ljóði þá skáldlegu sýn,
að sárin foldar myndu gróa og
menningin vaxa í lundum nýrra
skóga. Nú er þetta breytt og
skógræktin að minnsta kosti
komin á svið merkilegrar áætl-
unar. Almennur áhugi á skóg-
rækt er kominn til sögunnar,
mætir menn hafa unnið stórfellt
brautryðjendastarf á vettvangi
hennar, og nú efast enginn um,
að hægt sé að láta dalina fyll-
ast skógi, þegar fram líða
stundir. Draumsýn skáldsins er
orðin að takmarki veruleikans.
Forustumenn skógræktarmál-
anna hafa gert áætlun um rækt-
un nytjaskóga, sem fullnægi
viðarþörf landsmanna eftir
hundrað ár; en áætlun þessi er
nú til athugunar hjá ríkisstjórn-
inni og mun verða lögð fyrir
næsta alþingi. Leiðir hún í ljós,
að hér muni unnt að rækta allt
að 90% af skógviði þeim, sem
íslendingar þarfnast. Leggur
skógræktarfélagið til, að hluta
af timburtollinum verði varið til
þess að margfalda afköst plöntu-
uppeldisstöðvanna í landinu og
síðan til að hefja stórfellda
ræktun nytjaskóga með fyrr-
nefnt takmark fyrir augum.
Auðvitað myndu þessar fram-
kvæmdir kosta mikla fjármuni;
en sannarlega þarf þó enginn að
láta þá vaxa sér í augum, þar
eð fyrirsjáanlega yrði mikill
gróði að þessu þjóðarfyrirtæki,
miðað við núgildandi verðlag á
timbri, og er þó sagan ekki þar
með öll sögð, því að flest rök
benda til þess, að þurrð muni
verða á skógviði í nágrannalönd-
unum í næstu framtíð og timb-
urverðið þar af leiðandi stór-
hækka. Timburinnflutningurinn
nemur nú um fimmtíu milljón-
um króna á ári hverju. Má því
öllum liggja í augum uppi, hví-
líkt gildi hin stóraukna skóg-
rækt kemur til með að hafa frá
sjónarmiði fjárhags og gjald-
eyris, þó að ekki sé minnzt á
hinn óbeina hagnað hennar, sem
ekki verður síður mikils virði.
Skógarbeltin munu gera skilyrði
annarrar ræktunar margfalt
betri en þau nú eru, breyta ör-
foka landi í tún og akra og færa
berar lendur í tignarleg skrúð-
klæði.
íslenzkir blaðamenn hafa á-
kveðið að leggja skógræktinni
það lið, sem í þeirra valdi
stendur. Þeir helguðu henni ár-
lega kvöldvöku sína í útvarpinu
annan páskadag, og á fundi
sínum um síðustu helgi hlýddu
þeir á greinargerð forustumanna
skógræktarfélagsins og land-
búnaðarráðherra um hina at-
hyglisverðu áætlun varðandi
stórfellda aukningu skógræktar-
innar á komandi árum. Hún hef-
ir síðan verið rakin ýtarlega í
blöðunum, svo að landsmenn
eiga þess kost að kynna sér
málið. Fyrir blaðamönnunum
vakir að kveðja nýmælum skóg-
ræktarinnar hljóðs með þjóð-
inni og láta hana fylgjast með
starfi þeirra, sem hafa veg og
vanda þessarar þjóðnýtu starf-
semi. Þannig hafa þeir lagt frá
sér vopnin og snúið bökum sam-
an í baráttunni fyrir einu
stærsta og merkilegasta fram-
faramáli þjóðarinnar.
við ennið og hleypti af. Alls var
hún þá búin að hertaka yfir 50
skip, svo að mál var til komið,
að hefta starfsemi hennar.
Eftir fráfall Lai Cho-San dró
mjög úr sjóræningjahernaðin-
um. í fyrra voru þó tvö stór
farþegaskip rænd og nú hefir
bætzt við þriðja skipið. Sumar
sagnir herma, að sjóræningjarn-
ir við Bias Bay hafi nú fengið
nýja drottningu, en aðrar, að það
sé sonur Lai Cho-San, er veiti
þeim nú forustu.
Almenningur hefir þegar sýnt
svo mikinn áhuga á skógrækt-
inni, að ekki þarf að efast um
liðveizlu hans. Þjóðin vill og
vonar, að skáldadraumar Jónas-
ar Hallgrímssonar og Hannesar
Hafsteins um fagran dal fylltan
skógi, grædd sár foldarinnar og
aukna menningu í lundum nýrra
skóga verði veruleiki. Nú eru
horfur á, að svo verði á skemmri
tíma en nokkurn mun hafa órað
fyrir. En til þess að því tak-
marki verði náð, þurfa íslend-
ingar að snúa bökum saman x
baráttunni fyrir skógræktinni
og sýna þann stórhug, er hæfir
þessu merkilega máli.
—Alþbl., 24. apríl
75 ára í dag
Það var bjart yfir vorinu og
sumrinu 1907. Ungur sænskur
lögfræðingur af ágætu bergi
brotinn var þá farinn að rita um
fullveldi íslands. Jafnvel hinn
mikli og ágæti íslandsvinur,
Konrad Maurer, með hina miklu
frelsisunnandi þýzku þjóð að
baki sér, hafði aldrei tekið sér
þetta orð í munn. Nú heyrðist
þetta orð í fyrsta sinn af vörum
útlendings og það í hárbeittri
og svo rökfastri og í alla staði
vísindalegri rökræðu, að hver
sem vildi sjá og heyra sannleik-
ann, hlaut að sannfærast.
Þetta kom illa við kaun
margra Dana, er gert höfðu sér
það að keppikefli, að falsa sögu
og réttarsögu íslands og hafa
lagarétt íslands að engu, svo
sem var t. d. um Knud Berlin og
marga hans nóta í ábyrgðar-
miklum stöðum.
En hér á landi var það andi
Ragnars Lundborgs, er sveif ýfir
vötnunum. Við sem lifðum
þessa straumhvarfatíma munum
aldrei gleyma því, hve þá var
bjart yfir og sól og vor fram-
undan. Við gleymum aldrei blá-
hvíta fánaum og fánasöng Einars
Benediktssonar, Aftureldingu
Guðmundar Hannessonar, Ing-
ólfi og baráttu Benedikts Sveins-
sonar, Bjarna frá Vogi, Þing-
vallafundinum, konungsræðunni
á Kolviðarhóli og því hvernig
nafn Ragnars Lundborgs var
beint og óbeint tengt við þessa
ljúfu vorboða og hversu heitt og
hjartanlega vér rendum þá huga
vorum til hins snjalla og ótta-
lausa íslandsvinar í Svíþjóð.
Og aldrei verður það ofmetið,
hvað vér eigum Ragnari Lund-
borg og baráttu hans fyrir frelsi,
heiðri og rétti lands vors að
þakka. Og því lengra sem líður,
því meira mun starf hans og
barátta fyrir þjóð vora verða
elskað og virt.
En Ragnar Lundborg lét sér
ekki nægja að rita um fullveldis-
réttindi íslands í blöð og tíma-
rit á Norðurlöndum. Hann
kvaddi sér brátt hljóðs um þetta
áhugamál sitt á vettvangi stór-
þjóðanna, og hver bókin og hver
ritgerðin rak aðra, einnig þar.
Árið 1908 kom út í Berlín eftir
hann „íslands staatsrechtliche
Stellung.“ Kom rit þetta óvin-
um íslands í opna skjöldu í
„millilandanefndinni“ sælu í
Kaupmannahöi*i það ár, því
henni var þar útbýtt meðal allra
nefndarmanna. Var þetta mál-
Kommúnistar þreytast aldrei
á að lýsa dýrðinni í löndunum
austan járntjaldsins. Þar er vel-
megun fólksins tryggð, og þar
ríkir hið eina og sanna frelsi.
Samt bregður svo undarlega við,
að úr sæluríki kommúnismans
liggur sífelldur flóttamanna-
straumur vestur fyrir járntjald.
Fólkið tollir ekki í paradís
kommúnismans, þeir, sem þaðan
komast, segja skilið við dýrðina
strax og tækifæri býðst. Það
sýnir betur en nokkuð annað,
hversu fráleitur lofsöngurinn
um hið kommúnistiska sælu-
ríki er.
Þetta fyrirbæri skýra komm-
únistar jafnan með því, að flótta-
mennirnir, sem brjótast gegnum
járntjaldið og hætta lífi sínu á
þeim flótta, séu fyrirlitlegar
auðvaldsbullur. — Sú skýring
hrekkur þó sannarlega skammt,
því að óvéfengjanlegar upplýs-
ingar herma, að flóttafólk þetta
sé af öllum stéttum. En komm-
únistar verða auðvitað að hafa
einhverja skýringu á takteinum,
því að ekki dettur þeim í hug
að segja þann sannleika, að
dýrðarríki kommúnismans sé
ekki til, heldur mannlegur kvala
staður, þar sem lífskjörin eru
lakari en nokkurs staðar á Vest-
urlöndum, frjáls hugsun reyrð í
fjötra og frelsi einstaklinganna
jafnt sem heildarinnar óþekkt.
stað vorum ekki lítill styrkur,
því það fylgdi með, að á grund-
velli þessa rits Ragnars hefði Fr.
v. Liszt prófessor í þjóðrétti í
Berlín látið í ljós viðurkenning
sína á því að ísland væri senn
fullvalda og aðeins í persónu-
sambandi við Danmörku. Setti
v. Liszt þetta 1 15. útg. af hinni
víðlesnu kennslubók sinni í
þjóðrétti, er kennd var við há-
skóla víðsvegar út um heim og
m. a. var aðalkennslubók í því
fagi við Hafnarháskóla. Og eftir
að Fleischmann umsamdi og jók
þessa kennslubók í þjóðrétti
1925, stóð þar enn óbreytt:
„Island steht in Personalunion
mit Danmark”. Og er Sambands-
laganefndin kom saman í Reykja
vík 1918, var enn útbýtt meðal
nefndarmanna nýútkominni bók
eftir dr. Lundborg. „Zwei um-
strittene Staatenbildungen“
(Berlín 1918), þar sem sannað var
lagalegt fullveldi íslands.
Dr. Ragnar Lundborg er með-
limur í fjölda vísindafélaga út
um lönd og ágætavel virtur
meðal þjóðréttarfræðinga út
um allan heim. Bækur hans
stórar og smáar, og ritgerðir í
tímaritum og blöðum á ýmsum
tungum út um helztu menning-
arlönd, svo og á Norðurlöndum,
eru óteljandi, en aðeins ein bóka
hans, „Þjóðréttarstaða íslands",
hefir verið þýdd á íslenzku, og
gaf Þjóðræknisfélag íslendinga
í Vesturheimi hana út. Dr.
Lundborg hefir ritað um marg-
vísleg efni, en aðalefnið 1 rit-
gerðum hans eru fullveldisrétt-
indi og heiður og gagn íslands.
Er þessi ágæti drengskaparmað-
ur og íslandsvinur búinn að
vinna þjóð vorri þvílíkt gagn
með þessu óeigingjarna starfi
sínu, að vart mun slíks dæmi í
allri sögu Islands um nokkurn
útlendan mann. Og ekki gerir
dr. Lundborg þetta endasleppt,
því þegar Grænlandsmálið kom
á dagskrá, varð hann fyrstur
manna til að taka afstöðu til
þess með þjóð vorri. Niðurstaða
sú, sem hann hefir komizt að í
því máli er sú, að það sé óum-
deilanlegt, að Grænland hafi
verið nýlenda Islands í fornold
og að ísland haldi enn yfirráða-
rétti sínum yfir Grænlandi ó-
skertum, og því beri íslenzkum
stjórnarvöldum að forðast sér-
hvað það, er túlka mætti sem
viðurkenning á yfirráðarétti
Danmerkur yfir Grænlandi.
Jón Dúason
—VISIR, 29. apríl
Nú fyrir nokkrum dögum
bárust þær fréttir austan úr
Kóreu, að af 170.000 stríðsföng-
um úr hópi Kínverja og Norður-
Kóreumanna neiti 100.000 að
hverfa heim aftur, þó að sam-
komulag náist um fyrirhuguð
fangaskipti þar eystra. Þetta er
einsdæmi í veraldarsögunni.
Stríðsfangar eiga sér undantekn-
ingarlítið þá ósk að mega hverfa
heim aftur og mega taka upp
þráðinn þar, sem frá var horfið.
En meðal hinna kommúnistísku
stríðsfanga í Kóreu ríkir annað
sjónarmið. Af hverjum 17 þeirra
neita 10 að hverfa aftur heim í
átthagana, þó að þeir eigi þess
kost; þeir vilja ekki ganga aftur
inn til fagnaðar kommúnismans!
Það fer ekki hjá því, að margir
leggi þá spurningu fyrir sig,
hvað valdi þessari afstöðu stríðs-
fanganna frá Kína og Norður-
Kóreu. I því sambandi kemur
helzt tvennt til greina: Stríðs-
fangarnir kunna að óttast við-
tökurnar, þegar heim kemur, og
þeir hafa átt þess kost að bera
saman ástandið utan og innan
járntjaldsins.
Kommúinstar beita jafnan
þeim áróðri, að ástandið á Vest-
urlöndum sé hið hryllilegasta
öngþvþiti, og auk þess hafa þeir
lagt mikla áherzlu á að lýsa
grimmd og villimennsku Sam-
einuðu þjóðanna í Kóreustyrj-
öldinni. Hermennirnir frá Kína
og Norður Kóreu hafa haft þenn-
an áróður í veganesti, þegar þeir
lögðu upp í styrjöldina. En
stríðsfangarnir úr hópi þeirra
hafa að sjálfsögðu sannfærzt
um, að þessi áróður er ekkert
annað en blekking og lygi. Þeir
hafa ekki sætt grimmd og villi-
mennsku, eins og þeir áttu von
á, heldur aðbúð hins siðaða
heims. Þeir geta gert saman-
burð, sem ekki er á valdi ann-
arra af þegnum ríkjanna innan
járntjaldsins. Hann hefir opnað
augu þeirra með þeim afleiðing-
um, að 10 af hverjum 17 neita
að hverfa heim. Þeir vita hverju
þeir sleppa og hvað þeir hreppa.
Þessi afstaða stríðsfanganna í
Kóreu varpar nýju ljósi á það
fyrirbæri, að sífelldur flótta-
mannastraumur liggur frá austri
til vesturs. Hún sýnir, hvað er
að gerast í löndunum austan
járntjaldsins, og hvert það sælu-
ríki er, sem útsendarar Rússa á
Vesturlöndum eru að lofsyngja
og fegra. I þessu sambandi eru
öll orð áþörf. Verkin tala og
vitna gegn áróðri kommúnista.
Og hvað skyldi líka valda því,
að kommúnistar hafa sett járn-
tjaldið milli austurs og vesturs,
annað en það, að þeir óttast sam-
anburðinn, sem leitt hefir til
þess, að stríðsfangarnir í Kóreu
neita að hverfa heim? Ef komm-
únisminn hefði upp á dýrð og
sælu að bjóða, þá myndu for-
sprakkar hans auðvitað leggja
áherzlu á, að þjóðir Vesturlanda
ættu þess auðveldan kost að
heimsækja Rússland og leppríki
þess, og að Rússar og þegnar
hinna landanna austan járn-
tjaldsins flykktust til Vestur-
landa, svo að þeir sæju muninn.
En munurinn er kommúnisman-
um í óhag, og þess vegna var
löndum hans lokað með járn-
tjaldinu.
—Alþbl., 27. apríl
COPENHAGEN
Bezta munntóbak
heimsíns
Business College Education
In these modern times Business College
Education is not only desirable but almost
imperative.
The demand for Business College Educa-
tion in industry and commerce is steadily
increasing from year to year.
Commence Your Business TraimngImmediatelyi
For Scholarships Consult
THE COLUMBIA PRESS LIMITED
PHONE 21 804 695 SARGENT AV *. WlNNIPEG
—TÍMINN
„Fagur er dalur og fyllist skógi . . ."
Ragnar Lundborg