Lögberg - 24.07.1952, Qupperneq 3
LÖGBERG. FIMTUDAGINN, 24. JÚLÍ, 1952
3
Fréttir fré ríkisútvarpi íslands
13. júlí 1952
Business and Professional Cards
Forsætisráðuneytið hefir á-
kveðið að hinn nýkjörni forseti
íslands, Ásgeir Ásgeirsson, taki
við embætti hinn 1. næsta mán-
aðar, og eiga kærur vegna for-
setakjörsins að hafa borizt hæzta
rétti fyrir klukkan 17 á föstu-
daginn kemur.
☆
Vöruskiptajöfnuðurinn varð
óhagstæður um 66,3 milljónir
króna í mánuðinum sem leið.
Fyrra helming þessa árs hefir
þá vöruskiptajöfnuðurinn orðið
óhagstæður um 217,6 milljónir
króna, — á sama tíma í fyrra
var vöruskiptajöfnuðurinn ó-
hagstæður um 141 og xk milljón.
☆
Ákveðið hefir verið að halda
næsta utanríkisráðherrafund
Norðurlanda hér í Reykjavík, og
mun hann standa dagana 3.—4.
september n.k.
☆
Valdir hafa verið 10 íslenzkir
frjálsíþróttamenn til þátttöku í
Olympíuleikjunum í Helsing-
fors, er hefjast á laugardaginn
kemur. íþróttamennirnir eru
þessir: Örn Clausen, er Jceppir í
tugþraut, Ásmundur Bjarnason,
er keppir í 100 og 200 metra
hlaupum, Hörður Haraldsson
keppir í sömu greinum, Pétur
Fr. Sigurðsson keppir í 100
metra hlaupi, Ingi Þorsteinsson
keppir í 110 og 400 metra grinda-
hlaupi, Guðmundur Lárusson í
400 og 800 metra hlaupi, Kristján
Jóhannsson í 5 og 10 kílómetra
hlaupi, Torfi Bryngeirsson kepp-
ir í Stangarstökki, og Þorsteinn
Löve og Friðrik Guðmundsson í
kringlukasti, og Friðrik einnig
í kúluvarpi. Spretthlaupararnir
og Torfi munu keppa í 4x100
metra boðhlaupi. Fararstjóri
Olympíufaranna verður Jens
Guðbjörnsson.
☆
Fundi miðstjórnar Alþjóða-
sambands samvinnumanna lauk
í Reykjavík á mánudaginn var.
Á fundi þessum var ekki rætt
um nein stórmál, en aðallega
fjallað um ýmsar ákvarðanir, er
teknar voru á þingi Alþjóða-
sambandsins í Kaupmannahöfn
í fyrra. Ákveðið var í höfuð-
dráttum efni ávarps þess, eða
yfirlýsingar, sem birt verður á
hátíðisdegi samvinnumanna í
september í haust. Þar verður
ítrekuð stefna Alþjóðasam-
bandsins í friðarmálum. Hinir
erlendu samvinnufulltrúar sátu
boð ríkisstjórnarinnar, og ferð-
uðust einnig nokkuð um landið,
t. d. að Gullfossi og Geysi og til
Akureyrar.
☆
Móti norrænu kirkjutónlistar-
mannanna lauk í Reykjavík á
fimmtudaginn. Haldnir voru
fimm kirkjutónleikar í Dóm-
kirkjunni í tilefni af mótinu. —
Mótinu lauk með kveðjuorðum
herra Sigurgeirs Sigurðssonar
biskups.
☆
íslenzku togararnir eru enn
flestir hverjir á Grænlandsmið-
um, og fiska vel, enda þótt afli
virðist hafa tregðast nokkuð frá
því sem var í vor. Nokkrir togar-
ar eru þó heima við á ísfisk-
veiðum, og nokkrir á síldveið-
um. — Flest síldveiðiskipin
munu nú komin á mið nyrðra.
Veiði hefir verið mjög treg, en
nokkur skip þó fengis smávegis
afla. Síðustu dagana hefir verið
stormur á síldarmiðunum og
ekki veiðiveður.
☆
Veður var breytilegt í vikunni
er leið. Á sunnudag s.l. var suð-
vestanátt og skúrir um vestur-
hluta landsins, en lægði svo á
mánudaginn og rigndi þá sunn-
anlands. Síðan gerði hæga aust-
anátt og var bjart veður víðast
hvar um landið allt fram á
fimmtudag, en þá snerist í
rakta norðanátt með rigningu
og snjókomu í fjöllum um norð-
urhluta landsins, og kólnaði þá
verulega. Norðanáttin hefir
haldist síðan um allt land, þótt
heldur hafi lygnt.
☆
Landsmóti ungmennafélag-
anna að Eiðum lauk á mánu-
dagskvöldið var, en það hófst
með hátíðasamkomu á sunnu-
daginn. Þrettán héraðssambönd
tóku þátt í íþróttakeppni ung-
mennafélaganna. Sunnlending-
ar urðu hlutskarpastir, hlutu 84
stig, Austfirðingar 46, Suður-
Þingeyingar 31 stig, Kjalnesing-
ar 23, Borgfirðingar 12, Eyfirð-
ingar 8, Reykvíkingar 8, Suður-
nesjamenn 7 og Snæfellingar 7.
Keppt var einnig í starfsíþrótt-
um. Halldór Pálsson úr Eyjafirði
vann í starfshlaupi og Stefán
Kristjánsson, Suður-Þingeyjar-
sýslu í dráttarvélarakstri.
☆
Kvenskátafélag Reykjavíkur
átti þrjátíu ára starfsafmæli í
vikunni, og er það elzta kven-
skátafélag landsins. Efndu kven-
skátar til landsmóts í því tilefni
í nágrenni úlfljótsvatns, en
sumarstarf kvenskátaskólans þar
á 10 ára afmæli í sumar.
☆
Lúðrasveit Reykjavíkur hélt
upp á 30 ára afmæli sitt á mánu-
daginn var í félagsheimili sínu,
Hljómskálanum við Tjörnina.
Stóð þar veizla með miklum
fagnaði þar til dagur rann.
☆
Á þriðjudaginn voru fjögur ár
liðin frá því Flugfélag Islands
fékk millilandaflugvélina Gull-
faxa hingað til lands, og hefir
flugvélin síðan flutt átján þús-
und farþega.
☆
Almennar Tryggingar h.f. í
Reykjavík hafi stofnað líftrygg-
ingadeild. Tryggingarfélag þetta
hefir nú starfað í níu ár, og vax-
ið mjög fiskur um hrygg. Heild-
arupphæð iðgjalda í öllum deild-
um er nú 11,3 milljónir króna.
☆
Fjórir íslenzkir fulltrúar sátu
35. þing Alþjóðasamvinnumála-
stofnunarinnar, sem haldið var
í Genf í s.l. mánuði.
☆
Væntanlegir eru hingað til
lands um miðjan mánuðinn 10
danskir kennarar í boði Sam-
bands íslenzkra barnakennara
og Landssambands Framhalds-
skólakennara. í fyrra fóru jafn-
margir íslenzkir kennarar til
Danmerkur og dvöldust þar í
boði danskra kennarasambanda.
☆
Áttunda þing Sambands ís-
lenzkra berklasjúklinga var sett
að Kristneshæli í fyrradag. Að-
almál þingsins er bygging vinnu
húsnæðis að Reykjalundi, en
þær framkvæmdir eru nú hafn-
ar. — Meðal gesta á þinginu eru
átta menn úr stjórn Landssam-
bands berklasjúklinga á Norður-
löndum, tveir frá hverju landi,
en þeir eru hingað komnir til
að sitja fjórða fund stjórnar
landssambandanna, sem haldinn
verður að Reykjalundi 16. og 17.
þessa mánaðar. Fulltrúar S.I.B.S.
í stjórninni eru þeir Árni Ein-
arsson og Þórður Benediktsson.
☆
Aðalfundur Skógræktarfélags
íslands var haldinn í hátíðasal
Menntaskólans á Akureyri 5. og
6. þessa mánaðar og sátu hann
49 fulltrúar frá 18 héraðsskóg-
ræktarfélögum. Hákon Bjarna-
son skógræktarstjóri og fram-
kvæmdastjóri Skógræktarfélags-
ins flutti skýrslu um starf-
semi þess á árinu. Gat hann
þess m. a. að hann og formaður
félagsins, Valtýr Stefánsson,
hefðu farið þess á leit við ríkis-
stjórnina, að fjárhagsgrundvöll-
ur skógræktarstarfseminnar í
landinu yrði tryggður með því
móti að láta tilgreindan hluta
af aðflutningsgjöldum á viði og
viðarafurðum renna til skóg-
ræktar. Skuldlaus eign Skóg-
ræktarfélags íslands var 240
þúsund krónur um síðustu ára-
mót, og niðurstöðutölur á efna-
hagsreikningi Landgræðsiusjóðs
um 610 þúsund krónur við árs-
lok 1951. Flest héraðsskógrækt-
arfélögin stórjuku félagatölu
sína á árinu, og juku starfsemi
sína að mun, — mest þó Skóg-
ræktarfélag Árnesinga, en fé-
lagatala þess fimmfaldaðist, og
félagsmenn þess gróðursettu 70
þúsund plöntur. — Valtýr Ste-
fánsson var endurkjörinn for-
maður Skógræktarfélags ís-
lands.
☆
Framkvæmdastjórn samvinnu
tryggingasambandsins hélt fund
í Reykjavík dagana 3. og 4.
þessa mánaðar, en fund þennan
sátu fulltrúar frá Bretlandi, Sví-
þjóð, Finnlandi, Belgíu og ísrael.
☆
Það slys* varð á þriðjudaginn
að tveggja ára drengur, Ingvar
Gestsson, druknaði í Svarfaðar-
dalsá.
☆
Búnaðarsamband Vestfjarða
hélt aðalfund sinn nú í fyrstu
viku mánaðarins, og sátu hann
16 fulltrúar auk sambandsstjórn-
arinnar. Niðurstöðutölur fjár-
hagsáætlunar sambandsins eru
50.800 krónur. Fundurinn var
haldinn að Bjarkarlundi í Reyk-
hólasveit, og þágu fundarmenn
veizlur þeirra Reykhólahrepps-
og Geiradalsmanna.
☆
Leikári Þjóðleikhússins lauk í
gær með tuttugustu sýningunni
á Leðurblökunni. Leiksýningar
á árinu voru 212, sýnd voru 14
leikrit, ein óperetta og ein ópera.
Leikhúsgestir voru 102 þúsund
og guldu röskar þrjár milljónir
króna í aðgangseyri. Aðsókn að
leikhúsinu var dræm fram að
áramótum en fór sívaxandi, og
undanfarna tvo mánuði var upp-
selt á nær því hverja sýningu.
Gullnahliðið var sýnt oftast
allra leikritanna, eða 28 sinnum
og sóttu það flestir, eða 15.507
leikhúsgestir. Á leikárinu bauð
Þjóðleikhúsið fyrsta leikflokkn-
um frá útlöndum til gestaleiks:
leikflokk frá Konunglega leik-
húsinu í Kaupmannahöfn, er
sýndi hér Holbergsleikritið Dei
Lykkelige Skipbrud. Þá lék
norska leikkonan Tore Segelcke
sem gestur hjá Þjóðleikhúsinu í
Brúðuheimilinu eftir Ibsen. —
Tvö hundruð og sjötíu manns
störfuðu hjá Þjóðleikhúsinu að
meiru eða minna leyti, — fimm-
tán leikarar voru fastráðnir og
30 leikarar ráðnir til ákveðins
tíma. — Meðal leikrita, sem á-
kveðið er að sýna á næsta leik-
ári eru: írska leikritið Juno og
Páfuglinn, hollenzka leikritið
Rekkjan. franska leikritið Topaz
og Skuggasveinn. Þá er ákveðið
að taka upp aftur sýningar á
Leðurblökunni og Tyrkjaguddu.
☆
I fréttaskeyti frá Hornafirði í
gær segir að sláttur sé nú að
hefjast þar í Austur-Skaftafells-
sýslu, en grasspretta léleg, enda
sífelldir þurkar. Atvinnuleysi er
nú í Höfn í Hornafirði, og fjár-
skortur til framkvæmda þannig
að verkamenn, er vinna að vatns-
leiðslu og sundlaugargerð fá
ekki greidd neinu vinnulaun. Þá
segir og í fréttaskeyti þessu að
Skaptfellingum þyki lítið til
samgöngubóta koma, — þeir
hafi ekki fengið bögglapóst síð-
an 20. júní, engm blöð, og ekki
skipsferð með póst né vörur frá
Reykjavík síðan 6. júní.
☆
Glímufélagið Á R M A N N í
Reykjavík hefir ákveðið að verða
við tilmælum Finna og senda
flokk glímumanna til sýningar-
glímu í Helsingfors á meðan
Olympíuleikarnir standa yfir. —
I flokknum verða 11 kunnir
glímumenn, þeirra á meðal þeir
Guðmundur Ágústsson og Rúnar
Guðmundsson. Fararstjóri þeirra
verður Þorgils Guðmundsson
íþróttakennari.
By
Dr. F. J. Greaney,
Director,
Line Elevators Farm Service,
Winnipeg, Manitoba
AGRICULTURAL FAIRS
The frequent remark of farm-
ers, “I saw it at the Fair,” prob-
ably tells best how important
agricultural fairs are in creat-
ing interest in new solutions to
major farm, home, and com-
munity problems. In spite of the
many changes in, rural living in
Western Canada that have been
brought about in recent years
by the mechanization of agri-
culture, the trend toward larger
farm units, and the mobility of
farm people the country fair is
still an important force in help-
ing to unify our rural communi-
ties.
A Vilal Activity. The country
fair performs functions which
no other activity is able to do.
It affords farmers an easy and
plesant opportunity to meet
their neighbours and local
leaders. It gives the farmer and
his family an opportunity to
display their most highly im-
proved crops, livestock and
househould arts. This bringing
together of the best farm pro-
ducts of the community not
only stimulates a healthy local
competitive spirit, but develops
the interest of those who see
them. In plain words, country
fairs stimulates pride in good
farming and homemaking, and
a desire for community advance-
ment.
Educational Exhibils. No fair
is complete witout well-planned
and attractive educational exhi-
bits—displays which give farm-
ers the latest agricultural in-
formation resulting from re-
search and demonstration. This
is the purpose for which the
exhibits of the Line Elevators
Farm Service are prepared and
displayed. Their main aim is to
help solve major farm and rural
life problems. This summer our
“Agricultural Show on Wheels”
will visit many fairs in Mani-
toba and eastern Saskatchewan.
A special invitation is exstended
to farmers and grain buyers to
visit our exhibit this summer.
And remember too, your Agri-
cultural Society needs and de-
sérves your interest and sup-
port. Let’s keep our Agricultural
Fairs going! Be sure and
“take-in” your own local Fair
this year.
Dr. P. H. T. Thorlakson
WINNIPEG C'IJNIC
St. Mary s and Vaughan. Wlnnlpcg
PHONE 926 441
J, J. SWANSON & CO.
LIMITED
308 AVENUE BLDG. WINNIPEG
FcLSteigrnasalar. Leigja hús". Ut..
vega peningalán og eldsábyrgn,
bifreiðaábyrgð o. s. frv.
Phone 927 538
SARGENT TAXI
PHONE 204 845
PHONE 722 401
FOR QUICK. RELIABLE
SERVICE
DR. E. JOHNSON
304 EVELINE STREET
Selkirk, Man.
Office Hours 2.30 - 6 p.m.
Phone* Office 26 — Res. 230
Andrews, Andrews,
Thorvaldson and
Eggertson
Lögfrœöingar
209 BANK OF NOVA SCOTIA BG
Portage og Garry St.
Phone 928 291
CANADiAN FISH
PRODUCERS, LTD.
J. H. PAOE, Managing Director
Wholeaale Distributors of Fresh and
Frozen Fish.
311 CHAMBERS STREET
Office Ph. 26 328 Res. Ph. 73 917
Offlce Phone Res. Phone
924 762 728 115
Dr. L. A. Sigurdson
528 MEDICAL ARTS BLDG.
Offlce Hours: 4 p.m. - 6 p.m.
and by appointment.
A. S. BARDAL LTD.
FUNERAL HOME
843 Sherbrook Street
Selur likkistur og annast um út-
farir. Allur útbúnaður sá bezti.
Stofnað 1894 Stmi 27 324
Phone 23 996 700 Notre Dame Ave.
Opposlte Matemlty PavilUon,
General Hospital.
Nell’s Flower Shop
Weddlng Bouquets, Cut Flowers,
Funeral Deslgns, Corsages,
Beddlng Plants
Nell Johnson Res. Phone 27 482
Offlce 933 587 Res. 444 389
THORARINSON &
APPLEBY
BARRISTERS and SOLICITORS
4th Floor — Crown Trust Bldg.
364 Maln Street
WINNIPEG CANADA
SELKIRK METAL PR0DUCTS
Reykháfar, öruggasta eldsvörn,
og ávalt hrelnir. Hitaeiningar-
rör, ný uppfyndlng. Sparar eldi-
við, heldur hita frá að rjúka út
með reyknum.—Skrifið, stmið til
KELLY SVEINSSON
625 Wall Street Wlnnipeg
Just North of Portage Ave.
Símar: 33 744 — 34 431
J. WILFRID SWANSON 8c CO.
Insurance in all its branches.
Real Estate • Mortgages • Rentals
210 POWER BUILDING
Telephone 937 181 Res. 403 480
LET US SERVE YOU
Creators of
Distinctive Pringting
Columbia Press Ltd.
695 Sargent Ave., Winnipeg
Phone 21804
S. O. BJERRING
Canadian Stamp Co.
RUBBER & METAL STAMPS
NOTARY & CORPORATE SEALS
CELLULOID BUTTONS
324 Smilh Si. Winnipeg
PHONE 924 624
Phone 21 101 ESTIMA TES
J. M. INGIMUNDSON
Asphalt Roofs and Insnlated
Sidlng — Repalrs
Country Orders Attendeð To
632 Slmcoe St. Winnlpeg, Man.
GIMLI FUNERAL HOME
51 First Avenue
Ný ú.Mararstofa með þeim full-
komnasta útbúnaði, sem völ er
á, annast vi.ðulega um útfarlr,
selur likkistur, minnisvarða og
legsteina.
Alan Couch, Funeral Direcior
Phone—Business 32
Residence 59
DR. A. V. JOHNSON
Dentist
506 SOMERSET BUILDING
Telephone 97 932
Home Telephonpe 202 398
DR. ROBERT BLACK
Sérfrceðingur i augna, eyma, nef
og hálssjúkdömum.
401 MEDICAL ARTS BLDG.
Graham and Kennedy St.
Skrlfstofusími 923 815
Heimasími 403 794
Comfortex
the new sensation for the
modem girl and woman.
Call Liily Maithews, 310
Power Bldg., Ph. 927 880
or evenings, 38 711.
GUNDRY PYMORE
Limited
British Quality Fish Nettino
58 VICTORIA ST. WINNIPEG
Phone 928 211
Manager T. R. THORVALDSON
Your patronage wUi be appredated
Minnist
BETEL
í erfðaskrám yðar.
PHONE 927 025
H. J. H. Palmason, C.A.
H. I. PALMASON * CO.
Chartered Acconntanta
505 Confederatlon Llfe Bldg.
WINNIPEG MANTTOBA
PARKER, PARKER &
KRISTJANSSON
Barrisiers - Solicilor*
Ben C.Parker, K.C.
B. Stuart Parker. A. F. Kriatjansson
506 Canadlan Bank of Comawrtc
Chamber.
Winnlpeg, Man. Phoae 6S3M1
G. F. Jonasson, Pres. & Man. Dir.
Keystone Fisheries
Limited
Wholesale Distributors of
FRESH AND FROZEN FISH
404 SCOTT BLK, Sími 925 227
Bullmore Funeral Home
Dauphln, Manitoba
Eigandi ARNI EGGERTSON, Jr.
Kaupið Lögberg
KAUPENDUR LÖGBERGS
Á ÍSLANDI
Gerið svo vel að senda mér sem fyrst greiðslu fyrir
yfirstandandi árgang Lögbergs, kr. 75.00. Dragið
ekki að greiða andvirðið. Það léttir innheimtuna.
Æskilegt að gjaldið sé sent í póstávísun. Þeir sem
eiga ógreidda eldri árganga, eru vinsamlega beðnir
að snúa sér til min.
BJÖRN GUÐMU N DSSON
FREYJUGATA 34 . REYKJAVtK