Lögberg - 24.07.1952, Side 8

Lögberg - 24.07.1952, Side 8
8 LOGBERG, FIMTUDAGINN, 24. JÚLÍ, 1952 Úr borg og bygð COOK BOOK Matreiðslubók, sem Dorcasfé- lag Fyrsta lúterska safnaðar lét undirbúa og gaf út; þegar þess er gætt, hve bókin er frábærlega vönduð að efni og ytri frágangi, er það undrunarefni hve ódýr hún er; kostar aðeins $1.50 að viðbættu 15 centa burðargjaldi. Pantanir, ásamt andvirði, sendist: Mrs. R. G. Pollock, 708 Banning St. Winnipeg. Sími 36 603 Miss Ruth BárdaL 5 — 54 Donald St. Winnipeg, Sírni 929 037 ☆ Dánarfregn — Mr. Alexander Johnson lézt að heimili sínu, 924 Selkirk Avenue, Winnipeg, á laugar- daginn 19. júlí eftir langa van- heilsu. Hann var 65 ára að aldri, fæddur í Winnipeg 19. júní 1887, yngstur af 15 börnum þeirra Jóns Jónssonar frá Hjarðarfelli í Snæfellsnessýslu og konu hans Vilborgar Guðmundsdóttur, er fluttust til Winnipeg 1883. Hinn látni var starfsmaður hjá Canada Loan Board og var fyrr- um meðlimur Winnipeg Grain Exchange. — Hann tilheyrði Acadia lodge, A.F. og A.M. Mr. Johnson var glæsimenni eins og hann átti kyn til; hann var söngvinn vel, og skemti tíð- um á samkomum Vestur-íslend- inga með sinni djúpu og karl- mannlegu rödd; hann var manna vinfastastur og ástríkur eigin- maður og faðir. Auk ekkju sinnar, Louise, læt- ur hann eftir sig tvo sonu, Alexander og Trevor, og fjögur barnabörn; ennfremur eina syst- ir, Kristínu — Mrs. J. J. Swan- son, sem er nú ein á lífi af Hjarðarfellssystkinunum. Útförin fór fram á miðviku- daginn, 23. júlí, kl. 2 frá Fyrstu lútersku kirkju. Séra Valdimar J. Eylands jarðsöng. ☆ Gefin voru saman í hjónaband þann 19. júlí í Sunrise Lutheran Camp, Húsavík, Man., þaú Harold Niels Johnson, Árborg, Man., og Guðrún Anna Stefáns- son, Víðir, Man. Við giftinguna aðstoðuðu Miss Hilda Johnson, systir brúðgumans, og Einar Baldur Stefánsson, bróðir brúð- arinnar. Séra Sigurður ólafsson gifti. Ungu hjónin setjast að við Árborg, Man. Gefin voru saman í hjónaband í St. Michael Anglican kirkjunni í Vancouver, B.C., þann 26. júní þau Alexandra Helga Helgason, og Walter Hill Dunbrack. — Brúðurin er dóttir Mr. og Mrs. H. G. Helgason, Gimli, Mani- toba. Brúðguminn er sonur Mr. Charles Hill Dunbrack og lát- innar konu hans, í St. Johns, New Brunswick. Hjónavígsluna framkvæmdi Rev. S. E. Higgs. Ungu hjónin fóru í skemti- ferð suður í Bandaríki. Fram- tíðarheimili þeirra verður 1 Vancouver, B.C. ☆ Dánarfregn — Guðjón Björnsson, landnáms- maður í Árborg-byggðinni, lézt að heimili sínu á mánudaginn, 14. júlí; hann var 76 ára að aldri. Guðjón fluttist frá íslandi til Canada fyrir 42 árum og stund- aði síðan búskap í Árborgbyggð- inni þangað til 1950. Auk ekkju sinnar lætur hann eftir sig þrjá sonu, Tryggva, Inga og Egil, og fimm dætur, Mrs. M. Markús- son, Mrs. O. L. Freeman, Mrs. A. Gunnarsson, og Sesselju og Rannveigu; ennfremur tvo bræður, G. B. Björnsson og G. M. Björnsson; tvær systur, Mrs. S. M. Brandson og Mrs. C. Ein- arsson. Útförin fór fram á föstu- daginn, 18. júlí, frá kirkju Ár- dalssafnaðar. ☆ Síðastliðið laugardagskvöld lézt að heimili sínu hér í borg- inni Jóhannes Kristófer Péturs- son fyrrum bóndi að Wynyard, Sask., 77 ára að aldri, valin- kunnur sæmdarmaður, fróður um margt og síleitandi að æðri markmiðum; hann var fæddur á Geirastöðum í Austur-Skafta- fellssýslu, en fluttist ungur með móður sinni að Þverhamri í Breiðdal. Hann var kvæntur Þorbjörgu Hóseasdóttur ættaðri úr Breiðdal, mikilhæfri ágætis- konu, sem látin er fyrir nokkr- um árum. Börn þeirra eru Jörgen, búsettur í Winnipeg, Hóseas bóndi að Wynyard, Sask., Mrs. M. E. Peters, Boston Mass., Ragnar, búsettur í Connecticut- ríki, Björn til heimilis að Aut- post Island, North West Terri- tories, og Mrs. Stanley E. Smith, Boston, Mass. Jóhannes var sonur Péturs Jónssonar á Geirastöðum og konu hans Ragnheiðar. Útförin fór fram í dag frá kirkju Sambandsafnaðar. Séra Philip M. Pétursson jarðsöng. ☆ Hið nýja símanúmer hr. Guð- mundar Eyfjörð er 724 867. Special Train to Gimli 4. ágúsl Frá Winnipeg kl. 9 fyrir há- degi, kemur við í Selkirk kl. 9.30 D.S.T.; kemur til Gimli kl. 10,30. Að kvöldinu fer það frá Gimli Park kl. 12,45 á miðnætti, D.S.T. frá Gimli járnbrautarstöðinni kl. 12,55. ☆ Þær systur Mrs. H. G. Helga- son, Gimli, Manitoba, og Mrs. O. Thorsteinsson, Husawick, Mani- toba, lögðu af stað 13. júní í skemtiferð til skyldfólks síns í Saskatchewan, Alberta og Van- couver. T. H. H. ☆ Þann 27. þessa mánaðar efnir fólk af norrænum uppruna £ Seattle til stórhátíðar í Volunteer listigarðinum í tilefni af hundr- að ára afmæli borgarinnar. Borgarstjórinn hefir tilkynnt að sá dagur verði haldinn hátíð- legur og hvetur alla borgarbúa til að taka þátt í hátíðahöldun- um og votta þannig norrænum mönnum þakklæti fyrir þann mikla skerf, er þeir hafa lagt fram í þróun og framför borg- arinnar. Aðalliðum skemtiskrár- innar verður útvarpað til hinna fimm norrænu landa. 1 nefnd þeirri er sér um val söngvanna eru af hálfu íslendinga frú Jakobína Johnson og Tani Bjornson, er sá síðarnefndi söngstjóri íslenzka kórsins, sem þarna kemur fram. ☆ Mr. og Mrs. Helgi J. Helgason frá Darcy, Sask., voru stödd í borginni um síðustu helgi í heim sókn til systur Mr. Helgason, Mrs. George Jóhannesson, Alver- stone St. Voru þau á heimleið frá Ottawa, Ont., en þangað fóru þau til að vera viðstödd giftingu sonar síns, Bernard Helgason, sem þar er lyfjafræð- ingur. Með þeim á ferð var yngsti sonur þeirra, Brian, og dóttir þeirra Mr. og Mrs. Olson frá Podenish, Ont., ásamt ungri dóttur sinni. Héðan fóru þau til Glenboro til að heimsækja Dr. Robert Helgason og fleiri ættingja og vini. ☆ Um síðustu helgi komu hingað úr íslandsför þeir Elías Elíasson trésmíðameistari frá Vancouver, er dvalið hafði þrjá mánuði á ættjörðinni, og Páll Hallsson kaupmaður og Benedikt Ólafs- son málarameistari, er dvöldu um mánaðartíma á Islandi. Elías leit snöggvast inn á skrifstofu Lögbergs, og kvaðst hafa haft ógleymanlega ánægju af heim- sókninni; vafalaust hafa hinir ferðafélagarnir sömu sögu að segja. ☆ Hr. Grettir Eggertson rafur- magnsfræðingur, kom heim úr íslandsför síðastliðinn mánudag eftir nálega tveggja mánaða dvöl á íslandi; hann tók þátt í viðræðum við raforkumála- stjórn ríkisins varandi Sogs- og Laxárvirkjanirnar, er hann kvað miða vel áfram; jafnframt því sat hann Aðalfund Eimskipa- félags íslands fyrir hönd vestur- íslenzkra hluthafa. ☆ Nýlega lézt á Elliheimilinu Betel á Gimli Víglundur Vigfús- son frá Úthlíð í Biskupstungum, 88 ára að aldri, góður drengur og vinfastur. Hann var jarð- sunginn frá útfararstofu Bardals í Winnipeg. Séra Valdimar J. Eylands flutti hin hinztu kveðju- mál; þess má vænta, að þessa ágæta íslendings verði frekar minst við fyrstu hentugleika. ☆ í umsögn um íslendingadag- inn á Gimli þann 4. ágúst næst- komandi þar sem minst er skáld- konunnar, er gengur undir pennanafninu „Fríða Bjorns", er frá því sagt að hún sé dóttir Steinunnar Jónsdóttur Björn- son, én átti að vera Jónasdóttir; bræður frú Steinunnar heitinn- ar eru hinir kunnu fyrverandi lögregluþjónar Samúel og Jón Jónassynir (Samson). SAVE DOLLARS by BETTER THRESHING Some barley growers lose annually up to $400.00 per car- load by poor harvesting methods. Peeled and broken kemels are too often the cause of good malting barley being degraded to feed barley. The spread in price between No. 2 C.W. Six- row and No. 1 Feed may range from five cents to fifteen cents per bushel. This, in addition to the five cents per bushel premium makes a difference of from ten cents to twenty cents per bushel in price received by the grower. On a 2,000- bushel carload this may mean a loss of between $200.00 and $400.00. The cause of peeling and breaking kemels is improper adjustments on the combine. Another cause of loss is harvesting at improper stages of maturity and moisture content. Immature barley is useless for malting and may be degraded to feed. If it contains over 14.8% and up to 17% moisture it will be graded “tough”, over 17% “damp” with a spread in price of from four cents to ten cents per bushel. Improper swathing or if left too long in the swath will reduce the yield per acre and in addition cause a reduction in quality. The “triad” of barley harvesting is: 1. Harvest at the right stage of maturity and moisture content. 2. Lay down a good swath. 3. Make the proper adjustments on the combine. ATTEND THE FIELD DAY AND SEE HOW TO SAVE DOLLARS IN THRESHING This space contributed by THE DREWRYS LIMITED MD-317 ____________________________________________ Islenzk stúlka æskir eftir fæði og húsnæði hjá góðri fjölskyldu í vesturhverfi Winnipegborgar; stúlkan stundar skólakenslu, en þarf að hafa aðgang að píanói. Upplýsingar á skrifstofu Lög- bergs. ☆ Mrs. C. Toft frá Chicago hefir dvalið vestur við Calder, Sask., ásamt George syhi sínum í heim- sókn til Mr. og Mrs. Joe Einars- son. Mrs. Toft er dóttir Mr. og Mrs. Jónas Sveinsson í Chicago. Mrs. Toft er einnig vinmörg hér í borg og dvaldi hér í nokkra daga; þau mæðginin héldu heim- leiðis á mánudagsmorguninn var. ☆ Mr. og Mrs. Hermann Björns- son frá Chicago, eru stödd í borginni um þessar mundir í heimsókn til ættingja og vina; þau brugðu sér einnig vestur til Argyle þar, sem, þau eru vin- mörg. ☆ , Fyrir skömmu er komin hing- að til borgarinnar af íslandi Ragnhildur Jóhannsdóttir hjúkr- unarkona, sem nú starfar hér við skurðstofu Almenna sjúkra- hússins. Ragnhildur er fædd í borginni Calgary í Albertafylk- inu. Foreldrar hennar eru Jó- hann Loptson og Sigríður Þor- valdsdóttir, og með þeim flutt- ist hún á barnsaldri til íslands; hún naut hjúkrunarmentunar sinnar í Danmörku. ☆ Þann 21. þ. m. lézt að heimili sínu, 697 Rosedale Avenue hér í borginni, Magnús Gilbertsson 89 ára að aldri. Útförin fór fram í dag frá Bardals. Dr. Rúnólfur Marteinsson jarðsöng. ☆ íslenzka sendiráðið í Wash- ington hefir flutt skrifstofur sínar frá 909 16th Street, N. W. að 1906 — 23rd Street, N. W. Washington 8, D.C. Columbia 6653. ☆ Mr. G. J. Oleson frá Glenboro er staddur í borginni þessa dagana. Mr. og Mrs. Bergur Johnson frá Baldur, Man., komu til borg- arinnar í fyrri viku í heimsókn til sonar síns Kristins Johnson í St. Vital. Mr. Johnson brá sér norður til Gimli, en þau hjónin héldu heimleiðis síðastliðinn mánudag. ☆ Þeir bræður Guðmundur og Erlingur Guðmundssynir frá Mountain, N.D., og systir þeirra Mrs. John Snidal frá Crystal, N.D., voru stödd í borginni um mija fyrri viku. ☆ - GIFTING — Margaret Anne, elzta dóttir Mr. og Mrs. N. K. Stevens á Gimli, og John Gordon Grant frá Nova Scotia voru gefin sam- an í hjónaband í Sambands- kirkjunni á Gimli 12. júlí; séra Philip M. Pétursson gifti; svara- menn brúðhjónanna voru Mr. og Mrs. J. N. Stevens frá Winni- peg. Veizla var haldin að heim- ili foreldra brúðarinnar. Ungu hjónin fóru flugleiðis til Mon- treal; heimili þeirra verður í Brucefield, Ont. Brúðurin lauk prófi í Home Economics við Manitobaháskóla og í Dietetics við Vancouver Almenna sjúkrahúsið. Brúðgum- inn stundaði nám við Dalhousie háskólann. —Hvenær er hún dóttir yðar að hugsa um að gifta sig? — Hún-er alltaf að hugsa um það. Hún hugsar ekki um annað. ☆ Eiginkonan: — Þú ættir ekki að borða svona mikið, elskan mín. Læknirinn varaði þig við því. Eiginmaðurinn: — Svei því. Ekki dettur mér í hug að svelta mig í hel til þess að lengja líf mitt um nokkra daga! ☆ Hann: — Ég hef heyrt að þér séuð gift, má ég óska yður til hamingju? Hún: — Það er bara of seint, ég er búin að vera gift í hálfan mánuð. MESSUBOÐ Fyrsta Lúterska Kirkja Séra Valdimar J. Eylands Heimili 686 Banning Street. Sími 30 744. Sumarfrí stendur yfir. Guðsþjónustur hefjast 10. á- gúst n. k. ☆ Piney Lutheran Church Ensk messa, sunnudaginn 27. júlí, kl. 2 e. h. Rev. Eric H. Sigmar prédikar ☆ Silver Bay og Vogar Lulheran Parish Enskar messur: Sunnudaginn, 27. júlí, Silver Bay kl. 11 f. h. Vogar kl. 2 e. h. Rev. Walter Kein prédikar. Bezta munntóbak heimsins ÍSLENDINGADAGURINN í GIMLI PARK MÁNUDAGINN 4. ÁGÚST, 1952 FORSETI: Séra V. J. Eylands — FJALLKONA: Frú Friðbjörg Jóhanna Jónasson HIRÐMEYJAR: Miss Lilja María Eylands-Miss Jacqueline Neil Skemmliskrá hefst kL 2 e. h. Daylight Saving Time íþróttir byrja kl. 11 f. h. SKEMMTISKRÁ: 1. O Canada (Karlakórinn og allir syngja) 8. Minni íslands, ræða, Próf. Finnbogi 2. Ó, Guð vors lands (Karlakórinn og Guðmundsson allir syngja) g Minni íslands, kvæði, Dr. Richard 3. Forseti, séra V. J. Eylands, setur Beck hátíðina 4. Ávarp Fjallkonunnar, Frú Fríða Jónas- son. 10. Karlakórinn 11. Minni Canada, ræða, Mr. John Laxdal 5. Karlakórinn syngur undir stjórn A. A. Minni Canada, kvæði, Mrs. Kenneth Anderson McDonald 6. Ávarp gesta 13. Karlakorinn 7. Karlakórinn, Gunnar Erlendsson við hljóðfærið 14. God Save the Queen Skrúðganga að landnema minnisvarðanum, Fjallkonan leggur á hann blómsveig. — Community Singing kl. 7, undir stjórn Paul Bardal, M.L.A. Dans byrjar kl. 9 í Gimli Pavilion. Aðgangur í skemmtigarðinn 50 cent fyrir fullirðna, frítt fyrir börn ýnnan 12 ára. Aðgangur að dansinum 75 cent. Gjallarhorn góð. íslenzkar hljómplötur, nýjar, verða spilaðar að morgninum. Allur tími miðaður við Daylight Saving Time.

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.