Lögberg - 16.10.1952, Qupperneq 1
Phone 72-0471
BARNEY'S SERVICE STATION
NOTRE DAME and SHERBROOK
Gas - Oil - Grease
Tune-Ups
Accessories 24-Hour Service
Repairs
Phone 72-0471
BARNEY'S SERVICE STATION
NOTRE DAME and SHERBROOK
Gas - Oil • Grease
Tune-Ups
Accessories 24-Hour Service
Repairs
65. ÁRGANGUR
WINNIPEG, FIMTUDAGINN, 16. OKTÓBER, 1952
NÚMER 42
Tilkynrting um námskeið í
íslenzkum bókmenntum
Háskólinn hefir beðið blaðið fyrir eflirfarandi iilkynningu:
The Evening Institute of the University of Manitoba announces
a course of twelve lectures, “A Reading Course in Icelandic”, on
Tuesdays, commencing October 28th.
Professor Gudmundsson, the holder of the recently created
Chair of Icelandic, offers this winter the Evening Institute’s first
course in Icelandic.
It is a course that will provide a splendid opportunity for
those who know Icelandic and wish to become more familiar with
its literature through reading. It will be given mostly in Icelandic.
Selected chapters of Icelandic literature will be read, ex-
plained, and discussed and related to their social and cultural
environment.
Fees are $7.50 for the course. You may enrol in advance by
going personally to the Evening Institute Office (Room 203,
Phone 3-6626), or by mail, enclosing your cheque made payable
to the University of Manitoba. Classes are held in the Broadway
Buildings (Memorial Blvd. Entrance) at 8 p.m. For further details
telephone the Evening Institute Secretary, 3-6626.
Fréttir frá ríkisútvarpi íslands
Fréttabréf
Árborg, Man., 9. okt., 1952
Heiðraði ritsíjóri:
Tíðarfar hér hefir verið frem-
ur mislynt, sérstaklega haustið.
„Dagar vinda og storma,“ eins
og spámaðurinn Esikíel komst
að orði,“ sagði Grímur með-
hjálpari í sögunni „Maður og
kona.“ —
Nóttina milli 5. og 6. júlí síðast
liðinn gjörði óvanalega mikinn
storm, svo víða brotnuðu tré
niður, mátti heita stórlukka, að
ekki urðu stórslys eftir það
veður. — Kornuppskera hér er
fremur góð, margir komnir
langt með þveskjngu (Combines)
og sumir búnir, og aðrir eru
byrjaðir að plægja; en þá er
kemur til sölunnar á korninu,
fer að draga ský fyrir sól, því
ekki er nú tekið nema fáein
„bushel“ af hverri ekru, en
ómögulegt að segja nær það sem
eftir er verður selt. Það gengur
svona í henni veröld, að altaf er
eitthvað að. —
Haustfiskveiðarnar kváðu vera
fremur erfiðar sökum storma og
lítill fiskur eftir því sem frétzt
hefir, svo alt virðist á sömu bók-
ina lært þar sem annars staðar.
Töluvert hefir verið hér um
giftingar; hefir þeirra verið get-
ið í blöðunum. Sú síðasta var
hér í Árborg 27. september s.l.,
er Mr. Charles Buchanan og
Miss Kristjana Guðmundsson
voru gift, séra H. S. Sigmar frá
Gimli framkvæmdi hjónavígsl-
una. Maður að nafni Bill Boone
og Miss Beatrice Ólafsson voru
svaramenn brúðhjónanna. Eftir
giftinguna var setin fjölmenn
veizla í Framnes Hall. Miss
Ólöf Oddleifsson talaði fyrir
minni brúðarinnar, en fyrir
minni brúðgumans talaði séra
H. S. Sigmar. Þrjár frænkur
brúðarinnar sungu: Kristín,
Herdís og Birdine Johnson. Mr.
og Mrs. Fred ísfeld frá Langruth,/
Man., voru í samsætinu, kona
hans (Hólmfríður) er systir
brúðarinnar. Séra H. S. Sigmar
stjórnaði samsætinu. — Meðal
gesta frá Wínnipeg voru: Mrs.
Buchanan (móðir brúðgumans),
Mr. og Mrs. J. Gillies, Mr. og
- Mrs. Paul Clemens, Mrs. Stjana
Crow og dóttir hennar. — Mynd-
ir tók Perry Diamond, er vinnur
hjá Frederick Peery Photo-
graphers í Winnipeg.
Mr. Charles Buchanan vinnur
sem dyravörður hjá T. EATON
verzluninni í Winnipeg, en brúð-
urin er dóttir Guðmundar S.
Guðmundssonar og Sesselju T.
Ingjaldssonar, þau hjónin eru
bæði dáin fyrir nokkrum árum,
bjuggu að Framnes, Man. — 1
lok samsætisins þökkuðu brúð-
hjónin fyrir alla þá alúð, sem
þeim var sýnd, ásamt þeim
gjöfum, er þeim voru gefnar.
Veitingar gaf Mrs. S. B. Horn-
fjörð að Framnes, Man.
Tvö dánartilfelli hafa orðið
síðan ég skrifaði síðast: Miss
Björg Jakobsdóttir Björnsson
í Árborg, og Mrs. Elín Einarsson
frá Framnesi, ekkja Guðjóns
Einarssonar, sem lézt fyrir 6
árum. Þeirra verður væntanlega
nánar getið í blöðunum.
Mér þykja orðnar miklar
framfarir á íslandi, eftir því
sem „Tírninn" segir mér: Sykur-
mais ræktaður með góðum ár-
angri í Hveragerði, ennfremur
kaffiræktun. Þýzkur prófessor,
dr. H. Lamperts segir: „Á ís-
landi gætu risið upp baðlækn-
ingahæli, sem yrðu víðfræg." —
„Hafinn undirbúningur að smíði
stólskips á íslandi. — Hin fyrsta
Diesel-vél var smíðuð á íslandi
í sumar; smíði hennar hófst 15.
maí og var lokið 2. september.
Og í sambandi við Iðnsýning-
una, er opnuð var 10. septem-
ber segir að: „Þar blasi fagrir
framtíðarmöguleikar við ís-
lenzkri þjóð“. — Þetta ættu
sannarlega að vera gleðifréttir
öllum löndum hvar sem þeir
dvelja á jarðarhnettinum, og í
fyllsta máta aðdáunarvert. —
Siyrbjörn í Króki
Kjörinn forseti
Ársþing sameinuðu þjóðanna,
hið sjöunda í röð, kom saman í
New York á þriðjudaginn; til
forseta var kjörinn hinn mikil-
hæfi utanríkisráðherra Canada,
Lester B. Pearson. Búist er við
snörpum umræðum um Kóreu-
málin, Tunisíu og Morocco, og
vafalaust um fleiri ágreinings-
mál.
Hundrað og iíu manns lýna lífi,
en á þriðja hundrað sæia
margvíslegum og háska-
legum meiðslum
•
Á miðvikudaginn hinn 8. yfir-
standandi mánaðar kom fyrir á
Englandi eitt það ægilegasta
járnbrautarslys, sem um getur
í samgangnasögu brezku þjóðar-
innar; þetta gerðist við bæinn
Harrow, sem liggur um tíu míl-
ur frá London, og varð með
þeim hætti, að hraðlest rakst á
farþegalest, sem var grafkyr á
spori við járnbrautarstöðina, en
í sömu andránni bar að aðra
hraðlest, er rakst á þá, sem rétt
Minnmgarorð
Hinn 11. marz síðastliðinn lézt
að heimili sínu í Tantallon,
Sask., Sveinn Vopni um langt
skeið gildur bóndi þar í bygð;
hann veiktist af hjartaslagi í
nóvember haustið áður og lá
rúmfastur upp frá því.
Sveinn var fæddur á Refsstað
í Vopnafirði 6. febrúar árið 1881.
Foreldrar hans voru Guðjón
Jónsson Vopni og Guðríður Sig-
urðardóttir; með þeim fluttist
hann vestur um haf 1889. Fjöl-
skyldan settist fyrst að í Argyle
bygð, en fluttist til Tantallon,
Sask., aldamótaárið og nam þar
heimilisréttarland sex mílur
norður af bænum; seinna keypti
Sveinn þrjú lönd austur af bæn-
um og bjó þar góðu búi í fjöru-
tíu ár; hann seldi þá bú sitt og
fluttist í bæinn.
Hinn 29. nóvember kvæntist
Sveinn og gekk að eiga Andreu
Petru, dóttur Jóns Geirfinnsson-
ar Gunnarssonar og fyrri konu
hans Andreu Kristjánsdóttur
Lund frá Raufarhöfn. Sveinn og
Petreu, dóttur Jóns Geirfinnsson
Guðríði Petreu (Mrs. George
Besharo), Oddnýju Margréti
hjúkrunarkonu, er stundaði af
ástúð föður sinn í hinni löngu
legu, og Þórunni Josephínu (Mrs.
John Thorek), að Esterhazy,
Sask.v Auk ekkjunnar og dætr-
anna, lifa Svein sex barnabörn,
tveir bræður og tvær systur, að
viðbættum fjölda vina.
Eins og skýrt var frá í síðasta
blaði voru hér á ferð í fyrri
viku hjónin, Mr. og Mrs. Kjartan
Christopherson frá San Franc-
isco. — Mr. Christopherson er
fæddur að Grund, Argyle, en
fluttist með foreldrum sínum,
Sigurði og Carrie Christopher-
son til Crescent, B.C., 1905. Þar
kvæntist hann Guðrúnu Stone-
son og fluttist aftur til æsku-
stöðvanna, en 1936 flutti hann
alfarinn ásamt konu og 9 börn-
um þeirra til San Francisco,
gerðist hann þar fasteigna- og
lífsábyrgðarsali og vegnaði frá-
bærlega vel.
„Ég fór héðan í febrúar í snjó
og kulda, en þegar ég kom
þangað tíndi ég blóm með fram
veginum," sagði hann.
Öll börnin hafa komist vel til
manns; drengirnir fjórir voru í
hernum í síðustu styrjöld og
komu heilir heim; sá elzti,
Kjartan, var á íslandi og giftist
íslenzkri stúlku, Hrafnhildi
Snorradóttur. Elzta dóttir þeirra
er hin nafnfræga söng- og leik-
kona, Eileen Christie, sem
skýrt hefir verið frá í Lögbergi.
„Hún vildi ekki breyta nafni
sínu,“ sagði Mrs. Christopher-
son, „en kvikmyndafélagið vildi
stytta það, svo það kæmist fyrir
á undan var komin inn, og varð
áreksturinn slíkur, að fjöldi
vagna sentust út af sporinu og
fóru í mjöl; með lestunum þrem-
ur munu samtals hafa verið
um þúsund farþegar, þar á með-
al allmargt barna á skólaaldri;
nú er vitað, að hundrað og tíu
manns týndu lífi, auk þess sem
hátt á þriðja hundrað sætti
háskalegum meiðslum.
Lögregla, læknar og hjúkru-
arkonur komu þegar á vettvang,
auk þess sem fjöldi verkamanna
unnu að því nótt sem nýtan dag,
að leita líka og grafa þau upp
úr hrúgöldunum.
Reglulegt Alþingi, hið sjö-
tugasta og annað löggjafarþing,
kom saman til funda 1. okt. s.l.,
að lokinni guðsþjónustu í dóm-
kirkjunni. Séra Eiríkur J. Ei-
ríksson á Núpi prédikaði. Er
þingmenn höfðu tekið sér sæti
í þingsalnum, gekk forseti ís-
lands, herra Ásgeir Ásgeirsson,
í salinn og las upp forsetabréf
um að alþingi sé saman kvatt
til funda og lýsti yfir því að
Alþingi væri sett< Hann flutti
síðan ávarp og komst m. a. svo
að orði:
„Alþingi á langa sögu og er
samgróið landi og þjóð. 1 því
speglast örlög þjóðarinnar á
hverjum tíma. Vegur þess var
mikill á tímum hins forna þjóð-
veldis, það veslaðist upp á tím-
iim niðurlægingarinnar. Á vor-
um dögum hefir þjóðin tekið
miklum stakkaskiptum og Al-
þingi að sama skapi. Ég er þakk-
látur fyrir að hafa átt hér sæti
í nærfellt þrjá áratugi.“ Forset-
inn sagði síðan: „Um úrræði og
leiðir má deila, en hitt er viður-
kennt af öllum, að hagur al-
mennings, afkoma þjóðarinnar
og öryggi, er viðfangsefni þings
og stjórnar. Á þessu ári er ýms-
um erfiðleikum að mæta, og
vafalaust bezt metið og þegið,
að þing og stjórn snúist við þeim
öndverðum, þó að framorðið sé
kjörtímabilsins.“ — Að lokum
þakkaði forsetinn gömlum sam-
í ljósa-auglýsingunum á leik-
húsum.“
„Hefir hún leikið í kvikmynd
nýlega?“
„Já, hún lék aðalhlutverkið í
A Dream of Jeanie; það er söng-
mynd byggð að nokkru leyti á
ævisögu Stephen Foster. Vænt-
anlega kemur sú mynd bráðlega
til Winnipeg. Hún lék líka í
stríðsmynd, er nefnist Thunder-
bird og nú síðast í litmynd
Sweetheart Time. Eileen kemur
líka fram á útvarpsskemti-
skrám, en hún getur ekki not-
fært sér öll þau tækifæri, sem
henni bjóðast, bæði við útvarp-
ið og við að syngja, vegna þess,
að hún er samningsbundin við
kvikmyndafélagið, en ég held
samt að hún verði á A1 Goodman
skemtiskránni, sem heýrist yfir
M.B.C. útvarpskerfið á mánu-
dagskveldum kl. 9.30, Winnipeg
tíma.“
Mrs. Christopherson mintist á
fráfall bróður sins, Ellis Stone-
son, en þess mikla athafna-
manns var þá og áður minst í
Lögbergi. „Ellis var afburða-
maður frá unga aldri, hann hafði
mikla skipulagningargáfu. Þeir
aræður mínir höfðu sem sé
ekkert til að byrja með, en hafa
nú reist yfir tíu þúsund heimili;
borgin innan borgarinnar, —
Stonestown, — hið síðasta stór-
, virki þeirra kostaði yfir 33
miljónir dollara. Bróðir minn
var frábærlega vinsæll, því að
hann vann ekki fyrst og fremst
að því að auðga sjálfan sig
heldur að því að byggja upp
borgina og auka velsæld íbúa
hennar." .
„Búa margir Islendingar í San
Francisco?"
„Nei, ég held að þeir séu um
150, en ég má ekki staðhæfa
það,“ sagði Mr. Christopherson.
„Þeir hafa margir hverjir kom-
ist vel áfram til dæmis hefir
Fred Thorarinson reist mikið af
byggingum. íslendingar halda
dálítið hópinn og er það mikið
að þakka séra Octavíusi Thor-
starfsmönnum á Alþingi sam-
starfið á liðnum árum, góða við-
kynningu og vináttu margra, og
sagði: „í þeirra félagsskap hef
ég fengið rökstudda trú á stjórn-
skipulagi voru í aðaldráttum og
hæfileikum þjóðarinnar til þess
að búa við það. Það er ekkert
mannlegt skipulag einhlítt nema
mannlegur þroski svari til þess.“
Að svo mæltu árnaði forsetinn
Alþingi allra heilla í störfum,
en við fundarstjórn tók aldurs-
forsetinn, Jörundur Brynjólfs-
son. Minntist hann ýtarlega
herra Sveins Björnssonar, fyrsta
forseta lýðveldisins, er lézt
nóttina eftir að Alþingi var slit-
ið í vetur, og einnig minntist
hann nýlátins fyrrverandi al-
þingismanns Sigfúsar Sigur-
hjartarsonar. — Daginn eftir
voru forsetar þingsins kjörnir
og urðu þar engar breytingar.
Jón Pálmason er forseti Sam-
einaðs Alþingis, Bernharð Ste-
fánsson forseti efri deildar og
Sigurður Bjarnason forseti neðri
deildar. Lagt var fram frumvarp
til fjárlaga fyrir 1953 og eft á-
ætlaðar heildargreiðslur um
392 miljónir króna og gert ráð
fyrir hálfrar miljón króna
greiðsluafgangi. Fyrsta umræða
um fjárlögin verður á þriðju-
daginn.
☆
Milliþinganefnd í áfengismál-
um hefir samið frumvarp að
nýjum áfengislögum og eru þar
ýmis nýmæli og brevtýigar frá
eldri lögum. Tekið er fram að
tilgangur laganna skuli vera að
stuðla að hóflegri meðferð á-
fengis og vinna gegn misnotkun
þess. Ríkisstjórninni er gefin
heimild til að veita Áfengis-
verzlun ríkisins leyfi til að
brugga hér áfengt öl, en því að-
eins að málið hafi áður verið
borið undir atkvæði allra kosn-
ingabærra manna hér á landi, og
meirihluti þeirra, sem atkvæði
greiða, goldið leyfisveitingu já-
kvæði. Gert er ráð fyrir, að
dómsmálaráðherra geti veitt
fyrsta flokks veitingahúsum
leyfi til vínveitinga, þegar til-
tekin skilyrði eru fyrir hendi,
og sett eru ný og þrengri ákvæði
um vínveitingaleyfi, sem lög-
reglustjóri getur gefið. Lagt er
til að áfengisvamir verði stór-
auknar og stofnaður sérstakur
sjóður til að standa straum af
kostnaði við þær. Loks eru á-
kvæði um að á næstu 5 árum
skuli leggja til hliðar 6% af
hreinum ágóða Áfengisverzlun-
ar ríkisins, og skal helmingi
þeirrar upphæðar varið til bygg-
ingar drykkjumannahæla og
lækningastöðva handa drykkju-
mönnum, sjúkrahúsa og elli-
heimila, samkvæmt nánari á-
kvörðun heilbrigðismálaráð-
herra. Hinum helmningnum skal
varið að jöfnu til þess að veita
félagsheimilum og hótelum
vaxtalaus lán.
☆
Berklavarnadagurinn er í dag.
Samband íslenzkra berklasjúkl-
lakson og konu hans. Þau hafa
haft mörg boð fyrir Islendinga á
hinu stóra heimili sínu, auk þess
hafa þau sent út fréttabréf meðal
íslendinga, þau er stundum birt-
ust í Lögbergi.
,Það mælir með íslendingum
að þó þeir giftist annara þjóða
fólki þá halda þeir ekki aðeins
áfram að vera íslendingar held-
ur tekst þeim oftast að gera
konu sína eða mann að Islend-
ingi,“ sagði Mrs. Christopherson
að lokum.
inga selur merki og blað sitt um
allt land til ágóða fyrir starf-
semina, en nú er meðal annars
í ráði að reisa fjóra vinnuskála
að Reykjalundi fyrir vistmenn
þar, og fékkst í fyrrahaust leyfi
til að hefja smíði eins þeirra.
Hingað til hafa vinnustofur ver-
ið þar flestar í gömlum herskál-
um. í ávarpsorðum í blaði
S.Í.B.S. segir, að Samband ís-
lenzkra berklasjúklinga vilji
biðja íslenzku þjóðina að líta
ekki á starf þess sem nauðsyn-
lega hjálp við takmarkaðan flokk
berklasjúklinga eingöngu og
stuðning við heilbrigðisyfirvöld
landsins í báráttunni gegn þeim
sjúkdómi. Sambandið biður
þjóðina að líta á starfið af víð-
ari grundvelli, sjá það sem upp-
haf nýrrar stefnu í félagsmál-
um, sem beinist að því að búa
svo í haginn að allir öryrkjar
geti séð sjálfum sér farborða,
breyta styrkþegum í skattgreið-
endur og fylla með starfsgleði
hið ömurlega tóm í huga hins
iðjulausa öryrkja.
☆
Ákveðin hefir verið í höfuð-
dráttum sýningarskrá Þjóðleik-
hússins á þessu leikári, en það
hófst með ballett-sýningum og
síðan hefir óperettan Leður-
blakan verið sýnd nokkrum
sinnum og leikritið Tyrkja-
Gudda eftir séra Jakob Jónsson.
Á þriðjudaginn verður frum-
sýning á sjónleiknum Juno og
páfuglinn eftir O’Casey, í þýð-
ingu Lárusar Sigurbjörnssonar.
Þá verða sýnd leikrit eftir
frönsku höfundana Marcel
Pagnol og Je^ ** AritvúbL nýtt
leikrit eftir Davíð Stefánsson
skáld, sem hann kallar Hans
Egede og gerist í Noregi, Dan-
mörku og Grænlandi, sjónleik-
urinn Ástir fjögurra herforingja
eftir Peter Ustinov, og Ævin-
týri á gönguför eftir Hostrup.
Jólaleikritið verður Skugga-
Sveinn eftir Matthías Jochums-
son, og leikárinu lýkur með sýn-
ingum á óperunni La Traviata
eftir Verdi. Þá tekur Þjóðleik-
húsið upp þá nýbreytni að halda
Framhald á bls. 4
Lýkur
meistaraprófi
Mr. Gordon D. Campbell, er
útskrifaðist í verkfræði í fyrra
af Manitobaháskólanum, lauk í
vor meistaraprófi í þessari sömu
grein við háskóla Indíanaríkis í
Lafayette; hann fékk háa eink-
unn við prófið.
Mr. Campbell er sonur Mr. og
Mrs. Colin L. Campbell, er áður
bjuggu í Winnipeg, en nú eru
búsett að Berkley, Mich. Afi
hans og amma í föðurætt, voru
þau Mr. og Mrs. Malcolm Camp-
bell, en móðir hans er Olga,
dóttir Sveinbjarnar heitins
Árnasonar og Mrs. Árnason, sem
á heima að 160 Chestnut Street
hér í borginni.
Mr. Campbell hefir tekist á
hendur ábyrgðarstöðu hjá sam-
bandsstjórninni í Ottawa.
Skip strandar ó
Winnipegvatni
Rétt um þær mundir, er blaðið
var svo að segja fullbúið til
prentunar, bárust þær fréttir,
að flutningaskipið Spears, eign
Sigurdson Fisheries í Riverton,
hefði strandað í aftakaroki á
Winnipegvatni snemma á mið-
vikudagsmorguninn við Grinde-
stone Point, eitthvað um tíu
mílur norður af Mikley; skipið
var hlaðið fiski; skipshöfn mun
öll hafa komist af, að því er Mr.
S. V. Sigurdson skýrði ritstjóra
Lögbergs frá í símtali.
Ægilegt og sérstætt samgangnaslys
-^J. B. V.
Stutt samtal yið merk hjón