Lögberg - 12.03.1953, Qupperneq 1
Phone 72-0471
BARNEY'S SERVICE STATION
NOTRE DAME and SHERBROOK
Gas - Oil - Grease
Tune-Ups
Accessories 24-Hour Service
Repairs
66 ÁRGANGUR WINNIPEG, FIMTUDAGINN, 12. MARZ, 1953
Phone 72-0471
BARNEY'S SERVICE STATION
NOTRE DAME and SHERBROOK
Gas - OU - Grease
Tune-Ups
Accessories 24-Hour Service
Repairs
NÚMER 11
Fréttir fré ríkisútvarpi íslands
22. FEBRÚAR
Vísitala framfærslukostnaðar í
Reykjavík hinn 1. febrúar s.l.
var 157 stig, og kaupgajaldsvísi-
tala fyrir febrúar reyndist vera
147 stig.
☆
1 janúarmánuði s.l iferð vöru-
skiptajöfnuðurinn við útlönd ó-
hagstæður um 26,2 miljónir
króna. Út voru fluttar vörur
fyrir 46,4 miljónir króna, en inn
fyrir 72,6 miljónir. 1 janúarmán-
uði í fyrra varð vöruskiptajöfn-
uðurinn óhagstæður um 40,5
miljónir króna.
☆
Hinn 28. janúar s.l. bárust
ríkisstjórn Islands skilaboð frá
brezku ríkisstjórninni um land-
helgismálið. íslenzka ríkisstjórn-
in hefir fyrir nokkru svarað
skilaboðum þessum. 1 fréttatil-
kynningu frá stjórninni um þetta
segir, að ekki þyki rétt, meðan
málið er á umræðustigi, að
rekja efni þessara skilaboða
nema með samþykki beggja
ríkisstjórnanna, en svar íslenzku
stjórnarinnar er í fullu samræmi
við yfirlýsta stefnu hennar í
málinu.
☆
Árið 1948 ákvað utanríkisráð-
herra, Bjarni Benediktsson, að
fá þrjá sérfróða menn, pr til-
nefndir væru af utanríkisráðu-
neytinu, hæstarétti og lagadeild
Háskóla Islands, til að fram-
kvæma fræðilega rannsókn á
rétti íslands til Grænlands, svo
að álit þeirra lægi fyrir áður en
endanleg afstaða yrði tekin til
tillagna þeirra, er fram hafa
komið um slíkar réttarkröfur.
Nefndina skipuðu Gizur Berg-
steinsson hæstaréttardómari,
Ólafur Jóhannesson prófessor og
Hans G. Andersen þjóðréttar-
fræðingur. — Ríkisstjórninni
barst álit nefndarinnar seinni-
hluta nóvembermánaðar 1952 og
var það afhent þingmönnum 3.
desember s.l. Ríkisstjórnin ákvað
síðan að birta almenningi álitið
og hefir það verið gefið út í
bókarformi. Nefndin er sammála
um það, að ekki sé fyrir hendi
nægilegur grundvöllur fyrir
réttarkröfum af hálfu íslend-
inga. — Álitsgerðina sjálfa
samdi Gizur Bergsteinsson hæsta
réttardómari og skiptist hún í tvo
meginkafla, réttarsögulegan
hluta og þjóðréttarlegan hluta,
og er þar að lokum rakinn all-
ýtarlega dómurinn í Grænlands-
máli Dana og Norðmanna, sem
upp var kveðinn 1933 af milli-
ríkjadómstólnum. Segir höfund-
ur, að dómurinn stefni allur að
því, að kveða svo rækilega á um
ríkisforræði Danmerkur yfir
Grænlandi að enginn, sem dóm-
inn les muni ganga þess dulinn,
að öðrum ríkjum muni ekki
stoða að gera kröfu til Græn-
lands. Ekki verði séð, að íslend-
ingar hafi með tómlæti og að-
gerðarleysi fyrr eða síðar spillt
rétti sínum til Grænlands, og
ekki verði séð að íslendingar
hefðu unnið nokkurn rétt til
Grænlands, þótt þeir hefðu kraf-
izt þess, er þeir sömdu við Dani
1918, eða gengið inn í mál Norð-
manna og Dana fyrir alþjóða-
dómstólnum.
☆
Búnaðarþing var sett í Reykja-
vík í fyrradag og gerði það for-
maður Búnaðarfélags Islands,
Þorsteinn Sigurðsson. Á fundi
þingsins í gærmorgun flutti land-
búnaðarráðherra Hermann Jón-
asson erindi um viðhorf í land-
búnaðarmálum. Þrjátíu mál hafa
verið lögð fram, aðallega erindi
frá búnaðarsamböndunum og
mestmegnis um betra grasfræ,
aukið lánsfé til ræktunar og
framræslu og um kornrækt. Þá
er og fjárhagsáætlun Búnaðar-
félags íslands fyrir þetta ár, og
breytingartillögur við lög fé-
lagsins.
☆
í vikunni, sem leið voru til-
kynnt nokkur framboð við al-
þingiskosningarnar, sem fram
eiga að fara í sumar. Ásgeir
Bjarnason alþingismaður verður
í framboði af hálfu Framsóknar-
flokksins í Dalasýslu, Haraldur
Jóhannsson hagfræðingur af
hálfu Sósíalistaflokksins í Borg-
arfjarðarsýslu, og af hálfu Sjálf-
stæðisflokksins Þorvaldur Garð-
ar Kristjánsson hagfræðingur í
Vestur-Isafjarðarsýslu og Ing-
ólfur Flygenring í Hafnarfirði.
☆
Fjársöfnun Rauða krossins til
fólks á flóðasvæðinu í Hollandi
nam í fyrrakvöld 268.000 krón-
um. — Almennur fjársöfnunar-
dagur Rauða kross deildanna um
land allt var á miðvikudaginn,
öskudaginn, eins og venja er.
Fjölmennust Rauða kross deild-
annar er Reykjavíkur-deildin, en
í henni eru á þriðja þúsund fé-
lagsmenn. Meginviðfangsefnin
hafa verið tvö að undanförnu:
rekstur sjúkravagna fyrir
Reykjavík og sumardvalir barna.
Sjúkravagnarnir eru tveir og
fóru á s.l. ári á fjórða þúsund
ferðir vegna sjúkraflutninga. Hið
nýja og stóra barnaheimili Rauða
krossins í Laugarási í Biskups-
tungum tók til starfa á árinu,
sem leið, og þar dvöldust 112
börn í sumar. Reykjavíkur-
deildin hefir nú hug á því að
koma sér upp birgðum af hjúkr-
unargögnum, sem hægt væri að
grípa til, ef farsóttir geisuðu eða
ef til hernaðar eða annarra
óskapa kæmi. Auk þess þyrfti að
vinna að þjálfun hjálparsveita,
sem leyst gætu af hendi brýn-
ustu hjúkrunarstörf, ef slys eða
farsóttir bæri að höndum.
☆
Það slys varð nýlega, að 16 ára
piltur, Kristján Jósteinsson frá
Kleifum í Kaldbaksvík á Strönd-
um hrapaði í gljúfur í Kaldbaks-
dal og beið bana. Átta ára dreng-
ur, Bjartmar Elisson, féll á
mánudaginn í Sælingsdalslaug
og drukknaði. Á þriðjudagsmorg-
un tók mann út af vélbátnum
Haföldunni frá Ólafsvík og
drukknaði hann. Hann hét
Sumarliði Guðbjartur Sumarliða
son.
☆
Fyrrihluta þessa mánaðar voru
gæftir yfirleitt góðar og afli báta
víða góður.
☆
Gullfaxi, millilandaflugvél
Flugfélags Islands, flaug á
fimmtudaginn til Meistaravíkur
í Austur-Grænlandi með röskar
5 lestir af ýmis konar varningi
til manna þeirra, er þar hafa
vetursetu við rannsóknir á blá-
grýti. 1 námabænum og við flug-
völlinn þar eru 45 menn í vetur.
Þetta er í fyrsta skipti, sem Gull-
faxi lendir á flugvellinum í
Meistaravík, en þar hefir verið
gerð flugbraut, sem er 1800
metrar á lengd og 50 á breidd.
☆
Bókaútgefendur hérlendis eiga
nú mikið safn bóka frá síðustu
árum, og hafa ákveðið að gefa
Framhald á bls. 5
ÞORLÁKUR NELSON
Dáinn 4. febrúar, 1953
Vinirnir hverfa ört og ýmislega,
einn varst þú, sem kvaddir þetta sinn.
Þorlákur kæri, þig ég lengi trega,
þú varst falslaus trygðavinur minn.
Skýr og fróður fyrirmyndarmaður,
mætur drengur öllum reyndist þú,
manndómsríkur, gestrisinn og glaður,
á góðum orðstír hafðir sanna trú.
í fornum sögum varstu sérfræðingur,
sem kunnir bezt að meta vísdóm þann.
Víðsýnn, réttsýnn, ramrnur Islendingur,
ráðvandari mann ég aldrei fann.
Smíðisgripi alla vildir vanda,
varaðist að svíkja nokkurn mann.
Verkin þinna lipru listahanda,
lofstýr hlutu fyrir meistarann.
Þú ert héðan frá oss horfinn — dáinn,
hart og sárt er víst að taka því.
Eflaust var þér heitust hjartaþráin,
henni að mæta sælli bústað í.
Ástarkveðju á eftir þér ég kalla,
ótal þakkir fyrir samleið hér.
Blessi drottinn þig um eilífð alla.
Engill þinn hjá guði fagnar þér.
V. J. Guttormsson
Leitar landsvistar
í Danmörku
Pólskur flugmaður, sem auð-
sjáanlega var ekki alls kostar
ánægður með framtíðarhorfurn-
ar í föðurlandi sínu, hypjaði sig
á brott þaðan um miðja fyrri
viku í nýtízku jet-flugvél rúss-
neskri, lenti í Danmörku og leit-
aði þar landvistar; flugvélin var
af hinni svonefndu MIG-15 gerð.
Dönsku hernaðaryfirvöldin settu
svo strangan vörð um flugvöll-
inn, vélina og flugmanninn, að
jafnvel lögreglan var útilokuð;
sýnt þykir að flóttamanninum
verði heimiluð landvist í Dan-
mörku þó eigi sé fullráðið hvað
um flugvélina verði; þó má víst
telja, að hún verði grandskoðuð
frá tæknilegu sjónarmiði; pólsk
flugvél elti flóttamanninn, en
varð að hörfa til baka að svo
búnu því ávalt dró sundur með
þeim á fluginu.
Hyggja á innrás
Nú er staðhæft að Social
Credit-sinnar hyggi alvarlega á
pólitíska innrás í Manitobafylki
við næstu fylkis- og sambands-
stjórnarkosningar; aðaltrúboði
Social Credit-flokksins í Alberta,
Orvis A. Kennedy frá Edmonton,
er nýlega kominn hingað til
borgar í því augnamiði að tala
kjark í skoðanabræður sína og
honum til aðstoðar er nú einnig
hér staddur P. W. Paynter frá
Vancouver, varaformaður flokks
ins í British Columbia; bera þess-
ir skörungar sig allborginmann-
lega og staðhæfa, að þeir muni
útnefna þingmannsefni í flestum,
ef ekki öllum kjördæmum fylk-
isins við hvorutveggja kosningar;
verið er nú þegar að undirbúa
fundarhöld í hinum ýmissu kjör-
dæmum.
Vitja á fund forseta
Þeir Eden utanríkisráðherra
Breta og Butler fjármálaráð-
herra hafa dvalið í Washington
undanfarandi daga og átt við-
ræður við Eisenhower forseta og
aðra valdamenn ameríska varð-
andi fjárhagsmál og vafalaust að
einhverju leyti stjórnmálin líka,
einkum þó með hliðsjón af
breyttu viðhorfi, sem hugsan-
legt er að skapast geti vegna frá-
falls Stalíns.
JOSEPH STALIN
forsælisráðherra Rússlands
látinn. Sjá bls. 4
Úr borg og bygð
ÞAKKARORÐ
Hjartans þakklæti eiga þessar
línur að flytja öllum þeim, sem
á einhvern hátt auðsýndu okkur
hluttekningu og aðstoð við frá-
fall okkar elskaða eiginmanns,
föður og afa, Ágústs Magnús-
sonar.
Við þökkum sérstaklega prest-
inum dr. R. Marteinssyni, sem
flutti húskveðju og skilnaðar-
ræðu í kirkjunni; söngstjóranum
V. J. Guttormssyni og öllum
þeim, sem þátt tóku í sögnum;
útfararstjóranum, líkmönnunum
og öllum viðstöddum vinum, er
sýndu hluttekningu með nær,
veru sinni. Við þökkum konun-
um fyrir þeirra miklu aðstoð,
sem gjörði það mögulegt að hafa
veitingar að athöfninni afstað-
inni.
Við þökkum einnig og engu
síður öllum þeim, sem veittu
okkur hjálp við það að stunda
hinn látna í hans langa og erfiða
veikindastríði; sérstaklega lækn-
inum Dr. S. Paulson fyrir hans
miklu alúð og nærgætni. Sömu-
leiðis Ástu Sigurðsson, systur
ekkjunnar, og fjölskyldu hennar
fyrir ómetanlega aðstoð og hlut-
tekningu.
Ekkja, synir og uppeldisdætur
hins látna og fjölskyldur þeirra
Synir og uppeldisdætur vilja
af alhuga þakka móður sinni,
Mrs. Ragnheiði Magnússon fyrir
þá óumræðilegu nákvæmni og
fórnfærslu, sem hún sýndi í
sambandi við hina löngu og
erfiðu legu okkar ástkæra föður.
Alt í uppnámi í íran
Að því er nýjustu fregnir frá
Tehran, höfuðborginni í íran
herma, liggur enn við stjórnar-
byltingu í landinu. Forsætisráð-
herrann Mossadegh, varð að
flýja bústað sinn og leita skýlis
í húsakynnum ameríska sendi-
ráðsins um hríð; þingflokkur
hans var klofinn og heimtuðu
þeir, er í andstöðu komust, að
hinn aldni leiðtogi legði niður
völd, en hann var nú ekki alveg
á því, að til slíkra óyndisúrræða
yrði gripið; hann hafði enn her-
inn á valdi sínu og skipaði svo
fyrir, að hervörður yrði settur
um þinghúsið meðan þing yrði
kvatt saman til að jafna sakir;
tókst honum að fyrirbyggja að
þingið lýsti vantrausti á stjórn-
inni, að minsta kosti um hríð,
en þó er síður en svo, að hún sé
föst í sessi; hitt sýnist miklu lík-
legra, að til mikilla tíðinda
kunni þá og þegar -að draga, er
gerbreytt geti viðhorfinu í öllu
1 stjórnarfari landsins; hefir for-
sætisráðherra nú látið setja all-
marga höfuðandstæðinga sína í
steininn.
Jon Sigurdson
Chapfer
Anniversary
The Jon Sigurdson Chapter,
I.O.D.E. will observe its 37th
anniversary by holding a Bridge
party in the lower auditorium
of the First Federated Church,
Friday, March 20, at 8.15 p.m.
Mrs. E. ísfeld is general
convener.
Prizes will be given for the
highest score at bridge. A silver
collection will be lifted at the
tables.
All the good friends and loyal
supporters of the chapter have
always made it a point to attend
the anniversary party. They find
it is a plesant informal way of
enjoying an evening among their
friends. And they are always
mindful, too, that by coming
they will be giving support to a
good cause.
So we invite you to come to
yet another anniversary party of
the Chapter, and a jolly evening
with your frinds.
íhugunarverð
þingræða
I fyrri viku flutti Dr. S. O.
Thompson þingmaður Gimli
kjördæmis ræðu í fylkisþinginu,
er vakti geisimikla athygli og
dagblöð borgarinnar fóru lof-
samlegum orðum um, og Winni-
peg Tribune gerði að umtalseíni
í ritstjórnargrein; ræðan fjallaði
að miklu leyti um bágborinn hag
fiskimanna við Winnipegvatn,
er ræðumaður kvað minna á
miðaldamyrkur og fjárhagslega
þrælkun; var hann harðorður í
garð útgerðar- og fisksölufélag-
anna, sem hann að vísu viður-
kendi að lagt hefðu í ærinn
kostnað, og vildi að rannsóknar-
nefnd yrði sett í málið til að
athuga gaumgæfilega hin lík-
legustu skilyrði til úrbóta.
Dr. Thompson vildi að fiski-
menn ættu hliðstæðan íhlutunar
rétt varðandi sölu afurða sinna
við þá, sem landbúnað stunda
eins og málum þeirra nú er
háttað; þá mælti hann og með
því, að fiskimönnum yrði séð
fyrir landrými svo þeir gætu að
einhverju leyti trygt framtíð
sína og sinna með landbúnaði
samhliða fiskiveiðunum.
Hlýfrur námssfryrk
Hermann Arason, bóndi í
Glenboro, hlaut þetta ár Nuffield
Foundation námsstyrkinn; er
þessi styrkur veittur árlega
tveimur ungum og efnilegum
bændum í Canada, í Austur- og
Vesturfylkjunum, er fá með-
mæli Canadian Federation of
Agriculture. í styrknum felst 6
mánaða dvöl á Bretlandi við
landbúnaðarnám.
Foreldrar Hermanns eru —
August, sonur landnámshjón-
apna Önnu og Skapta Arasonar,
og Aurora, dóttir landnáms-
hjónanna Vilborgar og Olgeirs
Frederickson. Hermann lauk
prófi í búnaðarfræði (Diploma
Course) við Manitobaháskóla og
rekur búskap á 320 ekrum af
landi. Hann hefir tekið mikinn
þátt í 4-H Clubs starfsemi og í
Junior Seed Growers Clubs;
hann hefir tekið þátt í sam-
keppni í ræðuhöldum og hlotið
verðlaun á því sviði. Hann legg-
ur af stað til Bretlands í byrjun
aprílmánaðar.
Enn um hópferðina fril íslands í sumar
Freslurinn til að lilkynna þátttöku framlengdur
Flugfélagið Loftleiðir hefur
tilkynnt mér nýlega, að það sé
reiðubúið að framlengja ákvörð-
unarfrest okkar til 10. apríl
(í stað 30. marz áður). Er því
enn tæpur mánuður til stefnu;
en þó er nauðsynlegt, að menn
hafi tilkynnt þátttöku sína til
mín eigi síðar en 1. apríl. Verð-
ur þá staða málsins auglýst og
enn tekið á móti þátttöku-
tilkynningum fáeina daga, ef
herzlumun vantar.
Þá hef ég fengið nokkrar
frekari skýringar á tilboði Loft-
leiða, og er ljóst af þeim eins og
hinu upphaflega skeyti, að til-
boðið er miðað við heildarleigu
(20.000 dali) án tillits til farþega-
fjölda að öðru leyti en því, að
hann fari ekki fram úr 50. Fáist
sú tala og samningur verði þar-
afleiðandi gerður um förina,
höfum við skuldbundið okkur
til að standa skil á leigugjaldinu.
En fari svo, að einhverjir verði
að hætta við förina, t. d. sökum
veikinda, hljótum við að gera
allt sem við getum til að fylla
auðu sætin. Hefur og flugfélagið
Loftleiðir boðizt til að hlaupa
undir bagga að einhverju leyti,
ef svo tækist til, að einhverjir
yrðu að hætta við förina af óvið-
ráðanlegum orsökum og ókleift
reyndist að útvega farþega í
þeirra stað.
Bréf um kostnað á íslandi er
nú á leiðinni til mín, en hefur
því miður ekki borizt mér í tæka
tíð fyrir þetta blað. Get ég þó
til bráðabirgða sagt um það at-
riði bæði af eigin raun og sam-
tali við fólk, er fór til Islands í
fyrra sumar, að 250—300 dalir
(ca 4250—5100 krónur) muni
verða nægur eyðslueyrir þeim,
er kosta yrði sig að öllu leyti á
íslandi. En hinn, sem ætti þar
einhverja að, eyddi að sjálf-
sögðu mun minna.
Vestur-lslendingar! Nú ríður
á, að þessi för blessist, og það
mun hún gera, ef allir þeir, sem
frekast hafa ástæðu til, taka nú
þegar á sig rögg og fylla
flokkinn.
Hvað má höndin ein og ein?
Allir leggi saman!
Finnbogi Guðmundsson
30 Cavell Apts.,
449 Kennedy Street
Winnipeg