Lögberg - 12.03.1953, Qupperneq 5
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 12. MARZ, 1953
5
ÁHIJGAMÁL
GVENNA
Ritstjón: JNGIBJÖRG JÓNSSON
ÞÁTTTAKA ÍSLENDINGA í KVENFRELSIS-
BARÁTTUNNI í CANADA
Lítið hefir verið ritað um hinn
stóra þátt, er íslendingar áttu í
því, að konur öðluðust pólitískt
réttindi í þessu landi. Dr.
Tryggvi J. Oleson skýrir ágæt-
lega frá því í fyrsta kafla sögu
sinnar um Winnipeg-íslendinga
'hve snemma á árum þeir létu
sig skipta ýms almenningsmál, er
á döfinni voru í bænum og í
landinu, og mun hann væntan-
lega skýra frá þátttöku þeirra í
kvenréttindamálinu í næsta
bindi Sögu Vestur-íslendinga,
þótt hann geti varla gert þvi
máli full skil með því að honum
eru sett þau takmörk að ljúka
við söguna í næsta bindi, og er
það slæmt, því vissulega er enn
fyrir hendi meira efni en í eina
bók, ekki einungis úr sögu
Winnipeg-íslendinga heldur og
úr sögu annara íslenzkra byggð-
arlaga. Dr. Tryggvi hefir sannað
það með því, sem hann hefir
þegar ritað, að hann er gæddur
góðum hæfileikum sem sagn-
fræðingur og ætti því að hafa
óbundnar hendur í þeim efnum.
Ekki verður hér heldur skrifað
til hlýtar um þátttöku íslendinga
í kvenréttindamálinu, því til
þess yrði að maður að kynna sér
skrif í mörgum blöðum og tíma-
ritum, en þau gögn eru ekki
fyrir hendi. — Nýlega hefir mér
borizt í hendur yfirgripsmesta
bókin, sem gefin hefir verið út
um kvenréttindahreyfinguna í
Canada — “The Women’s Suf-
frage Movement in Canada”
éftir Dr. Catherine Lyle Clever-
don, er University of Toronto gaf
út 1950.
Hófst hreyfingin í Ontario-
fylki undir forustu Dr. Emily
Howard Stowe í Toronto nokkru
fyrir 1870 og síðar meir varð
dóttir hennar, Dr. Augusta
Stowe-Gullen, aðalforingi hreyf-
ingarinnar þar. En þrátt fyrir
þessi umbrot í Ontario varð
Manitoba fyrsta fylkið í Canada,
sem veitti konum fullkomin
pólitísk réttindi.
Ekki ábyrgist ég, að frásögnin
í þessari bók sé sögulega rétt,
en þeir kaflar, sem þýddir eru
úr henni orðrétt, eru innan gæsa-
lappa og þeir sýna að hlutur Is-
lendinga í baráttunni hefir alls
ekki verið svo lítill. Og ánægju-
legt er að fá álit annara en ís-
lendinga sjálfra á afrekum
þeirra.
„Hreyfingin í Manitoba hófst
snemma; tildrögin má rekja til
fyrstu ára síðasta tugs nítjándu
aldar; þá stofnuðu nokkrar ís-
lenzkar konur fyrsta kvenrétt-
indafélagið í fylkinu, og reyndar
hið fyrsta í öllu Vesturlandi
Canada. Þótt stofndagur þess sé
óviss, er þó víst, að þetta félag
dafnaði vel og færði út kvíar,
því í kjörfar þess sigldu önnur
íslenzk kvenréttindafélög, er
bæði menn og konur áttu sæti í.
Þótt þessi félög ættu stundum
samvinnu við enskumælandi fé-
lög með það að senda nefndir á
fund stjórnarvaldanna, þá héldu
þau sjálf uppi sjálfstæðri bar-
áttu um fjórðungsaldarskeið í
kvenréttindamálinu með ítrek-
uðum bænaskrám til fylkis-
þingsins og með ritgerðum í ís-
lenzkum tímaritum og blöðum.
Aðalforingi þeirra og ritstjóri
var Mrs. M. J. Benedictsson, en
hún hélt við bréfasamböndum
við Dr. Stowe-Gullen og aðrar
kvenréttindakonur í Toronto.“
(Bls. 49).
Fyrsta enskumælandi félagið,
er veitti kvenréttindamálinu í
Manitobafylki fylgi var Women’s
Christian Temperance Union
(W. C. T. U.); tók það málið á
stefnuskrá sína 1893. Aðal-
forustukonur þess félags voru
Dr. Amelía Yeomans, fyrsti
kvenlæknir í Winnipegborg, og
Miss Cora Hinds, akuryrkju-
sérfræðingur og frægur frétta-
ritari Winnipeg Free Press. Þær
áttu frumkvæðið að því, að
fyrsta enskumælandi kvenrétt-
indafélagið var stofnað fyrir
vestan Ontario í nóvember 1894,
deild í Dominion Enfranchise-
ment Association. „Þessi félags-
skapur var við líði um tíu ára
skeið.“ (Bls. 52).
„Eftir að Dr. Yeomans flutti
frá Winnipeg lagðist þessi fé-
lagsskapur niður vegna forustu-
leysis, og íslenzku félögin ein
urðu að halda uppi baráttunni.“
(Bls. 52).
„Það var logn fyrstu tólf ár
tuttugustu aldarinnar í kven-
réttindahreyfingunni í Manitoba;
þótt W. C. T. U. og íslenzku fé-
lögin inntu starf af hendi í kyr-
þey, án auglýsinga, virtist málið
dautt á yfirborðinu.“ (Bls. 53).
Þetta er nú ekki með öllu rétt,
því á þessu tímabili, 1898—1910
gaf Mrs. Margrét Benedictsson
út Freyju, fyrsta kvenréttinda-
blaðið í Canada, og hélt þar uppi,
ásamt fleirum, skeleggri baráttu
fyrir málinu.
Því miður hefi ég ekki nema
fáeina árganga þessa rits
(Freyju) við hendina, en frá-
sögn í maíhefti ritsins 1901 sýnir,
að íslendingar voru enn vakandi:
„Ungfrú Ingibjörg Jóhannes-
dóttir, forseti íslenzka Hvíta-
bandsfélagsins í Winnipeg, sem
er deild í Women’s Christian
Temperance Union (W. C. T. U.), *
beitir sér fyrir því að safna
nöfnum á bænaskrá um kven-
réttindi, sem aðalfélagið ætlar að
leggja fyrir Manitobaþingið
1902.“
í sama tölublaði er prentað
upp úr dagblaði Winnipegborgar
umsögn um „ágætan gest, Sigurð
Júlíus Jóhannesson frá íslandi,
starfsbróður ungfrú Ingibjargar
Jóhannesdóttur, bæði í bind-
indismálum og W. C. T. U. mál-
um. Hann stundaði guðfræði-
nám í Chicago og þar hlustaði
hann á fyrirlestra Carrie Nation.
Sem svar upp á þá spurningu,
hvort aðferð hennar væri af-
sakanleg, hélt Jóhannesson á-
gæta ræðu og lýéti Carrie Nation
sem siðprúðri og góðri konu með
mikla ræðumannshæfileika.“ —
Það er enginn efi á því, að
Freyja og áhrif manna og kvenna
eins og þeirra, sem hér er getið,
áttu sinn mikla þátt í því að
halda kvenréttindamálinu vak-
andi á þessum árum, bæði meðal
íslendinga og annarra þjóð-
flokka. Og eitt er víst að íslend-
ingar hófu fyrstir upp merkið á
ný eins og hér segir í bók Dr.
Cleverdon:
„Þótt fylkisþingið undir for-
ustu íhaldsflokks Roblins skellti
skollaeyrum við málinu kom í
ljós vottur um endurnýjaðan á-
huga fyrir því árið 1910 á öðrum
vettvangi. Tvær bænarskrár frá
íslenzku félögunum voru sendar
um alt fylkið og lagðar fyrir
fylkisþingið.“ (Bls. 54).
Ritið Grain Growers’ Guide og
Dafoe ritstjóri Free Press veittu
jafnan kvenréttindamálinu mik-
inn stuðning. Félag verka-
kvenna (Women’s Labour
League) var stofnað þetta ár og
voru réttindi kvenna eitt af
þeirra aðalmarkmiðum. Samtök
bænda í Vesturfylkjunum gáfu
málinu öruggt fylgi sitt. Og árið
1912 var Winnipeg Political
Equality League stofnað, sem
rak smiðshöggið á sigurvinning
Frelsið, sem hann
barðist fyrir í
Póllandi
HLAUT HANN I CANADA
Sagan um Wladyslaw Antoni Wyszkowski er
lærdómsrík fyrir nýja Canadamenn.
Vegna þess, að þessi maður, án föðurlands, fann
fósturland í Canada. Hann er föðurlandsvinur, sem
barðist fyrir frelsi Póllands 1918 og á
ný 1939. Hann kom til þessa lands 1942 sem
fulltíðamaður og varð að hefja lífstarf á
nýjan leik.
í Canada fann Mr. Wyszkowski frelsið, sem hann
leitaði að. Hann fann nóg tækifæri og
notaði þau að fullu. Hann veitti viðtöku gjöfum
Canada og gaf þjóðinni í staðinn hollustu
sína, þjónustu og tækni. Nú er Mr. Wyszkowski
yfirmaður við verkfræðilegt fyrirtæki,
sem í þremur stöðum vinnur að hinum risavöxnu
neðanjarðargöngum í Toronto.
Mr. Wyszkowski er stórhæfur verkfræÖtngur, sem
hafði umsjón með vegamálum í Lodz, sem er
næst stærsta borg Póllands, en stofnaÖi síÖar sitt
eigið verkfræÖifyrirtæki. Slíkir A.gætis borgarar af
mörgum þjóðflokkum stuðla að hinu góða áliti
canadísku þjóðarinnar. Og á svipaðan hátt stuðla
hin mörgu ágætis efni að óviðjafnanlegum gæðum
Weston’s brauðs, kaffibrauðs og brjóstsykurs.
Kaupið ávalt það bezta — Kaupið Weston's
GEORGE WESTON LIMITED ... CANADA
Fréttir fró ríkisútvarpi fslands
baráttunnar. Var í því félagi
margt mætra manna og kvenna.
í janúar. 1914 fanst félaginu
tímabært að senda stóra nefnd
á fund forsætisráðherra fylkis-
ins, Sir Rodmond Riblins; hafði
íslenzka kvenréttindafélagið full
trúa í þeirri nefnd ásamt mörg-
um öðrum félögum. Framsögu-
maður nefndarinnar var Mrs.
Nellie McClung, frægur rithöf-
undur og afburða ræðukona.
Forsætisráðherrann fjasaði og
svaraði nefndinni illu einu.
„Ég hygg að seinna meir fáum
við jafnað sakirnar, Sir Rod-
mond,“ sagði Mrs. McClung að
skilnaði.
Kvöldið eftir setti félagið á
svið í Walker leikhúsinu leik —
„Fylkisþing kvenna“, og var
húsið troðfult. Mrs. McClung
var forsætisráðherra í leiknum;
nefnd karlmanna kom á fund
hennar til að biðja um atkvæðis-
rétt. Mrs. McClung, „forsætis-
ráðherra“, lék Sir Rodmond eins
og hann hafði komið fram dag-
inn áður svo snildarlega, að allir
samkomugestir veltust um af
hlátri.
1 marz þetta ár, 1914, tók
Liberal-flokkurinn kvenréttinda-
málið á stefnuskrá sína, en eins
og kunnugt er, var Islendingur-
inn Thomas H. Johnson einn af
aðalforustumönnum þess flokks.
Stuðningsmönnum kvenréttinda
málsins fjölgaði með degi hverj-
um og þeir fylktu sér í lið með
Liberal-flokknum. — Þinghúss-
hneykslið 1915 leiddi til nýrra
kosninga og gekk Liberal-flokk-
urinn sigrandi af hólmi. Norris
forsætisráðherra flutti frum-
varpið í þinginu um jafnrétti
kvenna 10. janúar 1916, en við
þriðju umræðu, 27. janúar 1916,
flutti frumvarpinu fylgi Hon.
Thomas H. Johnson, sonur ís-
lenzks frumherja, sem stóð í
Framhald af bls. 1
almenninsfi kost á að eignast þær
bækur fyrir verð, sem lækkað
verður minnst 30% frá upphaf-
lega verðinu. Bókaútsala þessi
hófst á föstudaginn í Lista-
mannaskálanum í Reykjavík, og
var ákveðið, að 10% af sölunni
tvo fyrstu dagana skyldi renna í
barnaspítalasjóð kvenfélagsins
Hringsins í Reykjavík.
☆
Þjóðræknisfélag íslendinga í
Vesturheimi hefir gefið Barna-
spítalasjóði Hringsins 10.000
krónur að gjöf í minningu um
herra Svein Björnsson, fyrsta
lýðveldisforseta íslands. Segir í
bréfi frá ritara Þjóðræknisfé-
lagsins að félaginu hafi ekki get-
að hugkvæmst annað verðugra
fyrirtæki en barnaspítalann í
minningu um hinn látna mikil-
hæfa þjóðhöfðingja.
£r
Félagið Samvinnutryggingar
hefir frá stofnun úthlutað arði
til hinna tryggðu. Árið, sem leið,
nam hagnaður af starfinu 2,2
miljónum króna, og verður hálf
miljón af þessu greidd beint til
hinna tryggðu, en af hinu stofn-
aður Stofnsjóður Samvinnu-
trygginga.
☆
Rannsóknarráð ríkisins hefur
hafið undirbúning að víðtækari
hafíssrannsóknum en hingað til
brjósjfylkingu fyrir jafnréttind-
um karla og kvenna.
Manitoba var fyrsta fylkið í
Canada, sem veitti konum full-
komin pólitísk réttindi. Þessi
framsóknarandi, sem auðkendi
hin ungu Vesturfylki, gerði
hægara um vik að sigrast á þeim
íhaldsöflum, sem að verki voru
i hinum fylkjunum.“ (Bls. 49).
hafa ver;ið gerðar hér við land,
og mun einkum verða lögð stund
á að safna gögnum um legu ís-
breiðunnar fyrir norðan land.
Ráðið hefir fyrst um sinn falið
Jóni Eyþórssyni veðurfræðingi
að annast þetta verkefni fyrir
sína hönd.
☆
Tónlistarfélagið í Reykjavík
hefir ákveðið, að tónleikar á veg-
um þess verði tíu á ári. Á þessu
ári mun Kirsten Flagstad koma
hingað á vegum félagsins og enn
fremur þýzki ljóðasöngvarinn
Dietrich Fischer-Dieskau, sem
getið hefir sér mikið frægðarorð.
Þá hefir og komið til mála, að
danska söngkonan Else Brehms
komi hingað til tónleikahalds.
Félagið hefir og gert samning
við Sinfóníuhljómsveitina að
hún haldi tvenna hljómleika
fyrir félagið á þessu ári og margt
fleira er í ráði. í vikunni, sem
leið, hélt Elísabet Haraldsdóttir
píanótónleika á vegum Tónlistar-
félagslns í Reykjavík, og á þriðju
daginn leikur hún með Sinfóníu-
hljómsveitinni einleik í konsert
fyrir klarinett og hljómsveit eftir
Mozart. Elísabet hélt tónleika
hér á landi sumarið 1947, í
Reykjavík, Hafnarfirði og á
Akureyri. Hún hefir stundað
nám í Kaupmannahöfn og París.
☆
Dr. Victor Urbancic hefir ver-
ið ráðinn hljómsveitarstjóri Þjóð
leikhússins og verður jafnframt
stjórnandi kórs, sem Þjóðleik-
húsið er nú að stofna. — Leik-
endur frá Þjóðleikhúsinu hafa
að undanförnu sýnt sjónleikinn
Rekkjuna í nágrenni Reykjavík-
ur og nú síðast í Vestmanna-
eyjum, ávallt við mikla aðsókn
og ágætar undirtektir. 1 þessari
viku sýna þeir leikinn á Akur-
eyri. Það er á stefnuskrá Þjóð-
leikhússins að senda leikflokka
út um land til að sýna þar leik-
rit, sem áður hafa verið sýnd 1
Þjóðleikhúsinu, og er þetta
fyrsta tilraunin af því tagi og
gefst ágætlega.
☆
Leikfélag Reykjavíkur hefir
sýnt sjónleikinn Ævintýri á
gönguför fjörutíu sinnum. Það
hefir nú í undirbúningi veiga-
mesta leikrit sitt á þessu ári,
Vesalingana, eftir Hugo. Horfur
eru á því, að félagið hafi fleiri
leiksýningar á þessum vetri en
nokkurt annað leikár þess.
☆
Nýlega var stofnað átthagafé-
lag Strandamanna í Reykjavík
og nágrenni og voru stofnendur
nokkuð á þriðja hundrað að tölu.
Tilgangur félagsins er meðal
annars að styðja hvert það mál,
sem horfir til hagsbóta og menn-
ingar fyrir sýsluna og íbúa
hennar.
☆
Þingeyingafélagið í Reykjavík
hefir nú starfað 10 ár. 1 upphafi
var kosin sögunefnd til að sjá um
ritun og útgáfu héraðssögu og
eru komnar út tvær bækur í
safni þessu og hin þriðja á leið-
inni. Á þessu ári kemur út hér-
aðslýsing Suður-Þingeyjarsýslu
eftir Jón Sigurðsson og héraðs-
lýsing Norður-Þingeyjarsýslu er
í undirbúningi. Jarð- og land-
fræðilýsing héraðsins verður
rituð af Jóhannesi Áskelssyni.
☆
Árið, sem leið, hafði Stúdenta-
ráð Háskólans forgöngu um
vinnumiðlun stúdenta og hefir á-
kveðið að halda því starfi áfram
og auka eftir föngum. Nefnd
hefir verið kjörin til að starfa að
því að útvega stúdentum sumar-
atvinnu, en margir þeirra kosta
nám sitt af þeirri virtnu.