Lögberg - 21.05.1953, Blaðsíða 7
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 21. MAÍ, 1953
7
Mannkynssagan hefir mótast af veðróttu
Matvælaöflun jarðarbúa og
neyzluþörf — breikkandi bil
Að undanförnu hafa ýmsir
tekið sér fyrir hendur að skýra
mannkynssöguna frá hagfræði-
legu sjónarmiði. En þetta er ekki
nóg. Að vísu byggist þjóðmenn-
ing hvers lands mjög á við-
skiptalífinu, en hornsteinar við-
skiptalífsins eru þó líffræðilegs
eðlis. Veðrátta, og jarðeðli hafa
ráðið því hvar maðurinn getur
fengið lífsnauðsynjar sínar, hvar
hráefna er að leita handa iðnaði
og hvar iðnfyrirtæki geta þrif-
izt. Og veðráttan ræður mestu
um dugnað og framtakssemi
manna. Breytingar á veðráttu
valda þjóðflutningum, en af
slíkum flutningum stafa eigi að-
eins stríð, heldur vérður blönd-
un þjóða til þess að skapa nýjar
hugmyndir, nauðsynlegar fyrir
framþróun mannkynsins.
Heilsufar og drepsóttir hafa og
haft mikil áhrif og ráðið örlögum
heilla þjóða.
Jörðinni má skipta í belti
eftir verðurfari. Yzt og syðst
eru heimskautin. Þá koma
tempruðu beltin. En á milli
þeirra og hitabeltisins eru allar
stærstu eyðimerkurnar. Gróður
er aðeins í tempruðu beltunum
og hitabeltinu. Tempruðu beltin
hafa það fram yfir hitabeltið,
að þar er mjög breytileg veðr-
átta. Og Ellsworth Huntington
hefir sýnt fram á, að hin breyti-
lega veðrátta á drýgstan þáttinn
í að efla hjá mönnum kjark og
athafnaþrá.
Vér vitum enn svo lítið um
fyrsta vaxtarskeið mannkynsins
að vér verðum aðeins að gizka
á hver áhrif veðráttan hafi haft
á það. En það er varla neinn efi
á því, að mannkynið hefir verið
uppi áður en ísaldir hófust. Og
þegar landísinn tók að eyðast,
þá hefir vindabelti legið yfir
þvera Afríku og þá hefir Sahara
eyðimörkin verið frjósamt land.
En þaðan, og líklega einnig frá
Suður-Asíu, hafa komið þeir
menn, er námu Evrópu. Og það
hefir líklega verið um 20.000
árum fyrir Krist.
En jafnhliða því, sem ísbrúnin
færðist norður á bóginn, svo
breyttust veðráttubeltin. Sahara
lenti smám saman í þurrviðris-
belti. Enn í dag finnast krókó-
dílar og vatnafiskar í vinjum í
Sahara. Þá hefir dagað þar uppi.
Þeir eru afkomendur þeirra
stofna, sem áttu heima um alla
Sahara þegar hún var í mestum
blóma. Og þegar þurrkarnir
fóru að leggja Sahara í eyði, þá
hafa mennirnir flúið þaðan í
stórhópum, bæði suður og norð-
ur á bóginn.
II
Næst lá svo aðal gróðrarbelti
jarðarinnar um Miðjarðarhafs-
löndin, yfir Mesapotamíu og
austur til Turkestan. En þetta
olli líka miklum þjóðflutning-
um. Skógarnir færðust lengra
og lengra norður á bóginn, og
veiðidýrin, sem lifðu á grasslétt-
um, hörfuðu undan honum
lengra og lengra norður á bóg-
inn. Mennirnir eltu veiðidýrin.
Seinast komust þeir í sjálfheldu
milli skógarins og sævar og það
var orsökin til þess að þeir sett-
ust að við Eystrasalt og lifðu
þar nú mest á berjum og skel-
fiski. Aðrir steinaldarmenn á
Spáni og í Norður-Afríku, lögðu
leið sína austur með Miðjarðar-
hafi og hafa sennilega mætzt í
vestanverðri Asíu.
Þegar skógarnir jukust svo
mjög og veiðidýrum fækkaði,
neyddust menn til þess að leita
sér annars bjargræðis. Þeir fóru
þá að lifa á ávöxtum jarðar ekki
síður en veiðiskap, hnetum,
berjum og sjálfsánum kornteg-
undum. Þetta hafa þeir gert
nauðugir. En þetta var þó upp-
haf að mikilli framför, því að
næsta skrefið var að sjálfsögðu
ræktun matjurta, og með því
hefst landbúnaður. Þetta hefir
líklega skeð rúmum 5000 árum
f- K. og fyrst fyrir botni Mið-
jarðarhafs. Gömul goðsögn
hermir, að gyðjan Isis hafi
fundið korn á fjallinu Hermon
í Sýrlandi og gefið það syni
sínum. Það er sennilegt að í þess-
ari goðsögn séu fólgin tvö
sannleikskorn. í fyrsta lagi er
það sennilegt að konur hafi
fundið upp á því fyrst að rækta
korn, því karlmennirnir stund-
uðu veiðar og þótti sér annað
ósamboðið. Og í öðru lagi er það
sennilegt að kornyrkja hafi fyrst
hafizt í Sýrlandi eða þar í nánd.
Um 5000 f. K. eru menn farnir
að stunda akuryrkju allt frá
Palestínu austur í Mesapótamíu,
og hafa þá tekið sér fasta bú-
staði.
Um líkt leyti hafa menn fund-
ið upp leirkerasmíð og vefnað.
Og skömmu eftir að þeir tóku
sér fasta bústaði, hafa þeir farið
að temja skepnur. Líklega hafa
veiðimenn fyrst fundið upp á því
að ala upp ungviði, en húsdýrum
hefir mjög fjölgað um leið og
byggð reis upp og kvikfjárrækt
hefir fljótt færst mjög í aukana.
Um líkt leyti hafa menn og far-
ið að nota málma, enda þótt þeir
skeyttu ekki um annað en gull
og kopar öldum saman — gullið
til skrauts, koparinn til nytja.
Landísinn eyddist ekki jafnt
og þétt. Það komu tímabil er
hann stóð í stað eða jafnvel
færðist í aukana aftur. Má vera
að það hafi staðið í sambandi við
það að löndin voru að hækka.
Þessi hækkun fór fram á eitt-
hvað einni öld um 4500 árum
f. K. Þá snjóaði mikið í fjöll
norðan Mesapótamíu og af því
urðu gríðarlegir vatnavextir, er
gjöreyddu heilum borgum. En í
Egyptalandi hafði þetta öfug á-
hrif. Svo virðist sem Nílardalur-
inn hafi áður verið eitt forað.
En þegar landið hækkaði þá
þornaði hann og þarna kom það
Gósenland, sem varð mesta korn
forðabúr heimsins um hríð. Og
þá hófst menning Egyptalands.
Veðráttubreytingar urðu þann
ig til þess að breyta háttum
mannkynsins. Ráfandi veiði-
menn tóku sér fasta bústaði og
fóru að rækta jörðina. Um 4000
f. K. var þessi breyting orðin á
um allt svæðið frá Egyptalandi
austur fyrir Mesopotamíu. Og
þetta landsvæði varð því vagga
menningárinnar. Ástæðurnar til
þess voru veðráttan, fljótin,
akuryrkjan og ekki sízt þjóð-
flutningar, því þarna mættust og
blönduðust ýmsir þjóðtflokkar,
sem komu úr öllum áttum.
Fyrir 4000 f. K. höfðu menn
fundið upp skrift ,tímatal, áveit-
ur, hjólið, og á næstu þúsund
árum bar þetta ávöxt. Um þess-
ar mundir var næg úrkoma og
Arabía var öll gróðurlendi.
Þetta var áður en þurrkarnir
höfðu flæmt menn frá búum
sínum og neytt þá til að taka upp
hirðingjalíf og gera árásir á ná-
grannaþjóðir sínar. Til sann-
indamerkis um hvað menning
stóð þá á háu stigi eru forngrip-
irnir, sem fundizt hafa í Ur í
Kaldealandi og eru nú 5500 ára
gamlir. Þá var farið að skrá-
setja lög, byggingarlist var á
háu stigi og menn voru farnir að
smíða hafskip. Þetta eru nokkur
dæmi um þá menningu, sem þá
var á þessum slóðum.
Þetta litla landsvæði var orð-
ið þéttbyggt, en nú tók landið
að lyftast aftur og þurrkar hóf-
ust. Þá hófust nýir þjóðflutning-
ar og fólkið dreifðist um Afríku.
Asíu og Evrópu.
III
I Egyptalandi þróaðist menn-
ingin áfram. Þar voru gerðar
skrautlegar hallir úr steini og
bygging pýramídanna hófst. —
Stærðfræði og stjörnufræði kom
ast á hátt stig. Litlu seinna kem-
ur fram á sjónarsviðið í Meso-
potamíu konungur sá, er Sargon
hét. Hann var sá fyrsti, sem
beitti hervaldi til þess að byggja
upp ríki sitt.
Hernaðurinn var uppgötvun
þessara tíma. Veiðimennirnir
fornu hafa að sjálfsögðu barizt,
en þar hefir aldrei verið um lið-
samdrátt að ræða. Og fyrstu
bændurnir hafa verið friðsamir
menn. Að vísu hefir aldrei ríkt
neinn Fróðafriður, eins og sumir
ætla. En á fyrstu öldum mann-
kynsins hefir það verið friðsamt,
vegna þess að það þurfti ekki á
hernaði að halda. Hernaður og
stríð byrjuðu þá fyrst er
menn höfðu tekið sér fasta
bústaði og fóru að deila um eign-
arrétt og sérréttindi. Hernaðar-
hugmyndin barst fljótt út fyrir
hinn siðaða heim til hinna ó-
menntuðu hirðingjaþjóða, sem
heima áttu utan hinna stofnuðu
ríkja. Og þær sáu sér leik á
borði. Um þessar mundir hófust
og þurrkar, sem eyddu haglend-
in, og þá steyptu hirðingjaþjóð-
irnar sér yfir nágranna sína.
Þessir hirðingjar voru alvanir
veiðimenn og hestamenn og
ekkert stóðst fyrir þeim. Hest-
arnir voru þá álíka þýðingar-
miklir í hernaði og skriðdrek-
arnir voru eitthvað 4500 árum
síðar. Hirðingjarnir flæddu yfir
Mesopotamíu og Egyptaland og
menningu þeirra ríkja var þar
með hnekkt.
Þéttbýli, veðráttubreytingar
og innrásir flæmdu akuryrkju-
menn í allar áttir. En það hefir
varla verið fyrr en 3000 árum
f. K. að þeir tóku að setjast að í
Evrópu, Þúsund árum síðar hafa
þeir numið mikinn hluta hennar,
frá Þrakíu til Þýzkalands, Belgíu
og Frakklands. Um sama leyti
tóku siglingar að blómgast. Mið-
jarðarhafið varð vagga sigling-
anna og um 2200 f ,K. höfðu skip
frá Grikklandi komist alla leið
vestur í Atlantshaf. Um sömu
mundir hófust miklir þjóðflutn-
ingar austur á bóginn og ný
menning spratt upp í Indlandi
og barst alla leið til Kína og
varð undirstaða allrar menning-
ar þar. Sennilegt er að menning
þessi hafi borizt alla leið til
Vesturheims, yfir landbrúna,
sem tengdi Asíu og Ameríku
þar sem nú er Behrings-sund.
Þurrviðratímabil helzt enn
lengi og áhrifa þess gætir mest í
norðanverðri Evrópu. Siglingar
hófust til írlands og Norður-
landa. I írlandi komst menning-
in á hátt stig og það hefir sjálf-
sagt verið þurrviðratímabilinu
að þakka, því að næstu úrkomu-
aldir drógu allan dug úr þjóð-
inni.
Um 1800 f. K. varð enn breyt-
ing á veðráttu og hófust þá
kuldar og úrkomur. Frá 1200 f.
K. til 200 e. K. var annað kulda-
og úrkomutímabil. Náði það há-
marki um 400 f. K., en svo smá-
dró úr því og endaði það með
þurrkaplágu um 500 e. K. A
þessu tímabili var vindabeltið
aftur yfir Miðparðarhafi, og þá
risu upp blómleg ríki: Babyloníu
ríkið, Assyríuríkið, Kanaan,
Fönikía og síðar Trójuborg,
Grikkland, Kartagó og Róma-
veldi. Norður-Afríka var þá korn
forðabúr heimsins. Og allt fram-
tak var þá í löndunum um-
hverfis Miðjarðarhaf. Meðan vot
viðri héldust höfðu hirðingjar
nóga haga fyrir fénað sinn og
lifðu í friði svo að menningunni
var ekki nein hætta af þeim
búin.
Þetta kulda- og votviðratíma-
bil hafði aftur á móti ill áhrif
norður í álfunni. Skógar grotn-
uðu niður og mómýrar mynduð-
ust. Menningunni á írlandi
hrakaði og eins á Norðurlöndum.
Til kuldatímanna á 5. og 4. öld
f. K. er líklega að rekja sagnir
um fimulveturinn.
Seinna fer menningunni við
Miðjarðarhaf hnignandi. Þess er
getið í merkilegri bók, sem kom
út fyrir nokkrum áratugum, að
malaria hefði orðið grísku menn-
ingunni að falli. Þetta er ekki
ósennilegt. Þá var þurrkatíð, ár
þornuðu svo, að ekki urðu eftir
nema pollar, og þeir voru auð-
vitað hin bezta gróðrarstía fyrir
moskítóflugurnar, sem bera með
sér malaríu-drepsóttina. Senni-
legt er, að malaría hafi einnig
orðið rómverska ríkinu að falli,
en geisað þetta seinna þar vegna
þess að rigningar voru meiri á
ítalíu.
Tímabilið 500—100 var mjög
þurrviðrasamt, og í sambandi
við það má setja herhlaup Gota
og Húna og flótta Tyrkja frá
Arabíu undan þurkunum þar.
En þetta þurviðra- og vinda-
tímabil hleypti nýju fjöri og at-
hafnaþrá í norræna menn. Þá
hófst Víkingaöldin.
IV
N
Veðurfarsbreytingar hafa orð-
ið svipaðar í Ameríku og haft
hin sömu áhrif, eins og sjá má á
sögu Mayanna í Yukatan. Hin
miklu mannvirki þeirra eru nú
á kafi í frumskógi, sem engir
menn hafa treyst sér til að ráða
við. Tvö menningartímabil hafa
verið í sögu þeirra, hið seinna
um 1000. Þessi menningartímabil
falla saman við vindatímabilið
á þessum slóðum. Nú er Yukatan
rétt sunnan við þurviðrabeltið,
sem er á milli tempraða beltisins
og hitabeltisins. En á blóma-
skeiðum Maya hefir þurviðra-
beltið náð lengra suður.
í tempraða beltinu kom vot-
viðratímabil á 11. öld. Kulda-
tímabil kom á 13. öld og annað
á fyrra hluta 17. aldar. En síðan
hafa sama sem engar breytingar
orðið á veðurfars-beltunum. Að
vísu hafa á þessum tíma orðið
breytingar á hafstraumum, sem
meðal annars urðu þess vald-
andi að síldin kom inn í Eystra-
salt, og að þorskurinn hvarf frá
Bretagne. En vindbeltin hafa
verið svo að segja óbreytt.
V
Þessar athuganir byggjast á
heimildum, sem bæði eru mjög
sundurleitar og komnar sín úr
hverri átt. Þær byggjast á rann-
sóknum mómýranna í norður-
hluta Evrópu, á hinni gömlu
strandlínu Kaspíahafsins, á salt-
vötnunum í Mið-Asíu, á rústum
borga, sem farið hafa í eyði
vegna vatnsleysis, á þjóðsögnum
og sögulegum staðreyndum. Og
þetta styðst við rannsóknir á
gömlum trjám í Ameríku. Úr-
koma hefir mest áhrif á vöxt
trjáa og árshringarnir í þeim
segja til um hvernig tíðarfarið
hefir verið. Með mælingum á
árshringum 2000 trjáa, sem sum
eru allt að 4000 ára gömul, hefir
Douglas dregið upp mynd af
tíðarfarinu í Norður-Ameríku og
ber henni alveg furðalega sam-
an við það, sem vitað er eftir
öðrum heimildum. Þar sést
hvernig vindabeltin hafa alltaf
vakið þjóðirnar til dáða. Og þar
sést líka að vindabeltið, sem eflir
allan jarðargróður og gefur
mönnum kjark og framtakssemi,
er nú þúsund mílum norðar en
það var einu sinni.
Veðráttubeltin hafa litið
breytzt á seinustu 1000 árum.
Það er erfitt að gera sér grein
fyrir hvernig fara mundi um
menninguna, ef þau breytast
aftur.
(Stuttur útdráttur úr grein
eftir Julian Huxley).
—Lesb. Mbl.
C0PENHAGEN
Bezta munntóbak
heimsins
„Tilbúnir" örðugleikar Þrándur
í Götu aukinnar framleiðslu, sem
ella væri kleift vegna iækni-
legra framfara
1 niðurlagl eríndis dr.
Júlíusar Sigurjónssonar um
mannfjölgun, sem sagt var
frá í blaðinu fyrir skemmstu,
er litið á alla jarðbúa sem
heild, „og verður ekki sagt,
að það sé að ástæðulausu,
að ýmsir eru farnir að hafa
áhyggjur af hinni öru mann-
fjölgun á síðasta manns-
aldri.
Áætlað er að mannkyninu hafi
fjölgað um helming (um 0,7%
árlega) á síðastliðnum 100 árum
eða úr 1200 miljónum í ca. 2400
miljónir og hefir aukningin
verið mun meiri síðari 50 árin
en hin fyrri.
í Indlandi og Pakistan er
áætlað að fjölgunin frá síðustu
aldamótum nemi 140 miljónum
(frá 280 í 420 miljónir) þrátt
fyrir mjög háa dánartölu. Enda
var fæðingartalan síðustu 10 árin
fyrir stríð (1929—1938) nálægt
35% í þeim héruðum Indlands,
sem skýrslur koma frá, en dán-
artalan var þá yfir 20%. Síðan
hefir fæðingartalan lækkað
nokkuð, en dánartalan einnig,
svo hlutfallsleg fjölgun er lík og
áður.
Regla Malthusar hefir sannazt
átakanlega í Indlandi
Indverjar hafa lengi barizt í
bökkum um að hafa nóg viður-
væri. Hungursneyð og drepsótt-
ir hafa alltaf við og við herjað
þar og valdið stórfelli, svo að
íjölgun hefir stöðvazt í bili og
orðið minni til l^ngframa en
ella.
Vafalaust gæti landið fætt
fleiri en þar búa, því að þrátt
fyrir allt er íbúatalan ekki talin
meiri en sem svarar 100 á ferkm.
(en yfir 200 í Japan) og landið
er yfirleitt mjög frjósamt.
Mikill hluti þjóðarinnar er
vanalinn og haldinn langvinnum
sjúkdómum og því miður sín og
framtakslítill.
Aukning matvæla er minni en
svarar eðlilegri fjölgun og leiðir
það til fellis serh fyrr var sagt.
Þessu líkt mun ástandið vera
meðal ýmissa annara Asíu-
þjóða.
F.A.O. og W.H.O.
Tvær stofnanir innan vébanda
Sameinuðu þjóðanna láta þessi
mál sérstaklega til sín taka, en
það eru F.A.O. og W.H.O. —
Hin fyrrnefnda leitast við að
örva matvælaframleiðslu þjóð-
anna og hefir einnig áhuga fyrir
dreifingu matvælanna eftir
þörfum. Þetta er erfitt viðfangs
og mestur hluti starfsins fólginn
í skýrslugerð o. s. frv. og leið-
beiningum, en vald til fram-
kvæmda eða fjármagn hefir
stofnunin ekki nema af mjög
skornum skammti. Hefir hún þó
beitt sér fyrir ýmsum merkum
rannsóknum og framkvæmdum
á takmörkuðum svæðum til
aukningar á ræktanlegu landi og
er þetta allt góðra gjalda vert.
Neyzluþörf ekki fullnægt
Skýrslur matvæla og land-
búnaður stofnunarinnar (FAO)
og Heilbrigðisstofnunarinnar
(WHO) sýna, að matvælaöflun
jarðarbúa er — og hefir verið
að undanförnu — mun minni en
svo, að fullri neyzluþörf íbúanna
sé fullnægt, en við þetta bætist
svo misskipting, sem eðlilega er
mjög mikil. — JVIikill fjöldi
manna býr að staðaldri við mat-
arskort og margir svelta heilu
og hálfu hungri, einkum Asíu-
þjóðir.
Miklir möguleikar til öflunar
matfanga
eru enn til umfram þá, sem
nú eru fyrir hendi. Áætlað hefir
verið, að um það bil % yfirborðs
jarðar, sem nú er lítt nytjaður,
sé ræktanlegur, og án vafa má
auka mjög afrakstur mikilla
landflæma, sem nú eru nytjuð á
frumstæðan hátt. Vegna tækni-
legra framfara ætti að vera unnt,
að auka enn um sinn framleiðsl-
una, meira en svarar fólksfjölg-
uninni, ef ekki væri við „til-
búna“ möguleika að etja:
Sundrung, póllitíska og tog-
streitu, skammsýni, trúarlega
hleypidóma o. fl. Þjóðir, sem
þegar svelta að meira eða minna
leyti eiga erfitt með að rísa upp
til átaks án hjálpar utan frá.
Skorturinn lamar framtak
framtak þeirra og sjálfsbjargar-
viðleitni og dregur þær niður í
meiri örbirgð.
ískyggilegt er það, að sam-
kvæmt skýrslum FAO virðist
jafnvel að bilið milli fólksfjölg-
unar og matvælaframleiðslu
fari breikkandi, enda jókst fólks
fjölgunin í flestum löndum tals-
vert eftir lok styrjaldarinnar.
Aukin heilbrigði og fólksfjölgun
Heilbrigðisstofnunin hefir á-
beinlínis stuðlað að aukinni
fólksfjölgun með árangursríkri
baráttu gegn ýmsum mannskæð-
um sóttum, svo sem malaríu,
kóleru, pest o. fl. Hefir hún
þannig á örfáum árum bjargað
miljónum mannslífa, einkum í
Austurlöndum, en sízt hefir það
orðið til að bæta úr matvæla-
skortinum þar.
Sameinuðu þjóðirnar ráðgera
nú að boða til ráðstefnu á næst-
unni til að ræða ýmis vandamál
í sambandi við hina öru fólks-
fjölgun og verða þar væntanlega
lögð fram fyllri gögn um ástand-
ið í þessum efnum en nú er völ á.
—VÍSIR, 28. marz
1
Sendið engin meðöl tiI Evrópu
þangað til þér hafið fengið vora nýju verðskrá.
Skrlfift eftlr liinnl nýju 1953 veröskrií. seni nú or ú taktelnuin.
Verfi hjá oss er mlkiu lægrn en unnars stnðar í t'nnndn.
RIMIFON — $2.10 fyrir 100 töflur
STREPTOMYCIN — 50c grammið
Sent frú Kvrópn um vifia veroltl. Jafnvel austan júrntjalilslns. —
l*óstítjald innlfailð.
STARKMAN CHEMISTS
403 IU.OOU ST. WEST
TOROXTO
KAUPENDUR LÖGBERGS
Á ÍSLANDI
Gerið svo vel að senda mér sem fyrst greiðslu fyrir
yfirstandandi árgang Lögbergs, kr. 75.00. Dragið
ekki að greiða andvirðið. Það léttir innheimtuna.
Æskilegt að gjaldið sé sent í póstávísun. Þeir sem
eiga ógreidda eldri árganga, eru vinsamlega beðnir
að snúa sér til mín.
BJÖRN GUÐMUNDSSON
FREYJUGATA34.REYKJAVIK