Lögberg - 11.06.1953, Page 1

Lögberg - 11.06.1953, Page 1
Phone 72-0471 BARNEY'S SERVICE STATION NOTRE DAME and SHERBROOK Gas • Oil • Grease Tune-Ups Accessories 24-Hour Service Repain 66 ARGANGUR LÖGBERG, FIMMTUÐAGINN 11. JÚNÍ, 1953 NÚMER 24 Phone 72-0471 BARNEY'S SERVICE STATION NOTRE DAME and SHERBROOK Gas • OU • GrtaN Tune-Ups Accessories 24-Hour Service Repairs Campbellstjórn vinnur endurkosningu Fréttir fró ríkisútvarpi íslands 31. MAÍ Hon. Douglas Campbell Dr. S. O. Thompson Góðir gestir Hingað komu til borgarinnar í gær hr. Pétur Eggerz sendiráðu- nautur íslands í Washington og jafnframt ræðismaður, ásamt frú sinni Ingibjörgu Pálsdóttur Ólafs sonar ræðismanns; þau hjónin dveljast hér nokkra daga, en fara síðan suður til Mountain, N. Dak., en þar mætir Pétur sem fulltrúi af hálfu íslenzku ríkis- stjórnarinnar á 75 ára landnáms- hátíð íslenzku bygðarlaganna í North Dakota. Pétur er sonur Sigurðar heitins Eggerz rithöfundar og fyrrum forsætisráðherra og Solveigar frúar hans dóttur Kristjáns heit- ins Jónssonar dómsstjóra. Kóreumólin Nú hafa verið undirskrifaðir í Kóreu ' samningar um skipti stríðsfanga milli umboðsmanna sameinuðu þjóðanna annars veg- ar og kommúnista hins vegar, og eru nú taldar miklar líkur á að samkomulag um vopnahlé náist áður en langt um líður. Eins og vitað er, gerðu sam- einuðu þjóðirnar það að skilyrði fyrir vopnahlé, að engum stríðs- föngum yrði þröngvað til að fara til sinna fyrri heimkynna, er eigi vildu svo vera láta og nú hafa kommúnistar fallizt á þessa kröfu og það jafnframt, að sex þjóðum verði falin á hendur úr- lausn málsins. Forseti Suður- Kóreu, Syngman Rhee, er óður og uppvægur yfir þessari niður- stöðu og hefir í hótunum um það, að þjóð sín haldi áfram stríðinu ein ef Kórea verði ekki skilyrðislaust sameinuð í eitt ríki undir handleiðslu sinni. Við hinár almennu fylkiskosn- ingar. sem haldnar voru í Mani- toba síðastliðinn mánudag, gekk Campbellstjórnin sigrandi af hólmi og mun njóta álíka þing- fylgis eins og hún naut áður en þing var rofið; allir ráðherrarnir hlutu endurkosningu; tveir Social Credit frambjóðendur slysuðust inn á þing. Islendingarnir tveir, sem í kjöri voru, þeir Dr. S. O. Thomp- son í Gimli og Chris. Halldórsson í St. George, unnu glæsilega sigra hvor í sínu kjördæmi, en gagnsækjendur þeirra töpuðu tryggingafé sínu. Atkvæðatalningu í Winnipeg og nokkrum sveitakjördæmum er enn eigi að fullu lokið. Chris Halldórsson Þessar konur eiga sæti í fjár- söfnunarnefndinni, sem vinnur að 8 miljón dollara söfnun til barnaspítalans og viðbyggingu við Almenna sjúkrahúsið; mál þetta þolir enga bið og varðar allan almenning jafnt, og þess vegna verða allir að leggjast á eitt um framkvæmdir. Mrs. Harold Riley Mrs. L. J. Orlikow Horfur ó kosningasigri Á þriðjudaginn fóru fram kosningar til fylkisþingsins í British Columbia og eru taldar horfur á, að Social Credit flokk- urinn undir forustu Bennetts for- sætisráðherra, muni fá ákveðinn þingmeirihluta. Fróbær nómsmaður John Edward Spring B.Sc. Þessi efnilegi ungi maður lauk prófi við Manitobaháskóla í vor í Civil Engineering með ágætis- einkunn; hann er sonur Jóhanns G. Spring, Riverton, og konu hans, Svöfu Benediktsdóttur Jónssonar frá Hólum í Hjalta- dal. Vegna fjarlægðar frá skóla stundaði hann barnaskólanám hjá móður sinni, sem er kennari; síðan sótti hann miðskóla í Riverton og hlaut Hotelkeepers and Brewers verðlaunin, $350, er hann lauk þar námi; síðan inn- ritaðist hann í háskólann og fékk þessi verðlaun í 4 ár samfleytt — $400 síðari árin — fyrir frábæra námshæfileika og ástundun. — Auk þeirra hlaut hann í öðrum bekk háskólans McKechnie náms verðlaunin, $180, og Isbister verð launin, og að lokum California Standard Oil Co. námsverðlaun, $350 — alls sjö námsverðlaun. Hann er nú starfsmaður hjá þessu olíufélagi í Calgary, og hefir félagið kostað hann til framhaldsnáms um sumarmán- uðina við Pennsylvania há- skólann. íslenzkir hóskóla- nemendur hljóta verðlaun Lögfræði Erlingur Kári Eggertson, hæstur í þriðja bekk, hlaut Isbister námsverðlaunin $80 og Carson Co. verðlaunin, bækur, $20 virði. Pharmacy Allan A. Beck, hæstur í öðrum bekk, hlaut Isbister námsverð- laun $60. Civil Engineering Arnold B. Björnsson, hæstur í þriðja bekk, hlaut Isbister náms- verðlaun $80. Arts and Science Jón Sigurdson, hæstur í öðrum bekk, hlaut Marcus Hyman memorial námsverðlaun fyrir hæstu einkunn i Arts $80. Enn- fremur Isbister honorable mention. Andrea K. Sigurjónsson, Isbister námsverðlaun $80 í fjórða bekk. Merkur þingmaður lótinn Síðastliðinn sunnudag lézt af hjartaslagi Liberal-Prógressív þingmaður St. Rose kjördæmis í Manitobaþinginu, Mr. Dane McCarthy 75 ára að aldri, er átt hafði sæti á þingi síðan 1927. Hann naut frábærra vinsælda í héraði og var dáður af samþings- mönnum sínum vegna dreng- skapar og ráðhollustu. Mr. Mc- Carthy lézt daginn fyrir nýaf- staðnar fylkiskosningar og var þá í kjöri fyrir flokk sinn; vegna fráfalls hans fer fram aukakosn- ing í kjördæminu eins fljótt og því verður viðkomið. Joan Bergman hlutskörpust Junior Chamber of Commerce hér í borg hefir það á stefnuskrá sinni að auka ferðamanna- strauminn til fylkisins. í sam- bandi við þá viðleitni efndi verzlunarráðið til fegurðarsam- keppni meðal ungra stúlkna í fylkinu. Tólf stúlkur urðu fyrir valinu og komu þær fram á Red- River sýningunni á mánudags- kvöldið; þótti Joan Bergman glæsilegust þeirra allra og var krýnd fegurðardrotning. Verður hún fulltrúi borgarinnar á Min- neapolis Aquatennial í júlí. — Miss Bergman er kunn fyrir skautalist sína og hefir hlotið verðlaunapeninga í þeirri list. Stórslys af völdum fórviðris Fellibylur, sem nýverið geisaði yfir Michigan, Ohio og Massa- chusetts-ríkin í Bandaríkjunum hefir orðið þess valdandi, að um þrjú hundruð manns hafa týnt lífi, en margar þúsundir standa uppi án skýlis yfir höfuðið; eignatjón skiptir mörgum milj- ónum dollara. Fyrrum lögreglu- stjóri lótinn Á laugardaginn var lézt að heimili sínu á Vancouvereyju, Chris. H. Newton, fyrrum lög- reglustjóri í Winnipeg 82 ára að aldri; hann hafði verið í þrjátíu og þrjú ár í lögregluliði borgar- innar, en lögreglustjóri í fim- tán ár. Edvin Eric Stephenson, B.A. Þessi glæsilegi og ágæti náms- maður, Edvin Eric Stephenson, lauk nýverið Arts-prófi með fyrstu ágætiseinkunn við Uni- versity of Western Ontario; hann er sonur þeirra Mr. og Mrs. E. F. Stephenson að Morden, Man. Róðherrafundi lýkur Að lokinni krýningu Elízabet- ar drottningar hófst í London fundur, er allir forsætisráðherr- ar brezku samveldisþjóðana tóku þátt í; forsæti skipaði Sir Winston Churchill; mörg mál og mikilvæg voru tekin til umræðu á fundinum varðandi sameigin- lega hagsmuni hlutaðeigandi þjóða; mikið var um það rætt, að stofna til fjórveldafundar við fyrstu hentugleika, er Bretland, Frakkland, Rússland og Banda- ríkin stæðu að með það fyrir augum, að reyna að binda enda á kalda stríðið eða gera það að minsta kosti auðveldara við- fangs; var Sir Winston þess mjög fýsandi, að kvatt yrði til áminst fundar og lagði á það sérstaka áherzlu, að Rússland ætti þar erindreka. Tíðin hefir verið góð að undan- förnu, að vísu þurrkasamt um of, en um miðja vikuna fór að rigna og lifnaði þá óðar yfir öll- um gróðri og þykja góðar horfur um grassprettu. Sauðburður hef- ir víðast gengið vel, garðavinnu er að ljúka og j^rðræktarvélar teknar til starfa. ☆ Framboðsfrestur var útrunn- inn í vikunni og eru frambjóð- endur fleiri en nokkru sinni áður, enda hafa tveir flokkar komið til, síðan kosningar til al- þingis fóru fram síðast, haustið 1949. Þá voru 243 í framboði, en nú eru frambjóðendur 283. Einn maður bauð sig fram utanflokka, en tók aftur framboð sitt. Tveir flokkar, Sjálfstæðisflokkurinn og Sósíalistaflokkurinn, bjóða fram í öllum kjördæmum landsins, Framsóknarflokkurinn í öllum nema tveimur, Isafirði og Seyðis firði, — Alþýðuflokkurinn býður ekki fram í Dalasýslu, Norður- Múlasýslu og Skaftafellssýslu. Lýðveldisflokkurinn býður fram í þremur kjördæmum og Þjóð- varnarflokkurinn í 12. Allir flokkarnir bjóða fram í Reykja- vík. — Gefin voru út bráða- birgðalög um breytingu á kosn- ingalögunum frá 1942 á þá lund, að eldri stjórnmálaflokkarnir haldi þeim listabókstaf, sem þeir höfðu síðast, en listar nýrra flokka verði merktir í áfram- haldandi stafrófsröð eftir heiti þeirra. Samkvæmt þessu hefir Alþýðuflokkurinn A — Fram- sóknarflokkurinn B — Samein- ingarflokkur alþýðu — Sósíalista flokkurinn C — Sjálfstæðis- flokkurinn D — Lýðveldisflokk- urinn E og Þjóðvarnarflokkur- inn F. Lýðveldisflokkurinn einn hefir raðaðan landslista og er Ásgeir Ásgeirsson frá Fróðá þar efstur. Þessi framboð voru gerð kunn í vikunni: Alþýðuflokkurinn: Tveir efstu menn á lista flokks- ins í Suður-Múlasýslu eru Jón P. Emils héraðsdómslögmaður og Guðlaugur Sigfússon trésmiður, tveir efstu í ílangárvallasýslu Óskar Sæmundsson bóndi og séra Sigurður Einarsson, í — Norður-Þingeyjarsýslu Guð- mundur Erlendsson lögreglu- þjónn, og á Seyðisfirði Eggert G. Þorsteinsson múrari, en þeir Jón Sigurðsson og Jóhann Fr. Guðmundsson, sem áður höfðu boðið sig þar fram, afturkölluðu framboð sín. Efstu menn á lista Sósíalista- flokksins í Eyjafjarðarsýslu eru Þorvaldur Þórarinsson lögfræð- ingur og Friðrik Kristjánsson. Þessi framboð voru gerð kunn af hálfu Þjóðvarnaflokksins: í Borgarfjarðarsýslu Páll Sig- björnssop héraðsráðunautur, — 1 Snæfellsnessýslu Ragnar Pálsson bóndi, — í Norður-ísafjarðar- sýslu Brynleifur Steingrímsson stud. med. — á Akureyri Bárður Ðaníelsson skipaverkfræðingur, — í Suður-Þingeyjarsýslu Ingi Tryggvason kennari, — í Vest- mannaeyjum Hrólfur Ingólfsson bæjargjaldkeri, og efstu menn- irnir á lista Þjóðvarnarflokksins í Eyjafjarðarsýslu eru Stefán Halldórsson bóndi og Valdimar Jóhannsson ritstjóri. ☆ Vöruskiptajöfnuðurinn í apríl mánuði var óhagstæður um 38,3 miljónir króna. Inn voru fluttar vörur fyrir 77,9 miljónir króna, en út fyrir 39,5 miljónir króna. Fyrstu fjóra mánuði ársins var vöruskiptajöfnuðurinn við út- lönd óhagstæður um 112,5 milj- ónir króna. ☆ Viðskiptanefnd, sém falið hefir verið að undirbúa viðskipta- samninga við Ráðstjórnarríkin, lagði af stað í gær áleiðis til Moskvu. í nefndinni eru þessir menn: Pétur Thorsteinsson deildarstjóri í utanríkisráðu- neytinu, Helgi Pétursson for- stjóri, Ólafur Jónsson forstjóri og Bergur Gíslason forstjóri. ☆ Hershöfðingi Atlantshafs- bandalagsins Matthew B. Ridge- way og kona hans komu til Reykjavíkur á föstudagsmorgun á leið sinni til Parísar. Hélt hers- höfðinginn og fylgdarlið hans til Bessastaða í boði forsetahjón- anna, en þar voru fyrir utanríkis- ráðherra, landbúnaðarráðherra og viðskiptamálaráðherra og nokkrir gestir aðrir. Á hádegi hélt hershöfðinginn áfram ferð sinni til Parísar. ☆ Samband íslenzkra barnaskóla kennara heldur uppeldismála- þing í Reykjavík dagana 12. til 14. júní og verður þar rætt um íslenzkt þjóðerni og skólana. Er- indi flytja þeir Einar Ólafur Sveinsson prófessoe og dr. Broddi Jóhannesson. ☆ Menntamálaráðuneytið hefir skipað sjö manna nefnd til þess að endurskoða og gera tillögur um námsefni og námstíma í barna-, gagnfræða- og mennta- skólum. Nefndina skipa þeir Ólafur Björnsson formaður, Aðal steinn Eiríksson námsstjóri, Ágúst Sigurðsson cand. mag., Arngrímur Kristjánsson skóla- stjóri, Guðmundur Þorláksson cand. mag., Jón Sigurðsson borgarlæknir og Kristinn Ár- mannsson yfirkennari. Nefnd- inni er sérstaklega falið að endur skoða það námsefni, sem nú er lagt til grundvallar kennslu í áðurnefndum skólum og gera til- lögur um námsskrár fyrir hvert þessara fræðslustiga með tilliti til þess, að námsefnið sé við hæfi hvers fræðslustigs og kennslu- bækur svari þeim kröfum, sem gerðar eru til hverrar námsgrein- Framhald á bls. 8 Endurkosinn Árni G. Eggertson, Q.C. Svolátandi símskeyti barst Árna G. Eggertsyni, Q.C., frá Eimskipafélagi Islands á þriðju- daginn: „Aðalfundur Eimskipafélags íslands sendir yður beztu kveðj- ur og þakkir fyrir störf yðar í þágu félagsins fyrr og síðar. Fundurinn endurkaus yður í stjórn félagsins með 19,389 at- kvæðum.“ i

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.