Lögberg - 11.06.1953, Síða 8
I
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 11. JÚNÍ, 1953
Fréttir fré ríkisútvarpi íslands
Úr borg og bygð
Ungmenni fermd. í Argylepresta-
kalli sunnudagana 31. maí og 7.
júní:
Warren Lyngard Sigurdson
Sveinn Jónas Helgason
Stella Mae Fredriksson
Lorie Guðnason
Rosalie Guðnason
Myrno Lorraine ísberg
Dorothy Carol Christopherson
Christine Emily Helgason
Ungbörn skírð að Baldur
sunnud. þ. 7. júní:
Dorothy Mae Carlson
Charles Allan Carlson
Glenboro:
William Lloyd Gordon
Allan Philips.
☆
Gefið til Sunrise
Lutheran Camp
Kvenfélag Fyrsta lúterska
safnaðar, Winnipeg, $100.00.
Women’s Association, Fyrsta
lúterska safnaðar, Winnipeg,
$92.00.
Kvenfélag Selkirk-safnaðar
$50.00.
Junior Luth. Ladies Aid, Sel-
kirk $25.00;
Mrs. Halldóra Bjarnason, Win-
nipeg, $15.00.
Mrs. Magný Helgason, Winni-
peg, $5.00.
Glenboro Ladies Aid $8.75.
Með innilegu þakklæti
ANNA MAGNÚSSON
Box 296, Selkirk, Man.
☆
Þjóðrœknisdeildin FRÓN
tilkynnir hér með að bókasafn
deildarinnar lokast upp 24. þ. m.
Og mælist deildin til þess, að
allir þeir, smáir sem stórir, sem
hafa bækur að láni, muni eftir
að skila þeim í bókasafnið þann
dag eða fyr. Ef alt gengur að
óskum, verður máske á næstunni
skift um bókavörð, og er þá
nauðsynlegt að allar bækur séu
til staðar.
Fyrir hönd deildarinnar „Frón“
J. JOHNSON, bókavörður
☆
Paul B. Johnson frá Lundar,
Man., lézt á mánudaginn 1. júní,
69 ára að aldri. Hann fluttist til
þessa lands fyrir 62 árum. Hann
lætur eftir sig eiginkonu, Fjólu;
þrjá sonu, Paul, Donald og Cyril;
eina dóttur, Mrs. Walter Reyk-
dal; þrjár systur, Mrs. John
Björnsson, Mrs. W. Stinson og
Mrs. G. Downey; þrjá bræður,
Jóhann Þórarinn og Inga. — Út-
förin fór fram frá lútersku kirkj-
unni á Lundar á föstudaginn 5.
júní. Dr. V. J. Eylands jarðsöng.
☆
Sæmdar verðlaunapeningi
Á lokasamkomum miðskólans
á Gimli og eins miðskólans í
Selkirk voru tvær íslenzkar
stúlkur, er lokið hafa miðskóla-
námi, sæmdar gullverðlauna-
peningi landstjórans fyrir fram-
úrskarandi námshæfileika og
ástundun, þær Donna Mae Ein-
arsson, Gimli, eg Joan Erickson,
Selkirk.
ALMANAK 1953
Ólafur S. Thorgeirsson
INNIHALD
Almanaksmá.nuðir, um
tímatalið veBurathuganir
og fleira ................1
Hinn nýi forseti fslands,
eftir Richard Beck ......21
Á Innflytjendahúsi fyrir
fimmtíu árum,
eftir séra SigurS ólafsson ....28
Landnámsþættir íslendinga í
Spy Hill, Gerald og
Tantallonbygg8um,
eftir Richard Beck ......38
Skógar-Björn (Björn
Magnússon),
eftir G. J. Oleson ......45
Kvæji me8 forspjalli,
eftir Guttorm J.
Guttormsson .............53
Til Skúla Hrútfjör8,
eftir Arna G. Eylands ...55
Nokkur sendibréf frá Jóhanni
Magnúsi Bjarnasyni tíl
Kyjólfs S. GuSmundssonar 71
Þrjú kvæSi, eftir
Kyjólf S. GuSmundsson ....71
Helztu viSburðir meóal
Vestur-íslendinga ........75
Mannalát ..................87
Verð 75c
Thorgeirson Company
532 Agnes Sl. Winnipeg
Hlustið á íslenzku útvarps-
skrána á fimtudagskveldið kl.
8.30— 9,30 (Stanard Time), kl.
9.30— 10.30 (Daylight Saving
Time) frá C.K.Y. Winnipeg.
☆
Mr. Barney Benson, efnafræð-
ingur hjá Sherritt-Gordon námu-
félaginu í Ottawa, kom flugleiðis
til borgarinnar á laugardaginn,
heimsótti móður sína, Mrs. B. S.
Benson, og hélt áfram til
Edmonton, Alta, á mánudaginn í
erindum félagsins.
☆
Silfurbrúðkaups minst
Dr. Jack Jackson og Mrs.
Jackson (Gústa) frá Essondale,
B.C., komu til borgarinnar fyrir
tveim vikum í heimsókn til móð-
ur Mrs. Jackson, Mrs. A. G. Pol-
son og systkina og vandamanna.
Þau áttu 25 ára brúðkaupsafmæli
á krýningardaginn 2. júní. í til-
efni þess efndu móðir og syst-
kini Mrs. Jackson til kveldverðar
boðs á Marlborough hóteli þann
dag og gáfu hjónunum fagurt
silfur tesett og silfurbakka til
minningar um daginn. — Á
sunnudaginn bauð Mrs. A. G.
Polson stórum hóp vina og vanda
manna í kaffiboð á heimili dótt-
ur hennar og tengdasonar, Mr.
og Mrs. Paul Goodman, Gould-
ing St. í heiðursskyni við Jack-
sons hjónin. — Dr. Jackson mun
sitja Canadiska læknaþingið hér
í borg, og dvelja þau hjónin hér
næstu tvær vikur.
☆
Veitið athygli!
Aldraður íslenzkur maður ósk-
ar eftir fæði og húsnæði hjá ís-
lenzkri fjölskyldu í hlýju húsi
þar sem ekki eru aðrir vistmenn
Samgöngumál Grímseyinga
hafa löngum verið eitt erfiðasta
vandamál eyjarskeggja. Nú á
síðustu árum hafa að vísu verið
reglubundnar póstferðir þangað,
en þær eru strjálar, og allskostar
ófullnægjandi, segjum t. d. ef
slys bera að höndum. Póstbátur-
inn frá Akureyri kemur þangað
hálfsmánaðarlega á sumrin, en
á þriggja vikna fresti á veturna.
Grímseyingar hafa skiljanlega
mikinn hug á að ráða bót á þessu,
og þá helzt með því að koma upp
Lugvelli á eynni. Vinna þeir nú
að því máli af kappi, og eru tveir
fulltrúar þeirra staddir hér í
bænum af því tilefni. Eru það
þeir Magnús Símonarson, hrepp-
stjóri og íli Bjarnason, hrepps-
nefndarmaður í Grímsey. Blaðið
átti stutt viðtal við þá félaga í
gær.
Skortir fjármagn
— Erindi okkar hingað suður,
segja þeir, er að fá stuðning til
að hrinda flugvallarmálinu í
framkvæmd, ef þess er nokkur
kostur. Við höfum þegar rætt við
flugvallarstjóra og flugmálaráð-
herra. Hafa þeir báðir tekið mála
leitan okkar vel, þótt að á þessu
stigi málsins sé ekki hægt að
segja um, hvað úr verður, þar
sem enn er ekki vitað um, hvern-
ig gengur með útvegun fjár-
magns til framkvæmdanna.
Kostar um 250 þús. kr.
— Hafið þið lengi unnið að
þessum málum?
— Okkur hefir að sjálfsögðu
lengi dreymt um að fá flugvöll,
en skriður komst ekki á málið
fyrr en fyrir tveimur árum, og þá
var. það Akureyringur, Árni
Bjarnason, bókaútgefandi, sem
átti frumkvæðið. Við höfum síð-
an reynt ýmsar leiðir, en gengið
hægt til þessa. Eyjafjarðarsýsla
hefir heitið 10 þús. krónum,
Grímseyingar sjálfir 10 þús. og
KEA 5 þús. Auk þess hafa feng-
izt loforð fyrir 20 þús. kr. að
láni. En þetta hrekkur skammt,
þar sem áætlað er að völlurinn
kosti alls um 250 þús. krónur. —
Yrði hann ein braut 800 m. löng.
Mesta hagsmunamálið
— Við teljum að flugvöllur sé
utan fjölskyldunnar. Er heilsu-
góður og mun greiða ríflega fyrir
ákjósanlegan verustað. — Upp-
lýsingar á skrifstofu Lögbergs.
☆
Látinn er í Reykjavíkurbygð
við Manitobavatn, Ingimundur
Ólafsson 74 ára að aldri, góður
drengur og vinsæll; hann verður
jarðsunginn á föstudaginn af
séra Philip M. Péturssyni.
☆
Mr. Sveinn Oddson er nýkom-
inn heim eftir. fimm vikna
skemmtiferð um Bandaríkin;
kom hann við í Minneapolis,
Minnesota, New York og Wash-
ington, D.C.
☆
28. maí s.l. lézt að heimili sínu
að Gimli rúmlega áttræð kona
að nafni Oddný Johnson. Hún
var talin fædd að gröf í Mikla-
holtshreppi í Snæfellsnessýslu.
Hún kom vestur um haf nálægt
aldamótum, og átti heima á ýms-
um stöðum í Saskatchewan;
síðan mörg ár í Winnipeg, og nú
síðustu tíu árin að Gimli. Gift
var hún Vilhjálmi Johnson, sem
nú er látinn. Hún lætur eftir
sig eina dóttur, Mrs. Lillie A.
Thompson í Regina, Sask., og
frænku, Mrs. Walter Christian-
son, Dickens, P.O., Man. Útfarar-
athöfn fór fram frá útfararstofu
Bardals á þriðjudag 2. júní, og
jarðsetning sama dag í Lundar-
grafreit.
☆
Gjöf til Betel, úr dánarbúi
Kristjáns Einarssonar á Auðnum
við Gimli, $1000.00.
Innilegustu þakkir.
Fyrir hönd Betelnefndar,
S. M. Backman, féhirðir
svo mikilvægt atriði fyrir okkar
fámennu og afskekktu byggð, að
ekkert annað komist þar nærri,
halda Grímseyirtgarnir áfram. —
Við munum því ekkert láta ógert,
er verða má máli þessu til stuðn-
ings. Auk okkar nota af vellin-
um getur hann og orðið til mik-
illa bóta við síldarleitarflug.
— Hafa flugvélar aldrei komið
til Grímseyjar?
— Jú, sjóflugvélar hafa þrisv-
ar lent við eyna og helekopter-
flugvél heimsótti okkar s.l.
sumar.
Eyjan hefir aðdráttarafl
— Þá er og eitt atriði, sem ef
til vill skiptir ekki miklu máli í
þessu sambandi, en það gefur
auga leið að með auknum sam-
göngum má búast við að
skemmtiferðafólk leggi allmikið
leið sína til eyjarinnar. Heims-
skautabaugurinn liggur sem
kunnugt er yfir Grímsey og mið-
nætursólin sést þar í 3—4 vikur.
Er þá fagurt mjög í eynni og land
sýn oft stórkostleg.
70 íbúar
— Hvað eru íbúar eyjarinnar
nú margir?
— Þeir eru um 70. Á árunum
1945—1949 fluttu um 50 burtu,
en síðan má segja að tala Gríms-
eyinga hafi verið óbreytt.
Góður vetur
— Hvernig var veturinn hjá
ykkur?
— Veður hefir yfirleitt verið
prýðilegt í allan vetur. Fram að
áramótum voru ágætar gæftir og
afli góður. Síðast í marz var farið
að grænka, en þá kom kuldakast
hjá okkur eins og annars staðar
hérlendis. Mikinn snjó hefir þó
ekki fest, þar sem snjólétt er í
Grímsey. Brá okkur sannast
sagna í brún, er við sáum, hve
mikil fönn var á Akureyri.
☆
En nú er það flugvöllurinn,
sem efst er í huga Grímseyinga.
Þeir vilja helzt geta byrjað
framkvæmdir á þessu sumri.
Vonandi verður þeim vel ágengt
með þetta mikla hagsmunamál
sitt.
Mbl., 23. apríl
Framhald af bls. 1
ar. Nefndin skal ennfremur at-
huga, hvort mögulegt sé að
stytta námstímann án þess að
dregið sé úr nauðsynlegri og æski
legri fræðslu.
☆
Menntaskólanum að Laugar-
vatni var slitið á fimmtudaginn.
Þar voru 55 reglulegir nemendur
í vetur. Stúdentspróf var ekki
þreytt að þessu sinni nema sá
hlutinn, sem tekinn er upp úr
bekkjum. — Kennaraskólanum
var slitið á föstudaginn og voru
24 brautskráðir úr fjórða bekk
með almennu kennaraprófi og 14
úr stúdentadeild. Handavinnu-
kennaraprófi luku 23 og tveir
söngkennaraprófi. 1 gærmorgun
fóru 28 nemendur skólans í ferða
lag til Noregs og dveljast þar
nokkurn tíma.
☆ ■
Nýlega var haldinn aðalfund-
ur Kaupfélags Árnesinga. Heild-
arvörusala félagsins á s.l. ári
nam 42 miljónum króna. Tala
félagsmanna í árslok var 1724,
Hermanía
Björnsson
4. október 1878 — 25. maí 1953
Þann 25. maí síðastliðinn and-
aðist í Minneapolis, Minn., ung-
frú Hermanía Björnsson 74 ára
að aldri. Hún var fædd 4. október
1878 á Selstöðum í Seyðisfirði í
Norður-Múlasýslu. — Foreldrar
hennar voru Björn Hermannsson
og Rannveig Stefánsdóttir, er
lengi bjuggu á Selstöðum. Her-
manía sál. kom til þessa lands
(Bandaríkjanna) og settist að í
Mineapolis árið 1901, og átti þar
heima jafnan síðan. Hún var vel
greind og mjög bókhneigð. Hún
stundaði kjólsaum í mörg ár. Er
hún þreyttist á því verki tók
hún upp matreiðslu og var í
mörg ár forstöðukona við eina
deild matreiðslu (desserts) á
Glen Lake tæringarhæli í grend
við Minneapolis.
Fyrir fjórtán árum tók Her-
manía sál. það að sér, að sjá um
aldraða konu, og stundaði hún
hana öll síðustu ár ævinnar; hún
heitir Mrs. Spafford og býr í
Minneapolis. Hún lifir Hermaníu
og er nú orðin 92 ára. Þar áður
ól hún upp systurson sinn, sem
hún tók sex ára gamlan og sá
um hann þangað til hann náði
fullorðinsaldri og gat unnið fyrir
sér. Hann dó fyrir nokkrum
árum.
Um nokkur undan farin ár var
hún heilsutæp mjög, en þrátt
fyrir það hjúkraði hún öldruðu
konunni, en hefði oft sjálf þurft
hjúkrunar með.1 Með mikilli alúð
og nærgætni sá hún um hina
öldnu konu, og gerði sem minst
úr sinni eigin vanheilsu.
Hermaníu lifa ein systir, Mrs.
Cecilia Johnson, ekkja Árna sál.
Johnson, sem bjó um margra ára
skeið í Winnipeg. Hún býr nú í
Chicago hjá syni sínum þar. Og
tveir bræður, Sveinn í Seattle og
Sigurður á Akranesi á Islandi.
Kveðjuathöfn fór fram frá
Werness útfararstofu í Minne-
apolis, og eftir ósk hennar, var
líkið flutt á líkbrennslustofu þar.
LANDNÁMSHÁTÍÐIN
Á MOUNTAIN
Á mánudaginn kemur þann
15. þ. m., verður haldin sögurík
hátíð að Mountain, North Dakota,
í tilefni af 75 ára landnámsaf-
mæli íslenzku bygðarlaganna í
North Dakotaríkinu.
Kl. 11 f. h. verður krýnd
drottning hátíðahaldsins, Miss
Margaret Thorlakson. Kl. 1,30
hefst aðalskemtiskrá; ræðumenn
verða Dr. Beck og Snorri Thor-
finnsson. Söngflokkur og ein-
söngvar. Að lokinni krýningu fer
fram söguleg skrúðganga. Um
kvöldið söguleg hátíðarsýning.
Minnist þessara fögru bygða
með því að fjölmenna á afmælis-
hátíð þeirra!
og hjá félaginu starfa 192 menn
samtals.
*
Sendinefnd frá Ráðstjórnar-
ríkjunum kom til Reykjavíkur á
Hvítasunnudag í boði félagsins
Mír. í nefndinni eru lista- og
vísindamenn, meðal þeirra ann-
ar forstjóri erfðafræðistofnunar-
innar í Moskvu, óperusöngvarinn
Pavel Lisítsían frá Stóra leik-
húsinu í Moskvu og píanóleikar-
inn Tatjana Kravtsenko. Óperu-
söngvarinn og píanóleikarinn
hafa haldið hljómleika í Reykja-
vík og Hafnarfirði.
☆
Séra Friðrik Friðriksson átti
85 ára afmæli á mánudaginn var
og heimsóttu hann þá hundruð
manna, m. a. forseti Islands og
biskupinn. Afmælishátíð var
haldin á vegum Kristilegra fé-
laga ungra manna og kvenna og
flutti séra Bjarni Jónsson vígslu-
biskup ræðu og ávarpaði séra
Friðrik, er svaraði og þakkaði
handleiðslu guðs og vináttu
mannanna. Séra Friðrik var
stofnandi Kristilegs félags ungra
manna í Reykjavík 1899, hefir
dvalist langdvölum erlendis og
þar og heima starfað fyrst og
fremst meðal æskunnar. Sigur-
jón Ólafsson myndhöggvari hefir
gert mynd af séra Friðrik, sem
steypt verður í eir og reist í
Reykjavík.
☆
Frjálsíþróttamót K.R. hófst í
Reykjavík í gær, á sextugasta af-
mælisdegi formanns félagsins
Erlends Ó. Péturssonar. Þar
keppti sænski stangarstökkvar-
inn Ragnar Lundberg við Torfa
Bryngeirsson og fóru leikar
þannig, að Lundberg vann,
stökk 4,20 metra, en Torfi 4,10.
☆
Ákveðið hefir verið, að Islands
meistaramót karla í frjálsum í-
þróttum verði háð á Akureyri
um miðjan ágúst. — Islandsmót
meistaraflokks í knattspyrnu fer
fram í Reykjavík og hefst á föstu
M ESSUBOÐ
Fyrsta lúterska kirkja
Séra Valdimar J. Eylanda
Heimili 686 Banmng Street.
Sími 30 744.
Guðsþjónustur á hverjum
sunnudegi:
Á ensku kl. 11 f. h.
Á íslenzku kl. 7 e. h.
☆
Lúterska kirkjan í Selkirk
Sunnud. 14. júní:
Ensk messa kl. 11 árd.
Sunnudagaskóli á hádegi
íslenzk messa kl. 7 síðd.
Sunnud. 21. júní:
Ensk messa kl. 11 árd, undir
umsjón Sunnudagaskólans. At-
tendance rewards.
Stutt ávarp flutt af presti
safnaðarins.
Engin kvöldmessa.
Fólk boðið velkomið.
S. Ólafsson
☆
— Argyle Prestakall —
Séra J. Fredriksson, prestur
Sunnudaginn þ. 14. júní:
Baldur, messa kl. 11 f. h.
Brú, messa kl. 2 e. h.
Glenboro, messa á íslenzku kl.
7 e. h.
Það verða engar messur í
Argyle-prestakalli sunnudagana
þ. 21. og þ. 28. júní.
daginn kemur, og seint í þeim
mánuði verður háður landsleik-
ur í knattspyrnu við Austurríkis
menn.
BARLEY CONTEST ON FOR1953
Encouraged by improvements in quality of west-
ern barley since the brewing and malting industry
sponsored the first National Barley Contest in 1946, di-
rectors of the Barley Improvement Institute have de-
cided to continue the competition this year.
The contest in 1953, as it was in 1952, will be con-
fined to growers in Manitoba and Alberta.
The Saskatchewan Malting and Improvement Com-
mittee has again decided that the funds which ordinar-
ily would go to Saskatchewan winners in the compe-
tition will again be used for fertilizer and cultural ex-
periments, and demonstrations at the university at
Saskatoon, the barley nursery at Tisdale, and such
other points as the Committee may decide.
As was the case in other years, each province will
be divided ’into two regions. The three top winners in
each region will automatically compete in the respect-
ive provincial contests. The two top winners in each
province will automatically compete for the major
interprovincial prizes of $500 for first and $300 for
second. In addition to seven cash prizes in each region,
there will be three provincial prizes of $200, $150 and
$100.
In view of the fact that services of elevator operat-
ors are important agencies for handling and shipping
malting barley, a prize of $50 in each province will
aagin be awarded the operator who handles and ships
the first prize entry.
Again the contest is a carlot competition. Contest-
ants have to enter a minimum carload of 1,667 bushels
of one of three eligible varieties of malting barl«y,
, Montcalm, Olli, or O.A.C. 21.
%
The contest is open to any bona fide farmer in a
malting barley area except that winners of the first
place interprovincial award in previous contests will
not be eligible.
Entry forms will be available from local elevator
opreators.
This space contributed by
BREWERÍ PRODUCIS LTD.
MD-335
Flugvöllur mesta hagsmuna
mól Grímseyinga