Lögberg - 01.10.1953, Blaðsíða 1
Phone 72-0471
BARNEY'S SERVICE STATION
NOTRE DAME and SHERBROOK
Gas - Oil - Grease
Tune-Ups
Accessories 24-Hour Service
Repáirs
Phone 72-0471
BARNEY'S SERVICE STATION
NOTRE DAME and SHERBROOK
Gas - Oil - Grease
Tune-Ups
Acccssories 24-Hour Service
Repairs
66. ÁRGANGUR
WINNIPEG, FIMMTUDAGINN, 1. OKTÓBER, 1953
NÚMER 40
Höfðinglegt
dagverðarboð
Á mánudaginn bauð Arni G.
Eggertson, Q.C., allmörgum
mönnum til dagverðar í Royal
Alexandra hótelinu til heiðurs
við séra Einar Sturlaugsson, sem
nú er að hverfa heim til ætt-
jarðarinnar eftir tveggja mán-
aða dvöl vestan hafs. Dr. Valdi-
mar J. Eylands flutti borðbæn,
en að því loknu bauð Mr.
Eggertson gesti sína velkomna
með hlýjum og drengilegum
orðum, og bað heiðursgestinn
fyrir hönd sína og fjölskyldu
sinnar, að skila kveðju til Islands.
Dr. P. H. T. Thorlakson, for-
maður nefndarinnar í íslenzka
kenslustólsmálinu ávarpaði séra
Einar með fögrum orðum, þakk-
aði hina veglegu gjöf hans til
bókasafnsins og göfugt starf
hans í þágu þjóðræknismála
okkar vestan hafs.
Veizlustjóri afhenti því næst
heiðursgesti vönduð ritáhöld
með viðeigandi áletrun.
Séra Einar þakkaði veizluna
og gjöfina með svo glæsilegum
og kröftugum orðum, að við-
stöddum munu þau seint úr
minni líða; þetta var ánægjuleg
og þakkarverð samverustund.
Hér fara á eftir nöfn þeirra, er
Mr. Eggertson bauð tjl dag-
verðarins:
P. H. T. Thorlakson, M.D. L.L.D.
114 Grenfell Blvd.,
Tuxedo, Man.
Rev. Dr. V. J. Eylands,
686 Banning Street,
Winnipeg, Man.
Rev. Philip M. Pétursson,
681 Banning Street.,
Winnipeg, Man.
Judge W. J. Líndal,
788 Wolseley Ave.,
Winnipeg, Man.
L. A. Sigurdson, M.D.,
104 Home Street,
Winnipeg, Man.
Próf. Finnbogi Guðmundsson.
Ste. 30 Cavell Apts.,
Winnipeg, Man.
G. L. Johannson,
Consul of Denmark and Iceland,
76 Middlegate,
Winnipeg, Man.
E. P. Jónsson,
Ste. 12 Acadia Apts.,
Winnipeg, Man.
J. K. Laxdal,
38 Home Street,
Winnipeg, Man.
S. E. Björnson, M.D.,
Miniota, Man.
Próf. T. J. Oleson,
484 Montague,
Winnipeg, Man.
Walter Johannson,
Pine Falls, Man.
Próf. Áskell Löve,
Ste. 4, 636 Gertrude Ave.,
Winnipeg, Man.
Gísli Jónsson,
124"Middlegate,
Winnipeg, Man.
Stefán Einarsson,
Ste. 12 Tremont Apts.,
Winnipeg, Man.
Mr. G. Levy,
185 Lindsay Street,
Winnipeg, Man.
SNÆFELLSJÖKULL efíir Jóhannes Kjarval
Þau Lalah og Grettir L. Jóhannson ræðismaður gáfu Manitobaháskóla fyrir skömmu
málverk þetta, og hangir það nú í íslenzku lestrarstofunni í hinu nývígða bókasafni
háskólans. — Færir háskólinn þeim hjónum beztu þakkir fyrir hina fallegu ,gjöf.
Yfir 170 jarðhræringar í Reykjavík og
nágrenni á 8 sólarhringum
En flestar hafa verið svo vægar,
að þær hefðu varla mælzt á
gömlu mælana
Jarðhræringar hafa verið
ákaflega tíðar hér á Suð-
vesturlandi síðan 20. ágúst
síðastliðinn. Hafa þær verið
svo margar, að slíks eru fá
eða engin dæmi áður á jafn-
stuttum tíma. Fyrstu jarð-
hræringarnar urðu um kl. 11
20. ágúst og næstu tvo sólar-
hringa voru næstum því
stöðugir kippir. — Jarð-
skjálftamælar veðurstofunn-
ar mældu alls 166 kippi frá
20. ágúst til kl. 17 22. ágúst.
Upptök þessara jarðhræringa
voru talin vera í Hveragerði eða
þar í nánd. Síðan 22. ágúst hafa
til viðbótar mælst 5 kippir, þar
a f tveir í fyrrinótt. Upptök
þessara síðustu jarðhræringa eru
talin vera mjög nálægt Reykja-
vík, en ekki er hægt að ákveða
það nánar.
Engir þessara jarðskjálfta
voru harðir.
Mjög vægar hræringar
Eysteinn Tryggvason veður-
fræðingur skýrði Alþýðublaðinu
svo frá, að svo vægar hefðu þess-
ar jarðhræringar venð, að hann
efaðist um að hinir gömlu jarð-
skjálftamælar veðurstofunnar
hefðu náð nema helmingi þeirra,
en eins og kunnugt er, hefir
veðurstofan fengið nýja og
miklu fullkomnari jarðskjálfta-
mæla en hún hafði áður.
Samkvæmt samtali, sem Al-
þýðublaðið átti við fréttaritara
sinn í Hveragerði í gær, fundust
kippir þar í fyrrinótt, en aðeins
þeir menn urðu kippanna varir,
er voru vakandi.
—Alþbl., 29. ágúst
Flýgur fjöllunum
hærra
Sá orðrómur hefir nýverið
komist á kreik og flýgur 1 raun-
inni fjöllunum hærra, að Lav-
renti Beria, fyrrum formaður
leyniþjónustunnar rússnesku og
varaforsætisráðherra um nokk-
urt skeið eftir að Malenkow
kom til valda að Stalín látnum,
hafi sloppið úr klóm rússneskra
yfirvalda, en hann féll sem
kunnugt er í ónáð hjá Malen-
kow og var sakaður um land-
ráð; nú hermir ein ritning að
Beria hafi orðið vart í Suður-
Ameríku, en önnur ritning að
honum hafi skotið upp á Spáni;
hvort nokkur flugufótur sé fyrir
fregnum þessum er enn eigi
vitað.
Sosíal-Demókratar
vinna á
Sunnudaginn 20. september
síðastliðinn fóru fram almennar
kosningar til þjóðþingsins í Dan-
mörku og urðu úrslit á þann veg,
að Sosíal-Demókrötum jókst það
mikið kjörfylgi, að sýnt þykir að
þeim verði falin ráðuneytis-
myndun á hendur; leiðtogi
flokksins er Hans Hedtofte. —
Undanfarin fjögur ár hefir
hægrimannastjórn farið með
völd í landinu.
Leiðrétting
Láti nokkur sig varða, sem vart mun koma til mála, áttu tvær
fyrstu línur þriðja erindis í kvæðinu Stiklað á steinum. sem
birtist í Lögb. og Heimskr. nýlega, að hljóða þannig:
Brjóstvits rauðablásturs var
bezta járn á steðja þar, (o. s. frv.).
Athugasemd
Eg lít svo á: ei lítil sé sú mentun
sín ljóð að kunna að búa undir prentun.
Að skrifa rangt eg fyrst og framast kunni,
svo fengi eg það rétt í prentvillunni.
Simitra
, »**•» <>■> &***»
BrimáktlnaUt Wtim
HSÓCVlUiNM
íöobcra
i *&*ih*tm
SKIKNIR
*$■****
H' tma ' rU ftd'- • !U.I)SUHUKi.ú'l
n.:
,■ 'i pj SÍJFÍ
Á myndinni sjást nokkur sýnishorn úr blaða- og tímaritagjöf sr. Einars Sturlaugssonar.
En blöðunum og tímaritunum hefur nú verið kom.ð fyrir í hinu nýja háskólabókasafni.
Sést örlítill hluti þeirra í hillunum öðrum megin á myijþinni. — Heiðursskjal það, er
sr. Einari var afhent við vígsluathöfnina verður birt ljósprentað í næsta blaði.
Stökur
Eg verst ekki skemdum í veröld hér,
hve vel sem eg reyktur og saltaður er,
og hvað sem er geipað um góðtemplarsmus,
þá geymist eg langbezt í spíritus.
Altaf hækkar aldur minn,
er það framför bezta.
Ungur að verða í annað sinn:
afturför — hin versta.
Adam dottinn dreymdi á túr
dáinn brott hann svifi,
* skóp þá drottinn Evu úr
einu hans brotna rifi.
Adam faðir Evu var og Evu móðir
eiginmaður Evu og bróðir.
eða
Adam faðir Evu var og Evu móðir,
eiginmaður Evu, þar að auki bróðir.
Um ungfrú Irene Guttormsson
Sem hálsar á öræfa álftum tveim
sjást armar á flugi með strengjahreim,
þá hoppandi nóturnar fyrir framan.
Og söngguði veglega færa þeir fórn,
svo fagurt er syngja’ undir þeirra stjórn
þær Kolbrún og Mjallhvít — margar saman.
Guttormur J. Guttormsson
Kveðjusamsæti
Þjóðræknisféiagið efndi til
samsætis á heimili Mr. og Mrs.
G. L. Johannson, 76 Middlegate
á sunnudagskveldið til að kveðja
hinn góða gest frá íslandi, séra
Einar Sturlaugsson, prófast, er
lagði af stað heimleiðis í gær.
Auk Þjóðræknisfélagsnefndar-
innar og íslenzku háskólastóls-
nefndarinnar varu þar viðstadd-
ir fulltrúar íslenzku félaganna í
bænum, íslenzku blaðanna, tíma
ritanna og íslenzku prófessor-
anna við Manitobaháskólann.
Grettir konsúll bauð gestina
velkomna með nokkrum hlýjum
orðum og tók síðan forseti Þjóð-
ræknisfélagsins, Dr. V. J. Ey-
lands við veizlustjórn, þakkaði
hann séra Einari fyrir hið mikla
þjóðræknisstarf, sem hann hefir
innt af hendi síðan hann kom
vestur, með því að heimsækja
flestar íslenzku byggðirnar,
flytja fyrirlestra, sýna íslands-
myndir og prédika í íslenzku
kirkjunum. Afhenti hann séra
Einari að gjöf frá félaginu
vandaða ferðatösku og alt
Tímarit Þjóðræknisfélagsins frá
byrjun. Walter J. Líndal, forseti
Icelandic Canadian Club, ávarp-
aði gestinn hlýjum orðum og
Axel Vopnfjörð, aðalritstjóri
Icelandic Canadian ritsins, færði
honum ritið alt ásamt skrautrit-
uðu ávarpi frá félaginu. Mrs. B.
S. Benson, forseti Jóns Sigurðs-
sonar félagsins, I.O.D.E., árnaði
gestinum heilla og gaf honum
fyrir hönd félagsins Minmngar-
rit íslenzkra hermanna, einnig
ritið Árdís frá upphafi frá
Bandalagi lúterskra kvenna. Dr.
Rúnólfur Marteinsson og Finn-
bogi Guðmundsson prófessor
mæltu og hlýlega til gestsins.
Séra Einar þakkaði með fögr-
um orðum hinar hlýju viðtökur,
er hann átti hvarvetna að fagna
vestan hafs, og fyrir gjafirnar
allar. Þá voru framreiddar
rausnarlegar veitingar, og þakk-
aði Dr. Valdimar húsráðendum
fyrir gestrisnina á hinu vin-
gjarnlega heimili þeirra, bað
gestinum blessunar og árnaði
honum góðs brautargengis.
MUNIÐ LÍKNARSAMLAGIÐ
Nú er hafin fjársöfnun í sjóð
Líknarsamlags Winnipeg. Þörfin
er mikd; minnist þess að kornið
fyllir mælirinn.
Nýliðar á
fylkisþingi
Þegar fylkisþingið í Manitoba
kemur saman til funda í vetur,
verður þar að finna 17 nýliða,
fjóra íhaldsflokksmenn, einn
C.C.F., tvo Social Credit, einn
utanflokka og níu Liberala; þess-
ir eru nýliðar af hálfu Liberala:
F. M. Ferg, Cypress; M. R.
Sutherland, Landsdowne; F.
Roy Brown, Rupertsland; Roger
Teillet og L. R. Fennell, St.
Boniface; Stanley Copp, St.
Clements; Gildas L. Milgat, Ste.
Rose; Jack St. John, Winnipeg
Centre, og Alex Turk, Winnipeg
North.
Hinir nýju íhaldsmenn eru
þessir: J. A. Ross, Arthur; H. B.
Scott, Winnipeg Centre; Gurney
Evans, Winnipeg South, og J. W.
M. Thompson, Virden. — Til
Social Credit teljast W. L. Bull-
more, Dauphin, og Gilbert A.
Hutton, Minnedosa. — Nýliði
C.C.F.-sinna er A. Russell
Pauley, Kildonan—Transcona,
en utanflokka Steve Juba, Win-
nipeg Centre.